Filtrar por género
- 152 - #271 Vargöld og vinskapur: Douglas Bader og Adolf Galland
Í þessum þætti skoðum við sögu og samband tveggja orrustuflugmanna úr seinni heimsstyrjöld. Þeir voru ólíkir menn en náðu samt einkar vel saman. Þeir voru fyrst og fremst flugmenn. Er verstu manngerðu hamfarir sögunnar dundu yfir Evrópu svöruðu þeir kallinu.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 04 Feb 2026 - 151 - #267 Röðull GK
Þriðjudaginn 15. jan. 1963 lét togarinn Röðull GK úr höfn frá Reykjavík. Planið var að vera á veiðum í uþb 4 vikur á Mýrargrunni. Um hádegi á fimmtudaginn tilkynntu nokkrir skipverjar um ógleði og máttleysi. Þetta var upphafið að einu skelfilegasta mengunarslysi í sögu íslensks sjávarútvegs. Oft hefur þetta verið kallað „slysið sem gleymdist“.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 07 Jan 2026 - 150 - #264 Maður án heila
Árið 2007 leitaði franskur maður til læknis. Ástæðan var þrálátur verkur í fæti. Læknirinn sendi manninn í ýmsar rannsóknir. Þar á meðal sneiðmynd af heila. Læknirinn fékk seinna hringingu frá röntgendeildinni þar sem hann var beðinn um að koma strax. Myndir af heila mannsins væru einkennilegar, svo ekki sé meira sagt. Lækninn rak í rogastans er hann sá sneiðmynd af höfði mannsins. Svo virtist sem maðurinn hefði hreinlega engan heila!?Þessi þáttur er nokkuð sérstakur. Flosi er að glíma við mikið þunglyndi og kulnun um þessar mundir. Harkalegra en hann hefur upplifað lengi. Eins og hans er von og vísa talar hann óhikað um það allt í þættinum. Hann segir einnig frá árangri sínum í áfallavinnu. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 08 Oct 2025 - 149 - #261 Lygar og morð: Hinn einkennilegi Stéphane Bourgoin
Finndu þér miða á túrinn okkar um landið hér.Upp úr 1990 fór einn maður að láta að sér kveða í frönsku þjóðlífi og vakti mikla athygli. Hann virtist sérfræðingur um nokkuð sem Frakkar höfðu til þessa gefið lítinn gaum: Raðmorðingjar. Maður þessi var Stéphane Bourgoin. Hann var alveg ómenntaður en virtist hreinlega vita allt um þetta efni. Frakkar voru heillaðir af þessum einkennilega manni sem talaði svo fjálglega en einnig fræðilega um þessi myrku mál. Fjölmiðlamenn elskuðu hann. Meira að segja lögreglan leitaði til hans. Hann talaði jafnvel við, og hughreysti, fólk sem hafði misst ástvini sem höfðu verið myrtir. Það var ekki fyrr en áratugum seinna að áhugafólk um glæpi fór að kanna Bourgoin kyrfilega. Þá kom ýmislegt misjafnt í ljós.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 10 Sep 2025 - 148 - #LD4 Draugar fortíðar ásækja Græna hattinn
Finndu þér miða á túrinn okkar um landið hér.Draugarnir lögðu í hann í upphafi árs 2025 og fóru vítt og breitt um landið. Þann 23. janúar var komið að Græna hattinum. Í það skiptið var uppákoman ekki eingöngu skráð í hljóði, heldur einnig í mynd. Þið getið hlustað á hann eða horft á hann á YouTube hér. Góða skemmtun!Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 03 Sep 2025 - 147 - #256 Polybius: Hættulegasti tölvuleikur sögunnar?
Í byrjun níunda áratugar varð vart undarlegrar vænisýki sem breyddist frá úthverfum Bandaríkjanna og var skyndilega á allra vörum. Það var hið svokallaða "Satanic Panic" sem sumir telja undanfara QAnon. Hræðslan beindist öll inn á við. Kenningar flugu um að Dungeons og Dragons hlutverkaspilið væri verkfæri Satans. Tölvuleikir voru að sækja í sig veðrið á þessum tíma og spilasalir spruttu upp. Hræðslan beindist einnig að þeim en þó virtust hörðustu samsæriskenningasmiðir sammála um að þarna væri Satan saklaus. Í gegnum tölvuleiki var það ríkisstjórnin eða leyniþjónustan sem stjórnaði. Allra alræmdasti leikurinn er án nokkurs efa Polybius. Finndu þér miða á túrinn okkar um landið hér.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 06 Aug 2025 - 146 - #251 Talídómíð: Hryllingur í töfluformi
Seint á sjötta áratug kom ný tafla á markað sem kölluð var kraftaverkalyf. Hún hafði róandi áhrif og sló auk þess á ógleði. Sérstaklega voru barnshafandi konur hvattar til að taka töfluna gegn morgunógleði. Í dag líður langur tími frá því er nýtt lyf er þróað og þar til það er sett á markað. Regluverkið er orðið mun harðara en það var er Talídómíð kom á markað. Það er einmitt að stærstum hluta vegna hryllilegrar reynslu fólks af einmitt Talídómíð. Lyfið hafði ekki verið rannsakað nægilega vel. Áhrif þess á ófrískar konur voru einfaldlega hræðilegar.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 02 Jul 2025 - 145 - #247 Josephine Baker: Fyrsta svarta konan sem sigraði heiminn - Fyrri hluti
Josephine Baker er einn áhrifamesti skemmtikraftur sögunnar. Auk þess að bæði hneyksla og hrífa Evrópubúa með sínum söng og dansi tók hún virkan þátt í baráttu gegn alræði og kynþáttaníði. Baker var fædd í Bandaríkjunum en eins og margir svartir íbúar þaðan, vildi hún flýja botnlausan rasismann þar. Hún hafði heyrt um ríki þar sem svartir voru þó álitnar mannverur. Fyrir þetta fólk lágu öll vötn til Parísar.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 04 Jun 2025 - 144 - #244 Maðurinn í rotþrónni
Í febrúar árið 1989 var japanska barnaskólakennaranum Yumi Tanaka brátt í brók og þurfti nauðsynlega að komast á klósettið. Á stúdentagörðum þar sem hún bjó voru klósett frekar gamaldags. Í raun aðeins hola í gólfinu sem leiddi út í rotþró fyrir utan húsið. Sér til furðu tekur Tanaka eftir einhverju í salernisholunni. Það er skór af manni. Hún fór út til að athuga hvort hún sæi eitthvað betur. Fyrir utan var lítið op sem leiddi niður í rotþróna. Þar gerði Tanaka hryllilega uppgötvun og hringt var samstundis á lögregluna. Þetta er vægast sagt dularfullt mál og internet löggur samtímans eru sífellt að velta fyrir sér hvað í ósköpunum gæti hafa gerst. Atriði í þættinum geta valdið klígju.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 14 May 2025 - 143 - #238 Hermaðurinn ódrepandi: Saga Adrian Carton de Wiart
Adrian Carton de Wiart var belgísk-breskur herforingi sem varð algjör goðsögn innan breska hersins. Hann var svo ósérhlífinn að það jaðraði við sturlun. Hann særðist mörgum sinnum og oft alvarlega. Hann tók þátt í fyrri heimsstyrjöldinni, þar sem hann varð fyrir alvarlegum meiðslum, meðal annars misst hann hægri hönd og auga, en hann hélt áfram að berjast þrátt fyrir þessa miklu skerðingar. Þrátt fyrir að vera orðinn sextugur tók hann einnig þátt í síðari heimsstyrjöldinni. Var stríðsfangi Ítala um skeið. Hann starfaði síðar sem fulltrúi breska hersins í Miðausturlöndum og Kína. Winston Churchill hafði mikið álit á honum. Saga hans er áhugaverð. Hann er vissulega barn síns tíma en erfitt er að líta fram hjá því hugrekki og staðfestu sem hann sýndi. Við veltum því fyrir okkur hvort saga hans eigi erindi við nútímafólk? Sama hvað gekk á þá mætti hann öllum áföllum og andstreymi með stóískri kímni og látleysi. Það má væntanlega læra eitthvað af því?Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 02 Apr 2025 - 142 - #234 Biblíusögur
Fyrsti þáttur hvers mánaðar er í opinni dagskrá. Það er því vel við hæfi að sem flest ykkar nái að heyra fagnaðarerindið. Í þessum þætti velur Flosi nokkrar sögur úr einni af hans uppáhaldsbókum: Biblíunni. Gamla textamentið er í sérstöku uppáhaldi. Enda er nóg af alls konar furðulegum og fyndnum sögum sem þar má finna. Vert er samt að benda á að atriði í þættinum geta valdið óhug.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 05 Mar 2025 - 141 - #230 Brjálaði baróninn: Sagan af Roman von Ungern-Sternberg
Komið hefur fyrir að sérvitrir herforingjar hafi klofið sig frá aðalhernum í styrjöldum og umbreyst í stríðsherra með sitt eigið lið og farið sínu fram. Roman von Ungern-Sternberg er einn þessara manna og líklega einn sá einkennilegasti og alræmdasti. Hann fór að sjá sig sem einhverskonar holdgerving mongólska herforingjans Djengis Khan. Hann sauð saman stórundarlega blöndu af rússneskri réttrúnaðarkristni og austurlenskum búddisma og taldi sig fylgja guðlegri forsjón. Saga hans er full brjálsemi, ofbeldis og blóðsúthellinga. Þátturinn er ekki við hæfi barna og í honum eru lýsingar á ofbeldi sem gætu farið fyrir brjóstið á fólki.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 05 Feb 2025 - 140 - #LD2 Víkingar
Í tilefni af yfirvofandi ferðalagi Drauganna um landið síðar í mánuðinum er hér upptaka frá því að Draugarnir komu fram fyrir fullu húsi í Iðnó í október 2022. Góða skemmtun!„Hverjir voru þeir og hversvegna breyttist skoðun almennings á þeim svo rosalega? Frá víkingaöld var varla minnst á þá á annan hátt en sem algjörlega skelfilegt lið sem rændi, ruplaði, nam á brott og myrti fólk. Á 19. öld verða þeir skyndilega að hetjum og fyrirmyndir frelsiselskandi fólks. Hvað er svo satt og logið um víkinga? Voru þeir með horn á hjálmum sínum? Ef ekki, hvaðan kemur þá sú ímynd? Voru þeir allir hávaxnir og blóðþyrstir? Voru konur víkingar? Voru Íslendingar víkingar? Baldur og Flosi fylltu Iðnó af fólki og reyndu að svara þessum spurningum og mörgum fleiri.“Miðar hér á ferðalag okkar um landið í janúar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Fri, 03 Jan 2025 - 139 - #225 Fimm verstu herforingjar sögunnar
Margt er aðdáunarvert í sögu mannkynsins. Stórkostlegar uppgötvanir í vísindum, glæst listaverk og félagslegar umbætur. Því miður hafa átök og blóðsúthellingar einnig spilað stórt hlutverk. „Stríð er helsta hreyfiafl sögunnar“ - sagði rússneski byltingarleiðtoginn Leon Trotsky eitt sinn. Margir frægustu einstaklingar sögunnar voru herforingjar. Má nefna t.d. Napóleon og Alexander mikla. Að hafa stjórn á herjum og samræma aðgerðir á vígvelli er þó ekki hæfileiki sem öllum er gefinn. Í þessum þætti hefur Flosi tekið saman fimm einstaklinga sem hann telur langverstu herforingja sögunnar. Slakir leiðtogahæfileikar þeirra höfðu oft afdrifaríkar afleiðingar. Má telja fullvíst að þúsundir, jafnvel milljónir hafi glatað lífinu vegna vanhæfni þeirra. Miðar hér á ferðalag okkar um landið í janúar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 01 Jan 2025 - 138 - #221 Amnesty International
Þessi þáttur er í óformlegu samstarfi við Amnesty International á Íslandi. Flosi hefur lengi verið stuðningsmaður samtakanna og 16 ára gamall skrifaði hann bréf til Nicolai Ceausescu, þáverandi alvalds í Rúmeníu og krafðist þess að samviskufangar yrðu látnir lausir. Íslandsdeildin fagnaði 50 ára afmæli þ. 15 september síðastliðinn. Vakin er athygli á herferð samtakanna sem ber yfirskriftina „Þitt nafn skiptir máli“. Í þættinum er saga samtakanna jafnframt rakin og sagt frá málum sem eru aðkallandi.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 04 Dec 2024 - 137 - #217 Selárdalur - 2. Þáttur: Gísli á Uppsölum
