Filtra per genere
Söguskoðun

- 133 - 130 - Hollywood og upphaf kvikmyndaiðnaðarins
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um upphaf kvikmyndaiðnaðarins í Hollywood á fyrri helmingi 20. aldar. Kvikmyndaiðnaðurinn í Bandaríkjunum sem átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á menningarsenu Vesturlanda á 20. öld hófst á Austurströndinni. Upp úr 1920 tók California við sem miðstöð iðnaðarins og Hollywood breyttist úr litlu sveitaþorpi í blómstrandi kvikmyndamiðstöð. Fyrstu kvikmyndamógúlarnir voru utangarðsmenn sem sáu tækifæri í iðnaði sem ekki þótti í fyrstu nógu fínn fyrir yf...
Sun, 25 Oct 2026 - 132 - 129 - Sjálfstæðisbarátta Íslendinga og sjálfstæði Íslands
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um sjálfstæðisbaráttu Íslendinga sem var áratuglangt ferli þjóðríkismyndunar á Íslandi sem endaði með lýðveldisstofnuninni 1944. Sjálfstæðisbaráttan er eitt af stóru málunum í íslenskri sagnfræði og mikilvægur hluti af nútímasögu Íslands. Öldum saman voru Íslendingar tryggir þegnar danska konungsins en á fyrri helmingi 19. aldar breiddist íslensk þjóðernishyggja eins og eldur í sinu og pólitískt líf varð til í landinu. Þjóðríkismyndun á Íslandi var langur...
Mon, 12 Oct 2026 - 131 - 128 - Suðurríkin, þrælahaldið og aðdragandi ameríska borgarastríðsins
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um andstæður norður- og suðurríkja Bandaríkjanna sem gerðu vart um sig þegar leið á 19. öldina þar til uppúr sauð og borgarastyrjöld braust út. Bandaríkin voru á 19. öld að þróast úr sambandi ungra ríkja í stórveldi og á sama tíma jókst munurinn á samfélagi og efnahagslífi norðursins og suðursins. Í Suðurríkjunum varð mannaflsfrek bómullarframleiðsla undirstaða efnahagslífsins, á meðan iðnvæðing, innflutningur og fólksfjölgun einkenndu norðurríkin. ...
Thu, 17 Sep 2026 - 130 - 127 - Rússneska borgarastyrjöldin: Hverjir voru hvítliðar?
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um rússnesku borgarastyrjöldina sem skók Rússland árin 1917–1922 eftir byltingu bolsévika, og skoða sérstaklega þann hóp sem lét í minni pokann í styrjöldinni, þ.e. hvítliða. Hvítliðar voru ósamstæður hópur keisarasinna, lýðveldissinna, sósíalista og þjóðernishópa sem áttu fátt sameiginlegt annað en að vilja koma bolsévikum frá völdum eftir byltinguna í október 1917. Herir hvítliða voru dreifðir á jaðrinum í kringum kjarnasvæði Rússlands og lutu lauslega ...
Fri, 28 Aug 2026 - 129 - 126 - Hannibal, Karþagó og Púnverjastríðin
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um púnversku stríðin milli Rómar og Karþagó, með sérstaka áherslu á annað púnverska stríðið (218–201 f.Kr.) og leiðtoga Karþagómanna, Hannibal Barca. Hannibal er einn þekktasti herforingi fornaldarinnar og varð ódauðlegur í minni Rómverja fyrir herför sína frá Spáni til Ítalíu. Hann fór yfir Alpana með stríðsfíla og fjölmennan innrásarher og vann hvern stórsigurinn á fætur öðrum gegn Rómverjum á Ítalíu. Þrátt fyrir hernaðarsnilli sína og glæsilega sigra t...
Fri, 17 Jul 2026 - 128 - 125 - Hugmyndin um réttlátt stríð
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hugmyndina um réttlátt stríð, sem er í dag einn af hornsteinum alþjóðakerfisins en á sér heimspekilegar rætur allt aftur til fornaldar. Frá Aristótelesi til Ágústínusar veltu spekingar fyrir sér hvenær réttlætanlegt væri að hefja stríð og hvernig ætti að haga sér í stríði. Þær hugmyndir sem mótuðust í fornöld og á miðöldum innan vestrænnar heimspeki þróuðust síðar í nútímalegar hugmyndir um mannréttindi og stríðslög, og um það hvenær stríð teljast lögl...
Tue, 07 Jul 2026 - 127 - 124 - Ríki, vald og realismi: Hvernig haga ríki sér?
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um raunsæisstefnuna í alþjóðastjórnmálafræði sem greiningartæki til að skilja sögulega hegðun ríkja. Ólafur las bókina How States Think: The Rationality of Foreign Policy eftir John Mearsheimer og Sebastian Rosato og segir frá nálgun þeirra við að skilja ákvarðanatöku ríkja með gleraugum raunsæisstefnunnar. Mearsheimer hefur verið mikið í umræðunni vegna þeirra miklu sögulegu breytinga í heimsmálunum sem nú hafa verið að ganga í garð, en raunsæið er ásamt...
Wed, 24 Jun 2026 - 126 - 123 - Skálholt: Hinn forni höfuðstaður Íslands
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um biskupssetrið Skálholt sem var um sjö aldir einn helsti höfuðstaður landsins. Biskupsstóllinn í Skálholti var stofnaður árið 1056, skömmu eftir kristnitökuna á Íslandi. Skálholt varð miðstöð kirkjulegs valds og þróaðist jafnframt í auðugt stórbýli sem safnaði miklum eignum og varð eitt helsta mennta- og lærdómssetur landsins. Á blómaskeiði Skálholts á 13. öld bjuggu þar tugir manna og má segja að þar hafi verið vísir að þéttbýli. Undir lok 18. aldar fæ...
Tue, 09 Jun 2026 - 125 - 122 - Danmörk-Noregur: Staða Noregs í Aldinborgararíkinu
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um stöðu Noregs í danska konungsríkinu fyrir 1814. Danska konungsríkið, sem Ísland var hluti af, var fjölþjóðlegt og samsett konungsríki. Ríkið var stóð saman af Danmörku - með nýlendum sínum, Noregi - ásamt hjálendunum Íslandi, Grænlandi og Færeyjum, og hertogadæmunum Slésvík og Holtsetalandi. Noregur og Danmörk gengu í eina sæng á miðöldum og frá 1537 var Noregi stjórnað beint frá Kaupmannahöfn. Með Kílarsamningnum 1814 var Noregur svo færður frá ...
Sun, 15 Feb 2026 - 124 - 121 - Um uppruna bandarísku þjóðarinnar
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um uppruna bandarísku þjóðarinnar sem fyrst og fremst varð til upp úr landnámi breskra landema á 17. og 18. öld. Ólafur las bókina Albion's Seed: Four British Folkways in America eftir David Hackett Fischer og segir frá fjórum grunnstraumum landnema frá Bretlandseyjum til Nýja Englands, Pensylvaníu, Virginíu og Suðurríkjanna þriggja (Karólínunum og Georgíu). Þessir ólíku samfélagshópar mótuðu kjarnann í bandarísku samfélagi og má sjá spor þeirra í m...
Tue, 27 Jan 2026 - 123 - 120 - Jólaþáttur 2025 - Þorlákur helgi á Þorláksmessu
Í dag er Þorláksmessa að vetri, 23. desember - síðasti dagur jólaföstu og aðventu. Í tilefni þess ræða Söguskoðunarbræður um Þorlák helga Þórhallsson (1033-1093), Skálholtsbiskup og verndardýrðling Íslands í kaþólsku kirkjunni - sem dagurinn er kenndur við. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Tue, 23 Dec 2025 - 122 - 119 - Konungsríkið Jerúsalem og krossfararíkin í austri
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um krossafararíkin sem komið var á fót í Austurlöndum Nær í kjölfar fyrstu krossfararinnar 1095-1099. Konungsríkið Jerúsalem var stærst og mikilvægast krossfararíkjanna, enda var höfuðborg þess borgin helga. Í konungsríkinu lifðu múslimar og ýmsir kristnir trúarhópar, gyðingar, armenar, arabar og ítalskir kaupmenn, undir innfluttu lénskerfi frönsku- og latínumælandi Franka. Viðskipti milli Evrópu og Asíu blómstruðu og ríkið varð fastur hluti af heim...
