Filtrar por gênero
- 47 - Hvað er í matinn? 🍽️
Hver kannast ekki við þessa spurning? og hausverkinn sem fylgir því að ákveða hvað á að vera í matinn, dag eftir dag, allt árið um kring. Sérstaklega þegar maður er í orlofi með barn sem er byrjað að borða og þarf allt í einu að hugsa um 4-6 máltíðir á dag. Lofum skemmtilegu jappi um mat og líka einhverjum höxum til að létta foreldrum lífið!
Tue, 06 Oct 2026 - 57min - 46 - Haust 🤎🍂Tue, 29 Sep 2026 - 46min
- 45 - Hlutir sem myndu senda aðrar mömmur í "coma" 🤯Tue, 22 Sep 2026 - 49min
- 44 - Valgerður - stjúptengsl
Í þessum ættir fengum við hana Valgerði Halldórsdóttur, félags- og fjölskylduráðgjafa og konuna á bak við stjuptengsl.is til okkar.
Við ræddum allt það sem getur reynst flókið í stjúpfjölskyldum og foreldrasamvinnu. Hvernig er að sameina fjölskyldur? Hvað gerist þegar upp koma árekstrar og ólíkar væntingar? Og hvernig getum við byggt upp góð tengsl innan fjölskyldunnar?
Valgerður hefur bæði persónulega reynslu af stjúpfjölskyldum og faglega þekkingu á þessum málum, svo þetta varð virkilega skemmtilegt og fróðlegt spjall.
Tue, 15 Sep 2026 - 1h 22min - 43 - Áslaug - Lífið er kynlíf ❤️Tue, 08 Sep 2026 - 1h 17min
- 42 - Sara Scime - bleyjulaust uppeldi og koppaþjálfun 👶🚽
Fengum til okkar Söru Anítu Scime, betur þekkta sem Koppagelluna á TikTok! Sara byrjaði að venja strákana sína tvo á kopp aðeins nokkurra vikna gamla og segir okkur frá bleyjulausu uppeldi, eða "elimination communication", sem getur sparað manni ansi margar bleyjur og bleyjuskipti!
Mjög áhugavert spjall þar sem Sara gefur góð ráð fyrir börn á öllum aldri. Það er nefnilega aldrei of seint að byrja ✨
Tue, 01 Sep 2026 - 1h 20min - 41 - Sara Davíðsdóttir - erfið meðganga og hreiðurgerð í flutningum ✈️🏡
Fengum til okkar Söru Davíðsdóttur, einkaþjálfara, flugfreyju og mömmu💛 Sara segir frá afar krefjandi meðgöngu þar sem hún glímdi við mikla ógleði og upplifði að meðgangan færi ekki alveg eins og hún hafði séð fyrir sér.
Við ræðum líka flutningana hennar frá Barein til Íslands og hvernig það reyndist mun flóknara en hún bjóst við að flytja tvo hunda með sér heim 🐶🐶
Tue, 25 Aug 2026 - 1h 36min - 40 - Helena Guðrún – missir á meðgöngu og Gleym Mér Ei 🕊️
Helena Guðrún deilir með okkur persónulegri og áhrifamikilli sögu sinni af missi á 15. viku meðgöngu, sorginni sem fylgdi í kjölfarið og lífinu eftir slíka reynslu.
Helena situr í stjórn styrktarfélagsins Gleym Mér Ei, sem styður við foreldra og fjölskyldur sem missa á meðgöngu eða í og eftir fæðingu.
Í þættinum ræðum við um sorgarferlið, mikilvægi stuðnings og hvernig félagið vinnur að því að litlu ljósin fái að lifa áfram í minningunni.
Tue, 18 Aug 2026 - 1h 43min - 39 - Þórhildur Þorkels - Tæland í fæðingarorlofinu 🏝️
Við fengum Þórhildi Þorkels til okkar í spjall en hún fór með fjölskyldunni sinni til Taílands í fæðingarorlofinu. Hún fer yfir hvernig það var að ferðast með lítið barn, undirbúninginn og allt það sem við kemur svona ferðalagi. Þórhildur deilir fullt af gagnlegum ráðum og reynslu fyrir þá sem dreyma um að skella sér í svipað ævintýri, hvort sem það er í fæðingarorlofi eða á öðrum tímapunkti í lífinu. Skemmtilegt mömmuspjall um algjöra draumaferð! 🏖️✈️☀️
Tue, 11 Aug 2026 - 1h 22min - 38 - Orðablik
Fengum Ásdísi og Hjördísi, stofnendur Orðabliks, í spjall um málþroska barna. Hjördís er talmeinafræðingur og Ásdís er með bs í sálfræði. Þær segja okkur frá Orðabliki, deila gagnlegum ráðum til að styðja við góðan málþroska barna og ræða hvernig við getum nýtt daglegar stundir til að efla málþroskann. Við förum einnig yfir skjátíma, þær áskoranir sem foreldrar standa frammi fyrir í dag og hvernig hægt er að fjölga gæðastundum fjölskyldunnar án þess að skjár komi til sögu.
Tue, 04 Aug 2026 - 1h 03min - 37 - Hlutir sem eru peningana virði💰Tue, 28 Jul 2026 - 1h 03min
- 36 - MýturTue, 21 Jul 2026 - 53min
- 35 - Þriðji þriðjungur meðgöngu
Lokum þessari seríu með lokakafla meðgöngunnar – þriðja þriðjungi🤰✨
Margir myndu segja að þetta sé mest krefjandi tímabilið. Maginn er orðinn stór, svefninn oft stopull, orkustigið sveiflukennt og biðin eftir litla krílinu getur verið löng. Á sama tíma er spennan að ná hámarki og undirbúningurinn fyrir fæðingu og nýtt hlutverk í fullum gangi.
Tue, 14 Jul 2026 - 49min - 34 - Annar þriðjungur meðgönguTue, 07 Jul 2026 - 50min
- 33 - Fyrsti þriðjungur meðgönguTue, 30 Jun 2026 - 56min
- 32 - Terrible twos og mömmubugunTue, 23 Jun 2026 - 1h 05min
- 31 - Sumarfrí með börnumTue, 16 Jun 2026 - 40min
- 30 - Pabbaspjall - Heimir Daði
Þá er komið að næsta pabbaspjalli!Heimir Daði er 32 ára þriggja barna faðir úr Grindavík. Hann eignaðist sitt fyrsta barn aðeins 17 ára gamall og fer hreinskilnislega yfir hvernig það er að stíga svona ungur inn í foreldrahlutverkið.
Í þættinum deilir hann einnig reynslu sinni af erfiðum áföllum, þar á meðal foreldramissi.
Tue, 09 Jun 2026 - 1h 50min - 29 - Elínborg - unga fólkið okkar
Elínborg Ingvarsdóttir er tómstunda- og forvarnarfulltrúi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún brennur fyrir málefnum barna og unglinga og hefur víðtæka reynslu, meðal annars sem forstöðumaður félagsmiðstöðvar og umsjónarmaður ungmennaráðs í Grindavík.
Við fengum Elínborgu til okkar í spjall þar sem fókusinn er á ungt fólk – enda verða börnin okkar eldri og þá taka við nýjar áskoranir. Þetta var virkilega áhugavert og fræðandi samtal sem gaf okkur margt til að hugsa um fyrir unglingsárin.
Það er svo mikilvægt að hlúa vel að þessum hópi og tryggja að honum standi til boða faglegt og uppbyggjandi starf í frístunda- og tómstundamálum.
Tue, 02 Jun 2026 - 1h 23min - 28 - Hafdís - ósýnilegir sjúkdómar
Hafdís Houmøller Einarsdóttir kom til okkar í spjall og segir okkur frá sinni reynslu af því að lifa með ósýnilegum sjúkdómum. Hún ræðir fordóma og skilningsleysi sem oft fylgir, en líka ákvörðunina að verða mamma þrátt fyrir áskoranir lífsins. Meðal sjúkdóma sem hún er með eru endómetríósa, vefjagigt og mígreni.
Tue, 26 May 2026 - 1h 49min - 27 - Að byrja vinna aftur eftir fæðingarorlofTue, 19 May 2026 - 58min
- 26 - MömmuþátturTue, 12 May 2026 - 1h 01min
- 25 - Ofbeldi í nánum samböndum
Trigger warning: Í þessum þætti er rætt um heimilisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum.
Jenný Kristínu Valberg, mamma og starfandi teymisstjóri Bjarkahlíðar ræðir við okkur um ofbeldi í nánum samböndum.
Sláandi tölfræði sýnir að um 20 prósent íslenskra mæðra eru beittar ofbeldi á meðgöngu, sem undirstrikar hversu mikilvægt er að tala opinskátt um þessi mál.
Jenný, sem hefur mikla reynslu af málaflokknum, fræðir um birtingamyndir heimilisofbeldis, rauð flögg í upphafi sambanda og hvert hægt er að leita eftir hjálp og stuðningi.
Tue, 05 May 2026 - 1h 35min - 24 - AðskilnaðarkvíðiTue, 28 Apr 2026 - 55min
- 23 - Fæðingarsaga Helgu DísarTue, 21 Apr 2026 - 1h 31min
- 22 - Guðrún Sortveit - finna stílinn eftir meðgöngu ✨Tue, 14 Apr 2026 - 1h 29min
- 21 - Fæðingarsögur ÁsdísarTue, 07 Apr 2026 - 1h 35min
- 20 - Páskaþáttur 🐰Tue, 31 Mar 2026 - 54min
- 19 - María Ellen - ófrjósemiTue, 24 Mar 2026 - 2h 06min
- 18 - Eyrún Ösp - Krabbameinsgreining eftir fæðinguTue, 17 Mar 2026 - 1h 31min
- 17 - Fanney Dóra - Baby Led Weaning 🥑Tue, 10 Mar 2026 - 1h 36min
- 16 - Babyshower & skírnarveislurTue, 03 Mar 2026 - 1h 31min
- 15 - NostalgíaTue, 24 Feb 2026 - 1h 02min
- 14 - Kristín Gunnarsdóttir - kraftaverkasaga!
Í þessum þætti fáum við að heyra ótrúlega áhrifamikla og persónulega frásögn Kristínar Gunnarsdóttur af því þegar nýfæddur sonur hennar veiktist alvarlega. Kristín deilir upplifun sinni af þessum ólýsanlega erfiða tíma, frá fyrstu einkennum og allt þar til lífi sonarins var á ótrúlegan hátt bjargað á elleftu stundu.
Við ræðum hvernig er að takast á við svona erfitt ferðalag með makanum sér við hlið og hvað skiptir mestu máli þegar þarf að styðja hvort annað í gegnum það ómögulega.
Þetta er einstaklega einlægur þáttur, kraftaverkasaga sem gefur von og minnir okkur sterklega á hvað fólkið í kringum okkur skiptir miklu máli þegar lífið reynir á ❤️
Tue, 17 Feb 2026 - 2h 04min - 13 - Hlaðfréttir - PabbaspjallTue, 10 Feb 2026 - 1h 38min
- 12 - Halló febrúar ✨🩵Tue, 03 Feb 2026 - 1h 13min
- 11 - Leikskólamálin með Höllu Gunnarsdóttur
Í þessum þætti ræðum við við Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, um leikskólamálin sem hafa verið mikið í umræðunni upp á síðkastið. Sveitarfélögin eru mörg hver farin að bjóða sex tíma gjaldfrjálsan leikskóla. Við ræðum um pressuna á foreldra, áskoranir starfsfólks leikskóla og hvort við séum á réttri leið í að byggja upp kerfi sem virkar fyrir börn, foreldra og samfélagið allt.
Mjög áhugavert og mikilvægt spjall um eitt heitasta málefni landsins um þessar mundir.
Tue, 27 Jan 2026 - 1h 40min - 10 - Kristín svefnráðgjafiTue, 20 Jan 2026 - 1h 45min
- 9 - NýársþátturTue, 13 Jan 2026 - 1h 02min
- 8 - MömmujátningarTue, 23 Dec 2025 - 1h 27min
- 7 - Orka StudioTue, 16 Dec 2025 - 1h 38min
- 6 - Jólin og jólahefðir
Hér er sannkallaður jólaþáttur á ferð. Við rifjum upp okkar eigin hefðir og ræðum hvernig það er allt í einu komið að okkur að skapa jólatöfrana fyrir börnin okkar. Förum yfir nokkur sniðug ráð til að gera desember aðeins auðveldari og skemmtilegri fyrir alla fjölskylduna. Léttur, hlýlegur og jólalegur þáttur þennan þriðjudaginn✨
Tue, 09 Dec 2025 - 1h 22min - 5 - Átta staðreyndir og sundspjall við ErluTue, 02 Dec 2025 - 1h 28min
- 4 - Brjóstagjöf, pelagjöf og combo feeding
Í þessum þætti ræðum við brjóstagjöf, pelagjöf og „combo feeding“ út frá okkar eigin reynslu. Þetta er opin og hreinskilin umræða um málefni sem liggur þungt á mörgum nýbökuðum foreldrum. Við deilum persónulegum sögum og áskorunum, því allar leiðir eru í lagi, svo lengi sem barnið fær ást og næringu. ATH! Við erum ekki sérfræðngar, allt sem kemur fram er út frá persónulegri reynslu.
Tue, 25 Nov 2025 - 1h 23min - 3 - FerðalögTue, 18 Nov 2025 - 1h 11min
- 2 - Meðgangan og spítalataskanThu, 13 Nov 2025 - 1h 24min
- 1 - KynningarþátturThu, 13 Nov 2025 - 15min
Podcasts semelhantes a Bíddu Bara
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Friday Night Comedy from BBC Radio 4 BBC Radio 4
Global News Podcast BBC World Service
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Reggae Revival Dread Lightning HiFi
La Trinchera de Llamas esRadio
Forensic Files HLN
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
Kryminalne Historie Kryminalne Historie
The School of Greatness Lewis Howes
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Mannlegi þátturinn RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Rotten Mango Stephanie Soo
Kinky Sex Stories Wylde Podcasts
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه
