Filtrer par genre

Seinni níu

Seinni níu

Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika. Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson

137 - #136 - Haukur spilaði fimm golfvelli á einum degi
0:00 / 0:00
1x
  • 137 - #136 - Haukur spilaði fimm golfvelli á einum degi

    Við fengum Hauk Óskarsson, framkvæmdastjóra Nesklúbbsins, í hörkuskemmtilegt spjall. Haukur komst í fréttirnar á dögunum þegar hann afrekaði það að leika alla golfvelli landsins á einu og sama árinu. Hann segir frá þessu magnaða ferðalagi og fer yfir það sem stóð upp úr á golfvöllum landsins.

    Haukur rifjar einnig upp þegar hann fékk bolta í bringuna frá öðrum kylfingi og steinlá. Þá kom í ljós að Haukur hefur þrívegis fengið albatross, sem er ótrúlegt afrek.

    Í þættinum segir Haukur okkur líka frá hinum víðfræga biðlista Nesklúbbsins, en nú bíða yfir 2.000 manns eftir aðild að þessum eftirsótta golfklúbbi. Hauki berast reglulega tilboð frá fólki sem vill kaupa sér leið fram fyrir á biðlistanum, og í sumar barst honum sjö stafa tilboð.

    Meðal annars velur Haukur þær fimm par-3 holur þar sem hann væri helst til í að fara holu í höggi næst.

    Virkilega skemmtilegur þáttur þar sem víða er komið við og hefði getað boðið upp á ótal fyrirsagnir!

    Mon, 26 Oct 2026 - 1h 30min
  • 136 - #135 - Örn valdi alls ekki draumahollið

    Við fengum hlaðvarpsstjörnu í heimsókn til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Örn Arnarson, fjölmiðlamaður og reglulegur gestur í hlaðvarpinu Þjóðmál, kom og fór yfir golfið með okkur.

    Örn er Keflvíkingur og hóf golfiðkun ungur í Leirunni. Í dag er hann með rúmlega 16 í forgjöf. Hann óttast mest stutt vipp, hefur aldrei farið holu í höggi og er í golfhópnum Kvíði.

    Örn valdi bæði draumahollið og hollið sem hann vildi alls ekki spila með á Glanna. Við fengum einnig mjög góða kraftröðun þar sem farið var yfir besta bitann að loknum golfhring.

    Frábær þáttur og mikið hlegið að þessu sinni.

    Mon, 19 Oct 2026 - 1h 07min
  • 135 - #133 - Karen varð Íslandsmeistari átta ár í röð en hefur ekki enn farið holu í höggi

    Við fengum goðsögnina Karen Sævarsdóttur í heimsókn til okkar og þá fyrr hefði verið. Karen vann það einstaka afrek að verða Íslandsmeistari átta ár í röð frá árinu 1989 til 1996. Móðir hennar varð einnig þrisvar Íslandsmeistari og því eiga þær mæðgur 11 titla.

    Karen segir okkur frá mögnuðum ferli, rifjar upp skemmtileg augnablik frá titlunum átta, erfiðum atvinnumannaárum og háskólaárunum í Texas.

    Svo fengum við þá ótrúlegu staðreynd að Karen hefur aldrei farið holu í höggi. Það gladdi Loga að heyra. Þetta er víst allt heppni.

    Frábær þáttur með einstökum kylfingi. Draumahollið og kraftröðun á sínum stað!

    Mon, 12 Oct 2026 - 1h 08min
  • 134 - #132 - Blindar golfholur í uppáhaldi hjá Jóa Fel

    Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Matreiðslumaðurinn Jói Fel heiðraði okkur með nærveru sinni og sagði okkur frá golfferli sínum.

    Jói byrjaði í golfi fyrir nokkrum árum en þá voru allir æskuvinir hans byrjaðir í íþróttinni. Það tók hann smá tíma á ná tökum á íþróttinni en hann gafst ekki upp og er núna orðinn þokkalegur kylfingur.

    Hann er með um 20 í forgjöf og spilar mikið í Hveragerði sem er orðinn heimavöllur hans í dag. Það tekur hann ekki nema 3 mínútur að aka út á golfvöll frá heimili sínu í Hveragerði og ólíkt flestum þá eru blindar golfholur í uppáhaldi.

    Jói segir okkur frá draumahollinu sínu, frá erfiðum bakmeiðslum og þegar hann hætti að æfa brjóstvöðva á mánudögum vegna golfiðkunar.

    Við fáum innsýn inn í störf Jóa á Litla hrauni en þar kennir hann meðal annars föngum að elda.

    Frábær þáttur á léttum nótum.

    Mon, 05 Oct 2026 - 59min
  • 133 - #131 - Aron og Axel í sinni fyrstu golfferð

    Við erum staddir í golfferð og tókum auðvitað upp þátt af Seinni níu. Aron Elí Sævarsson og Axel Óskar Andrésson komu í spjall en þeir eru einmitt staddir með okkur í golfferð á Los Moriscos á Spáni þar sem fer mjög vel um okkur.

    Í þættinum förum við yfir það hvernig upplifun það er að vera í golfferð. Ræðum um golfið hjá köppunum en líka aðeins um þeirra afrek í fótboltanum með liði Aftureldingar.

    Mjög skemmtilegt spjall þar sem við fáum að heyra af nokkuð óvenjulegum golfmeiðslum sem urðu hjá einum viðmælenda í ferðinni.

    Wed, 30 Sep 2026 - 1h 15min
Afficher plus d'épisodes