Filtrer par genre
- 49 - #49 - Elín Hall & Reynir Snær
Tónlistarfólkið og vinirnir Elín Sif Hall og Reynir Snær Magnússon mættu til mín í virkilega áhugavert og skemmtilegt spjall um tónlistina og lífið yfir rjúkandi heitum kaffibolla.
Elín er nýútskrifuð leikkona og getur fólk séð hana á leika listir sínar í borgarleikhúsinu í sýningunni 9 líf. Ásamt leiklistinni er Elín frábær tónlistarkona en hefur hún gefið út mörg lög og er eitt hennar vinsælasta lag lagið vinir sem fengið hefur að hljóma á útvarpsstöðum undanfarið.
Reynir er gítarséní og er hann einn eftirsóttasti gítarleikari landsins í dag. En hann hefur meðal annars spilað á tónleikum hjá mörgu okkar þekktasta tónlistarfólki í dag. Ásamt spilamennskunni produserar hann líka lög hjá mörgu flottu tónlistarfólki.
Elín og Reynir eiga sér áhugaverða sögu en vinna þau mikið saman að músíkinni en voru þau um tíma par. Þau hafa þó eftir sambandsslitin haldið samvinnunni í músíkinni áfram og eru miklir vinir.
Í þættinum ræddum við meðal annars um tónlistina og hvar áhuginn á henni kviknaði, hvernig það er að vinna svona náið með sínum fyrrverandi maka, uppvaxtarárin, vináttuna og virðinguna. Svo prufaði ég þau að sjálfsögðu í því hversu vel þau þekkjast í raun og veru.Fri, 09 Jun 2023 - 48 - #48 - Diljá & Steini
Söngkonan, orkuboltinn og eurovision farinn Diljá Pétursdóttir mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt vini sínum og samstarfsmanni, tónlistarmanninum og söngvaranum Þorsteini Helga Kristjánssyni og var að sjálfsögðu rjúkandi heitt á könnunni.
Eins og allir íslendingar ættu að vita flutti Diljá framlag íslands í Eurovision þetta árið og stóð hún sig ekkert eðlilega vel með kraftmikilli framkomu sinni á sviðinu.
Þorsteinn er einnig söngvari úr Garði og gefur Diljá ekkert eftir og saman mynda þau frábært teymi í hljómsveit sinni Midnight Librerian.
Þrátt fyrir að hafa kannski ekki þekkst lengi eru þau miklir vinir og ætla þau sér bæði stóra hluti í músíkinni.
Í þættinum ræddum við meðal annars um tónlistina og hvar áhugi þeirra kviknaði á henni, eurovision ævintýrið, vináttuna, hljómsveita bransann, framtíðaráform og margt fleira. svo prófaði ég þau að sjálfsögðu í því hversu vel þau þekkjast í raun og veru.Thu, 01 Jun 2023 - 47 - #47 - Júlí Heiðar & Kristmundur Axel
Tónlistarmennirnir og vinirnir Júlí Heiðar Halldórsson og Kristmundur Axel Kristmundsson mættu til mín í stórskemmtilegt spjall um tónlistina, lífið og tilveruna og var að sjálfsögðu boðið upp á rjúkandi heitt á könnunni og með því.
Júlí Heiðar hefur verið að gera það virkilega gott í íslensku tónlistarsenunni undanfarin ár en er hann svo sannarlega ekki við eina fjölina felldur en er hann einnig menntaður leikari ásamt því að vera bankastarfsmaður hjá Arion Banka í fullu starfi.
Kristmundur Axel er að koma aftur upp á yfirborðið eftir dágóða pásu frá sviðsljósinu og má segja að hann sé að koma inn með látum, þrátt fyrir að hann hafi svo sem alltaf verið að vinna við tónlist.
Þeir vinirnir hófu fyrst samstarf kornungir í Borgó og unnu söngkeppni framhaldsskólanna með laginu Komdu til baka og skutust þeir í kjölfarið hratt upp á stjörnuhimininn.
Í þættinum ræddum við meðal annars um músíkina og hvar áhugi þeirra kviknaði á henni, textagerðina og tilfinningalega útrás sem henni fylgir, vináttuna, endurkomuna í sviðsljósið og margt fleira, svo prófaði ég þá að sjálfsögðu í því hversu vel þeir þekkjast í raun og veru.Thu, 18 May 2023 - 46 - #46 - Eyrún Anna & Olga Helena
Frumkvöðlarnir, business píurnar og vinkonurnar Eyrún Anna Tryggvadóttir og Olga Helena Ólafsdóttir mættu til mín í stórskemmtilegt spjall og var að sjálfsögðu boðið uppá rjúkandi heitt kaffi og meðí.
Eyrún og Olga hafa verið bestu vinkonur frá því þær voru saman í 8. bekk í Árbæjarskóla en hefur sú vinátta þróast yfir í frábært samstarf sem hófst allt þegar þær voru saman í fæðingarorlofi og hönnuðu Minningarbókina sem óx heldur betur í höndunum á þeim og stofnuðu þær saman barnavöruverslunina Von verslun. Í dag eru þær búnar að kaupa Bíum Bíum og er starfsemin heldur betur í blóma.
Í þættinum ræddum við meðal annars um business lífið og hvernig það allt saman byrjaði, árin í Árbænum, vináttuna, hvernig það er að vinna með svona náinni vinkonu, fjölskylduna og margt fleira. Svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.Thu, 11 May 2023 - 45 - #45 - Villi Neto & Vigdís Hafliða
Leikarinn, grínistinn og uppistandarinn Vilhelm Neto mætti til mín í virkilega einlægt og skemmtilegt spjall ásamt samstarfskonu sinni og vinkonu tónlistarkonunni, grínistanum og uppistandaranum Vigdísi Hafliðadóttur.
Villi Neto hefur verið áberandi ansi lengi í íslensku samfélagi en kom hann fyrst uppá sjónarsviðið í gegnum samfélagsmiðlana og var hann duglegur við að senda frá sér sketsa sem slógu rækilega í gegn. Í dag er Villi menntaður leikari og starfar við Borgarleikhúsið ásamt því að vera meðlimur í uppistand hópnum VHS sem hafa notið mikilla vinsælda.
Vigdís er einmitt ásamt honum Villa meðlimur hópsins VHS og fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða á sýninguna þeirra VHS velur vellíðan. En ásamt uppistandinu og að skrifa grínefni er hún einnig söngkona hljómsveitarinnar FLOTT en hafa þær einmitt notið gríðarlegra vinsælda og spennandi tímar framundan.
Villi og Vigdís eiga einlægt og fallegt vinasamband sem heyrist greinilega á spjalli okkar.
Í þættinum ræddum við meðal annars um grínið og hvenær þau ákváðu að stíga inní þá senu, leiklistina og samfélagsmiðlana, tónlistina, tækifærið sem þau fengu á að ferðast milli eyja saman og búa til sjónvarp og margt fleira. Svo prófaði ég þau að sjálfsögðu í því hversu vel þau þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 04 May 2023 - 44 - #44 - Anna Marta & Lovísa
Frumkvöðlarnir, þjálfararnir, orkuboltarnir og tvíburasysturnar Anna Marta Ásgeirsdóttir og Lovísa Ásgerisdóttir mættu til mín í virkilega skemmtilegt spjall og komu heldur betur færandi hendi með brakandi ferskt súkkulaði með kaffinu.
Anna Marta hefur verið þjálfari í mörg ár lengi vel hjá Hreyfingu en hún færði sig nýverið yfir til WorldClass og er einn vinsælasti hóptímakennarinn þar, ásamt því að taka að sér fólk í næringarþjálfun. Í covid bankaði svo tilboð til hennar sem hún gat einfaldlega ekki annað en stokkið á og hefur hún undanfarin ár framleitt bæði pestó og súkkulaði undir merkinu Anna Marta og er brjálað að gera.
Lovísa er eins og systir sín einnig einn vinsælasti hóptímakennari WorldClass en er hún einnig tekin við gæðastjórnun í súkkulaði og pestó framleiðslunni.
Þær tvíburasysturnar eru einstaklega nánar og góðar vinkonur en heyrist það mjög glögglega í spjallinu okkar.
Í þættinum ræddum við meðal annars um heilsuna og mikilvægi þess að hlúa vel að því sem við setjum ofaní okkur, súkkulaðið og matargerðina og hvaðan sú hugmynd kviknaði, tvíburalífið, hvar þær eru líkar og hvar þær eru ólíkar, uppvöxtinn og margt fleira. Svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði:
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 27 Apr 2023 - 43 - #43 - Elísabet Ormslev & Stefanía Svavars
Söngdívurnar og vinkonurnar Elísabet Ormslev og Stefanía Svavarsdóttir mættu til mín í virkilega skemmtilegt spjall og var að sjálfsögðu boðið uppá rjúkandi heitt kaffi og meðí.
Þær hafa báðar verið áberandi undanfarin ár í íslensku tónlistarsenunni en má segja að Íslendingar urðu fyrst varir við einstaka sönghæfileika Elísabetar þegar hún keppti hér um árið í Voce Ísland. Stefanía steig ung, eða aðeins sextán ára, sín fyrstu skref í bransanum með Stuðmönnum, hvorki meira né minna en hafði hún þá fyrr um árið unnið söngkeppni Samfés og í kjölfarið boðið að taka að sér að skemmta með þeim sem entist í tvö ár.
