Filtrar por gênero

Morðcastið

Morðcastið

Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum. Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi. Til að hafa samband: mordcastid@gmail.com instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid

362 - Orð dagsins er: Grandeur
0:00 / 0:00
1x
  • 362 - Orð dagsins er: Grandeur

    Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur alla leiðina til Suður-Kóreu og segir okkur frá hópi vondra manna (og í smá einnar konu) sem hefði alveg getað tekið mjög margar frábærar ákvarðanir en tók í staðinn alltof margar hræðilegar ákvarðanir. Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Gjafabref.is, Nettó, Sassy, BL, Fulltingi og Securitas. Gerendur: Kim Gi-hwan, Kim Hyun-yang, Kang Dong-un, Baek Byung-ok, Kang Moon-sub, Song Bung-un og Lee Kyung-sook. Þolendur: Frænka vinar Kim Gi-hwan, Miss Choi, Song Bong-un, Lee Jeong-su, hjónin herra So og frú Park, og Lee. Óklipptan þátt, sjónvarpsþátt og áskriftarþætti má finna inná www.pardus.is/mordcastid

    Thu, 01 Oct 2026 - 1h 15min
  • 361 - Bókacastið X Morðcastið - Áður en ég brjálast

    Í þessum þætti ræðum við systur bókina Áður en ég brjálast eftir Soffíu Bjarnadóttur.

    Fri, 25 Sep 2026 - 26min
  • 360 - Orð dagsins er: Brunnur

    Góðan daginn fimmtudaginn!

    Í þætti dagsins segir Bylgja okkur frá hrottalegu máli sem tekur alltof langan tíma að upplýsa. Ungur maður vildi bara dansa við unga konu en það var að venju reiður maður sem fann sig knúinn til að eyðileggja það.

    Þátturinn er í boði: Nettó, Happy Hydrate, Óskaskrín, BL, Giggó, Fulltingi og Sassy

    Þolandi: Timothy Coggins Gerendur: Frankie Gebhardht og Bill Moore

    Thu, 24 Sep 2026 - 52min
  • 359 - Orð dagsins er: Gistipartý

    Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn!

    Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna og þar kynnumst við nokkrum einstaklingum í fjölkæru sambandi. Sem er vel, sérstaklega ef öll vita af því. Mikið kaos, margar spurningar og mikil undrun.

    Þáttur dagsins er í boði Sassy, Happy Hydrate, BL, Giggó, Fulltingi, Óskaskrín og Nettó.

    Þolandi: Desiree Sunford Gerandi: Marty Grismer. Allavega hann, kannski fleiri.

    Thu, 17 Sep 2026 - 1h 13min
  • 358 - Orð dagsins er: Náttföt

    Góðan daginn, þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur alla leið til Ástralíu og segir okkur frá konu sem fannst myrt og brunnin í röri. Í kjölfarið fer af stað röð atburða sem gefur okkur þó alveg merkilega fá svör. Eiginlega alveg óþolandi, og líka stórmerkilegt. Þolandi: Linda Agostini, amk í einhverju máli. Þátturinn var í boði: Sassy, Happy Hydrate, BL, Óskaskrín, Fulltingi, Giggó og Nettó. Fyrir óklipptan þátt, sjónvarpsþátt eða áskriftarþætti þá mælum við með því að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid

    Thu, 10 Sep 2026 - 1h 07min
Mostrar mais episódios