Filtrar por género

Kratinn

Kratinn

Samfylkingin

Vettvangur til að upplýsa um skilaboð jafnaðarfólks.

47 - S306: Er ofurkonan að örmagnast?
0:00 / 0:00
1x
  • 47 - S306: Er ofurkonan að örmagnast?

    Í þætti vikunnar mættu Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, og Dagbjört Hákonardóttir þingmaður í viðtal. Þær gerðu upp vel heppnaðan fund Kvennahreyfingarinnar í vikunni sem bar yfirskriftina „Ofurkonan vs. tradwife“.

    Í viðtalinu ræddu þær við Sonju og Þórhall Val um jafnréttisbaráttuna, uppgang úreltra kynjahugmynda, ýmsar ranghugmyndir um leikskólavist, þátttöku karla í jafnréttisumræðunni og margt fleira.

    Í fyrri hluta þáttarins ræddu Ásta Guðrún, Þórður Snær og Þórhallur Valur um lélegustu reiknivél sögunnar sem Framsókn kynnti til leiks í vikunni, villandi framsetningu kvótakóngs um þróun veiðigjalda, hvað ríkisstjórnin hefur gert í málefnum barna og bjartsýna hagspá Landsbankans.

    Fri, 23 Oct 2026 - 1h 01min
  • 46 - S305: Jafnaðarstefnan kjörnuð og drottningarviðtal við Guðmund Ara

    Í hlaðvarpi vikunnar mætti nýr varaformaður Samfylkingarinnar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, í sannkallað drottningarviðtal til Arnars Þórs og Þórhalls Vals. Drengirnir gengu hart að honum og kröfðu hann um að útskýra sína pólitísku sýn, hvað hann langaði að afreka sem varaformaður og hvernig hann fór frá því að vera utangátta unglingur yfir í að öðlast tilgang og finna til ábyrgðar gagnvart samfélaginu.


    Það er óhætt að segja að þema þáttarins hafi verið jafnaðarstefnan, hvað í henni felst og hvernig hún spilar þátt í því þeim aðferðum sem Samfylkingarfólk beitir í stjórnmálum.


    Í fyrri hluta þáttarins ræddu starfsmenn þingflokks Samfylkingarinnar helstu mál vikunnar en þar má nefna hertar reglur um au-pair dvalarleyfi og hvernig hátekjuhópar brugðust við því, líflegar og upplýsandi umræður um erfðafjárskatt í pontu Alþingis, augljóst handbragð jafnaðarmanna á kjarasamningagerð og nýliðinn flokksstjórnarfund í Sandgerði.

    Fri, 16 Oct 2026 - 55min
  • 45 - S304: Kolbrún Bergþórsdóttir í viðtali við meintan fjölmiðil

    Í inngangi þáttar ræddu Þórhallur Valur, Arnar Þór og Ásta Guðrún um skráningarskyldu fjölmiðla en Kratinn hefur óskað eftir áliti fjölmiðlanefndar um skráningarskyldu sína til að friða sinn virkasta hlustendahóp, þingmenn Sjálfstæðisflokksins.

    Síðar mætti Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður til áratuga, með hnífabrýnið á lofti í viðtal til strákanna. Kolbrún lýsti því yfir að hún upplifði ekki meintar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar í heimilisbókhaldinu. Valur krafðist afsökunarbeiðnar vegna skrifa Kolbrúnar um fótbolta í gegnum tíðina, erfðafjárskattur bar á góma, hvernig woke-ið fældi Kolbrúnu frá Samfylkingunni og að allir stjórnmálamenn ættu að hafa upplifað að eiga ekki fyrir leigu um mánaðarmót.

    Kolbrún fór yfir feril sinn á fjölmiðlum, en hún hefur starfað á flestum fjölmiðlum sem reknir hafa verið á Íslandi síðustu áratugi, nú síðast á Morgunblaðinu og DV. Að endingu fengu strákarnir ábendingar um bækur sem allir jafnaðarmenn þurfi að lesa.

    Fri, 09 Oct 2026 - 40min
  • 44 - S303: Making Reykjavík boring again og kálfarnir á Ulf Kristersson

    Þessa vikuna fengu Arnar og Valur góða gesti í hús, tvo ung-krata, þá Arnar Inga Ingason, tónlistarmann og Jóhannes Óla Sveinsson, forseta Ungs jafnaðarfólks.

    Til umræðu voru tímamótaræða Andy Burnham, yfirlýsing formanns Sjálfstæðisflokks um að það styttist mögulega í kosningar, staðan í stjórnarmyndun hjá sænsku Sossunum og því tengt, kálfarnir á Ulf Kristersson, úttekt Vinnueftirlitsins á stólum borgarfulltrúa og tilraunir nýs meirihluta í Reykjavíkurborg til þess að gera borgina leiðinlegri með því að vísa listamönnum á dyr.

    Löngu-tímabært framlag Kratans til manosphere-bylgjunnar.

    Fri, 02 Oct 2026 - 53min
  • 43 - S302: Lygar, afbakanir og möguleg endalok Pírata?

    Tíu milljarðar fóru til bílaleiganna, en lítill árangur hefur náðst hjá þeim í að fækka bílum sem ganga fyrir jarðefniseldsneyti.

    Ásta veltir fyrir sér hvort endalok Pírata séu í sjónmáli, en í nýjustu könnun Maskínu mælist flokkurinn með 3,5% fylgi.

    Bókun 35, Miðflokkurinn og fjármál sveitarfélaga koma líka við sögu, ásamt ýmsu fleiru.




    Fri, 25 Sep 2026 - 49min
Mostrar más episodios