Filtrar por género

Morðskúrinn

Morðskúrinn

mordskurinn

Spjöllum saman um morð, mannshvörf, raðmorðingja og dularfull dauðsföll sem eru bæði leyst eða óleyst mál! Nýr þáttur kemur út alla miðvikudaga. Þú finnur okkur á facebook og instagram: Morðskúrinn.
www.pardus.is/mordskurinn

406 - Nicole Morin
0:00 / 0:00
1x
  • 406 - Nicole Morin

    Nicole var 8 ára gömul þegar hún ætlaði að fara út ein með vinkonu sinni í sundlaug íbúðarsamstæðunnar sinnar. Vinkona hennar beið eftir henni í andyrinu, en þar sem Nicole bjó á efstu hæð þá þurfti hún að taka lyftuna niður. Nicole kom hinsvegar aldrei til með að koma út úr lyftunni þennan dag.    Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag

    Wed, 28 Oct 2026
  • 405 - Missy Grubaugh

    Hin 19 ára gamla Missy Grubaugh var virkilega sjálfstæð, var farin að búa sjálf, vann mjög mikið til að eiga þak yfir höfðinu og fyrir skólagjöldunum sem hún var sjálf að greiða fyrir. Það var ekki mikill hasar í lífi hennar og áfallið því gríðarlegt þegar Missy fannst látin inn í herberginu sínu eftir bruna inn á heimilinu hennar.    Þátturinn er í boði  Define the Line Sport www.definetheline.is Heimaskipulag www.heimaskipulag.is   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn

    Wed, 21 Oct 2026
  • 404 - Suzanne Adams

    Hin 83 ára Suzanne bauð syni sínum Stein-Erik að koma og búa hjá sér þegar hann var að ganga í gegnum erfiðleika í lífinu. Stein-Erik var meðal annars að glíma við andleg veikindi, og í stað þess að leita til fagaðila þá fór hann að spjalla við ChatGPT. Hann og forritið, sem hann kallaði Bobby, urðu nánir vinir með tímanum og að lokum kom Stein-Erik til með að taka mjög slæma ákvörðun.  Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag

    Wed, 14 Oct 2026
  • 403 - Theresa Fusco

    Árið 1984 var viðburðarrík helgi framundan hjá hinni 16 ára gömlu Theresu Fusco. Vakt á vinnustaðnum, gistipartý með vinkonu og svo dagur með pabba hennar - en hún skilaði sér aldrei til vinkonu sinnar eftir vinnu. Við tók leit sem skilaði litlum árangri í margar vikur en að lokum fannst Theresa látin. Við tók heilmikil rannsókn sem átti eftir að fara í bókstaflega allar áttir áður en morðingi Theresu var að lokum handtekinn.    Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag   Komdu í áskrift!  www.pardus.is/mordskurinn

    Wed, 07 Oct 2026
  • 402 - Colleen Slemmer

    Colleen Slemmer var aðeins 19 ára gömul þegar hún fannst myrt, en hún hafði verið í prógrammi á vegum vinnumálastofnunar þar sem henni hafði verið úthlutað búsetuúrræði í Knoxville. Það hafði ekki gengið áfallalaust fyrir sig, þar sem hún varð fyrir miklu einelti af hálfu annarra nemenda sem stunduðu prógrammið. Það tók rannsakendur ekki langan tíma að upplýsa mál hennar, þar sem ein af þeim sem réðst á hana hafði meðal annars tekið brot úr höfuðkúpunni hennar og sýnt samnemendum þeirra. Sú stelpa hét Christa Pike, en hún hefur setið inni á dauðadeild síðan 1995 og mun aftaka hennar fara fram í dag, 30. september 2026 klukkan 15:00.

    Wed, 30 Sep 2026
Mostrar más episodios