Filtrar por género

Fjármálakastið

Fjármálakastið

Fjármálakastið

Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.

122 - Þáttur 122 - Óttast að uppsagnir haldi áfram um nokkurt skeið
0:00 / 0:00
1x
  • 122 - Þáttur 122 - Óttast að uppsagnir haldi áfram um nokkurt skeið

    Gestur þáttarins er Kári Friðriksson hagfræðingur í Arion greiningu. Rætt er um efnahagsástandið um þessar mundir, vinnumarkaðinn, hugmyndir ríkisstjórnarinnar um leigubremsu og verðtrygginguna.

    Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech.


    Fri, 30 Oct 2026 - 30min
  • 121 - Þáttur 121 - Rætt um stjórnarstörf, stjórnarhætti og atvinnulífið

    Gestur þáttarins er Tryggvi Pálsson en hann er einn reyndasti stjórnandi og stjórnarmaður íslensks atvinnulífs. Hann hefur því víðtæka reynslu af stefnumótun, stjórnarháttum og samskiptum stjórna og framkvæmdastjórna. Hann er einnig einn af fjölmörgum gestakennurum á námskeiðinu Viðurkenndir stjórnarmenn sem haldið er á vegum Akademias. Í þessum þætt er rætt um hlutverk stjórna í fyrirtækjum, stjórnarhætti, reynslu Tryggva af stjórnarsetu og sitthvað fleira.

    Þátturinn fellur undir liðinn Sviðið í Fjármálakastinu og er gefinn út í samstarfi við Akademias.

    Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech.

    Sun, 11 Oct 2026 - 48min
  • 120 - Þáttur 120 - Rætt um bankaskattinn og rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja

    Gestur þáttarins þessa vikuna er Ingvar Haraldsson greininga- og samskiptastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Rætt var um fyrirhugaða hækkun á bankaskatti, rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja og ýmislegt fleira.

    Hægt er að bæði hlusta og/eða horfa á þáttinn á Spotify og á fjarmalakastid.substack.com. Þar má einnig gerast áskrifandi af fréttabréfi Fjármálakastsins.

    Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech.


    Sat, 03 Oct 2026 - 24min
  • 119 - Þáttur 119 - Viðtal við framkvæmdastjóra viðskipta hjá Nasdaq Iceland

    Gestur þáttarins þessa vikuna er Finnbogi Rafn Jónsson framkvæmdastjóri viðskipta hjá Nasdaq Iceland. Í þættinum er rætt um innleiðingu miðlægs mótaðila hjá Nasdaq Iceland sem tilkynnt var í síðustu viku, hvernig horfurnar eru fyrir nýskráningar í Kauphöll á næstunni, stöðuna á hlutabréfamarkaði og tækniframfarir hjá Nasdaq.

    -------------

    Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech


    Sat, 26 Sep 2026 - 24min
  • 118 - Þáttur 118 - Reynslumikill fjármálastjóri mætir í settið

    Gestur vikunnar í Fjármálakastinu er Ólafur Þór Jóhannesson fjármálastjóri ÞG verks og systurfélagsins Arcusar ehf, eignarhaldsfélags sem eru í fullri eigu Þorvaldar Gissurarsonar. Ólafur er reynslumikill fjármálastjóri en hann hefur starfað sem fjármálastjóri, forstjóri, endurskoðandi, kennari við Háskólann í Reykjavík, stjórnarmaður og ráðgjafi í ýmsum atvinnugreinum.

    Hægt er að bæði hlusta og/eða horfa á þáttinn á Spotify og hér að ofan.

    Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech

    Fri, 11 Sep 2026 - 22min
Mostrar más episodios