Filtrer par genre

Vörumerki

Vörumerki

Margrét Björk Jónsdóttir

Hlaðvarp fyrir fólk með góðar hugmyndir og stóra drauma!

Langar þig að stofna eigið fyrirtæki, styrkja þitt persónulega vörumerki eða gera eitthvað alveg nýtt? 

Í Vörumerki leiða Margrét Björk og Arna Þorsteins hlustendur inn í heim vörumerkja, sköpunar og frumkvöðlastarfs.

Þær ræða við fólk sem hefur byggt upp eða starfað fyrir sterk vörumerki, þá sem hafa tekið stórar ákvarðanir, gert mistök og lært af þeim. Inn á milli deila þær eigin reynslu og raunveruleikanum á bak við það að taka sénsinn þrátt fyrir að vera ekki með allt á hreinu. Byrja, og gera það svo vel!

21 - S2E12 | Það sem virkaði fyrir 5 árum virkar ekki lengur
0:00 / 0:00
1x
  • 21 - S2E12 | Það sem virkaði fyrir 5 árum virkar ekki lengur

    Margrét og Arna setjast niður í lokaþætti seríu 2 og horfa bæði til baka og fram á við. Markaðsheimurinn hefur breyst hratt- og aðferðir sem virkuðu fyrir nokkrum árum geta í dag jafnvel haft öfug áhrif. Við ræðum hvað er að breytast í markaðsmálum, hvernig gervigreind hefur áhrif á vörumerki og hvers vegna raunverulegt, persónulegt efni verður sífellt verðmætara. Við förum líka yfir áhrifavalda og PR-pakka, hvernig fyrirtæki geta valið rétta miðla og hvers vegna það skiptir meira máli að skilja markhópinn og markmiðið en að reyna að vera alls staðar. Að lokum færum við umræðuna yfir á okkar eigin verkefni, óttann við að byrja áður en allt er tilbúið og stærsta lærdóminn sem hefur fylgt okkur í gegnum alla seríuna: stundum þarftu einfaldlega að byrja- og sjá hvert það leiðir þig.-- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

    Thu, 03 Sep 2026
  • 20 - S2E11 | Andrea Magnúsdóttir - „Ef ég get það, geri ég það“

    Fatahönnuðurinn, verslunareigandinn og hlaðvarpsstjórnandinn Andrea Magnúsdóttir, konan á bak við Andrea by Andrea, er gestur okkar í þessum þætti. Við förum yfir vegferðina frá fyrstu skrefum hennar í fatahönnun og eigin rekstri yfir í að byggja upp vörumerki sem er orðið nátengt hennar persónulega vörumerki. Við tölum um sköpunarkraftinn, frelsið sem hún þarf til að vinna, reksturinn á bak við fallega heiminn og hvað þarf til að skapa upplifun sem fær viðskiptavini til að koma aftur. Við ræðum líka þróunina í verslunum almennt, fast fashion, hönnunarstuld og minnkandi virðingu fyrir hönnun. Þá segir Andrea frá erfiðu tímabili í lífi sínu þar sem breytingaskeiðið hafði mikil áhrif á líðan hennar, sköpun og vinnu. Og að sjálfsögðu förum við í hraðaspurningar þar sem Andrea þarf meðal annars að velja á milli útlits og þæginda og þarf að svara hverjum hún myndi.... ríða, giftast eða drepa. Önnur umræðuefni þáttarins eru meðal annars: Vegferð Andreu í tísku, hönnun og eigin rekstri Munurinn á vörumerkinu Andrea og persónulega vörumerkinu hennar Verslun vs. netverslun og breytt kauphegðun viðskiptavina Heildarupplifun kúnnans og hvað fær fólk til að koma aftur Hvað flokkast raunverulega sem góð kaup — verð, gæði eða hversu mikið flíkin er notuð? Útlit vs. þægindi og sterkt auga Andreu fyrir fagurfræði Starfsfólkskúltúrinn og hugsunin á bak við góða þjónustu Fullkomnunarárátta, persónulegar áskoranir og lífið á bak við vörumerkið -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

    Thu, 20 Aug 2026
  • 19 - S2E10 | Garðar & Lóa hjá GoodGood – Frá eldhúsborði í 10.000 verslanir um allan heim

    Vörurnar frá GoodGood eru fáanlegar í 31 landi og um 10.000 verslunum, þar á meðal hjá risum á borð við Walmart, Whole Foods, Kroger og Sprouts, og innan skamms bætist Target í hópinn. Færri vita þó kannski að þetta alþjóðlega vörumerki er alíslenskt. Garðar Stefánsson, forstjóri og meðstofnandi Good Good, og Lóa Fatou, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, eru gestir þáttarins og fara með okkur yfir ótrúlega vegferð vörumerkisins, sem hófst við lítið eldhúsborð í Hafnarfirði fyrir rúmum áratug. Í þættinum heyrir þú meðal annars um: Hvernig fyrsta Good Good sultan varð til úr umfram lager af sætuefni- og endaði sem metsölusulta á Amazon Hvernig „lítil“ verslunarkeðja reyndist vera 250 með verslanir, og varð stórt stökk inn á Bandaríkjamarkað Hvernig Good Good rataði í The Drew Barrymore Show – og hvað gerðist við söluna í kjölfarið. Mistökin, tollavesenið og stöðugu vandamálin sem fylgja því að byggja fyrirtæki á alþjóðlegum markaði. Hvernig teymið hugsar um vöruþróun, fókus og hvaða vörur eigi að halda áfram með. Hvernig Good Good ætlar sér að sækja enn lengra á bandaríska markaðinn, en þau eru nú þegar í topp tíu í sultum og númer þrjú í súkkulaðismjöri. Hvers vegna Nutella hefur í raun skapað tækifæri fyrir Good Good. Hvaða bragðtegundir þau myndu aldrei framleiða. Og hvers vegna lausnamiðað hugarfar skiptir öllu þegar „það er alltaf eitthvað vesen" Þetta er skemmtilegt, fróðlegt og hvetjandi spjall og sjaldgæft tækifæri til að skyggnast á bak við tjöldin hjá íslensku fyrirtæki sem á í viðskiptum við nokkrar stærstu verslunarkeðjur heims, og heyra hvað þarf í raun til að byggja vörumerki fyrir heimsmarkað. -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

    Thu, 13 Aug 2026
  • 18 - S2E9 | Sylvía Briem - Villti hesturinn sem landaði Red Bull á Íslandi

    Athafnakonan Sylvía Briem Friðjónsdóttir er annar stofnenda Steindal ehf., sem flytur inn og markaðssetur vörumerki á borð við Töst, El Taco Truck og Red Bull á Íslandi. Sylvía hefur víðtæka reynslu af sölu, markaðssetningu og þjálfun. Hún starfaði um árabil hjá Dale Carnegie og hlaut þar alþjóðlega viðurkenningu sem besti þjálfari heims. Hún hélt auk þess úti geisivinsæla hlaðvarpinu Normið, ásamt Evu Mattadóttur um fimm ára skeið.  Í þættinum ræðum við hvernig Steindal varð til og hvernig fyrirtækið stækkaði gríðarlega á örfáum árum. Við förum meðal annars yfir um hvernig hugmyndin að Töst og hvernig þeim tókst að landa Red Bull-umboðinu á Íslandi í harðri samkeppni við fimm mun stærri fyrirtæki. Sylvía er einlæg og talar ekkert í kringum hlutina, hún talar opinskátt um ADHD, tilfinninguna að passa ekki inn í rammann sem fylgir hefðbundnu vinnuumhverfi og hvernig hún hefur skapað sér starfsferil sem hentar hennar styrkleikum. Sylvía lýsir sjálfri sér sem „spretthlaupara, ekki langhlaupara“ í vinnu og ræðir mikilvægi þess að þekkja eigin mörk, vinnulag og orku. Sylvía og Emil, eiginmaður hennar, eiga saman þrjá drengi og reka jafnframt fyrirtækið saman. Hún segir frá því hvernig þau ná að sameina hjónaband, fjölskyldulíf og fyrirtækjarekstur, hvaða áskoranir fylgja því að vinna náið með maka sínum og hvað þau hafa lært á leiðinni. Við ræðum einnig af hverju Sylvía og Eva ákváðu að setja Normið í pásu á toppnum eftir fimm ár og hvers vegna það getur stundum verið jafn mikilvægt að vita hvenær á að stoppa og hvenær á að halda áfram. Við hlustun færð þú meðal annars: Hagnýt dæmi um áhættur, fjármögnun og erfiðar ákvarðanir• Lærdóm af svikamáli sem kostaði milljónir• Nýtt sjónarhorn á kvíða, hræðslu og hvernig hægt er að vinna í gegnum hana• Hreinskilna umræðu um mistök, vörur sem gengu ekki upp og glansmynd frumkvöðlastarfsins• Hvatningu til að þora að vera byrjandi og læra hlutina á leiðinni• Innsýn í mikilvægi innsæis, þrjósku og þrautseigju í rekstri• Skilning á því hvernig hjónaband, fjölskyldulíf og fyrirtækjarekstur geta farið saman• Sjónarhorn konu sem hefur þurft að standa með sér í karllægum atvinnugeira• Hugmyndir um hvernig hægt er að byggja starfsferil í kringum eigin styrkleika og orku• Innblástur til að þekkja eigin mörk og vita hvenær tími er kominn til að stoppa Sylvía er hreinskilin, einlæg og full af orku og deilir bæði sigrum og áföllum af mikilli einlægni. Þetta er þáttur fyrir alla sem eru að byggja upp eigið fyrirtæki, hafa upplifað að passa ekki inn í hefðbundinn ramma, standa frammi fyrir mótlæti eða vilja heyra sanna sögu af frumkvöðlastarfi, ekki bara glansmyndina sem birtist á samfélagsmiðlum. -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

    Thu, 06 Aug 2026
  • 17 - S2E8 | Þóra Hrund- Að velja hugrekkið fram yfir eftirsjá

    Þóra Hrund Guðbrandsdóttir er frumkvöðull, markþjálfi, markaðsfræðingur, gusumeistari og annar stofnenda Munum- vörumerkis sem hófst sem dagbók en hefur síðan þróast í mun stærri sýn og samfélag í kringum heilsu og vellíðan. Í þættinum ræðum við hvernig hugmyndin að Munum varð til og hvernig dagbókin seldist í allt að 12.000 eintökum á ári, þrátt fyrir vantrú margra á verkefninu í upphafi. Þóra segir einnig frá útrásinni sem þær fóru af stað með, hvers vegna þær ákváðu að hætta við hana og hvað sú ákvörðun kenndi þeim um vöxt, metnað og mikilvægi þess að vita hvenær tími er kominn til að breyta um stefnu. Þóra ræðir einnig hvernig hún velur verkefni út frá gildunum sínum, hvers vegna hún hefur sagt nei við öruggari leiðum og frá risastóru verkefni sem hún stefnir á að koma í framkvæmd. Við hlustun færð þú meðal annars: Innsýn í hvernig hugmynd getur orðið að raunverulegu vörumerki Hagnýt dæmi um fjármögnun, vöxt og erfiðar ákvarðanir Lærdóm af útrás sem var stöðvuð og stefnunni breytt Nýtt sjónarhorn á hugrekki, ótta og eftirsjá Skilning á því hvernig gildi geta hjálpað þér að taka skýrari ákvarðanir Innblástur til að láta vaða, jafnvel þótt óttinn sé enn til staðar Þóra er stútfull af orku og hugmyndum og svo mikilli ástríðu fyrir verkefnunum sínum að það er ekki hægt annað en að fyllast innblæstri og  hrífast með. Þetta er þáttur fyrir alla sem eru með hugmynd í maganum, standa frammi fyrir breytingum eða finna að þeir þurfa meira frelsi, meiri gleði og/ eða skýrari stefnu í lífið. --- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.🎶 Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

    Thu, 23 Jul 2026
Afficher plus d'épisodes