Thu, 18 Dec 2025 - 121 - 118 - Þýska riddarareglan og krossferðirnar í norðri
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um Þýsku riddararegluna, einnig þekkt sem Tevtónska reglan eða Maríuriddarar, sem kom á fót þýsku landnema- og krossfararíki við Eystrasaltið á 13. öld. Þýska riddarareglan var stríðsmunkahreyfing, stofnuð í Palestínu eftir þriðju krossferðina um 1190. Hlutverk reglunnar var að hjúkra sjúkum krossförum og pílagrímum og berjast með krossförum í heilögu löndunum. Með dvínandi árangri í Palestínu færðu þýsku riddararnir sig heim til Þýskalands og...
Fri, 05 Dec 2025 - 120 - 117 - Hellenisminn og arftakar Alexanders
Í þættinum í dag halda Söguskoðunarmenn aftur til fornaldar til að ræða um hellenimsann sem var tímabilið í sögu Grikklands og Mið-Austurlanda eftir dauða Alexanders mikla og fram að öld Rómaveldis. Þegar Alexander lést árið 323 f.kr. eftirlét hann engan erfingja sem gat tekið við hinu gríðarstóra víðfeðma ríki sem hann hafði lagt undir sig frá Balkanskaga til Indlands. Ríkið skiptist upp í smærri einingar þar sem arftakar Alexanders stofnuðu grísk konungsríki, m.a. á svæðinu sem í dag er Afg...
Fri, 21 Nov 2025 - 119 - 116 - Um sósíalísku Júgóslavíu 1943-1992
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um Júgóslavíu eftir seinni heimsstyrjöld og fram að falli kommúnismans. Þátturinn er sjálfstætt framhald af þætti 89 - Um Júgóslavíu 1918-1941. Skæruliðar kommúnista undir stjórn landsföðurins Josip Broz Tito sameinuðu þjóðarbrot Júgóslavíu eftir miklar blóðsúthellingar seinni heimsstyrjaldar og endurreistu fjölþjóðlega ríkið á nýjum grunni. Sósíalíska Júgóslavía var öðruvísi en hin kommúnistaríkin í Austur-Evrópu. Eftir klofninginn við Stalín 1948 ...
Fri, 07 Nov 2025 - 118 - 115 - Kalda stríðið og þriðja heimsstyrjöldin II. hluti
Í þættinum í dag komu Ólafur og Andri saman til að ræða um þriðju heimsstyrjöldina sem sögulegt fyrirbæri, þ.e. stríðið sem aldrei varð á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna á síðari hluta síðustu aldar. Kalda stríðið var hugmyndafræðileg barátta tveggja ofurvelda sem skiptu heiminum á milli sín eftir endalok seinni heimsstyrjaldar. Í hálfa öld stóðu vígvélar NATO og Varsjárbandalagsins andspænis hverri annarri sitt hvoru megin við járntjaldið og lögðu á ráðin. Í þessum tvöfalda ...
Sat, 25 Oct 2025 - 117 - 114 - Kalda stríðið og þriðja heimsstyrjöldin I. hluti
Í þættinum í dag komu Ólafur og Andri saman til að ræða um þriðju heimsstyrjöldina sem sögulegt fyrirbæri, þ.e. stríðið sem aldrei varð á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna á síðari hluta síðustu aldar. Kalda stríðið var hugmyndafræðileg barátta tveggja ofurvelda sem skiptu heiminum á milli sín eftir endalok seinni heimsstyrjaldar. Í hálfa öld stóðu vígvélar NATO og Varsjárbandalagsins andspænis hverri annarri sitt hvoru megin við járntjaldið og lögðu á ráðin. Í þessum tvöfalda ...
Sat, 25 Oct 2025 - 116 - 113 - Íslam og arftakar Múhameðs: Hinar ýmsu greinar íslams
Í þættinum í dag fjalla Ólafur og Andri um íslam og hinar ýmsu hreyfingar og trúfélög innan íslamstrúar. Íslam er næstfjölmennustu trúarbrögð heims með yfir tvo milljarða fylgjendur. Eftir landvinninga og trúboð Múhameðs spámanns á 7. öld og útþennslu kalífadæmisins klofnaði hreyfingin fljótt í tvær höfuðgreinar, súnní og sjía íslam. Síðan þá hafa margar hreyfingar og hópar komið fram, eins og drúsar, alavítar, súfistar, alevistar, wahabistar, og svo mætti áfram telja. Hlaðvarpið Sögusk...
Fri, 03 Oct 2025 - 115 - 112 - Hundadagabyltingin 1809
Í þætinum í dag ræða Andri og Ólafur um einn óvenjulegasta atburð Íslandssögunnar, þegar Jörgen Jörgensen (Jörundur Hundadagakonungur) rændi völdum á Íslandi sumarið 1809 og lýsti yfir ótímabæru sjálfstæði Íslands. Sagan hefur verið innblástur skálda og höfunda, og hefur einnig verið mikið um hana fjallað á hinu fræðilega sviði. Jörundur kom með enskum kaupmönnum í miðri Napóleonsstyrjöld sem vildu koma á verslun við Íslendinga. Vegna tregðu danska stiftamtansins til að veita verslunarleyfi f...
Thu, 18 Sep 2025 - 114 - 111 - Íran-Írak stríðið
Í framhaldi af síðasta þætti um írönsku byltinguna ræða Andri og Ólafur í dag eitt af mannskæðustu stríðum 20. aldarinnar – stríðið milli Írans og Íraks 1980–1988. Saddam Hussein hóf forsetatíð sína í Írak með því að ráðast inn í Íran haustið 1980 í kjölfar írönsku byltingarinnar og þeirrar upplausnar sem þá ríkti í landinu. Stríðið stóð í átta ár og kostaði hundruð þúsunda mannslífa. Það var háð sem hefðbundið innrásarstríð með stórútgerðum í lofti, á láði og legi, þar sem vopn frá báðum hli...
Fri, 25 Jul 2025 - 112 - 110 - Íranska byltingin 1979
Í hlaðvarpinu í dag ræða Ólafur og Andri um írönsku byltinguna árið 1979, þegar síðasti keisari Írans (sha) var steypt af stóli og stofnað var róttækt íslamskt lýðveldi undir klerkastjórn. Íranska byltingin var afdrifaríkur atburður í nútímasögu Mið-Austurlanda. Ekki aðeins varð byltingin til þess að 2500 ára gömul stofnun íranska keisarans leið undir lok, heldur breyttist Íran á skömmum tíma úr einum helsta bandamanni Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, í miðju Kalda stríðinu, yfir í mesta and...
Fri, 11 Jul 2025 - 111 - 109 - Danmörk og Svíþjóð og baráttan um Norðurlönd
Í þættinum í dag fjalla Andri og Ólafur um langvarandi og blóðuga togstreitu Danmerkur og Svíþjóðar um yfirráð í Skandinavíu og við Eystrasalt, frá endalokum Kalmarsambandsins til Napóleonsstyrjaldanna. Stundum er sagt að fá ríki hafi háð jafn margar styrjaldir sín á milli og Danmörk og Svíþjóð. Á tímabilinu 1500–1800 háðu þau að minnsta kosti tíu stríð, með misjöfnum árangri, auk þess sem þau tóku þátt í þrjátíu ára stríðinu og stóðu andspænis öðrum rísandi stórveldum Evrópu. Danmörk var len...
Fri, 27 Jun 2025 - 110 - 108 - Páfinn: Um biskupinn í Róm frá Pétri postula til nútímans
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarbræður sögu páfadæmisins, þessa fornu stofnunar sem hefur gegnt lykilhlutverki í kristinni trú og evrópskri sögu öldum saman. Mögulega er páfadómurinn eitt elsta embætti sem enn er mannað í okkar heimshluta, og varla fór framhja neinum þegar nýr páfi var kjörinn nú fyrir skömmu. Í þessum þætti ræða Ólafur og Andri um þróun og sögu páfans, löggildingu hans sem arftaki Péturs postula, deilur hans við konunga og keisara á miðöldum, klofninginn við austurki...
Fri, 13 Jun 2025 - 109 - 107 - "Ástandið": Sambönd íslenskra kvenna við hermenn í seinni heimsstyrjöld og viðbrögð yfirvalda
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hið svonefnda "ástand" á Íslandi í seinni heimsstyrjöld: Ástarsambönd íslenskra kvenna og breskra og bandarískra hermanna, og afskipti íslenskra yfirvalda af því. Hernámið hafði gríðarlegar samfélagslegar breytingar í för með sér fyrir Ísland. Með komu hernámsliðsins 1940-1941 streymdu tugir þúsunda hermanna til landsins og þegar mest lét var fjöldi setuliðsmanna á Íslandi nær helmingur íbúafjöldans. Sambönd íslenskra kvenna og setuliðsmanna ollu siðfe...
