Nach Genre filtern

Popparasögur

Popparasögur

Vignir Egill Vigfússon

Hlaðvarp á léttu nótunum þar sem fjallað er um íslenska tónlist og rætt er við tónlistarfólk og fjallað um hljómsveitir og tónlistarviðburði á Íslandi. 

38 - #38 | Sniglabandið og sannleikurinn um Jólahjól
0:00 / 0:00
1x
  • 38 - #38 | Sniglabandið og sannleikurinn um Jólahjól

    Fjórði og síðasti hlutinn um hljómsveitina Sniglabandið. Í síðasta hluta fóru þeir Diddi og Skúli yfir merkilega ferð bandsins til Sovétríkjanna árið 1989 þar sem þeir mútuðu löggunni, voru eltir af mafíunni, lentu í menningarsjokki, voru með fulla ruslapoka af rúblum og lifðu eins og rokkstjörnurnar sem þeir sögðust vera. Í þessum hluta segja þeir frá einu vinsælasta íslenska jólalagi allra tíma, Jólahjól, og hvað það gerði fyrir hljómsveitina. Þeir tala um þegar Skúli reyndi að fá leyfi frá Rolling Stones, einstakt samband meðlima, vináttuna, erfiðleikana sem þeir hafa gengið í gegnum saman, lýðræði og það að vera Í góðu skapi. Þessi þáttur er í boði Kölska - kolski.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

    Tue, 27 Oct 2026
  • 37 - #37 | Sniglabandið og mafían og mútur í Sovétríkjunum

    Þriðji hlutinn og mögulega einum þeim merkilegasta í sögu hljómsveitarinnar Sniglabandsins. Í fyrstu tveimur hlutunum var farið yfir upphaf sveitarinnar, ótrúlegar uppákomur frá fyrstu árunum, mannabreytingar, sunnudagskvöldið á Gauki á stöng, vinsælustu útvarpsþætti landsins og svo margt fleira. Í þessum þriðja hluta er fjallað um merkilega ferð Sniglabandsins til Sovétríkjanna árið 1989 þar sem þeir fóru á fimm mótorhjólum og einni rútu í tónleikaferðalag.   Þeir segja frá því hvernig þeir gistu í heimahúsum og kynntust fólkinu, fullum ruslapokum af rúblum og vandræðunum við að eyða þeim, mútum til lögreglunnar, mafíunni sem elti þá, menningarsjokkinu og hvernig bréf frá Davíð Oddssyni, þáverandi borgarstjóra, bjargaði Didda frá öskrandi lögreglumanninum sem beindi að honum rifli. Þessi þáttur er í boði Kölska - kolski.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

    Tue, 27 Oct 2026
  • 36 - #36 | Sniglabandið og vinsælasti útvarpsþáttur á Íslandi

    Annar hluti viðtalsins við hljómsveitina Sniglabandið. Í fyrsta hlutanum var farið víða og sagt frá upphafi sveitarinnar, ótrúlegum uppákomum frá fyrstu árunum þar sem kom við sögu dvergur að þvo bíl, hestur í Bólstaðarhlíðarbrekkunni, Jónas Friðrik, Hells Angels, putti í auga og margt fleira. Í þessum öðrum hluta fara þeir Diddi og Skúli yfir það hvernig hljómsveitin fór að þróa þá list að taka við óskalögum fólks í salnum, sunnudagskvöldið á Gauki á stöng, útvarpsþættina sem voru þeir vinsælustu á landinu og karakterana og grínið sem var til þar, lögin sem urðu til í þáttunum, samstarfið við Nylon, tónleika sveitarinnar og tilkomu nýrra meðlima í bandið. Þetta er annar hlutinn af fjórum af sögu Sniglabandsins. Þessi þáttur er í boði Kölska - kolski.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

    Tue, 20 Oct 2026
  • 35 - #35 | Sniglabandið og stundum þarf að stinga puttanum í augað

    Hljómsveitin Sniglabandið hefur verið ein af vinsælustu hljómsveitum Íslands síðustu áratugi og er hvergi nærri hætt. Hvort sem fólk tengir hljómsveitina við að vera í góðu skapi, útvarpsþættina þeirra vinsælu, Jólahjól, bifhjólasamtökin Sniglana, ferðalag þeirra til Sovétríkjanna, sunnudagskvöld á Gauki á stöng eða annað þá hafa þeir félagar verið áberandi nær allt frá stofnun árið 1985. Í þessum fyrsta hluta fara þeir Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson, eða Diddi, og Skúli Gautason yfir sögu sveitarinnar en auk þeirra eru í hljómsveitinni Björgvin Ploder, Einar Rúnarsson, Pálmi Sigurhjartarson og Þorgils Björgvinsson. Í þessum fyrsta hluta segja þeir frá upphafi Sniglabandsins, sveitaballabransanum, hljómsveitarrútunni sem var gamall matarvagn, hestinum í Bólstaðarhlíðarbrekkunni, fyrstu böllunum, mannabreytingum, Stebba Hilmars, eftirminnilegum uppákomum þegar gestir nálguðust sviðið í mismunandi tilgangi, dverg að þvo bíl, áherslubreytingum með nýjum mönnum og sérstöðu Sniglabandsins þegar kemur að sambandi við áhorfendur. Þetta er fyrsti hluti af fjórum af sögu Sniglabandsins. Þessi þáttur er í boði Kölska - kolski.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

    Tue, 20 Oct 2026
  • 34 - #34 | Friðrik Dór og listin við að rækta garðinn sinn

    Friðrik Dór hefur verið einn ástsælasti tónlistarmaður á Íslandi undanfarin eða allt frá því hann kom fram á sjónarsviðið með lög eins og Hlið við hlið, Leiðarlok og fleiri. Síðan þá hafa topplögin verið fjölmörg og vinsældir hans vaxið þrátt fyrir að hafa þurft að hafa fyrir hlutunum og takast á við áskoranir á leiðinni. Nýverið kom hann fram á tvennum tónleikum með SinfoniaNord í Hofi á Akureyri þar sem lögin hans voru spiluð í nýjum útsetningum og verða tónleikarnir endurteknir í Hörpu í lok október. Í viðtalinu talar hann um samstarf við menn eins og Erp Eyvindarson, Bubba Morthens og Jón bróður sínum Jónssyni, ævintýrið með IceGuys sem senn tekur enda og lukkuna á bak við það þegar Í síðasta skipti komst ekki í Eurovision. Friðrik talar einnig um hvernig tónlistin hefur þróast úr því að vera tímabundið ævintýri í að verða hans ævistarf, velgengnina í upphafi ferilsins, erfiðleikana sem fylgdu í kjölfarið, textagerðina og hvernig hversdagslegar setningar geta orðið að vinsælum lögum. Auk þess talar hann um breytingar á íslenskum tónleikamarkaði og hvernig hann sér fyrir sér næsta kafla á tónlistarferlinum. Þessi þáttur er í boði Kölska - kolski.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon

    Tue, 13 Oct 2026
Weitere Folgen anzeigen