Filtrer par genre

Rokkland

Rokkland

RÚV

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

3596 - Iceland Airwaves 1999-2026
0:00 / 0:00
1x
  • 3596 - Iceland Airwaves 1999-2026

    Rokkland vikunnar er einskonar upphitun fyrir Iceland Airwaves 2026 – og upprifjun. Rokkland hefur verið á Airwaves á hverju ári frá árinu 2000 og við rifjum upp eitt og annað. Meðal þeirra sem koma við sögu eru Árni Matthíasson, Grímur Atlason, Sinéad O'Connor, Of Monsters and Men, Kevin Cole, John Lydon, Dhani Harrison, Thorunn Antonia Magnusdottir, Hilmar Örn Agnarsson, Magnus Thor, Dóri Braga, Magnus Stephensen ofl.

    Sun, 01 Nov 2026 - 1h 49min
  • 3595 - Queens of the Stone Age
    Sun, 28 Jun 2026 - 1h 51min
  • 3593 - Drottningin af Færeyjum - þungarokk og Metallica

    Rokkland vikunnar er tvískipt. Í Fyrri hlutanum er Eivør í aðalhlutverki, en hún sem var að senda frá sér plötunaTungl sem er plata númer 11 hélt útgafutónleika í Eldborg á föstudagskvöldið fyrir fullu húsi. Á föstudagsamorguninn heimsótti hún Rokkland í std. 12 í útvarpshúsið – sagði frá nýju plötunni sem hún segir að sé einskonar afturhvarf til Færeyja, og svo spilaði hún 2 lög af plötunni á kassagítar og eitt eldra. Rokkland var á tónleikunum og við tölum um þá líka, en Eivør er á samningi hjá plötuútgáfunni Nuclear Blast sem einbeitir sér að þungarokki og Eivør sem er nýlega flutt heim til Færeyja eftir að hafa búð lengi í Kaupmannahöfn kemur reglulega fram á metal-hátíðum víða um heim. Í seinni hlutanum er einmitt smá þungarokk þar sem við sögu koma Sólstafir – Led Zeppelin – Sólför Dimma – Deep Purple – Rainbow og Metallica, en daninn Flemming Rassmusen sem tók upp þrjár af bestu (að margra mati) plötum Metallica á níunda áratugnum er að koma til landsins og halda fyrirlestur um samstarfið við Metallica 5. Nóvember nk. Allt tengist.

    Sun, 25 Oct 2026 - 1h 54min
  • 3591 - PS & CO - Helgar - Þorleifur Gaukur ofl.

    PS & CO er í aðalhlutverki í Rokklandi í dag. Þar er aðal maðurinn Pjetur Stefánsson myndlistarmaður og rokkskáld. Hann kemur í heimsókn í seinni hluta þáttarins og við spjöllum um nýju plötuna, Í Brennandi húsi, lífið og listina. Helgi Pjetur heitir maður sem var að senda frá sér sitt fyrsta lag og hann kallar sig HELGAR. Hann hefur komið nálægt músík á ýmsa vegu í langan tíma, en ekki sem flytjandi og höfundur fyrr en núna. Helgi Pjetur tók þátt í stofnun tonlist.is uppúr aldamótum og síðar stofnaði hann plötuútgáfuna Cod Music sem gaf mörgum ungum íslenskum listamönnum byr undir báða vængi. Eftir það fór hann í tæknigeirann og stofnaði ýmsi sprotafyrirtæki, en nú er það músíkin – Helgar. Þorleifur Gaukur Davíðsson er fimmti maðurinn í Kaleo – hefur verið að túra með þeim og taka upp í nokkur ár. Hann er staddur í kaliforníu og við heyrum aðeins í honum og kynumst tónlistarvinum hans sem eru að koma með honum til landsins í byrjum júní og saman ætla þau að spila í Fríkirkjunni, Midgard Basecamp á Hvolsvelli og á Vagninum á Flateyri.

    Sun, 25 May 2025 - 1h 51min
  • 3589 - Færeyjar - Hafnarfjörður - Akranes

    Í Rokklandi vikunnar verður komið við í Færeyjum - Hafnarfirði og Akranesi. Við byrjum á að spjalla við færeysku tónlistarkonuna Gudrid Hansdottur frá Færeyjum. Hún bjó um tíma á Íslandi, hefur oft spilað á Iceland Airwaves, var að senda frá sér nýja plötu sem heitir Sýrublað (Hundasúra) og hún ætlar að spila á 9 tónleikum hringinn í kringum Íslandi dagana 20. - 29. október. Við förum Þaðan til Hafnarfjarðar á gítarveislu Bjössa Thor sem fór fram í Ægi 220 helgina 2. og 3. október sl. Með Bjössa spiluðu t.d. Óskar Logi, Brynhildur Oddsdóttir, Krummi Björgvins ofl auk Guðmundur Péturssonar sem skreyttur var með GULLNÖGLINNI sem veitt er árlega gítarleikara sem hefur sett mark sitt á íslenskt tónlistarlíf. Þriðji viðkomustaðurinn er svo Akranes, en Jónas Björgvinsson er fæddur og alinn upp á Akranesi en býr á Langholstveginum í Reykjavík þar sem hann rekur hljodver.is í bílskúrnum sínum. Jónas fór til Danmerkur og tók upp plötu þegar hann var rétt rúmlega tvítugur fyrir nokkuð mörgum árum, en svo gerði hann plötu númer 2 árið 2022. Nú er þriðja platan komin, platan Lífsins bók og það eru útgáfutónleikar í Tónabíó 22. október.

    Sun, 18 Oct 2026 - 1h 51min
Afficher plus d'épisodes