Fri, 09 May 2025 - 108 - 106 - Um samúræja og sjóguna í Japan
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um samúræjana – stríðsmenn gamla Japans og táknmyndir japanskrar menningar. Samúræjarnir voru kjarninn í japönsku lénsskipulagi og áttu gullöld sína á Tokugawa tímabilinu (1600–1868), þegar Japan var sameinað undir sterku miðstjórnarvaldi sjógúnanna. Þetta tímabil einkenndist af friði, einangrunarstefnu og blómaskeiði í menningu, listum og heimspeki. Samúræjarnir voru hermenn, aðalsmenn og embættismenn og gegndu lykilhlutverki í samféla...
Fri, 11 Apr 2025 - 107 - 105 - Ítalía í seinni heimsstyrjöld og stórveldisbrölt Mussolinis II. hluti
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um stórveldisdrauma ítalska einræðisherrans Benito Mussolini og misheppnaðar tilraunir Ítalíu til að verða stórveldi á árunum 1923-1943. Eftir fyrri heimsstyrjöld fannst Ítölum þeir hafa verið sviknir um verðskuldað herfang – Vittoria Mutilata eða „limlestur sigur“ var Versalafriðurinn kallaður. Þetta átti eftir að móta utanríkisstefnu Mussolinis, sem sóttist eftir því að gera Ítalíu að heimsveldi á ný, eða endurreisa Rómarveldi, eins og sagt er. H...
Fri, 21 Mar 2025 - 106 - 104 - Ítalía í seinni heimsstyrjöld og stórveldisbrölt Mussolinis I. hluti
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um stórveldisdrauma ítalska einræðisherrans Benito Mussolini og misheppnaðar tilraunir Ítalíu til að verða stórveldi á árunum 1923-1943. Eftir fyrri heimsstyrjöld fannst Ítölum þeir hafa verið sviknir um verðskuldað herfang – Vittoria Mutilata eða „limlestur sigur“ var Versalafriðurinn kallaður. Þetta átti eftir að móta utanríkisstefnu Mussolinis, sem sóttist eftir því að gera Ítalíu að heimsveldi á ný, eða endurreisa Rómarveldi, eins og sagt er. H...
Fri, 21 Mar 2025 - 105 - 103 - Markús Árelíus: Heimspekikóngurinn og síðasti gullaldarkeisari Rómar
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um Markús Árelíus, keisara og heimspeking, sem stundum er kallaður síðasti gullaldarkeisari Rómaveldis. Stjórn hans markaði lok tímabils friðar og stöðugleika í ríkinu, en einnig upphaf hnignunar. Markús Árelíus var ekki aðeins valdamikill keisari heldur einnig hugsuður í anda stóuspekinnar. Í riti sínu, Hugleiðingar, sem ekki var ætlað til birtingar, speglar hann eigin siðferðisviðhorf, ábyrgð sína sem stjórnanda og viðleitni til að lifa í samræmi við n...
Thu, 06 Mar 2025 - 104 - 102 - Íslenska skattlandið: Gamli sáttmáli, Noregsveldið og upphaf konungsvalds á Íslandi
Í þættinum í dag skoða Söguskoðunarmenn innreið konungsvalds og upphaf íslenzka skattlandsins þegar íslenskir höfðingjar gengu Noregskonungi á hönd á 13. öld. Konungsvald á Íslandi hefur alltaf verið fyrirferðarmikið atriði í íslenskri sögu, enda er sá tími mjög svo tengdur sjálfsmynd þjóðarinnar, afnámi þjóðveldisins og svo stofnun þjóðríkisins. Þegar Ísland varð hluti af norska konungsríkinu áttu erlendir konungar eftir að ríkja á Íslandi fram til ársins 1944. Í kjölfar ófriðarins á Íslandi...
Thu, 20 Feb 2025 - 103 - 101 - Á söguslóðum: Orrustan um Narvik 1940
Í framhaldi af hundrað þátta hittingi Söguskoðunarmanna í Norður-Noregi lögðu hlaðvarpsmenn land undir fót og héldu í vettvangsferð á söguslóður í Narvik. Þann 9. apríl 1940 gerðu Þjóðverjar innrás í Danmörku og Noreg. Danmörk féll strax, en upphófst þá þriggja mánaða barátta um Noreg. Baráttan um Noreg hófst og lauk í Narvik, litlum hafnarbæ í Norður-Noregi þar sem sænskt járn hefur ætíð verið flutt úr landi. Ástæður innrásarinnar til að byrja með snérust að miklu leiti um aðga...
Fri, 20 Dec 2024 - 102 - 100 - Í návígi á norðurslóðum
Þessi þáttur er aðgengilegur með hljóði og mynd á Youtube. Í tilefni hundraðasta þáttarins komu Söguskoðunarbræður saman í egin persónu í herstöðvarbænum Setermoen i Norður-Noregi og ræddu um sagnfræði, heimspeki, norðurslóðir, gervigreind, heimsmálin og áfram mætti telja. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Fri, 20 Dec 2024 - 101 - 99 - Síonisminn og stofnun Ísraelsríkis 1948 II. hluti
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur sögulegan aðdraganda stofnun Ísraelsríkis árið 1948, en stofnun þess ríkis átti heldur betur eftir að draga dilk á eftir sér og gerir enn. Síonisminn (eða Zíonisminn) er þjóðernishyggja Gyðinga, sem byggir á þeirri hugmynd að Gyðingar, sem öldum saman bjuggu innan um annað fólk í Evrópu, Asíu og í Afríku, ættu sér sögulegt heimaland í Palestínu og ættu að stofna þar til þjóðríkis. Í þessum síðari hluta ræðum við atburðina frá endalokum fyrri heims...
Fri, 06 Dec 2024 - 100 - 98 - Síonisminn og stofnun Ísraelsríkis 1948 I. hluti
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur sögulegan aðdraganda stofnun Ísraelsríkis árið 1948, en stofnun þess ríkis átti heldur betur eftir að draga dilk á eftir sér og gerir enn. Síonisminn (eða Zíonisminn) er þjóðernishyggja Gyðinga, sem byggir á þeirri hugmynd að Gyðingar, sem öldum saman bjuggu innan um annað fólk í Evrópu, Asíu og í Afríku, ættu sér sögulegt heimaland í Palestínu og ættu að stofna þar til þjóðríkis. Í þessum fyrri hluta ræða Söguskoðunarmenn um Gyðinga frá fornöld o...
Fri, 06 Dec 2024 - 99 - 97 - Saurmál á miðöldum
Varúð! Þessi þáttur er helgaður mannaúrgangi. Ólafur og Andri halda áfram að velta fyrir sér mýtunni um hinar "myrku miðaldir" og að þessu sinni um ímynd okkar um að Evrópubúar miðalda hafi lifað í eintómum óhreinindum og sjúkdómum. Voru vatsveitur, skólp, almenningssalerni og baðhús Rómverja af betri gæðum enn hjá miðaldamönnum? Var almennt hreinlæti á miðöldum verra en fyrri og seinni tímabilum eins og fólki er tamt að sjá fyrir sér? Hvernig var mannaúrgangur meðhöndlaður á miðöldum...
Fri, 22 Nov 2024 - 98 - 96 - Mólok og barnafórnir Föníkumanna
Í tilefni hrekkjavökunnar komu Söguskoðunarmenn saman til að draga fram óhugnað úr fortíðinni. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Thu, 31 Oct 2024 - 97 - 95 - Föníka, fyrsta verslunarveldi fornaldar
Í þættinum í dag komu Ólafur og Andri saman til að tala hið forna samfélag Föníkumanna við botn Miðjarðarhafs, en gullöld þeirra var á tímabilinu 1000-800 f.kr. Föníkumenn voru fólk sem bjó á því svæði sem í dag er Líbanon. Deilt er um hvort kalla megi Föníka "þjóð" og samheldið menningarsamfélag, eða samansafn borgríkja. Mjög fáar skriflegar heimildir eru til um Föníka, og mest er til í frásögnum nágranna þeirra, en það voru einmitt grískir sagnaritarar sem gáfu okkur nafnið Fönikía e...
Fri, 25 Oct 2024 - 96 - 94 - Keltnesk kristni og uppruni Íslendinga
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur keltneska kristni, eða írsku miðaldakirkjuna og hugmyndir manna um möguleg áhrif hennar á Íslandi á landnámsöld. Oft hefur því verið haldið fram að keltnesk kristni hafi verið sérstök og frábrugðin öðrum hlutum kristindómsins á ármiðöldum. Írska kirkjan er kölluð klausturkirkja, þar sem ábótar höfðu meiri völd á kostnað biskupa og þar með kaþólsku kirkjunnar í Róm. Írska kirkjan er sögð sjálfstæð og frumleg og má sjá einkenni hennar t.d. í stórum hluta e...
Fri, 11 Oct 2024 - 95 - 93 - Hugmyndasaga, PTSD og andleg heilsa
Hlaðvarpsmenn komu saman í dag til að ræða áfallastreituröskun (PTSD) og hugmyndasögulegan bakgrunn þess fyrirbæris í tengslum við hernað, og önnur tengd málefni. Í heimildum koma fyrir frásagnir af hegðun í tenglsum við hernað sem fræðimenn vilja stundum tengja við áfallastreituröskun og aðra nútímakvilla. Einnig má nefna heimþrá, nostalgíu, dansveiki, tunglsýki og suð-austur-asískar púkaofsóknir sem dæmi um einkenni sem kunna að hafa verið andlegir sjúkdómar samkvæmt okkar daga skilgreinin...
Fri, 27 Sep 2024 - 94 - 92 - Kommúnistaflokkur Íslands
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur um íslensku kommúnistahreyfinguna á millistríðsárunum og Kommúnistaflokk Íslands. Eftir að hreyfing sósíalista á heimsvísu klofnaði í kjölfar fyrri heimsstyrjaldar og rússnesku byltingarinnar störfuðu sovéthollir byltingarsinnar á Íslandi innan Alþýðuflokksins á 3. áratugnum. Árið 1930 var Kommúnistaflokkurinn stofnaður, en hann var deild i Alþjóðasambandi kommúnista sem hafði miðstöð sína í Moskvu. Kommúnistaflokkurinn sameinaðist klofnings...
Fri, 06 Sep 2024 - 93 - 91 - Nýlendur og nýlendustríð í Norður-Ameríku
Þátturinn byrjar á 53. mínútu. Söguskoðunarmenn snúa aftur eftir sumarið til að taka gott spjall um nýlendur Englendinga og Frakka í Norður-Ameríku á síðari hluta 18. aldar. Englendingar komu á fót nýlendum sínum þrettán meðfram austurströnd Norður-Ameríku á 17. öld. Frakkar settu á stofn gríðarstóra nýlendu meðfram Mississippifljóti frá Louisiana í suðri, og í norðri á því svæði sem í dag er Quebec. Árin 1754-1763 var háð mikið nýlendustríð á milli Frakka og Englendinga, sem varð ti...
Fri, 23 Aug 2024 - 92 - 90 - Sól og sagnfræði
Í síðasta þætti hlaðvarpsins fyrir sumarfrí ræðum við um sagnfræði, herinn, hlaðvörp, bækur og fleira og fleira. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Fri, 05 Jul 2024 - 91 - 89 - Um Júgóslavíu 1918-1941
Andri og Ólafur komu saman til að ræða um Júgóslavíu sem sögulegt fyrirbrigði, stofnun hennar og fyrstu áratugi þess ríkis 1918-1941. Júgóslavía (Konungsríki Serba, Króata og Slóvena) varð til 1. desember 1918 við samruna Serbíu, Svartfjallalands, og suður-slavnesku landsvæðanna sem áður höfðu tilheyrt Austurríki-Ungverjalandi, Króatíu, Slóveníu og Bosníu. Ríkið var afleiðing Friðarráðstefnunnar í París, og Serbía var eitt af sigurvegararíkjum fyrri heimsstyrjaldar. Júgóslavismi sem þjóðern...
Sat, 08 Jun 2024 - 90 - 88 - Austurríki-Ungverjaland í fyrri heimsstyrjöld
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um síðustu ár Austurríkis-Ungverjalands og þáttöku þess í fyrri heimsstyrjöld. Austurríki-Ungverjaland var eitt þeirra gömlu keisaradæma sem féll eftir stríðið mikla 1914-1918, og tvístraðist í hin ýmsu þjóðríki. Fyrri heimsstyrjöld hófst þegar Austurríki-Ungverjaland lýsti yfir stríði gegn Serbíu eftir morðið á austurríska ríkiserfingjanum Franz Ferdinand í Sarajevo í júní 1914. Austurríki leið gríðarlega ósigra á vígstöðvunum í Galisíu gegn Rússu...
Fri, 31 May 2024 - 89 - 87 - Oppenheimer og kjarnorkusprengjan
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um J. Robert Oppenheimer og fæðingu kjarnorskusprengjunnar Ólafur las bókina American Prometheus: The Triumph and Tragedy of J. Robert Oppenheimer eftir Kai Bird and Martin J. Sherwin en eftir henni var gerð kvikmynd um vísindamanninn með sínar ýmsu hliðar sem fékk mikla athygli á síðasta ári. Kjarnorkusprengjan var afrakstur rannsókna vísindamanna frá mörgum löndum og í stríðinu voru öll helstu stórveldin með einhverskonar kjarnorkuverkefni í gangi. Þ...
Fri, 10 May 2024 - 88 - 86 - Konstantínus mikli
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn rómarkeisarann Konstantínus I, sem er einn þeirra sem fengið hafa nafnbótina hinn mikli. Konstantínus ruddist til valda í Rómaveldi árið 306 eftir talsvert valdabrölt innan fjórveldisins sem Díókletíanus kom á laggirnar eftir þriðju aldar kreppuna. Hann varð einvaldur árið 324 og ríkti sem slíkur í 19 ár. Var hann þaulsetnasti rómarkeisarinn á eftir Ágústusi. Konstantínus hélt áfram umbótum Díokletíanusar og kom á stöðuleika í nokkur ár. Um...
Fri, 03 May 2024 - 87 - 85 - Þriðju aldar kreppan í Rómaveldi
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur sögu Rómverska keisaradæmisins á 3. öld e. kr. en þá geisaði hin svonefnda þriðju aldar kreppa, sem varð ríkinu næstum að falli. Rómaveldi þanndist talsvert út á öldunum í kringum kristsburð. Fyrstu tvær aldir keisaradæmisins eru stundum talin gullöld ríkisins, en á 3. öldinni virtist allt ætla að fara á versta veg fyrir Rómverja. Á "tímabili herkeisaranna" var veldið þjakað af innbyrðis deilum, mjög svo óstöðugum valdaskiptum, klofningi ríkisins, innrás...
Fri, 19 Apr 2024 - 86 - 84 - Reconquista
Í framhaldi af umræðum okkar um Al-Andalus ræðum við í þættinum í dag um "endurheimtina", eða reconquista, þegar kristnu ríkin á Íberíuskaga endurheimtu land Vísigota úr höndum múslíma. Reconquista var ekki eitt stríð, heldur aldalöng hægfara barátta - af og á - á milli hinna ýmsu ríkja múslíma og kristnu konungsríkjanna, Astúrías, Navarra, Kastillíu, Aragon, León og Portúgals. Endurheimtin var oft vettvangur krossferða, einn fárra staða þar sem slíkur hernaður hafði varanlegan ávinn...
Fri, 08 Mar 2024 - 85 - 83 - Al-Andalus: Veldi múslima á Spáni
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur veldi múslima á Spáni 711-1492. Á 7. og 8. öld breiddist íslam leiftursnökkt út frá Arabíu í allar áttir. Árið 711 féll ríki Vísigota á Íberíuskaga fyrir Aröbum og Berbum frá Norður-Afríku, og á nokkrum árum lögðu múslimar nánast allan skagann undir sig. Ríki múslima á Spáni var kallað Al-Andalús. Það var hluti av heimsveldi Umayyada, um tíma sjálfstætt emírdæmi og kalífadæmi. Höfuðborgin Cordoba var blómleg heimsborg, sem iðaði af verslun o...
Sat, 02 Mar 2024 - 84 - 82 - Um stríðslög og stríðsglæpi
Í framhaldi af umræðum okkar um Rauða krossinn ræða Söguskoðunarmenn í dag um málefni tengd Genfarsáttmálanum og öðrum alþjóðareglum sem gilda í stríði. Menn hafa frá örófi alda reynt að hafa einhverjar hömlur á framgangi hernaðar. Í Evrópu á fornöld og á miðöldum þróaðist kenningin um réttlátt stríð, en á 19. og 20. öld urðu til umfangsmiklar alþjóðareglur um stríð og frið, um mannréttindi, og um viðurlög stríðsglæpa. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | sogu...
Fri, 16 Feb 2024 - 83 - 81 - Rauði krossinn
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur sögu Rauða krossins, frá stofnun hans árið 1863 og fram á miðja 20. öld, en á þessu ári eru einmitt 100 ár síðan landsdeild Rauða krossins á Íslandi var stofnuð í desember 1924. Rauði krossinn er ein stærstu mannúðarsamtök heims með starfsemi öllum ríkjum heims. Höfuðstöðvar alþjóðahreyfingar Rauða krossins hafa alltaf verið í Genf í Sviss, en Alþjóðaráð Rauða krossins og Rauða hálfmánans nýtur sérstakrar stöðu í heiminum, vernduð af alþjóða...
Fri, 09 Feb 2024 - 82 - 80 - Gítarþátturinn
Í tilefni af 80. þætti hlaðvarpsins bregðum við út af vananum og ræðum eitthvað allt, allt annað... Við kynnum einnig til leiks nýja vefsíðu þáttarins: Soguskodun.com. Söguskoðun er einnig á Facebook , og á Youtube. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Fri, 26 Jan 2024 - 81 - 79 - Íslömsku "púðurveldin": Safavídar, Mógúlar og Ottómanar
Ólafur og Andri settust niður til að ræða þrjú íslömsk ríki á árnýjöld; Ottómanaríkið, Safavídaríkið í Persíu og Mógúlaríkið á Indlandi, sem stundum hafa verið flokkuð til hinna svokölluðu "púðurvelda", eða gunpowder empires. Hugtakið er eignað bandarísku heimssögusagnfræðingunum Marshall Hodgson og William McNiell, en þá var vísað til ýmissa þátta sem þessi þrjú ríki áttu sameiginlega, og til þess að þau risu fram sem öflug miðstýrð ríki á persneskum, tyrkískum og íslömskum grunni á ö...
Fri, 12 Jan 2024 - 80 - 78 - Krímstríðið 1853-1856
Andri og Ólafur ræða í þessum þætti gang og afleiðingar Krímstríðsins 1853-1856 milli Rússa annars vegar og Frakka, Breta, Tyrkja og Sardiníumanna hins vegar. Krímstríðið var fyrsta styrjöldin sem háð var á milli evrópsku stórveldanna eftir Vínarfundinn 1815. Hún var einnig fyrsta stórveldastríðið í Evrópu eftir að iðnbyltingin hóf innreið sína með tilheyrandi tækninýjungum. Þetta var svo að segja fyrsta stríðið sem fékk daglega athygli fjölmiðla heimafyrir, og í fyrsta sinn sem beint ...
Fri, 05 Jan 2024 - 79 - 77 - Evrópski konsertinn og aðdragandi Krímstríðsins
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur aðdraganda Krímstríðsins 1853-1856 og hið pólitíska landslag Vínarfundarins í Evrópu sem komið var á laggirnar 1815 þegar Napóleon var yfirbugaður. Styrjöldin var háð á milli Rússneska keisaradæmisins og bandalags Frakka, Breta, Sardiníumanna og Tyrkja, en hún batt enda á áratuga langt friðartímabil í Evrópu sem kennt hefur verið við evrópska konsertinn, eða "evrópsku hljómkviðuna". Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | sog...
Fri, 29 Dec 2023 - 78 - 76 - Jólaþáttur 2023 - Hinn sögulegi Jesús
Í tilefni jólanna komu Söguskoðunarmenn saman til að ræða Jesú Jósefsson frá Nasaret, en hann fæddist (samkvæmt vestrænni hefð) á þessum degi fyrir 2727 árum, nánar tiltekið árið u.þ.b. 4 fyrir okkar tímatal. Ólafur setti upp guðfræðingagleraugun og fór yfir helstu atriði um hinn sögulega Jesú í tilefni dagsins. Eins eins og flestir vita var Jesús krossfestur árið c.a. 30, og eftir hans dag varð til stór trúarhreyfing sem er í dag ein útbreiddustu trúarbrögð heims. En var hann til? Og hvaða ...
Mon, 25 Dec 2023 - 77 - 75 - Fasismi og nasismi í Austurríki
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn sögu Austurríkis á árunum milli stríða, 1918-1938. Austurríki-Ungverjaland var 50 milljón manna fjölmenningarríki sem hrundi eftir fyrri heimsstyrjöld, þjakað af þjóðernisdeilum. Árið 1918 var hið nýja Austurríki 6 milljón manna smáríki með ofvaxna höfuðborg, og glímdi við pólitiskan óróa og efnahagsörðugleika. Árið 1934 var komið á rammkaþólskri einræðistjórn í Austurríki undir Engilbert Dollfuss, sem var myrtur af nasistum, og eftirmanni hans Kurt Sc...
Thu, 14 Dec 2023 - 76 - 74 - Keltar á Íslandi
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um Kelta á Íslandi og keltnesk áhrif á íslenska menningu, tungumál og sögu. Norrænir menn komust í mikil tengsl við Kelta á Bretlandseyjum um það leyti er Ísland var að byggjast á árunum 800 til 1000. Enginn vafi leikur á því að hluti landnámsmanna voru frá Bretlandseyjum og af keltneskum uppruna og hefur þetta verið óumdeilt. Ekki allir eru þó sammála um það hve stór hluti landnámsþjóðarinnar voru Keltar, og að hversu stórum hluta keltnesk m...
Mon, 23 Oct 2023 - 75 - 73 - Galdrar, brennur og galdrafár
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn galdrafárið í Evrópu og galdramálin á Íslandi á 17. öld. Í Evrópu voru tugir þúsunda meintra norna og galdramanna brennd á báli, eða tekin af lífi með öðrum hætti fyrir það að stunda svartagaldur og hvítagaldur. Langstærstur fjöldi þeirra voru konur. Á Íslandi voru 22 brennd á báli fyrir ástundun galdurs, þar af ein kona. Galdrafárið á Íslandi, ef svo mætti kalla, var helst að finna á Vestfjörðum og stóð hin svokallaða brennuöld yfir á tímabilinu ...
Tue, 26 Sep 2023 - 74 - 72 - Silkivegurinn
Andri og Ólafur koma saman í þættinum í dag til að ræða silkiveginn í víðu og þröngu samhengi. Silkivegurinn er nafið sem loðað hefur við leiðina frá Miðjarðarhafinu (Evrópu og Rómarveldi), í gegnum Mið-Austurlönd og Mið-Asíu og til Kína á fornöld og á miðöldum fram til ca. 1500. Á þessu svæði fór fram verslun, m.a. með silki, en einnig fór þar um straumur hugmynda, trúarbragða, menninga, tungumála og sjúkdóma fram og til baka. Á Silkiveginum risu og féllu öll helstu heimsveldi og trúarbrög...
Thu, 31 Aug 2023 - 73 - 71 - Býsanska lýðveldið
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri kenningu sagnfræðingsins Anthony Kaldellis um "býsanska lýðveldið" sem hann birti í bók sinni The Byzantine Republic sem kom út árið 2015. Kaldellis er góðvinur hlaðvarpins enda hefur hann oft borið á góma þegar rætt er um málefni Austrómverska ríkisins. Segja má að bækur hans The Byzantine Republic og Romanland séu uppistöðurit í hans leiðangri að draga fram nýja og líflegri sýn á fyrirbærið sem við köllum Býsanska ríkið. Með kenningunni um "býsan...
Tue, 22 Aug 2023 - 72 - 70 - Sumargleði Söguskoðunarbræðra
Söguskoðunarmenn komu saman í eigin persónu, í annað sinn síðan hlaðvarpið hóf göngu sína, og ræddu heima og geima áður en haldið var í sumarfrí. Þessi þáttur er aðgengilegur með hljóði og mynd á Youtube: https://youtu.be/NADuRUF6xn0 Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Sat, 17 Jun 2023 - 71 - 69 - Konungsríkið Kongó
Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur miðaldakonungsríkið Kongó í Mið-Afríku sem stofnað var undir lok 14. aldar og leið ekki formlega undir lok fyrr en á 20. öld. Fá miðstýrð ríki voru til staðar í Afríku sunnan Sahara fyrir nýlenduvæðinguna, en konungsríkið Kongó varð til við samruna ættbálka og samþjöppun valds í kringum höfuðstaðinn Mbanza-Kongo sem nú er í norðanverðri Angóla. Kongó varð fljótt upp úr 15. öld að miðstöð portúgölsku þrælaverslunarinnar og rann hægt og rólega inn í ...
Tue, 30 May 2023 - 70 - 68 - Ris og fall kommúnismans í Austur-Evrópu II. hluti
Austurblokkin var samansafn kommúnistaríkja í Mið- og Austur-Evrópu sem Sovétmenn settu á laggirnar í aðdraganda kalda stríðsins. Árið 1989 hrundu þau öll eins og spilaborgir, í flestum tilfellum friðsamlega. Segja má að kraftaverkaárið 1989 marki upphaf okkar samtíma, en þá gjörbreyttist sú heimsmynd sem komið hafði verið á eftir seinni heimsstyrjöld. Kalda stríðinu var lokið, kommúnisminn hruninn og við tók tímabil samruna Evrópu og útþennslu NATO til austurs. Sovétríkin liðu undir lo...
Tue, 16 May 2023 - 69 - 67 - Ris og fall kommúnismans í Austur-Evrópu I. hluti
Austurblokkin var samansafn kommúnistaríkja í Mið- og Austur-Evrópu sem Sovétmenn settu á laggirnar í aðdraganda kalda stríðsins. Árið 1989 hrundu þau öll eins og spilaborgir, í flestum tilfellum friðsamlega. Segja má að kraftaverkaárið 1989 marki upphaf okkar samtíma, en þá gjörbreyttist sú heimsmynd sem komið hafði verið á eftir seinni heimsstyrjöld. Kalda stríðinu var lokið, kommúnisminn hruninn og við tók tímabil samruna Evrópu og útþennslu NATO til austurs. Sovétríkin liðu undir lo...
Tue, 16 May 2023 - 68 - 66 - Heródótos og Persastríðin
Heródótos frá Kalikarnassos er kallaður faðir sagnfræðinnar (og faðir lyganna). Í þættinum í dag hverfum við aftur til fornaldar og skoðum það sem kallað hefur verið fyrsta eiginlega sagnfræðiverkið í vestrænni sagnaritunarhefð, en það er saga Heródótosar af Persastríðinum milli Grikkja og Persa árin 499 til 449 f. kr. Persaveldi var mesta heimsveldi sem sést hafði á þessum tíma, en Grikkland var samansafn sjálfstæðra og ólíkra borgríkja. Persar gerðu tvær innrásir í Grikkland, en tókst ekki...
Thu, 27 Apr 2023 - 67 - 65 - Ancien Régime: Frakkland á barmi byltingar
Franska byltingin hófst árið 1789 og er hún jafnan talin á meðal merkustu atburða mannkynssögunnar. Byltingin varð til í umróti nýrra hugmynda í landi sem bar einkenni mikils félagslegs óréttlætis. Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur þetta samfélag sem stundum er kallað Ancien Régime - gamla stjórnin, með áherslu á síðasta franska Búrbónakonunginn, Loðvík XVI, en hann var tekinn af lífi af byltingarmönnum árið 1793. Heitar umræður spunnust um endurskoðun sögunnar, um lögstéttarkerfi...
Fri, 07 Apr 2023 - 66 - 64 - Um söguskoðun og sögustaði
Fyrir jólin kom út ný bók eftir Helga Þorláksson, Á sögustöðum, þar sem fjallað er um sex fræga sögustaði á Íslandi, sögu þeirra og framsetningu sögunnar. Bókin vakti mikla athygli enda er beint sjónum að mikilvægu stefi í íslenskri sagnfræði sem er söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar og samspil akademískrar sagnfræði og almennrar söguvitundar. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri bók Helga, og um söguskoðun og sögustaði almennt. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Sogusko...
Tue, 21 Mar 2023 - 65 - 63 - Hvað var þetta svokallaða Heilaga rómverska ríki?
Heilaga rómverska ríki hinnar þýsku þjóðar hefur oft borið á góma hér í hlaðvarpinu, enda spannar saga þess 1000 ár í hjarta Evrópu. Saga þessa ríkis hófst með krýningu Karlamagnúsar sem nýs Rómarkeisara í vestrinu árið 800, og það leið undir lok þegar nýr keisari frönsku byltingarinnar réðist inn í Þýskaland 1806 og nýr keisari Austurríkis lagði frá sér krúnu Karlamagnúsar í hinsta sinn. Ólafur og Andri ræða heilaga rómverska ríkið sem sögulegt fyrirbæri, hvernig litið hefur verið á þ...
Wed, 22 Feb 2023 - 64 - 62 - Brúðukeisarinn
Í þættinum í dag segir Ólafur frá Aisin Gioro Puyi sem var síðasti keisari Kína. Puyi fæddist á miklum umrótartímum og ber ævi hans þann vott. Hann var settur af sem keisari þegar Kína varð lýðveldi árið 1912 og bundinn var endir á yfir 2000 ára sögu kínverska keisaradæmisins. Puyi varð á stríðsárunum leppur Japana í Mansjúríu fram til 1945, og eftir 15 ára fangavist og endurmenntun endaði hann ævina sem almennur borgari og fyrirmyndarkommúnisti í Alþýðulýðveldinu Kína. Hlaðvarpið Söguskoð...
Thu, 09 Feb 2023 - 63 - 61 - Deus vult! Fyrsta krossferðin II. hluti
Krossferðirnar eru mikilvægur þáttur í sögu Evrópu á hámiðöldum. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri aðdraganda og gang fyrstu krossferðarinnar 1096-1099. Þá héldu tugir þúsunda kaþólskra pílagríma, fótgönguliða og riddara til Anatólíu til að létta undan létta undan Alexíusi I rómarkeisara í baráttunni við Tyrki, en síðan til Jerúsalem, þar sem krossfararnir stofnuðu krossfararíki í borginni heilögu. Í síðari hluta þessarar yfirferðar ræðum við atburði fyrstu krossferðari...
Mon, 30 Jan 2023 - 62 - 60 - Deus vult! Fyrsta krossferðin I. hluti
Krossferðirnar eru mikilvægur þáttur í sögu Evrópu á hámiðöldum. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri aðdraganda og gang fyrstu krossferðarinnar 1096-1099. Þá héldu tugir þúsunda kaþólskra pílagríma, fótgönguliða og riddara til Anatólíu til að létta undan létta undan Alexíusi I rómarkeisara í baráttunni við Tyrki, en síðan til Jerúsalem, þar sem krossfararnir stofnuðu krossfararíki í borginni heilögu. Í þessum fyrri hluta ræðum við aðdraganda krossferðarinnar og gang hennar þar ...
Sat, 28 Jan 2023 - 61 - 59 - Bastarðurinn 1066
Á jóladag 1066 var Vilhjálmur bastarður hertogi af Normandí, krýndur konungur Englands. Rúðujarlinn hafði þá leitt innrás franskra og normanskra riddara til Englands, sem yfirbuguðu húskarla síðasta engilsaxneska konungsins, Haralds Guðnasonar í hinni víðfrægu orrustu við Hastings. Englendingar hafa síðustu aldir þakkað Ermasundinu sérstöðu sinni sem eyju, varin árásum frá meginlandinu, en innrás Normanna var í síðasta sinn sem slík innrás heppnaðist. Hún hafði víðtæk áhrif á sög...
Wed, 11 Jan 2023 - 60 - 58 - Síðasti einvaldurinn
Fyrr á þessu ári ræddum við sögu rússneska keisaradæmisins frá fæðingu þess á miðöldum og fram að þeim tíma er Rússland varð evrópskt stórveldi á 18. og 19. öld. Í þessum þætti ljúkum við þríleiknum með því að ræða fall keisaradæmisins og líf og störf síðasta keisarans. Nikulás II Rússakeisari er stundum talinn síðasti konungborni einvaldurinn í Evrópu, þótt um þetta megi deila. Hann barðist gegn lýðræðisumbótum og bar síðastur valdhafa forna gríska titilinn "autocrat" framyfir bylting...
Tue, 06 Dec 2022 - 59 - 57 - Stutt greinargerð um Ísland 1593
Arngrímur Jónsson lærði er gamalkunnur góðvinur þáttarins. Arngrímur var höfundur fyrsta Íslandssöguritsins, Crymogæa, sem kom út á latínu árið 1609. Sem ungur og upprennandi fræðimaður árið 1592 var Arngrímur í Kaupmannahöfn þar sem hann hafði kynnst sagnfræðingum sem höfðu mikinn áhuga á íslenskum fornsögum. Hann hafði með í fórum handrit að bók sem var svo gefin út árið eftir, einnig á latínu. Þetta var Brevis commentarius de Islandia, eða Stutt greinargerð um Ísland. Brevis var fræðile...
Thu, 17 Nov 2022 - 58 - 56 - Af varúlfum og morðingjum
Í anda hrekkjavökunnar koma Söguskoðunarmenn saman í dag til þess að ræða varúlfa, raðmorðingja og annað skelfilegt. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Mon, 31 Oct 2022 - 57 - 55 - Tyrkjaránið
Tyrkjaránið er vafalaust einn óhuggulegasti atburður Íslandssögunar. Sumarið 1627, á tímum gríðarlegra hallæra og fátæktar á Íslandi, og á hápunkti hins harða lúterska réttrúnaðar, gerðu sjóræningjar (eða víkingar) frá Norður-Afríku, sem þá tilheyrði veldi Tyrkjasoldáns, strandhögg á nokkrum stöðum á Íslandi. Þeir fóru um rænandi hendi, myrtu fólk, brenndu hús og numu á brott hátt í 400 Íslendinga sem seldir voru í þrældóm í Barbaríinu. Af þeim snéru aðeins 27 aftur heim um áratug síðar. ...
Sun, 02 Oct 2022 - 56 - 54 - Eric Hobsbawm: Tvíbyltingin, langa 19. öldin og stutta 20. öldin
Eric Hobsbawm (1917-2012) er í hópi fremstu sagnfræðinga 20. aldar. Þekktastur er hann fyrir stórvirki sín um "löngu 19. öldina" 1789-1914, og framhaldið um öld öfganna, "stuttu 20. öldina" 1914-1991. Hobsbawm var kommúnisti alla sína tíð og var einn af fremstu fánaberum marxískrar söguskoðunar úr hópi sagnfræðinga. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Thu, 15 Sep 2022 - 55 - Leiðin til Hiroshima - Þríleikur
Í ágúst var þess minnst að 75 ár eru liðin frá kjarnorkusprengingunum í Hiroshima og Nagasaki. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu eyðileggingu er Japan eitt af fremstu iðnríkjum heims. Í þessari trílógíu er rætt um vegferð Japans til nútímans sem hófst um miðja 19. öld en sú vegferð átti eftir að leiða Japani í gegnum hraða iðnvæðingu og nútímavæðingu, en einnig hervæðingu og heimsvaldastefnu sem endaði með gríðarlegum hörmungum í Japan, Kóreu, Kína, Suð-Austur Asíu og á Kyrrahafi. Þríleikur...
Fri, 06 Nov 2020 - 54 - 53 - Vetrarstríðið
Í þessum síðasta þætti hlaðvarpsins á þessari önn ræða Ólafur og Andri um innrás Sovétríkjanna í Finnland í nóvember 1939, og hið þriggja mánaða langa vetrarstríð sem eftir fylgdi. Fjölmargir illa búnir Rússar urðu hinum "hvíta dauða" að bráð þennan frostavetur, og hin eftirtektarverða vörn Finna vakti aðdáun um heim allan. Vetrarstríðið hafði þær afleiðingar að Noregur og Danmörk drógust inn í hildarleikinn mikla, síðari heimsstyrjöld, þótt ekkert Norðurlandanna hafi þorað að hj...
Tue, 12 Jul 2022 - 53 - 52 - Innrásin á Kýpur 1974
Í júlí árið 1974 gerðu Tyrkir innrás í Kýpur og hefur hernám þeirra á norðurhluta eyjarinnar staðið yfir í 47 ár. Innrásin er mjög umdeild og hefur verið harðlega gagnrýnd af alþjóðasamfélaginu. Tyrkir segjast hafa verið að vernda tyrnkeska minnilutan á eyjunni, sem hafði verið ofsóttur af Grikkjum, en kýpríska þjóðvarðliðið, stutt af herforingjastjórn Grikkja, hafði skömmu áður framið valdarán með það fyrir marki að sameina eyjuna Grikklandi. Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn sögu Grik...
Wed, 29 Jun 2022 - 52 - 51 - Julius Caesar II. hluti
Í þessum 50-51. þætti hlaðvarpsins í tveimur hlutum ræða Ólafur og Andri ævi og störf mögulega eins frægasta manns sögunnar. Julius Caesar hefur verið sagður einn merkasti stjórnmálaskörungur og herstjórnandi vestursins. Hann var upphafsmaður rómverska keisaradæmisins og eftir hann liggja djúp spor í söguvitund okkar heimshluta. Í seinni hlutanum ræða Ólafur og Andri feril Caesars frá því hann gerðist landstjóri í Gallíu árið 58 f.kr., Gallastríðin, borgarstyrjöldina í Róm, leiðangurinn til ...
Thu, 16 Jun 2022 - 51 - 50 - Julius Caesar I. hluti
Í þessum 50. þætti hlaðvarpsins í tveimur hlutum ræða Ólafur og Andri ævi og störf mögulega eins frægasta manns sögunnar. Julius Caesar hefur verið sagður einn merkasti stjórnmálaskörungur og herstjórnandi vestursins. Hann var upphafsmaður rómverska keisaradæmisins og eftir hann liggja djúp spor í söguvitund okkar heimshluta. Í fyrri hlutanum ræða Ólafur og Andri ævi Caesars fram að því er hann gerðist ræðismaður í Róm árið 59 f.kr. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | sogu...
Thu, 16 Jun 2022 - 50 - 49 - Rússneska keisaradæmið
Þessi þáttur er sjálfstætt framhald síðasta þáttar um uppruna Rússlands sem stórveldis. Pétur mikli færði höfuðborg keisaradæmisins frá Moskvu, þriðju Róm, vestur til Pétursborgar í upphafi 18. aldar og er sú breyting táknræn fyrir þá áherslu sem Rússar fóru nú að leggja á Evrópu á öllum sviðum. Á 18. öld varð rússneska keisaradæmið að evrópsku stórveldi. Árið 1812 stóðu Rússar uppi sem sigurvegarar yfir Napóleon og á 19. öld varð tsarinn í Pétursborg varðhundur afturhaldsins í álfunn...
Tue, 24 May 2022 - 49 - 48 - Þriðja Róm
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri sögu Rússlands á miðöldum og frameftir til þess að skoða hvaðan þetta mikla veldi kemur, en hegðun Rússa sem stórveldi hefur verið mikið í umræðunni síðustu misseri. Stórfurstadæmið Moskva reis undan valdi Mongóla og austrómversku kirkjunnar á 15. öld og þandist hratt út. Rússland varð þegar fram liðu stundir að einu stærsta ríki veraldar. Samhliða þessu varð til keisaraleg hugmyndafræði byggð m.a. á hugmyndinni um þriðju Róm. Sumir litu svo á að M...
Thu, 12 May 2022 - 48 - 47 - Strategikon og herkænska Austrómverja
Hernaður er mikið í deiglunni þessa dagana svo við höldum okkur á þeim nótunum að sinni. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hernað og herkænsku Austrómverska ríkisins en þetta gríska áframhald Rómarveldis átti í stöðugum ófriði við nágrannaþjóðir sína á öllum hliðum, nær stanslaust frá 6. öld og fram á 15. öld. Rómverjar höfðu mikla aðlögunarhæfni, bjuggu vel af digrum sjóðum gulls og óhætt að segja að herkænska þeirra hafi verið frábrugðin því sem við þekkjum úr Vestur Evrópu. H...
Fri, 18 Mar 2022 - 47 - 46 - Rússarnir koma!
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri innrás Rússa í Úkraínu sem er í brennidepli þessa dagana. Við erum að upplifa sögulega tíma og margir spá því að átökin í Úkraínu og uppgangur kalda stríðins milli vesturlanda og Rússlands sé upphafið að nýju sögulegu tímabili í Evrópu. Fréttaritari hlaðvarpsins í herbúðum NATO í Norður-Noregi segir frá því sem gengið hefur á í fjarvist hlaðvarpsins síðustu vikna. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér: Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com Einnig á ...
Mon, 07 Mar 2022 - 46 - 45 - Leitin að eyjunni hans Ingólfs
Í desember síðastliðnum kom út ný bók um landnám Íslands: Eyjan hans Ingólfs eftir Ásgeir Jónsson. Í bók Ásgeirs eru meðal annars settar fram kenningar um veiðimennsku og útflutning rostungsafurða á Landnámsöld, en þær hugmyndir eru frekar nýlegar í rannsóknum á landnáminu. Um þetta hefur Bergsveinn Birgisson skrifað í bók sinni Leitin að svarta víkingnum sem kom út á íslensku árið 2016, en Bergsveinn hefur nú sakað Ásgeir um ritstuld, nánar tiltekið hugmyndastuld, og skotið málinu fyrir siða...
Mon, 10 Jan 2022 - 45 - 44 - Jólaþáttur 2021 - Jólasögur með Söguskoðunarbræðrum
Jólasveinar, jólabjór, heiðin jól, neysluhyggja og kapítalismi, jólahefðir, fæðing frelsarans, jólahirðfífl, paradísareyjar, jólalambið og jólagölturinn, jól í skotgröfum og jól undir kommúnismanum. Allt þetta og meira til ræða Söguskoðunarbræður í þessum jóla-special hlaðvarpsins fyrir jólin 2021. Upphafsstef: Þrjú á Palli - Það á að gefa börnum brauð. Af plötunni: Hátíð fer að höndum ein, 1971. Troels Bendtsen. Halldór Kristinsson og Edda Þórarinsdóttir. Lag: Þjóðl...
Thu, 23 Dec 2021 - 44 - 43 - Hinsegin saga
Réttindabarátta hinsegin fólks hefur náð fram miklum sigrum og viðhorfsbreytingum á Íslandi síðastliðna áratugi, og sú þróun er enn að eiga sér stað mjög hratt í okkar samtíma. Saga hinsegin fólks hefur verið blóði drifin vegna fordóma og ofsókna, og í sagnaritun hingað til hefur oft verið skautað yfir hinsegin veruleika vegna túlkunar sagnfræðinga eða skorts á heimildum. Nú er hins vegar öldin önnur og mikil gróska hefur verið í hinsegin sagnfræði sem vaxið hefur fiskur um hrygg samfara rétt...
Sun, 12 Dec 2021 - 43 - 42 - Slésvíkurvandinn
Frá miðbiki þarsíðustu aldar og fram á fyrri hluta þeirrar síðustu var stórt vandamál við landamæri Þýskalands og Danmerkur. Hertogadæmin tvö, Slésvík og Holstein, sem verið höfðu í persónusambandi við danska konunginn frá miðöldum, voru orðin að heitu bitbeini milli grannþjóðanna tveggja. Það þurfti tvö stríð og eina heimsstyrjöld til að leysa Slésvíkurvandann svokallaða, en svo nefndist vandamálið: Hvað á að gera við Slésvík? Í fyrra, árið 2020, fögnuðu Danir því að 100 ár voru liðin frá þ...
Fri, 03 Dec 2021 - 42 - 41 - Ágústínus, hernaður og frjáls vilji
Söguskoðun snýr aftur með nýtt season eftir talsvert hlé. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um heilagan Ágústínus frá Hippo, kirkjuföður og einn af áhrifamestu hugsuðum vestrænnar heimspeki. Ágústínus var uppi á síðfornöld, um það leyti er Rómarveldi var að líða undir lok í vestrinu og kristin kirkja var að fæðast. Hann er alla jafna talinn upphafsmaður kaþólsku kirkjunnar og voru heimspekikenningar hans hafðar í miklum hávegi á miðöldum. Eftir hina löngu fjarveru var einnig rætt um brey...
Mon, 15 Nov 2021 - 41 - 40 - Þrjátíu ára stríðið
Þessi þáttur er einnig aðgengilegur með hljóði og mynd á YouTube. Hlaðvarpið Söguskoðun snýr snögglega aftur úr sumarfríi með sérstakan sumar-special í tilefni þess að báðir meðlimir hlaðvarpsins eru staddir á sama stað - í óklipptri upptöku frá Borgarbókasafni. Í þessum fyrsta þætti hlaðvarpsins bæði í hljóði og mynd ræða Ólafur og Andri um Þrjátíu ára stríðið sem skók Þýskaland árin 1618-1648, orsök þess og afleiðingar. Stríðið og eftirmáli þess markaði djúp spor í sögu ...
Thu, 05 Aug 2021 - 40 - 39 - Baráttan um land Eiríks rauða
Þegar Dansk-norska ríkið liðaðist í sundur eftir Napóleonsstyrjaldirnar árið 1814 varð Noregur hluti Svíþjóðar en Danir héldu yfirráðum yfir eyjunum á Atlantshafi: Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Rúmri öld síðar, á fyrri hluta 20. aldar, voru Norðmenn upprennandi veldi á norðurslóðum og Íslendingar stóðu í sjálfstæðisbaráttu og höfðu áætlanir um útrás á fiskimiðin. Þessar gömlu samveldisþjóðir deildu nú um það hver ætti að fara með fullveldi yfir nýlendunni Grænlandi. Íslendingar sögðu...
Fri, 28 May 2021 - 39 - 38 - Heimildaspjall II - Var Gamli sáttmáli uppspuni?
Í þessum framhaldsþætti um heimildir ræða Ólafur og Andri um Ólafur og Andri um ýmsar tegundir heimilda og hvar þær er að finna. Gamli sáttmáli er tekinn til rækilegrar umræðu í ljósi rannsóknar Patriciu Pires Boulhosa frá 2005, sem hélt því fram að sáttmálinn væri ekki skrifaður árið 1262, heldur nokkrum öldum síðar. Er hægt að segja að þessi grundvallarheimild um sögu Íslendinga sé uppspuni? Ef svo er, krefst slík niðurstaða endurskoðun sögunnar? Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:...
Mon, 26 Apr 2021 - 38 - 37 - Heimildaspjall I - Af skinni á skjáinn
Í þessum þætti ræða Ólafur og Andri um heimildir vítt og breytt. Allt starf sagnfræðinga byggist á notkun heimilda og eru þær gluggi okkar inn í fortíðina. Þegar fram líða stundir breytist verk sjálfra sagnfræðinganna í frumheimildir um þeirra eigin tíma, og þannig heldur hringrás heimildanna áfram. Rætt er um heimildagildi, sanngildi heimilda og aðgengi að heimildum, allt frá handritasöfnun á 18. öld, til prentútgáfu á 19. og 20. öld og stafrænnar útgáfu heimilda á 21. öld. Hvað...
Mon, 19 Apr 2021 - 37 - 36 - Genghis Khan og veldi Mongóla
Hirðingjaþjóðir Mið-Asíu hafa alltaf spilað rullu í sögu Evrópu og Austur Asíu beint og óbeint. Hræringar þeirra hafa komið af stað breytingum í báðum heimshlutum sem lengst av voru ótengdir, og einnig hafa þessar þjóðir verið brú á milli heimshlutanna þar sem viðskipti og sjúkdómar fengu að breiðast út. En steppuþjóðirnar hafa þó alltaf haft á sér ógnvænlega ímynd í Evrópu og Asíu og skapað mikinn ótta. Kínverjar byggðu heimsins stærsta múr til að verjast Mongólum, og Húnar fóru um Róm...
Sat, 03 Apr 2021 - 36 - 35 - Nýja Róm
Þegar Vestrómverska ríkið féll með Rómarborg árið 476 e. kr. lifði Austrómverska ríkið áfram í mörg hundruð ár. Í raun lifði ríkið allt fram til ársins 1453 þegar borgin Konstantínópel, Nýja Róm, féll í hendur Tyrkja. Oft hefur Austrómverska ríkið, eða Býsanska ríkið, fallið í skuggann í sögunni. Gibbon kallaði Býsanska ríkið eina samfellda sögu spillingar og niðurifs - eins konar hægan dauða í þúsund ár. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hugtakanotkun um þetta ríki. Er hugtakið "býsa...
Wed, 24 Mar 2021 - 35 - 34 - Var Ísland nýlenda?
Árið 1944 varð Ísland sjálfstætt lýðveldi og rofnuðu þá síðustu böndin á milli Íslendinga og Danakonungs. Oft hefur því verið fleygt fram eftir unnið sjálfstæði að Ísland hafi verið dönsk nýlenda á fyrri öldum, og hafa fræðimenn rannsakað íslenska menningu og sögu með gleraugum eftirlendufræðanna. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um nýlendur og stöðu Íslands innan danska ríkisins frá lokum siðaskipta og fram á 19. öld. Var Ísland nýlenda á fyrri öldum? Hvað er nýlenda? Erum við eftirlen...
Sun, 07 Mar 2021 - 34 - 33 - Siðaskiptin og síðasti Íslendingurinn
Lengi hefur verið litið á Jón Arason, síðasta kaþólska biskupinn á Íslandi, sem þjóðhetju sem barðist gegn erlendu valdi, en hann og synir hans voru hálshöggnir árið 1550. Jón Sigurðsson kallaði nafna sinn eftirminnilega "síðasta Íslendinginn" í þessu samhengi, og síðasta mann fornaldarinnar. Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um siðaskiptin sem sögulegt fyrirbæri, eða siðbótina - eða rökkurbýsni, allt eftir því hvaða skoðun menn hafa á henni. Rætt er um þetta vítt og breytt og sérstakleg...
Tue, 09 Feb 2021 - 33 - 32 - Ísland og nasisminn
Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um íslenska nasista og tengsl þýskra nasista við Ísland á árunum fyrir síðari heimsstyrjöld. Ekki hefur mikið borið á sagnfræðilegri umræðu um þetta málefni síðastliðna áratugi, en mikil gróska var í útgáfu bóka fyrir um það bil 30 árum síðan, um íslenska nasista heima og erlendis og njósnir og ráðabrugg þýskra nasista á íslandi. Í þættinum er rætt um Flokk þjóðernissinna sem var nasistaflokkur starfandi á Íslandi, og Íslendinga sem unnu með þjóðverjum á...
Mon, 25 Jan 2021
Podcast simili a <nome>
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه