Nach Genre filtern

Kveikur

Kveikur

RÚV Hlaðvörp

Hljóðvarpsútgáfa fréttaskýringaþáttarins Kveiks, þar sem áhersla er lögð á rannsóknarblaðamennsku og almennar fréttaskýringar.


Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

3 - Börnin og milljarðarnir
0:00 / 0:00
1x
  • 3 - Börnin og milljarðarnir

    Börn með fjölþættan vanda hafa árum saman verið vistuð í einkareknum búsetuúrræðum. Velta úrræðanna hleypur á milljörðum árlega. Aðstandendur og fyrrverandi starfsmenn lýsa veruleika barna sem fá takmarkaða faglega aðstoð. Kveikur skoðar hvernig markaðurinn varð til og hver fylgist með honum.


    Ritstjórn og dagskrárgerð: Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Arnar Þórisson og Hákon Pálsson.

    Ristjórn hlaðvarps: Arnhildur Hálfdánardóttir og Anna Marsibil Clausen

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Tue, 27 Oct 2026 - 48min
  • 2 - Risinn á barnum

    Hver ræður því hvað er í glasinu þínu? Keppinautar Ölgerðarinnar segjast útilokaðir frá viðskiptum við bari, veitingastaði, útihátíðir og jafnvel nemendafélög því samningar við Ölgerðina standi í veginum. Kveikur skoðar samninga og samskipti sem varpa ljósi á það hvernig einn risi getur mótað heilan markað. Ölgerðin hafnar því að útiloka keppinauta.


    Ritstjórn og dagskrárgerð: Jóhann Bjarni Kolbeinsson og Ingvar Haukur Guðmundsson

    Ristjórn hlaðvarps: Arnhildur Hálfdánardóttir og Anna Marsibil Clausen

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Tue, 13 Oct 2026 - 34min
  • 1 - Lyfjaþoka á hjúkrunarheimili

    Rúmur þriðjungur íbúa íslenskra hjúkrunarheimila fékk sterk geðlyf í fyrra, í mörgum tilvikum án greiningar á geðsjúkdómi. Aðstandendur lýsa ástvinum sem urðu svo sljóvgaðir að þeir héldu að um alvarleg veikindi væri að ræða.


    Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Árni Þór Theódórsson

    Hlaðvarpsritstjórn: Anna Marsibil Clausen.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Tue, 29 Sep 2026 - 41min