Filtrer par genre

Sannar Íslenskar Draugasögur

Sannar Íslenskar Draugasögur

Ghost Network®

Sannar Íslenskar Draugasögur er podcast þar sem við hjónin förum yfir aðsendar draugasögur sem hafa borist okkur frá Íslendingum. Þáttastjórnendur eru Katrín Bjarkadóttir og Stefán John Stefánsson, sem einnig halda úti hlaðvörpunum Draugasögur Podcast og Mystík Podcast. Sannar Íslenskar Draugasögur eru núna áskriftarþættir en hér á opnum veitum finnið þið 21 opinn þátt ásamt áskriftarprufum. Hafir þú áhuga á að hlusta á fleiri sögur skaltu endilega skoða áskriftina okkar á patreon.com/sannarislenskar - en þar getur þú prófað áskrift FRÍTT í 7 daga! Við bjóðum einnig uppá áskriftarleið inná Spotify. Skrifaðu Sannar Íslenskar Draugsögur Áskrift í leitargluggann og skráðu þig þar.... Ef að þú lumar á draugasögu sem þú vilt að við tökum fyrir í komandi þáttu máttu endilega senda okkur hana á sannar@draugasogur.com Sannar Íslenskar Draugsögur er framleitt af Ghost Network.

81 - 108. Þáttur - Sannar Íslenskar Draugasögur
0:00 / 0:00
1x
  • 81 - 108. Þáttur - Sannar Íslenskar Draugasögur

    Í dag ætlum við að opna dyrnar inn í Sannar íslenskar draugasögur og gefa ykkur heilan áskriftarþátt. 👻❤️

    Þetta er þáttur númer 108, sem hefur hingað til aðeins verið aðgengilegur áskrifendum okkar.

    Inni í áskriftinni bíður síðan heilt safn af Sönnum íslenskum draugasögum og nýr þáttur kemur annan hvern sunnudag, allt árið um kring. 🎧

    Ef þú hefur gaman af þættinum og vilt heyra meira getur þú gengið til liðs við okkur og fengið aðgang að öllum áskriftarþáttunum okkar – bæði þeim sem eru nú þegar inni og öllum þeim sem eiga eftir að koma.

    Og auðvitað eru það ykkar sögur sem halda Sönnum íslenskum draugasögum gangandi. ❤️

    Hefur þú upplifað eitthvað sem þú getur ekki útskýrt? Eða á fjölskyldan þín sögu sem hefur gengið manna á milli í mörg ár?

    📩 Sendu okkur þína sögu á sannar@draugasogur.com og við tökum hana fyrir í komandi þáttum!

    En í bili…

    Velkomin inn í áskriftina.👀👻

    Fri, 14 Aug 2026 - 44min
  • 80 - 80. Þáttur - Sannar Íslenskar Draugasögur (áskriftarprufa)

    👉🏼 KOMDU Í ÁSKRIFT AF SÖNNUM ÍSLENSKUM DRAUGASÖGUM - HÉR

    Komiði sæl elsku bestu Draugasögu Fjölskylda!

    Þetta er 80. þátturinn af Sönnum Íslenskum Draugasögum!

    Það er ótrúlegt að hugsa til þess hversu margir þættir hafa orðið til við sögurnar YKKAR!

    TAKK fyrir að halda þessu hlaðvarpi á lífi!

    Í þætti dagsins eru 4 sögur frá 4 mismunandi einstaklingum

    Eins og alltaf að þá viljum við minna ykkur á að allir geta sent okkur frásagnir á sannar@draugasogur.com 📩


    SAGA 1 - HRINGURINN

    ..Þá verður mér litið á skrifborðið og akkurat á sama tíma sé ég hringinn minn detta á gólfið. Þetta var skrýtið, en rökhugurinn hvíslaði að mér að ég hafi eflaust ekki sett hann nægilega langt upp á borðið svo ég tek hringinn upp og....


    SAGA 2 - MAÐURINN Á BARSTÓLNUM

    "...við hrukkum bæði upp við þvìlìk læti ì baststòlnum. Sem var við fòtagafl rúmsins. Èg sagði við kærastann minn " èg þori ekki að lìta við" svo hann lìtur við og segir svo við mig " það situr einhver ì stòlnum..."
    Fri, 27 Feb 2026 - 23min
  • 79 - 79. Þáttur - Sannar Íslenskar Draugasögur (áskriftarprufa)

    👉🏼 KOMDU Í ÁSKRIFT AF SÖNNUM ÍSLENSKUM DRAUGASÖGUM - HÉR

    Verið velkomin í þátt númer 79 af Sönnum Íslenskum Draugasögum 🇮🇸

    Í dag förum við víða... skellum okkur í Hvítárnesskála og skoðum myndir af klórförum sem einstaklingur fékk á vinnustað!

    En áður en við förum í þetta ferðalag þá viljum við hvetja ykkur til þess að senda ykkar sögur á sannar@draugasogur.com.... Eina ástæðan fyrir því að þetta hlaðvarp er til, er útaf ykkur og ykkar frásögum 🤎🤗 So keep them coming!

    SAGA 1 - BANGSINN

    (sendandi: nafnleynd)

    ,,Ég reyni að hundsa þetta og fara aftur að sofa, en ég næ því ekki. Svo aftur, opna ég augun og þá sé ég mann standa inni í herberginu og hann starir á okkur. Ég reyni að segja honum að fara en hann stendur þarna ennþá..."

    SAGA 2 - HVÍTÁRNESSKÁLI

    (sendandi: nafnleynd)

    ,,Ég lá stjörf í rúminu og man ég gat ekki hreyft mig. Þá var eins og hún héldi áfram og þetta yrði dramatískara. Hún hentist upp og niður og tók í mig og sagði "farðu strax úr kojunni", "þú mátt alls ekki vera hér". Loksins vaknaði ég í svitabaði og sá þá að allt var slökkt í skálanum..."
    Fri, 27 Feb 2026 - 27min
  • 78 - 78. Þáttur - Sannar Íslenskar Draugasögur (áskriftarprufa)

    👉🏼 KOMDU Í ÁSKRIFT AF SÖNNUM ÍSLENSKUM DRAUGASÖGUM - HÉR

    Haldið áfram að senda okkur frásagnir á sannar@draugasogur.com 📧

    Við erum ekki bara með þrjár aðsendar sögur sem eru fjandi góðar sem við ætlum að segja ykkur frá. Því kannski erum við sjálf bara með okkar eigin sögu til að deila með ykkur..? :)

    SAGA 1: Elliheimilið

    (sendandi: nafnleynd)

    ,,...En fyrir um tveimur mánuðum síðan lenti ég í atviki sem hrissti mig heldur betur til og heiminn eins og ég þekkti hann. En við skulum byrja á byrjuninni..."

    SAGA 2: TJALDÚTILEGA Á FLÚÐUM

    (sendandi: Eygló)

    ,,...Lötur hægt byrja ég er skríða útúr tjaldinu eins hljóðlega og ég gat og allan tíman hlustaði ég vel því ef viðkomandi myndi byrja að hlaupa í burtu að þá myndi ég heyra það og þá myndi ég setja allt í botn og fara á eftir honum..."
    Fri, 27 Feb 2026 - 30min
  • 77 - 77. Þáttur - Sannar Íslenskar Draugasögur (áskriftarprufa)

    👉🏼 KOMDU Í ÁSKRIFT AF SÖNNUM ÍSLENSKUM DRAUGASÖGUM - HÉR

    Haldið áfram að senda okkur frásagnir á sannar@draugasogur.com 📧

    Verið velkomin í þátt 77 af Sönnum Íslenskum Draugasögum 🇮🇸

    Í dag ætlum við að segja ykkur draugasögur frá sex aðilum!

    HEFUR ÞÚ UPPLIFAÐ EITTHVAÐ YFIRNÁTTÚRULEGT? SENDU OKKUR ÞÍNA FRÁSÖGN Á SANNAR@DRAUGASOGUR.COM 📧

    Skoðið vandlega myndina sem fylgir sögu 4.... hvað sjáið þið? 🤔

    SAGA 1: SPÍTALINN Í MOSÓ

    (sendandi: nafnleynd)

    ,,...Mamma heyrði oft fótatök og muldur á háaloftinu eins og einhverjir voru að tala saman, en enginn var uppá lofti. Eitt kvöldið var ég farin að sofa og herbergið mitt var þannig að mamma sá inn til mín þegar hún lá uppí rúminu sínu í sínu herbergi..."


    SAGA 2: Á SJÓ MEÐ PABBA

    (sendandi: Ásvaldur Helgason)

    ,,...Morguninn eftir fann ég hönd hans á öxlinni minni. „Vaknaðu, Ásvaldur,“ hvíslaði hann. Ég opnaði augun og sá hann standa í dyragættinni. Hann brosti til mín og gekk síðan að rúminu hans Geirmundar..."
    Fri, 27 Feb 2026 - 15min
Afficher plus d'épisodes