Sjaldan gerist það að maður verði frægur á einni nóttu. Svo var þó bókstaflega um Gísla Oktavíanus Gíslason frá Uppsölum í Selárdal. Hann var nánast algjörlega óþekktur áður en Ómar Ragnarsson, landskunnur sjónvarpsmaður, bankaði upp á hjá honum árið 1981. Þátturinn Stiklur var sýndur á jóladag árið 1981. Þá var íslenskt samfélag að nútímavæðast hratt. Allir vildu eiga nýjustu tækin, hvort sem um var að ræða litasjónvarp, myndbandstæki, fótanuddtæki eða Soda-Stream. Því sat þjóðin gapandi af undrun og horfði á viðtal við mann sem virtist eins og hann væri nýkominn frá 1881. Á Uppsölum var ekkert sjónvarp eða Soda-Stream. Þar var einfaldlega ekkert rafmagn né rennandi vatn. Gísli notaðist enn þá við orf og ljá. Hann heillaði fólk þó með einlægni sinni og glettni. Einnig er ekki annað hægt en að dást að seiglunni og ósérhlífninni sem einkenndi einbúann í Selárdal. En saga hans er þó einnig harmsaga manns sem átti vonir og drauma sem ekki rættust.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 06 Nov 2024 - 136 - #212 Fimmmenningarnir frá Yuba
Þann 24. febrúar árið 1978 fóru fimm menn frá Yuba-sýslu í Kaliforníu á körfuboltaleik í Chico, nálægum bæ. Uppáhaldsliðið þeirra var að keppa og vildu þeir styðja það. Sjálfir áttu þeir að leika mikilvægan leik daginn eftir. Þeir glímdu allir við minniháttar þroskahamlanir. Þeir stóðu sig þó almennt ágætlega í að takast á við áskoranir lífsins. Þeir voru allir í sama körfuboltaliðinu og daginn eftir var mikilvægur leikur. Sigurvegararnir áttu að fá í verðlaun vikuferð til Los Angeles. Allir voru þeir mjög spenntir fyrir því og ákveðnir í að sigra leikinn. Þetta var í síðasta skipti sem þeir sáust á lífi. Eftir nokkurra daga leit fannst bíll þeirra um 180 km norður af Chico en heimabær mannanna var í þveröfuga átt, um 80 km suður af Chico. Þeir höfðu keyrt upp í fjalllendið í Plumas-þjóðgarðinum. Allar götur síðan hefur þetta hvarf valdið miklum heilabrotum fólks. Sumir voru fljótir að afskrifa þetta vegna þroskaskerðingar mannanna. Ættingjum þeirra hefur alltaf sárnað sú umræða. Enda er nokkuð ljóst að mennirnir voru að miklu leyti færir um að sjá um sig sjálfir. Ýmsar kenningar hafa komið fram um hvað gæti hafa valdið þessu dularfulla hvarfi.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 02 Oct 2024 - 135 - #208 Súdan: Mesta mannúðarkrísa veraldar
Afríkuríkið Súdan hefur vissulega kynnst átökum áður en eftir borgarastyrjöld sem hófst 2023, ríkir þar nú slík óöld að annað eins hefur varla sést á heimsvísu í lengri tíma. Um 50 milljónir búa í þessu stóra landi. Um 13 milljónir eru nú á vergangi og án heimilis. Í nágrannalöndunum og víðar eru nú um 3-4 milljónir flóttamanna. Þeir aðilar sem berjast um völdin hafa beitt skefjalausu ofbeldi og svífast einskis. Ítrekað hefur verið ráðist á spítala og bílalestir með matvæli og lyf. Nauðgunum hefur verið beitt ítrekað sem vopni til að kúga íbúa. Erfitt er að meta mannfall því allir innviðir eru í rúst. Talið er að mannfall sé á bili 25.000 til 250.000. Herforingjastjórnin sem framdi valdarán lofaði lýðræðislegum kosningum hefur ekki staðið við það loforð. Auk þessa hefur staðið yfir þjóðarmorð á ýmsum hópum í landinu. Aðgengi að matvælum, rafmagni og hreinu drykkjarvatni er af skornum skammti. UN Women á Íslandi hefur beitt sér til að reyna að bæta kjör súdanskra kvenna sem eru sérstaklega útsettar fyrir kynferðislegu ofbeldi vegna stríðandi fylkinga. Við nutum aðstoðar þeirra við gerð þessa þáttar.Kynnið ykkur starf UN Women á Íslandi hér: https://unwomen.is/Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 04 Sep 2024 - 134 - #204 Fidel Castro
Þrátt fyrir að vera leiðtogi smáríkis þá kom hann Kúbu ansi langt inn á leikborð alþjóðastjórnmála. Raunar var Kúba miðpunkturinn í deilu Sovétríkjanna og Bandaríkjanna árið 1962 en þá saup öll veröldin hveljur. Aldrei nokkurn tíma var eins mikil hætta á kjarnorkustríði milli stórveldanna. Fidel Castro er ugglaust einn umdeildasti leiðtogi sögunnar. Hann reif þjóð sína upp úr fátækt og stórbætti heilbrigðis - og menntakerfi. Andóf gegn stjórnvöldum var þó miskunnarlaust barið niður og fjölmiðlun var langt frá því að vera frjáls. Castro hafði mikla útgeislun og vakti athygli hvar sem hann kom. Í raun varð hann fyrirmynd byltingarmanna um allan heim. Hann sýndi öðrum leiðtogum rómönsku Ameríku að hægt var að standa upp í hárinu á Bandaríkjunum og losa landið við arðrán fyrirtækja þeirra og spillingu mafíunnar. Fólki er bent á að þættirnir um Ameríku-skólann (nr. 181) og Fulgencio Batista (nr. 198) tengjast þessu efni mjög. Mælum með að hlusta á þá.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 07 Aug 2024 - 133 - #199 Andrew Carlssin og aðrir tímaferðalangar
Í marsmánuði árið 2003 handtók FBI, alríkislögregla Bandaríkjanna, mann að nafni Andrew Carlssin. Það vakti miklar grunsemdir hve vel honum hafði gengið í verðbréfaviðskiptum. Á aðeins tveimur vikum hafði hann hækkað 800 dollara í 350 milljónir. Þetta gat ekki verið tilviljun. Hart var sótt að Carlssin í yfirheyrslum. Fólk vildi vita um hans bandamenn í fjármálageiranum sem höfðu mögulega lekið upplýsingum. Illa gekk að fá nokkuð út úr honum. Þegar honum var hótað langri fangelsisvist virtist hann loks tilbúinn til samninga. Lögreglumennirnir urðu þó dolfallnir er Carlssin bauð upp á lækningu gegn AIDS og upplýsingar um felustað Osama bin Laden, gegn því að fá skemmri vist eða sleppa alfarið við refsingu. Er hann var spurður hvernig hann gæti gefið þessar upplýsingar kom undarlegt svar. Carlssin sagðist vera tímaferðalangur frá árinu 2253.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 03 Jul 2024 - 132 - #195 Berlínarmúrinn
Þáttur dagsins fjallar um eitt alræmdasta tákn kalda stríðsins og "Járntjaldið" illræmda sem aðskildi Evrópu í marga áratugi. Vestur-Berlín hafði algjörlega sérstöðu. Borgin tilheyrði Vestur-Evrópu en var stödd mitt í kommúnistaríkinu sem var Alþýðulýðveldið Þýskaland, einatt kallað Austur-Þýskaland. Árið 1961 hófu yfirvöld í Austur-Berlín að byggja múr sem aðskildi borgarhlutana í tæpa þrjá áratugi. En af hverju var þessi múr reistur og hvaða afleiðingar hafði það? Við reynum að svara þeim spurningum í þessum þætti. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 05 Jun 2024 - 131 - #190 „Brjálaði Svíinn“: Stutt en viðburðarík ævi Göran Kropp
Sumir lifa lengi en ævi þeirra er róleg og viðburðalítil. Svo var ekki hvað Göran Kropp varðaði. Hans drifkraftur var ást á fjallaklifri. Hann varð brátt vel þekktur í þeim heimi vegna mikillar útgeislunar en einnig sérvisku. Kropp var ekki hrifinn af því að fara auðveldustu leiðina. Hann leitaðist sífellt eftir nýjum og krefjandi áskorunum.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 01 May 2024 - 130 - #186 Carlos Kaiser: Fótboltamaðurinn sem forðaðist fótbolta
Svikahrappar og svindlarar hafa ætíð vakið sérstaka athygli og jafnvel aðdáun meðal almennings. Stundum er ekki annað hægt en að dáðst að hugkvæmni þeirra sem nýta sér persónutöfra og samskiptahæfni til að koma sér áfram í lífinu. Vissulega eru til svindlarar sem engin ástæða er til að dást að. Fólk sem markvisst nýtir sér jafnvel neyð annarra og hagnast á því. Carlos Henrique Raposo fellur ekki í þann flokk hreinræktaðra illmenna en svikahrappur var hann vissulega og er í dag fyrstur til að viðurkenna það. Carlos fékk viðurnefnið Kaiser því hann þótti líkjast Frans Beckenbauer sem var einatt kallaður "Keisarinn". Eins og margir ungir drengir í Brasilíu dreymdi Carlos um að verða frægur fótboltamaður. Hann hafði útlitið og stæltan líkama. Þó var eitt mikilvægt sem Carlos vantaði: Hann var vita hæfileikalaus í fótbolta. Carlos var þó ákveðinn í að láta það ekki stoppa sig.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 03 Apr 2024 - 129 - #182 Norður-Kórea 1. þáttur: Járnhæll Japans, Kóreustríðið og Kim Il Sung
Styrktaraðilar á Patreon fá í hverjum mánuði að velja á milli þriggja málefna. Að þessu sinni var stuðst við lýðræðisvísitölu breska tímaritsins The Economist. Valið stóð á milli þriggja ríkja sem reglulega verma botnsætið á þeim lista, teljast ein þau ólýðræðislegustu í heimi. Það voru Túrkmenistan, Sýrland og Norður-Kórea. Síðastnefnda ríkið varð hlutskarpast. Við beinum því nú sjónum að einu lokaðasta og ólýðræðislegasta ríki veraldar. Efnið er yfirgripsmikið og ótrúlegt svo það var ákveðið að taka þetta í tveimur þáttum. Þessi þáttur tekur fyrir stofnun Alþýðulýðveldisins Norður-Kóreu, Kóreustríðið og stjórnartíð Kim Il Sung. Söfnun Solaris: solaris.help/palestinaViltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Sat, 02 Mar 2024 - 128 - #178 Hægri umferð
Sú var tíðin að sagnfræði fjallaði aðallega um hin „stóru efni“. Viðfangsefnin voru konungar, keisarar og heimsveldi. Eins og aðrar fræðigreinar hefur hún þróast og í dag má heyra talað um allskonar sögurannsóknir. Það er nefnilega oft áhugaverð saga á bakvið ýmislegt sem í fyrstu virðist ekki sérlega merkilegt. Hægri umferð var tekin upp á Íslandi þann. 26. maí 1968 á hinum svokallaða H-degi. Landsmenn voru spenntur fyrir þessu og undirbúningur var til mikillar fyrirmyndar. Ísland var eitt af seinustu löndum Evrópu til að gera þessa skiptingu. Í þættinum segjum við aðeins frá hvernig þetta fór fram hér á landi. Við skoðum einnig hvað olli því að vinstri umferð var eitt sinn algengari og hvernig það á rætur að rekja til stríðsreksturs og heimsvaldastefnu.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 07 Feb 2024 - 127 - #173 Óvinkonur Guðs - Sérstakur gestur: Dr. Yngvi Leifsson
Við höfum áður minnst á ólíkar nálgunaraðferðir sagnfræðinnar. Ein þeirra er einsagan. Þar skoða sagnfræðingar samfélagið og söguna frá einstaklingum. Oft er ekki um að ræða þjóðarleiðtoga eða ráðamenn. Frekar er það almenningur eða jafnvel fólk sem taldist vera neðarlega í goggunarröð samfélagsins. Í þessum þætti fáum við góðan gest í heimsókn en það er sagnfræðingurinn Yngvi Leifsson. Hann hefur lengi dvalist í borginni Salamanca á Spáni og stundað sínar rannsóknir þar. Salamanca var á sínum tíma talin einhverskonar "höfuðborg vændis" í Evrópu. Yngvi hefur rannsakað sögur þeirra kvenna og sérstaklega eitt ákveðið hús sem kallað var "Galeiðan". Það var hugsað sem einskonar betrunarheimili fyrir þær konur sem þóttu hafa glatað trausti drottins með sínu "ósiðlega" líferni. Þetta er afar áhugaverð saga sem varpar sérstöku ljósi á aðstæður almennings á Spáni á síðari hluta átjándu aldar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 03 Jan 2024 - 126 - #167 Ísrael - Palestína 3. þáttur - Intifada, PLO, Hamas og Hezbollah
Árið 1987 sauð upp úr á Vesturbakkanum og Gaza. Ísraelar höfðu stóraukið umsvif á landnemabyggðum og hert mjög allt eftirlit. Palestínumenn hófu að kasta grjóti og var svarað með kúlnahríð. Í kjölfar þessarra átaka minnkaði mjög stuðningur við PLO en öfgafull samtök múslíma sem kölluðu sig Hamas fengu mikinn meðbyr. Í Líbanon fór að bera meira á herskárri hreyfingu sem kallast Hezbollah. Í þessum þætti ljúkum við yfirferð okkar um þessa hatrömmu deilu fyrir botni Miðjarðarhafs. Við skoðum helstu samtök sem mest hefur borið á í baráttunni gegn Ísrael. Við veltum því einnig fyrir okkur hvernig framtíðin gæti orðið á þessu svæði. Aðeins er rúmur mánuður frá því að Ísrael upplifði sinn blóðugasta dag í þessarri deilu síðan 1948. Því miður virðist sem raddir hinna hófsömu séu orðnar veikar, jafnt hjá Ísraelum og Palestínuaröbum.Þessi þáttur er í boði Draugahjarðarinnar á Patreon! ❤️Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Mon, 11 Dec 2023 - 125 - #166 Ísrael - Palestína 2. þáttur - Stríð á stríð ofan
Ísraelsríki var stofnað í maí 1948 og hóf tilveru sína strax með því að berjast hatrammlega fyrir henni. Aðeins fáum klukkustundum eftir að sjálfstæðisyfirlýsingin var tilkynnt, réðust herir frá Egyptalandi, Sýrlandi, Líbanon og Írak inn í landið. Ísrael var þá að mestu án öflugra vina en nú sárvantaði þá vopn og verjur. Aðeins voru til vopn fyrir einn hermann af þremur. Í snarhasti tókst að kaupa vígtól frá Frakklandi og Tékkóslóvakíu. Ísrael var fljótt að snúa vörn í sókn og hrinti árás Arabaríkjanna. Í þessum þætti munum við einnig skoða mikilvæg átök sem fylgdu í kjölfarið og spannar þátturinn að mestu árin 1948 - 1982. Hér verða einnig útskýrð heiti sem nánast allir á fullorðinsaldri hafa einhverntíma heyrt í fréttum: Gaza, Golan-hæðir og Vesturbakkinn.Þessi þáttur er í boði Draugahjarðarinnar á Patreon! ❤️Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Mon, 11 Dec 2023 - 124 - #165 Ísrael - Palestína 1. þáttur - Síonismi og leiðin aftur til landsins helga
Um þessar mundir standa yfir blóðug átök á Gaza-svæðinu. Allt frá stofnun Ísraels-ríkis árið 1948 hefur verið mikil ólga í kringum það. Við vildum skyggnast aðeins inn í þessa sögu. Hvers vegna er barist og hví var Ísraels-ríki stofnað nákvæmlega á þessum stað, við mikil mótmæli þeirra sem þar bjuggu fyrir? Til að fá heildarmynd verðum við að byrja ferð okkar mun fyrr. Þessi þáttur skoðar sköpun þeirrar hugmyndafræði sem kallast Síonismi og snerist um það markmið að koma á fót og viðhalda gyðingalandi í hinu sögulega svæði Ísrael, sem þá var hluti af Ottómanaveldi. Hugtakið "síonismi" er dregið af "Síon", sem er tilvísun í biblíulegt hugtak um Jerúsalem og Ísraelsland. Síonismi var svar við langri sögu gyðingaofsókna og gyðingahaturs í Evrópu sem hafði jafnvel versnað til muna er þjóðerniskennd og þjóðríki komu til sögunnar. Síonismi reyndi að koma til móts við þörf gyðinga fyrir öruggt og viðurkennt heimaland. Hreyfingin komst á skrið snemma á 20. öld, sérstaklega eftir Balfour-yfirlýsinguna frá 1917, þar sem bresk stjórnvöld lýstu yfir stuðningi við stofnun „þjóðarheimilis gyðinga“ í Palestínu.Þessi þáttur er í boði Draugahjarðarinnar á Patreon! ❤️Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Mon, 11 Dec 2023 - 123 - #169 Pólitík og fótbolti: Lutz Eigendorf, Matthias Sindelar o.fl.
Við heyrum oft fólk segja að pólitík eigi ekki heima í listum og íþróttum. En er það rétt? Hafa listamenn í gegnum tíðina ekki bara verið mjög pólitískir heldur hreinlega haft áhrif á því sviði? Hafa Bob Dylan og Bubbi Morthens ekki verið pólitískir. Í þessum þætti ætlum við að skoða hvernig fótbolti og stjórnmál hafa rekist á hvort annað. Við tökum fyrir þá Lutz Eigendorf og Matthias Sindelar. Frábæra fótboltamenn sem margir telja að hafi verið ráðinn bani af tveimur illræmdustu leyniþjónustum sögunnar: Stasi og Gestapo. Einnig kíkjum við á aðra fótboltamenn sem hafa mikið skipt sér af stjórnmálum. Einn þeirra er meira að segja forseti síns heimalands í dag. Við skoðum einnig aðra sem aldrei hafa farið dult með sínar stjórnmálaskoðanir.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 06 Dec 2023 - 122 - #164 Saga Tíbet
Tíbet á sér ríka og flókna sögu sem nær aftur til forsögulegra tíma. Ríkið Zhangzhung, sem var til á milli 500 f.Kr. og 625 e.Kr. er talið undanfari síðari tíma tíbetska konungsríkja. Tíbetska veldið var stofnað á 7. öld og stóð fram á 9. öld. Eftir tímabil sundrungar á 9.-10. öld og endurvakningu búddismans á 10.-12. öld, urðu til þrír af fjórum helstu skólum hins tíbetska búddisma. Tíbet varð í raun sjálfstætt á 14. öld og var stjórnað af ýmsum aðalsættum næstu 300 árin. Snemma á 18. öld varð Tíbet áhrifasvæði Qing-ættarinnar og var það þar til ættarveldið féll. Árið 1959, í kjölfar stríðsátaka við Kína, flúði Tenzin Gyatso, hinn 14. Dalai Lama, í til Indlands og myndaði þar útlagastjórn. Sjálfstjórnarsvæðið Tíbet var stofnað í kjölfar innlimunar Kína í Tíbet. Sjálfstæðisbarátta og harðar ásakanir á hendur Kínverjum vegna mannréttindabrota hafa einkennt umræðuna um þetta merkilega svæði undanfarna áratugi. Kínverjar og stuðningsmenn þeirra hafa aftur á móti haldið því fram að Tíbet hafi verið langt frá því að teljast eitthvað sæluríki undir stjórn Dalai Lama. Þar hafi ríkt gamaldags lénsskipulag og fámenn aðalsætt hafi hagnast á undirokun og kúgun alþýðunnar.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 01 Nov 2023 - 121 - #160 Strand togarans Friedrich Albert árið 1903
Mörg skip hafa farist við Íslandsstrendur. Það er kaldranaleg tilhugsun að svartur sandur og hvítir jöklar hafa stundum verið það síðasta sem margir erlendir sjómenn sáu áður en hafið og kuldinn tóku líf þeirra. Stundum gerast atvik sem maður getur þó ekki annað en gapað yfir. Þátturinn í dag fjallar um slíkan viðburð sem átti sér stað fyrir 120 árum. Þá strandaði þýskur togari á einum allra versta stað sem hægt var að stranda á við þetta harðbýla land með sínum vægðarlausu vindum. Togarinn strandaði á Skeiðarársandi. Þessir menn neituðu þó að gefast upp og er saga þeirra hreint ótrúleg og vitnisburður um hvað er fólki fært ef lífsviljinn slokknar ekki. Barátta tók þó sinn toll og kom þá til kasta landa okkar sem fundu þá nær dauða en lífi. Þar hefst önnur hetjusaga þar sem íslenskir læknar og aðstoðarfólk þeirra vinna afrek. Þetta er harmsaga en inniheldur einnig hugrekki og von.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 04 Oct 2023 - 120 - #156 Þorskastríðin. 1. þáttur: Aðdragandi
Á 20. öld átti Ísland í hatrammri deilu um fiskveiðilögsögu við margar þjóðir. Hörðust var deilan við Bretland sem sendi sjálfan flotann í þrígang á Íslandsmið til að skakka leikinn. Bretar göntuðust með að ekki væri nóg að það væri "Cold War", heldur væri nú komið "Cod War", eða þorskastríð. Nafnið hefur fest sig í sessi þrátt fyrir að þetta hafi á engan hátt verið stríð, í fullri merkingu þess orðs. Þessi deila er merkileg að mörgu leyti. Nú gátu stórveldi ekki lengur vaðið yfir þau smáu í krafti herstyrks. Ísland og Bretland voru saman í hernaðarbandalagi og vera Íslands þar var afar mikilvæg hvað öryggi Bretlands varðaði. Breytingar og umbætur á hafréttarlögum spiluðu einnig stórt hlutverk og nýttu Íslendingar sér það óspart, með góðum árangri. Deilan varð þó svo hörð að ýmsir óttuðust að Ísland myndi jafnvel senda bandaríska herinn úr landi. Ekkert varnarmálaráðuneyti á Vesturlöndum vildi sjá það gerast. Deilan er því ansi áhugaverð hvað alþjóðasamskipti og sögu kalda stríðsins varðar. Allir fjórir þættir septembermánaðar verða um þorskastríðin. Við mælum með því að rifja upp kynni við þátt númer 79 sem heitir "Togaraskelfirinn" og fjallar um landhelgisgæslu Dana við Ísland í upphafi 20. aldar.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 06 Sep 2023 - 119 - #151 Landbúnaður í Albaníu
Flosi hefur oft sagt að hægt sé að gera nær allt áhugavert, nema mögulega landbúnaðarsögu Albaníu. Þetta er svona göngugrína (e. running gag) sem hlustendur þekkja ágætlega. Í hverjum þætti fá styrktaraðilar á Patreon að velja um þrjú umfjöllunarefni. Hið hlutskarpasta verður svo tekið fyrir í einum þætti. Það er Flosi sem sér um að koma með tillögur að þætti. Hins vegar er frestunarárátta hans stundum svo alvarleg að Baldur þarf rækilega að minna hann á. Síðast er þetta átti sér stað setti Baldur honum þá afarkosti að vera tilbúinn á tíma með efnið, ellegar myndi Baldur velja þrjú efni og yrði Flosi að hlíta niðurstöðunni. Flosi brást og því gátu hlustendur valið um eftirtalin þrjú atriði: 1. Saga vatnshelds klæðnaðar. 2. Gláka. 3. Landbúnaðarsaga Albaníu. Er skemmst frá því að segja að númer þrjú vann með yfirburðum. Hægt er að saka Flosa um margt, enda breyskur maður með afbrigðum en hugleysi býr hann þó ekki yfir. Því brást hann vel við þessari áskorun og þátturinn fjallar um sögu Albaníu með fókus á landbúnað. Tókst Flosa að gera efnið áhugavert? Dæmið sjálf.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 02 Aug 2023 - 118 - #147 Barnið í loftbelgnum
Þann 15. október 2009 fékk neyðarlína Bandaríkjanna óhugnanlegt símtal. Hinum megin á línunni var skelfingu lostinn faðir. Með grátinn í kverkunum sagði hann sex ára son sinn hafa farið inn í heimasmíðaðan loftbelg sem hefði losnað og væri nú kominn í mörg hundruð metra hæð. Viðbragðsaðilar víðs vegar voru kallaðir út og m.a. sendi Þjóðvarðliðið eina Black Hawk herþyrlu í leitina. Betur fór en á horfðist en fljótlega fór fólk að gruna að ekki væri allt með felldu.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 07 Jun 2023 - 117 - #142 Konurnar í lífi Hitlers
Þegar þeirri spurningu er kastað fram hver sé mögulega versta manneskja sem verið hefur uppi, kemur nafn Adolf Hitlers fljótt upp. Hann leiddi þjóð sína og raunar veröldina alla út í verstu og mannskæðustu styrjöld sögunnar. Ofstækisfullar skoðanir hans voru fullar af hatri og illsku. Það er erfitt að ímynda sér að þannig maður hafi getað elskað. Þó er það svo að Adolf Hitler átti í ástarsamböndum eða a.m.k. mjög nánu sambandi við nokkrar konur. Sögur þeirra eru sorglegar enda var greinilega ekki tekið út með sældinni að vera kærasta Hitlers. Í þessum þætti skoðum við þær þrjár sem virtust eiga í nánu sambandi við einræðisherrann alræmda. Það eru þær Geli Raubal, Unity Mitford og Eva Braun.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 03 May 2023 - 116 - #138 Laxdæla saga
Styrktaraðilar á Patreon fengu að velja um þrjár Íslendingasögur: Gunnlaugs saga Ormstungu hlaut aðeins 18% atkvæða. Gísla saga Súrssonar fékk 37%. Það var því ljóst að flest vildu heyra okkur taka fyrir Laxdæla sögu sem fékk 45%. Hún er ein af þessum stóru. Við höfum áður fjallað um Njáls sögu, Grettis sögu og Egils sögu. Því má segja að við séum nú búnir að fullkomna þessa yfirferð. Laxdæla er alveg einstök hvað þessar miðaldabókmenntir varðar. Hún er lang dramatískasta sagan og hefur oft vakið athygli fyrir sterka og fyrirferðarmikla kvenkaraktera. Sumir telja að hún hljóti að hafa verið skrifuð af konu. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 05 Apr 2023 - 115 - #133 Terry Jo Duperrault
Duperrault hjónin bjuggu í Wisconsin ásamt þremur börnum sínum. Þar er veturinn afar kaldur og þau hafði lengi dreymt um að fara í ferðalag á hlýjar slóðir á þeim tíma. Sumarið 1961 höfðu þau safnað fyrir draumaferðinni: Siglingu frá Florida til Bahamaeyja. Þau leigðu bát og fengu Julian Harvey til að stjórna fleyinu. Eiginkona Harvey kom einnig með og ætlaði að sjá um matreiðslu. Þetta átti að verða mikil skemmtiferð og var það framan af. Hins vegar breyttist hún í hreinræktaða martröð og hrylling. Hin 11 ára gamla Terry Jo Duperrault upplifði það að verða skyndilega munaðarleysingi og við tóku hræðilegir sólarhringar þar sem hún flaut alein langt úti á hafi, án vatns né matar.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 01 Mar 2023 - 114 - #129 Grettir Ásmundarson
Í þessum þætti skoðum við aðalsöguhetju Grettis sögu sem er ein sú þekktasta af Íslendingasögunum. Raunar verður að spyrja sig hvort rétt er að nota orðið „hetja“ yfir Gretti því hann var glæpamaður og útlagi. Vissulega drýgði hann hetjudáðir og tókst á við ill öfl sem enginn annar réði við. Þó er það harmurinn sem ræður ríkjum í Grettis sögu. Hún er saga manns sem hafði margt til brunns að bera, fáheyrðan líkamlegan styrk en einnig mikið hugrekki og óttaleysi. Í fari hans voru þó alvarlegir skapgerðarbrestir sem urðu honum að lokum að falli. Grettis saga vekur því upp margar spurningar um hvað sé hin svokallaða „karlmennska“ og mögulega eru engar Íslendingasögur sem eiga jafn vel við umræðu samtímans. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 01 Feb 2023 - 113 - #125 Nikola Tesla
Lengi vel var serbneski uppfinningamaðurinn Nikola Tesla þekktur sem maður sem hafði hugsað stórt en ekki komið megninu af hugmyndum sínum í verk. Samt var og er óumdeilt að hann hafi lagt sitt af mörkum á þeim tíma er vísinda og uppfinningamenn voru að leggja drög að þeirri vinnu sem átti eftir að skila okkur nútímafólkinu hreint stórkostlegum uppfinningum sem ekkert okkar gæti hugsað sér að vera án. Á seinni árum og sérstaklega með tilkomu Internetsins hefur umræðan um Tesla þó tekið á sig nokkurn sérstakan blæ. Hann hefur verið kallaður mikilvægasti uppfinningamaður allra tíma, verið ljósárum á undan öllum öðrum en afbrýðisöm illmenni á borð við Thomas Edison hafi haldið aftur af honum. Honum hafa verið eignaðar svo margar uppfinningar að ekki er nokkur vafi á Tesla sé ein ótrúlegasta mannvera sögunnar ef þetta er satt. En þar liggur efinn: Hvað er satt og hvað ekki? Þeir eru til sem trúa því án efa að Tesla hafi fundið upp m.a. fyrsta eiginlega riðstraumskerfið, radarinn, örbylgjusendinn, spennubreytinn, hátalarann og jafnvel flúrlampann. Ýmislegt fleira er eignað honum. Hví er þá Nikola Tesla ekki alls staðar viðurkenndur sem mesti uppfinningamaður og tæknifrumkvöðull allra tíma? Ef allt er satt sem um hann er sagt, ættu í raun að vera styttur af honum í öllum höfuðborgum veraldar. Í þessum þætti reynum við að skoða sögu þessa manns betur og fá úr því skorið hvort Nikola Tesla er hrein mýta, glæpsamlega vanmetinn eða sambland af hvoru tveggja.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 04 Jan 2023 - 112 - #LD3 Hernámið á Austfjörðum
Baldur og Flosi fóru til Reyðarfjarðar í boði Fjarðabyggðar og Menningarstofu Fjarðabyggðar og fylltu þar gamlan hermannabragga af fólki. Síðan var farið að ræða hernámið í seinni heimsstyrjöld og sérstaklega var sjónum beint að Austfjörðum. Hvaða hlutverki gegndu Reyðarfjörður og Seyðisfjörður? Hvernig voru samskipti heimamanna og þessara ungu drengja sem voru langt frá heimkynnum sínum í harðbýlu og hrjóstrugu landi? Höfðu Þjóðverjar einhvern áhuga á Íslandi? Hvað olli því að Lenín minntist sérstaklega á Ísland í ræðu árið 1920, mörgum árum áður en styrjöldin braust út? Hví sagði þýski hershöfðinginn Karl Haushofer að sá sem réði Íslandi héldi á byssu sem væri miðað beint á Evrópu?Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 07 Dec 2022 - 111 - #121 Íslandsvinurinn Pike Ward
Seint á 19. öld kom hingað Englendingur sem vildi kaupa fisk af Íslendingum. Englendingar voru á þessum tíma uppfullir af heimsveldishroka og vinsældir þeirra litlar víðast hvar. Ísland var þar engin undantekning. Enskir togaramenn vanvirtu ítrekað landhelgina og ollu skaða á veiðarfærum heimamanna og hikuðu ekki við að beita ofbeldi. Hvað var það þá í fari Pike Ward sem olli því að Íslendingar tóku ástfóstri við þennan mann? Sjálfur heillaðist hann af landinu, lærði tungumálið og eignaðist marga vini. Sumir telja að hann hafi haft ómetanleg áhrif á sjálfstæðisbaráttu og þjóðerniskennd íslendinga.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 02 Nov 2022 - 110 - #117 Byltingin á Haítí
Líklega þekkja flestir til byltinganna í Ameríku 1776 og Frakklandi 1789. Þessir atburðir eru oft nefndir sem mikilvægt skref í átt að frelsi og lýðræði í veröldinni. Vissulega eru þetta merkisatburðir og höfðu gífurleg áhrif. Þó vill oft gleymast að þessar þjóðir veittu ekki öllum í ríkinu frelsi og réttindi. Í ríkjunum voru enn margar milljónir fólks sem höfðu verið svipt frelsi sínu og það breyttist ekki. Bæði Bandaríkin og Frakkland héldu áfram þrælahaldi með tilheyrandi ofbeldi og dauða. Lang arðbærasta nýlenda Frakka var Saint - Domingue, á eyjunni Hispaniola. Þar stritaði mikil fjöldi þræla við hryllilegan aðbúnað. Þeir sem ekki létust vegna harðræðis þrælahaldara máttu þola ásókn moskítóflugna sem báru með sér banvæna sjúkdóma eins og malaríu og gulusótt. Harðneskjan var svo grimmileg að jafnvel konungur Frakklands reyndi að stemma stigu við ofbeldinu. En allt kom fyrir ekki. Að lokum sauð upp úr og þrælarnir gerðu uppreisn gegn kvölurum sínum. Byltingin á Haítí er eina þrælabylting sögunnar sem ekki tókst að berja niður. Hún er ein áhrifamesta og merkilegasta uppreisn sögunnar og á skilið meiri umfjöllun.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 05 Oct 2022 - 109 - #113 Hin djöfullega skelfing
Á fyrrihluta níunda áratugar reið einkennilegt fár yfir Bandaríkin. Foreldrar, forráðamenn og kennarar unglinga þóttu greina þess augljós merki að myrkrahöfðinginn sjálfur væri að ná tökum á þeim. Það þóttist sjá greinileg merki um fórnarathafnir og aðrar myrka starfshætti sem tengjast illþýði helvítis. Frétta - og spjallþættir voru uppfullir af umræðu um "satanic panic" og svo rammt kvað að þessu að bandaríska alríkislögreglan sá sig knúna til að setja saman teymi til að rannsaka hvort eitthvað væri hæft í þessu. Ýmis fyrirtæki urðu fyrir barðinu á þessu, þóttu ganga erinda Satans þótt þau framleiddu snyrtivörur eða annað saklaust. Hlutverkaspilið Dungeons & Dragons var fordæmt af þeim sem sáu Satan alls staðar. Þetta virkar hlálegt en á þessu er grafalvarleg hlið því þetta kostaði bandarískt samfélag margar milljónir dollara og saklaust fólk var svipt frelsi sínu og ærunni. Þetta var nánast eins og galdraofsóknir 17. aldar. En hefur "satanic panic" horfið með öllu eða aðeins breytt um svip? Í stað Satans er nú kominn hinn óþekkti Q og QAnon.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á PatreonVefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 07 Sep 2022 - 108 - #108 Flóabardagi
Sturlungaöld er mesta ófriðartímabil í sögu Íslands. Þá hafði valdajafnvægi riðlast og sterkustu ættir landsins gerðust aðsópsmeiri í að eignast jarðir og öðlast völd. Sumir hafa lýst þessu tímabili sem hreinræktaðri borgarastyrjöld þó frekar hafi þetta verið valdabarátta í samfélagi sem enn byggðist upp á einhverskonar ættbálkaskipan. Mannskæðustu orrustur Íslandssögunnar voru háðar á þessum tíma. Þetta voru alvöru orrustur þar sem margar þúsundir börðust hatrammlega. Þann 25. júní 1244 átti sér stað eina sjóorrusta sem háð hefur verið við Íslandsstrendur, milli Íslendinga. Þar mættust þeir Þórður kakali Sighvatsson, af ætt Sturlunga og Kolbeinn "ungi" Arnórsson af ætt Ásbirninga. Talið er að á milli 8-900 manns hafi barist þar. Orrustan var háð á Húnaflóa.Þessi þáttur er í boði Draugahjarðarinnar. Ef þið viljið ganga í hóp framliðinna finnið þið Draugana á Patreon hér. Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 03 Aug 2022 - 107 - #104 Harmsaga æfi minnar
Árið 1945 kom út ævisaga Jóhannesar Birkiland. Hún bar titil sem vart á sinn líka í Íslandssögunni. Bókin heitir "Harmsaga æfi minnar - Hvers vegna ég varð auðnuleysingi". Líklega hefur aldrei komið út bók á verri tíma. Hún átti ekkert erindi við almenning á þessum tíma. Fólk var uppnumið og spennt í hinu nýja lýðveldi, fullt af eldmóði tilbúið að takast á margvísleg og erfið verkefni hinnar ný-sjálfstæðu þjóðar. Bölmóður Birkilands var ekki það sem þurfti þá. Hann var hafður að háði og spotti en vegna atorku hans sjálfs, seldist bókin reyndar ágætlega. Hún hefur smátt og smátt mjakað sér fram í sólarljósið á ný enda er hún afar skemmtileg og stíllinn einstakur, rétt eins og Birkiland sjálfur. Þessi þáttur er í boði Draugahjarðarinnar. Ef þið viljið ganga í hóp framliðinna finnið þið Draugana á Patreon hér. Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 06 Jul 2022 - 106 - #99 Paolo og plastbarkinn
Í þessum þætti skoðum við ítalska skurðlækninn Paolo Macchiarini. Hann þótti á sínum tíma einn fremsti læknir veraldar og var talið að aðgerðir hans myndu lyfta grettistaki og valda byltingu í líffæraígræðslum. Svo reyndist ekki vera og Macchiarini er nú miðpunktur í einu mesta hneykslismáli í gjörvallri sögu læknisfræðinnar. Það mál teygir jafnvel anga sína til Íslands því einn af þeim sem var svo óheppinn að lenda undir hnífnum hjá Macchiarini var Andemariam Beyene sem var þá námsmaður á Íslandi. Þetta mál er ógeðfellt og sorglegt. Því vörum við því að sumt sem fjallað er um getur valdið hlustendum óþægindum.Þessi þáttur er í boði Draugahjarðarinnar. Ef þið viljið ganga í hóp framliðinna finnið þið Draugana á Patreon hér. Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 01 Jun 2022 - 105 - #95 Ólöf gerist eskimói
Flestum er okkur kennt að það sé ljótt að ljúga. Hins vegar eru margir sammála um að lífið getur verið torfæra og sjálfsagt að fólk bjargi sér eins vel og það getur, svo lengi sem það bókstaflega skaði ekki annað fólk. Ólöf Sölvadóttir beitti lyginni óspart sér í hag. Henni til varnar má þó benda á að hún hafði ekki fengið góða vöggugjöf. Ólöf var dvergur og fædd á 19. öld, þegar eitt mesta harðæri sem Ísland hafði kynnst, síðan í Móðuharðindunum, dundi yfir þjóðina og hrakti marga úr landi að freista gæfunnar annars staðar. Saga Ólafar er mögnuð. Auðvitað má segja að það sem hún gerði hafi, stranglega tekið, verið rangt. Þó er ekki hægt annað en dást að þeirri staðfestu og sjálfsbjargarviðleitni sem einkenndi þessa einstöku konu. Hér finnið þið Draugana á Patreon. Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 04 May 2022 - 104 - #94 Flotinn ósigrandi
Þann 28. maí árið 1588 lögðu um 150 skip af stað frá Lissabon. Markmið þeirra var að fara til Hollands og sækja þar innrásarlið sem átti að ráðast á England. Þessi leiðangur er kyrfilega greyptur í enska þjóðarsál sem stórfenglegur sigur Englands á einu mesta herveldi þessa tíma, að þetta hafi verið Davíð gegn Golíat. En er það raunin? Var England eitthvað aflminni en Spánn? Af hverju voru Spánverjar yfirhöfuð að standa í þessu risastóra verkefni? Við skoðum þetta og segjum einnig frá spænskum sjóliða sem upplifði hreint ótrúlegar hrakningar. Hér finnið þið Draugana á Patreon. Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 27 Apr 2022 - 103 - Tilkynning um pásu
Við ætlum í smá pásu. Við munum samt halda Patreon-inu gangandi. Ef þið hafið áhuga á að skoða það betur finnið þið það hér: https://www.patreon.com/draugarfortidarHeyrumst síðar! 🖤
Thu, 03 Mar 2022 - 102 - #93 Refsivöndur Guðs
Rómverska heimsveldið stóð í um 1000 ár og náði að eignast fjölmarga óvini á þeim tíma. Sumir voru hættulegri en aðrir en sá sem þessi þáttur er um olli þeim miklum vandræðum og skelfingu. Nafn hans var Attila og hann var konungur Húna. Rómverjar gáfu honum meira að segja nafn þáttarins sem á frummálinu var "Flagellum Dei." Í þessum þætti skoðum við Atla og Húna hans ögn og reynum að komast að því hví nafn þessa manns er enn svo alræmt.Það eru Borg Brugghús/Bríó, Flyover Iceland og Bónus sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤 Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 23 Feb 2022 - 101 - #92 Konan með lampann
Flest höfum við líklega heyrt minnst á Florence Nightingale. Hún er almennt talin mikill frumkvöðull í hjúkrun og átti einna stærstan þátt í að breyta viðhorfi almennings á Vesturlöndum og víðar til greinarinnar. Hún lagði grunninn að nútíma hjúkrunarfræði sem víðast hvar er nú kennd á háskólastigi. Það eru Borg Brugghús/Bríó, Flyover Iceland og Sjóvá sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤 Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 16 Feb 2022 - 100 - #91 Týr kemst í hann krappan
Þann 6. maí 1976 gerðist atvik á hafi úti sem hefði hæglega getað breytt Íslandssögunni. Þetta er eitt alvarlegasta atvikið í þorskastríðunum svokölluðu og mátti hársbreidd muna að flaggskip Landhelgisgæslunnar skyldi ekki sökkva og mannfall verða.Það eru Borg Brugghús/Bríó, Flyover Iceland og Rokksafn Íslands sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤 Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 09 Feb 2022 - 99 - #90 Bjartari en þúsund sólir
Anatoli Bugorski var að athuga bilun í stærsta eindahraðli Sovétríkjanna árið 1978. Þá var hann skotinn í hnakkann. Ekki með byssukúlu heldur brást öryggiskerfið all illilega og Bugorski fékk banvænan geisla á ljóshraða í gegnum höfuð sitt. Þetta skot innihélt margfalt meira magn af geislun en nokkur maður á að þola. Talið er að geislamagnið hafi verið hátt í 300.000 röntgen en 500 röntgen er nóg til að ganga af manneskju dauðri.Það eru Borg Brugghús/Bríó og Flyover Iceland sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤 Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 02 Feb 2022 - 98 - #89 Guð er dauður!
Af fjölmörgum heimsspekingum sem hafa reynt að leiðbeina okkur í gegnum táradalinn og tilvistarkreppuna, er Friedrich Nietzsche líklega einn sá þekktasti og áhrifamesti. Flest okkar þekkjum fræga frasa hans eins og til dæmis nafn þáttarins. En hvað átti Nietzsche við er hann sagði Guð dauðan? Hvað meinar hann er hann segir að við eigum að reyna að verða ofurmenni? Var Nietzsche nasisti og gyðingahatari? Hví er Nietzsche ennþá svona vinsæll? Í þessum þætti reynum við að kynnast þessum sérstaka náunga með hið magnaða yfirskegg ögn nánar.Það eru Borg Brugghús/Bríó, Bónus og Sjóvá sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤 Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 26 Jan 2022 - 97 - #88 Nostradamus: Sjáandi eða svikahrappur?
Véfréttir, sýnir, bölbænir, berdreymni eða spádómar. Í gegnum mannkynssöguna hefur ekki verið skortur á fólki sem hefur talið sig sjá lengra en nefið nær. Þó er nokkuð athyglisvert að af öllum þeim frægu spámönnum sem hafa birst í gegnum tíðina, þá gnæfir einn yfir öllum hinum: Nostradamus. Þó að hann hafi nú legið í gröf sinni í fjórar og hálfa öld hefur orðspor hans lítið dvínað. Hvað veldur því? Er yfirhöfuð eitthvað að marka manninn sem sagt er að hafi séð fyrir ris og fall Adolf Hitlers, morðið á John F. Kennedy og fall tvíburaturnanna?Það eru Borg Brugghús/Bríó, Bónus og Rokksafn Íslands sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤 Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 19 Jan 2022 - 96 - #87 Uppgjöf er ekki í boði
Á Vesturlöndum erum við vön því að heyra sögur af hermönnum sem gáfust upp og voru þá meðhöndlaðir samkvæmt alþjóðalögum um meðferð stríðsfanga, svokallaðri Genfar-samþykkt. Ekki hafa þó allar þjóðir samþykkt þessi lög. Einnig má finna ýmislegt hrollvekjandi í menningu ýmissa landa, hvað varðar stríð og uppgjöf. Sums staðar er það, að gefast upp fyrir óvininum, álitið svo mikil smán að viðkomandi á nánast ekki heimangengt og er fyrirlitinn af öllum. Þessi þáttur fjallar um hermenn sem héldu áfram baráttu, jafnvel þó stríðinu væri löngu lokið.Það eru Borg Brugghús/Bríó, Flyover Iceland og Bónus sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤 Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 12 Jan 2022 - 95 - #86 Joseph Beyrle
Sögusviðið er seinni heimsstyrjöld 1944 -1945. 19 ára gamall drengur frá Michican-fylki í Bandaríkjunum kastar sér niður í fallhlíf yfir Frakklandi. Hann er fljótt tekinn til fanga og færður í þýskar fangabúðir. Þaðan reynir hann ítrekað að sleppa og tekst það nokkrum sinnum en alltaf handsamaður aftur. Í eitt skiptið nær hin illræmda Gestapó honum og hann er heppinn að lifa af þau kynni. Að lokum sleppur hann og finnur sovéska skriðdrekasveit sem stjórnað er af Alessöndru Samusenku, eini skriðdrekaforinginn í síðari heimsstyrjöld sem var kona. Með þeim tekst vinátta, Josehp berst með sovéska hernum og tekst meira að segja að frelsa fangabúðirnar þar sem hann sjálfur var í haldi. Sumar sögur eru þannig að maður hugsar: "Af hverju er ekki búið að gera kvikmynd um þetta!?" Þetta er ein af þeim sögum. Joseph Beyrle er bandarísk hetja en hann er jafnvel enn meiri hetja í Rússlandi, einnig í nútímanum. Vandamálið er bara að Rússland og Vesturlönd hafa nær aldrei verið neitt sérstakir vinir. Þess vegna er þessi kvikmynd ekki til. Nú er þó til íslenskur hlaðvarðsþáttur um hina ótrúlegu sögu Joseph Beyrle. Það eru Borg Brugghús/Bríó og Bónus sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤 Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 05 Jan 2022 - 94 - #85 Málmurinn sem mótaði mannkynið
Þáttur dagsins fjallar um samband mannkynsins við efni. Nánar tiltekið ákveðinn málm. Erfitt er að ímynda sér heiminn og allt það sem mannkynið hefur áorkað ef fólk hefði aldrei náð að höndla þetta efni sem forfeður okkar og mæður trúðu að væri gjöf frá guðunum. Hér er ekki um að ræða glitrandi gull, skínandi silfur eða krúttlegan kopar. Málmurinn sem mótaði mannkynið er hið gráa og harða STÁL.Það eru Borg Brugghús/Bríó og Omnom sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 29 Dec 2021 - 93 - #84 Japan verður stórveldi
Í þessum mánuði var þess minnst í Bandaríkjunum að 80 ár voru liðin frá því að keisaraveldið Japan réðst með herafli gegn þeim. Bandaríkjamenn tala oft um þessa árás sem huglausa og að hún hafi komið fullkomlega á óvart. Bandaríkin hafi ekki átt neitt sökótt við Japan. Getur það verið? Árið 1853 sigldi bandarískur floti til Japan og hótaði öllu illu, fengju þeir ekki sínu framgengt. Hvað gekk þeim til? Gæti þetta allt verið tengt? Var nýlendustefnunni aðeins framfylgt í Afríku, ekki Asíu? Í þessum þætti skoðum við hversu mikilvægt er að skoða mannkynssöguna frá öllum sjónarhornum. Það eru Borg Brugghús/Bríó og Bónus sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 22 Dec 2021 - 92 - #83 Átökin á Norður-Írlandi
Í þessum þætti er fjallað um átökin á Norður-Írlandi sem Írar kalla vanalega "The Troubles". Íslendingar eru vanir því að þurfa að kljást við óblíð náttúruöfl. Sem betur fer höfum við sama sem ekkert kynnst því að eiga í illdeilum við aðrar þjóðir. Hvað þá að hópar innan þjóðarinnar sjálfrar berist á banaspjótum. Ein nágrannaþjóð hefur aftur á móti fengið að kynnast því allt of vel. Það eru íbúar Írlands, eyjunnar grænu í suðri. Í 30 ár ríkti þar óöld og nánast borgarastyrjöld. Breski herinn mætti á svæðið og átti að stilla til friðar. Nærvera hans gerði þó aðeins illt verra.Það eru Borg Brugghús/Bríó, Flyover Iceland og Rokksafn Íslands sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 15 Dec 2021 - 91 - #82 Hefnd af himnum ofan
