145 - #142 Korean BBQ!
Bose stúdíóið var stútfullt af meðlimum Út að hlaupa að þessu sinni. Kóresk skýrsla, bakgarðurinn gerður upp, hvað þarftu að hlaupa mikið til þess að kalla þig hlaupara?
Tue, 27 Oct 2026 - 1h 11min
144 - #141 Bakgarðslandsliðið!
Þórdís Jóns og Tommi Jac mættu í Bose stúdíóið og ræddu komandi landsliðskeppni í bakgarðshlaupum!
Thu, 15 Oct 2026 - 1h 01min
143 - #140 Sumarið gert upp!
Bibba mætti í Bose stúdíóið og gerði upp hlaupasumarið með okkur. Einnig var Suður Kóresk skýrsla á boðstólum beint úr höfuðstaðnum. Mælum með að hlusta!
Sat, 10 Oct 2026 - 1h 52min
142 - #139 Gamli góði þátturinn!
Köben half gert upp frá okkar manni, Tobbi með Slóvenska skýrslu og bakgarðurinn búinn að eignast nýjan bad boy!
Tue, 22 Sep 2026 - 1h 22min
141 - #138 Nýtt Supermantrend!
Uppgjörið á íslandi, Kaupmannahafnarmaraþonið, bakgarðsupphitun og spurt og svarað frá hlustendum!
Fri, 18 Sep 2026 - 1h 17min
140 - #137 Einvígið á Vatnsendanum!
Dorrit á Esjunni, Þórsmerkurþrennan og vaskir Eyjaskokksmenn sem gerðu sér ferð í dalinn. Þetta ásamt upphitun fyrir Vatnsenda einvígið og margt fleira á boðstólum í dag!
Tue, 08 Sep 2026 - 1h 23min
139 - #136 Hefur þú farið á Esjuna?
Eldheitar Esju umræður, UTMB gert upp ásamt glóðvolgum hugleiðingum varðandi zone tvö.
Mon, 31 Aug 2026 - 1h 42min
138 - #135 Hlaupasumarið búið?
Fórum yfir Reykjavíkurmaraþonið, ræddum við ísmanninn um nýtt íslandsmet og hvernig bicarb hefur áhrif á hann ásamt góðri skýrslu frá hlaupadagskrá.is.
Wed, 26 Aug 2026 - 1h 37min
137 - #134 Reykjavíkurmaraþon pepp!
Fórum yfir síðustu hlaup hér heima, ræddum árangur íslendinga á EM og hituðum ykkur vel upp fyrir Reykjavíkurmaraþonið!
Mon, 17 Aug 2026 - 1h 39min
136 - #133 Endurkoman
Mættir aftur í Bose stúdíóið eftir stutt og gott sumarfrí. Fórum yfir síðustu hlaup hér heima, ræddum endurkomu Kingebrigtsen á brautina og framhaldið í hlaupum um allan heim!
Tue, 11 Aug 2026 - 1h 33min
135 - #132 Súldin styrkir!
Við fengum skýrslu frá Gunna Palla varðandi MÍ um helgina, ræddum 905 stigin hans Tobba, gerðum upp síðustu hlaup og fórum yfir þau sem framundan eru. Stravaliðurinn kom svo sterkur inn með allskonar skemmtilegum segmentum!
Fri, 24 Jul 2026 - 1h 20min
134 - #131 Daniel Pattis, Ítalski öðlingurinn!
Við fengum einn besta hlaupara heims um þessar mundir til þess að munda míkrafóninn í Bose stúdíóinu. Hann fór yfir það hvernig hann æfir, jafnvægi milli atvinnumannalífs og félagslífs, keppniskvíða og hvernig hann tekst á við stærstu keppnir í heimi!
Thu, 23 Jul 2026 - 1h 04min
133 - #130 Laugavegs uppgjör!
Í þessum þætti snýst allt um Laugavegshlaupið sem var gert upp í allri sinni mynd. Við fórum einnig yfir íslandsmótið í 10 km hlaupi sem haldið var í Ármannshlaupinu um daginn.
Mon, 13 Jul 2026 - 1h 38min
132 - #129 Laugavegs upphitun!
Allt sem þú þarft að vita um Laugaveginn!
Tue, 07 Jul 2026 - 1h 41min
131 - #128 Elísa elskar Ítalíu!
Elísa Kristins, hlaupadrottningin sjálf kíkti til okkar í Bose stúdíóið og ræddi við okkur um frækinn sigur í Lavaredo, kom með predictions fyrir Laugarveginn og gerði upp síðustu hlaup á landinu!
Thu, 02 Jul 2026 - 1h 38min
130 - #127 Ísmaðurinn - alltaf í formi!
Fengum Davíð Frey Magnússon í Bose stúdíóið sem gestastjórnanda. Fórum yfir hans stutta en magnaða hlaupaferil til þessa ásamt því að ræða það sem hefur verið á döfinni í íslensku hlaupasamfélagi!
Thu, 18 Jun 2026 - 1h 22min
129 - #126 EM uppgjör!
Við vinirnir hittumst í Bose stúdíóinu og gerðum upp EM í Slóveníu ásamt síðustu hlaupum innanlands!
Wed, 10 Jun 2026 - 1h 31min
128 - #125 Þú fokkar ekki í landsliðinu!
Andrea Kolbeins mætti í Bose stúdíóið í dag og gerði upp Golden trail ferðina á Ítalíu. Við tókum hlaupauppgjör síðustu hlaupa á íslandi og svöruðum spurningum úr sal!
Wed, 27 May 2026 - 1h 40min
127 - #124 Tove Tvennan!
Tove Alexanderson mætir í Laugarveginn, stærstu fréttir ársins! Gerðum upp hlaup síðustu daga hér heima og snertum á Zegama veislunni miklu.
Mon, 18 May 2026 - 1h 34min
126 - #123 Búinn að krakka hlaupin!
Allt það helsta á dagskrá úr Bose stúdíóinu að vanda. Uppgjör á öllu því helsta úr hlaupum hérlendis og erlendis.
Wed, 13 May 2026 - 1h 29min
125 - #122 Bolirnir mættir!
Við strákarnir mættum í Bose stúdíóið til að gera upp Puffin run og Trabuco trail. Við heyrðum í Elísu og fengum prerace skýrslu frá La Palma og fórum yfir það sem framundan er í hlaupasenunni um heim allann!
Fri, 08 May 2026 - 1h 22min
124 - #121 Puffin run upphitun!
Uppgjör síðustu hlaupa, Víðavangshlaup ÍR, Vecct Mílan, Vormaraþonið og hið ótrúlega London maraþon. Upphitun fyrir Puffin run og góð ráð til fellow hlaupara inn í sumarið!
Wed, 29 Apr 2026 - 1h 19min
123 - #120 Allt sem þú þarft að vita um beinmeiðsli!
Magnús Birkir Hilmarsson sjúkraþjálfari kíkti til okkar í Bose stúdíóið og ræddi við okkur um beinmeiðsli. Hvað eru álagsmeiðsli í beini? Hverjir eru áhættuþættirnir? Skiptir hlaupastíll máli? Forvarnir og svo margt margt fleira. Maggi er rosalega fróður á sínu sviði, algjör skyldu hlustun fyrir alla hlaupara landsins!
Tue, 28 Apr 2026 - 1h 34min
122 - #119 Gott hugarform!
Nú er komið að því að hleypa af og blasta vetrarforminu því Víðavangshlaup ÍR er í fyrramálið! Við fengum hlaupadrottninguna Andreu Kolbeins í Bose stúdíóið til að fara yfir fyrstu keppni sumarsins!
Wed, 22 Apr 2026 - 1h 33min
121 - #118 Apríl þrennan!
Í þættinum í dag ræddum við um komandi hlaup hér heima. Við fengum skýrslu frá Guðmundi í Vecct, fórum yfir orðabók hlauparans, ræddum beinar útsendingar í hlaupum á Íslandi og ræddum Evrópumet í götuhlaupi!
Thu, 09 Apr 2026 - 1h 13min
120 - #117 Konur í íþróttum með Láru Hafliða!
Hin sprenglærða Lára Hafliðadóttir kíkti á okkur í Bose stúdíóið í dag og ræddi við okkur um konur í íþróttum (aðallega hlaupum). Lára er með meistaragráðu í íþróttavísindum og þjálfun KSÍ-B þjálfaragráðu. Hún er í doktorsnámi í líkamlegri þjálfun knattspyrnukvenna. Lára sérhæfir sig í mælingum, álagsstýringu, styrktar- og þolþjálfun og hefur kennt á KSÍ þjálfaranámskeiðum sem leiðbeinandi með KSÍ A leiðbeinendagráðu. Hún starfar sem fitnessþjálfari meistaraflokks kvenna Víkings og U23 landsliðs kvenna, sinnir rannsóknum við Háskólann í Reykjavík og kennir íþróttavísindi við grunnskólann NÚ. Lára hefur margra ára reynslu í líkamlegri þjálfun og knattspyrnu, bæði sem þjálfari og leikmaður yngri landsliða Íslands.
Tue, 31 Mar 2026 - 1h 17min
119 - #116 DNF aftur elskan mín?
Chianti uppgjör, nýungin frá Nóa Siríus og frí æfing fyrir hlaupaóða hlustendur!
ÆFINGIN er frá okkar allra besta fólki í Fjallahlaupaþjálfun!
15 mín upphitun 2-3 sett af 3x3 mín í 9% - 6% - 3% halla á bretti með 2 mín rólegu á milli setta Tekið á zone 3 ákefð og farið upp í zone 4, byrja frekar of hægt en of hratt. Halla æfingar eru erfiðar, byrja rólega og sá hraði getur verið orðinn erfiður í lokin. Byrjar í 9% halla í 3 mín, 6% halla í 3 mín og svo 3% halla í 3 mín. Eykur hraðann eftir því sem brettið hallar minna þannig að ákefðin sé alltaf sú sama. 15 mín niðurskokk
Fri, 27 Mar 2026 - 51min
118 - #115 Tilbúinn að slá Íslandsmet!
Við fengum glóðvolga skýrslu út partýbílnum í Flórens. Sá var ekki illa skipaður, Andrea, Elísa, Gréta og Raggi á rútunni ræddu við okkur um Chianti sem fram fer um helgina. Einnig heyrðum við í Hlyni Andréssyni sem ræddi við okkur um nýjasta Íslandsmetið sitt, puffin run og næstu áskorun sína sem er heilt maraþon í Hannover!
Fri, 20 Mar 2026 - 55min
117 - #114 Orðlaus á Azores!
Hugleiðingar, hlaupauppgjör síðustu hlaupa, íslandsmet og endurkomur. Glóðvolg skýrsla frá Azores eyjum. Hvað viljið þið meira?
Thu, 19 Mar 2026 - 1h 11min
116 - #113 Winter is where it starts!
Við Út að hlaupa bræður fórum yfir síðustu æfingar og það sem framundan er. Heyrðum í Arnari Péturs sem er að undirbúa sig fyrir 100 km hlaup í Slóveníu eftir mánuð og fórum yfir góð ráð fyrir þá sem vilja ná árangri!
Thu, 26 Feb 2026 - 59min
115 - #112 Spikfeitur Latsi - Return of the king!
King Latsi mætti í Bose stúdíóið og lokaði næringarþríleiknum stóra með spikfeitum þætti um fitu!
Wed, 18 Feb 2026 - 1h 50min
114 - #111 Kóngamove að vera með rennt frá!
Við ræddum landsliðsvalið fyrir EM í Kamnik, fórum yfir síðasta powerade, vorum með spikfeitann Strava lið og fórum yfir góð ráð hvað varðar næringu fyrir stóru keppnina þína!
Sat, 14 Feb 2026 - 1h 05min
113 - #110 Strava, snilld eða kvíðavaldandi montsíða?
Fengum sjóðandi hot takes úr hlaupaheiminum frá Árdísi Ilmi, fórum yfir síðustu hlaup og ræddum spennandi keppnir framtíðarinnar!
Tue, 03 Feb 2026 - 1h 04min
112 - #109 Hjólahjónin mætt í hlaupaskóna!
Ágústa Edda Björnsdóttir og Eyjólfur Guðgeirsson mættu til okkar í Bose stúdíóið og ræddu það hvernig umbreyting úr hjólara yfir í hlaupara á sér stað, gáfu hlaupurum frábær ráð varðandi það að æfa á hjóli og rifjuðu upp stórskemmtilegar keppnissögur frá ferlinum!
Tue, 27 Jan 2026 - 1h 48min
111 - #108 Hlaup, mikilvægasti hlutur í heimi sem skiptir engu máli!
Við fengum skýrslu frá Gurru Magg, ræddum Youtube rás Út að hlaupa og framhaldið þar, ræddum kórónusjúka Elísu á Tene og fórum yfir heilræði frá Zach Miller!
Wed, 21 Jan 2026 - 1h 13min
110 - #107 Smart íslandsmet
Mættir aftur í Bose stúdíóið eftir dvöl erlendis. Fórum yfir síðustu hlaup hér heima og erlendis. Ræddum ótrúlegt íslandsmet Baldvins í Valencia, fórum yfir góð ráð hvernig best er að æfa yfir vetrartímann og slóum á hina margfrægu léttu strengi!
Mon, 12 Jan 2026 - 47min
109 - #106 Hlaupaannállinn mikli 2025!
Marteinn fékk Guðfinnu og Bibbu til að gera upp hlaupaárið með sér. Þau fóru um víðan völl, ræddu meðal annars samfélagsmiðla, hlaupasumarið, spáðu fyrir tímabilinu 2026 og slógu á rosalega marga létta strengi, enda enga þunga strengi að finna í Bose stúdíóinu!
Tue, 30 Dec 2025 - 2h 17min
108 - #105 Hlaupið yfir farinn veg!
Við Út að hlaupa bræður fórum yfir árið hjá okkur og rifjuðum upp góðar hlaupastundir erlendis og hérlendis á árinu sem er að líða!
Thu, 18 Dec 2025 - 59min
107 - #104 Það geta allir gert þetta!
Herra Bose (Sigurður Ólafsson) kíkti í Bose stúdíóið til okkar og spjallaði við okkur um hlaupaferilinn, lífsmótandi breytingar og ástríðuna fyrir hreyfingu. Við fórum einnig yfir Valencia maraþonið og slóum á létta strengi. Allt í þrjáðbeinni frá Bose stúdíóinu!
Thu, 11 Dec 2025 - 1h 18min
106 - #103 Ratar þessi þáttur austur?
Við Út að hlaupa bræður fórum yfir æfingar síðustu daga, svöruðum spurningum úr sal varðandi maraþon, Laugarveginn og margt fleira. Hugleiðingarnar og hlaupauppgjörið var á sínum stað ásamt allskonar yappi um hlaup!
