Filtrar por género

Kerfið

Kerfið

RÚV Hlaðvörp

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni.


Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir

Framleiðsla: Rás 1



Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

35 - Betrun 5. þáttur - Bílageymsla verður fangageymsla
0:00 / 0:00
1x
  • 35 - Betrun 5. þáttur - Bílageymsla verður fangageymsla

    Fá dómsmál hafa vakið jafn mikla athygli í íslenskri nútímaréttarsögu og Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Tryggvi Rúnar Leifsson sat í gæsluvarðhaldi í rúm fjögur ár eða yfir 1500 daga í tengslum við rannsókn málsins. Þar af í einangrun í Síðumúlafangelsinu á annað ár. Viðmælendur í þættinum eru Hreinn Hákonarson og Tryggvi Rúnar Brynjarsson. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Tue, 27 Oct 2026 - 1h 00min
  • 34 - Betrun 4. þáttur – Lög og réttur á tímum upplýsingarinnar

    Um miðja 18. öldina fjölgaði dómum á Íslandi og því fjölgaði föngum í haldi sýslumanna og af þessu hlaust mikill kostnaður. Sýslumennirnir sendu því konungi bænaskrá og töldu að besta lausnin á þeim mikla kostnaði sem fylgdi sakamönnum væri fundin, einfaldlega að taka þá af lífi. Þetta fæli líka í sér tímasparnað. Í stað þess að þurfa að fara með sakamanninn með sér fram og aftur um landið gæti sýslumaður bæði fellt og fullnægt dómnum á einum og sama deginum. Davíð Þór Björgvinsson, Hrannar Hólm, Hreinn Hákonarson, Már Jónsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir eru viðmælendur í þættinum. Dagskrárgerð annaðist Guðrún Hálfdánardóttir og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Tue, 20 Oct 2026 - 56min
  • 33 - Betrun 3. þáttur - Fangaflutningar til Finnmerkur

    Eins og ekkert sé sjálfsagðara þá eru fimm konur og tólf karlar sett á skip í Kaupmannahöfn og send nánast á heimsenda. Ætli það hafi talist betrun meðal embættismanna að senda fanga norður í Barentshaf í stað þess að leyfa þeim að snúa heim til Íslands? Viðmælendur í þættinum eru Eiríkur Hermannsson, Halldór Guðmundsson, Már Jónsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Tue, 13 Oct 2026 - 55min
  • 32 - Betrun 2. þáttur – Brennimerktir og ærulausir

    Aðstæður almúgafólks um aldamótin 1800 voru skelfilegar eftir hörmulegt tíðarfar um áratugaskeið. Langflestir þeirra sem voru sendir í afplánun í Kaupmannahöfn höfðu gerst sekir um þjófnað, jafnvel bændur sem aldrei höfðu gerst sekir um óráðvendni. Viðmælendur í þættinum eru: Eiríkur Hermannsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Tue, 06 Oct 2026 - 58min
  • 31 - Betrun 1. þáttur – Íslendingar í dönskum þrælakistum

    Málefni fanga í nútíð og fortíð eru umfjöllunarefni þáttaraðarinnar Betrun. Í þáttunum er meðal annars fjallað um Íslendinga sem enduðu í þrælakistum Kaupmannahafnar á átjándu og nítjándu öld. Meirihluti þeirra átti ekki afturkvæmt og endaði ævina í Stokkhúsinu enda aðbúnaðurinn þar skelfilegur. Viðmælendur í þættinum eru: Eiríkur Hermannsson, Hrannar Hólm, Sigríður Hjördís Jörundsdóttir og Þráinn Farestveit. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Tue, 29 Sep 2026 - 55min
Mostrar más episodios