Filtrer par genre

Eftirmál

Eftirmál

Tal

Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.

41 - Morðið á Hrafnhildi Lilju Georgsdóttur
0:00 / 0:00
1x
  • 41 - Morðið á Hrafnhildi Lilju Georgsdóttur

    Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir var vinamörg og ævintýagjörn ung kona frá Ólafsfirði sem fór í ferðalag til Dóminíska lýðveldisins í Karíbahafi árið 2008. Hún skilaði sér aldrei heim því eftir stutta dvöl í landinu var hún myrt á hrottafenginn hátt. Eftir stendur fjölskylda Hrafnhildar Lilju í sárum öllum þessum árum síðar og ótal stórum spurningum er enn ósvarað. Þrátt fyrir að fjórir hefðu verið handteknir vegna málsins var það talið óupplýst í 18 ár - en í þættinum koma fram nýjar upp...

    Thu, 29 Oct 2026
  • 40 - Önnur mál #3 - Réttarhöld yfir íslenskum eltihrelli nálgast

    ➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️ Íslensk kona á fertugsaldri var í vor ákærð fyrir kerfisbundið umsáturseinelti gegn nokkrum karlmönnum og fjölskyldum þeirra. Einnig var hún ákærð fyrir skjalafals, rangar sakargiftir, hótanir, ærumeiðingar og barnaverndarbrot. Málið hefur vakið mikla athygli, lýsingar fórnarlamba konunnar eru lyginni líkastar og minna á þættina Baby Reindeer. Málið fer fyrir dómstóla á næstunni en í Öðrum málum fer Valur Gret...

    Thu, 22 Oct 2026
  • 39 - Nágrannaerjur og níðstöng við Esjurætur

    Í maí 2022 vaknaði Kristjana Þórarinsdóttir upp við að búið var að reisa níðstöng með afhöfðuðum hesti við heimili hennar. Nokkrum árum áður hafði fjölskyldan látið drauminn um að flytja í sveit rætast og sest að á Skrauthólum við Esjurætur. En draumurinn breyttist fljótlega í martröð þar sem andleg málefni, frjálsar ástir, nakið fólk og nágrannaerjur enduðu með ósköpum. Kristjana fer yfir þetta undarlega mál í Eftirmálum. Komdu í áskrift á eftirmal.is Samsetning: Adelina Antal Samstarf...

    Thu, 15 Oct 2026
  • 38 - Önnur mál #2 Börn Johns Snorra tjá sig í fyrsta sinn

    ➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️ Í þessum þætti fara elstu börn Johns Snorra Sigurjónssonar yfir hinstu för föður síns á K2 í Pakistan. Málið hefur undanfarið verið í umræðunni eftir að heimildarmynd um málið fór í sýningu. Ættingjar Johns Snorra hafa hingað til ekki tjáð sig um ferðina en börn hans opna sig hér í fyrsta sinn um atburðarásina, biðina óbærilegu á meðan leit stóð yfir og hvernig þau hafa unnið úr áfallinu.

    Thu, 08 Oct 2026
  • 37 - Edition-málið

    Fá mál hafa vakið jafn mikla athygli og óhug og Edition málið svokallaða. Frönsk fjölskylda, hjón og 29 ára dóttir þeirra, komu hingað til lands júní 2025 í þeim tilgangi að fremja sjálfsvíg saman á Edition lúxushótelinu. Þegar lögregla kom á vettvang á voru eiginmaður og dóttir Ming Ting Mancel látin af völdum stungusára, en Ming Ting sjálf lifði af. Hún afplánar nú 12 ára fangelsisdóm í fangelsinu á Hólmsheiði. Við förum yfir þetta mál og dóminn yfir Ming Ting, sem á engan sinn líka í...

    Thu, 01 Oct 2026
Afficher plus d'épisodes