Nach Genre filtern
- 35 - 33. Björt Ólafsdóttir: Lærði að það er ekki hægt að gera allt í einu
Björt Ólafsdóttir einn eigenda fasteignaþróunarfélagsins Iðu og fyrrverandi ráðherra er stólpakona sem nýtir tímann í botn. Þessa stundina er hún að leggja lokahönd á lífrænu blokkina sem stendur við Frakkastíg 1. Björt er fjögurra barna móðir sem þarf reglulega að minna sig á að barnauppeldi er ekki Bootcamp-þjálfun. Í þættinum ætlum við að ræða lífshlaup Bjartar og hvernig hún komst á þann stað sem hún er á í dag. Eitt af því sem hún lærði af lífinu var að það er ekki alltaf hægt að gera allt í einu.
Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind, Fjallakofans og Mathildu í Smáralind og Kringlunni.
Mon, 26 Oct 2026 - 1h 28min - 34 - 32. Jóga Gnarr: Lífið er sirkus
Jóga Gnarr hefur haft það að ævistarfi að hjálpa fólki. Hún er með hjarta úr gulli og notar húmorinn til þess að fá umhverfið til að skilja samhengi hlutann. Hún mætir helst aldrei í viðtöl og það tók um það bil 20 ár að sannfæra hana um að mæta í þetta viðtal. Í þættinum ræðir hún lífshlaup sitt, sigra og sorgir og hvernig lífið umturnaðist þegar hún varð ástfangin af Jóni Gnarr. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind, Fjallakofans og Mathildu í Kringlunni og Smáralind.
Mon, 19 Oct 2026 - 1h 47min - 33 - 31. Þórdís Kjartansdóttir. Fædd 19. júní og þurfti að axla ábyrgð
Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Læknahúsinu Dea Medica er ein af þessum kláru og skemmtilegu konum sem lætur ekkert stoppa sig. Hún byrjaði að vinna þegar hún var 12 ára og hefur síðan þá verið með mörg járn í eldinum. Hún fæddist 19. júní og mamma hennar sagði henni að hún yrði að taka mið af því. Þegar Þórdís var tvítug snarbreyttist tilveran þegar foreldrar hennar fóru hvort í sína áttina. Hún eignaðist tvö börn á meðan hún var í læknisfræði og þegar hún var 48 ára eignaðist hún dóttur. Þórdís vill ekki sjá eftir neinu í lífinu og lætur drauma sína rætast. Það er kannski þess vegna sem hún gaf út plötu á dögunum. Þessi þáttur er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofinn og Mathilda.
Mon, 12 Oct 2026 - 1h 57min - 32 - 30. Dorrit Moussaieff: „Heimurinn minn var fullkominn"
Dorrit Moussaieff viðskiptakona og fyrrverandi eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar hefur átt ævintýralegt lífshlaup og er nú á tímamótum. Í þættinum ræddu þær þegar hún hitti Ólaf Ragnar fyrst, hvernig samband þeirra þróaðist og endaði fyrr á þessu ári. Hún varð ástfangin af Íslandi þegar hún kom fyrst til landsins og er alls ekki skilin við þjóðina þótt hjónabandinu sé lokið. Þessi þáttur er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofinn og Mathilda.
Mon, 05 Oct 2026 - 1h 08min - 31 - 29. Lukka Pálsdóttir: Við getum valið að vaxa
Lukka Pálsdóttir sjúkraþjálfari og einn af eigendum Greenfit býr yfir ákveðinni seiglu sem hefur komið henni á þann stað sem hún er í dag. Lukka hefur átt ótrúlegt lífshlaup en þegar hún fæddist höfðu foreldrar hennar gegnið í gegnum mikinn harm þegar faðir hennar lenti í flugslysi. Í þættinum ræðir Lukka um ástina, ævintýrin, myndkörfulán og fitubrennslupúls en líka Zone 2 sem er það sem flestir eru að tala um þessa dagana. En mæla snjallúrin og hringirnir þetta rétt? Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind, Fjallakofans og Mathilda í Kringlunni og Smáralind.
Mon, 28 Sep 2026 - 1h 43min - 30 - 28. Birgir Jónsson: Ef lífið er bílaleigubíll þá ætla ég að skila mínum útjöskuðum
Birgir Jónsson fyrrverandi forstjóri Play er rokkari sem er alltaf til í að hlaupa auka hring til þess að lífið verði allavega 9% skemmtilegra. Í þættinum talar Birgir um lífshlaupið og hjartans mál. Um tíma bjó hann í Rúmeníu og lýsir spillingunni sem þar var á áhrifaríkan hátt. Þótt hann þrífist best í mótvindi þá gengst hann við því að það sé ekki gott að vakna með kvíðahnút í maganum á hverjum degi eins og gerðist síðustu mánuðina hjá Play.
Þátturinn er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofans og Mathilda í Smáralind og Kringlunni.
Mon, 21 Sep 2026 - 1h 38min - 29 - 27. Anna Margrét Björnsson: Það þótti ekki fínt að berast á
Anna Margrét Björnsson, blaðamaður og upplýsingafulltrúi í Franska sendiráðinu, hefur lengi haft sterkan og persónulegan fatastíl. Svartur hefur alltaf verið í uppáhaldi, ásamt eyeliner og stöku hlébarðamunstri. Langafi hennar var Sveinn Björnsson, fyrsti forseti lýðveldisins, og í þættinum ræðum við meðal annars hvort það hafi haft einhver áhrif á uppvöxt hennar - eða alls engin. Faðir Önnu Margrétar starfaði í utanríkisþjónustunni og var sendiherra um tíma. Hún ólst að hluta til upp í Bretlandi og segist hafa fengið menningarsjokk þegar hún flutti til Íslands. Í þættinum tölum við um fatastíl og tísku, París og London, skinkuvæðinguna og mannasiði Þátturinn er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofans og Mathilda í Smáralind, Kringlunni og mathilda.is.
Mon, 14 Sep 2026 - 1h 10min - 28 - 26. Kristín Agnarsdóttir: Allar góðu ákvarðanirnar
Kristín Agnarsdóttir grafískur hönnuður býr í Lundúnum. Hún er á kafi inni í framtíðartækni og notaði tæknina til að eignast tvo drengi. Svo notaði hún gervigreindina til þess að skilja við barnsföður sinn. Þegar Kristín sagði föður sínum að hún væri að fara að mæta í þennan þátt þá hló hann upphátt og sagði: „Ætlar þú að ræða allar góðu ákvarðanirnar sem þú hefur tekið á lífsleiðinni" og spurði svo hvort þetta væri heil sería. Í þættinum ætlum við að ræða ástir og örlög, tækni og tísku og fara yfir það hvað er dýrmætt að eiga góðar vinkonur. Þessi þáttur er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofanum og Mathilda í Kringlunni og Smáralind.
Mon, 07 Sep 2026 - 1h 55min - 27 - 25. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson: Ég er í ástarsambandi með sjálfum mér
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður er félagslegur einfari sem líður best með sjálfum sér. Hann er einn af þessum mönnum sem tekið er eftir og fer alltaf sínar leiðir hvort sem það er í klæðaburði, lífsstíl eða vinnu. Í þættinum ætlum við að tala um lífshlaupið, gaddavírs peysur, fyrirsætuferilinn, Reykholtsmálið og ástina.
Þátturinn er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind og Blue Lagoon Skin Science.
Mon, 31 Aug 2026 - 1h 28min - 26 - 24. Sigurlín Ívarsdóttir: Útrásar árin ógnuðu fjölskyldulífinu
Sigurlín Ívarsdóttir prestur og fjölskylduráðgjafi hefur átt litríka tilveru. Hún var prestur í Bresku biskupakirkjunni í Lundúnum á árunum fyrir hrun þegar eiginmaður hennar starfaði hjá Kaupþingi. Hún segir að útrásárárin hafi einkennst af sukki og ógnað hennar fjölskyldulífi. Í þættinum ræðir Marta María við Sigurlín um lífshlaup hennar, áfallavinnu, tísku og hvað það skipti miklu máli að horfa á raunveruleikann eins og hann er. Og geta svo hlegið að öllu saman og haft gaman. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind.
Mon, 24 Aug 2026 - 2h 12min - 25 - 23. Hrund Gunnsteinsdóttir: Ég er mjög æst í þetta líf
Hrund Gunnsteinsdóttir höfundur InnSæi sagði upp draumastarfinu því hún var ekki að finna sig. Hún segist hafa farið allt of hratt upp metorðastigann sem leiddi til þess að heilsan brást. Við tók uppbyggingarferli sem varð að Prisma-námi sem sló í gegn. Í þættinum ætlum við að tala um lífshlaupið, taugakerfið, InnSæi og hvernig það var að finna ástina í örmum Alfreðs Gíslasonar.
Þátturinn er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind.Mon, 17 Aug 2026 - 1h 29min - 24 - 22. Inga Dóra Guðmundsdóttir: Er með plan B ef allt fer á versta veg á Grænlandi
Inga Dóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri hjá Air Greenland er hálf íslensk og hálf grænlensk. Hún fæddist á Íslandi en var á 13 ári þegar fjölskyldan flutti til Grænlands. Hún segist hafa fengið menningarsjokk þegar hún flutti til Qaqortoq og það hafi tekið tíma að aðlagast. Inga Dóra er ekkert blávatn og hefur gengt mörgum áhrifastöðum og tekið virkan þátt í pólitík. Hún var um tíma framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins. Í dag býr Inga Dóra í Nuuk ásamt fjölskyldu sinni. Í þættinum ætlum við að ræða lífshlaup Ingu Dóru og hvernig það sé að lifa í ótta við það sem gæti gerst ef Bandaríkin myndu yfirtaka Grænland.
Þátturinn er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind.
Mon, 10 Aug 2026 - 1h 44min - 23 - 21. Valgerður Halldórsdóttir: Stórt hús getur ekki bjargað ástarsamböndum
Valgerður Halldórsdóttir félags- og fjölskylduráðgjafi er sérfræðingur í stjúptengslum. Hún fór að hafa áhuga á stjúptengslum þegar hún varð sjálf stjúpmóðir. Hún segir að það þýði ekki neitt að kaupa hús og setja alla undir sama þak og halda að allt muni ganga eins og í sögu. Fólk verði að kynnast og það þýði ekkert að halda bara matarboð. Fólk þurfi að kynnast maður á mann. Tilfinningin að tilheyra skiptir lykilatriði þegar fólk setur saman nýja fjölskyldu. Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
Mon, 03 Aug 2026 - 1h 16min - 22 - 20. Vilborg Guðnadóttir: Drifkraftur lífsins er að sjá aðra vaxa
Vilborg Guðnadóttir geðhjúkrunarfræðingur var send í fóstur þegar hún var eins og hálfs árs því móður hennar fékk berkla. Hún flutti ekki aftur heim fyrr en hún var á sjöunda ári en þá var landslagið breytt. Hún byrjaði að safna sér fyrir íbúð þegar hún var 9 ára því hún upplifði að það væri engu að treysta. Þetta hafði mótandi áhrif og hefur Vilborg haft það að ævistarfi að hjálpa fjölskyldum í vanda. Í fyrra var hún sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þegar hringt var í hana frá forseta skrifstofunni hélt hún að forsetaembættið þyrfti handleiðslu og það hrökk upp úr henni hvers vegna það væri verið að verðlauna fólk fyrir að vinna vinnuna sína. En þannig er Vilborg. Hún er félagslegur einfari sem elskar að búa í blokk og með hjarta úr gulli.
Þátturin er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bilasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
Mon, 27 Jul 2026 - 1h 38min - 21 - 19. Kamilla Einarsdóttir: Ég get fyrirgefið allt ef fólk er fyndið
Rithöfundurinn Kamilla Einarsdóttir skrópaði sig úr út menntaskóla og fór að vinna á Vegas. Þegar hún var tvítug var hún búin að eignast tvö börn og voru blankheit slík að hún át vorrúllur í öll mál. Þegar Kamilla var þrítug bættist þriðja dóttirin í hópinn. Kamilla er einhleyp og sér ekki fyrir sér að fara í samband því umönnunarþörf hennar sé við frostmark. Í þættinum ræðir Kamilla lífshlaup sitt sem er ævintýralega spennandi og segir að það sé hægt að fyrirgefa fólki allt ef það sé fyndið. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab i Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5 í Hafnarfirði.
Mon, 20 Jul 2026 - 1h 46min - 20 - 18. Ragna Árnadóttir: Sækir alltaf í erfiðustu verkefnin
Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnets er þrjóskukind með góðan fatastíl. Hún er lögfræðingur og stjórnsýslunörd sem hefur verið óhrædd við að taka afdrifaríkar ákvarðanir. Hún var dómsmálaráðherra í bankahruninu og upplifði mikinn ótta þegar mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan heimili hennar. Í þættinum ræðir Ragna um ástina sem hún fann á Tunglinu þegar hún hitti manninn sinn, sumarbústaðaeldhúsið, hvað hafi nýst henni best á framabrautinni og hvað henni líði hræðilega illa í ljótum fötum.
Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab i Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5 í Hafnarfirði.
Mon, 13 Jul 2026 - 1h 38min - 19 - 17. Hildur Gunnlaugsdóttir: Fann ástina á Tinder og sló í gegn sem áhrifavaldur um fertugt
Hildur Gunnlaugsdóttir framkvæmdastjóri ASK arkitekta er praktískt í hugsun. Fyrir áratug fann hún ástina á Tinder þegar Hreiðar Leví Guðmundsson handboltastjarna súperlækaði hana. Í dag búa þau ásamt börnunum í fallegu raðhúsi í Hvassaleitinu. Hildur varð óvænt áhrifavaldur þegar hún ákvað að deila framkvæmdum á húsinu á Instagram. Hún er þessi fyndna og jákvæða týpa sem lætur fátt stoppa sig.
Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab i Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5 í Hafnarfirði.
Mon, 06 Jul 2026 - 1h 46min - 18 - 16. Sigurjón Sighvatsson: Ég hef aldrei verið númer eitt
Sigurjón Sighvatsson er einn fárra Íslendinga sem á að baki glæstan feril í Hollywood. Hann sló í gegn með Wild at Heart (1990) en hann var búinn að slá í gegn hérlendis þegar hann fór út í nám. Hann var í vinsælum hljómsveitum og lærði bókmenntafræði. Hann er einn af þeim sem er alltaf til í að taka aukahring til að ná meiri árangri. Við ræðum æskuna og hvernig það hafi verið að alast upp hjá einstæðri móður, tölum um sorgina sem hefur bankað upp á og stóru ástina sem hann fann snemma á lífsleiðinni.
Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
Mon, 29 Jun 2026 - 2h 04min - 17 - 15. Bryndís Hagan Torfadóttir: Stólpakona með hjartað á réttum stað
Bryndís Hagan Torfadóttir fyrrverandi framkvæmdastjóri SAS á Íslandi hefur átt litríkt lífshlaup. Hún hefur alltaf fylgt hjartanu sem hefur komið henni þangað sem hún ætlaði sér. Í þessum þætti förum við yfir æviskeiðið og hvað hún hafi lært en hún verður 80 ára á næsta ári. Bryndís fer yfir það hvað hefur gagnast henni best í lífinu og markmiðið hafi alltaf verið að gera sitt besta. Þessi þáttur er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
Mon, 22 Jun 2026 - 1h 49min - 16 - 14. Þorbjörg Hafsteinsdóttir: Ég vil ekki sjá eftir neinu
Þorbjörg næringaþerapisti og hjúkrunarfræðingur hefur lifað margbrotnu lífi. Hún er alin upp af einstæðri móður en faðir hennar stimplaði sig út og kom lítið við sögu framan af. Þegar þau voru að kynnast upp á nýtt fórst hann í sjóslysi. Hún fann ástina í Danmörku en leiðir skildi og svo féll hann frá langt fyrir aldur fram. Þorbjörg lifir heilbrigðu lífi og vill eldast með reisn. Í þættinum ræðum við sorgir og sigra.
Þátturinn er í boði:
Icelandair
Blue Lagoon Skin Science
SkincareLab í Smáralind
Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5
Mon, 15 Jun 2026 - 1h 39min - 15 - 13. Margrét Hugrún: Sumir vaxa best utan girðingarinnar
Margrét Hugrún Gústavsdóttir ólst upp hjá kornungri en sjálfstæðri móður á sjöunda áratug síðustu aldar. Þær fluttu víða sem olli því að hún þurfti að skipta oft um skóla en þannig sankaði hún að sér lífsreynslu og sjónarmiðum sem juku með henni bæði seiglu og sjálfsstæði. Á unglingsaldri urðu þýðingarmikil tengsl í lífi hennar þegar hún hitti föður sinn í fyrsta sinn en fljótlega eftir það var hún flutt til London. Margrét á mörg líf að baki. Hún sló eftirminnilega í gegn sem Mæja í kvikmyndinni Sódóma Reykjavík en í þættinum segir hún frá því hvernig það æxlaðist allt saman. Á dögunum útskrifaðist Margrét Hugrún með BA próf í mannfræði þar sem hún skrifaði lokaritgerð um stafræna mannfræði en í þættinum útskýrir hún meðal annars hvers vegna við ættum alls ekki að vera á félagsmiðlum eins og Facebook. Þátturinn er í boði: Icelandair Blue Lagoon Skin Science SkincareLab í Smáralind Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5
Mon, 08 Jun 2026 - 1h 30min - 14 - 12. Sasa: Það segir mér enginn hvað ég á að gera
Svanhildur Sigurðardóttir, eða Sasa eins og hún er kölluð er ein af þessum jákvæðu, duglegu og bjartsýnu manneskjum sem smitar annað fólk af lífsgleði sinni. Þegar hún var 11 ára bar hún út blöð og safnaði sér peningum, fór ein á skrifstofu Icelandair og pantaði sér miða til Kaupmannahafnar án þess að biðja um leyfi frá foreldrum sínum. Fyrir fimm árum greindist hún með krabbamein og hefur tekist á við veikindin með æðruleysi.
Hún er stemningsmanneskja sem er alltaf tilbúin til að taka aukaskref svo lífið verði örlítið skemmtilegra.
Þessi þáttur er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
Mon, 01 Jun 2026 - 1h 43min - 13 - 11. Gylfi Þór Þorsteinsson: Veröldin hrundi þegar mamma var myrt
Gylfi Þór Þorsteinsson verkefnastjóri hjá Rauða krossinum og oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ upplifði mikla sorg þegar móðir hans var myrt á bóndabæ fyrir Norðan. Hann gat ekki tekist á við sorgina, lokaði sig af og gat ekki grátið. Í þættinum ræðir Gylfi þennan hræðilega tíma og hvernig hann náði seinna á lífsleiðinni að koma hlutunum á réttan stað. Hann ræðir líka hvernig veröldin hrundi á nýjan leik þegar hann missti vinnuna og gekk í gegnum skilnað.
Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshruni 5.
Sun, 24 May 2026 - 1h 31min - 12 - 10. María Sigrún Hilmarsdóttir: Það stækkar fólk að lenda í áföllum
María Sigrún Hilmarsdóttir fréttamaður á fréttastofu Rúv. hefur fengið þung verkefni í lífinu. Eitt af því er að eignast fatlað barn. Hún lýsir ferlinu og hvernig hún hafi siglt í gegnum það. Í fyrra slasaðist hún alvarlega í skíðaslysi á Snæfellsjökli en er nú komin á kreik á ný. Í þættinum ræðum við sorgir og sigra og hvernig það hafi stækkað hana að fá snúin verkefni í fangið. Hún er bjartsýn og segist þakklát fyrir ástina og það að vera umvafin góðum vinkonum. Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
Mon, 18 May 2026 - 1h 39min - 11 - 9. Einar Þorsteinsson: Skíðin voru ekki ástæða skilnaðarins
Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík lifir drauminn í Seljahverfinu. Hann er tvíkvæntur og á að tvær dætur með fyrri eiginkonu sinni og tvo drengi með núverandi eiginkonu sinni, Millu Ósk Magnúsdóttur. Þau voru á leiðinni í tæknifrjóvgun þegar hún varð barnshafandi. Einar segir að lífið geti verið flókið og því skipti máli að fara reglulega til hjónabandsráðgjafa. Í þættinum ræðum við skíðaiðkun Einars og hvernig það kom til að skíðin hans enduðu heima hjá þáttastjórnanda. Hann segir að skíðin hafi ekki verið ástæða skilnaðarins. Þátturinn er í boði: Icelandair Blue Lagoon Skin Science SkincareLab í Smáralind Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5
Mon, 11 May 2026 - 1h 10min - 10 - 8. Brynjar Níelsson: Góð kona og guð það eina sem getur hjálpað fólki í vandræðum.
Brynjar Níelsson lögfræðingur skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann er íhaldssamur mannvinur og segir að fólk megi ekki láta reiðina fara með sig út í skurð. Hann lærði margt um mannleg samskipti þegar hann keyrði leigubíl á háskólaárunum. Hann var vinsæll lögmaður áður en hann fór inn á þing og segir að reynslan hafi kennt honum að það sé bara tvennt sem geti bjargað fólki út úr alvarlegum vandræðum. Það er að eiga góðan maka eða finna guð. Hann var orðinn fullorðinn þegar hann komast að því að faðir hans hefði eignast tvö börn utan hjónabands. Hann upplifði aldrei að foreldrar hans væri hamingjusamir. Það er kannski þess vegna sem fjölskyldan skiptir hann öllu máli í lífinu.
Þátturinn er í boði:
Icelandair
Blue Lagoon Skin Science
SkincareLab í Smáralind
Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5
Mon, 04 May 2026 - 1h 12min - 8 - 7. Þorvaldur Davíð sættist við pabba sinn áður en hann féll frá.
Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari seldi steina með ömmu sinni niður í bæ þegar önnur börn voru í leikskóla. Hann var barnastjarna en var alltaf að reyna að ýta leiklistinn í burtu. Í þættinum ræðir hann um uppvöxtinn, æskuna og það að eiga föður sem glímdi við alkóhólisma. Hann náði að sættast við pabba sinn áður en hann féll frá.
Marta María býður heim er í boði:
Icelandair
Blue Lagoon Skin Science
SkincareLab í Smáralind.
Mon, 27 Apr 2026 - 1h 26min - 7 - 6. Ellý Ármanns fann bróður sinn nýlega
Faðir Ellýjar reyndi að senda skipsfélaga sinn í DNA-próf því hann vildi ekki gangast við henni. Móðir hennar gafst ekki upp og réð lögmann til að fá úr faðerni Ellýjar skorið. Fyrir stuttu fann Ellý bróður sinn sem nánast jafngamall henni sjálfri. Við ræðum ástina, gjaldþrotið og hamingjublöðruna. En líka andlegar tengingar og hvað gerist þegar fólk fylgir hjartanu.
Marta María býður heim er í boði:
Icelandair
Blue Lagoon Skin Science
Skincarelab í Smáralind
Mon, 20 Apr 2026 - 1h 21min - 6 - 5. Helga Hlín er alltaf með olnbogana úti
Helga Hlín Hákonardóttir lögfræðingur og eigandi Strategíu lætur engan segja sér hvernig hún að haga sér. Í þættinum segir hún frá því þegar hún flutti til Reykjavíkur tvítug að aldri með barn á handleggnum og tíkarspena í hárinu til þess að hefja lögfræðinám. Svo rann upp sá dagur að hún mætti á þykkbotna Buffalo-skóm inn í fjármálaheiminn. Hún segist hafa verið rétt kona á réttum tíma en þetta var ekki bara heppni því hún er eldklár og fyndin. Marta María býður heim er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SkincareLab í Smáralind.
Mon, 13 Apr 2026 - 1h 29min - 5 - 4. Strákurinn í blokkinni sem lét ekkert stoppa sig
Ari Edwald oddviti Miðflokksins í Reykjavík er alinn upp í blokk í Álfheimum og þurfti sjálfur að hafa fyrir lífinu, ólíkt því sem margir halda. Við ætlum að fara yfir lífshlaupið, ræða sigra og fyrirmyndir og hvað lífið verður miklu skemmtilegra þegar það er stemning. Eitt af því fyrsta sem Ari kenndi mér fyrir 25 árum var að drekka Mojito.
Marta María býður heim er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SkincareLab í Smáralind.
Mon, 06 Apr 2026 - 1h 43min - 4 - 3. Lærði snemma að setja undir sig hausinn og halda alltaf áfram
Gestur minn í dag er Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri í Akureyri. Í þessum þætti ætlum við að ræða vinskapinn, hjarta tengingar og það að setja alltaf undir sig hausinn og halda alltaf áfram sama hvað á dynur. Við ætlum líka að ræða ástina, ófrjósemi og gleðina sem fylgdi því að fá að verða móðir. Hvernig það var að kveðja Sex and the City lífsstílinn og flytja ein síns liðs á Patreksfjörð þegar hún fékk bæjarstjórastarf í Vesturbyggð.
Mon, 30 Mar 2026 - 1h 24min - 3 - 2. 39 ára vinskapur dýpkar tilveruna
Gestur minn í dag er ein af mínum elstu og bestu vinkonum. Hún heitir Júlía Margrét Alexandersdóttir. Við tvær bundumst djúpum tilfinningaböndum þegar við pöntuðum 10 pepperóní pítsur heim til bekkjarbróður okkar. Júlía datt út af vinnumarkaði fyrir nokkrum árum vegna alvarlegra veikinda. Við ætlum þó ekki að velta okkur upp úr því í dag heldur rifa upp gömul prakkarastrik og fara yfir það þegar Júlía Margrét lærði að þrífa upp ælur þar sem við unnum saman á Glaumbar sem unglingar.
Marta María býður heim er í boði Icelandair, Blua Lagoon Skin Science og Skincarelab í Smáralind.Mon, 23 Mar 2026 - 1h 30min - 2 - 1. Lífið byrjar þegar þegar þú fattar að þú átt bara eitt lífFri, 20 Mar 2026 - 1h 28min
- 1 - Marta María býður heimMon, 16 Mar 2026
Podcasts ähnlich wie Marta María býður heim
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه
