Filtrer par genre

Álhatturinn

Álhatturinn

Álhatturinn

Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum.


Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni samsæriskenninga snilld 💥

➡️ Áskriftarhlekkurinn:


https://pardus.is/alhatturinn

110 - P1: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 1
0:00 / 0:00
1x
  • 110 - P1: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 1

    Charlie Kirk var ekki bara einhver gaur með sterkar skoðanir og hlaðvarp. Hann var táknmynd heillar kynslóðar ungs íhaldsfólks. Strákur úr úthverfi Chicago sem hætti háskólanámi til að stofna Turning Point USA, samtök sem börðust gegn því sem hann kallaði woke-heilaþvott og vinstri slagsíðu í bandarískum háskólum. Fyrir sumum var hann hetja sem sagði það sem aðrir þorðu ekki að segja. Fyrir öðrum var hann ógn og rödd sem kynti undir tortryggni og fordóma. En höfðu jafn mikla ástrí...

    Fri, 11 Sep 2026
  • 109 - Til er lækning við krabbameini sem haldið er frá almenningi

    Krabbamein hefur fylgt manninum frá örófi alda, og í raun ekki bara manninum heldur öllum lífverum á jörðinni. Strangt til tekið ekki eitt stakt mein heldur heill hópur sjúkdóma sem falla undir regnhlífarhugtakið krabbamein. En hvernig getur ein stök stökkbreytt fruma endað sem svæsið meinvarp í líffærum um allan líkama?? Hvað gera læknar í dag þegar á reynir? Skera meinið í burt og dæla svo allskonar ólyfjan og geislavirkum efnum í fólk í von og óvon um að meinið hverfi? Og til h...

    Fri, 11 Sep 2026
  • 108 - Loch Ness skrímslið (stundum kallað Nessie) er til

    Á hálendi Skotlands liggur djúpt og dimmt stöðuvatn sem lengi hefur vakið athygli umheimsins: Loch Ness. Þar á, samkvæmt sögunni, að búa dulræn vera sem oftast er kölluð Nessie. Líklega eitt frægasta dýr eða vatnaskrímsli veraldar, sem þó engum hefur tekist að færa sönnur á að sé til á óyggjandi hátt. En hver eða hvað er Nessie í raun og veru? Er hún mögulega einhverskonar leifar eða minnismerki um forsögulega tíma risaeðlanna? Skynvilla eða hugarburður misvitra og brenglaðra ein...

    Fri, 11 Sep 2026
  • 107 - Tartaria var háþróuð siðmenning sem skrifuð hefur verið úr sögubókum og falin fyrir mannkyninu

    Við lærum um Forn-Grikkland, Mesópótamíu, Egyptaland og allskonar forn stórveldi í skóla. En var heilt heimsveldi vísvitandi strokað út úr sögunni? Við erum að tala um Tartaríu. Risavaxið veldi sem náði allt frá Rússlandi og langt inn í Asíu og jafnvel yfir til Ameríku. Stórveldi sem nýtti sér framsækið orkukerfi, háþróaða byggingarlist og mögulega allskonar tækni sem við eigum erfitt með að skilja enn þann dag líkt og fría endurnýjanlega þráðlausa orku. En hvernig má það vera? Ef...

    Fri, 11 Sep 2026
  • 106 - Bandaríkin leyfðu árásinni á Pearl Harbor að gerast til að hafa ástæðu til að taka þátt í seinni heimstyrjöldinni

    Eitt fjölmargra menningarlegra stórvirkja hins kyngimagnaða og vanmetna leikstjóra, Michael Bay, er kvikmyndin Pearl Harbor. Kvikmynd sem lýsir því á dramatískan og stórfenglan hátt hvernig Bandaríkin drógust inn í seinni heimsstyrjöldina eftir árás Japana á herstöðina Pearl Harbor þann 7. Desember 1941. Árásin þótti mjög óvænt, rétt eins og þruma úr heiðskýru lofti og kom Bandaríkjamönnum og heimsbyggðinni allri i opna skjöldu. Aldrei hefði nokkurn Bandaríkjamann grunað að ráðist...

    Fri, 11 Sep 2026
Afficher plus d'épisodes