Líklega hafa fæst okkar upplifað sanna hefndarlöngun. Hér er átt við hefnd sem sprottin er af djúpstæðu hatri. Löngun til að valda fólki alvarlegum skaða eða dauða. Belgíski baróninn Jean de Selys Longchamps brann af hatri. Hatrið í honum dofnaði ekki, þvert á móti. Að lokum lét hann til skarar skríða. Baróninn hafði yfir að ráða einni fullkomnustu vígvél samtímans. Hefndaraðgerð hans myndi hafa áhrif og vekja athygli.Það eru Borg Brugghús, Bríó og Sjóvá sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 08 Dec 2021 - 90 - #81 Litli risinn
Strax í barnæsku var ljóst að Richard Flaherty yrði dvergvaxinn. Hann mátti þola mikla stríðni og erfiðleika vegna vaxtarlagsins. En Richard sneri vörn í sókn, hóf að æfa bardagalistir af miklum móð og ákvað að gerast hermaður. Hann fékk undanþágu til að komast í herinn en þá var Richard aðeins 144 sentimetrar. Þetta stöðvaði ekki Richard sem rakaði til sín heiðurspeningum fyrir frækilega framgöngu. Auk þess að vera sérsveitarmaður í bandaríska hernum, vann Richard einnig fyrir CIA og ATF. Lífshlaup hans var einfaldlega alveg magnað.Draugar fortíðar eru í boði Borg Brugghús og Bríó. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 01 Dec 2021 - 89 - #80 Draugar
Stuðningsfólk okkar á Patreon fær reglulega að velja um nokkur efni sem þau vilja heyra okkur taka fyrir. Að þessu sinni stóð valið á milli þriggja fyrirbæra úr íslenskum þjóðsögum en það voru draugar, tröll og huldufólk. Skemmst er frá því að segja að draugarnir sigruðu með yfirburðum. Það er kannski vel við hæfi. Bæði passar það vel við nafnið á hlaðvarpinu en einnig spilar það mögulega inn í að draugar eru Íslendingum afar hugleiknir. Kannanir sýna að yfir 70% Íslendinga telja mjög líklegt eða öruggt að vofur og afturgöngur séu raunveruleg fyrirbrigði. Í þessum þætti skoðum við þetta nánar og segjum aðeins frá helstu draugum íslenskra þjóðsagna.Það eru Borg Brugghús/Bríó, Bónus og Sjóvá sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Hér finnið þið Patreon-ið Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 24 Nov 2021 - 88 - #79 Togaraskelfirinn
Flestum er kunnugt um fiskveiðideilur við Bretland og fleiri ríki á seinni hluta 20. aldar sem í daglegu tali eru kölluð "þorskastríðin." Þetta vandamál nær þó mun lengra aftur enda var það þegar á síðmiðöldum að útlendingar hófu að senda hingað fiskiskip. Iðnbyltingin gerði það þó að verkum að í lok 19. aldar voru þetta ekki lengur seglskip, heldur stórir stáltogarar sem létu greipar sópa, Íslendingum til mikils ama. Danmörk átti að sjá um landhelgisgæslu og sendu hingað skip til að fylgjast með landhelgisbrjótum. Íslendingar voru yfirhöfuð óánægðir með störf þeirra. Þeir þóttu linir og ragir við að stugga við togurum stórþjóða. Oft veiddu erlendir togarar langt innan landhelgi og fóru í engu eftir lögum. Þetta breyttist þó vorið 1905 er hingað kom varðskipið Hekla og skipherrann Carl Georg Schack. Hann varð fljótlega alræmdur meðal erlendra fiskimanna en Íslendingar litu á hann sem þjóðhetju. Björn Þorsteinsson sagnfræðingur gaf honum viðurnefni sem lýsir honum vel: Togaraskelfirinn.Það eru Borg Brugghús/Bríó, Bónus og Omnom sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 17 Nov 2021 - 87 - #78 Plast
Erfitt er að ímynda sér hvernig heimurinn var áður en plast var fundið upp. Matarílát voru iðulega úr postulíni, viði og jafnvel málmi. Auk þess voru alls kyns dýraafurðir notaðar í miklum mæli. Plastið er ótrúlegt efni, svo endingargott að það tekur margar aldir að brotna fullkomlega niður. Það þýðir að nær allt plast sem hefur verið framleitt er enn á plánetunni í einhverjum mæli. En þessi kostur plastsins er einnig þess stóri ókostur. Auk þess er framleiðsla á því að aukast, ekki minnka. Mest af því notum við aðeins einu sinni og svo er því hent. Ekki sérlega gáfuleg notkun á efni sem endist í 500 ár. Í þessum þætti skoðum við sérstaklega áhrif þess á nokkuð sem er báðum þáttastjórnendum kært: Hafið.Það eru Borg Brugghús/Bríó og Bónus sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 10 Nov 2021 - 86 - #77 STASI Football Club
Erfitt er að lýsa kalda stríðinu og því ástandi sem var í Evrópu á þeim tíma, fyrir þeim er ekki upplifðu þetta. Annar þáttastjórnenda man eftir þessum tíma og kannski sérstaklega eftir ákveðnu landi í Austurblokkinni sem ekki er lengur til en það var Alþýðulýðveldið Austur-Þýskaland. Þar var afar illræmd leynilögregla sem sá um öryggi ríkisins. Hún hét Staatssicherheitsdienst en var iðulega kölluð Stasi. Flestum ber saman um að þetta sé ein skipulagðasta leyniþjónusta sögunnar en einnig sú illræmdasta. Stasi njósnuðu um óvini ríkisins en virtust telja að mesta hættan væri innan frá. Því voru það aðallega íbúar Austur-Þýskalands sem urðu fyrir barðinu á þeim. Stasi var ekkert óviðkomandi. Hún skipti sér jafnvel af fótbolta og Berlínarliðið BFC Dynamo, almennt kallað Dynamo Berlín, varð óopinbert lið leyniþjónustunnar og þeirra sem studdu hið kommúníska kerfi. Þangað fóru bestu leikmennirnir og dómarar áttu ekki von á góðu ef þeir dæmdu ekki Dynamo í vil. Hitt liðið í Austur-Berlín var Union Berlín. Vegna þessarar gríðarlegu misskiptingar varð Union lið þeirra sem hötuðu Stasi og hin kommúnísku stjórnvöld.Það eru Borg Brugghús/Bríó og Bónus sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 03 Nov 2021 - 85 - #76 Idi Amin
Sumt í þessum þætti getur valdið óhug. Hann er enn í dag einn þekktasti einræðisherra sögunnar. Idi Amin rændi völdum í Úganda árið 1971. Við tók tímabil sem eldra fólk í landinu á enn erfitt með að ræða um. Stjórnarfarið einkenndist af taumlausri vænisýki og ótrúlegri grimmd. Í þessum þætti reynum við að skoða hvort mögulegt sé að einhverjar af þeim hræðilegu sögum sem gengu af Amin séu mögulega ýkjur. Sagt var t.d. að í glæsivillu hans hefði meðal annars fundist ísskápur fullur af mannakjöti og að hinn mikli leiðtogi hefði reglulega lagt það sér til munns. Einnig er vert að skoða úr hvaða umhverfi Amin kom en í það blandast sagnir af hinni illræmdu nýlendustefnu stórvelda Evrópu en Úganda var mjög lengi undir stjórn Breta.Það eru Borg Brugghús/Bríó, Agla gosgerð og Bónus sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 27 Oct 2021 - 84 - #LD1 Villta vestrið | Hljóðkirkjan & áhorfendur
Það eru eflaust fá tímabil í mannkynssögunni sem hafa ratað jafn oft á blaðsíður skáldsagna, leiksviðið eða hvíta tjaldið, eins og hið svokallaða "villta vestur" á 19. öld. Nær allir jarðarbúar kannast við sögur af harðduglegum kúrekum, blóðþyrstum indíánum og illmennum sem skjóta hvorn annan með köldu blóði í harðvítugu einvígi þar sem skjótasta skyttan sigrar. En hvar endar raunveruleikinn og skáldskapur tekur við? Hvernig stendur á því að kúrekar biómyndanna eru alltaf hvítir karlmenn? Hvar eru konurnar? Voru frumbyggjar alltaf í vígahug? Við nánari skoðun kemur í ljós að nánast ekkert úr kvikmyndunum er raunsönn lýsing á villta vestrinu og raunar var það ekkert sérstaklega "villt"!Þessi þáttur var tekinn upp á fyrsta lifandi viðburði Hljóðkirkjunnar þann 7. október 2021 á Húrra, en þar hittu Draugarnir fólk í fyrsta sinn. Það eru Borg Brugghús og Bríó sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Fri, 22 Oct 2021 - 83 - #75 Satan fer til Svíþjóðar
Hin svokallaða "brennuöld" var tímabil á 17. öld sem einkenndist af mikilli vænisýki kristinna manna sem skyndilega sáu Satan og nornir hans í hverju horni. Klerkar og biskupar létu fangelsa, pynta og myrða fólk sem bjó yfir einhverri læknisfræðilegri þekkingu s.s. ljósmæður, grasalækna og raunar allt fólk sem þótti grunsamlegt og líklegt til að hafa selt hinum myrka herra sál sína. Jafnvel börn voru ekki undanskilin. Er þessu æði lauk í byrjun 18. aldar höfðu tugir þúsunda verið tekin af lífi. Í þessum þætti skoðum við aðeins þennan trylling og tökum við fyrir eitt ákveðið land sem er Svíþjóð.Það eru Borg Brugghús/Bríó og Sjóvá sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 20 Oct 2021 - 82 - #74 Drátthagi dráparinn
Mikið vatn hefur runnið til sjávar hvað varðar réttindi samkynhneigðra og það getur verið erfitt fyrir nútímafólk að skilja hvernig aðstæður þeirra voru áður fyrr. Lög sem bönnuðu samræði fólks af sama kyni voru afnumin á Íslandi 1940 en flest ríki voru langt á eftir okkur í þessum efnum. Langt fram á áttunda áratuginn var samkynhneigð ólögleg í mörgum fylkum Bandaríkjanna. Ein borg varð nokkurs konar Mekka samkynhneigðra og margir fluttust þangað í von um betra líf. Sú borg var San Francisco í Kaliforníu. Þrátt fyrir þetta voru borgaryfirvöld og lögregla óvinveitt samkynhneigðum og þau máttu sæta ofsóknum og ofbeldi. Vanlíðan þeirra breyttist þó í fullkomna skelfingu er í ljós kom að raðmorðingi lék lausum hala í borginni og hans fórnarlömb voru allt samkynhneigðir karlmenn. Hann hafði þann undarlega hátt á að teikna mynd af mönnum og gefa þeim, áður en hann tók líf þeirra.Það eru Borg Brugghús/Bríó og Omnom sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 13 Oct 2021 - 81 - #73 Skelfdi skógarhöggsmaðurinn
Um kvöldið 5. nóvember árið 1975, í Arizona fylki í Bandaríkjunum, var skógarhöggsmaðurinn Travis Walton ásamt vinnufélögum sínum á leið heim eftir langan vinnudag. Þeir voru nokkrir saman í bifreið, spjölluðu og göntuðust við hvorn annan. Skyndilega sló þögn á mannskapinn. Í gegnum trjágróðurinn sáu þeir einkennilega birtu. Innan skamms komu þeir auga á afar stóran, disklaga málmhlut sem gaf frá sér þessa sérkennilegu birtu. Hluturinn sveif í lausu lofti nokkra metra frá jörðu. Forvitnin varð öllu yfirsterkari og Travis fór út úr bílnum til að athuga þetta betur. Þá tók við atburðarás sem átti eftir að gerbreyta lífi hans.Það eru Borg Brugghús/Bríó sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 06 Oct 2021 - 80 - #72 Arnarflug
Þegar velgengni íslenska landsliðsins í handbolta var sem mest, vildu sumir útskýra það þannig að samkeppnin væri lítil því svo fáar þjóðir stunduðu íþróttina af einhverri alvöru. Hvort svo sé, skal ósagt látið en það hefur gerst að íþróttafólk hefur náð að komast á stórmót vegna þess að viðkomandi þjóð hafði nær enga iðkendur viðkomandi greinar. Ýmsir...nei, reyndar ALLIR ráku upp stór augu þegar Michael Edwards birtist á vetrarólympíuleikunum í Calgary í Kanada árið 1988. Hann var afar nærsýnn og varð að troða gleraugum sínum undir skíðagleraugun. Hann þótti einnig sérstaklega ólíklegur til að stunda þá krefjandi grein sem hann keppti í. Sú íþrótt kallast skíðastökk.Það eru Borg Brugghús/Bríó, Agla Gosgerð og Síminn Pay sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 29 Sep 2021 - 79 - #71 Lygum hæfa laun ill
