Nach Genre filtern

Draugar fortíðar

Draugar fortíðar

Hljóðkirkjan

Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.

152 - #271 Vargöld og vinskapur: Douglas Bader og Adolf Galland
0:00 / 0:00
1x
  • 152 - #271 Vargöld og vinskapur: Douglas Bader og Adolf Galland

    Í þessum þætti skoðum við sögu og samband tveggja orrustuflugmanna úr seinni heimsstyrjöld. Þeir voru ólíkir menn en náðu samt einkar vel saman. Þeir voru fyrst og fremst flugmenn. Er verstu manngerðu hamfarir sögunnar dundu yfir Evrópu svöruðu þeir kallinu.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook

    Wed, 04 Feb 2026
  • 151 - #267 Röðull GK

    Þriðjudaginn 15. jan. 1963 lét togarinn Röðull GK úr höfn frá Reykjavík. Planið var að vera á veiðum í uþb 4 vikur á Mýrargrunni. Um hádegi á fimmtudaginn tilkynntu nokkrir skipverjar um ógleði og máttleysi. Þetta var upphafið að einu skelfilegasta mengunarslysi í sögu íslensks sjávarútvegs. Oft hefur þetta verið kallað „slysið sem gleymdist“.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook

    Wed, 07 Jan 2026
  • 150 - #264 Maður án heila

    Árið 2007 leitaði franskur maður til læknis. Ástæðan var þrálátur verkur í fæti. Læknirinn sendi manninn í ýmsar rannsóknir. Þar á meðal sneiðmynd af heila. Læknirinn fékk seinna hringingu frá röntgendeildinni þar sem hann var beðinn um að koma strax. Myndir af heila mannsins væru einkennilegar, svo ekki sé meira sagt. Lækninn rak í rogastans er hann sá sneiðmynd af höfði mannsins. Svo virtist sem maðurinn hefði hreinlega engan heila!?Þessi þáttur er nokkuð sérstakur. Flosi er að glíma við mikið þunglyndi og kulnun um þessar mundir. Harkalegra en hann hefur upplifað lengi. Eins og hans er von og vísa talar hann óhikað um það allt í þættinum. Hann segir einnig frá árangri sínum í áfallavinnu. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook

    Wed, 08 Oct 2025
  • 149 - #261 Lygar og morð: Hinn einkennilegi Stéphane Bourgoin

    Finndu þér miða á túrinn okkar um landið hér.Upp úr 1990 fór einn maður að láta að sér kveða í frönsku þjóðlífi og vakti mikla athygli. Hann virtist sérfræðingur um nokkuð sem Frakkar höfðu til þessa gefið lítinn gaum: Raðmorðingjar. Maður þessi var Stéphane Bourgoin. Hann var alveg ómenntaður en virtist hreinlega vita allt um þetta efni. Frakkar voru heillaðir af þessum einkennilega manni sem talaði svo fjálglega en einnig fræðilega um þessi myrku mál. Fjölmiðlamenn elskuðu hann. Meira að segja lögreglan leitaði til hans. Hann talaði jafnvel við, og hughreysti, fólk sem hafði misst ástvini sem höfðu verið myrtir. Það var ekki fyrr en áratugum seinna að áhugafólk um glæpi fór að kanna Bourgoin kyrfilega. Þá kom ýmislegt misjafnt í ljós.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook

    Wed, 10 Sep 2025
  • 148 - #LD4 Draugar fortíðar ásækja Græna hattinn

    Finndu þér miða á túrinn okkar um landið hér.Draugarnir lögðu í hann í upphafi árs 2025 og fóru vítt og breitt um landið. Þann 23. janúar var komið að Græna hattinum. Í það skiptið var uppákoman ekki eingöngu skráð í hljóði, heldur einnig í mynd. Þið getið hlustað á hann eða horft á hann á YouTube hér. Góða skemmtun!Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook

    Wed, 03 Sep 2025
Weitere Folgen anzeigen