Thu, 04 Dec 2025 - 1h 40min
105 - #102 Ertu ekki slæmur í hnjánum?
Glóðvolgur þáttur úr Bose stúdíóinu að þessu sinni. Hlaupauppgjörið á sínum stað, djúsí hugleiðingar, skóhornið, gjafaleikir og svo mætti lengi telja!
Tue, 18 Nov 2025 - 1h 13min
104 - #101 Soðin í svefn!
Það var kátt á hjalla í Bose stúdíóinu í kvöld. Við fórum yfir NY maraþonið, heyrðum frá hlauparaunum Gurru Magg, ræstum út hvern gjafaleikinn á fætur öðrum og fórum yfir mikilvæg atriði varðandi Laugaveginn!
Thu, 06 Nov 2025 - 1h 17min
103 - #100 Tímamótaþáttur!
Í þessum tímamótaþætti sem er lengri en hálfmaraþonið hans Almgren um daginn ræddum við hlaup í nánustu fortíð, fengum Víetnamskýrslu frá Marteini og opnuðum fyrir símann!
Fri, 31 Oct 2025 - 58min
102 - #99 Hef hlaupið nóg af hlaupum þar sem mér hefur liðið vel!
Ævar Hrafn Ingólfsson mætti í Bose stúdíóið og fór yfir hlaupaferilinn. Allt frá því að geta ekki hlaupið verkjalaus yfir í að háleit markmið í maraþonum. Ævar talar um það hvernig er að vera maki hlaupara, áhuga sinn á hlaupaskóm, fer yfir Chicago maraþonið og ræðir hvað hlaup eru farin að skipta hann miklu máli í daglegri rútínu.
Fri, 17 Oct 2025 - 1h 44min
101 - #98 HM uppgjör!
Guðfinna okkar allra besta mætti í Bose stúdíóið og gerði upp HM í fjarveru Marteins sem er að taka út hlaupaleiðir í Víetnam!
Mon, 06 Oct 2025 - 2h 11min
100 - #97 Upphitun fyrir HM!
Þessa dagana er allt morandi í Heimsmeistaramótum. Við tökum upphitun fyrir HM í fjallahlaupum, farið yfir keppendur, brautirnar og möguleika Íslands. Einnig fórum við yfir HM í frjálsum íþróttum og fengum góðan gest í Bose stúdíóið alla leið frá Svíþjóð! Hlaupauppgjörið var að sjálfsögðu á sínum stað ásamt strava liðnum!
Sat, 20 Sep 2025 - 2h 01min
99 - #96 Það er ekkert grín að vera fit!
Sigurður Örn Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Tri mætti í Bose stúdíóið í dag og ræddi við okkur um mælingar hjá Greenfit. Við Út að hlaupa bræður fórum báðir í álagspróf á dögunum og fengum Sigga til þess að fara með okkur yfir skýrslurnar í þráðbeinni ásamt því að fara vel út fyrir efnið.
Wed, 10 Sep 2025 - 2h 01min
98 - #95 Mánuðurinn til að toppa!
Hot takes varðandi Ironman, hlaupauppgjör síðustu keppna, Örstutt yfirferð á UTMB og svo margt fleira fyrir eyrun ykkar á dag!
Mon, 08 Sep 2025 - 1h 44min
97 - #94 Stærsta skemmtiskokk í heimi!
Reykjavíkurmaraþonið fékk stóran sess í þessum þætti, enda margt að ræða eftir helgina. Við fengum skýrslu frá paradís utanvegahlaupanna, Chamonix frá Guðfinnu, Evu og Tobba ásamt því að við gerðum upp síðustu helgi. Ekki láta þennan fram hjá þér fara!
Wed, 27 Aug 2025 - 1h 21min
96 - #93 Gat ekki sofið vegna verkja!
Marteinn er mættur aftur í Bose stúdíóið. 500 km hlaup, Reykjavíkurmaraþon, hitamálin varðandi ITRA stig, 6 maraþon á 6 dögum. Hvað meira er hægt að biðja um á þessum fína föstudegi?
Fri, 22 Aug 2025 - 56min
95 - #92 Maður á að fagna vel!
Fannar Guðmundsson mætti í Bose stúdíóið í dag í fjarveru Marteins og ræddi um Reykjavíkurmaraþonið, erfiðleika sem mótuðu hann fyrir lífstíð, ryfjaði upp margar góðar hlaupasögur ásamt því að gera upp síðustu hlaup og fara yfir allskonar heit málefni í hlaupasamfélaginu. Fannar er einn fyndnasti maður hlaupasamfélagsins og þótt víðar væri leitað þannig að góða skemmtun!
Tue, 19 Aug 2025 - 1h 39min
94 - #91 Þú verður að gera þetta að sigursögu!
Guðfinna okkar allra besta mætti til okkar Út að hlaupa bræðra og fór yfir síðustu hlaup, ræddi meiðslin sín og uppbygginguna fyrir HM ásamt svo ótrúlega margt annað!
Wed, 06 Aug 2025 - 2h 48min
93 - #90 Hlaupamömmur með ofurhugarfar!
Ofurhlaupamömmurnar Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir og Gréta Rut Bjarnadóttir kíktu í spjall til okkar Út að hlaupa bræðra og ræddu við okkur um barneignir og hlaup. Við ræddum um að vera "kúplaðar út" úr hlaupunum, að koma sér aftur af stað eftir fæðingu, grindarbotninn, þvagleka, ótrúlegt hugarfar og hvernig miklar áskoranir hafa mótað þeirra líf. Við mælum mikið með því að hlusta á þessar frábæru manneskjur segja sína sögu í gegnum hlaupin!
Tue, 22 Jul 2025 - 2h 04min
92 - #89 Laugavegsuppgjörið mikla!
Við fórum yfir upplifanir okkar af Laugavegshlaupinu í ár ásamt því að taka helstu umræðupunkta hlaupsins fyrir og ræða þá fram og til baka. Einnig fórum við yfir eitthvað af því sem framundan er í utanvegahlaupunum og fengum góða gesti í settið til þess að segja okkur frá góðgerðarverkefni fyrir Reykjarvíkurmaraþonið!
Tue, 15 Jul 2025 - 2h 02min
91 - #88 Andrew Douglas, skotinn á Íslandi!
Andrew Douglas talkes about his career as a runner, how he changed his path and fell in love with trailrunning. He talkes about how much he loves to travel through running, how much he hates long runs and why he chose to come to the third time (kind of the fourth) to do the Laugavegur Ultra!
Thu, 10 Jul 2025 - 1h 10min
90 - #87 Blueprint af Laugaveginum!
Grétar Örn Guðmundsson mætti í Bose stúdíóið og ofhugsaði hlutina með okkur fyrir Laugaveginn. Við svöruðum kallinu frá ykkur hlustendum og fórum yfir allt sem okkur datt í hug hvað varðar laugarveginn!
Tue, 08 Jul 2025 - 2h 19min
89 - #86 Celeb Olson!
Andrea Kolbeinsdóttir mætti í Bose stúdíóið með okkur Út að hlaupa bræðrum og sat fyrir svörum. Við gerðum upp síðustu hlaup, fórum yfir það hvað er framundan og ræddum allt milli himins og jarðar hvað varðar hlaupaferil Andreu.
Wed, 02 Jul 2025 - 1h 23min
88 - #85 Seinn í startið!
Hugleiðingarnar voru á sínum stað, spurningum var svarað úr sal, uppgjör á síðustu hlaupum þar sem íslandsmet og aldursflokkamet féllu og margt fleira. Öllu varpað út úr Bose stúdíóinu að sjálfsögðu, þið heyrir það á hljóðinu!
Tue, 24 Jun 2025 - 1h 02min
87 - #84 Unga fólkið að taka yfir!
Uppgjörið var ekki af verri endanum í þessum þætti, gerðum upp Hengil, Esjuna, Hvítasunnuhlaupið og Hafnarfjarðarhlaupið. Fórum yfir heimsmetið í 48 tíma hlaupi, snertum á verðlaunafé í hlaupum og hvernig valið er í Utanvegalandsliðið ásamt mörgu öðru!
Thu, 19 Jun 2025 - 1h 27min
86 - #83 The Icelandic Method!
Stútfullur þáttur af hlaupaumræðu. Alvöru skýrsla úr Mýrdalshlaupinu frá Andreu Kolbeins, spurningum svarað frá hlustendum, farið vel yfir ITRA og allskonar fídusa í Strava!
Tue, 03 Jun 2025 - 1h 38min
85 - #82 Baráttan um heiðmörk!
Ofurstjarnan Yngvild Kaspersen er mætt á svæðið, hún kom að sjálfsögðu í spjall til okkar og ræddi komandi keppni í Mýrdalnum. Hugleiðingarnar voru á sínum stað, Örvar Steingríms rætti baráttuna um Heiðmörk og síðustu keppnir voru gerðar upp ásamt svo mörgu öðru!
Fri, 30 May 2025 - 1h 29min
84 - #81 Gamla geggjaða geitin!
Skýrsla úr Akrafjallinu, spurningar úr sal, hugleiðingar og hlaupauppgjör. Hvað meira getur maður beðið um svona undir lok vikunnar?
Fri, 23 May 2025 - 1h 29min
83 - #80 Það eru engir veggir í Köben!
Alvöru skýrsla frá Danmörku, uppgjör úr bakgarðinum og hlaupunum hér heima, farið vel yfir Strava segment sem hafa hríð fallið síðustu daga og svo margt, margt fleira!
Tue, 13 May 2025 - 1h 39min
82 - #79 Hlynur í Herjólfsdal!
Puffin run var aðal umræðuefnið í dag. Allt frá utanumhaldi yfir í uppgjör! Hugleiðingar hlauparans voru að sjálfsögðu á sýnum stað, Vá moment nýliðinnar helgar og svo tókum við forskot á sæluna og drógum í gjafaleiknum í þráðbeinni!
Tue, 06 May 2025 - 1h 13min
81 - #78 Baðaður í Boston!
Hugleiðingar, 100 km áskorun og alvöru skýrsla frá Latsanum okkar! Gerðum upp hlaupin hér heima og erlendis undanfarna daga ásamt umræðu um aldurstakmarkanir í hlaupum.
Við hvetjum fólk til að skrá sig á www.utilif.is/100km
Tue, 29 Apr 2025 - 1h 38min
80 - #77 Gleðilega páska!
Fórum yfir hlaupin sem eru framundan, Hjörtur Ragnarsson sjúkraþjálfari kom með góð ráð varðandi það að tækla hlaupameiðsli. Sánuhornið var á sínum stað og sigurvegari gjafaleiksins stóra var tilkynntur!
Sat, 19 Apr 2025 - 1h 16min
79 - #76 Home alone!
Hugleiðingar, Sánuhorn og Stravaliðurinn á sínum stað. Uppgjör frá EM í götuhlaupum og sjóðandi heitt post run viðtal við Elínu Eddu sem keppti með landsliðinu í Götuhlaupum. Þorsteinn Roy talaði svo frá Spáni bæði fyrir og eftir Penyagolosa!
Tue, 15 Apr 2025 - 1h 00min
78 - #75 Gæsir og gjafaleikur!
Glænýr gjafaleikur að fara af stað hjá okkur Út aða hlaupa bræðrum! Viðtal við Elísu Kristins varðandi Bluetrail og Sveinn Skúli segir okkur frá fjallahlaupaskóla í Bandaríkjunum! Þetta og marg fleira á boðstólum í dag!
Mon, 07 Apr 2025 - 1h 14min
77 - #74 Eitt skref í einu, áfram gakk!
Úrslitin í gjafaleik Ofar og Út að hlaupa eru tilkynnt í byrjun þáttar! Hugleiðingarnar voru á sínum stað, kvöldkaffið borið á borð, skýrsla frá landsliðsmanninum Kristjáni Svani ásamt uppgjöri á fjölda hlaupa undanfarið!
Thu, 27 Mar 2025 - 1h 48min
76 - #73 Ekki tala við mig á Threshold ákefð!
GJAFALEIKUR í boði Ofar, ekki missa af honum! Við fórum yfir æfingar síðustu daga, gerðum upp síðustu hlaup og fengum skýrslu frá Kenía drollunni Andreu Kolbeins. Spurningar úr sal, hugleiðingar hlauparans og Strava liðurinn létu sig ekki vanta!
Sat, 15 Mar 2025 - 1h 14min
75 - #72 Dr. í hlaupum!
Hugleiðingar hlauparans voru á sínum stað í dag ásamt dómsdashorninu mikla. Við fengum svo frábær ráð frá Doctornum sjálfum varðandi hlaup sem mun eflaust nýtast öllum okkar hlustendum!
Fri, 07 Mar 2025 - 1h 17min
74 - #71 Góður með tölur!
Hugleiðingar varðandi rólegar vikur, markþjálfa og sixpack. Gerðum upp Meistaramót Íslands, fengum skýrslu frá Daða Arnar og fórum að sjálfsögðu í liðina ofmetið vs vanmetið og dæmir þú!
Wed, 26 Feb 2025 - 1h 39min
73 - #70 Hálfnað verk þá hafið er!
Það var gír í okkur þetta kvöldið í Bose stúdíóinu. Við hugleiddum allt á milli þess hvort maður þyrfti að heita Jakob til að ná árangri í hlaupum yfir í það hvað umfjöllun væri, krufum heimsmet Kiplimo í hálfu maraþoni ásamt hlaupauppgjöri síðustu daga. Nýju dagskrárliðirnir dæmir þú og vanmetið vs ofmetið voru að sjálfsögðu á boðstólum!
Fri, 21 Feb 2025 - 1h 09min
72 - #69 Gerum alla brjálaða!
Í þættinum í dag ræddum við Út að hlaupa bræður Norðurlandamótið, veltum því fyrir okkur hvernig maður yrði betir í því að hlusta á sjálfan sig, kynntum inn nýjan dagskrárlið og dæmdum allskonar hegðun!
Thu, 13 Feb 2025 - 1h 30min
71 - #68 Ekki festast á hjólinu!
Fengum skýrslu frá pólfaranum sjálfum, Vilborgu Örnu varðandi hlaupaferilinn. Heyrðum í Óskari stuttbuxnabróður varðandi skemmtilegt hlaupaverkefni og tókum tal á tísku Tómasi alla leið frá kóngsins Köben!
Tue, 04 Feb 2025 - 1h 31min
70 - #67 Hvað er hvíld?
Þátturinn í dag er stútfullur af fróðleik fyrir ykkur. Latsi okkar allra besti mætti í Bose stúdíóið og jós úr viskubrunni sínum, Maggi sjúkraþjálfari fór vel yfir álagsstýringu á hlaupum og algeng meiðsli og Marteinn hélt uppi stemningunni alla leið frá Tene!
Fri, 24 Jan 2025 - 2h 22min
69 - #66 Beint frá Tene!
Að þessu sinni tókum við upp á Bóse settinu á ævintýraeyjunni fögru Tenerife! Hugleiðingarnar voru á sínum stað, ferðaskýrsla frá Þorsteini og hlaupauppgjör síðustu vikna. Einnig fá nýjir dagskrárliðir að líta dagsins ljós!
Tue, 14 Jan 2025 - 1h 18min
68 - #65 Bannað að dæma!
Fengum góða gesti í Bose-stúdíóið, ultrahlauparaparið Birnu Maríu og Egil Örn. Gerum upp árið 2024 hjá þeim ásamt því að kynna til leiks nýja og skemmtilega dagskrárliði í bland við þá gömlu góðu!
Tue, 10 Dec 2024 - 1h 52min
67 - #64 Við erum öll nautnaseggir!
Við erum mættir aftur að míkrafónunum. Ræddum við kónginn á Hvannadalshnúk um íslandsmetið sem féll á dögunum, fórum yfir síðustu hlaup og svo margt, margt fleira!
Tue, 03 Dec 2024 - 1h 14min
66 - #63 Elísabet Margeirsdóttir
Vinkona okkar Elísabet Margeirs kom í heimsókn í Bose stúdíóið og ræddi við okkur um hlaup. Hún fer yfir það hvernig hún byrjaði hlaupaferilinn, hvernig hún æfir, talar um Náttúruhlaupin og bakgarðskeppnirnar, fer yfir sínar helstu áskoranir á hlaupum og talar um það hvernig var að fara aftur af stað eftir barneign. Þessi þáttur er stútfullur af fróðleik frá einni af okkar allra bestu íþróttakonum!
Mon, 11 Nov 2024 - 1h 58min
65 - #62 Stelpupabbar!
Hugleiðingar, fátæklegt hlaupauppgjör, slúðurhorn hlauparans og alvöru skýrsla frá aðal bósaranum í Istanbúl, Kjartani Long. Allt þetta og meira til lóðbeint úr Bose stúdíóinu!
Tue, 05 Nov 2024 - 1h 23min
64 - #61 Berum ábyrgð á því hvar við stígum!
Stútfullur þáttur og meira til. Hugleiðingar varðandi það hvernig fólk upplifir hlaupaafrek, stígaskýrsla frá Auði Kjartans, uppgjörið margfræga og skýrsla frá maraþonmeisturum í Frankfurt!
Tue, 29 Oct 2024 - 1h 28min
63 - #60 Fjórfalt Íslandsmet í beinni!
Bakgarðurinn ræddur, íslandsmet í beinni, uppgjör síðustu hlaupa ásamt því að Friðleifur spjallaði við okkur um komandi verkefni sem eru á boðstólum FRÍ, græjuhornið frá Sigga er á sínum stað og alvöru bakgarðsskýrsla frá Rakel. Ekki láta þennan þátt fara framhjá Bose heyrnatólunum þínum!
Tue, 22 Oct 2024 - 1h 55min
62 - #59 Nice að hitta Courtney!
Svaddalegur þáttur fyrir ykkur í dag. Skýrsla frá Hildi Aðalsteins úr 100 mílna hlaupi í Nice, hlaupauppgjör vetrarhlaupanna hér heima, kraftsímtal alla leið til Iten þar sem Halldóra Huld lagði okkur línurnar frá heimili meistaranna, draumaráðningahorn Dr. Erlu og svo miklu miklu fleira! Ekki láta þennan þátt framhjá þér fara.
Tue, 15 Oct 2024 - 2h 20min
61 - #58 Endurheimtar Einar!
Taka tvö með okkar eina sanna Latsa. Nú var farið vel yfir endurheimt, próteininntöku, hitaþjálfun og margt margt fleira!
Tue, 08 Oct 2024 - 2h 08min
60 - #57 Með taugakerfið þanið!
Í þættinum voru últrahlauparar sem eru að fikta í wikipediasíðum annarra ræddir, skýrsla frá Andreu Kolbeins, skóhornið þar sem við förum yfir skóbúnað inn í veturinn ásamt því að opnað var fyrir símann, hlaupauppgjör og svo mætti lengi telja!
Tue, 01 Oct 2024 - 1h 32min
59 - #56 Þurfti að læra allt upp á nýtt!
Græjuhornið, hugleiðingar, innhringing og fleira. Ein af okkar mögnuðustu ofurkonum, Fanney Þorbjörg kom með skýrslu úr Oslóarmaraþoninu og Ósk Gunnars mætti í frumraun sína í stúdíó til þess að gera upp Bakgarðinn!
Fri, 27 Sep 2024 - 1h 37min
58 - #55 Nú fékk hann metið metið!
Hugleiðingar varðandi tannheilsu hlaupara, skýrsla frá Ultrahjónunum í Slóveníu, græjuhornið, hlaupauppgjör og örviðtal við Arnar Pétursson fyrir Berlínarmaraþonið!
Mon, 23 Sep 2024 - 1h 52min
57 - #54 Bakgarðs upphitun úr Bose stúdíóinu!
Við erum mættir í Bose stúdíóið! Slóum á þráðinn til Andra Guðmunds og ræddum Bakgarðinn í þaula, fórum yfir brautarvörsluna í Eldslóðinni, skýrsla um kostnað hlaupa ásamt allskonar góðgæti!
Wed, 18 Sep 2024 - 1h 51min
56 - #53 Nýtt stúdíó!
Í þættinum í dag voru alvöru hugleiðingar, meiðslaskýrsla frá Marteini, glænýr dagskrárliður með Sigga Ragnars sem kallast græjuhornið, massíft hlaupauppgjör og margt, margt fleira. Allt þetta var að sjálfsögðu rætt í nýja stúdíóinu okkar!
Mon, 09 Sep 2024 - 1h 34min
55 - #52 Er alltaf stuttbuxnaveður?
Svekkelsið við það að þurfa að fresta Öræfahlaupinu, hugleiðingar veðurfræðings og skýrsla frá Halldóru Huld Ingvarsdóttur úr CCC. Guðfinna Kristín Björnsdóttir mætti sem gestastjórnandi í fjarveru Marteins. Við stikluðum á stóru í gegnum hlaupaferilinn, ræddum komandi áskoranir og fórum vel yfir UTMB sem kláraðist nýliðna helgi.
Mon, 02 Sep 2024 - 2h 19min
54 - #51 Reykjavíkurmaraþons uppgjörið mikla!
Reykjavíkurmaraþonið gert upp, óbrjótanlegt heimsmet sem féll, statusinn tekinn á Nick Gísla fyrir CCC og á Fríðu Rún eftir World Masters Athletics Championships!
Mon, 26 Aug 2024 - 1h 36min
53 - #50 Upphitun fyrir Reykjavíkurmaraþonið!
Í þættinum í dag er heldur betur farið yfir Reykjavíkurmaraþonið, brautin rædd, góð ráð fyrir hlaup og svo mætti lengi telja. Við fengum skýrslu frá Andreu Kolbeins og viðtal við Hlyn Andrésson sem við mælum mikið með að hlusta á!
Tue, 20 Aug 2024 - 1h 49min
52 - #49 Fjallahlauparar eiga ekki breik!
Hugleiðingar fyrir Reykjavíkurmaraþonið, Ólympíuleikarnir, Fimmvörðuhálsinn og Súlurnar gerðar upp. Við fáum úrvals sögu frá últrahlauparanum geðþekka Sigfinni Björns ásamt alvöru niðurhlaupi!
Tue, 13 Aug 2024 - 1h 48min
51 - #48 Villtur í Kerlingarfjöllum
Hugleiðingar varðandi 100km hlaup, skýrsla úr Kerlingarfjöllum, uppgjör á allskonar hlaupum og margt fleira á boðstólum í þættinum í dag!
Wed, 31 Jul 2024 - 1h 10min
50 - #47 Laugavegsuppgjörið mikla!
Laugavegurinn á risastóran sess í hlaupasumri flestra utanvegahlaupara. Það verður að vera sér þáttur til að gera upp þetta stóra og mikla hlaup!
Wed, 17 Jul 2024 - 1h 16min
49 - #46 Laugavegsvikan með Marteini
Laugavegurinn var þema þáttarins. Við fengum skýrslu frá Rögnu, viðtal við sjálfan Laugavegskónginn, Höskuld og svo var hlaupauppgjörið að sjálfsögðu á sínum stað. Þess má geta að næringarplönum okkar var lekið í beinni útsendingu svo nú getið þið öll étið þennan Laugaveg eins og úthvíld tröll!
Wed, 10 Jul 2024 - 1h 15min
48 - #45 Næringarpælingar með Latsa!
Viðtalsþáttur við sjúkraþjálfarann geðuga Einar Sigurjónsson. Í þættinum förum við yfir allt milli himins og jarðar hvað varðar næringu íþróttafólks. Einar, eða Latsi eins og hann er gjarnan kallaður er frábær í að útskýra flókin fyrirbæri á mannamáli og því vonum við að hlustendur geti lært af þessu spjalli og hafi gaman af!
Mon, 08 Jul 2024 - 1h 35min
47 - #44 Með Steina í vasanum!
Í þættinum í dag gerðum við upp Ármannshlaupið, tókum upp símann og heyrðum í Hafdísi, Siggunum tveimur og fengum skýrlu frá Olgeiri varðandi Dyrfjallahlaupið. Upplagt að hlusta á þáttinn á leiðinni austur!
Wed, 03 Jul 2024 - 1h 26min
46 - #43 Með krampa í kjálkanum!
Í þættinum í dag er heldur betur farið yfir farinn veg í nýafstöðnum hlaupum, bæði hér heima og erlendis. Við fáum góða tjónaskýrslu frá Hlyni Guðmunds eftir krampafestival á Ítalíu og nýtt hlaup verður kynnt ásamt fullt af aulabröndurum. Þess má geta að það er enginn best fyrir dagsetning á þessum þætti!
Mon, 01 Jul 2024 - 1h 33min