Filtrer par genre
- 196 - #152 - Bjarni Ármannsson
Bjarni Ármanns er tölvunarfræðingur að mennt og starfar sem fjárfestir í dag. Hann rekur æskuárin á Akranesi en þrálát heilahimnubólga varð til þess að hann dró sig í hlé frá sjósókn, félagslífi og fótbolta en lærði í stað þess útsaum og las bókmenntir. Í örlagaríkri útskriftarferð nokkrum árum seinna sást til Bjarna prútta á götumörkuðum í Tælandi sem varð til þess að honum var boðin staða í bankageiranum en hann vann sig hratt upp á þeim vígvelli og var orðinn bankastjóri Íslandsbanka fyrir þrítugt.
Við köfum í þennan persónulega og þjóðfélagslega uppgang sem átti sér stað um aldamótin en Bjarni gerir vel grein fyrir aðstæðum sem Íslendingar bjuggu við í stöðnunarhagkerfinu hér á árum áður. Bjarni á sér viðburðarríkt líf utan vinnu en hann er fjögurra barna faðir, hefur m.a. klifið Everest, hlaupið maraþon undir þremur tímum margsinnis (54 ára!), klifið 100 hæstu tinda Íslands, 7 hæstu tinda hverrar heimsálfu og aldrei ýtt á snooze takkann.
Fri, 01 Dec 2023 - 3h 30min - 195 - #151 - Baldvin Þór Magnússon, besti íþróttamaður sem Íslendingar vita ekki að þeir eiga
Baldvin Þór er Íslandsmethafi í 1.500m, mílu, 3.000m, 5.000m og 10km - með öðrum orðum: hann á Íslandsmetið í öllum þeim greinum sem hann reynir fyrir sér í, aðeins 23 ára gamall! Fáir hafa heyrt Baldvins getið en hann flutti ungur til Bretlands og þaðan yfir til Bandaríkjanna í háskólanám á íþróttastyrk. Þrátt fyrir erfitt fyrsta ár var Baldvin valinn verðmætasti keppandinn á svæðismótum og þrefaldur svæðismeistari. Stefnan er sett á Ólympíuleikana á næsta ári og við ræðum andlegu og líkamlegu áskoranirnar sem fylgja því að keppa á efsta stigi íþrótta, æfinga- og næringahluta hlaupanna, hvað Baldvin gerir og hvað hann gerir ekki til þess að hámarka árangur og auka líkurnar á því að komast til Parísar 2024.
Tue, 07 Nov 2023 - 2h 09min - 194 - #150 - Einar Sigurjónsson, þráhyggja fyrir þríþraut og leiðum til að bæta sig
Einar ,,Latsi'' Sigurjónsson er sjúkraþjálfari með þráhyggju fyrir þríþraut. Þó áhugi þinn á þríþraut og þolíþróttum nái ekki jafn langt og Einars þá talar hann hér um hluti sem varða heilsu allra og hvernig er hægt að bæta þá/nýta sér þá til að bæta sig: fitubrennsla, nýting kolvetna, zone 2 æfingar, carbon skór og heimsmet í maraþoni, saunur, HRV og stórskemmtilegar sögur frá 7 ára IronMan ferlinum.
Wed, 25 Oct 2023 - 3h 14min - 193 - #149 - Bubbi Morthens
Bubbi Morthens mætir sem opin bók og ræðir áföll í æsku, uppgjör við geranda sinn áður en hann myndi falla frá, steraneyslu eftir sextugt, hversu mikil neyslan og vanlíðanin var þegar hann sprakk út í vinsældum á Íslandi, að pumpa út hundruðum laga og leyfa ekki vinsældum að stjórna sér, hvernig vinsælustu lög á Íslandi verða til, tilraunirnar til að gerast edrú og hvernig verstu dagarnir edrú eru betri en bestu dagarnir dópaður.
Fri, 13 Oct 2023 - 2h 03min - 192 - #148 - Kristján Gíslason: Suður-Ameríka
Með hvatningarorðum föðurs síns heitins: “aldrei hætta að þora” hefur Kristján Gíslason ýtt sér út af beinu brautinni og ferðast um allan heim, einn síns liðs á mótorhjóli.
Eftir mikla farsæld í viðskiptalífinu, vinnustundir myrkrana á milli, litla samveru með börnunum sínum og ofgnótt af veraldlegum hlutum fann Kristján sig á efri árum í leit að einhverju þýðingarmeira en golfi og sportbílum.
Kristján er nýkominn heim frá Suður-Ameríku þar sem hann hjólaði nokkra af sínum erfiðustu kílómetrum til þessa. Hér færðu sögustund af ævintýralegu ferðalagi Kristjáns og fólkinu sem varð á vegi hans.
Wed, 28 Dec 2022 - 2h 02min - 191 - #147 - Jón Gunnar Geirdal
JGG er atvinnuplöggari sem er sérlega fylginn sér. Hann hefur líklega séð og plöggað öllum bíómyndum og sjónvarpsseríum sem þú hefur heyrt af. Í þættinum ræðir hann forna tíma í útvarpi með menningarhetjum samfélagsins (Simmi, Jói, Auddi, Pétur), frasakonungs starfstitilinn og frasafræðarahlutverk hans fyrir Næturvaktina (gugga í gúmmíbát), þegar hann flutti umdeildan Jordan Belfort til landsins (“eina höggið sem ég hef tekið í mínu einyrkjabrölti”), að biðja stöðugt um hluti og hræðast ekki höfnunina (“góðar hugmyndir neita að deyja”), meistaranám í ritlist frekar en MBA, að fara frá því að horfa á sjónvarpsseríur yfir í að skrifa sjónvarpsseríur, loffaralíðan, hverju er auð-plögganlegt og hverju ekki og að missa litlu systur sína úr krabbameini.
Wed, 21 Dec 2022 - 1h 58min - 190 - #146 - Lárus Welding
Lárus Welding setti sér það markmið að gerast bankastjóri fyrir þrítugt eftir að hafa séð Bjarna Ármannsson gera slíkt hið sama 10 árum áður. “Það reyndust stór mistök," enda hvarflaði ekki að honum að í kjölfar 17 mánaða sem bankastjóri myndu fylgja 17 ár af málaferlum.
Lárus segir á einlægan hátt frá vegferðinni í átt að bankastjóratitlinum; svarta beltinu í karate, ofsakvíðakasti eftir samningaviðræður í London, glímuna við áfengi og að gefa það upp á bátinn eftir atvik degi fyrir afmæli dóttur hans, AA samtökunum, hvað starfsfólki bankanna gekk til í hruninu, heimsóknir til sálfræðings og geðlæknis og hvernig hreyfing, nám og að biðja fyrir þeim sem sóttu að honum voru mikilvæg vopn í baráttunni við vonleysið sem herjaði á hann árin eftir hrun.
Wed, 14 Dec 2022 - 1h 34min - 189 - #145 - Guðmundur Fertram, stofnandi Kerecis
Guðmundur Fertram bjó til 500.000kr. verðmæti úr þorskroði sem áður fyrr var hent eða brætt en nýtist nú til að bæta og bjarga mannslífum. Fyrir tíma Kerecis var efnafræðingurinn og rekstrarverkfræðingurinn forstjóri 250 manna fyrirtækis í Danmörku, aðeins 26 ára gamall, þegar dot-com bólan reið yfir.
Við förum yfir lærdóminn sem hann dró af þeirri vegferð, tímann hans hjá Össuri, hugmyndina að Kerecis, líffræðilegar útskýringar á því hvernig varan virkar, hvernig höfnun frá FDA varð til þess að starfsmenn Kerecis hættu og 5 barna foreldrarnir fluttu skrifstofuna heim í stofu og lexíuna um að það sé ekki nóg að vonast eftir kraftaverki.
Wed, 30 Nov 2022 - 1h 28min - 188 - #144 - Rannveig Borg
Rannveig Borg starfar sem lögfræðingur hjá Adecco Group í Sviss, er tveggja bóka rithöfundur og meistaranemi í fíknifræði. Hún hefur starfað sem lögfræðingur í Frakklandi, Lúxemborg, Bretlandi, Íslandi og Sviss þar sem hún er núna búsett. Rannveig segir okkur frá náminu og námserfiðleikunum í Frakklandi, átröskun sem hún glímdi við í æsku, hvernig hún tengir við fíknir og stjórnleysi annarra og nýlega ADHD greiningu sem setur líf hennar og fíkn í samhengi.
Wed, 23 Nov 2022 - 1h 22min - 187 - #143 - Hjalti Karlsson
Hjalti Karlsson vissi ekkert hvert hann væri að fara með líf sitt þegar hann sótti um í Listaháskólanum til þess eins að fá höfnun frá honum. Þrátt fyrir brjálæðislega feimni náði lífið að leiða Hjalta til New York þar sem hann fékk inn í listaháskólann Parsons og þaðan í læri hjá Stefan Sagmeister, virtum hönnuði í New York sem hannaði m.a. plötuumslög fyrir heitustu hljómsveitir samtímans, sem markaði upphaf af glæstum hönnunarferli Hjalta. Hönnunarstofan hans hefur unnið fyrir BMW, Bloomberg, Samsung, Adobe, Parsons og fleiri.
Inntak þáttarins blandast í umræðu um rekstur, hönnun, hvernig skal verðleggja vinnu sína, að hafna kúnnunum sem borga best, áhugaverð verkefni, lífið í New York og árásirnar á Tvíburaturnana.
Wed, 19 Oct 2022 - 1h 52min - 186 - #142 - Sigurlína Ingvarsdóttir
"The woman responsible for the year’s biggest video game" eru orðin sem Fortune nota til að lýsa Sigurlínu Ingvarsdóttur, framleiðanda í afþreyingarbransanum sem er stærri en tónlist og stærri en kvikmyndir: tölvuleikir.
Sigurlína er áhugasöm um flesta hluti en vélaverkfræðingur að mennt. Hún sótti fljótt í ábyrgðarstöður og starfaði í lyfja- og smásölugeiranum áður en gaf sig á tal við Hilmar, stofnanda CCP, sem leiddi til ráðningar hennar í tölvuleikjabransanum. Sigurlína er vægast sagt próaktíf og sækir hlutina sem hún vill frekar en að bíða eftir þeim.
Við ræðum starfsferil hennar, hvaða þáttum þarf að huga að við val á framtíðarstarfi, ráð til dætra hennar varðandi starfsvettvang, tölvuleikjaiðnaðinn, hugarheim Marvel og Star Wars, að sækjast í ábyrgð, stærstu verkefnin sem hún hefur fengist við, heillaskrefin á leið sinni þangað og suðupott tölvuleikjaframleiðslu í heiminum.
Wed, 12 Oct 2022 - 2h 05min - 185 - #141 - Fida Abu Libdeh
Fida flutti 16 ára gömul frá Palestínu til Íslands. Það var forgangsatriði fjölskyldunnar að þau myndu mennta sig en Fida komst stutt í námi eftir áratug af námsörðugleikum, þar til hún fékk greiningu á lesblindu. Þar eftir nældi hún sér í hverja gráðuna á fætur annarri og lauk námi í umhverfis- og orkutæknifræði. Lokaverkefnið hennar varð að fyrirtækinu sem hún stýrir nú í dag: GeoSilica.
Í þættinum ræðum við raunveruleika palestínskra barna, hvernig hermenn skjóta og handtaka börn þar í landi, að búa við hræðslu sem barn og hvernig það fylgir henni til dagsins í dag, að vilja frekar tilheyra heldur en að flytja í átt að öryggi, flutningana til Íslands, áskoranirnar sem mættu fjölskyldunni og rekstur fyrirtækisins sem hún stýrir í dag.
Wed, 05 Oct 2022 - 1h 23min - 184 - #140 - Snæbjörn Arngrímsson
Harry Potter hafði áhrif á heilu kynslóðirnar en ekki jafn mikil áhrif á neinn mann og Snæbjörn Arngrímsson.
Snæbjörn var 25 ára, þriggja barna faðir og eigandi forlagsins Bjarts þegar endurskoðandinn hans hringdi og spurði hvort skynsamlegt væri að halda rekstrinum áfram með svona stóra fjölskyldu. Þrátt fyrir að bera sig alltaf eins og sigurvegara og koma fram í viðtölum með fyrirsögnum á borð við “Fé skortir mig ei!” og “Bjartur gengur brilliant!” - á meðan hann tók næturvaktir á geðdeild og skúraði kirkjugólf til að halda sér uppi, þá var þetta ekki símtalið sem hann vildi fá
Frá þessum tímapunkti hefst ótrúleg atburðarrás forleggjara sem sneri rekstrinum upp í listform: réð til sín ímyndaðan starfsmann, veitti bókum ímynduð verðlaun, hringdi sjálfur í sig þegar það var lítið að gera, rambar á Harry Potter, seldi milljón eintök af DaVinci lyklinum í Danmörku, bjó til ímynduð viðskiptamódel sem viðskiptafræðideildin vildi fá hann til að fjalla um, fékk ævintýraleg kauptilboð, seldi forlögin sín og flytur á ólífubúgarð á Ítalíu.
Thu, 29 Sep 2022 - 2h 09min - 183 - #139 - Sigurjón Sighvatsson
Sigurjón var poppstjarna, athafnamaður og íbúðareigandi - á meðan hann var í menntaskóla. Hann lauk bókmenntafræði, lærði kvikmyndagerð í Bandaríkjunum og hóf þar ótrúlegan feril sem framleiðandi þegar hann hann hitti á gullæð við framleiðslu tónlistarmyndbanda með kúnna á borð við Michael Jackson, Madonnu, Guns and Roses og fleiri.
Úr tónlistarmyndböndum yfir í auglýsingargerð (f. Nike, Pepsi, Coca Cola...) og svo kvikmyndagerð - Hollywood vildi bita af Sigurjóni Sighvatssyni. Athafnamennskunni var hvergi lokið, Sigurjón flutti Domino's til Íslands, eignaðist hlut í Joe Boxer og keypti fyrirtæki sem gerði hlífðar- og vinnufatnað fyrir sjómenn að tískumerki sem allir Íslendingar þekkja í dag: 66° Norður.
Í viðtalinu er bransinn ræddur, kulnunin og 6 mánaða rúmlögn, innhverf íhugun, þegar Tarantino bauð Sigurjóni að framleiða Pulp Fiction, Nicolas Cage og tilfinningagreindin hans og drifið sem fólst í því að alast upp í skugga bróður síns.
Wed, 21 Sep 2022 - 2h 03min - 182 - #138 - Jón Ásgeir
Jón Ásgeir seldi poppkorn og leigði út rugguhesta á unglingsaldri, labbaði svo út úr menntaskóla til að opna Bónus með pabba sínum og fór þaðan til Bretlands þar sem hann kom auga á og framkvæmdi þrjár stærstu og best heppnuðustu yfirtökur á smásölumarkaði þar í landi á síðari árum. Allt með sínum skerf af drama að sjálfsögðu - maðurinn er yfirheyrðasti Íslendingur sögunnar og sat undir ákærum í 6.000 daga.
Wed, 14 Sep 2022 - 1h 17min - 181 - #137 - Ingvar Ómarsson
Ingvar Ómarsson tileinkar lífi sínu því að fara hraðar á hjóli. Það gengur þokkalega en Ingvar er 32x Íslandsmeistari í hjólreiðum og okkar eini atvinnumaður í sportinu. Við ræðum hvernig Novator gerði honum kleift að gerast atvinnumaður, óhefðbundið mataræði Ingvars og lífshættulegan árekstur sem hann lenti í við mótorhjól á 80 kílómetra hraða.
Thu, 08 Sep 2022 - 2h 10min - 180 - #136 - Steinunn Sigurðardóttir
Steinunn Sigurðardóttir er fremsti fatahönnuður landsins. Eftir útskrift frá Parsons í New York starfaði hún náið með Ralph Lauren og Calvin Klein. Steinunn fluttist heim og eignaðist fatlaðan dreng en lét það ekki stoppa sig frá því að lifa sínu lífi, var ráðin inn til Gucci og flaug til og frá Ítalíu við störf sín þar með Tom Ford.
Fri, 02 Sep 2022 - 1h 46min - 179 - #135 - Baltasar Kormákur
Baltasar Kormákur segir frá ótrúlegum tímum 18 ára gamall á búgarði í Arizona, hvernig hann tók skrefið úr leiklistinni yfir í leikstjórnina og hefur aldrei beðist afsökunar á því að ganga vel, að taka ekki fyrsta boðinu inn í Hollywood með tilheyrandi lífsstíl og neyslu, hvernig Mýrin varð farmiðinn hans til Hollywood, að leikstýra stærstu kvikmyndastjörnum heims og að leyfa þeim að komast ekki um með neina stæla, áhættuatriði og hughreystingar við tökur á Djúpinu með Ólafi Darra, að leyfa ekki bransafókinu að ráðskast með sig, sálfræðitímar til að kynnast sjálfum sér og að gefa upp áfengi til að lifa lífinu til fulls.
Thu, 25 Aug 2022 - 1h 56min - 178 - Magnús Scheving 2/2
25% ASLÁTTUR Í SAFFRAN APPINU MEÐ KÓÐANUM "SNORRI"
Alinn upp á Hvammstanga og smiður að mennt. Fljótt á litið virðist þetta ekki uppskriftin af einum farsælasta frumkvöðli Íslandssögunnar og ekki batnar það þegar norðurlandameistaratitlinum í þolfimi er hent í mixið.
Magnús hefur komið víða við og segir frá því hvernig hann endaði í brjáluðu formi og á forsetalaunum sem 13 ára unglingur, Englandsferð til að reyna fyrir sér í hnefaleikum, smiðsnám frekar en arkitektúr, íþróttafræði í Noregi, þolfimikennslu í World Class og svo hvernig Latibær náði til 500 milljón heimila í 170 löndum.
Í þessari för safnaði Magnús reynslu og situr eftir með pælingar um vinnusemi, stress, skólakerfið, kosti sína og galla, menntun, þjálfunaraðferðir, sjálfstraust, árangur íslenska landsliðsins og af hverju "að setja upp svona stórt concept á heimsmælikvarða er ekki þess virði - það er einhversstaðar sem þú tapar."
Wed, 17 Jul 2019 - 1h 16min - 177 - Magnús Scheving 1/2
25% ASLÁTTUR Í SAFFRAN APPINU MEÐ KÓÐANUM "SNORRI"
Alinn upp á Hvammstanga og smiður að mennt. Fljótt á litið virðist þetta ekki uppskriftin af einum farsælasta frumkvöðli Íslandssögunnar og ekki batnar það þegar norðurlandameistaratitlinum í þolfimi er hent í mixið.
Magnús hefur komið víða við og segir frá því hvernig hann endaði í brjáluðu formi og á forsetalaunum sem 13 ára unglingur, Englandsferð til að reyna fyrir sér í hnefaleikum, smiðsnám frekar en arkitektúr, íþróttafræði í Noregi, þolfimikennslu í World Class og svo hvernig Latibær náði til 500 milljón heimila í 170 löndum.
Í þessari för safnaði Magnús reynslu og situr eftir með pælingar um vinnusemi, stress, skólakerfið, kosti sína og galla, menntun, þjálfunaraðferðir, sjálfstraust, árangur íslenska landsliðsins og af hverju "að setja upp svona stórt concept á heimsmælikvarða er ekki þess virði - það er einhversstaðar sem þú tapar."
Wed, 10 Jul 2019 - 1h 45min - 176 - #36 - Chris Burkard
25% AFSLÁTTUR Í SAFFRAN APPINU MEÐ KÓÐANUM “SNORRI”
Instagram styrnið, ljósmyndarinn, ævintýramaðurinn og nú síðast sigurvegari og methafi í WOW Cyclothon hjólreiðakeppninni: Chris Burkard, er gestur þáttarins að þessu sinni.
Chris heldur úti risastórum Instagram aðgangi þar sem hann sýnir frá ævintýrum sínum um allan heim. Mörg af þeim eiga sér stað á Íslandi en hann hefur komið hingað 34 sinnum í heildina, eitt af þeim skiptum til þess að mynda fyrir tæknirisann Apple og annað til þess að leiða Justin Bieber um landið við gerð tónlistarmyndbandsins I’ll show you.
Wed, 03 Jul 2019 - 1h 08min - 175 - #35 - Joey Christ
Jóhann Kristófer / Joey Christ. Leikarinn, leikstjórinn, Útvarpsmaðurinn, sviðslistamaðurinn og tónlistarmaðurinn er að gefa út sína þriðju sólóplötu rakti söguna frá fyrstu kynnum sínum við Loga Pedro á Grænuborg yfir í Sturla Atlas ævintýrið 2015 og dagsins í dag. Það er margt búið að ske í íslensku tónlistarlífi síðustu árin og eins óþægilegt og Jóhanni fannst að rappa eða syngja í míkrafóninn þá á hann risastóran hlut í framþróun senunnar.
Mon, 22 Apr 2019 - 2h 08min - 174 - #34 Bjarki Brynjarsson - Lieutenant í norska hernum
Bjarki Brynjarsson, eins og svo margir aðrir, var ekki viss um hvað hann vildi taka sér fyrir hendur við útskrift úr Verzlunarskóla Íslands. Fyrir algjöra tilviljun, ævintýraþrá og hvatvísi skráir hann sig í norska herinn.
7 árum síðar er Bjarki 28 ára gamall lieutenant innan fallbyssu herdeildar hersins með 30 undirmenn. Leiðin þangað var ekki áfallalaus, inntökuprófið í herinn (hell-week) var bara forsmekkurinn af einhverskonar hell-year sem var í vændum en hann útskýrir ítarlega fyrir okkur hvernig áreiti og álagi er beitt til að byggja upp og styrkja karakter hermannannna. Vopnaþjálfun, agi, heræfingar, stríðsuppsetning, þægindaramminn, endurlífgun, skipun til að taka líf, þrekpróf, gönguskíði, basúkkur og fleiri óhversdagslegir hlutir eru ræddir í þessum þætti ásamt innsýn í aðstæður sem Bjarki gekk í gegnum til að hljóta vinnuheitið Platoon commander.
Wed, 03 Apr 2019 - 2h 10min - 173 - #33 Kristján Gíslason - Hringurinn í kringum jörðina á mótorhjóli, einn síns liðs
Eftir að selja fyrirtækið sem hann byggði upp, koma sér vel fyrir með eiginkonunni, börnum og barnabörnum áttaði Kristján sig á því að hann væri kominn á miðjan aldur. Tækifærið til að upplifa ævintýrin sem lífið hafði upp á að bjóða var núna og árið 2014 lagði hann af stað hringinn í kringum hnöttinn á mótorhjóli, einn síns liðs.
Árið 2018 gerði hann ferðina upp bæði við sjálfan sig og í formi heimildarmyndar og ljósmyndabókar sem hægt er að kaupa á hringfarinn.is til styrktar góðu málefni. Í þessum þætti heyrum við söguna af því hvernig þessir 48.000 kílómetrar breyttu lífi Kristjáns og miklu meira til.
Wed, 27 Mar 2019 - 2h 33min - 172 - #32 - Herra Hnetusmjör & HuginnThu, 21 Mar 2019 - 1h 43min
- 171 - #31 - Arnar Péturs
Arnar Pétursson lenti á Íslandi eftir mánaðardvöl og keyrði rakleiðis í stúdíóið til að svara stóru spurningum lífsins: Hvað hvetur mann áfram, hvernig hann horfir á markmið og markmiðasetningu, hvernig skal bregðast við mótlæti og lexíurnar sem hægt er að draga úr afreksíþróttum og heimfæra á daglegt líf.
Arnar á risastóran þátt í hlaupabakteríunni sem ég smitaðist af síðasta sumar en hann tók á sig að búa til fyrir mig hlaupaprógröm fyrir tvö maraþon og það var í því ferli sem ég áttaði mig á öllu því sem hann var að segja í fyrsta podcastinu okkar saman, svo hér mættumst við aftur, ég með ögn betri skilning á því um hvað hlaup snúast og Arnar með einhvernveginn með betri sýn á lífið en allir aðrir sem ég þekki.
Ef þú ert hlaupari þá fagnaru þessum þætti enda Arnar bæði fróður um hlaup og góður að koma upplýsingum frá sér en ef þú hefur ekki ennþá áttað þig á fegurðinni í því að hlaupa hratt og lengi þá ættiru að geta heimfært flest allar pælingar sem hér koma fram yfir á það sem þú ert að gera í lífinu.
Wed, 06 Feb 2019 - 2h 54min - 170 - #30 - ClubDubFri, 01 Feb 2019 - 1h 54min
- 169 - #29 - FLONIWed, 30 Jan 2019 - 1h 57min
- 168 - #28 RAX - Norðurslóðir og að fylgja hjartanu
Síberíuferð, bókaútgáfu og hálfu ári síðar er RAX loksins kominn í þáttinn. Þetta er ein af mínum allra stærstu fyrirmyndum, ekki bara vegna þess hversu góður ljósmyndari hann er heldur er þetta einstaklingur sem hefur masterað það sem hann gerir best og ég sætti mig við það að geta einungis giskað á hverskonar vinna liggur að baki verkana hans..
Ef þú ert að gera eitthvað sem þú hefur ástríðu fyrir í lífinu: semja tónlist, moka skurði, sjá um bókhald, taka upp podcast, hanna bækur, stýra fyrirtæki, taka hnébeygjur eða leysa jöfnur - þá eru lífsráð í þessum þætti sem ég vona að hreyfi við þér eins og þau hreyfðu við mér.
Finndu RAX á Instagram, þar sem hann er nýbyrjaður að láta á sér kræla: @ragnaraxelsson - eða kíktu á www.rax.is til að sjá brot af ljósmyndunum sem hann hefur tekið í gegnum tíðina.
Wed, 23 Jan 2019 - 1h 45min - 167 - #27 Sölvi Tryggva - Álag og endurheimt
Sölvi Tryggvason þurfti að þola alvarlegan heilsubrest fyrir áratugi og hefur unnið sig í átt að bættri heilsu síðan þá. Hann gaf á dögunum út bókina “Á eigin skinni” þar sem hann fer yfir mjög víðtækar tilraunir á eigin hug og líkama til þess eins að líða betur. Mataræði, hreyfing, svefn, föstur, bætiefni, kuldaböð, hugleiðsla, öndunaræfingar, tenging við náttúru, og snjallsíma- og skjánotkun eru meðal viðfangsefni bókarinnar. Við áttum gott spjall um leiðir til þess að vinna í sjálfum sér og að betri útgáfu að sjálfum sér. Það vildi svo til að ég tók spjallið upp og ætla að deila því hér með ykkur í þessum þætti.
Wed, 16 Jan 2019 - 1h 42min - 166 - #26 Árni Björn - CrossFit, vegan og langveikt barn
Árni Björn fann sig á botninum, líkamlega og andlega þegar hann var orðinn 130 kíló og ákvað að gera eitthvað í sínum málum. Það liðu ekki nema 2 ár þegar hann fann sig standandi inn á íþróttaleikvangi í Los Angeles, þá sem keppandi í CrossFit.
Árni segir okkur frá þessari umbreytingu í sínu lífi, af hverju hann gerðist vegan og hvernig það er að lifa með veikindum langveikrar dóttur sinnar sem greindist með afar sjaldgæfan genagalla.
Wed, 09 Jan 2019 - 1h 49min - 165 - #25 Einar Hansberg - 500 kílómetra róður
Einar Hansberg reri 500 kílómetra til styrktar Kristínar Sifjar og fjölskyldu, sem missti manninn sinn fyrir eigin hendi undir lok árs 2018. Einar hefur áður fundið sér áskoranir sem þessa en það magnaða við þetta afrek er samhugurinn í þeim 550 manns sem lögðu Einar lið og reru með honum samtals 8 milljón kílómetra yfir eina helgi.
Thu, 03 Jan 2019 - 2h 47min - 164 - #24 Leifur Örn - Norðurhlið Everest
Í Nepal stendur hæsti tindur veraldar, 8.848 metrum yfir sjávarmáli. Allir hafa heyrt af heyrt af þessum tindi, 7 Íslendingar hafa klifið hann en aðeins 1 hefur farið norðurhlið fjallsins til að komast að honum.
Leifur Örn Svavarsson er fjallgöngumaður að guðs náð. Í gegnum tíðina hefur hann gengið á tindana 7 margoft, yfir Grænlandsjökul, stigið fæti á Norðurpólinn og Suðurpólinn, Peak Lenin í Kyrgiztan, Matchu Pitchu í Perú og undirbýr sig nú fyrir aðra ferð á topp Everest 2019.
Þó að gangan upp á Everest hljómi eins og spennandi ævintýri eru margar hættur sem fylgja svona ferðum en þess má geta að Leifur er nýkominn heim frá Nepal þar sem hann sótti líkamsleifar tveggja íslenskra fjallgöngumanna sem fórust á fjallinu Pumori fyrir þrjátíu árum.
Leifur segir okkur frá sinni reynslu af því að halda sönsum, vikum saman í rúmlega 6.000 metra hæð þar sem orkuleysi og einkenni háfjallaveiki láta finna fyrir sér, áður en nokkura klukkutíma rammi gefst til að láta reyna á lokahnykk fjallsins og komast upp á topp.
Wed, 26 Dec 2018 - 1h 28min - 163 - #23 Runi - Aðalvarðstjóri sérsveitarinnar
Það er mikil leynd yfir störfum sveitarinnar og þeim sem í henni starfa en þessir tæplega 50 karlmenn sem mynda sérsveit ríkislögreglustjóra eru síðasti hópur manna sem hægt er að reiða sig á í hættulegum aðstæðum. Það er engin önnur sveit sem fékk betri eða sérhæfðari þjálfun, það er enginn her sem styður við bakið á þeim og það er ekki í boði af flýja aðstæðurnar eða fara veikur heim ef þér líst ekki á blikuna.
Runólfur Þórhallsson er aðalvarðstjóri sérsveitarinnar. Hann fræddi mig um hvaða eiginileika sérsveitarmenn þurfa að hafa, hvernig þeir eru síaðir út í inntökuferlinu, hvaða kröfur eru gerðar til sérsveitarmanna, hvaða áhrif svona starf hefur á fjölskyldulífið og andlega heilsu, af hverju flest vopnuð útköll enda ekki í fjölmiðlum og í hvaða aðstæðum hann hefur sjálfur þurft að takast á við í starfi.
"Sérsveit ríkislögreglustjóra er hreyfanlegt lögreglulið sem er sérþjálfað til þess að takast á við vopnuð lögreglustörf og öryggismál, þar með talin hryðjuverk og stórfelld ofbeldisbrot. Sveitin annast handtökur hættulegra brotamanna og hústökuaðgerðir vegna fíkniefnamála.
Sérsveitin sinnir mikilvægu hlutverki varðandi hryðjuverkavarnir svo sem vegna árása, sprengjutilræða, gíslatöku, flugrána og sjórána. Sérsveitin ber þannig ábyrgð á aðgerðum vegna hryðjuverkaviðbúnaðar á sjó og landi og undir hana falla samningaviðræður við gíslatöku og viðbúnaðar vegna sprengjutilfella."
Wed, 19 Dec 2018 - 2h 05min - 162 - #22 Heiðar Logi - Brimbretti og andleg heilsa
Heiðar Logi var vægast sagt til vandræða í æsku. Hann var orkumikill og með mikinn athyglisbrest sem leiddi til daglegrar mætingar til skólastjórans og á endanum brottrekstrar úr skóla.
6 ára gamall fór hann á Rítalín og eftir því sem tíminn leið var skammturinn stærri og stærri þar til Heiðar fékk nóg og ákvað að hætta á öllum lyfjum, þá orðinn 16 ára gamall, þunglyndur, kvíðasjúklingur og að eigin sögn alveg persónuleikalaus.
Hann var með verðugt verkefni fyrir höndum sem fólst í því að hætta að drekka, sörfa við Íslandsstrendur og kynnast sjálfum sér upp á nýtt.
Wed, 12 Dec 2018 - 1h 43min - 161 - #21 Solla Eiríksdóttir - "Það sem gerist þegar þú ert öðruvísi"
Stjörnukokkurinn sem prýðir matvörur í búðarhillum landsins, gefur út vinsælustu matarbækur landsins og rekur vinsælustu veitingastaði landsins.
Solla hefur svo sannarlega sögu að segja.
Við förum yfir hvernig Yoga, hugleiðsla og bætt mataræði var úrslitakostur hjá henni þegar hún var að glíma við slæmt ofnæmi sem leiðir síðan að atvinnu hennar í dag, við ræðum tattooin hennar, hvernig hún fann sína ástríðu í lífinu og vegferð hennar í viðskiptum.
Hún var að koma frá ársdvöl í Danmörku þar sem hún opnaði tvo nýja Gló staði, hún heldur fyrirlestra um allan heim, tekur á móti stórstjörnum á borð við Ben Stiller, Neil Young, Gwyneth Paltrow og Beckham hjónunum þegar þeim vantar einhvern til að elda almennilegan mat fyrir sig hér á landi, og svo er hún mætt á vaktina á Gló klukkan 6 á morgnanna, skrælandi og saxandi grænmeti, fáránlega fersk og svo virðist með endalausa orku eins og þið heyrið fljótt í þessu viðtali.
Wed, 05 Dec 2018 - 1h 50min - 160 - #20 Gauti Grétars - Heilsubyltingin, kyrrseta og hreyfigeta
Við sitjum við tölvur meirihluta dagsins, stöndum upp til þess að setjast svo í bílsætið okkar, keyrum heim og sitjum þar þangað til það er kominn tími til að sofna.
Vissulega fara margir hverjir á æfingu í millitíðinni en stífar æfingar í bland við 10 klukkutíma kyrrsetu á dag er líklega ein af ástæðunum fyrir því að sjúkraþjálfarar hafa aldrei haft jafn mikið að gera og í dag.
Gauti Grétarsson fór sem sjúkraþjálfari á ólympíuleikana í Atlanta 96, Sidney árið 2000, Salt Lake 2002, Peking 2008 og London 2012. Hann var sjúkraþjálfari og tæknilegur ráðgjafi meistaraflokks KR, Badmintonlandsliðs Íslands, Golfsambandi Íslands, hefur setið í heilbrigðisráði ÍSÍ frá 1992 og stundað mælingar á afkastagetu afrekíþróttafólks á borð við Guðjóns Vals og Gylfa Þórs Sigurðssonar.
Þrátt fyrir að vera talsmaður gegn kyrrsetu samþykkti Gauti að setjast niður með mér og fræða okkur um heilsubyltinguna, bæði það sem vel er gert og hvar við förum út af brautinni. Sú umræða þræðir mörg málefni á borð við sjálfstraust, mental toughness, muninn á mönnum og öpum, virkni rassvöðva og af hverju það er mikilvægt að þjálfa þá, mjólkursýrumælingar, endurheimt eftir æfingar, kostir þess að æfa tvisvar á dag og hreyfigetu í heild sinni.
Wed, 28 Nov 2018 - 1h 37min - 159 - #19 - Páll Óskar
Ef þú hefur áhuga á að auglýsa í The Snorri Björns Podcast Show sendu mail á podcast@snorribjorns.is
Morgunrútínan hans, æfingaprógrammið, upphitun fyrir gigg, jarðarförin, hvernig það kom til að Jóhann Jóhannsson heitinn, Golden Globe verðlaunahafi, pródúsaði fyrstu lögin hans, á barmi gjaldþrots, að flytja aftur í foreldrahús 30 ára gamall, loforðið um að vinna aldrei leiðinlega vinnu og Allt fyrir ástina, platan sem gerði Pál Óskar að vinsælasta tónlistarmanni Íslands. Þetta og miklu meira til í þessum þætti af The Snorri Björns Podcast Show þar sem maðurinn sem við megum öll taka okkur til fyrirmyndar, Páll Óskar, segir okkur frá lífi sínu.
Wed, 21 Nov 2018 - 1h 58min - 158 - #18 - Anníe Mist Þórisdóttir
Anníe Mist ákvað að yfirgefa drauminn um Ólympíuleikana árið 2012 fyrir nýja íþrótt sem var nýkomin á sjónarsviðið. Íþrótt sem Anníe varð á endanum best í og helmingur þjóðarinnar hefur prófað.
Það er mikinn innblástur að finna í sögu Anníear, hvernig hún sigraði heimsmeistaramótið tvö ár í röð, hvernig hún hefur breyst á þessari 10 ára vegferð og hvernig hún höndlar mótlætið sem hún mætti á leiðinni.
Wed, 14 Nov 2018 - 1h 57min - 157 - #17 - Benjamin Hardman
Benjamin Hardman left his job as an accountant in Australia to move to Iceland and figure out a way to support his stay here as a photographer.
Hopefully you’ve stumbled upon his work on social media (@benjaminhardman), he’s got a huge Instagram account where he posts breathtaking and unique pictures of his travels in the arctic, mainly from Iceland.
Ben talks to me about these decisions of change, the challenges of being a freelancer, how Iceland has changed in last couple of years and where his drive to go out every morning and shoot pictures in nature comes from.
Wed, 07 Nov 2018 - 1h 42min - 156 - #16 Hermundur Sigmundsson - Prófessor í lífeðlislegri sálfræði
Hermundur Sigmundsson er prófessor í lífeðlislegri sálfræði við háskólann í Þrándheimi. Hann vakti athygli mína fyrir rannsóknir á samfélagsmiðla- og skjánotkun barna, streituverkjum út af slíkri notkun, kynjahlutfallið í þessum verkjum og svo hefur hann tvisvar á síðustu mánuðum haldið fyrirlestra í HR þar sem hann fer yfir einkenni þeirra einstaklinga sem skara fram úr á sínum sviðum, hvort sem það er Björk eða Zlatan.
Wed, 31 Oct 2018 - 1h 44min - 155 - #15 - Emil Hallfreðs
Eins og Emil segir sjálfur frá þá var hann örugglega ekki félagslyndasti strákurinn í bekknum á sínum unglingsárum. Hann drakk ekki, borðaði hollt, mætti sjálfur á aukaæfingar, lét ekki sjá sig á böllum og pældi ekkert í stelpum. Það virðist vera þema í gegnum feril Emils að þegar eitthvað gengur ekki upp, eitthvað fór ekki eins og það átti að fara eða honum langaði að færi þá var lausnin bara að leggja meira á sig. Hvort sem það var að koma Hellas Verona frá C-Deildinni upp í A-deildina á Ítalíu eða bíta í það súra epli að fá ekki að spila með íslenska landsliðinu á EM og vera síðan valinn besti leikmaður landsliðsins á HM tveimur árum seinna.
Wed, 24 Oct 2018 - 1h 59min - 154 - #14 Elísabet Margeirs - 400km í Gobi og aðrar áskoranir
Leiðin frá Tjarnarhringnum í MR, yfir í hálfmaraþon, maraþon og svo svefnlaus náttúruhlaup, í fallegasta umhverfi jarðarinnar, hundruði kílómetra áfram og tugi kílómetra upp og niður. Elísabet Margeirsdóttir er langhlaupadrottning Íslendinga og meðal þeirra bestu í heiminum en nýverið lauk hún 409km hlaupi í gegnum Gobi eyðimörkina á 97 klukkutímum - fyrst kvenna.
Wed, 17 Oct 2018 - 1h 55min - 153 - #13 - Emmsjé GautiWed, 10 Oct 2018 - 2h 23min
- 152 - #12 Katrín Tanja - Fittest Woman on Earth
Hvert var Katrín að stefna áður en CrossFit varð að hennar atvinnu? Hvernig aftraði það henni að sjá strax góðan árangur í sportinu og hverju þurfti að breyta þegar henni var ljóst, árið 2014, að hún hafi ekki komist á Heimsleikana í fyrsta skipti síðan hún lagði CrossFit fyrir sig. Ferlið sem Katrín fór í gegnum lýsti sér ekki einungis í fleiri og lengri æfingum og bættri líkamlegri heilsu, Katrín og þjálfarinn hennar eru bæði sammála um að ástæðan fyrir því að hún endaði tvö ár í röð efst á palli með titilinn Fittest Woman on Earth er einfaldlega hausinn á henni.
Wed, 03 Oct 2018 - 2h 09min - 151 - #11 - Tommi á Búllunni
Tómas A. Tómasson rak hér á árum áður félagsheimili, skemmtistaði, kaffihús, hótel, veitingastaði, hamborgarastaði og var fyrir vikið þekktur sem Tommi á Festi, Tommi á Tommaborgurum og Tommi á Hard Rock - en með fjárhagsvandræði, drykkjuvandamál og baráttu við gjaldþrot að baki sér, labbar hann um götur bæjarins, 69 ára gamall, borðar hamborgara á dag, tekur 105kg í bekk og er skítsama hvað þér finnst - þekktur sem hin eini sanni Tommi á Búllunni.
Wed, 26 Sep 2018 - 1h 56min - 150 - #10 - Auðunn Blöndal
Eftir að fá loksins tækifæri til að sýna sig á skjám landsmanna í 70 mínútum kringum aldamótin hefur mikið farið fyrir Auðunni Blöndal sem skilur eftir sig þætti á borð við Svínasúpuna, Steypustöðina, Atvinnumennirnir Okkar, Tekinn, Ríkið, Strákarnir, Stelpurnar og vinnur nú að gerð fjórða draumsins: Suður-Ameríski Draumurinn. Auðunn tók stökkið yfir í útvarp fyrir 7 árum og heldur úti einum vinsælasta útvarpsþætti landsins: FM95BLÖ.
Thu, 20 Sep 2018 - 1h 24min - 149 - #9 Sóli Hólm - LED perur, ketosis og krabbamein
Sóla Hólm er að finna víða, hvort sem það er í sjónvarpinu, útvarpinu, upp á sviði eða bara í story. Brandarar, eftirhermur og almennt grín hafa mótað starfsferil Sóla síðustu ár en hægt og bítandi fór ferillinn að staðna og vinnan orðin of einsleit og þægileg. Það var ekki fyrr en Sóli greinist með krabbamein í lok ársins 2017 þar sem hann ákveður að elta markmiðin sín og skilja meira eftir sig í lífinu.
Wed, 12 Sep 2018 - 1h 59min - 148 - #8 - Evert Víglunds
Evert Víglundsson, meðeigandi og stofnandi CrossFit Reykjavík, fer yfir ferilinn frá því að þjóna á Hótel Sögu í 12 ár yfir í að reka eina stærstu CrossFit stöð í heiminum, IronMan þríþraut, Navy SEAL Hell Week, að fatta lífið um fertugt og að vera besta útgáfan af sjálfum sér.
Bækur og podcöst nefnd í þættinum: Joe Rogan og Matthew Walker: https://www.youtube.com/watch?v=pwaWilO_Pig&t=5332s
Why We Sleep e. Matthew Walker: https://www.amazon.com/Why-We-Sleep-Unlocking-Dreams/dp/B0752XRB5F/ref=sr_1_3?ie=UTF8&qid=1535473069&sr=8-3&keywords=why+we+sleep
Peak Performance: https://www.amazon.com/Peak-Performance-Elevate-Burnout-Science/dp/B072JN54R2/ref=sr_1_3?ie=UTF8&qid=1535473092&sr=8-3&keywords=peak+performance
The Complete Guide To Fasting: https://www.amazon.com/Complete-Guide-Fasting-Intermittent-Alternate-Day/dp/B01N9CQX29/ref=sr_1_1?ie=UTF8&qid=1535473104&sr=8-1&keywords=complete+guide+to+fasting+jason+fung
It Starts With Food: https://www.amazon.com/Starts-Food-Discover-Whole30-Unexpected/dp/B00PMCGFRS/ref=sr_1_1?ie=UTF8&qid=1535473125&sr=8-1&keywords=it+starts+with+food
The Champion’s mind:
Wed, 29 Aug 2018 - 2h 08min - 147 - #7 - Sindri JenssonTue, 24 Jul 2018 - 2h 05min
- 146 - #6 Hlaup 3/3 - Kári Steinn
Kári Steinn hljóp sitt fyrsta maraþon á tímanum 2:17:12, vann sér inn þátttökurétt á Ólympíuleikunum í London 2012 og sló 26 ára gamalt Íslandsmet í leiðinni.
Kári sagði mér hvað hann skrifaði á brúsana í 2:17:12 hlaupinu, af hverju hann gaf hlaupunum aldrei 100% séns, leiðir til að berjast við hausinn í miðju hlaupi, æfingaplanið hans og af hverju honum hefur aldrei tekist að bæta tímann í fyrsta maraþoninu sem hann lauk.
Thu, 28 Jun 2018 - 1h 41min - 145 - #5 - Gunnar Nelson
Síðustu mánuðir hafa ekki verið nein sigurganga fyrir Gunnar Nelson. Við fórum yfir stöðuna, rifjuðum upp sögur frá menntaskólagöngunni og fyrstu keppnunum hans, hvernig það var að ákveða að tileinka lífi sínu bardagalistum og hvað liggur að baki velgengni Gunnars, sem að hans mati mun leiða hann að heimsmeistaratitlinum í UFC.
Wed, 20 Jun 2018 - 2h 30min - 144 - #4 Hlaup 2/3 - Arnar Pétursson
Arnar var nífaldur Íslandsmeistari í ýmsum halupum árið 2017. Hann var efnilegur körfuboltamaður sem sneri sér að hlaupum eftir að hafa fengið smjörþefinn af árangri á þeim vígvelli þegar hann hljóp sitt fyrsta maraþon, gegn vilja foreldra sinna, og sló óvart 30 ára gamalt íslandsmet í leiðinni.
Það reyndist auðvelt að fá Arnar til að tjá sig um hlaup og íþróttamannslífið, hann veit nákvæmlega um hvað hann er að tala og vill hafa ástæðu fyriröllu sem hann gerir.
Við töluðum um óhefðbundnar leiðir að bætingum eins og t.d. 50 klukkustunda föstuna sem Arnar kláraði rétt fyrir podcastið, markmiðasetningu, hvernig á að bæta sig, af hverju stærstu mistökin sem fólk gerir er að hlaupa of hratt þegar það fer út að hlaupa, að raka á sér lappirnar, hlaupa maraþon á nærbuxunum og hið sturlaða keppnisskap sem býr í manninum sem tekur flugvélina brosandi í mark þegar hann sigrar hin og þessi langhlaup.
Mon, 11 Jun 2018 - 2h 07min - 143 - #3 Hlaup 1/3 - Arnar Sigurðsson
Ég hitti Arnar í hádegismat fyrir nokkrum vikum og hann sagði mér söguna af því þegar hann hljóp maraþon undir þremur klukkutímum, sama ár og hann tók 200kg í réttstöðulyftu. Sagan af þessu afreki hreyfði mikið við mér og kveikti undir miklum hlaupaáhuga hjá mér. Svo miklum að ég ákvað að búa til þrjá sérstaka hlaupaþætti á podcastinu. Arnar er toppmaður, lögfræðimenntaður með konu og börn og eitt stykki járnhaus sem hann notar til að takast á við áskoranir sem mig hryllir við að hugsa um.
Þó stefnan sé ekki að hlaupa í sumar eða í þessu lífi þá veistu alveg að þú getur bætt þig á ýmsum vígvöllum lífsins og dæmisögurnar hans Arnars eru kjörið spark í rassinn.
Wed, 30 May 2018 - 1h 51min - 142 - Björgvin Karl - Regionals 2018Sun, 20 May 2018 - 28min
- 141 - #2 - Sara Sigmunds
Sara Sigmundsdóttir er NIKE Global athlete, þrefaldur CrossFit heimsleikafari og hefur þar af hreppt þriðja sætið tvisvar sinnum. Við rekjum vegferð Söru frá því að hata að hreyfa sig og fitnessmótum í Njarðvík yfir í íþróttamannslífið í Bandaríkjunum.
Sara hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum, þar ber að nefna að flytja til Bandaríkjanna, skipta um þjálfara, fara til sálfræðings, hata CrossFit og læra að elska það aftur. Við ræddum um hvernig það er að vera með 1 milljón followers á Instagram, Ólympíuleikana, keppnisþunglyndi, morgunmatinn hennar og Arnold Schwartzenegger.
LINKAR: Evrópuleikarnir í CrossFit, bein útsending: https://games.crossfit.com The Power of Habit: http://a.co/6kWuDlq Shoe Dog: http://a.co/eCAoMKw
KAFLAR: 04:34 - Að ná ekki markmiðunum sínum og taka sér pásu
08:00 - Sara Sigmunds verður íþróttamaður
16:15 - Ég þarf greinilega að keppa eins mikið og ég get
21:42 - 1. Sara, 2. Katrín, 3. Anníe
25:13 - Eftirkeppnisþunglyndi
28:31 - Neikvæðar hugsanir og ofþjálfun
33:59 - Ákvarðanir um breytingar
43:18 - Nýir þjálfarar, nýjar áherslur
48:24 - Endurance og púls
56:52 - Rich Froning
01:02:55 - Að vera stjarna
01:04:54 - SIMMA GYM
01:08:17 - Mataræði
01:16:39 - NIKE Global samningur
01:20:10 - Myndatökur
01:23:39 - Hugarfar
01:30:58 - Lyftingar, PR og ólympíuleikarnir
01:35:58 - Háskóli vs. íþróttamaður
01:40:34 - Góðar minningar og slæmar
01:45:14 - Keppnisskap, innblástur og Schwartzenegger
01:54:54 - "Still fat inside"
01:57:17 - 1M followers
Fri, 18 May 2018 - 2h 02min - 140 - #1 - Björgvin Karl
Björgvin Karl, fremsti CrossFit-karl landsins og fjórfaldur heimsleikafari, settist niður og ræddi um Stokkseyri, CrossFit, andlegu hliðina, peninga og Þjóðhátíð.
08:10 - Athlete IQ - það sem þú æfir ekki í gymminu
13:47 - Deadmau5
14:50 - 100kg clean á sokkunum og CrossFit
19:34 - Að sjá Anníe Mist í fyrsta skipti
24:43 - Ekki í háskóla
27:17 - Björgvin fer á Games
32:20 - Úr 26. yfir í 3. sæti
34:20 - Chris Hinshaw
37:53 - Dan Bailey, Murph og Games 2015
44:58 - Podium finish
49:34 - Peg boardið
55:32 - "Ég er Top10"
57:50 - Lyfjapróf
01:00:39 - Ég sætti mig ekki við Top10
01:03:36 - Off-season, hjartsláttamælar og loftháð þol
01:12:29 - Hvernig á að hita upp til að performa betur
01:19:58 - Venjuleg æfingavika og mataræði
01:25:34 - Dorian "The Shadow" Yates
01:28:23 - Að nenna ekki á æfingu og fórnarkostnaður
01:32:43 - Peningar, Instagram, styrktaraðilar og hamborgarar
01:43:02 - Mental strength og að tala við sjálfan sig
01:57:23 - Aldrei sleppt æfingu
01:59:07 - Æfa með Rich Froning
02:07:30 - Næring og stress fyrir keppni
02:14:53 - 10km og Kári Steinn
02:20:20 - Þjóðhátíð og önnur áhugamál
02:27:23 - Stærsta tap á ferli Björgvins
Tue, 15 May 2018 - 2h 31min - 139 - #134 - Ólafur Stefánsson
Ólafur Stefánsson ræðir vegferðina að því hvernig hann varð besti handboltamaður heims eftir að hafa ekki verið valinn í landsliðsúrtak og komast ekki inn í læknisfræðinám.
Eftir ferilinn fór Óli í 7 ára ferðalag, kynntist sjálfum sér, upplifði það sem hann hafði lesið um og er núna kominn aftur heim.
Thu, 14 Jul 2022 - 1h 43min - 138 - #133 Gísli og Erlingur - stofnendur Controlant
Starfsmönnum Controlant fjölgaði úr 50 í 350 og tekjurnar úr 400 milljónum í 8 milljararða á aðeins 2 árum. Controlant varð landsþekkt á örskömmum tíma þegar samstarf þess við Pfizer og vöktun bóluefna gegn Covid-19 var handsalað.
Það er freistandi að kalla þetta 'overnight success' en ef horft er til síðustu 15 ára er ljóst að árangurinn náðist ekki á einni nóttu. Rafmagnsverkfræðingarnir Gísli og Elli hönnuðu þráðlausan skynjara til að mæla þrýstinginn í jeppadekkjum en þegar svínaflensan skaut upp kollinum kom í ljós að skynjararnir gætu gegnt mikilvægara hlutverki í samfélaginu. Þar hófst mikill vöxtur og vegferð í átt að samningum við Pfizer með skrautlegum verkefnum í millitíðinni þar sem lausnir Controlant vöktuðu gítar Brian May, þörunga, matvörur fyrir Chipotle og fleiri.
Thu, 07 Jul 2022 - 1h 39min - 137 - #132 - Mari Järsk
Mari er ultrahlaupari sem gerði bakgarðinn frægan þegar hún hljóp 288km fyrr í vor.
Hér fer hún yfir uppeldisaðstæður í Eistlandi, fíkn foreldra sinna, lífið í sveitinni án uppeldis og menntunar, að vera tekin frá foreldrum, SOS barnaþorpin, flutninga sína til Íslands, uppgjör við æskuna, all-in genið og djammið, hvernig hún safnaði/sparaði fyrir íbúð, ultrahlaupin og innkoman í hlaupasenuna hérlendis.
Wed, 29 Jun 2022 - 2h 41min - 136 - #131 - Villi Vill
Óskabarn Napólí fer hér yfir stormasaman feril í stúdentapólitík og stjörnulögfræði: lögreglufylgd af fótboltaleik til að halda ræðu á Bessastöðum, ritgerðarmálið sem þurrkaði atvinnutækifærin út af borðinu og neyddu Villa til að flytja á Skagaströnd, Landsréttarmálið og stærsta málsflutningur ferilsins, dómstól götunnar, tattúin, Napólí, Ítalíu og fjölskyldulífið.
Thu, 23 Jun 2022 - 1h 59min - 135 - #130 - Reynir Finndal Grétarsson
"Við eigum bara daginn í dag. Það er það eina sem við höfum og hann þarf bara að vera góður. Hver einasti dagur þarf að vera góður."
Reynir seldi fyrirtæki og er í dag fjárfestir sem byggir hús, mokar skít og gróðursetur tré. Hann heldur fjarlægð frá peningum og fær aðra til að sjá um þá fyrir sig. Við ræðum hvernig hann eignaðist margar milljónir sem ungur maður og tapaði þeim öllum, útrás CreditInfo og af hverju Reynir lærði þróunarfræði, mannfræði, grísku og frönsku áður en hann hélt út með fyrirtækið, að fara í stuttbuxur en ekki jakkaföt, sögur frá Kabúl og Teheran, erfiðasta tímabil lífs hans og skömmina sem fylgdi kvíðalyfjunum.
Wed, 15 Jun 2022 - 2h 04min - 134 - #129 - Andri Þór Guðmundsson
“Eitt af mínum stærstu markmiðum var að öðlast innri ró. Þú lifir ekki lífinu fyrir aðra, þú lifir lífinu fyrir sjálfan þig. Ég átti pabba sem var alkóhólisti og það er ákveðið átak að brjótast út úr því og taka stjórn á lífinu. Þú þarft stundum að taka erfiðar ákvarðanir og erfiða slagi sem eru sársaukafullir og draga dilk á eftir sér allt þitt líf en þú verður að setja sjálfan þig í fyrsta sæti, það er enginn annar sem gerir það fyrir þig.”
Andri Þór hefur stýrt Ölgerðinni síðustu 20 árin en þegar hann tók við forstjórastarfinu var markaðshlutdeild Ölgerðarinnar 30% á móti 70% samkeppnisaðila og 15% hjá Pepsi á móti 85% Coke. Við ræðum stór og áþreifanleg markmið sem Andri setur fyrirtækinu og sjálfum sér, hvað þarf til að framfylgja sterkum gildum, að leyfa sér að hugsa stórt og setja sér risa markmið, erfiðleika í fjölskyldulífinu, hvernig NOCCO kom eins og stormsveipur inn á koffínmarkaðinn, skortinn á sjálfstrausti og drifið í sköpunargleðinni.
Thu, 02 Jun 2022 - 1h 29min - 133 - #128 - Gústi bakari
Ágúst Einþórsson setti á laggirnar Brauð & Co. árið 2016 og kröfur Íslendinga til súrdeigsbrauðs og kanilsnúða breyttust til frambúðar. Margt var í gangi bakvið tjöld vinsælasta bakarís landsins enda Gústi lunkinn í að lenda upp á kant við fólk að eigin sögn. Forsaga og eftirmálar bakarísins eru hér gerðar upp af einum skrautlegasta karakter sem gengur um götur bæjarins, sem rekur nú bakaríið og veitingastaðinn Baka Baka. Í þættinum ræðir Gústi flutningana til Danmerkur til að greiða djammskuldir með gjaldeyrismismun, að komast undir kröfum annarra í Kaupmannahöfn, samningar við stofnun Brauð & Co. og eftirmálarnir við söluna, edrúvandamálin sín, fíkniefnakaup af meðlimum Hells Angels, hvernig 8 ára edrútímabil leið undir lok, í hvað peningurinn fór við sölu hlutarins í Brauð & Co. og fyrst og fremst heiðarleg frásögn af mannlegri vegferð gegnum töp og sigra lífsins.
Wed, 30 Mar 2022 - 2h 37min - 132 - #127 Þórður Pálsson - Forstöðumaður fjárfestinga
"Covid niðursveiflan var miklu harðari en ég bjóst við og ég held að niðursveiflan núna sé miklu alvarlegri en nokkurn tímann Covid."
Þórður Pálsson er forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og fyrrverandi yfirmaður greiningardeildar Kaupþings. Í þættinum er farið yfir breitt svið efnahagsástandsins í dag:
Áhrif Covid á hlutabréfaverð Lækkun stýrivaxta og áhrif á markaði Verðbólguspá Þórðar Almenningur vs. fagfjárfestar á hlutabréfamarkaði Gírun í kerfinu Órói og kostir þess að halda á lausu fé Peningaprentun og Seðlabankinn Fasteignamarkaðurinn - getur íbúðarverð hækkað endalaust og erum við í bólu? RafmyntirWed, 23 Mar 2022 - 1h 53min - 131 - #126 - Aníta Briem
Aníta var einungis 24 ára gömul þegar hún landaði aðalhlutverki í Hollywood stórmyndinni Journey to the Center of the Earth. Í dag er hún flutt heim og hefur aðra sýn á glansmynd Hollywood-framleiðslunnar. Aníta ræðir agann sem henni tókst að beina í átt leiklistarinnar til að láta drauma sína rætast en á yngri árum kom þessi sami agi henni í lífshættu þegar hún var vistuð á BUGL vegna anorexíu, mikilvægi þess að flytja út, hömlurnar sem hún vissi ekki að hún væri með á sjálfri sér, Werner Herzog, aðdáun samnemenda á pabba sínum og nýjustu myndina hennar: Skjálfti.
Wed, 16 Mar 2022 - 1h 59min - 130 - #125 - Erpur Eyvindarson
Þriggja tíma uppistand frá listamanninum Erpi Eyvindarsyni. Kennarasonurinn alinn upp á finnska mátann deilir skoðunum á Könum vs. Finnum, siðareglum mismunandi þjóða (djúpsteikt sushi, Víetnamskar stríðsgildrur og heiðnir siðir), upplestur úr Mein Kampf á afmælishátíð Laxenss (13 ára gamall), einn af þremur Íslendingum dæmdum fyrir að smána erlenda þjóð (Mólotov kokteill + áfengi + bandaríska sendiráðið), Sacha Baron Cohen vs. Johnny Naz, að hætta í skemmtanabransanum og flytja til Svíþjóðar, allt kjaftæðið sem Friðrik Dór hefur þurft að umbera, nauðsynleg edrútímabil og að fá meira út úr sundferðum heldur en Edduverðlaunum.
Wed, 09 Mar 2022 - 3h 05min - 129 - #124 - Brynjar Karl
“You can’t make a pig a race horse, but you can make a pretty fast pig” - Þetta hefur alltaf fests með mér, mér finnst svo gaman að þjálfa svín. Mér finnst svo gaman þegar svínin pakka veðhlaupahestunum saman.
Brynjar Karl, stofnandi og eigandi Sideline Sports (hugbúnaður notaður af færustu þjálfarateymum heims: NBA, NFL, Bandaríski herinn ofl.), eigandi KeyHabits, meistari í kvíðanum og þjálfari íþróttafélagsins Aþenu.
Brynjar hefur 35 ára starfsreynslu, unnið með herakademíum í Bandaríkjunum, Alþjóða körfuknattleikssambandinu (FIBA) og virtum þjálfurum um allan heim en ákvað að taka erfiðasta verkefni lífs síns að sér á hliðarlínunni: að þjálfa ungar stelpur í körfubolta. Vegferðin og þjálfunaraðferðir Brynjars stinga í stúf og samfélagið situr ekki á skoðunum sínum þegar kemur að börnunum. Börnin eru þá ekki vandamálið í augum Brynjars heldur foreldrarnir og íþróttafélögin - enda fengu kraftar og hugmyndafræði hans óvæntan mótbyr.
Við ræðum tvískiptan feril Brynjars, sem þjálfari og frumkvöðull í ótrúlegu harki í Bandaríkjunum, Sideline Sports, vanviðring samfélagsins á börnum, mannréttindabrotin inní íþróttahúsunum, innihaldslaus hrós foreldra til kvíðna barna, slagsmál stelpna og hvar Brynjar fer á skjön við samfélagið.
Wed, 02 Mar 2022 - 2h 56min - 128 - #123 Sölvi Blöndal - forsprakki Quarashi og hagfræðingur ársins
“Ég hafði ekki áhuga á að vera í þessu lífi eina sekúndu í viðbót. Ég ætlaði aldrei að snerta kjuðana aftur og það var svo góð tilfinning. Það er besta tilfinning sem ég hef fengið að hætta í Quarashi.”
Sölvi Blöndal einsetti sér að verða besti trommari í heimi og nýstofnuð hljómsveit hans, Quarashi, var fínasti vettvangur til þess. Quarashi sló í gegn á heimsvísu, komu Jinx á Billborad listann, hituðu upp fyrir Eminiem og Prodigy, túruðu fyrir ofuraðdáendur í Japan en hljómsveitarmeðlimir gátu ekki meir.
Með sína maníu-nálgun á lífið settist Sölvi, þá 30 ára, á skólabekk með íslenskum aðdáendum sínum. Eftir útskrift er hann ráðinn inn í Kaupþing af Ásgeiri Jónssyni, þaðan yfir til Gamma og árið 2017 er hann kjörinn hagfræðingur ársins.
Wed, 23 Feb 2022 - 2h 01min - 127 - #122 Rafn Franklín - ábyrgð á eigin heilsu
Rafn Franklín lifir á jaðri heilsueflingarinnar, prófar hluti á eigin skinni og safnar saman í góðan upplýsingabanka sem við flettum gegnum í þessu viðtali.
Umhverfið stýrir lífsstíl okkar í vitlausa átt og það er krefjandi áskorun að vinna gegn því. Við tölum um ákvarðanir okkar og afleiðingar fyrir börnin okkar (epigenetics), kaloríur en skort á næringu, grænmetisolíur, bjagaðar rannsóknir, togstreitu mismunandi matarkúra, healthy user bias, af hverju Rafn velur hreinan sykur frekar en bakka af frönskum, innmat og fleira.
Thu, 17 Feb 2022 - 1h 58min - 126 - #121 - Gerður Arinbjarnardóttir
Gerður er eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, sem er bæði framúrskarandi fyrirtæki og skuldlaust. Hún er ekki hámenntuð í viðskiptum og markaðsfræði, raunar hefur hún hvorki lokið háskóla- né menntaskólagöngu, en hlaut nýverið titilinn Markaðsmanneskja ársins. Aðferðir Gerðar eru einfaldar og 'ghetto'. Hún hefur þurft að hafa fyrir hlutunum, farið í gjaldþrot, verið hrædd við peninga og fundið sig grátandi af óhamingju í nýja Benzinum sínum þegar hún loksins eignaðist þá.
Wed, 09 Feb 2022 - 1h 53min - 125 - #120 - Björn Hlynur Haraldsson
“Ég mætti í viðtal og hraunaði yfir allt, nýútskrifaður pjakkur, sagði að allt væri ömurlegt og að fólk þyrfti að rífa sig í gang. Eldri stórleikarar sögðu við mig: Þú ert bara game over kallinn minn.”
Björn Hlynur hefur ekki farið framhjá þér síðustu misseri með stórleik í Verbúðinni, Ófærð, Leynilöggu, The Witcher, Eurovision Song contest og fleiri kvikmyndum. Björn lætur ekki leiklistina nægja, hann skrifar, leikstýrir og rekur einn ástsælasta sportbar landsins á hliðarlínunni.
Wed, 02 Feb 2022 - 1h 46min - 124 - #119 Björn Hjálmarsson - sérfræðilæknir á BUGL
Björn Hjálmarsson, sérfræðilæknir á barna- og unglingageðdeild, ræðir um tengslakerfið sem öflugasta vopnið gegn hugrænum þjáningum, hvernig þessar þjáningar birtast okkur í samfélaginu, stirnunarkerfið, lítil hrædd börn í líkömum fullorðinna einstaklinga, sjúkdómsvæðing sorgarinnar og flóttann frá eigin tilfinningum. Björn hefur ekki bara menntun og starfsreynslu á þessu sviði heldur fór hann í gegnum afar erfiða lífsreynslu fyrir 20 árum síðan sem leiddi til nauðungarvistunar á geðdeild.
Wed, 26 Jan 2022 - 1h 37min - 123 - #118 - Þorgrímur Þráins
Fáir sem ekki flokkast undir starfsstétt kennara hafa eytt jafn miklum tíma inni í skólastofum landsins og Þorgrímur Þráinsson. Eftir 13 ár af fyrirlestrum innan veggja skóla landsins deilir Þorgrímur fast mótuðum skoðunum sínum á hegðun samfélagsins gagnvart börnum, greiningu á vandamálinu sem skapast og úrræða sem þarf að grípa til. Þar að auki ræðum við rithöfunda-, blaðamanna- og knattspyrnuferilinn.
Wed, 19 Jan 2022 - 1h 49min - 122 - #117 - Guðni Gunnarsson
"Hvað þekkir þú marga sem eru ekki fórnarlömb? Sem eru ekki að ásaka sig eða annan, ásaka ríkisstjórnina, sem eru ekki að réttlæta sína tilvist og afsaka sig? Af hverju? Því það er einhver ávinningur af því að vera fórnarlamb í eigin sögu. Þá geturu réttlætt vanmátt þinn og útskýrt af hverju þú ferð ekki á fætur, af hverju þú drekkur eða borðar svona mikið. Það er bara eitt lögmál: orsök og afleiðing. Ef þú ert að upplifa þjáningu eða vanmátt þá ertu að stórum hluta að valda því sjálfur."
Guðni Gunnarsson er lífsráðgjafi og einn af frumkvöðlum Íslands á sviði líkams- og heilsuræktar. Hann hefur starfað við fagið í tæpa fjóra áratugi og er m.a. fyrsti einkaþjálfarinn á Íslandi.
Wed, 12 Jan 2022 - 1h 51min - 121 - #116 - Jóhannes Ásbjörnsson
Fjölmiðlastjarnan sem var hafnað af LHÍ, fór að vinna í banka, hélt vinnunni í hruninu en sagði sjálfur upp til að opna veitingastað. Jói Ásbjörns hefur komið við á nánast öllum hefðbundnari miðlum og slegið í gegn í þáttum eins og Mono, 70 mínútur, Idol og Wipeout - þrátt fyrir að fjölmiðlarnir voru alltaf hans aukastarf.
Wed, 05 Jan 2022 - 1h 45min - 120 - #115 - Baldvin Z
Baldvin Z leikstýrði Óróa, Vonarstræti, Lof mér að falla og nú síðast sjónavarpsþáttunum Svörtu Sandar.
Hann fór ungur fram úr sjálfum sér með hljómsveitinni sinni, Toy Machine, þar sem þeir voru á brún þess að meika það í Bandaríkjunum en klúðruðu málunum í örlaga ríkri ferð sem kenndi Baldvini mikilvæga lexíu út ferilinn: Nobody gives a fuck. Gríðarlega skemmtilegt spjall um kvikmyndaframleiðsu, óþægilega raunverulega handrits- og bakgrunnsvinnu verkefna Baldvins, fjármögnun í bransanum, sjónvarpserían sem listform og hvernig Baldvin gleymdi að minna sig á áðurnefnda lexíu þegar Vonarstræti sló í gegn og hætti alfarið á Facebook til að verjast hrósi og athygli.
Wed, 22 Dec 2021 - 1h 52min - 119 - #114 - Dagur B. Eggertsson
Mikið hefur gengið á í Reykjavíkurborg og hjá borgarstjóra hennar síðustu áratugi. Líklegast það súrealískasta kjör Jóns Gnarrs sem borgarstjóra en Dagur lýsir þeirri atburðarrás frá sínu sjónarhorni í þættinum ásamt því hvernig hann ákvað að hrista upp í sjálfum sér og aflæra pólitíska framkomu eftir stórsigur Jóns, hvernig lýðheilsa borgarbúa og borgarskipulag haldast í hendur, læknisfræðimenntun Dags, álagið sem fylgir starfinu, fjölskyldulífinu, sjúkdómnum og seigluna sem þarf til að áorka hlutum í lífinu.
Wed, 15 Dec 2021 - 1h 42min - 118 - #113 - Alfreð Gíslason
Núverandi þjálfari Þýska landsliðsins og einn farsælasti handboltaþjálfari sem við Íslendingar eigum. Alfreð Gíslason hefur ekki ennþá komist að því af hverju hann er eins og hann er, áhugi er léleg lýsing á dellunum sem hann fær en metnaðurinn og vinnusemin í bland leiðir hann að ótrúlegum árangri. Sem dæmi tapaði Kiel ekki stökum leik árið 2012 þegar liðið vann Evrópudeildina, urðu Þýskalandsmeistarar þýskir bikarmeistarar - Alfreð var samt ekki sáttur. Þessum metnaði finnur hann ekki bara farveg í handboltanum, hann er forfallin sagnfræðiáhugamaður (og lærður sagnfræðingur), stundar garðrækt (ræktar yfir 170 ávaxtatré og rósartegundir) og ræktar og framleiðir sitt eigið hunang. Garðyrkjuna stundaði hann að krafti með Köru, besta vini, harðasta gagnrýnanda og eiginkonu Alfreðs til rúmlega 40 ára sem féll frá í maí síðastliðnum.
Wed, 08 Dec 2021 - 1h 51min - 117 - #112 Kristján I. Mikaelsson - Er verðbólgan að éta upp bestu ár lífs þíns?
Peningar, fasteignir, gull, Bitcoin og Charizard í glansi eru allt sjaldgæfir hlutir en það sjaldgæfasta, og verðmætasta, sem þú munt nokkurn tímann eiga er tíminn þinn. Er skynsamlegt að skipta tímanum þínum, sem þú munt aldrei eignast meira af, fyrir gjaldmiðil sem rýrnar í virði? Hvað ertu að borga fyrir það að kynna þér ekki þín eigin fjármál og hvers virði eru bestu ár lífs þíns?
Kristján Ingi er fyrrverandi formaður rafmyntaráðs og þessi þáttur fjallar um hans sín á hagkerfið, hvaða vandamál rafmyntir leysa, hvort það sé eðlileg krafa að fólk kunni að fjárfesta, af hverju kerfið er sett þannig upp að ég vilji eyða pening og hvort eru fasteignir að hækka í virði eða peningurinn sem þú vannst þér inn að lækka í virði?
Wed, 01 Dec 2021 - 2h 42min - 116 - #111 - Máni Pétursson
Harmageddonbróðirinn sem veður í allt og alla en er á sama tíma markþjálfi sem les sjálfshjálparbækur. Máni rekur sögu Harmageddon og vinskap sinn við Frosta sem hófst eftir neyslutímabil og meðferð um tvítugsaldurinn. Einn daginn, reykjandi kannabis, fattaði hann að það mun enginn banka upp á og bjóða honum að meika það. Við ræðum aðskilnaðarkvíðann frá Frosta, hvernig reiðin eftir hrun var eldsneyti Harmageddons, kvíðann og kvíðalyfin, hvernig drullið yfir Frikka Dór endaði með því að Máni gerðist umboðsmaðurinn hans, hvernig Mamma Frikka krafðist þess að Máni umbaði Jón líka og hvernig það er að stjórna útvarpsþætti í þunglyndiskasti.
Wed, 24 Nov 2021 - 1h 41min - 115 - #110 Kristján Gíslason - Ekki vera fullkomin, sleppið af ykkur beislinu
Með hvatningarorðum föðurs síns heitins: “aldrei hætta að þora” hefur Kristján Gíslason ýtt sér út af beinu brautinni og ferðast um allan heim, einn síns liðs á mótorhjóli. Eftir mikla farsæld í viðskiptalífinu, vinnustundir myrkranna á milli, litla samveru með börnunum sínum og ofgnótt af veraldlegum hlutum fann Kristján sig á efri árum í leit að einhverju þýðingarmeira en golfi og sportbílum. Hér færðu á einu bretti sögustund úr ævintýralegum aðstæðum og visku sem Kristján dregur af ferðalögum sínum og fólkinu sem verður á vegi hans.
Wed, 17 Nov 2021 - 3h 02min - 114 - #109 Matthew Walker - Svefn í skammdeginu, orkudrykkir, koffínneysla og andleg heilsa
Dr. Matthew Walker er prófessor við Berkeley háskóla og sérfræðingur í svefni, sálfræði og taugalífeðlisfræði.
Fókus þáttarins eru aðstæðurnar sem Íslendingar lifa við, áhrif þessara aðstæðna á svefninn okkar og hvað við getum gert til að jafna leikinn. Gefðu þér klukkutíma til að hlusta á þáttinn áður en þú grípur næsta kaffibolla í svartasta skammdeginu.
Umræðuefni eru meðal annars:
Mikilvægi svefns á mismunandi æviskeiðum Koffíndrykkja (kaffi vs. orkudrykkir og hvernig skal hámarka ávinning/lágmarka skaða koffíns) Sólarljós og líkamsklukkan Testesterón og vaxtarhormónar Svefn sem varnarhlið andlegra kvilla (sérstaklega fyrir ungmenni) Af hverju það er álitið leti að vilja sofa lengurWed, 10 Nov 2021 - 1h 05min - 113 - #108 Gunnar Karl - Vinna, tapa og endurheimta Michelin stjörnuna
Þrátt fyrir að hafa bæði opnað og nefnt B5 er Gunnar Karl líklega þekktastur sem eigandi Dill. Brösótt byrjun staðarins (þar sem eigendurnir lokuðu staðnum nokkur kvöldin og fóru sjálfir út að borða) benti ekki til að þetta yrði eini Michelin staður landsins í náinni framtíð. Gunnar hefur farið víða og bauðst að opna stað í New York. Hann flutti út með 4 barna fjölskyldu og var stuttu eftir opnun búinn að vinna sér in Michelin stjörnu á þeim stað líka - áður en fréttir bárust að Dill hafi misst sína stjörnu sem þýddi að okkar maður flutti heim með stjórfjölskylduna til þess eins að endurheimta stjörnuna.
Hér ræðum við veitingarekstur, sögur af ferli Gunnars, að opna stað í hruninu, hvatann í því að sjá ekki eftir því að láta ekki reyna á hlutina og hvernig Gunnar er aldrei sáttur og passar að staðna ekki í starfi.
Wed, 03 Nov 2021 - 1h 42min - 112 - #107 Júlían J.K. - Hvernig skal styrkjast
Júlían er einn af þremur kraftlyftingamönnum sem hafa hlotið titilinn Íþróttamaður ársins og er þar með settur í flokk ásamt Skúla Óskarssyni og Jóni Páli Sigmarssyni. Hann á heimsmet í réttstöðulyftu, vegur 160 kíló og hefur tvöfaldað samanlagðan árangur sinn í kraftlyftingum á síðasta áratugi. Hér finnuru góðan fróðleik um lyftingar, styrkingar, aga, markmiðasetningu og sovésk æfingakerfi.
Wed, 27 Oct 2021 - 1h 27min - 111 - #106 Einar Vilhjálmsson - Efling hins megnuga sjálfs
Einar Vilhjálmsson er einn mesti íþróttamaður sem Íslendingar hafa átt. Hann var íþróttamaður ársins árið ’83 ’85 og ’88 og árið 1985 var hann stigahæsti frjálsíþróttamaður heims þvert á allar frjálsíþróttagreinar. Keppnisferill Einars spannar um 220 mót í 22 löndum og hafnaði hann á verðlaunapalli á 200 þeirra.
Við fáum góðar sögur af ferlinum og einnig heimspekilega sýn Einars á lífið um eflingu hins megnuga sjálfs, að spyrja sig og aðra af hverju, hvers vegna er ég að þessu, hvernig er hægt að bæta sig, hvernig hann byggði upp eldmóð fyrir hvert kast (undir gríðarlegri pressu) og að sjálfsöðu hvernig það er að vera eldri bróðir Simma Vill.
Wed, 20 Oct 2021 - 2h 02min - 110 - #105 - Hilmir SnærWed, 13 Oct 2021 - 1h 31min
- 109 - #104 Arnar Gunnlaugs - Frá Akranesi í Meistaradeildina, gegnum góðæri og gjaldþrot og ástríðan fyrir þjálfun
Skagatvíburarnir Arnar og Bjarki héldust í hendur gegnum fyrri hluta ævinnar: Íslandsmeistarar í badmintoni, Íslandsmeistarar í fótbolta, yngri landsliðin, A landsliðið og atvinnumennskan. Þegar meiðsli enduðu ferilinn var Arnar kominn með nóg af fótbolta og hafði engan áhuga á þjálfun. Viðskiptalífið varð þeirra næsti vígvöllur: skemmtistaður, veitingastaður, fatabúð og fasteignabrask sem gekk vel - þar til allt hrundi. Gjaldþrot var það eina í stöðunni og í leit af nýjum tækifærum bankaði fótboltinn aftur upp á.
Wed, 06 Oct 2021 - 1h 26min - 108 - #103 Snorri Magnússon - Örvun hreyfiþroska barna
Það var rækilega skellt á andlitið á honum þegar Snorri Magnússon, sundkennari og þroskaþjálfi, hóf að kenna ungbarnasund hér á landi fyrir 30 árum. Hann ákvað því að kenna sínum eigin börnum en forvitnir foreldrar af fæðingadeildinni fengu að fljóta með. Í dag hefur Snorri kennt rúmlega 7.000 börnum og eftirspurnin svo mikil að nýbakaðir foreldrar þurfa að mæta inntökuskilyrðum og sýna bæði metnað og áhuga til að komast að. Sundkennslan er þekkt um allan heim með milljónir flettinga á vísindarannsóknum og myndböndum af börnum standandi í lófum Snorra á samfélagsmiðlum.
Allt snýst þetta um örvun hreyfiþroska barnanna og Snorri situr ekki á skoðunum sínum þegar kemur að uppeldisaðferðum sem gagnrýna ögrandi umhverfi ungbarna.
“Það er ekkert nýtt undir sólinni þegar það kemur að börnum, ekki neitt. Það hefur allt verið gert áður. Það er bara meira vitað um heilann og þroska hans.”
Wed, 29 Sep 2021 - 1h 29min - 107 - #102 Ragnar Jónasson - Milljóna bóka rithöfundurinn í bankageiranum
Ragnar Jónasson labbaði inn í bókaforlag 17 ára gamall bauðst til að þýða Agöthu Christie bækurnar vinsælu. Næstu 15 ár, í gegnum lögfræðinám, störf sem fréttamaður og lögræðingur Kaupþings þýddi hann bækur á hliðarlínunni en það var ekki fyrr en í fjármálahruninu 2008 sem Ragnar, bankastarfsmaðurinn, staldraði við og ákvað að reyna á bókakskrifin. Sú ákvörðun bar ávöxt: 1. sæti í Frakklandi, 1. sæti í Bretlandi, 1. sæti í Þýskalandi, 3 bækur samtímis á top 10 listanum í Þýskalandi og 2 milljónir eintaka seld.
Ekki eins og hann hafi hætt aðalstarfi sínu í Arion banka heldur gefur hann sér tíma á hverjum einasta degi til að skrifa bækur eftir vinnu. Við ræðum leiðina að skrifunum, störfin hans áður, núverandi störf og m.a. vinnu hans með Controlant, viðskiptamódelið á bakvið bókasölu og hvernig fótboltaleikur í Skotlandi kom Ragnari á kortið.
Wed, 22 Sep 2021 - 1h 28min - 106 - #101 - Bjarni Benediktsson
Í þættinum ræðum við feril Bjarna fyrir pólitíkina, fótboltann, lögfræðina, námið í þýskalandi og Ameríku, að verða faðir 21 árs gamall, maraþonhlaup og hvernig stjórnarslit komu í veg fyrir Berlínarmaraþonið, hvernig annasamasti maður landsins - áreittur úr öllum áttum - finnur tíma fyrir fjölmörg áhugamálin sín (veiði, skíði, ljósmyndun, blómarækt, kökuskreytingar ofl.) og hleður batterýin í baðkarinu heima bæði morgna og kvölds.
Wed, 15 Sep 2021 - 1h 40min - 105 - #100 Martha Ernstsdóttir - Hraðasti hlaupari Íslandssögunnar
Martha Ernstsdóttir er fyrsti Íslendingurinn til að hlaupa maraþon á Ólympíuleikunum og Íslandsmetin hennar í 5000m 10000m, hálfu maraþoni og heilu maraþoni standa ennþá - og það nokkuð örugglega. Hér förum við yfir hörkuna sem Martha og langhlauparar búa yfir, feril og yfirburði Mörthu, æfingarnar í snjónum, púlsþjálfun, mjólkursýrumælingar, ofþjálfun, egóið, að gera það sem maður vill og hvernig ÍSÍ kom í veg fyrir að Martha keppti á Ólympíuleikunum þrátt fyrir að ná lágmarki í þremur (!!!) greinum.
Wed, 08 Sep 2021 - 1h 44min - 104 - #99 - Willum Þór Þórsson
“Ég get tekið undir það ég er alveg grjótharður gamli skólinn.”
Willum Þór ræsti skólagönguna 5 ára gamall, lék með yngri landsliðum í körfubolta, fótbolta og handbolta ásamt því að leika fyrir meistaraflokk KR í öllum þremur greinunum á sama tíma.
Kennari, þjálfari og alþingismaður af gamla skólanum sem hefur aldrei felt niður kennslu, tekið sér veikindadag frá vinnu og er með 99% mætingu á þingið.
Samnefnarinn í íþróttum, kennslu og pólitík krufinn til mergjar og heimspekilegar pælingar frá hægum manni, að eigin sögn, sem getur þó séð rautt og gengst þá við viðurnefninu Tryllum, að annarra sögn.
Wed, 01 Sep 2021 - 1h 43min - 103 - #98 - Anníe Mist
Anníe Mist vann sér inn medalíu á CrossFit Games 2021, 10 mánuðum eftir barnsburð. Ótrúleg frammistaða eftir áratug í sportinu rakin, hugmyndin um að sleppa þessum heimsleikum bara, ákvörðunin að eignast barn, fjárhagur crossfittara, konur eru ekki litlir menn, hvernig konur eiga að nærast/æfa öðruvísi en karlar og margt fleira.
Dave Castro, framkvæmdastjóri CrossFit Games:
People are too casual about the fact that Annie has been competing at the CrossFit Games since 2009. Someday, someone will write a book about the dizzying evolution of the sport that has occurred since then.
In the meantime, you can learn everything you need to know by looking at Annie’s stats over the last 13 years—of all the OG competitors she is the only one still competing; a perennial contender in the new era she literally helped create.
The physical and mental fortitude required to remain at the top of this sport for so long is hard to comprehend. The relatively short individual careers of Rich Froning (5 years) and Mat Fraser (7 years)—universally regarded as the best ever—provide some perspective. Annie, has outlasted them both.
That she is returning to the Games for the eleventh time just 10 months after giving birth is, if not an outright flex, certainly a message: CrossFit’s original Dottir isn’t done redefining what’s possible.
Wed, 25 Aug 2021 - 1h 48min - 102 - #97 Birgir Jónsson - Úr prentnámi og þungarokki í forstjórastólinn
Birgir Jónsson er forstjóri PLAY Air en það er þriðja flugfélagið sem hann starfar fyrir. Rétt orðinn þrítugur var hann kominn í forstjórastól Iceland Express og þar áður bjó hann í Hong Kong sem svæðisstjóri Össur. Atvinnuferill Birgis er áhugaverður í ljósi þess að hann er menntaður sem offset prentari, fór í listaháskóla í London og var þungarokkari. Munurinn á rekstri fyrirtækja og þungarokkshljómsveita er í grunninn ekki mikill og rauði þráðurinn er að vinna með fólki. Hér förum við yfir ferilinn, tímann hans hjá Póstinum, DIMMU, hugmyndina af PLAY Air, hvað gerir Birgi svona góðan í því sem hann gerir og hvernig honum tókst að sannfæra 3 þungarokkara um að koma með sér í sálfræðitíma.
Wed, 21 Jul 2021 - 1h 44min - 101 - #96 - Þorsteinn Bachmann
Þorsteinn Bachmann fer með stórleik í þessum þætti. Við útskýringar á aðferðarfræði Chekhov og Stanislavski var hann við það að bresta í grát þáttastjórnandi líka. Við förum yfir hlutverkið hans í Kötlu, hvernig Helgi Björns kickstartaði leikferli Þorsteins og feimnina sem hann þurfti að yfirstíga til að mæta á svið - sem var svo mikil að hann kastaði upp á milli sena.
Wed, 14 Jul 2021 - 1h 55min - 100 - #95 Hafsteinn Ægir - Ólympíufari og Íslandsmeistari í sitthvorri íþróttinni
Hafsteinn Ægir Geirsson er einn albesti hjólari landsins. Hann hefur unnið Bláa Lóns þrautina í fjallahjólreiðum 11 sinnum og er sömuleiðis margfaldur Íslandsmeistari í götuhjólreiðum. Ekki nóg með að ná langt í hjólreiðum hefur hann farið á tvenna ólympíuleika í allt annarri íþrótt: siglingum. Hafsteinn segir okkur frá því hvernig hann fann sig í siglingunum sem ungur strákur, hætti í menntaskóla eftir lítinn stuðning frá skólastjóra, flutti til Suður-Frakklands, keppti á tvennum ólýmpíuleikum áður en hann yfirgaf íþróttina til að gerast Íslandsmeistari í annarri. Skiptin á milli íþrótta eiga við einhver rök að styðjast þar sem hann tók styrk í löppum, þrautseigju og brjálað keppnisskap með sér milli íþrótta.
Wed, 07 Jul 2021 - 1h 59min - 99 - #94 Ásgeir Jónsson - Seðlabankastjóri Íslands
Ásgeir Jónsson ólst upp í sveit og var illa tekið af samnemendum í grunnskólanum sínum. Hann átti erfitt með tal, var ólæs og lagður í einelti af jafnöldrum sínum. Þegar honum tókst loksins að lesa ákvað hann að fara alla leið í því námi sem hann tæki sér fyrir hendur. Eftir stutta viðkomu í líffræði, læknisfræði, á spítalanum og á sjónum endaði Ásgeir í hagfræði sem leiddi hann í starf aðalhagfræðings Kaupþings og nú Seðlabankastjóra Íslands.
Ásgeir er var um sig og lærði fljótt í sínu starfi hjá Kaupþing að allir vildu vera vinir hans þegar vel gekk en önnur var sagan þegar bankinn hrundi. Í viðtalinu er stiklað á risastóru:
Greining á Trump Að finna sér ævistarf sem maður elskar og hvað ungt fólk á að læra Að missa systur sína og átta sig á því hvað hann vildi gera við líf sitt Að taka helmingslaunalækkun og yfirgefa bankageirann Stam sem fötlun og ákvörðunin að þola það þegar fólk horfir á sig Framkoma nemenda og íslenskukennsla á Íslandi Ráðleggingar til fólks varðandi fjárfestingar í lágvaxtaumhverfi Hvort áhrif stýrivaxta á fasteignamarkaðinn komu Ásgeiri á óvart Ábyrgðin sem fylgir því að vera Seðlabankastjóri "Only the paranoid survive" Kostur og gallar þess að greina allt sem maður gerir í drasl Hvernig hann klæðir sig sem Seðlabankastjóri Íslands og hvað vasaklúturinn táknarWed, 30 Jun 2021 - 1h 29min - 98 - #93 Ármann Þorvaldsson - Sagnfræðingurinn bakvið fjármálaveldið
Kennarasonurinn úr Breiðholtinu sem æfði badminton, kláraði menntaskólann á 5 árum, mætti ekki á böll og lærði sagnfræði í háskólanum til þess að sinna þeirri köllun sem hann fann hjá sér til að kenna menntskælingum sögu. Allt kom fyrir ekki, Ármann Þorvaldsson rataði inn fyrir dyr Kaupþings sem breyttist úr smáfyrirtæki í langöflugasta og verðmætasta fyrirtæki landsins á skömmum tíma. Sagan endar ekki þar eins og flestir vita, Kaupþing átti sinn hlut í hruninu og við fáum að heyra af þessum uppgangi og endalokum Kaupþings frá Ármanni sjálfum.
Wed, 23 Jun 2021 - 1h 53min - 97 - #92 Guðmundur Kristján - Af hverju borgarskipulag skiptir þig máli
Hvar viltu búa og hvað kostar þig að búa þar? Hvar er byggt og af hverju? Af hverju er freistandi að dúndra bara upp nýju úthverfi? Hvað geturu gert fyrir peninginn sem fer í bílinn þinn og hvers virði er tíminn þinn raunverulega? Borgarskipulag hefur víðtæk áhrif og skiptir sköpum þegar kemur að lýðheilsu þjóðar, loftgæðum og umhverfismálum.
Lóðaframboð, blönduð byggð, samgöngumátar, deiliskipulag, þétting byggðar og fleiri erfið, og að ég hélt óspennandi hugtök, eru hér útskýrð á mannamáli af Guðmundi Kristjáni Jónssyni, húsasmiði og skipulagsfræðingi.
Wed, 16 Jun 2021 - 2h 24min
Podcasts similaires à The Snorri Björns Podcast Show
- El Partidazo de COPE COPE
- Herrera en COPE COPE
- The Dan Bongino Show Cumulus Podcast Network | Dan Bongino
- Es la Mañana de Federico esRadio
- Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
- Express Biedrzyckiej - seria gorących, politycznych wywiadów Kamila Biedrzycka
- Opowiem Ci historię Kamil Barnowski
- Sonder. Nieznane historie Konrad Szymański
- Historie na Faktach True Crime Krzysztof Michalski
- Kryminatorium Marcin Myszka
- NASSAU BEACH CLUB IBIZA with Alex Kentucky Nassau Beach Club Ibiza
- Olga Herring: True Crime Olga Herring
- Mao Powiedziane Piotr Sochoń, Weronika Truszczyńska, Nadia Urban
- Misja specjalna RMF FM
- Sceny zbrodni RMF FM
- Frjálsar hendur RÚV
- Í ljósi sögunnar RÚV
- Segðu mér RÚV
- El Larguero SER Podcast
- Nadie Sabe Nada SER Podcast
- Hvað er málið? Sigrún Sigurpáls
- Raport Super Express
- Ja i moje przyjaciółki idiotki Tu Okuniewska
- 辛坊治郎 ズーム そこまで言うか! ニッポン放送