Filtrar por gênero
- 7 - 6. þáttur - lokaþáttur
Í lokaþættinum er sjónum beint að langvarandi áhrifum ofbeldis og þeim lærdómi sem samfélagið getur dregið af einu stærsta uppgjörsmáli íslensks samtíma. Varpað er ljósi á hvernig afleiðingar ofbeldis geta varað í áratugi, jafnvel kynslóðir. Í þættinum heyrast raddir fólks sem varð fyrir beinum eða óbeinum afleiðingum málsins. Guðrún Ebba segir meðal annars frá því hvað kirkjan þarf að gera til að styðja við þolendur ofbeldis. Hún segir sína skoðun á frásögn Karl Sigurbjörnssonar í ævisögu ha...
Sun, 22 Mar 2026 - 6 - 5. þáttur
Í þessum þætti beinist athyglin að því sem tók við eftir að Guðrún Ebba steig fram opinberlega með sögu sína í bókinni Ekki líta undan, sem Elín Hirst skráði. Fjallað er um þau viðbrögð sem mættu henni í kjölfarið, ekki síst frá eigin fjölskyldu, þegar frásögn hennar var dregin í efa opinberlega og hún ásökuð um rangar eða falskar minningar. Í þættinum svarar Guðrún Ebba í fyrsta sinn opinberlega ásökunum sem settar voru fram af bróður hennar, Skúla Sigurði Ólafssyni, í Kastljósi árið 2...
Sun, 15 Mar 2026 - 5 - 4. þáttur
Í þættinum er sjónum beint að þeirri vegferð sem hófst þegar Guðrún Ebba, dóttir biskups, fór í áfengismeðferð árið 2003 og minningar um kynferðisofbeldi föður hennar fóru að brjótast fram eftir áratuga bælingu. Fjallað er um hvernig kynferðisofbeldi í æsku getur haft djúpstæð áhrif á líf þolenda síðar meir, meðal annars á sjálfsmynd, mörk, tengsl og bjargráð. Guðrún Ebba segir frá því hvernig hún glímdi við áfengisvanda, vinnufíkn, átröskun og sjálfsskaða á sama tíma og hún bar með sér leynd...
Sun, 08 Mar 2026 - 4 - 3. þáttur
Þriðji þáttur fjallar um hvernig málin voru afgreidd innan kirkjunnar árið 1996. Ólafur kærði konurnar til ríkissaksóknara fyrir ærumeiðingar og þær voru yfirheyrðar af lögreglu klukkutímunum saman. Ferlið einkenndist af ótta og óvissu, á meðan valdamesti maður kirkjunnar hélt stöðu sinni og virðingu. Þó málin hafi verið felld niður varð afleiðingin sú að konurnar höfðu stöðu sakborninga, og þá voru það þær sem þurftu að verja sig. Illugi Jökulsson rifjar upp hugrekki kvennanna og skjaldborgi...
Sun, 01 Mar 2026 - 3 - 2. þáttur
Í öðrum þætti er farið yfir það hvað gerist þegar konur stíga fram gegn valdamiklum manni, og mæta kerfi sem virkar hægt og illa, og verndar frekar biskupsembættið en brotaþola. Við heyrum frásögn konu sem kemur nú fram í fyrsta sinn, sem lýsir því að hún hafi orðið fyrir áreitni af hendi Ólafs Skúlasonar sem fermingarbarn í Bústaðakirkju fyrir rúmri hálfri öld. Þátturinn hefst á vettvangsferð í Bústaðakirkju, þar sem farið er um rýmið og inn í lítið, gluggalaust herbergi í kjallara sem...
Sun, 22 Feb 2026 - 2 - 1. þáttur
Þann 15. febrúar árið 1996 kom út frétt í DV um að nokkrar konur væru að ásaka valdamesta manns þjóðkirkjunnar, biskup Íslands, Ólaf Skúlason, um kynferðisofbeldi. Biskupsmálið svokallaða varð eitt eldfimasta mál samfélagsins í marga áratugi á eftir. Alfred-Wolfgang, ekkill Sigrúnar Pálínu, einna þeirra kvenna sem stigu fram, rifjar upp líf þeirra saman, baráttu hennar, þöggunina sem þau mættu og þau djúpu og langvarandi áhrif sem málið hafði á fjölskylduna. Elín Hirst, fjölmiðlakona, s...
Sun, 15 Feb 2026 - 1 - Biskupsmálið - Trailer
Í febrúar eru liðin 30 ár frá fyrstu fréttum af því þegar konur stigu fram og sögðu frá kynferðislegu ofbeldi af hendi eins valdamesta manns þjóðkirkjunnar, biskups Íslands, Ólafs Skúlasonar. Biskupsmálið er heimilidaþáttaröð sem fjallar um hvernig kirkja, réttarkerfi og samfélag brugðust við þegar valdamikið embætti var sett undir smásjá. Eftirlifendur, fjölmiðlafólk og fræðimenn segja sögu af baráttu sem má ekki gleymast. Þættirnir koma út vikulega, á sunnudögum. Ums...
Thu, 29 Jan 2026
Podcasts semelhantes a Biskupsmálið
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Friday Night Comedy from BBC Radio 4 BBC Radio 4
Global News Podcast BBC World Service
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Deep Sleep Tibetan Singing Bowls Sounds Deep Sleep Podcasts
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
بودكاست عقلية Moneim
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Off Menu with Ed Gamble and James Acaster Plosive
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Money News Tapt Media
The Daily The New York Times
Nauka To Lubię Tomasz Rożek
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
