Podcasts by Category

Alltaf sama platan

Alltaf sama platan

Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson

Hlaðvarp um plötur áströlsku rokkhljómsveitarinnar AC/DC. Smári Tarfur og Birkir Fjalar fjalla um eina plötu í hverjum þætti, frá upphafi ferils sveitarinnar til loka. Gestir kíkja í bolla með þeim félögum og deila upplifun sinni á viðfangsefninu. Hlustið á SPOTIFY, APPLE PODCASTS, POCKET CASTS, PODCAST ADDICT, hér á SIMPLECAST og víðar! Fylgist með á FACEBOOK og INSTAGRAM.

17 - 16. Power Up
0:00 / 0:00
1x
  • 17 - 16. Power Up

    Jæja. Það hlaut að koma að því. Ferðalok. Endalok. Samlok. Síðasta plata AC/DC? Mjög líklega. Síðasta sinn sem Alltaf sömu plötu bræður tjá sig um AC/DC í heild sinni? Sannarlega. Eiga Tarfurinn og Birkir eitthvað eftir? Á AC/DC eitthvað eftir? Er þetta sama plata og síðast? Erum við að djúpgreina síðustu plötu einnar stærstu rokkhljómsveitar mannkynssögunnar? Er ekki bara best að láta þetta eiga sig...? Svarið er nei. Nei! Ræðum þetta! Klárum þetta. Takk fyrir samfylgdina, kæru hlustendur. Þetta hefur verið lærdómsríkt og ánægjulegt. Alltaf eitthvað nýtt í alltaf sömu plötunni. Það er engin lygi. Alltaf sama platan er í boði Matarbúðarinnar Nándin, Hafnarfirði. https://www.matarbudin.is/nandin/ Þátturinn er studdur af Luxor: Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. https://www.luxor.is Snæfugl 2021.

    Tue, 17 Jan 2023 - 2h 16min
  • 16 - 15. Rock Or Bust (Ólafur Torfi Ásgeirsson)

    Alltaf sama platan þokast nær endalokunum, eða hvað? Smári Tarfur og Birkir Fjalar hafa nú rætt allar plötur AC/DC til þessa og standa nú á Rock Or Bust, næstsíðustu plötu einna stærstu rokksveitar allra tíma. Hvað finnst þeim félögum og gesti þeirra um þessa plötu? Gestur þáttarins er Ólafur Torfi Ásgeirsson. Alltaf sama platan er í boði Matarbúðarinnar Nándin, Hafnarfirði. https://www.matarbudin.is/nandin/ Þátturinn er studdur af Luxor: Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. https://www.luxor.is Snæfugl 2021.

    Fri, 25 Nov 2022 - 2h 43min
  • 15 - 14. Black Ice (Fríða Ísberg & Leifur Björnsson)

    MATARBÚÐIN NÁNDIN KYNNIR:
    14. Black Ice (Fríða Ísberg & Leifur Björnsson)

    Já, jújú, hér erum við saman kominn og endirinn er í sjónmáli. Hin þrútna, fjórhliða plata Black Ice, reið röftum þegar hún kom út og sigraði vel flesta ef ekki alla keppinauta sína í rokkinu á þeim tíma. Þetta þótti tíðindum sæta enda okkar menn í AC/DC komnir á mjög virðulegan aldur. Langt var síðan Stiffarinn kom út, mikið hafði breyst í rokkinu sem og í tækni- og internetmálum almennings. Þannig að það voru margar breytur á flugi og hvað gera grallararnir í AC/DC? Jú, gefa út lang lengstu plötu sína frá upphafi og gera kúvendingu í brúnni. Gengur þetta upp?  Smári Tarfur og Birkir Fjalar munu í það minnsta ekki sitja á strák sínum heldur lofa ykkur að heyra, kinnroðalaust, hvað þeim finnst.

    Sérstakir gestir þáttarins eru Fríða Ísberg rithöfundur og rokkari ásamt Leifi Erni Björnssyni sem er hér með okkur í annað sinn, ekki að ósekju, enda rómaður silkitúlli og djúpt skólaður AC/DC hundur.

    Alltaf sama platan er í boði Matarbúðarinnar Nándin, Hafnarfirði og Keflavík.  www.matarbudin.is
    Þátturinn er studdur af Luxor: Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  www.luxor.is 

    Sun, 8 May 2022 - 2h 47min
  • 14 - 13. Stiff Upper Lip (Erla Stefánsdóttir & Haukur Viðar Alfreðsson)

    MATARBÚÐIN NÁNDIN KYNNIR: Alltaf sama platan #13 - Stiff Upper Lip AC/DC drengirnir knáu fara inn í hljóðver síðla árs 1999. Stiff Upper Lip kemur út seint í febrúar 2000. Fjórtánda hljóðversplatan, í fullri lengd, er staðreynd. Tólf lög og tæpar 47 mínútur af rokki. Það eru fimm ár liðin síðan vel heppnuð Ballbreaker kom út. Hvað eru okkar menn búnir að kokka upp?? Þessi tími milli plattna er óvenju langur fyrir AC/DC sem alltaf vilja vinna. Þeir segja okkar að á Stiff Upper Lip hafi þeir leitað í ræturnar og þá sérstaklega sótt í blúsinn og einfaldleika hans. Gengur þessi nálgun upp? Kveður hér við nýjan tón? Er Stiff yfirleitt vel heppnuð plata og vanmetin? Köfum ofan í þetta dæmi. Köfum djúpt! Sérstakir gestir þáttarins eru Erla Stefánsdóttir, alt muligt tónlistar- og söngkona og söngkennari (Grúska Babúska, Dali, Vague Mother o.fl.) ásamt Hauki Viðari Alfreðssyni , hlaðvarpsmeistara (Besta Platan, Dómsdagur o.fl.) og tónlistarmanni (Morðingjarnir, Vígspá, Helvar o.s.frv). Erla og Haukur eru gamlir vinir Smára og Birkis og þetta er í fyrsta skipti í ábyggilega meira en tuttugu ár þar sem þau fjögur eru í sama herberginu á sama tíma. Því er um að ræða mikinn fagnaðarfund. Haukur greinir og garfar, Erla lætur mannskapinn heyra það. Alltaf sama platan er boði Matarbúðarinnar Nándin, Austurgötu 47, Hafnarfirði og Básvegi 10, Keflavík. Gómsætar matvörur bæði beint frá býli og stærri framleiðendum í einstakri verslun sem selur allt í gleri eða jarðgeranlegum umbúðum. Vöruúrvalið er ætlað til að mæta helstu þörfum heimila svo viðskiptavinir eiga að geta keypt inn fyrir heimilið sínar helstu vörur í umhverfisvænum umbúðum og skilað þeim. Birkir og Smári drekka glaðir te og seið frá Urta Islandica (https://webshop.urta.is/) Finnið Nándina á samfélagsmiðlum og fylgist með. Smellið á https://www.matarbudin.is/ Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi og skjávarpa til sölu og leigu. Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á http://www.luxor.is og rannsakið.

    Mon, 14 Mar 2022 - 2h 46min
  • 13 - 12. Ballbreaker (Rúnar Hallgrímsson)

    MATARBÚÐIN NÁNDIN KYNNIR: Alltaf sama platan #12 - Ballbreaker Þögn þáttastjórnandi var ærandi eftir The Razor's Edge þáttinn rétt eins og þögn AC/DC eftir sömu plötu. Fimm ár milli platna er langur tími þegar AC/DC er annars vegar. Var sú bið þess virði? Þið komist að því að þætti loknum! En eitt er óumflýjanlegt... Phil Rudd snéri aftur og Jeremías, María og Jósef. Ha! Sérstakur gestur þáttarins er Ólafsvíkingurinn og AC/DC safnarinn geðþekki, Rúnar Hallgríms, en hann er líka sérlega öflugur velunnari Alltaf sömu plötunnar og teflir fram ljósmyndum og fróðleik um plöturnar sem við fjöllum um í hvert sinn sem þættirnir fara í loftið. Alltaf sama platan er í boði Matarbúðarinnar Nándin, Hafnarfirði. https://www.matarbudin.is/nandin/ Þátturinn er studdur af Luxor: Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. https://www.luxor.is Snæfugl 2022

    Thu, 6 Jan 2022 - 2h 00min
Show More Episodes