Jean-Claude Romand virtist lifa hinu fullkomna lífi. Hann var virtur læknir sem starfaði við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina í Genf. Hann ferðaðist mikið í sínu starfi, hitti reglulega mikilvægt fólk og þjóðþekktar persónur í frönsku þjóðlífi. Fjölskylda hans og vinir voru afar stolt af honum. Það var aðeins eitt vandamál: Ekkert af þessu var satt. Romand var ekki læknir og hafði aldrei unnið við hina mikilsvirtu stofnun. Að lokum fór lygavefur hans að leysast upp og þá tók hann hræðilega ákvörðun.Það eru Borg Brugghús/Bríó og Agla Gosgerð sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 22 Sep 2021 - 78 - #70 Súffragettur
Barátta kvenna fyrir jafnrétti hefur staðið yfir öldum saman. Á seinni hluta 19. aldar urðu miklar breytingar til hins betra fyrir ýmsa jaðarhópa en konur virtust alltaf síðastar í röðinni. Um aldamótin 1900 voru konur í Bretlandi orðnar langþreyttar á því að BIÐJA með friðsamlegum hætti. Þeim fannst kominn tími til að HEIMTA á ofbeldisfullan máta. Þetta voru hinar stórmerkilegu og áhrifamiklu súffragettur.Það eru Borg Brugghús/Bríó og Bónus sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 15 Sep 2021 - 77 - #69 Egill Skalla-Grímsson
Djáknar fengu að velja um 3 íslendingasögur sem Draugarnir gætu tekið fyrir og Agli tókst að sigra þar Laxdælu og Gísla sögur Súrssonar. Egill er ein ótrúlegasta persóna íslenskra miðaldabókmennta. Hann er víkingur, ofbeldisfullur og ofstopafullur. Þó á hann sér aðra hlið því hann er mikið skáld og er líður á söguna kemur betur í ljós að í hinum kalda víkingi má einnig finna tilfinningar og ást. Egils Saga er einatt talin ein af betri íslendingasögum.Það eru Borg Brugghús/Bríó og Karolina Fund sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 08 Sep 2021 - 76 - #68 Eyðimerkurstríðið
Síðari heimsstyrjöldin bar nafn með rentu, enda var barist víðs vegar um jörðina, á landi, í lofti og bæði ofan og neðansjávar. Ein sérstæðustu átökin áttu sér stað í Norður-Afríku milli herja Ítalíu og Þýskalands annars vegar og Bretlands hins vegar. Sá ófriður hefur fengið á sig nokkurs konar ljóma og ævintýrablæ. Reyndin var þó önnur og oft var það landið sjálft sem reyndist stríðsaðilum erfiðara en óvinurinn. Sandstormar fóru illa með vopn og vélar. Vatn var af skornum skammti. Á daginn skein sólin miskunnarlaust en hitastig gat síðan fallið gríðarlega að nóttu til. Við förum aðeins yfir þessi átök í þessum þætti og skoðum t.d. þátt eins þekktasta hershöfðingja stríðsáranna en það er hinn þýski Erwin Rommel. Hann þótti svo kænn og klókur að hann var kallaður eyðimerkurrefurinn. En Flosi er á öðru máli og færir rök fyrir því hví hann telur Rommel einn ofmetnasta herforingja stríðsins.Það eru Borg Brugghús/Bríó, Bónus og Síminn Pay sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 01 Sep 2021 - 75 - #A8 Frír örþáttur af Patreon
Margir hafa verið að spyrja okkur út í hvurslags þætti við erum að gera á Patreon og við ákváðum því að þessi grámyglulegi föstudagur væri kjörið tækifæri til að færa ykkur einn af þeim aukalega í hlustirnar. Þetta er þátturinn „#Ö6 Símhringitónar og þaulskipulögð umræðuefni“ og hann fór upphaflega í loftið þann 19. maí síðastliðinn. Þættirnir eru orðnir 20 talsins nú þegar og þið getið skoðað málið frekar inni á Patreon ef þið hafið mögulega hug á að bætast í Draugahjörðina. Njótið vel! Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Fri, 27 Aug 2021 - 74 - #67 Lán í óláni
Þessi þáttur snýst um fyrirbrigði sem flestum er hugleikið. Það má segja að fáir hlutir séu þráðir jafn heitt og gæfan. Á þessu eru margar hliðar. Ólán er að ýmsu leyti náskylt láni og bara hin hliðin á teningnum. Í sumum trúarbrögðum og goðafræði er það sami guðinn eða gyðjan sem stjórnar því hvort maður er heppinn eða óheppinn. Nær allir menningarheimar eiga sér slík goð og í Japan eru það hvorki meira né minna en sjö guðir sem stjórna gæfunni. Það er ólán að detta niður stiga en ef þú slasast ekki má segja að það sé í lán óláni. Þetta er því nátengt og í þessum þætti skoðum við þetta nánar. Við segjum frá króatíska bjartsýnismanninum Frane Selak sem segist hafa verið heppinn en saga hans er alveg ótrúleg.Það eru Borg Brugghús/Bríó og Pizzan sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Kíkið inn á www.pizzan.is og notið afsláttarkóðann „hljodkirkjan“ til þess að fá 40% afslátt af öllum sóttum pizzum af matseðli!Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 25 Aug 2021 - 73 - #66 Versti vinur mannsins
Fá dýr eiga jafn mikla sögu í samskiptum við manninn eins og úlfurinn. Það sést greinilega á þeim aragrúa þjóðsagna þar sem þetta merkilega dýr kemur við sögu. Yfirleitt er úlfurinn tákn hins illa og má nefna þar t.d. hinn ógnvænlega Fenrisúlf sem mun bana Óðni við endalok heimsins, samkvæmt norrænni goðafræði. Úlfurinn er þó einnig tákn um tryggð og hollustu enda eru fá spendýr sem mynda jafn sterk fjölskyldutengsl. Í þessum þætti skoðum við úlfinn nánar og þá sérstaklega viðkomu hans í þjóðsögum og menningu ýmissa þjóða. Einnig verður sagt frá úlfaforingjanum Courtaud og gengi hans sem hélt París í heljargreipum veturinn 1450-51.Það eru Borg Brugghús/Bríó og Pizzan sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Kíkið inn á www.pizzan.is og notið afsláttarkóðann „hljodkirkjan“ til þess að fá 40% afslátt af öllum sóttum pizzum af matseðli!Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 18 Aug 2021 - 72 - #65 Barn í brunni
Um miðjan október 1987 gleymdi bandaríska þjóðin öllum áhyggjum af stórveldadeilum eða efnahagsþrengingum. Aðeins ein frétt var efst í allra hugum. Hin 18 mánaða gamla Jessica McClure hafði fallið í gamla og þrönga brunnholu. Björgunarfólk vann baki brotnu við að bjarga barninu en tíminn var alls ekki á þeirra bandi. Bandaríska þjóðin, ef ekki allur heimurinn, fylgdist grannt með gangi mála. Í þessum þætti segjum við frá þessu atviki og öðrum svipuðum. Við skoðum einnig svipuð slys sem gerst hafa á Íslandi. Rétt er að vara fólk við því að atriði í þættinum geta valdið óhug.Það eru Borg Brugghús/Bríó og Pizzan sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Kíkið inn á www.pizzan.is og notið afsláttarkóðann „hljodkirkjan“ til þess að fá 40% afslátt af öllum sóttum pizzum af matseðli!Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 11 Aug 2021 - 71 - #64 Kvenskörungur í Kænugarði
Í mannkynssögunni er að finna marga sterka leiðtoga. Hershöfðingja sem leiddu menn sína gegn ofurefli liðs eða ríkisstjóra sem héldu þjóð sinni samhentri í gegnum hungursneyðir og illt árferði. Nær alltaf eru þetta karlmenn. Konum hefur sjaldnast verið ætlað neitt stjórnunarhlutverk. Því vekur það alltaf athygli að rekast á konur í sögubókum sem gerðu allt þetta sem talið er upp hér á undan og meira til. Í þessum þætti segjum við frá Olgu sem iðulega var kennd við Kænugarð. Borgina sem í dag er kölluð Kiev og er höfuðborg Úkraínu. Olga er hennar slavneska nafn en hún var einnig kölluð Helga því hún var af norrænum ættum. Það voru raunar langflestir höfðingjar á þessum slóðum. Eiginmaður Olgu var myrtur af óvinveittum ættbálki. Töldu þeir svo að ekki yrði erfitt að beygja þessa kvensnift í Kænugarði til undirgefni. Þar vanmátu þeir Olgu, svo vægt sé til orða tekið.Það eru Borg Brugghús/Bríó og Pizzan sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Farið inn á www.pizzan.is og notið afsláttarkóðann „hljodkirkjan“ til þess að fá 40% afslátt af öllum sóttum pizzum af matseðli!Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 04 Aug 2021 - 70 - #63 Óðs manns æði á úthafinu
Lengi hefur hafið heillað fólk. Ekki aðeins er það matarkista og mikilvæg flutningaleið. Það hefur einnig sérstakt aðdráttarafl sem erfitt er að lýsa í orðum. Þessi rennblauta eyðimörk hefur verið mörgu skáldinu yrkisefni og fólk sem dvalist hefur mánuðum saman á úthafinu hefur lýst alls konar hugbreytingum sem það hefur orðið fyrir. Svo er einnig um manninn sem við segjum frá í þessum þætti. Hann hét Donald Crowhurst og í lok sjöunda áratugar stefndi hann á að sigla í kringum hnöttinn í kappi við þrautreynda siglingamenn. Sjálfur hafði Crowhurst nær enga reynslu af siglingum. Þá fór í hönd atburðarás sem er mjög áhugaverð og gæti jafnvel verið fyndin ef hún væri ekki svona ógurlega sorgleg.Það eru Borg Brugghús/Bríó, Sjóvá og Pizzan sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤Farið inn á www.pizzan.is og notið afsláttarkóðann „hljodkirkjan“ til þess að fá 40% afslátt af öllum sóttum pizzum af matseðli!Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Wed, 28 Jul 2021 - 69 - #62 Myrkrahöfðinginn
Hann spilar stærri rullu í lífi fólk en það mögulega gerir sér grein fyrir. Hvort sem maður trúir á tilvist hans eða ekki, þá er erfitt að finna fullorðinn einstakling sem ekki kannast við a.m.k. eitt af þeim nöfnum sem hann hefur borið í gegnum tíðina: Belzebub, Lúsifer, Leviathan og það þekktasta: Satan. En hvaðan kemur Satan? Hver er hans saga? Hefur hann verið eins í gegnum aldirnar eða tekið breytingum? Birtist hann í öðrum trúarbrögðum en þeim þremur sem kennd eru við Abraham? Þessi þáttur leitast eftir að skyggnast í sögu sjálfs myrkrahöfðingjans sem yfirleitt er nefndur Satan. Draugarnir eru á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum
Wed, 21 Jul 2021 - 68 - #61 Skálmöld
Oft er talað um hinar „myrku“ miðaldir. Það hlýtur því að vekja upp þá spurningu hvort eitthvað ljós hafi kviknað sem hrakti þetta myrkur á brott? Svarið við því er já. Ljósið kallast í daglegu tali Upplýsingin. Það er ein magnaðasta hugarfarsbylting í sögu mannkyns. Allt var endurskoðað, t.d. vísindi, heimspeki, trúarbrögð og lögfræði. Fólk fór að velta fyrir sér hlutverki og ekki síst: Hlutskipti mannfólksins. Völd konunga og kirkjunnar minnkuðu. Einnig komu fram nýjar hugmyndir um afbrot, refsingar og réttlæti. Ýmsir vildu sýna mildi en aðrir halda fast í gömlu refsigleðina, því annars myndi glæpum fjölga. Í byrjun 19. aldar hugsuðu margir að eitthvað gæti verið til í þessu því öldin hófst með morðum og ránum í mörgum landshlutum. Fólk talaði um „spillt aldarfar“. Í þessum þætti ræðum við þetta allt. Flosi fær svo tækifæri til að segja Baldri frá sínu uppáhalds íslenska sakamáli: Morðunum á Sjöundá, á Rauðasandi.
Wed, 14 Jul 2021 - 67 - #60 Að vera í ham
Hvaðan kemur þetta orðatiltæki? Hvað er þetta „ham“? Í þessum þætti skoðum við sögu og uppruna þekktrar þjóðsagnaveru. Flosi segir Baldri frá sinni uppáhalds ófreskju. Það er fullt tungl á kaldri vetrarnóttu, í fjarska heyrast ógnvænleg ýlfur og öskur. Varúlfurinn er mættur. Draugarnir eru á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum
Wed, 07 Jul 2021 - 66 - #59 Sólarlitlir dagar
Morð eru blessunarlega fágæt á Íslandi. Svo virðist sem morð hér á landi séu yfirleitt hálfgerð slys, framin í bræðiskasti, uppgjör glæpamanna eða einhver geðveila á hlut að máli. Skipulagðir og kaldrifjaðir morðingjar sem myrða aftur og aftur er sem betur fer eitthvað sem Íslendingar þekkja lítið til. Við þurfum meira að segja að fara langt aftur á 16. öld til að finna einn þannig. En hann er þarna, kyrfilega greyptur í vora sögu. Nafn hans var Björn og er hann alltaf kenndur við bæinn Öxl á Snæfellsnesi. Draugarnir eru á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum
Wed, 30 Jun 2021 - 65 - #58 Miskunnsama Messerschmitt
Stríð og styrjaldir hafa því miður skipað stóran sess í sögu mannkynsins. Mitt í slíkri mannvonsku má þó finna dæmi um náð, miskunn og gott hjartalag. Í þessum þætti segjum við frá flugmönnunum Charlie Brown og Franz Stigler. Þeir hittust í háloftunum yfir Þýskalandi einn örlagaríkan dag í desember árið 1943. Þá voru þeir svarnir óvinir en urðu seinna svo nánir vinir að þeir litu á sig sem bræður.Draugarnir eru á Patreon og bjóða nú upp á ársáskrift með góðum afslætti: https://www.patreon.com/draugarfortidar Vefverslun Drauganna finnið þið hér! Tónlistin úr þáttunum finnið þið hér!
Wed, 23 Jun 2021 - 64 - #57 Villibörn
Fjöldamargar sögur eru til af börnum sem hafa fundist í umsjá villtra dýra. Þessi börn hafa iðulega tekið upp hætti þessara uppalenda sinna og átt gífurlega erfitt með að aðlagast lífi á meðal mannfólks á ný. Í þessum þætti förum við yfir nokkrar slíkar sögur og skoðum hvað geti valdið því að börn lendi í umsjá dýra.Draugarnir eru á Patreon og bjóða nú upp á ársáskrift með góðum afslætti: https://www.patreon.com/draugarfortidarVefverslun Drauganna finnið þið hér! Tónlistin úr þáttunum finnið þið hér!
Wed, 16 Jun 2021 - 63 - #56 Sólstormurinn mikli 1859
Flestir glotta eða jafnvel hlæja ef minnst er á veður í geimnum. Þó er geimveðurfræði að færast í aukana og það er mikilvægt. Þeir stormar sem þar geisa geta haft mun meiri áhrif en stormar á jörðu niðri. Í þessum þætti tölum við um einn slíkan. Vísindamenn í Bandaríkjunum hafa bent á að ef slíkur stormur myndi skella á jörðinni, yrðu það hamfarir af margfaldri stærðargráðu. Fellibylurinn Katrina er sem lítil vindhviða í samanburði. Árið 2012 fór afar öflugur sólstormur rétt framhjá jörðinni en hefði hann lent á okkar litlu plánetu, værum við líklega ennþá að kljást við afleiðingar þess.Draugarnir eru á Patreon og bjóða nú upp á ársáskrift með góðum afslætti. Skoðið málið nánar hér: https://www.patreon.com/draugarfortidar Vantar þig eitthvað utan um þig eða kaffið þitt? Ekki örvænta, hér er vefverslun Drauganna: https://bit.ly/3aeV0ma
Wed, 09 Jun 2021 - 62 - #55 Beta fer í blóðbað
Hvernig verður okkar minnst? Munu komandi kynslóðir ausa okkur lofi eða verðum við brennimerkt sem hreinræktuð illmenni, jafnvel mörg hundruð árum eftir okkar tíma? Verður það sannleikanum samkvæmt? Í þessum þætti tökum við fyrir sögu ungversku greifynjunnar Elizabeth Bathory. Hún hefur löngum verið talin ein viðurstyggilegasta manneskja sögunnar. Sögur eru um að hún hafi baðað sig í blóði ungmeyja til að viðhalda fegurð sinni. Ef kafað er aðeins dýpra í söguna kemur þó ýmislegt í ljós sem bendir til þess að þetta geti allt verið uppspuni og rógur. Var Elizabeth Bathory kannski ekki djöfull í mannsmynd heldur góðlynd aðalskona sem gerði allt hvað hún gat til að hjálpa fólki sínu?Draugarnir eru á Patreon og bjóða nú upp á ársáskrift með góðum afslætti. Skoðið málið nánar hér: https://www.patreon.com/draugarfortidar Vefverslun Drauganna, bolir og bollastuð: https://bit.ly/3aeV0ma
Wed, 02 Jun 2021 - 61 - #54 Úr Svarfaðardal í sirkuslíf
Hvað gerir þú ef ljóst er að þú getur ekki stundað vinnu vegna fötlunar og hvert sem þú ferð glápa allir opinmynntir? Þáttur þessi fjallar um ævi og persónu Jóhanns Kristins Péturssonar sem er iðulega kenndur við Svarfaðardal. Hann var 234 sentimetrar og því hæsti Íslendingur sögunnar.Draugarnir eru á Patreon. Skoðið málið nánar hér: https://www.patreon.com/draugarfortidar Vefverslun Drauganna, bollar og allskonar stuð: https://bit.ly/3aeV0ma
Wed, 26 May 2021 - 60 - #53 Dýr í stríði
Mikið hefur verið talað um mannfall í seinni heimsstyrjöldinni en það vill gleymast að það var ekki aðeins mannfólk sem tók þátt í þeim hildarleik. Til dæmis notaði þýski herinn um þrjár milljónir hesta í því stríði. Dýr hafa frá upphafi verið þáttakendur í stríðum og erjum mannkynsins. Sum þeirra hafa meira að segja fengið stöðuhækkanir og æðstu heiðursmerki fyrir hetjulega framgöngu. Í þessum þætti skoðum við nokkur þeirra. Draugar fortíðar eru nú á Patreon: https://www.patreon.com/draugarfortidar Vefverslun: https://bit.ly/3aeV0ma
Wed, 19 May 2021 - 59 - #52 Gaur var kallaður Möddi fiðla
Titill þáttarins eru upphafsorð Njáls sögu, löguð harkalega að nútímanum. Tungumál Íslendingasagna er töluvert ólíkt því sem tíðkast í dag, enda er um að ræða bókmenntir sem eru mörg hundruð ára. Við veltum því fyrir okkur hvort það hindri ungt fólk í að njóta þeirra. Flosi segir Baldri frá sinni uppáhalds Ísl.sögu sem er Njáls saga. Sérstaklega er ein sögupersóna þar honum hugleikin...Draugar fortíðar eru nú á Patreon: https://www.patreon.com/draugarfortidar Vefverslun: https://bit.ly/3aeV0ma
Wed, 12 May 2021 - 58 - #51 Undir rauðum fána
Þessi fyrsti þáttur maímánaðar tekur einmitt fyrir fyrsta dag maímánaðar. Af hverju er ganga þennan dag undir rauðum fána? Hefur verkafólk alltaf unnið 8 stunda vinnudag? Af hverju var Coca Cola eitt sinn kallað „verkamannablóð“?Draugar fortíðar eru nú á Patreon: https://www.patreon.com/draugarfortidar Og hér er vefverslun: https://bit.ly/3aeV0ma
Wed, 05 May 2021 - 57 - #50 Ráðagóðu Rússarnir
Þeir sem ekki muna eftir köldu stríði Sovétríkjanna og Bandaríkjanna eiga eflaust erfitt með að gera sér í hugarlund hvernig það var. Veröldin öll upplifði þrúgandi spennu og kjarnorkuógn í marga áratugi. Er Sovétríkin féllu undir lok síðustu aldar, komu ýmis skjöl í ljós sem áður höfðu verið kyrfilega lokuð. Nöfn tveggja manna urðu þá þekkt á Vesturlöndum og margir supu hveljur er kom í ljós hvað þeir Vasili Arkhipov og Stanislav Petrov höfðu gert.
Wed, 28 Apr 2021 - 56 - #49 Salernissaga
Við tökum svo mörgu í lífi okkar sem sjálfsögðum hlut. Í raun ættum við af og til að spyrja okkur þeirrar spurningar hvort öll þau tól og tæki sem við höfum, bæði til að auðvelda okkur lífið og verja okkur gegn t.d. slysum og veikindum, séu í raun svo sjálfsögð? Ef nánar er að gáð kemur oft í ljós að mikill fjöldi jarðarbúa býr ekki við munað sem við teljum sjálfsagðan. Að þessu sinni ræðum við ögn um fyrirbæri sem allir þekkja og vilja ekki vera án en tala sjaldnast um: Salernið. Hver er saga þess og uppruni?
Wed, 21 Apr 2021 - 55 - #48 Stríðið um skreiðina
Stundum hefur verið sagt að Ísland hafi alla tíð verið afskekkt, eyðilegt og að enginn hafi nokkurn tíma haft á því áhuga. Ekkert gæti verið fjær sanni. Í þessum þætti skoðum við atburði sem áttu sér stað, hér á landi, í byrjun 16 aldar. Þá börðust hér útlenskir menn, jafnt á sjó sem landi, svo að tugir eða jafnvel hundruðir féllu í valinn.Draugar fortíðar eru nú komnir á Patreon. Ekki panikka samt, við erum ekki að loka á aðgang að þáttunum. Þið heyrið meira um þetta í þættinum og svo getið þið skoðað þetta betur hér: https://www.patreon.com/draugarfortidar
Wed, 14 Apr 2021 - 54 - #47 Í klóm keisarans af Róm
Rómaveldi hafa flestir væntanlega heyrt um. Það hafði gífurleg menningarleg áhrif og átti mjög stóran þátt í því að móta þá Evrópu sem við nú þekkjum. Rómverjar notuðust oft við nokkurs konar lýðræði en æðstur var keisarinn. Margir keisarar stóðu sig afar vel en aðrir alls ekki. Flosi segir Baldri hér frá þeim sem hann telur verstu Rómarkeisara sögunnar. Segja má að þema þáttarins sé um það að setja ekki fólk í aðstæður sem það höndlar engan veginn og vill jafnvel ekkert vera í.
Wed, 07 Apr 2021 - 53 - #46 Hvíta rósin
Um aldamótin síðustu var könnun í Þýskalandi og fólk beðið um að velja merkustu Þjóðverja sögunnar. Ung stúlka sem ýmsir utan Þýskalands kannast mögulega lítið við, var þar hærra á listanum en nöfn eins Johann Sebastian Bach, Goethe og Albert Einstein. Í löndum sem Þjóðverjar hernámu í seinni heimsstyrjöld, spruttu upp allskyns andspyrnuhópar. Þetta voru hugrakkir menn og konur sem lögðu líf sitt í bráða hættu. Við höfum flest heyrt um vopnaða andspyrnu í löndum eins og Póllandi, Noregi og Frakklandi og henni hefur verið gerð góð skil í bókum, sjónvarpi og kvikmyndum. En hvað með sjálft Þýskaland? Þar var einnig mótspyrna en það krafðist ótrúlegar hugdirfsku enda var það fólk hreinlega í gini ljónsins. Við beinum hér sjónum okkar að slíkum hópi og sérstaklega einum liðsmanna hennar, Sophie Scholl.
Wed, 31 Mar 2021
Podcasts similares a Draugar fortíðar
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه
