Filtrar por género

Eftirmál

Eftirmál

Tal

Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.

34 - Hryðjuverkamálið
0:00 / 0:00
1x
  • 34 - Hryðjuverkamálið

    Sérsveit ríkislögreglustjóra fór í umfangsmiklar aðgerðir í september 2021 og gerði upptæk þrívíddarprentuð vopn sem talið var að væru ætluð til að fremja hryðjuverk hér á landi. Tveir menn voru handteknir og ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka sem er einsdæmi í íslenskri réttarsögu. Í kjölfarið velktist málið um í réttarkerfinu í fjögur ár og í ljós kom að ekki var allt sem sýndist. Við ræðum við einn sakborninganna og lögmann hans í þættinum. Málið er eitt umfangsmesta, umtalaðsta og umde...

    Tue, 28 Jul 2026
  • 33 - Leiðangur Johns Snorra á K2

    Leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar á K2, hættulegasta fjall jarðar, í febrúar 2021 átti eftir að reynast örlagaríkur. Hann freistaði þess að verða fyrstur manna til að klífa fjallið að vetrarlagi og þjóðin bæði fylgdist með undirbúningnum að ferðinni og hélt niðri í sér andanum þegar hætti að heyrast frá honum. Farið var í umfangsmiklar leitaraðgerðir á þessu miskunarlausa fjalli í Pakistan, þar sem aðstæður geta breyst á augabragði og mistök geta haft afdrifaríkar afleiðingar. Einar Bárða...

    Wed, 22 Jul 2026
  • 32 - Ashley Madison og Vodafone-lekinn

    Stórtækasta innrás í einkalíf Íslendinga sem nokkru sinni hefur átt sér stað var þegar tölvuþrjótar láku tugþúsundum sms skilaboðum Íslendinga á netið í Vodafone-lekanum árið 2013. Hver sem er gat þannig flett upp persónulegum málum fólks um allt á milli himins og jarðar. Tveimur árum síðar voru svo viðkvæmar persónuupplýsingar yfir 100 Íslendinga sem skráðir voru á framhjáhaldssíðuna Ashley Madison gerðar opinberar og Ice Hot 1 kom fram á sjónarsviðið. Atli Fannar Bjakason blaðamaður þekkir ...

    Mon, 13 Jul 2026
  • 31 - Krýsuvíkurmálið

    Haustið 2024 fór hrollur um þjóðina þegar karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana skammt frá Krýsuvíkurvegi. Ýmsar sögusagnir fóru á flug og enn eru spurningar sem lögreglan fékk aldrei svör við. Atburðarásin vakti líka um stórar spurningar um stöðu geðheilbrigðismála hér á landi. Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður fór með rannsókn þessa sorglega máls og fer fer yfir það í þættinum. Samsetning: Adelina Antal Styrktaraðilar ...

    Tue, 07 Jul 2026
  • 30 - Morðið á Hannesi Þór Helgasyni

    Fá sakamálmál hafa haft jafn mikil áhrif á íslensku þjóðina og morðið á Hannesi Þór Helgasyni árið 2010. Morðið var einstaklega hrottafengið og þaulskipulagt auk þess sem nokkuð langan tíma tók að upplýsa það. Gunnar Rúnar Sigurþórsson játaði verknaðinn en hann var hugfanginn af kærustu Hannesar og hafði fyrir morðið sett ástarjátningu til hennar á YouTube. Patrik Atlason, systursonur Hannesar, var 16 ára þegar frændi hans var myrtur en hann fer yfir málið með okkur og lýsir þeim gríðarlega m...

    Wed, 01 Apr 2026
Mostrar más episodios