Filtrar por género
- 31 - 30. FRUMKVÖÐLAUMHVERFIÐ KENNIR MANNI MIKLA SEIGLU – Sigurlína Ingvarsdóttir, stofnandi Behold Ventures
Sigurlína Ingvarsdóttir hefur síðan árið 2006 unnið við að búa til þekkta tölvuleiki bæði á Íslandi og víða um heim. Í COVID ákvað hún að flytja heim til Íslands og skipti um hlutverk innan tölvuleikjaheimsins þegar hún stofnaði sjóðinn Behold Ventures sem fjárfestir í fyrirtækjum sem eru að þróa tölvuleiki og tengda tækni á Norðurlöndunum. Lína sagði mér frá sinni vegferð og Behold Ventures auk þess að gefa sín bestu ráð til frumkvöðla. Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi
Tue, 08 Aug 2023 - 29min - 30 - 29. MENNTUN STÚLKNA ER ÁHRIFARÍK LOFTSLAGSLAUSN – Guðný Nielsen, framkvæmdastjóri og stofnandi SoGreen
Guðný Nielsen er framkvæmdastjóri og stofnandi SoGreen sem er sprotafyrirtæki sem hefur þróað aðferðafræði til þess að reikna út hversu mikil loftslagsáhrif það hefur að tryggja stúlkum menntun. Guðný sagði mér frá sinni vegferð og upplifun af því að byggja sprotafyrirtæki með stórt samfélagslegt markmi, eins og að tryggja 130 milljónum stúlkna menntun. Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi
Wed, 02 Aug 2023 - 26min - 29 - 28. HVERNIG BÝRÐU TIL HUGVERK SEM GETUR NÁÐ ÁRANGRI ALÞJÓÐLEGA – Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Tulipop
Helga Árnadóttir er framkvæmdastjóri og ein af stofnendum Tulipop sem er fyrirtækið á bakvið töfraheiminn, fígúrurnar, sögurnar, teiknimyndirnar og vörurnar sem mörg okkar, og þá allra helst börn og foreldrar, könnumst við. Helga sagði mér söguna af því hvernig Tulipop varð til og hvernig þeim hefur tekist að fjármagna verkefnið, en Tulipop tók inn 250 milljón króna fjárfestingu í byrjun árs 2023. Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi
Mon, 03 Jul 2023 - 33min - 28 - 27. EF ÉG ER AÐ GERA ÞAÐ SEM ÉG BRENN FYRIR ÞÁ MUN ÞAÐ LEIÐA MIG Á RÉTTAN STAÐ – Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, framkvæmdastjóri Empower
Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé er framkvæmdastjóri og ein af stofnendum Empower sem er að þróa hugbúnaðarlausn sem stuðlar að auknu jafnrétti og fjölbreytni á vinnustöðum. Þórey hefur farið um víðan völl allt frá fyrirsætubransanum yfir í aktívisma, pólitík og ráðgjafastörf. Hún sagði mér frá sinni vegferð og hvernig jafnrétti og fjölbreytni varð að rauða þræðinum í hennar leik og starfi. Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi.
Wed, 14 Jun 2023 - 35min - 27 - 26. NETÖRYGGI: HIÐ FULLKOMNA TÆKIFÆRI TIL AÐ GERA ÓLÖGLEGA HLUTI Á LÖGLEGAN HÁTT – Guðrún Valdís Jónsdóttir, upplýsingaöryggisstjóri og öryggisráðgjafi hjá Syndis
Guðrún Valdís Jónsdóttir er upplýsingaöryggisstjóri og öryggisráðgjafi hjá tölvuöryggisfyrirtækinu Syndis. Hún er með gráðu í tölvunarfræði frá Princeton og hefur starfað við öryggisprófanir bæði í Bandaríkjunum og á Íslandi auk þess að vera virk í félagsstarfi kvenna í atvinnulífinu. Guðrún sagði mér frá sinni vegferð, hvernig hún byggði upp tengslanet á Íslandi eftir nám í Bandaríkjunum og hvernig það væri að starfa sem „góður hakkari“. Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi.
Thu, 16 Mar 2023 - 24min - 26 - 25. ÞVÍ FJÖLBREYTTARI, ÞVÍ BETRI - Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri GeoSilica
Fida Abu Libdeh er framkvæmdastjóri og stofnandi Geosilica sem framleiðir náttúruleg fæðubótarefni í vökvaformi sem unnin eru úr steinefnum úr jarðhitasvæðum Íslands. Fida kemur upprunalega frá Palestínu, er með meistarapróf í umhverfis- og orkutæknifræði og hefur undanfarin áratug byggt fyrirtækið sitt frá grunni ásamt því að vera áberandi í nýsköpunarumhverfinu á Íslandi. Við Fida ræddum um hennar vegferð, hvernig hún byggði sitt tengslanet á Íslandi sem innflytjandi og muninn á fjölbreytni, inngildingu og jafnrétti. Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi.
Thu, 02 Mar 2023 - 24min - 25 - 24. ÞAÐ ER SVO GAMAN AÐ STARFA Á ÞESSUM VETTVANGI – Soffía Kristín, Product Manager fyrir Paxflow hjá Origo og stjórnarformaður KLAK
Soffía Kristín Þórðardóttir er Product Manager fyrir Paxflow hjá Origo og stjórnarformaður KLAK. Hún hætti í læknisfræði til þess að vinna í tækni- og nýsköpunarheiminum og fá að „föndra í vinnunni“. Soffía sagði mér frá sinni vegferð, hennar bestu ráðum til frumkvöðla og hvernig nýsköpun á líka heima í rótgrónum fyrirtækjum eins og Origo. Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi.
Thu, 26 Jan 2023 - 31min - 24 - 23. IF SOMEONE ELSE HAS DONE IT, WELL, I CAN DO IT! – Renata Bade Barajas, CEO and Co-founder of Greenbytes
This is the first time I am publishing an episode in English and it is with a good reason. My guest is Renata Bade Barajas, CEO and co-founder of Greenbytes. Renata is originally from Mexico, her parents being Mexican and German, and she has lived, learned and worked around the globe. She told me about her journey, how Greenbytes is working towards solving foodwaste and how the startup has secured over 1M dollars in funding. This is the episode: „If someone else has done it, well, I can do it!“ With Renata Bade Barajas. The podcast is sponsored by Origo and Framvís.
Wed, 11 Jan 2023 - 32min - 23 - 22. ÞAÐ ER ALLTAF PLÁSS FYRIR ÞIG Í NÝSKÖPUNARSENUNNI - Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK
Kristín Soffía Jónsdóttir er framkvæmdastjóri KLAK sem styður við frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtæki á Íslandi með ýmsum hröðlum, prógrömmum, viðburðum og fleiru. Kristín sagði mér frá sinni vegferð úr pólitík yfir í nýsköpun, stemmingunni hjá KLAK, mikilvægi inngildingar í nýsköpunarheiminum og deildi einnig frábærum ráðum fyrir frumkvöðla. Þetta er þátturinn „það er alltaf pláss fyrir þig í nýsköpunarsenunni“ með Kristínu Soffíu. Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi.
Wed, 21 Dec 2022 - 27min - 22 - 21. VIÐ ERUM AÐ HJÁLPA HUGMYNDUM AÐ FLJÚGA - Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Íslands. Hún er ung kona sem hefur sannarlega sett sitt mark á íslensk stjórnmál á undanförnum árum og vinnur nú að því að byggja glænýtt ráðuneyti með nýrri nálgun og áherslum. Áslaug ræddi við mig um sína vegferð, mikilvægi fjölbreytileikans og forgangsröðunar og hvað það er mikilvægt að sækjast eftir tækifærunum og láta það ekki á sig fá þótt manni mistakist. Styrktaraðilar hlaðvarpsins eru Origo og Framvís, samtök vísisfjárfesta á Íslandi.
Wed, 30 Nov 2022 - 35min - 21 - 20. VÍSISFJÁRFESTINGAR SNÚAST MEIRA UM EQ EN IQ - Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, vísisfjárfestir hjá Brunni Ventures
Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir er vísisfjárfestir hjá Brunni Ventures sem fjárfestir í fjölbreyttum sprotafyrirtækjum. Margrét sagði mér frá sinni vegferð, hvernig hún hefur fengið frábær atvinnutækifæri, hverju þau eru að leita að hjá Brunni og hvaða ráð hún gefur frumkvöðlum. Frekari upplýsingar um Brunn má finna á www.brunnurventures.com
Wed, 13 Apr 2022 - 34min - 20 - 19. ÞAÐ ER ROSA GAMAN AÐ VINNA FYRIR SJÁLFA SIG - Bára Atladóttir, eigandi BRÁ verslunar
Bára Atladóttir er stofnandi og eigandi BRÁ verslunar, sem selur kjóla, kimono-a og ýmsan kvenfatnað í fjölbreyttum stærðum. BRÁ verslun byrjaði á eldhúsborðinu heima hjá mömmu Báru þar sem hún saumaði flíkur og seldi þær svo á Facebook en í dag er verslunin hýst í 600 fm húsnæði í Mörkinni. BRÁ verslun má finna á www.braverslun.is
Wed, 02 Feb 2022 - 22min - 19 - 18. ÞAÐ ÞARF AÐ SETJA KONUR Á DAGSKRÁ - Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA
Andrea Róbertsdóttir er framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA. Hún hefur trölla trú á íslenskri kvenorku og konum sem hvetja hvora aðra til góðra verka. Andrea ræddi við mig um sína vegferð, mikilvægi tengslanetsins, konur í nýsköpun og fjölbreytileika atvinnulífsins.
Wed, 19 Jan 2022 - 35min - 18 - 17. HVERGI Í HEIMINUM ER JAFN MIKIÐ AF NÝSKÖPUNARSJÓÐUM STÝRT AF KONUM - Helga Valfells, framkvæmdastjóri Crowberry Capital
Helga Valfells er stofnandi og framkvæmdastjóri fjárfestingasjóðsins Crowberry Capital, sem er öflugur íslenskur vísissjóður sem hefur fjárfest í framúrskarandi nýsköpunar fyrirtækjum. Helga býr að fjölbreyttri reynslu sem spannar yfir heimsálfur og fjölbreyttar atvinnugreinar, en hún sagði mér frá sinni vegferð og Crowberry capital í live upptöku sumarið 2021. Stuttu eftir að viðtalið var tilkynnt um stofnun Crowberry tvö, 11,5 milljarða króna vísissjóð, sem er sá stærsti sem settur hefur verið saman á Íslandi. Þetta er þátturinn „Hvergi í heiminum er jafn mikið af nýsköpunarsjóðum stýrt af konum“ með Helgu Valfells.
Wed, 05 Jan 2022 - 33min - 17 - 16. TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐUR - Kolbrún Bjargmundsdóttir - Sérfræðingur hjá Rannís
Tækniþróunarsjóður er stærsti nýsköpunarsjóðurinn á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem styrkir fjölda nýsköpunarverkefna á ári hverju. Alma Dóra fékk því til sín Kollu, Kolbrúnu Bjargmundsdóttur, verkefnastjóra hjá Rannís, til að ræða upplag sjóðsins og hvað skal hafa í huga þegar skrifa á umsókn. Bent er á að viðtalið var tekið upp sumarið 2020 en þátturinn kemur út í mars 2021 og bendum við því á heimasíðu sjóðsins fyrir nákvæmar upplýsingar: https://www.rannis.is/sjodir/rannsoknir/taeknithrounarsjodur/
Mon, 08 Mar 2021 - 24min - 16 - 15. SVARIÐ VERÐUR ALLTAF NEI EF ÞÚ SÆKIST EKKI EFTIR ÞVÍ SEM ÞÚ VILLT - Ásta Kristín Sigurjónsdóttir - Framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans
Gestur Ölmu Dóru í þætti dagsins er Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans. Ásta hefur starfað náið með frumkvöðlum víða um land á sínum starfsferli og deilir í þættinum fjölmörgum góðum ráðum sem koma sér vel í verkfærakassanum þegar byggja á fyrirtæki. Í þættinum ræðir hún einnig sína eigin vegferð, klasastarfsemina á Íslandi og framtíðina fyrir ferðaþjónustuna, í COVID lausum heimi. Hægt er að kynna sér starfsemi Íslenska ferðaklasans og það sem hann hefur upp á að bjóða á www.icelandtourism.is/
Tue, 09 Feb 2021 - 29min - 15 - 14. EKKI GEFAST UPP – Hulda Birna Baldursdóttir Kjærnested
Hulda Birna Baldursdóttir Kjærnested er ein þeirra fræknu verkefnastjóra sem hafa veitt frumkvöðlum aðstoð og tækifæri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Viðtalið var tekið upp sumarið 2020, og eins og flestir vita þá stóð til að leggja niður stofnunina um áramótin. Ég ræddi við Huldu um starfið sem Nýsköpunarmiðstöð hefur hýst í gegnum árin, lærdóminn sem við getum dregið af starfi hennar og hvað mun taka við, bæði hjá henni sjálfri og í stuðningskerfi frumkvöðla á Íslandi. Hægt er að skoða ýmis tæki og tól sem geta aðstoðað við nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi á www.nyskopunarmidstod.is
Tue, 26 Jan 2021 - 27min - 14 - 13. VIÐ ÞURFUM AÐ HVETJA KONUR MEIRA ÁFRAM – Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir - Verkefnastjóri nýsköpunar hjá Háskóla Íslands
Gestur þáttarins í dag er Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir, verkefnastjóri nýsköpunar hjá Háskóla Íslands. Ólöf er lögfræðingur að mennt og hefur borið marga mismunandi hatta innan nýsköpunarsenunnar á Íslandi. Í þættinum segir hún okkur frá sinni vegferð og öllu því helsta sem er að gerast í nýsköpunarmálum hjá Háskóla Íslands. Þetta er þátturinn „Við þurfum að hvetja konur meira áfram“ með Ólöfu Vigdísi Ragnarsdóttur.
Mon, 18 Jan 2021 - 00min - 13 - 12. JAFNRÉTTI OG FJÖLBREYTNI ERU MANNRÉTTINDI – Birna Bragadóttir – Stjórnarformaður Hönnunarsjóðs
Gestur tólfta þáttar af konum í nýsköpun er Birna Bragadóttir, stjórnarformaður Hönnunarsjóðs. Auk þess að gefa góð ráð fyrir umsækjendur sjóðsins ræðir Birna sína eigin vegferð og fjölmörgu verkefni í þættinum. Birna er ötul talskona jafnréttismála og kemur með frábæra punkta um það hvernig er hægt að stuðla að jafnrétti í styrkjaúthlutunum, starfsauglýsingum og viðskiptalífinu öllu. Hægt er að fræðast meira um Hönnunarsjóð inn á heimasíðu sjóðsins, www.sjodur.honnunarmidstod.is Þetta er þátturinn „Jafnrétti og fjölbreytni eru mannréttindi“ með Birnu Bragadóttur.
Mon, 11 Jan 2021 - 00min - 12 - 11. VIÐ ERUM ALLAR ROSALEGA ÓLÍKAR, EN SAMT ERUM VIÐ OFT AÐ DÍLA VIÐ SÖMU HLUTINA - Andrea og Kristjana - Stjórnarkonur UAK
Í þættinum í dag ræðir Alma Dóra við Andreu Gunnarsdóttur og Kristjönu Björk Barðdal, stjórnarkonur Ungra athafnakvenna, eða UAK. Þær ræddu um starfsemi félagsins, tengingu þess við nýsköpun og hvernig komandi kynslóðir ungra athafnakvenna munu hrista upp í íslensku atvinnulífi. Hægt er að kynna sér starfsemi og dagskrá félagsins betur á heimasíðu þeirra, www.uak.is
Fri, 13 Nov 2020 - 28min - 11 - 10. STOFNENDAVEGFERÐIN ER SVAKALEGUR RÚSSÍBANI – Stefanía Bjarney – Meðstofnandi og framkvæmdastjóri Avo
Í þættinum ræðir Alma Dóra við eina af sínum helstu fyrirmyndum úr nýsköpunarheiminum, Stefaníu Bjarneyju Ólafsdóttur. Stefanía er meðstofnandi og framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Avo sem hefur verið að gera frábæra hluti undanfarið og er, meðal annars, fyrsta íslenska fyrirtækið til að vera valið til þáttöku í Y Combinator. Stefanía sagði frá sinni vegferð og upplifuninni af Y Combinator. Auk þess ræddu þær hvernig er að skipta um stefnu í miðri sprotavegferð, mikilvægi þess að forðast hlutdrægni við ráðningar og rússíbanann sem það er að koma sprotafyrirtæki á laggirnar. Hægt er að fræðast um Avo á vefsíðu þeirra, www.avo.app
Fri, 06 Nov 2020 - 34min - 10 - 9. ÞAÐ SKORTIR VISSULEGA EKKI HÆFILEIKARÍKAR KONUR - Salóme Guðmundsdóttir - Framkvæmdastjóri Icelandic Startups
Í þættinum ræðir Alma Dóra við Salóme Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Icelandic Startups. Hún sagði henni frá því hvernig þau styðja við fjölbreytta frumkvöðla á fjölbreytta vegu, og þá sérstaklega í gegnum að tengja og hraða sprotafyrirtækjum. Einnig ræddu þær viðskiptahraðlana sem þau bjóða upp á og frumkvöðlakeppnina Gulleggið. Ölmu Dóru grunaði að sjálfsögðu ekki í sumar þegar viðtalið var tekið upp, að þegar það kæmi út væri hennar eigið teymi, HEIMA, ný búið að sigra Gulleggið 2020. Hægt er að hafa samband við Icelandic Startups og nýta sér þjónustu þeirra á vefsíðunni www.icelandicstartups.is
Mon, 26 Oct 2020 - 26min - 9 - 8. ÞÚ SANNFÆRIR FÓLK EKKERT Á EINU BRETTI UM NÝJA HUGMYND - Þorbjörg Helga - Stofnandi Kara Connect
Í þætti dagsins kemur hún Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Kara Connect, og ræðir við Ölmu Dóru. Margir kannast við Þorbjörgu úr pólitík og borgarstjórn en frumkvöðlastörf hafa átt hug hennar allan síðastliðin ár. Í þættinum ræðir Þorbjörg sína vegferð, uppbyggingu og fjármögnun Köru og áskoranir sem margir kvenfrumkvöðlar ættu að kannast við. Hægt er að fræðast meira um Kara Connect á vefsíðu þeirra, https://www.karaconnect.com/
Mon, 19 Oct 2020 - 31min - 8 - 7. ÞAÐ SKIPTIR MÁLI AÐ HAFA FYRIRMYNDIR - Huld Magnúsdóttir - Framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs Atvinnulífsins
Huld Magnúsdóttir hefur átt í áralöngu sambandi við nýsköpun og starfar nú sem framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs Atvinnulífsins. Hún kom í viðtal til Ölmu Dóru og ræddi sína vegferð, starf sjóðsins og hverju þau leitast eftir í fjárfestingartækifærum. Einnig spjölluðu þær um mikilvægi fjölbreytni, fyrirmynda og jafnvægisins þegar man sinnir krefjandi störfum. Hægt er að fræðast um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins á www.nyskopun.is og lesa skýrslu Nordic Innovation um konur í nýsköpun sem Huld minnist á hér: https://www.nordicinnovation.org/2020/female-entrepreneurship-nordics-2020
Tue, 13 Oct 2020 - 27min - 7 - 6. AF HVERJU EKKI? - Edda og Melkorka - Stofnendur Nýsköpunarvikunnar
Gleðilega nýsköpunarviku! Edda og Melkorka eru stofnendur Nýsköpunarvikunnar sem haldin er í fyrsta skiptið 2020. Þær mættu í stúdíóið til Ölmu Dóru og deildu með henni sögum úr sinni vegferð, hvernig Nýsköpunarvikan kom til, hvað sé á dagskránni og hvaða væntingar þær hafa til næstu ára. Einnig eru þær báðar vel sjóaðar úr nýsköpunarumhverfinu á Íslandi og deildu sínum bestu ráðum til frumkvöðla. Ég mæli með að kíkja á www.nýsköpunarvikan.is fyrir streymi af þeim fjölmörgu viðburðum sem eru á dagskránni. Einnig má nálgast frekari upplýsingar á FB síðu hátíðarinnar.
Mon, 05 Oct 2020 - 26min - 6 - 5. HAFIÐ MEIRI TRÚ Á HUGMYNDINNI OG YKKUR - Guðrún Tinna - Stjórnarformaður Svanna
Í þættinum í dag ræðir Alma Dóra við Guðrúnu Tinnu Ólafsdóttur, stjórnarformann Svanna lánasjóðs. Svanni lánar fyrirtækjum sem stofnuð og leidd eru af konum án þess að frumkvöðlarnir þurfi að gefa veð, til dæmis í fasteign eða öðrum eignum heimilisins. Tinna segir okkur frá sinni eigin frumkvöðlavegferð, starfsemi og framtíðaráherslum Svanna og deilir sínum helstu lyklum í frumkvöðlastörfum. Hægt er að kynna sér starfsemi Svanna betur á www.atvinnumalkvenna.is
Sun, 04 Oct 2020 - 32min - 5 - 4. ATVINNUMÁL KVENNA - Ásdís - Verkefnastjóri hjá Vinnumálastofnun
Ásdís Guðmundsdóttir er gestur Ölmu Dóru í þessum þætti, en hún er verkefnastýra Atvinnumála kvenna. Ásdís sagði frá styrkjunum sem þau veita, lýsti ferlinu og gaf ráð til þeirra sem hafa hug á að sækja um styrki. Ásdís hefur unnið með fjölda frumkvöðla í gegnum árin og hefur margar góðar sögur sem gaman er að. Hægt er að lesa sér til um Atvinnumál kvenna á www.atvinnumalkvenna.is
Mon, 28 Sep 2020 - 29min - 4 - 3. KONUR ÞURFA LÍKA AÐ STÝRA FJÁRMAGNINU - Jenný Ruth – Fjárfestir og meðstofnandi Crowberry Capital
Í þessum þætti spjallar Alma Dóra við Jenný Ruth Hrafnsdóttur, meðstofnanda Crowberry Capital. Crowberry er íslenskur vísissjóður sem fjárfestir í tæknidrifnum nýsköpunarfyrirtækjum sem eru snemma á sínum lífsferli. Jenný sagði frá sínu starfi hjá Crowberry, vegferðinni sem leiddi hana þangað og sínum hugleiðingum um nýsköpunarumhverfið á Íslandi. Frekari upplýsingar um Crowberry er hægt að finna á www.crowberrycapital.com
Mon, 21 Sep 2020 - 32min - 3 - 2. RÆDDU HUGMYNDINA - Gréta María - Stjórnarformaður Matvælasjóðs
Viðmælandi Ölmu Dóru í þessum þætti er Gréta María, stjórnarformaður Matvælasjóðs sem er einn af nýjustu sjóðum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Gréta ræddi sína vegferð og þá reynslu sem hún tekur með sér inn í starf sjóðsins og deildi sínum bestu ráðum til frumkvöðla og þeirra sem hyggjast sækja um í Matvælasjóð. Auk þess sagði hún frá upplagi sjóðsins og þeim markmiðum og aðgerðum sem stjórnin hefur sett af stað til að stuðla að jöfnum tækifærum kynjanna. Hægt er að finna frekari upplýsingar um Matvælasjóð á www.matvaelasjodur.is Umsóknarfrestur er 21. september 2020
Thu, 17 Sep 2020 - 28min - 2 - 1. NÝSKÖPUNARLANDIÐ ÍSLAND – Þórdís Kolbrún – Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Í byrjun sumars sat Alma fyrir Þórdísi Kolbrúnu, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra til að gulltryggja sér viðtal við hana fyrir þinglok. Það reyndist þó vera algjör óþarfi þar sem hún var meira en til í að vera með. Í þættinum ræða þær hvernig Þórdís varð næstyngsti ráðherra Íslandssögunnar, áhrifafólkið í hennar vegferð og nýsköpunarlandið Ísland 2030.
Mon, 14 Sep 2020 - 32min - 1 - 0. KYNNING – Alma Dóra – Konur í nýsköpun
Sumarið 2020 fékk Alma Dóra Ríkarðsdóttir (að eigin sögn) besta sumarstarf sem nokkur viðskiptafræðingur og meistaranemi í kynjafræði gæti óskað sér. Á styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna rannsakaði hún stöðu og valdeflingu kvenna til nýsköpunar hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Ásamt því að uppfæra kynjuðu tölfræðina hjá nýsköpunarsjóðum ráðuneytisins tók hún viðtöl við áhrifakonur úr nýsköpunarumhverfinu á Íslandi. Í þessu hlaðvarpi verður hægt að hlusta á þessi viðtöl og fræðast um hvað er að gerast í nýsköpun á Íslandi með jafnréttissjónarmið að leiðarljósi. Þetta eru konur í nýsköpun.
Wed, 09 Sep 2020 - 02min
Podcasts similares a Konur í nýsköpun
- El Partidazo de COPE COPE
- Herrera en COPE COPE
- The Dan Bongino Show Cumulus Podcast Network | Dan Bongino
- David Guetta David Guetta
- The Parkinson's Podcast Davis Phinney Foundation
- Es la Mañana de Federico esRadio
- La Noche de Dieter esRadio
- MÓWI SIĘ Joanna Kołaczkowska i Szymon Majewski
- Express Biedrzyckiej - seria gorących, politycznych wywiadów Kamila Biedrzycka
- WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki , Piotr Kędzierski
- NASSAU BEACH CLUB IBIZA with Alex Kentucky Nassau Beach Club Ibiza
- Más de uno OndaCero
- Poranna rozmowa w RMF FM RMF FM
- Frjálsar hendur RÚV
- Í ljósi sögunnar RÚV
- El Larguero SER Podcast
- Nadie Sabe Nada SER Podcast
- SER Historia SER Podcast
- Todo Concostrina SER Podcast
- 安住紳一郎の日曜天国 TBS RADIO
- Англійський Експрес Англійський Експрес
- 辛坊治郎 ズーム そこまで言うか! ニッポン放送
- 飯田浩司のOK! Cozy up! Podcast ニッポン放送
- 武田鉄矢・今朝の三枚おろし 文化放送PodcastQR