Filtrar por género
38 umferðir

- 51 - Wildcard og vítamín
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir lengsta landsleikjahlé sögunnar og lögðu á ráðin fyrir næstu umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 10. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Arsenal - Leeds kl 11:30 sama dag. Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule, Visitor, Bullseye, Boltamaðurinn, World Class, Ingling, Íslenski barinn og Matarkjallarinn.
Wed, 07 Oct 2026 - 50 - Er Thierno Barry næsti Thierry Henry?
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín og gáfu hlustendum góð ráð til að nýta í landsleikjahléinu.
Wed, 23 Sep 2026 - 49 - Pascal engan undra hversu góður Groß er í Fantasy
Uppgjör á 4. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Er The blue man group Þríeykið í Chelsea ómissandi, Er einhver Wissa í Newcastle liðinu og er nóttin ennþá ung fyrir þau okkar sem erum í sætum sem telja 6 tölustafi.
Wed, 16 Sep 2026 - 48 - Kominn tími á að Hull fái á sig mörk
Þeir Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á sunnudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og ótrúlega frammistöðu Hull City.
Wed, 09 Sep 2026 - 47 - Er hægt að selja Bruno eftir þessa frammistöðu?
Er hægt að selja Bruno eftir svona frammistöðu? Barcola, er það eitthvað? Og Verða Chelsea meistarar eftir að Martinez er kominn á milli stangana? Albert og Sindri leituðu meðal annars svara við þessum spurningum ásamt því að fara heilt yfir stöðuna í síðasta degi leikmannagluggans.Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 3 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich og Liverpool kl 19:00 á föstudagskvöld
Wed, 02 Sep 2026 - 46 - Chelsea kom, João og sigraði
Albert og Sindri tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í fyrstu umferð náði sér í 102 stig hvorki meira né minna. Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule léttöl, Visitor, Bullseye, Boltamaðurinn, World Class, Íslenski barinn og Matarkjallarinn. Taktu þátt í fantasy deild 38 umferða og fótbolta.net - Kóðinn er 10k1ov
Wed, 26 Aug 2026 - 45 - Síðasti upphitunarþátturinn áður en fantasy fer af stað á föstudag
Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x Fótbolta.net: 10k1ov Þriðji þátturinn af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á helstu leikmönnum sem þeir eru að íhuga fyrir umferð 1 og fóru yfir liðin sín eins og þau líta út í dag, þó vissulega muni margt breytast þar þangað til fresturinn til að gera breytingar rennur út kl 17:30 á föstudag.Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x Fótbolta.net: 10k1ov
Tue, 18 Aug 2026 - 44 - Haaland, eða ekki Haaland, þarna er efinn...
Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á öllum 20 liðunum í deildinni og fóru yfir tvær mismunandi uppstillingar hvor sem þeir sjá fyrir sér að stilla upp í fyrstu umferð, eitt lið með Haaland og eitt lið án Haaland.Einnig tilkynntu félagarnir um gjafaleik sem er að fara af stað á Instagram og Tiktok miðlum 38 umferða. Glæsilegir vinningar frá Happatreyjum, Thule, Bullseye og Matarkjallaranum. Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule, Visitor, Bullseye, World Class, Íslenski barinn og Matarkjallarinn.
Wed, 12 Aug 2026 - 43 - 38 umferðir framundan
Í fyrsta þætti tímabilsins settust strákarnir niður í Coke stúdíóinu og kynntu reglur leiksins fyrir hlustendum og fóru yfir sín fyrstu viðbrögð við breytingum leiksins í ár og verðlagningu lykilleikmanna. Félagarnir ræddu helstu félagsskiptin í enska boltanum sem munu hafa áhrif á komandi tímabil og helstu orðróma sem gætu fengið spilara til að endurskoða sína taktík fyrir tímabilið.
Thu, 06 Aug 2026 - 42 - LokauppgjörTue, 26 May 2026
- 41 - 38. umferðum síðar
Þeir segja að þetta sé ekki búið fyrr en feita konan syngur, og þrátt fyrir að Arsenal hafi orðið sófameistarar í síðustu umferð þá hefur hún ekki upp raust sína fyrr en á næstkomandi sunnudag.
Fri, 22 May 2026 - 40 - Tími til kominn að taka sénsa.
Nú þegar það eru bara tvær umferðir eftir af tímabilinu ræddu Albert og Sindri um hvaða lið hefðu eitthvað til að spila uppá og hvað lið væru mætt á ströndina.
Thu, 14 May 2026 - 39 - Þessi tvöfalda umferð er tálsýnWed, 06 May 2026
- 38 - Allt í járnum á öllum vígstöðvum (Bombuspecial)
Albert fékk engan annan en Gunnar Hilmar Kristinsson eða Gunna bombu í settið til að taka stöðuna á milli 34. og 35. umferðar.
Wed, 29 Apr 2026 - 37 - Við fengum ekki að João Pedro
Nú er umferð 33. að baki og eftir situr að takast á við þynnkuna sem kemur í umferð 34. en þar leynast gullin tækifæri til að skjóta sér upp töfluna.
Thu, 23 Apr 2026 - 36 - Stórasta umferð í heimi.
Þá er Albert mættur aftur og ekki seinna vænna því loksins er komið að því, stærsta umferð tímabilsins er handan við hornið. Sex lið spila tvöfalda umferð og því nauðsynlegt að taka "deep dive" á það.
Tue, 14 Apr 2026 - 35 - Lognið á undan storminum.
Eftir langt landsleikjahlé tökum við upp þráðinn og rýnum í stöðuna fyrir umferð 32. Líkt og salt og pipar fara umferðir 32 og 33 saman, svo við horfum einnig fram á veginn og metum möguleikana þar. Hvernig ætlar þú að stilla upp chip-strategíunni? Gestastjórnandi er Daníel Franz Davíðsson, markaðsfulltrúi HSÍ og fantasý spekúlant.
Wed, 08 Apr 2026 - 34 - Einn dagur í einu.
Nú þegar óvissan er alltumlykjandi varðandi hvenær verða tvöfaldar umferðar er mikilvægt að taka einn dag í einu, og gott að hafa bandið á okkar áreiðanlegasta manni, Bruno Fernandes.
Wed, 18 Mar 2026 - 33 - What to Expect When You're Expecting
Deadline fyrir næstu umferð er laugardaginn 14. mars. kl 13:30. Aron Fantabragðabróðir mætti í stúdíóið til að þessa að spá í spilin í fjarveru Alberts.
Thu, 12 Mar 2026 - 32 - Góður, betri, bestur.
29. umferð hefst þriðjudaginn 3. mars og lokar fyrir breytingar á liðunum kl 18:00. Fórum yfir allt það helsta ásamt því að fara yfir hver væri góður, betri, og bestur sem fyrirliði fyrir umferðina.
Mon, 02 Mar 2026 - 31 - Šeško Time
Næsta umferð hefst föstudaginn 27. febrúar og er Deadline-ið því klukkan 18:30. Ef þú ert að velta fyrir þér hvern þú átt að hafa sem fyrirliða þá fórum við yfir hvað væri góði pakkinn, betri pakkinn og besti pakkinn í þeim efnum. Pedro vaktin var á sínum stað og svo er spurning hvort það sé ekki að bresta á með Šeško Time!
Tue, 24 Feb 2026 - 30 - Úlfarnir bíta frá sér
Löng umferð að baki þar sem allra augu voru á Gabriel og stóra spurningin er: stóð hann undir væntingunum? Við horfðum líka fram á vegin og tókumst á við spurningar eins og er Thiago súrt, eða safaríkt epli og hver fær fyrirliðabandið frá Gabriel.
Thu, 19 Feb 2026 - 29 - Triple Captain Gabriel?
Fyrsta tvöfalda leikvika tímabilsins er framundan og stóra spurning er er þá ekki tími til kominn að setja fyrirliðabandið á Gabriel og jafnvel virkja triple captain í leiðinni?
Sun, 08 Feb 2026 - 28 - Nautaat á brúnni
Í þessum þætti bjóðum við meðal annars upp á áhugavert "take" á næstu tvöföldu umferð og þá höldum við uppá vaxtaákvörðunardag seðlabankans og skoðum leitum svara við því hvor stofnunin, Seðlabankinn eða Fjármálaráðuneytið, er að standa sig betur í fantasy.
Wed, 04 Feb 2026 - 27 - Bandið á Bruno?
23. umferðin krufin, misgóður árangur hjá Sindra og Alberti og stór spurning tekin fyrir: er Bruno Fernandes rétti fyrirliðinn fyrir næstu umferð? Við svörum spurningum hlustenda, skoðum prógrammið framundan og förum yfir stjörnulið vikunnar, sem að þessu sinni er lið Bjarka Más hornamanns íslenska handboltalandsliðsins.
Thu, 29 Jan 2026 - 26 - Never back the early kick off
Fórum yfir 22. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og tókum fasta liði eins og venjulega. Stjörnulið vikunnar kom hins vegar úr óvæntri átt, en fyrir valinu varð enginn annar en Viktor Gísli, markvörður íslenska handboltalandsliðsins, sem er í toppformi. Bæði á handboltavellinum og í Fantasy. Að lokum hitnaði heldur betur í kolunum þegar Albert og Sindri tókust á um hvort skynsamlegt væri að selja Phil Foden fyrir Bruno Fernandes.
Tue, 20 Jan 2026 - 25 - Huga ber að "chip" strategíunni
Sindri er mættur aftur við hljóðnemann eftir fjarveru yfir jólahátíðina. Í þættinum fara þeir Albert yfir fasta liði eins og venjulega, auk þess sem þeir velta fyrir sér hvernig best sé að nýta endurnýjuðu „chipsana“ í komandi umferðum.
Tue, 13 Jan 2026 - 24 - Rice Rice Baby
Albert fékk Róbert Daða Hansson með sér til að gera upp síðustu umferð og spá í spilin fyrir þá næstu.
Mon, 05 Jan 2026 - 23 - Markaþurrð á nýju ári
Albert mætti í stúdíóið á Nýárskvöldi beint eftir lok 19. umferðar ásamt Ragnari Lúðvíki Jónssyni sem er með 16 ára Fantasy-reynslu á bakinu. Nú þarf að hafa hraðar hendur því næsta deadline er laugardaginn 3. janúar klukkan 10:00
Fri, 02 Jan 2026 - 22 - Ár Skyttanna
Þeir Arnar Sveinn Geirsson forseti leikmannasamtaka Íslands og geðþekki skagamaðurinn Kristófer Daði Garðarsson mættu í þennan síðasta þátt ársins til þess að spá í spilin með Alberti.
Mon, 29 Dec 2025 - 21 - Malt og Fantasýn
Guðmundur Felixson úr lélega fantasy podcastinu mæti sem sérstakur gestur í þetta skiptið og fór yfir 17. umferð og spáði í spilin fyrir 18. umferð.
Tue, 23 Dec 2025 - 20 - Fantasy-guðirnir gefa og fantasy-guðirnir taka.
Fórum yfir allt það helsta fyrir 17. umferð ensku úrvalsdeildarinnar ásamt föstum liðum einsog venjulega s.s. stjörnulið vikunnar og spurningum hlustenda.
Fri, 19 Dec 2025 - 19 - Fantasy-skiptingar á fæðingardeildinni
Að þessu sinni mætti Pálína Axelsdóttir Njarðvík til okkar í stúdíóið til að fara yfir allt það helsta fyrir næstu umferð í ensku úrvalsdeildinni. Fórum yfir allt frá því hver á að fá fyrirliðabandið í næstu umferð yfir í það hvernig maður kemur því að á fæðingardeildinni að gera breytingar á fantasy-liðinu sínu.
Wed, 10 Dec 2025 - 18 - Við tölum ekki um Bruno
Fórum yfir 14. umferð, en bæði Albert og Sindri voru með fyrirliða-bandið á Bruno. Stundum þarf að taka áhættur, stundum gengur það upp en stundum bara alls ekki. Blessunarlega er stutt í næstu umferð svo það er bara áfram gakk.
Fri, 05 Dec 2025 - 17 - Salah á spýtunni
ATH. að „deadline“ fyrir næstu umferð er þriðjudaginn 2. desember kl 18:00. Í þættinum var farið yfir allt það helsta, þar á meðal hvernig leikjaálagið fer að þéttast í yfir jólahátíðina, hvort sé komin tími á að gefa Bruno tækifæri á að bera fantasy-fyrirliðabandið og margt fleira.
Mon, 01 Dec 2025 - 16 - Líða fer að jólum
Fyrrum fótboltamaðurinn og núverandi fantasy-stjórinn Eysteinn Þorri Björgvinsson mætti til okkar til að fara yfir hlutina. Fórum næstu umferð m.t.t. Free hit og triple captain.
Tue, 25 Nov 2025 - 15 - Tveir á toppnum
Albert fékk til sín tvo fyrrum Íslandsmeistara í Fantasy Premier League, Þá Gunnar Björn Ólafsson og Heiðmar Eyjólfsson. Þeir eiga það einnig sameiginlegt að hafa verið hluti af hinu goðsagnakennda hlaðvarpi Fantabrögð. Þeir þrír ræddu tímabilið hingað til, meiðsli í landsleikjaléinu og fóru yfir nokkrar sviðsmyndir fram að áramótum þegar kemur að Chip Strategy í kringum Afríkukeppnina.
Tue, 18 Nov 2025 - 14 - Góð vika til að eiga slæma viku
Gunnar Ormslev lýsandi á SÝN situr sem stendur í 5. sæti SÝN deildarinnar okkur fannst því tilvalið fá hann til okkar til að spá í spilin.
Tue, 11 Nov 2025 - 13 - Aftur til framtíðar
Ágúst Þór Ágústsson a.k.a. Gústi from the future mætti í stúdíóið til fara yfir allt það helsta varðandi síðustu umferð og spá í spilin varðandi þá næstu.
Thu, 06 Nov 2025 - 12 - Van De Ven í eyðimörkinni
Fórum yfir allt það helsta í tengslum við 9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar, spurningar frá hlustendum og stjörnulið vikunnar.
Wed, 29 Oct 2025 - 11 - Brókaði Frakkinn
Tókumst á við stóru spurningarnar, eins og: Er Jean-Philippe Mateta á leiðinni beint á bekkinn á móti Arsenal, eftir að hann kom sá og sigraði í síðustu umferð?
Wed, 22 Oct 2025 - 10 - Fantabrögð í Fantasýn
Þeir Aron og Gylfi Tryggva a.k.a. GT-geitin úr goðsagnakennda hlaðvarpinu Fantabrögð, mættu til okkar til í stúdíóið meðal annars til að gera upp dramatísk endalok Fantabragða, hatramman ríg á milli þeirra og Lélega fantasy hlaðvarpsins ásamt því að fara yfir wild card draftið hjá Alberti og transfer masterplan án punchlines hjá Sindra.
Thu, 16 Oct 2025 - 9 - Rétt ákvörðun, röng útkoma.
Í þættinum svara Albert fyrir athugasemdir sínar um Semenyo, förum yfir úrslit 7. umferðar og svörum spurningum hlustenda m.a. hvaða framherjar koma til greina til að fylla plássin við hliðina á Haaland.
Mon, 06 Oct 2025 - 8 - Fótboltaleikur er 90 mínútur plús
Í þættinum fórum við yfir allt það helsta í leikjum 6. umferðar m.t.t. fantasyleiksins. Fyrir umferðina nýtti Sindri sér Wildcard og Albert, Triple Captain. Í ljósi nýjustu atburða í íslensku samfélagi kíktum við yfir hvernig helstu leikendur í flugbransanum eru að standa sig í fantasy.
Wed, 01 Oct 2025 - 7 - Glæpasögur og fantasy - Ragnar Jónasson
Ragnar Jónasson rithöfundur og fjórði besti fantasy spilari landsins mætti í stúdíóið og ræddi við okkur um sína nálgun á leikinn. Fórum svo yfir 5. umferð, drög að wild card-liði og svöruðum innsendum spurningum.
Wed, 24 Sep 2025 - 6 - Lömbin þagna á Turf Moor
Förum yfir það helsta sem gerðist í 4. umferð og hver ætti að bera fyrirliðabandið í næstu umferð. Veltum fyrir okkur hvernig mögulegt Wildcard gæti litið út og svörum innsendum spurningum. Förum svo í nýjan lið stjörnulið vikunnar.
Wed, 17 Sep 2025 - 5 - Landsleikjahlé og foreldrafrí
Hver elskar ekki góða endurkomusögu, Pálmi Freyr Hauksson verktaki og einn af þáttarstjórnendum hins sögufræga hlaðvarps "Lélega fantasy Podcastið" mætti í stúdíóið til að leggja línurnar. Er Er myglusveppur í búningsherberginu á Old Trafford, Er Grealish orðin ráðsettur fjölskyldufaðir hjá Everton, Lucas Paquetá skoraði í fyrir Brasilíu, en horfa Monneyball lið í landsleikjatölfræði?
Thu, 11 Sep 2025 - 4 - Rúrik hjálpar okkur með þýsku meðvirknina.
Hringdum í alles möglich Mann Rúrik Gíslason meðal annars til að ræða þá félaga Florian Wirtz og Niclas Füllkrug. Ásamt því að fara yfir leikina í 3. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og svara innsendum spurningum hlustenda.
Thu, 04 Sep 2025 - 3 - Wirtz-case scenario
Hefði Bayindir gott af því fara í íslenska sveit og hversu lengi ætlum við að handhnoða hjartað í Florian Wirtz?
Wed, 27 Aug 2025 - 2 - Höldum að okkur höndum
Farið yfir fyrstu leikviku ensku úrvalsdeildarinnar og spáð í spilin fyrir þá næstu. Á að kaupa, selja eða halda?
Wed, 20 Aug 2025 - 1 - ... Þá fer fantasy boltinn brátt að rúlla - Farið yfir sviðið fyrir fyrstu leikina.
Í þessum fyrsta þætti fara Albert og Sindri yfir hvernig Fantasy leikur Ensku úrvaldsdeildarinnar virkar, helstu reglubreytingar og förum svo yfir sviðið fyrir fyrstu leikvikuna í Enska boltanum.
Tue, 12 Aug 2025
Podcasts similares a 38 umferðir
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Friday Night Comedy from BBC Radio 4 BBC Radio 4
Global News Podcast BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Reggae Revival Dread Lightning HiFi
La Trinchera de Llamas esRadio
Forensic Files HLN
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
Kryminalne Historie Kryminalne Historie
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
Solo Salsa Ricky Montana
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Humor en la Cadena SER SER Podcast
Nadie Sabe Nada SER Podcast
Skuggavaldið skuggavaldid
Kinky Sex Stories Wylde Podcasts
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه