Filtrar por género

Söguskoðun

Söguskoðun

Söguskoðun hlaðvarp

Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum. 

133 - 130 - Hollywood og upphaf kvikmyndaiðnaðarins
0:00 / 0:00
1x
  • 133 - 130 - Hollywood og upphaf kvikmyndaiðnaðarins

    Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um upphaf kvikmyndaiðnaðarins í Hollywood á fyrri helmingi 20. aldar. Kvikmyndaiðnaðurinn í Bandaríkjunum sem átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á menningarsenu Vesturlanda á 20. öld hófst á Austurströndinni. Upp úr 1920 tók California við sem miðstöð iðnaðarins og Hollywood breyttist úr litlu sveitaþorpi í blómstrandi kvikmyndamiðstöð. Fyrstu kvikmyndamógúlarnir voru utangarðsmenn sem sáu tækifæri í iðnaði sem ekki þótti í fyrstu nógu fínn fyrir yf...

    Sun, 25 Oct 2026
  • 132 - 129 - Sjálfstæðisbarátta Íslendinga og sjálfstæði Íslands

    Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um sjálfstæðisbaráttu Íslendinga sem var áratuglangt ferli þjóðríkismyndunar á Íslandi sem endaði með lýðveldisstofnuninni 1944. Sjálfstæðisbaráttan er eitt af stóru málunum í íslenskri sagnfræði og mikilvægur hluti af nútímasögu Íslands. Öldum saman voru Íslendingar tryggir þegnar danska konungsins en á fyrri helmingi 19. aldar breiddist íslensk þjóðernishyggja eins og eldur í sinu og pólitískt líf varð til í landinu. Þjóðríkismyndun á Íslandi var langur...

    Mon, 12 Oct 2026
  • 131 - 128 - Suðurríkin, þrælahaldið og aðdragandi ameríska borgarastríðsins

    Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um andstæður norður- og suðurríkja Bandaríkjanna sem gerðu vart um sig þegar leið á 19. öldina þar til uppúr sauð og borgarastyrjöld braust út. Bandaríkin voru á 19. öld að þróast úr sambandi ungra ríkja í stórveldi og á sama tíma jókst munurinn á samfélagi og efnahagslífi norðursins og suðursins. Í Suðurríkjunum varð mannaflsfrek bómullarframleiðsla undirstaða efnahagslífsins, á meðan iðnvæðing, innflutningur og fólksfjölgun einkenndu norðurríkin. ...

    Thu, 17 Sep 2026
  • 130 - 127 - Rússneska borgarastyrjöldin: Hverjir voru hvítliðar?

    Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um rússnesku borgarastyrjöldina sem skók Rússland árin 1917–1922 eftir byltingu bolsévika, og skoða sérstaklega þann hóp sem lét í minni pokann í styrjöldinni, þ.e. hvítliða. Hvítliðar voru ósamstæður hópur keisarasinna, lýðveldissinna, sósíalista og þjóðernishópa sem áttu fátt sameiginlegt annað en að vilja koma bolsévikum frá völdum eftir byltinguna í október 1917. Herir hvítliða voru dreifðir á jaðrinum í kringum kjarnasvæði Rússlands og lutu lauslega ...

    Fri, 28 Aug 2026
  • 129 - 126 - Hannibal, Karþagó og Púnverjastríðin

    Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um púnversku stríðin milli Rómar og Karþagó, með sérstaka áherslu á annað púnverska stríðið (218–201 f.Kr.) og leiðtoga Karþagómanna, Hannibal Barca. Hannibal er einn þekktasti herforingi fornaldarinnar og varð ódauðlegur í minni Rómverja fyrir herför sína frá Spáni til Ítalíu. Hann fór yfir Alpana með stríðsfíla og fjölmennan innrásarher og vann hvern stórsigurinn á fætur öðrum gegn Rómverjum á Ítalíu. Þrátt fyrir hernaðarsnilli sína og glæsilega sigra t...

    Fri, 17 Jul 2026
Mostrar más episodios