Þær hafa verið bestu vinkonur síðan þær voru sextán og sautján ára gamlar eða allt frá því Stefanía sá Elísabetu keppa á Samfés ári eftir að hún sjálf sigraði þá sömu keppni.
Í dag eru þær svo að fara að halda sérstaka Adele tónleika í Silfurbergi í hörpu og fer hver að verða síðastur að næla sér í miða
Í þættinum ræddum við meðal annars um músíkina og hvar áhugi þeirra kviknaði á tónlist, bransann, skemmtilega spontant ferðalög sem þær hafa farið saman í, fjölskylduna, vináttuna og margt fleira.
Svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði:
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 20 Apr 2023 - 42 - #42 - Óli Gunnar & Arnór
Leikararnir, rithöfundarnir, samstarfsfélagarnir, vinirnir og frændurnir Óli Gunnar Gunnarsson og Arnór Björnsson mættu til mín í virkilega skemmtilegt spjall og var að sjálfsögðu rjúkandi heitt á könnunni.
Óli og Arnór hafa verið miklir vinir allt frá því þeir muna eftir sér og voru þeir ungir farnir að láta af sér kveða í leiklistar heiminum en voru þeir aðeins níu ára þegar þeir stigu fyrst á svið í Fúsa froskagleypi í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Nokkrum árum síðar eða aðeins 13 og 14 ára skrifuðu þeir saman sitt fyrsta leikrit, Unglingurinn, sem þeir léku einnig báðir í og sýnt var í Gaflaraleikhúsinu. En hafa þeir síðan þá skrifað og leikið í nokkrum leikritum ásamt því að skrifa bókina Stefán rís.
Þessa dagana eru þeir báðir útskrifaðir leikarar og hafa undanfarin tvö ár skrifað Stundina okkar og eru fleiri spennandi verkefni framundan hjá þeim.
Í þættinum ræddum við um leiklistina og hvar þetta allt byrjaði, hvernig það var að gerast rithöfundar 13 og 14 ára, ferðalög þeirra saman um heiminn með sýninguna sína, vináttuna og margt fleira, svo prófaði ég þá að sjálfsögðu í því hversu vel þeir þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 13 Apr 2023 - 41 - #41 - Birgir Steinn & Ragnar Már
Flugþjónarnir, Draumfararnir, tónlistarmennirnir og vinirnir Birgir Steinn Stefánsson og Ragnar Már Jónsson mættu í virkilega skemmtilegt spjall yfir rjúkandi heitum bolla.
Birgir Steinn hefur verið að gera virkilega góða hluti í músíkinni undanfarin ár en hefur tónlist hans náð að teygja sig langt út fyrir landsteinana og er hans vinsælasta lag á spotify með yfir 41 milljón spilanir, hvorki meira né minna. Ásamt því að sinna sólóferlinum er hann einnig annar meðlima hljómsveitarinnar Draumfarir ásamt honum Ragnari milli þess sem hann þjónustar fólk um borð í Icelandair.
Ragnar er eins og áður kom fram hinn helmingur Draumfara og hefur í gegnum tíðina verið í hinum ýmsu hljómsveitum. Ásamt tónlistinni hefur hann fengið útrás fyrir annarri ástríðu sinni sem er að brugga bjór, en starfar hann einmitt í dag sem bruggmeistari.
Birgir og Ragnar kynntust í fluginu en var Ragnar einmitt flugþjónn til margra ára en sneri hann sér svo að brugginu í covid. Þeir tengdu strax í gegnum músíkina og urðu fljótt miklir vinir og fóru mjög fljótlega af stað með verkefnið Draumfarir.
Í þættinum ræddum við um músík bransann og hvar áhugi þeirra kviknaði á tónlist, flugið og hvernig það er að samtvinna flugið við poppara lífið, vináttuna og margt fleira. Svo prófaði ég þá að sjálfsögðu í því hversu vel þeir þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 06 Apr 2023 - 40 - #40 - Emmsjé Gauti & Helgi Sæmundur
Tónlistarmennirnir, rappararnir og vinirnir Gauti Þeyr Másson og Helgi Sæmundur Guðmundsson mættu til mín í virkilega skemmtilegt og áhugavert kvöld spjall.
Gauti eða Emmsé Gauti eins og flestir kannast við hann er einn okkar allra vinsælasti tónlistarmaður undanfarinna ára en skaust hann hratt upp á stjörnuhimininn árið 2016 og hefur gefið út hvern smellinn á fætur öðrum.
Helgi Sæmundur er annar meðlimur rappdúósins Úlfur Úlfur en þeir hafa unnið hörðum höndum undanfarið við að klára nýja plötu sem kemur út síðla sumars. Helgi rekir einnig lítið framleiðslufyrirtæki og semur hann tónlist fyrir bæði auglýsingar og sjónvarpsþætti ásamt því að sjá um framleiðslu.
Helgi og Gauti rákust fyrst á hvorn annan á rímnaflæði keppni samfés þegar þeir voru unglingar en gerði helgi sér lítið fyrir og vann þá keppni, vinskapur þeirra myndaðist svo í gegnum bransann og hafa þeir unnið mörg verkefni saman og eru miklir vinir.
Í þættinum ræddum við um músíkina, hvernig þetta byrjaði allt hjá þeim, hvernig það er að vera starfandi tónlistarmaður á íslandi, vináttuna og margt fleira. Svo prófaði ég þá að sjálfsögðu í því hversu vel þeir þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði:
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 30 Mar 2023 - 39 - #39 - Gunni Helga & Ási Helga
Skemmtilegustu tvíburabræður landsins Gunnar Helgason og Ásmundur Helgason kíktu til mín í spjall yfir rjúkandi heitu kaffi og meððí.
Gunnar er einstaklega fjölhæfur listamaður en er hann leikari, leikstjóri og rithöfundur og ættu flestir íslendingar að þekkja hann til dæmis úr hinu ódauðlega dúói Gunni og Felix. Þó Gunni sé alls ekki hættur að koma fram hefur fókusinn hans færst örlítið til og er hann nú okkar fremsti barnabókahöfundur og hefur hann skrifað hverja metsölubókina á fætur annarri, en þessa dagana er einmitt verið að sýna leikritið Draumaþjófurinn í Þjóðleikhúsinu, sem er einmitt upp úr einni af hans bókum.
Ásmundur eða Ási eins og hann er alltaf kallaður er eigandi bókaútgáfunnar Drápu ásamt því að reka kaffihúsið GráaKöttinn á Hverfisgötu. Inná milli flýr hann síðan í húsið sitt á Spáni en vildi lítið gefa upp um staðsetningu svo það myndi ekki allt fyllast af íslendingum þar.
Þeir eru eins og gefur að skilja virkilega nánir og góðir vinir og var einstaklega skemmtilegt að tala við þá.
Í þættinum ræddum við meðal annars um tvíburalífið og snilldina við það að eiga alltaf til leikfélaga nánast sama hvar þeir væru, hvar þeir eru ólíkir, skemmtilegar uppákomur í þeirra lífi, hvernig það er fyrir Ása að eiga eineggja tvíbura sem er þekktur og margt fleira. Svo prófaði ég þá að sjálfsögðu í því hversu vel þeir þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 23 Mar 2023 - 38 - #38 - Örn Árna & Pálmi Gests
Stórleikararnir, spaugstofubræðurnir og vinirnir Örn Árnason og Pálmi Gestsson mættu til mín í virkilega skemmtilegt spjall yfir kaffibolla og með því.
Örn hefur verið áberandi í leiklistar og skemmtanaiðnaði Íslands frá því 1982 þegar hann útskrifaðist úr leiklistaskólanum. Lengst af hefur hann starfað við Þjóðleikhúsið en svo var hann á sínum tíma fastagestur heima í stofu allra barna sem Afi, ásamt því að hafa tekið að sér ýmis hlutverk í kvikmyndum.
Pálmi er líkt og Örn einn okkar allra ástsælasti leikari og hefur hann starfað við Þjóðleikhúsið síðan 1983. Pálmi hefur leikið fjölbreytt hlutverk bæði á sviði og í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.
Þeir vinirnir kynntust fyrst þegar þeir hófu nám í leiklist en voru þeir bekkjabræður og hafa fylgst að nánast allar götur síðan. En fyrir utan það að hafa unnið saman við Þjóðleikhúsið í 40 ár unnu þeir einnig saman í 30 ár að gerð Spaugstofunar sem allir íslendingar sátu límdir við á hverju laugardagskvöldi.
Í þættinum ræddum við meðal annars leikhúslífið, upphafið á Spaugstofunni, kærumálin, vináttuna og margt fleira. Svo prófaði ég þá að sjálfsögðu í því hversu vel þeir þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði:
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 09 Mar 2023 - 37 - #37 - Inga Lind & Arnhildur Anna
Hressustu Stjúpmæðgur landsins, Inga Lind Karlsdóttir og Arnhildur Anna Árnadóttir mættu til mín í virkilega skemmtilegt spjall um allt milli himins og jarðar yfir rjúkandi heitu kaffi og meðí.
Inga Lind er einn stofnanda og eiganda framleiðslufyrirtækisins Skot en framleiða þau sjónvarpsefni og auglýsinga en hefur Inga Lind sjálf verið viðriðin sjónvarp nánast alla sína fullorðins tíð en sem dæmi má nefna morgunsjónvarpið á Stöð tvö, Ísland í dag og Biggest loser ísland svo fátt eitt sé nefnt.
Arnhildur er margverðlaunuð kraftlyftingakona og á hvert metið á fætur öðru og í kjölfar kraftlyftinga fór hún að vekja mikla athygli á samfélagsmiðlum en er hún í dag þjálfari í Afrek á milli þess sem hún sinnir markaðsmálum fyrir stöð tvö en á hún í ofanálag von á sínu fyrsta barni.
Samband Ingu og Arnhildar er virkilega fallegt og litað af mikilli vináttu og eru þær mjög nánar stjúpmæðgur.
Í þættinum ræddum við allt milli himins og jarðar en ræddum við meðal annars um stjúpforeldrasambönd og hvernig það gekk í fyrstu, sjónvarpsbransan, kraftlyftingar, fjölskyldulífið, hefðir og margt fleira. Svo prufaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði:
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 02 Mar 2023 - 36 - #36 - Magnea Björg & Ína María
Athafnakonurnar, áhrifavaldarnir, LXS-dívurnar og vinkonurnar Ína María Einarsdóttir og Magnea Björg Jónsdóttir mættu til mín nú á dögunum í mjög skemmtilegt spjall yfir rjúkandi kaffi og meðí.
Ína er með annan fótinn heima á Íslandi og hinn í Vilnius í Lettlandi þar sem maðurinn hennar er atvinnumaður í körfubolta en var hún sjálf ansi efnileg í körfunni á sínum tíma. Þegar hún er á Íslandi kennir hún forfallakennslu og er orðið nóg að gera hjá henni í ljósmyndun.
Magnea er þessa stundina að skrifa lokaritgerðina sína og útskrifast hún af viðskiptabraut hjá HÍ með áherslu á stjórnun núna í maí ásamt því að vinna í markaðsmálum hjá Heklu en er hún einmitt mikil bílaáhugakona.
Ofaná þetta eru þær báðar í hópnum LXS og eru áberandi á samfélagsmiðlum en fór einmitt í loftið sjónvarpssería með þeim stelpunum sem naut gríðarlegra vinsælda og geta aðdáendur þeirra farið að láta sér hlakka til en w2eru þær þessa dagana í tökum fyrir seríu tvö.
Í þættinum ræddum við meðal annars um árin í LA og Miami, LXS hópinn og hvernig hann varð til, húmorinn, vináttuna og margt fleira. Svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 23 Feb 2023 - 35 - #35 - Sólrún, Lína Birgitta & Gurrý
Podcaststjörnurnar, athafnakonurnar og vinkonurnar Sólrún Diego, Lína Birgitta og Gurrý mættu til mín í virkilega skemmtilegt spjall um allt milli himins og jarðar.
Það er sjaldnast dauð stund hjá þeim stelpunum en eru þær allar með mörg járn í eldinum og vilja hafa dagana sína fjölbreytta. Sólrún og Lína eru rétt í þessu að útskrifast úr námi sem þær fóru saman í bifröst, viðskiptafræði með áherslu á markaðsmál og samfélgasmiðla, og er Sólrún nýtekin við markaðsmálum Vonar og Bíum Bíum ásamt því að halda miðli sínum gangandi en er hún einn allra sæðsti áhrifavaldur landsins en það er einmitt annað sem þær Lína eiga sameiginlegt. Ásamt því að vera vinsæll áhrifavaldur er Lína að gefa út sína eigin fatalínu, Difine the line og er einnig að koma af stað splunkunýrri sólgleraugnalínu. Gurrý er snirtifræðingur að mennt og starfar sem slík en rekur hún snyrtistofuna Kopar og er vægast sagt nóg að gera hjá þeim.
Þær sameinast svo allar í podcastinu Spjallinu sem hefur verið eitt allra vinsælasta hlaðvarp landsins að undanförnu.
Í þættinum ræddum við meðal annars um hvernig þær kynntust allar, hlaðvarpið þeirra spjallið og hvernig það kom til, Spilið örlagaspil, draugagang á hóteli, karókey kvöld og margt fleira. Svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 16 Feb 2023 - 34 - #34 - Nadine Guðrún Yaghi og Þórhildur Þorkels
Hlaðvarpsstjörnurnar, athafnakonurnar, fyrrum fjölmiðlakonurnar og vinkonurnar Nadine Guðrún Yaghi og Þórhildur Þorkelsdóttir mættu til mín í virkilega skemmtilegt spjall nú á dögunum.
Nadine og Þórhildur byrjuðu báðar ungar í fjölmiðlum og urðu fljótt þekktar fyrir einstaklega vandaðann flutning á fréttaefni tengt mannlegu hliðinni og má sem dæmi nefna að þær hafa báðar unnið til verðlauna, Nadine fyrir rannsóknarblaðamennsku og Þórhildur blaðamannaverðlaunin sama árið. Ásamt fréttamennskunni létu þær einnig mikið af sér kveða í dagskrárgerð og stjórnaði Nadine meðal annars Kompás á stöð tvö og Þórhildur var einn af þremur stjórnendum þáttana Bresta sem sýndir voru einnig á stöð 2.
Þær hafa þó báðar lagt blaðamennskuna á hilluna og starfar Nadine nú sem samskiptastjóri Play og Þórhildur sem kynningarfulltrúi Bandalags háskólamanna. Þær svala þó blaðamennsku þorstanum í einstaklega vönduðum og áhugaverðum hlaðvarpsþáttum, Eftirmál, sem hafa slegið í gegn á undanförnum misserum.
Í þættinum ræddum við meðal annars um lífstílinn sem blaðamennskan er, ákvörðunina um að hætta, podcastið Eftirmál, vináttuna og margt fleira og svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 09 Feb 2023 - 33 - #33 - Bergdís & Tinna
Leikkonurnar og vinkonurnar Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir mættu til mín í virkilega skemmtilegt spjall og var að sjálfsögðu rjúkandi heitt á könnunni.
Bergdís og Tinna útskrifuðust báðar frá leiklistarskólanum Rose Bruford í Englandi en voru þó ekki á sama tíma í námi og kynntust ekki fyrr en nokkru eftir að þær útskrifuðust þegar Tinna mætti til Bergdísar í prufu fyrir leikrit sem Bergdís var að setja upp með leikhópnum Spindrift. Tinna stóð sig það vel í prufunum að hún var ekki bara tekin inn í leikritið heldur er hún í dag fullgildur meðlimur hópsins og eru þær einmitt um þessar mundir að standa fyrir sýningunni Ástin er taugahrúga, enginn dans við Ufsaklett sem sýnd er í Mengni.
Í þættinum ræddum við meðal annars um listina og hvar áhugi þeirra kviknaði á leiklist, leikhópinn Spindrift sem er norrænn leikhópur, ferðalögin milli landa og margt fleira og svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 02 Feb 2023 - 32 - #32 - Sóli Hólm & Baldur Kristjáns
Skemmtikrafturinn, leikarinn og dagskrárgerðamaðurinn Sólmundur Hólm Sólmundsson mætti til mín ásamt æskuvini sínum, ljósmyndaranum Baldri Kristjánssyni í stórskemmtilegt spjall yfir rjúkandi heitum bolla.
Sóli hefur verið einn allra vinsælasti skemmtikraftur landsins undanfarin ár, en fyrir utan að halda uppistönd og skemmta í veislum hefur hann stjórnað fjlöldanum öllum af sjónvarpsþáttum og leikið í kvikmyndum og þáttaröðum, nú síðast í HBO þáttaröðinni The Flight attendant.
Baldur er ekki síður mikils metinn innan síns sviðs en er hann einn eftirsóttasti auglýsingarljósmyndarinn hér á landi og hefur hann myndað margar helstu auglýsingaherferðir sem ráðist hefur verið í hérlendis.
Sóli og Baldur hafa þekkst frá því þeir voru sex ára gamlir en urðu þeir miklir vinir á unglingsárunum og hafa fylgst að allar götur síðan og eru þeir mjög nánir.
Í þættinum ræddum við meðal annars skemmtana og ljósmyndabransann, hversu mikilvægt það er að eiga vin sem getur látið mann heyra það og stutt mann á móti, vinasambandið, æskuárin og margt fleira. Svo prufaði ég þá að sjálfssögðu í því hversu vel þeir þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 26 Jan 2023 - 31 - #31 - Herra Hnetusmjör & Þormóður
Tónlistarmennirnir, Hittkóngarnir og vinirnir Herra Hnetusmjör og Þormóður Eiríksson mættu til mín í frábært spjall núna í vikunni.
Herra Hnetusmjör er eins og flestir íslendingar vita einn allra vinsælasti tónlistarmaður landsins og hefur hann verið það undanfarin ár. Nú geta svo áskrifendur stöðvar 2 fengið Herran í heimsókn í stofuna á öllum föstudagskvöldum þar sem hann er einn af dómörum Idolsins.
Þormóður er einn allra eftirsóttasti produsent landsins um þessar mundir en hefur hann unnið með öllum helstu tónlistarmönnum Íslands í dag en sem dæmi má nefna Jóa P og Króla, Aroni Can, Birni, Friðriki Dór og svo að sjálfsögðu Herra Hnetusmjör.
Þeir félagarnir eru miklir vinir og hafa þeir átt virkilega farsælt samstarf í gegnum tíðina.
Í þættinum ræddum við meðal annars um tónlistina og hvernig þeir vinna lögin sín saman, Idol dómgæsluna, Húgó æfintýrið, lífið á Ísafirði, samverustundirnar í studioinu og margt fleira. Svo prófaði ég þá að sjálfsögðu í því hversu vel þeir þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 12 Jan 2023 - 30 - #30 - Friðrik Dór
Í þætti dagsins fékk ég til mín einn af mínum betri vinum, söngvarann og tónlistarmanninn Friðrik Dór Jónsson í spjall um lífið og tilveruna.
Friðrik hefur undanfarin ár verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins en hefur hann gefið út hvern hitarann á fætur öðrum allt frá því hann gaf út Hlið vil hlið árið 2009.
Við Frikki vorum saman í árgangi í Versló en kynntumst við fyrst þegar Frikki mætti í prufur fyrir skólahljómsveitina sem trommari án þess þó að vera byrjaður í skólanum og höfum við verið miklir vinir síðan þá.
Í þættinum ræddum við meðal annars, poppstjörnu lífið, Versló árin, sjónvarpsþáttinn Þriðjudagskvöld sem við stjórnuðum saman, fjölskyldulífið, meðvirkni og margt fleira og svo athuguðum við að sjálfsögðu hversu vel við þekkjumst í raun og veru.
Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 05 Jan 2023 - 29 - #29 - Siggi Þór & Oddur Júl
Leikararnir og vinirnir Sigurður Þór Óskarsson og Oddur Júlíusson mættu til mín í virkilega skemmtilegt spjall yfir rjúkandi heitum kaffibolla nú á dögunum.
Sigurður eða Siggi eins og hann er oftast kallaður er þessa dagana fastráðinn við Borgarleikhúsið en hefur hann starfað bæði þar og í Þjóðleikhúsinu. Hann hefur einnig verið duglegur að taka að sér kvikmyndaverkefni en má meðal annars sjá hann í Venjulegu fólki, Ófærð og Allra síðasta veiðiferðin svo fátt eitt sé nefnt.
Oddur hefur haldið tryggð við Þjóðleikhúsið allt frá því hann útskrifaðist en er hann í dag búinn að vera fastráðinn við leikhúsið í 10 ár ásamt því að taka að sér kvikmyndaverkefni en má meðal annars sjá Odd í Ráðherranum og Venjulegu fólki.
Oddur og Siggi hafa verið vinir allt frá því Oddur hringdi í Sigga uppúr þurru og bað hann að vera kynnir með sér á Skrekk en hafa þeir síðan þá verið ansi nánir.
Í þættinum ræddum við meðal annars um leiklistina og hvar áhugi þeirra kviknaði á henni, piparsveina árin á Laugarveginum, vináttuna, skemmtiferðasiglinguna sem þeir fóru saman í og margt fleira. Svo prófaði ég þá að sjálfsögðu í því hversu vel þeir þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 22 Dec 2022 - 28 - #28 - Nilli & Helga Bryndís
Leikarinn, skemmtikrafturinn og sýningarstjórinn Níels Thibaud Gired mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt móður sinni Helgu Bryndísi Jónsdóttur.
Níels eða Nilli eins og hann er oftast kallaður vakti óvænt athygli á MBL TV 2011 þegar hann mætti í viðtal hjá Birni Braga en í kjölfarið var honum boðið að sjá um sinn eiginn þátt á þeim miðli. Síðan þá hefur Nilli komið víðs vegar við í dagskrárgerð og er nú útskrifaður leikari og einn stjórnenda Stundarinnar okkar ásamt því að vera sýningarstjóri Íslensku Óperunar.
Helga hefur unnið í ferðabransanum til fjölda ára en eiga þau Nilli einstaklega fallegt og náið mæðgina samband og hef ég verið spenntur lengi að fá þau saman til mín í spjall.
Í þættinum ræddum við meðal annars uppvaxtarárin, Frakkland, óperur, sviðsljósið og margt fleira og svo prófaði ég þau að sjálfsögðu í því hversu vel þau þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 15 Dec 2022 - 27 - #27 - Helgi Ómars & Ingileif
Ljósmyndarinn, hlaðvarpstjarnan og áhrifavaldurinn Helgi Ómarsson mætti til mín í virkilega skemmtilegt og áhugavert spjall ásamt stórvinonu sinni dagskrárgerðakonunni, framleiðandanum og áhrifavaldinum Ingileif Friðriksdóttur.
Helgi hefur verið áberandi undanfarin ár á samfélagsmiðlunum en er hann meðal annars meðlimur einnar vinsælustu bloggsíðu landsins Trendnet.is ásamt því að vera vinsæll tískuljósmyndari og stjórnandi hlaðvarpsins Helgarspjallið.
Ingileif hefur í nógu að snúast þessa daganna en fyrir utan að vera ólétt og að standa í framkvæmdum, rekur hún framleiðslufyrirtækið Ketchup productions og framleiða þau meðal annars sjónvarpsþættina LXS, Samstarf, Húgó og Afbrigði en er hún einmitt stjórnandi þess þáttar.
Helgi og Ingileif hafa þróað með sér virkilega fallega vináttu í gegnum árin og eru þau mjög náin.
Í þættinum ræddum við meðal annars um interventionið sem Ingileif og María tóku á Helga sem hann vill meina að hafi bjargað lífi sínu, brúðkaupsveislu Ingileifar sem Helgi veislustýrði með glæsibrag, hinseginleikann, vináttuna og margt fleira.
Svo prófaði ég þau að sjálfsögðu í því hversu vel þau þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 08 Dec 2022 - 26 - #26 - Heiður Ósk & Ingunn Sigurðar
Vinkonurnar, viðskiptafélagarnir, skólastýrunnar og förðunardrottingarnar Heiður Ósk Eggertsdóttir og Ingunn Sigurðardóttir mættu til mín í virkilega skemmtilegt og áhugavert spjall.
Saman reka þær einn flottasta og virtasta förðunarskóla landsins, Reykjavík mapeup school, en eru þær einnig þekktur undir nafninu HI Beauty þar sem þær hafa undanfarin ár meðal annars haldið námskeið, gert podcöst komið að framleiðslu sjónvarpsþátta og eru í þessum töluðu orðum að þróa sína eigin snyrtivörulínu.
Vinátta þeirra spratt upp á framhaldsskólaárunum og fundu þær strax fyrir sameiginlegri ástríðu sinni á förðun og voru ekki lengi að byrja að láta sér dreyma stórt, en eftir að báðar voru búnar að klára viðskiptafræði í háskólanum ákváðu þær að hvíla sig á henni og lifa drauminn og eru þær í dag mikils metnar á sínu sviði hér á landi.
Í þættinum ræddum við meðal annars um hvar áhuginn kviknaði á förðun, rekstur skólans, sjónvarpsþættina Make up, förðunarbransann, vináttuna og margt fleira og svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 01 Dec 2022 - 25 - #25 - Hjálmar Örn & Helgi Jean
Hlaðvarpsstjörnunar, vinirnir og skemmtikraftarnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Helgi Jean Classen kíktu til mín á dögunum í stórskemmtilegu spjallt yfir morgunbollanum.
Hjálmar er í dag orðinn einn allra vinsælasti skemmtikraftur landsins en stýrir hann hverri veislunni á fætur annari á milli þess sem hann bregður sér í hlutverk hinar óforskömmuðu hvítvínskonu.
Helgi hefur einnig í nógu að snúast í skemmtibransanum en stjórna þeir félagar reglulegum pub-quiz kvöldum og er hann samhliða því að leggja loka hönd á að gera upp húsið sitt sem ber nafnið kakókastalinn milli þess sem hann skrifar bók um andlega ferðalagið sem hann hefur verið á undanfarin ár.
Hjálmar og Helgi kynntust í Brimborg þar sem þeir unnu saman um tíma en í dag halda þeir saman úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins undanfarinna ára, Hæhæ.
Í þættinum ræddum við meðal annars um hlaðvarpið og hvernig það varð til, Brimborgartímann, vináttuna, húmorinn og margt fleira. Svo prófaði ég þá að sjálfsögðu í því hversu vel þeir þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 24 Nov 2022 - 24 - #24 - GDRN & Magnús Jóhann
Tónlistarfólkið, samstarfsfólkið og vinirnir Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir og Magnús Jóhann Ragnarsson eru gestir mínir þessa vikuna í Heitt á könnunni.
Flestir þekkja Guðrúnu undir listamanna nafni hennar GDRN en hefur hún notið mikilla vinsælda undanfarin ár með sína einstaklega fallegu og einlægu söngrödd en hefur hún gefið frá sér hvern smellinn á fætur öðrum. Guðrún hefur einnig látið til sín taka í leiklistinni en fór hún meðal annars með aðalhlutverk Netflix þáttaraðarinnar Kötlu sem sló í gegn á síðasta ári.
Magnús eða Maggi eins og hann er gjarnan kallaður er einn færasti píanisti sinnar kynslóðar hér á landi og kemur varla nýtt lag í útvarpið sem Maggi kemur ekki nálægt á einhvern hátt. Þessa dagana er Maggi síðan í undirbúningi fyrir live showið í Idolinu en þar mun hann tónlistarstýra hljómsveit þáttana.
Guðrún og Maggi hafa unnið ansi lengi saman og eru þau miklir vinir. Nýlega gáfu þau saman út plötuna 10 íslensk sönglög sem er virkilega vel heppnuð plata og verða þau með útgáfutónleika 11. febrúar næstkomandi og er miðasala í fullum gangi.
Í þættinum ræddum við um músíkina, skemmtilegar uppákomur á tónleikum, hvar áhugi þeirra á tónlistinni kviknaði, lífið og tilveruna og margt fleira. Svo prófaði ég þau að sjálfsögðu í því hversu vel þau þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 17 Nov 2022 - 23 - #23 - Maggi Kjartans & Margrét Gauja
Tónlistargoðsögnin Magnús Kjartansson mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall um lífið og tilveruna ásamt dóttur sinni Margréti Gauju Magnúsdóttur.
Magnús hefur komið víða við á sínum langa ferli sem tónlistarmaður og unnið með öllum helstu tónlistarmönnum landsins ásamt því að hafa samið hverja perluna á fætur annarri, en sem dæmi um lög eftir Magnús má nefna Lítill drengur, Einskonar ást og To be greatful.
Margrét hefur fengist við ýmislegt á sínum starfsferli en var hún meðal annars bæjarfulltúi í Hafnarfirði, varaþingmaður Samfylkingarinnar, lögreglukona og kennari. Í dag starfar Margrét sem deildarstjóri ungmennahúsa í Hafnarfjarðarbæ ásamt því að vera leiðsögumaður á milli þess sem hún sér um að gifta fyrir siðmennt.
Feðginin eru virkilega náin og góðir vinir eins og heyrist ansi vel í samtali okkar.
Í þættinum ræddum við meðal annars um fjölskyldulífið og hvernig það var að alast upp hjá vinsælum tónlistarmanni, tónlistarlífið, ferðasögur, hrekkja sögur og margt fleira. Svo prófaði ég þau að sjálfssögðu í því hversu vel þau þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 10 Nov 2022 - 22 - #22 - Saga Garðars & Snjólaug Lúðvíks
Uppistandararnir, skemmtikraftarnir og vinkonurnar Saga Garðarsdóttir og Snjólaug Lúðvíksdóttir komu til mín í virkilega skemmtilegt spjall á dögunum.
Saga hefur undanfarin ár verið áberandi á sínu sviði sem skemmtikraftur og uppistandari og svo einnig sem leikkona en er hún búin að skrifa og leika í hinum ýmsu verkum bæði á sviði, í sjónvarpi og í kvikmyndum.
Snjólaug er menntaður handritshöfundur og hefur hún skrifað efni á borð við Stellu Blómkvist og kvikmyndina Saumaklúbbinn. Snjólaug hefur líkt og Saga verið vinsæll uppistandari og skemmtikraftur og halda þær einmitt saman úti uppistands sýningunni “Allt eðlilegt hér” sem sýnd er í Bæjarbíói í Hafnarfirði.
Snjólaug og Saga kynntust í kringum uppistandssenuna og voru búnar að rekast ansi oft á hver aðra á hinum ýmsu skemmtunum þegar þær ákváðu að láta til skarar skríða og sameina krafta sína í einni og sömu sýningunni.
Í þættinum ræddum við meðal annars um grínið og hvað má og hvað má ekki í þeim efnum, leiklistina, upphafið á uppistandsferlinum, handritaskrifin og margt fleira. Svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 03 Nov 2022 - 21 - #21 - Ásgeir Vísir & Davíð Örn
Viðskiptafélagarnir, vinirnir og Smittenbræðurnir Ásgeir Vísir Jóhannsson og Davíð Örn Símonarson mættu til mín í virkilega skemmtilegt spjall yfir rjúkandi heitum bolla nú á dögunum.
Vísir, eins og hann er alltaf kallaður og Davíð hafa unnið saman til fjölda ára en hafa þeir látið mikið af sér kveða í snjallforrita bransanum undanfarin ár en þar ber helst að nefna stefnumóta & samskipta appið Smitten sem hefur svo sannarlega slegið rækilega í gegn hér á landi. Þá er appið farið að teygja anga sína út fyrir landsteinanna og er til að mynda eitt mest notaða deiting appið í Danmörku.
Vísir og Davíð eru virkilega góðir vinir eins og heyra má í spjalli okkar og kunna vel inná styrkleika sem og veikleika hjá hver öðrum sem hefur nýst þeim gríðarlega vel í samstarfinu.
Í þættinum ræddum við meðal annars um vináttuna, hvar þeir kynntust og hvernig það er að vinna náið með góðum vini sínum, frumkvöðlaheiminn og hæðir og lægðir í þeim geira, Smitten og hvernig það varð til og margt fleira. Svo prófaði ég þá að sjálfsögðu í því hversu vel þeir þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/
Einn tveir og Elda - https://einntveir.is/Thu, 27 Oct 2022 - 20 - #20 - Ellen Kristjáns & Beta Ey
Ein ástsælasta söngkona landsins Ellen Kristjánsdóttir mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt dóttur sinni, söngkonunni og Eurovisionfaranum Elísabetu Eyþórsdóttur.
Ellen hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi en er hún meðal annars söngkona hljómsveitarinnar Mannakorn, var ein söngkvenna Borgardætra og svo hefur hún einnig unnið mikið með bróður sínum Kristjáni Kristjánssyni eða KK eins og hann er gjarnan kallaður.
Elísabet eða Beta, eins og hún er alltaf kölluð, er ein systrana sem kepptu fyrir Íslands hönd í Eurovision fyrr á þessu ári en hefur hún einmitt fengist við tónlist nær allt sitt líf.
Þær mæðgur eru virkilega nánar og heyrist það glöggt á spjalli okkar.
Í þættinum ræddum við um æskuna og hvernig það var að alast upp á heimili þar sem báðir foreldrar eru starfandi tónlistarmenn, Eurovision ævintýri systranna og stolt móðurinnar, tónlistina og margt fleira. Svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í hversu vel þær þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/
Einn tveir og Elda - https://einntveir.is/Thu, 20 Oct 2022 - 19 - #19 - Sylvía Briem & Eva Matta
Hlaðvarpsstjörnurnar, markþjálfararnir, fyrirlesararnir og vinkonurnar Eva Mattadóttir og Sylvía Briem Friðjónsdóttir mættu til mín í virkilega skemmtilegt spjall yfir einum rjúkandi heitum bolla.
Það er fátt sem þessar vinkonur bralla ekki saman en hafa þær undanfarin ár haldið úti hinu gríðarlega vinsæla podcasti Norminu ásamt því að halda fyrirlestra um allt land, reka saman verslunina Bohéme húsið, eru markþjálfarar og kendu báðar lengi vel við Dale Carnegie á Íslandi en var það einmitt þar sem þær kynntust.
Það er greinilegt að þær smullu vel saman og hafa þær átt virkilega farsælt samstarf í gegnum tíðina og eins og heyra má í spjalli okkar eru þær virkilega góðar vinkonur.
Við fórum um víðann völl í þættinum og ræddum meðal annars hæðir og lægðir í lífinu, hvernig hugmyndin af Norminu kviknaði og vatt svona hressilega uppá sig, fyrirlestrana, búðina og margt fleira. Svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/
Einn tveir og Elda - https://einntveir.is/Thu, 13 Oct 2022 - 18 - #18 - Halldóra Geirharðs & Steiney Skúla
Leikkonurnar, skemmtikraftarnir og mæðgurnar Halldóra Geirharðsdóttir og Steiney Skúladóttir kíktu til í einn rjúkandi bolla nú á dögunum og áttum við stórskemmtilegt spjall.
Halldóra er ein okkar ástsælasta leikkona en hún hefur í gegnum árin komið fram í hverri leiksýningunni á fætur annarri og það sama má segja um kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Ásamt lekhúsunum sinnir hún einnig starfi fagstjóra við Leikarabraut Listaháskóla Íslands.
Steiney fór ekki ósvipaða leið í lífinu og mamma sín en hefur hún stýrt sjónvarpsþáttum, tekið þátt í söngvakeppni sjónvarpssins ásamt hljómsveit sinni Reykjarvíkurdætrum og er hún nú að leika í Þjóðleikhúskjallaranum með spunahópnum Improv ísland.
Halldóra eignaðist Steineyju ung og hafa þær mæðgur alltaf verið nánar eins og heyrist glöggt á spjalli okkar.
Í þættinum ræddum við meðal annars leiklistina, æskuna og sjónvarpsbransann ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum frá þeim. Svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/
Einn tveir og Elda - https://einntveir.is/Thu, 06 Oct 2022 - 17 - #17 - Áslaug Arna & Magnús Sigurbjörns
Ráðherrann og alþingiskonan Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir kom til mín í rjúkandi heitan kaffibolla ásamt bróður sínum, frumkvöðlinum Magnúsi Sigurbjörnssyni.
Áslaug byrjaði ung í pólitík en var hún fyrst kosin á þing aðeins 25 ára gömul en hafði þá verið aktív í ungliðahreyfingunni innan Sjálfstæðisflokksins. Hún hefur á sínum ferli sem þingmaður gegnt hvorki meira né minna en tveimur ráðherraembættum og er hún í dag Háskóla, iðnaðar og nýsköpunarráðherra.
Magnús eða Maggi eins og hann er alltaf kallaður hefur einnig unnið mikið í kringum pólitík en var hann um tíma framkvæmdarstjóri borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins. Í dag rekur hann fyrtækið Papaya sem býður upp á sérhæfðar lausnir á samfélagsmiðlum ásamt því að bæta ásýnd fyrirtækja þar.
Áslaug og Maggi eru virkilega náin systkini en búa þau til að mynda í dag í sama íbúðakjarna svo það er stutt fyrir Magga að sækja pössun til litlu systur fyrir nýfæddan son sinn þegar þannig ber undir. Þau hafa saman farið í gegnum allskyns hæðir og lægðir í lífinu en sögðu þau mér aðeins frá því í þættinum. Í þættinum ræddum við um allt milli himins og jarðar þar á meðal unglingsárin, pólitíkina og hvernig maður leiðist svona ungur út í hana, ferðasögur og sögðu þau mér frá mörgum skemmtilegum sögum úr þeirra lífi. Svo prófaði ég þau að sjálfsögðu í því hversu vel þau þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 29 Sep 2022 - 16 - #16 - Margrét Rán og Bergur
Tónlistarfólkið og vinirnir Margrét Rán Magnúsdóttir og Bergur Einar Dagbjartsson mættu til mín í ansi skemmtilegt spjall nú á dögunum.
Margrét Rán er söngkona hljómsveitarinnar Vök sem fyrst vakti athygli árið 2013 eftir að hafa sigrað Músíktilraunir en síðan þá hafa þau vakið mikla athygli bæði hérlendis sem og erlendis. Ásamt Vök hefur Margrét einnig verið að koma fram með hljómsveitinni GusGus að undanförnu við góðar undirtektir.
Bergur er trommari hljómsveitarinnar en hann kom ekki inn í bandið fyrr en fjórum árum eftir sigurinn í Músíktilraunum, þá nýfluttur til Reykjavíkur frá Grundarfirði. Bergur hefur samhliða Vök spilað á tónleikum hjá mörgu af helsta tónlistarfólki landsins. Þess má til gamans geta að á miðnætti á morgun, 23. september, kemur út ný plata með hljómsveitinni Vök á Spotify. Ég hvet að sjálfsögðu alla til þess að tékka á henni!
Þrátt fyrir að fyrstu kynni þeirra hafi verið stirð, eins og þau segja frá í þættinum, þá hafa Margrét og Bergur verið miklir vinir um langt skeið og ferðast víða um heim. Þau hafa því frá mörgu skemmtilegu að segja.
Í þættinum ræddum við meðal annars um tónleikaferðalögin, Naked sauna æðið þeirra, vináttuna og margt fleira. Svo prófaði ég þau að sjálfsögðu í því hversu vel þau þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 22 Sep 2022 - 15 - #15 - Sigga & Elín Ey
Systurnar, tónlistarkonurnar og Eurovisionfararnir, Sigríður Eyþórsdóttir og Elín Eyþórsdóttir, mættu til mín í virkilega gott spjall nú á dögunum.
Sigríður eða Sigga, eins og hún er alltaf kölluð, er elsta systirin af þremur og hefur komið víða við á sínum tónlistarferli.
Hún var aftur á móti sest á skólabekk og farin að læra hjúkrun þegar Eurovision bankaði uppá. Hún ákvað að kýla á það ævintýri og lagði námið á hilluna í bili.
Elín er yngsta systirin og hefur líkt og Sigga látið mikið að sér kveða í tónlistinni, bæði í systrabandinu SÍSÍ EY sem og á sólóferli sínum.
Systurnar eiga ekki langt að sækja tónlistarhæfileikana en nánasta fjölskylda þeirra er þéttskipuð ástsælu tónlistarfólki.
Í þættinum töluðum við um Eurovision ævintýrið, lífið eftir keppnina, æskuárin, og hve nánar systurnar eru þrátt fyrir aldursmuninn.
Svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 15 Sep 2022 - 14 - #14 - Eva Ruza & Laufey
Skemmtikrafturinn og fjölmiðlakonan Eva Ruza Miljevic mætti til mín ásamt móður sinni Laufeyju Miljevic í virkilega skemmtilegt spjall.
Eva er í dag einn allra vinsælasti skemmtikraftur landsins en allt hófst þetta á árshátíð Bootcamp árið 2015 þar sem Eva var fengin til að veislustýra og spurðist hratt út hversu skemmtileg hún væri. Ekki leið svo á löngu þar til hún stóð á sviði fyrir framan 12.000 manns í fyrsta color run hlaupinu sem haldið var hérlendis. Í dag er Eva nýfarinn af stað með sjónvarpsþáttinn Ertu viss? ásamt systur sinni Tinnu, sem sýndur er á Sjónvarpi Símans og er einn eftirsóttasti skemmtikraftur landsins.
Laufey er ekki síður skemmtileg, þó svo hún hafi ekki valið sér skemmti iðnaðinn sem starfsgrein en var hún eigandi blómabúðarinnar Ísblóm í heil 24 ár og sáu þær mæðgur um reksturinn saman, nú hafa þær þó sagt skilið við blómin og nýir og spennandi tímar framundan.
Í þættinum fórum við um víðan völl og ræddum við meðal annars árin í blómunum, æskuár Evu, skemmtanabransann og hvernig það byrjaði allt saman. Svo prófaði ég þær að sjálfsögðu í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 08 Sep 2022 - 13 - #13 - Pétur & Hörður
Bandmennirnir, Tjörnesbræðurnir og vinirnir Pétur Finnbogason og Hörður Bjarkason settust hjá mér í ansi hressandi og skemmtilegt spjall.
Pétur hefur lengi verið í músíkinni en muna eflaust einhverjir eftir frumraun hans á því sviði með hljómsveitinni Bláum Ópal sem tóku eftirminnilega þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins árið 2012 með laginu “Stattu upp fyrir sjálfum þér”.
Hörður hóf sinn tónlistarferil á saxófón en var hann í hinum ýmsu hljómsveitum á sínum yngri árum en vatt sér svo í viðskiptafræðina og starfar samhliða mússíkinni sem verkefnastjóri fræðslu á Sýn.
Pétur & Hörður hittust fyrst á Taílandi þar sem þeir voru báðir staddir í heimsreisu, en voru þeir ekki lengi að draga upp gítarinn og ukulelle-inn og rifu upp stemminguna eins og þeim er einun lagið.
Síðan þá hafa þeir komið víða við sem skemmtikraftar og eru þeir að spila nánast allar helgar ýmist með hljómsveit sinni Bandmönnum eða sem dúóið Tjörnes og get ég fullyrt að hvert sem þeir koma er alltaf mikil stemning og eins og Pétur orðaði það sjálfur gleði.
Í þættinum ræddum við um upphafið á Tjörnes og stofnun Bandmanna, vináttuna og lífið ásamt því ég prófaði þá að sjálfsögðu í því hversu vel þeir þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Smitten - https://smittendating.com/Thu, 01 Sep 2022 - 12 - #12 - Fannar & Benni
Hraðfréttabræðurnir, fyrrum sambýlismennirnir og bestu vinirnir Fannar Sveinsson og Benedikt Valson eru gestir vikunar í Heitt á könnunni.
Báðir hafa þeir verið áberandi fyrir störf sín í sjónvarpi en sá þeim fyrst bregða fyrir í hraðfréttum á Mbl tv árið 2012 en hafa þeir síðan þá tekið þátt í hinum ýmsu sjónvarpsverkefnum og eru þeir einmitt núna að vinna á fullu við fjórðu seríu Famkomu þar sem Benedikt sér um framleiðslupartinn á meðan Fannar tekur viðtölin.
Þrátt fyrir að þeir eru oftar en ekki fyrir framan myndavélina hafa þeir báðir verið að færa sig meira bakvið hana en er Fannar meðal annars einn handritshöfunda sjónvarpsþáttanna Venjulegs Fólks sem hafa slegið rækilega í gegn á síðustu árum og sér hann einnig um leikstjórn þáttana. Benni hefur látið til sín taka í framleiðslunni en eins og fyrr segir sér hann um þá hlið á þáttunum þeirra Framkomu.
Ekki nóg með að þeir séu samstarfsmenn til margra ára, hafa þeir verið bestu vinir frá því í framhaldsskóla og sambýlingar í tvö ár en fórum við einmitt vel yfir það tímabil í þættinum, við ræddum einnig um það hvernig það er að vinna náið með góðum vini sínum ásamt því að heyra allt um hvernig hraðfréttir urðu að veruleika og svo prufaði ég þá að sjálfsögðu í því hversu vel þeir þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/Thu, 25 Aug 2022 - 11 - #11 - Laddi & Þórhallur
Þjóðargersemin, leikarinn, grínistinn og listmálarinn Þórhallur Siguðrsson eða Laddi eins og hann er alltaf kallaður mætti til mín ásamt syni sínum, grínistanum Þórhalli Þórhallssyni.
Það kæmi mér á óvart ef til væri sá íslendingur sem ekki þekkir Ladda en hefur hann verið einn allra vinsælasti skemmtikraftur landsins frá því þeir bræður byrjuðu að koma fram sem Halli og Laddi á áttunda áratugnum og hefur hann verið fastagestur á skjám og útvarpi landsmanna síðan þá. Í dag er Laddi orðinn 75 ára og ennþá í fullu fjöri og hélt hann sýninguna “Laddi 75” fyrir fullu húsi í Hörpu nú á dögunum.
Þórhallur junior hefur einnig verið áberandi innan grínsenunar en vann hann til að mynda fyndnasti maður íslands árið 2007 og hefur síðan þá komið víða við með uppistandssýningar sínar þar á meðal í Wuhan og veltum við fyrir okkur í þættinum hvort hann hafi verið “patient zero” hér á landi.
Í þættinum ræddum við allt milli himins og jarðar og fórum meðal annars yfir ferilinn, fjölskyldulífið og hvernig það var að alast upp sem sonur Ladda, grínið og svo prófaði ég þá að sjálfssögðu hversu vel þeir feðgar þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/Thu, 18 Aug 2022 - 10 - #10 - Björn Leifsson & Birgitta Líf
Viðmælendur vikunnar í Heitt á könnunni eru ekki af verri endanum en eru það World class feðginin Björn Leifsson og Birgitta Líf Björnsdóttir.
Björn, eða Bjössi eins og hann er yfirleitt kallaður, er athafnarmaður mikill en hann er eigandi og stofnandi íslenska líkamsræktarrisans World Class en eru stöðvarnar orðnar átjáns talsins hvorki meira né minna og hægt að nýta þjónustu þeirra nánast hvar sem er á landinu.
Það er sjaldan róleg stund hjá Birgittu Líf en hefur hún verið áberandi undanfarin ár á samfélagsmiðlum en sér hún einmitt um markaðsmál fjölskyldufyrirtækisins þar sem hún er markaðsstjóri ásamt því að reka staðinn Bankastræti Club og vera umboðsmaður tónlistarmannsins Hugo.
Bjössi, Birgitta og fjölskylda þeirra eiga áhugaverða sögu en hefur gengið á ýmsu þegar það kemur að því að byggja stórveldið sem World Class er orðið í dag.
Í þættinum fórum við yfir upphafið á World Class ævintýrinu, samfélagsmiðla, uppvaxtarárin & fjölskyldulífið og prufaði ég þau að sjálfsögðu í því hversu vel þau þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/Thu, 11 Aug 2022 - 9 - #09 - Katrín Edda & María Anna
Katrín Edda Þorsteinsdóttir hefur verið ein vinsælasta samfélagsmiðlastjarna landsins um árabil þar sem hún hefur leyft fylgjendum sínum að fylgjast með litríku lífi sínu í Þýskalandi. Katrín Edda er vélaverkfræðingur að mennt og starfar hjá Bosch, en situr ekki auðum höndum þess á milli þar sem hún er mikil íþróttakona, kattarunnandi og gaf nýverið út dagbók sem hefur slegið rækilega í gegn.
Móðir Katrínar Eddu, María Anna Þorsteinsdóttir, dúkkar einnig oft upp á miðlunum hjá Katrínu og hefur það færst mikið í vöxt undanfarin ár þar sem fylgjendur Katrínar eru hreinlega farnir að biðja um að fá að sjá meira af þeim mæðgum þar sem þær eiga í virkilega skemmtilegt mæðgnasamband og er yfirleitt stutt í léttleikann hjá þeim á skjánum. Það lá því beinast við að fá þær til mín í spjall sem var virkilega skemmtilegt og ætti enginn að láta framhjá sér fara. Í þættinum ræddum við meðal annars uppvaxtarárin, æskuminningar og mæðgnasambandið, fitness-tímabilið, óheilbrigð sambönd, lífið í Þýskalandi og barneignir, og svo tékkaði ég að sjálfsögðu á því hversu vel þær mægður þekkjast í raun og veru!Þátturinn er í boði:
Brynjuís - https://brynjuis.is/
Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/Thu, 04 Aug 2022 - 8 - #08 - Óskar Jónasson & Matthildur Óskarsdóttir
Feðginin Óskar Jónasson og Matthildur Óskarsdóttir eru gestir vikunnar í Heitt á könnunni.
Óskar hefur gert garðinn frægan sem kvikmyndaleikstjóri og handritshöfundur í gegnum tíðina en meðal þeirra verka sem hann hefur unnið að eru kvikmyndir á borð við Sódóma Reykjavík og Reykjavík Rotterdam sem seinna varð að Hollywood myndinni Contraband. Þá hefur hann einnig leikstýrt þáttaröðum sem sleið hafa í gegn á borð við Fóstbræður, Pressu og Svínasúpunni. Óskar var um tíma oft þekktur undir nafninu Skari Skrípó sem margir muna eflaust eftir fyrir skemmtileg töfrabrögð og mögulega smá neðanbeltishúmor sem við ræddum að sjálfsögðu um í þættinum.
Matthildur er hvorki meira né minna en tvöfaldur heimsmeistari í bekkpressu og margfaldur íslandsmeistari og hefur sankað að sér titlum síðan hún byrjaði að stunda kraftlyftingar á unglingsárum.
Það er einstaklega náið samband milli þeirra feðgina sem skín svo sannarlega í gegn í þættinum en þar ræddum við meðal annars kvikmyndagerðina, kraflyftingarnar, sveitalífið og útivistina og svo prófaði ég þau að sjálfsögðu í hversu vel þau þekkja hvort annað.
Þátturinn er í boði
Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/Thu, 28 Jul 2022 - 7 - #07 - Björn Bragi & Allan
Æskuvinirnir, dagskrárgerðamennirnir og fyrrum samstarfsmennirnir Björn Bragi Arnarsson og Allan Sigurðsson eru gestir vikunnar í Heitt á könnunni.
Björn Bragi ætti að vera flestum kunnugur en hefur hann meðal annars gert garðinn frægan sem uppistandari í Mið Ísland, þáttastjórnandi í hinum ýmsu spurningarþáttum og skemmtiþáttum í sjónvarpi, séð um útgáfu fjölda vinsælla bóka og spila og er ásamt því þessa dagana að opna glænýja mathöll.
Allan er kvikmyndagerðamaður og var hann einmitt að vinna á dögunum til tvenna verðlauna fyrir störf sín á þeim vetvangi sem voru annarsvegar verðlaun á Cannes lion fyrir auglýsingaherferð sem hann sá um og svo Áhorfendaverðlaunin Einarinn á skjaldborg fyrir heimildarmyndina Velkominn Árni
Björn Bragi tók á móti Allani í 8. bekk í grunnskóla þar sem Allan var busi, en tók Bjössi hann undir sinn verndarvæng og slapp Allan vel.
Þeir fundu það fljótt að þeir áttu ansi margt sameiginlegt og hafa þeir verið nánir vinir síðan þá.
Í þættinum fengum við að heyra margar skemmtilegar sögur frá þeim vinunum, ræddum feril þeirra beggja, unglingsárin í Árbænum og margt fleira. Svo kannaði ég auðvitað hversu vel þeir þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði
Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/Thu, 21 Jul 2022 - 6 - #06 - Kristín Péturs og Starkaður Péturs
Systkynin, leikararnir og sambýlingarnir Kristín Pétursdóttir og Starkaður Pétursson eru gestir vikunnar í Heitt á könnunni.
Kristín er leikkona og hefur einnig verið áberandi á samfélagsmiðlum unanfarin ár. Þess á milli geta ferðalangar þó átt von á því að hún bjóði þeim kaffi um borð í flugvélum Icelandair þar sem hún starfar sem flugfreyja.
Starkaður er nýútskrifaður af leiklistarbraut listaháskóla Íslands og eru afar spennandi tímar framundan hjá honum á því sviði.
Kristín og Starki eru einstaklega náin systkini þó svo Kristín hafi ekki verið par sátt þegar hún frétti fyrst af því að bróðir væri væntanlegur í heiminn, en í dag búa þau í sama húsi, þó á sitthvorri hæðinni, en er þetta einmitt sama hús og þó ólust upp í.
Í þættinum fórum við um víðan völl og ræddum meðal annars leiklistina, samfélagsmiðlana og upphafið á þeirri vegferð, samheldni fjölskyldurnar og margt fleira og svo prófaði ég þau auðvitað í hversu vel þau þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði
Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/Thu, 14 Jul 2022 - 5 - #05 - Pálmi Ragnar & Ásgeir Orri
Í þætti dagsins fékk ég til mín bræðurna, tónlistar- og samstarsmennina Pálma Ragnar Ásgeirsson og Ásgeir Orra Ásgeirsson í virkilega hresst og skemmtilegt spjall.
Eins og heyra má í þættinum eru þeir bræður virkilega nánir og samstilltir enda aðeins eitt ár á milli þeirra og hafa þeir fetað afar svipaðar leiðir í lífinu. Þeir voru til að mynda báðir harðir rokkhausar, fóru í Verzló og byrjuðu meira að segja báðir í lögfræði á sínum tíma.
Það vantaði þó að þeirra sögn alla útrás fyrir sköpunargleðina í lögfræðinni og senru þeir baki við henni og stofnuðu fyrirtækið Stop, wait, go og má með sanni segja að þeir hafi markað djúp spor í tónlistarlífi Íslendinga.
Í þættinum fórum við yfir mússíkævintýrið og hvernig það byrjaði, æskuárin, búsetu þeirra í Los Angeles og svo athugaði ég að sjálfssögðu hversu vel þeir þekkjast í raun og veru.
Þátturinn er í boði
BakarameistarinnThu, 07 Jul 2022 - 4 - #04 - Árni Beinteinn & Gústi B
Bræðurnir Árni Beinteinn Árnason og Ágúst Beinteinn Árnason betur þekktur sem Gústi B mættu til mín í virkilega gott spjall nú á dögunum.
Gústi B hefur verið gríðarlega áberandi á unanförnum misserum á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem hann sló fyrst í gegn þegar hann sýndi frá ansi óhefðbundu gæludýri sem kom honum í kast við lögin. Ásamt Tiktok ferlinum hefur hann gefið út nokkur lög og er nú farinn að starfa sem útvarpsmaður á FM957.
Árni Beinteinn hefur gert garðinn frægann sem leikari en hefur hann tekið þátt í uppfærslum á leikritum Leikfélags Akureyrar undanfarin ár til dæmis sem hinn eini sanni Benedikt Búálfur auk þess sem hann er annar þáttastjórnenda Húllumhæ á RÚV. Þeir bræður eru mjög nánir þrátt fyrir sjö ára aldursmun og sláandi líkir, en fyrir utan áhuga þeirra beggja á framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefni, leiklist, tónlist og fleiru deila þeir sama afmælisdegi og ekki nóg með það þá deila þeir honum með mömmu sinni líka.
Við fórum yfir feril þeirra beggja, fjölskyldulífið, bræðrakærleikann og að sjálfsögðu tékkaði ég á hversu vel þeir þekkjast og voru niðurstöður vægast sagt sláandi.Þátturinn er í boði
Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/Thu, 30 Jun 2022 - 3 - #03 - Eva Laufey & Edda Hermanns
Fjölmiðlakonurnar, rithöfundarnir, markaðskonurnar og systurnar Eva Laufey Kjaran og Edda Hermannsdætur mættu til mín í ansi létt og skemmtilegt spjall.
Eva hefur slegið í gegn undanfarin 10 á skjám landsmanna en er hún þekktust fyrir glæsilegar kökur og geggjaðan mat en er þessa daganna að fóta sig í nýju starfi hjá Hagkaupum.
Edda er Markaðsdrottning Íslandsbanka og kom inn til mín á hlaupum þar sem hún var að koma af fundi þar sem hún var kjörin stjórnarformaður Unicef.
Þrátt fyrir að hafa ekki kynnst fyrr en á unglingsárum eru þær merkilega líkar og talar Eva um að hún bíði alltaf spennt eftir því að sjá hvað Edda tekur sér fyrir hendur því það veitir henni ákveða innsýn í hvað hún mun taka sér næst fyrir hendur.
Þær eru gamlar sálir og hafa mikinn húmor fyrir sjálfum sér sem ætti ekki að fara framhjá neinum sem hlustar.
Í þættinum ræddum við meðal annars feril þeirra beggja, fjölskyldulífið, skemmtilegar minningar þeirra saman og að sjálfsögðu prófaði ég þær í hversu vel þær þekkjast í raun og veru.Þátturinn er í boði
Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/Thu, 23 Jun 2022 - 2 - #02 - Aron Mola & Arnar Þór
Í þessum geggjaða þætti fékk ég til mín vinina Aron Má Ólafsson, gjarnan þekktur sem Aron Mola, og Arnar Þór Ólafsson í virkilega skemmtilegt spjall.
Aron og Arnar hafa verið vinir frá því í Versló en kynntust þeir í gegnum félagslífið þar en voru þeir til að mynda saman í sketsaþáttunum vinsælu, 12:00, en það var einmitt þar sem Aron fór að færa sig fyrir framan myndavélina frekar en fyrir aftan hana og áttaði sig fljótt á því að þar væri hann heldur betur á heimavelli.
Eftir menntaskóla fóru strákarnir algjörlega í sitthvora áttin; Aron lærði leiklist í LHÍ á meðan Arnar fetaði menntaveginn og lærði fjármálaverkfræði en héldu þeir þó alltaf góðu sambandi og talaði Aron um að það væri alltaf gott að bera hugmyndir sínar undir Arnar þar sem hann væri óhræddur að segja skoðanir sínar en eru þeir afar ólíkir og deila ólíkuðum skoðunum um flest málefni. Í dag heldur Arnar úti fjármálahlaðvarpinu “Pyngjan” sem slegið hefur í gegn að undanförnum ásamt því að þeir halda saman úti podcast þættinum “Ólafssynir í Undralandi” og mæli ég eindregið með því að þið kíkið á þættina þeirra.
Í þættinum, sem var svo sannarlega á hressu nótunum, ræddum við um allt milli himins og jarðar þar á meðal hversu ólíkir þeir eru, menntaskólaárin, leiklistina, hlaðvörpin og ný og spennandi verkefni sem framundan eru hjá þeim ásamt því að heyra skemmtilegar sögur úr þeirra vináttu, þar á meðal þegar stressið yfirtók þá þegar þeir tóku saman þátt í Vælinu hér um árið.Þátturinn er í boði
Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/Thu, 16 Jun 2022 - 1 - #01 - Sunneva Einars & Jóhanna Helga
Verið þið hjartanlega velkomin í nýja podcastið mitt - Heitt á könnunni með Ása.
Í þessum þáttum ætla ég að fá ég til mín fullt af skemmtilegu fólki í rjúkandi kaffi og meððí. Viðmælendur tengjast allir böndum á einn eða annan hátt hvort sem það eru vinir, vinkonur, fjölskyldutengsl eða jafnvel samstarfsfélagar.
Ég er fáránlega spenntur fyrir komandi tímum og efast ekki um að við eigum eftir að heyra allskonar nýjar hliðar á áhugaverðu fólki.
Í þessum fyrsta þætti fékk ég til mín vinkonurnar, áhrifavaldana og samstarfskonurnar Sunnevu Einarsdóttur & Jóhönnu Helgu Jensdóttur í virkilega hresst og skemmtilegt spjall.
Þær hafa verið límdar saman nánast uppá dag frá því Jóhanna gekk upp að Sunnveu og kynnti sig á busadeginum í MS en urðu þær strax bestu vinkonur.
Síðan þá hefur margt vatn runnið til sjávar og eru þær í dag báðar gríðarlega vinsælar á samfélagsmiðlum, hafa gefið saman út sjónvarpsþátt ásamt því að vera í námi og búa þær í dag meira að segja í sömu götu.
Við fórum yfir feril þeirra beggja, upphafið á þeirra vináttu, ferðasögur og prófaði ég þær í því hversu vel þær þekkjast í raun og veru.Njótið vel!
Wed, 08 Jun 2022
Podcasts similaires à Heitt á könnunni með Ása
- El Partidazo de COPE COPE
- Herrera en COPE COPE
- The Dan Bongino Show Cumulus Podcast Network | Dan Bongino
- David Guetta David Guetta
- Es la Mañana de Federico esRadio
- La Noche de Dieter esRadio
- Hondelatte Raconte - Christophe Hondelatte Europe 1
- MÓWI SIĘ Joanna Kołaczkowska i Szymon Majewski
- Express Biedrzyckiej - seria gorących, politycznych wywiadów Kamila Biedrzycka
- WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki , Piotr Kędzierski
- 財經一路發 News98
- Más de uno OndaCero
- La Zanzara Radio 24
- Poranna rozmowa w RMF FM RMF FM
- Frjálsar hendur RÚV
- Í ljósi sögunnar RÚV
- El Larguero SER Podcast
- Nadie Sabe Nada SER Podcast
- SER Historia SER Podcast
- Todo Concostrina SER Podcast
- Англійський Експрес Англійський Експрес
- 辛坊治郎 ズーム そこまで言うか! ニッポン放送
- 飯田浩司のOK! Cozy up! Podcast ニッポン放送
- 武田鉄矢・今朝の三枚おろし 文化放送PodcastQR