Filtrer par genre

Vandað til verka

Vandað til verka

Iðan fræðslusetur
Vandað til verka fjallar um byggingariðnaðinn, fagmennsku og fólkið sem býr yfir þekkingunni og reynslunni í greininni. Iðan fræðslusetur stendur fyrir hlaðvarpinu en það er hannBergþór Ingi Sigurðsson sem stýrir þáttunum. Hann ræðir við fjölbreyttan hóp fólks úr bygginga- og mannvirkjageiranum um verkefni, þróun og það sem skiptir máli í faginu.
5 - 5. Gervigreind í byggingariðnaði: Hjörtur Sigurðsson
0:00 / 0:00
1x
  • 5 - 5. Gervigreind í byggingariðnaði: Hjörtur Sigurðsson

    Getur gervigreindin aðstoðað iðnaðarmenn? Bergþór Ingi ræðir við Hjört Sigurðsson hjá Mynstru um hagnýta notkun gervigreindar við dagleg störf, t.d. við gerð fundargerða og verklýsinga, kostnaðaráætlana og verkefnastjórnun. En hvar liggja takmörkin og hvenær þarf fagleg dómgreind alltaf að ráða för?

    Mon, 26 Oct 2026
  • 4 - 4. Votrými: Halldór Garðar Björnsson

    Bergþór Ingi ræðir við Halldór Garðar Björnsson, meðal annars um votrými og frágang þeirra. Hvar verða algengustu mistökin, hvað getur farið úrskeiðis og hvað þarf að vera passa svo votrými endist?   Þetta hlaðvarp er í boði Iðunnar fræðsluseturs.

    Mon, 19 Oct 2026
  • 3 - 3. Lífsferilsgreiningar: Lilja Sigurrós Davíðsdóttir og Helga María Adolfsdóttir

    Hver er raunverulegur kostnaður bygginga fyrir umhverfið? Bergþór Ingi ræðir við Lilju Sigurrós Davíðsdóttur og Helgu Maríu Adolfsdóttur um lífsferilsgreiningar, kolefnisspor, efnisval og grænar vottanir. Hvernig nýtum við þessar upplýsingar til að taka betri ákvarðanir og byggja með langtímahagsmuni í huga? Þetta hlaðvarp er í boði Iðunnar fræðsluseturs.

    Mon, 12 Oct 2026
  • 2 - 2. Tjón, viðgerðir og endurbætur: Björgvin Stefánsson

    Hvað gerir þú fyrstu mínúturnar eftir vatnstjón og hvaða mistök geta gert lítið tjón að stóru? Bergþór Ingi ræðir við Björgvin Stefánsson um viðbrögð við tjónum, algengustu orsakir vatnstjóna, falinn raka og hvað þarf að hafa í huga þegar tjón verður. Þeir ræða líka hvernig faglegt tjónaviðbragð fer fram og hvað má gera til að fyrirbyggja tjón. Þetta hlaðvarp er í boði Iðunnar fræðsluseturs.

    Mon, 05 Oct 2026
  • 1 - 1. Raki og mygla: Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir

    Viðmælandi þáttarins er Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur og stofnandi Verkvistar. Í þættinum ræða hún og Bergþór Ingi, stjónandi þáttarins, meðal annars um hvað veldur rakavandamálum, hvernig þau hafa áhrif á byggingar og innivist og hvers vegna mikilvægt er að bregðast rétt og tímanlega við. Þetta hlaðvarp er í boði Iðunnar fræðsluseturs.

    Mon, 28 Sep 2026