Podcasts by Category
- 47 - S306: Er ofurkonan að örmagnast?
Í þætti vikunnar mættu Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, og Dagbjört Hákonardóttir þingmaður í viðtal. Þær gerðu upp vel heppnaðan fund Kvennahreyfingarinnar í vikunni sem bar yfirskriftina „Ofurkonan vs. tradwife“.
Í viðtalinu ræddu þær við Sonju og Þórhall Val um jafnréttisbaráttuna, uppgang úreltra kynjahugmynda, ýmsar ranghugmyndir um leikskólavist, þátttöku karla í jafnréttisumræðunni og margt fleira.
Í fyrri hluta þáttarins ræddu Ásta Guðrún, Þórður Snær og Þórhallur Valur um lélegustu reiknivél sögunnar sem Framsókn kynnti til leiks í vikunni, villandi framsetningu kvótakóngs um þróun veiðigjalda, hvað ríkisstjórnin hefur gert í málefnum barna og bjartsýna hagspá Landsbankans.
Fri, 23 Oct 2026 - 1h 01min - 46 - S305: Jafnaðarstefnan kjörnuð og drottningarviðtal við Guðmund Ara
Í hlaðvarpi vikunnar mætti nýr varaformaður Samfylkingarinnar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, í sannkallað drottningarviðtal til Arnars Þórs og Þórhalls Vals. Drengirnir gengu hart að honum og kröfðu hann um að útskýra sína pólitísku sýn, hvað hann langaði að afreka sem varaformaður og hvernig hann fór frá því að vera utangátta unglingur yfir í að öðlast tilgang og finna til ábyrgðar gagnvart samfélaginu.
Það er óhætt að segja að þema þáttarins hafi verið jafnaðarstefnan, hvað í henni felst og hvernig hún spilar þátt í því þeim aðferðum sem Samfylkingarfólk beitir í stjórnmálum.
Í fyrri hluta þáttarins ræddu starfsmenn þingflokks Samfylkingarinnar helstu mál vikunnar en þar má nefna hertar reglur um au-pair dvalarleyfi og hvernig hátekjuhópar brugðust við því, líflegar og upplýsandi umræður um erfðafjárskatt í pontu Alþingis, augljóst handbragð jafnaðarmanna á kjarasamningagerð og nýliðinn flokksstjórnarfund í Sandgerði.
Fri, 16 Oct 2026 - 55min - 45 - S304: Kolbrún Bergþórsdóttir í viðtali við meintan fjölmiðil
Í inngangi þáttar ræddu Þórhallur Valur, Arnar Þór og Ásta Guðrún um skráningarskyldu fjölmiðla en Kratinn hefur óskað eftir áliti fjölmiðlanefndar um skráningarskyldu sína til að friða sinn virkasta hlustendahóp, þingmenn Sjálfstæðisflokksins.
Síðar mætti Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður til áratuga, með hnífabrýnið á lofti í viðtal til strákanna. Kolbrún lýsti því yfir að hún upplifði ekki meintar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar í heimilisbókhaldinu. Valur krafðist afsökunarbeiðnar vegna skrifa Kolbrúnar um fótbolta í gegnum tíðina, erfðafjárskattur bar á góma, hvernig woke-ið fældi Kolbrúnu frá Samfylkingunni og að allir stjórnmálamenn ættu að hafa upplifað að eiga ekki fyrir leigu um mánaðarmót.
Kolbrún fór yfir feril sinn á fjölmiðlum, en hún hefur starfað á flestum fjölmiðlum sem reknir hafa verið á Íslandi síðustu áratugi, nú síðast á Morgunblaðinu og DV. Að endingu fengu strákarnir ábendingar um bækur sem allir jafnaðarmenn þurfi að lesa.
Fri, 09 Oct 2026 - 40min - 44 - S303: Making Reykjavík boring again og kálfarnir á Ulf Kristersson
Þessa vikuna fengu Arnar og Valur góða gesti í hús, tvo ung-krata, þá Arnar Inga Ingason, tónlistarmann og Jóhannes Óla Sveinsson, forseta Ungs jafnaðarfólks.
Til umræðu voru tímamótaræða Andy Burnham, yfirlýsing formanns Sjálfstæðisflokks um að það styttist mögulega í kosningar, staðan í stjórnarmyndun hjá sænsku Sossunum og því tengt, kálfarnir á Ulf Kristersson, úttekt Vinnueftirlitsins á stólum borgarfulltrúa og tilraunir nýs meirihluta í Reykjavíkurborg til þess að gera borgina leiðinlegri með því að vísa listamönnum á dyr.
Löngu-tímabært framlag Kratans til manosphere-bylgjunnar.
Fri, 02 Oct 2026 - 53min - 43 - S302: Lygar, afbakanir og möguleg endalok Pírata?
Tíu milljarðar fóru til bílaleiganna, en lítill árangur hefur náðst hjá þeim í að fækka bílum sem ganga fyrir jarðefniseldsneyti.
Ásta veltir fyrir sér hvort endalok Pírata séu í sjónmáli, en í nýjustu könnun Maskínu mælist flokkurinn með 3,5% fylgi.
Bókun 35, Miðflokkurinn og fjármál sveitarfélaga koma líka við sögu, ásamt ýmsu fleiru.
Fri, 25 Sep 2026 - 49min - 42 - S301: Hanskarnir af
Kratinn mætir úr lærdómsríku sumarfríi með hanskana af.
Þjóðaratkvæðagreiðslan var gerð upp og því velt upp af hverju stjórnarandstaðan hættir ekki að tala um hana eins og hún lofaði.
Skattastefna Sjálfstæðisflokksins var tekin fyrir og af hverju í ósköpunum Vinstri græn samþykktu 330 milljarða skattalækkanir á meðan þau skiluðu 866 milljarða halla á ríkissjóði.
Fyrsta umræða fjárlaga var dregin saman og teymið ræddi hræðslu sína við amerísku úthverfahugsjónina sem er að baki útvíkkuðum borgarmörkum.
Sat, 19 Sep 2026 - 37min - 40 - S236: Eldhúsdagsumræður, viðkvæmir hægrimenn og hækkað í ofnunum á Alþingi
Þáttur vikunnar er seinna á ferðinni en vanalega vegna eldhúsdagsumræðunnar á Alþingi sl. miðvikudag. Ræðumenn Samfylkingarinnar, sem voru Jóhann Páll Jóhannsson og Ása Berglind Hjálmarsdóttir, fóru þar yfir farinn veg á þessu þingári og ýmis afrek sem unnist hafa á vettvangi þingsins.
Þáttastjórnendur fóru yfir bestu og verstu frammistöðurnar. Þá sagði Ásta Guðrún sögu af krullhærðum Pírata í gjaldeyrishöftum ásamt því að fara yfir býsna góða tölfræði úr þingstörfunum. Arnar Þór fór yfir þekkta tækni til að flýta fyrir þinglokum, sem virðist hafa virkað vel hjá honum. Viðbrögð hægri snjókornanna við efnismiklum og upplýsandi Silfursþætti voru krufin til mergjar. Þórður Snær náði að ranta um hagstjórn og Þórhallur Valur lýsti andúð sinni á umræðu um Evrópusambandið.
Fri, 12 Jun 2026 - 35min - 39 - S235: Sigurjón, Áslaug Arna og borginThu, 04 Jun 2026 - 41min
- 38 - S234: Fjölkæri í Hafnarfirði, tryllingur yfir borginni og já við ESB!Thu, 28 May 2026 - 46min
- 37 - S233: Uppgjör eftir kosningarThu, 21 May 2026 - 42min
- 36 - S232: Það er eins og allir flokkar séu jafnaðarflokkar í sveitarstjórnarkosningum
Í hlaðvarpsþætti vikunnar mættu þær Hildur Rós Guðbjargardóttir frambjóðandi okkar í Hafnarfirði og Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir, frambjóðandi okkar í Garðabæ, í Kratakompuna til Arnars og Vals.
Þær fóru yfir stöðuna hjá framboðunum og hvað hefur verið á oddinum síðustu vikur. Rætt var um sund og meira sund fyrir unga sem aldna og af hverju í ósköpunum þær þurfi að fara í kvöldsund í Reykjavík. Grunnskólamálin voru líka tekin rækilega fyrir og mikilvægi úrbóta í þeim málaflokki.
Þær stöllur voru spurðar um afstöðu sína til sameiningar Hafnarfjarðar og Garðabæjar sem og samstarfsverkefni ýmis á milli sveitarfélaganna. Hildur Rós lét gamminn geisa um næturstrætó, sem Hafnfirðingar vildu en Garðbæingar ekki, og mikilvægi þess að samgöngumál séu unnin í góðu samstarfi.
Einnig ræddum við af hverju í ósköpunum allir flokkar láti eins og jafnaðarflokkar í kosningum en standi svo ekki við stóru orðin (lesist Framsóknarflokkurinn sérstaklega).
Þá fór Vilborg Anna yfir stöðuna á Álftanesi og hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefur vanrækt það mikilvæga svæði. Að lokum vaknaði spurningin: Hvað kemst maður langt á einu skópari? Kosningabarátta er frábært tækifæri til að láta reyna á það.
Thu, 07 May 2026 - 42min - 35 - S231: Bensínbann til 1. maí, staðan í Árborg og auglýst eftir framtíðarsýn fyrir Reykjavík
Í þætti vikunnar fóru strákarnir yfir skánandi verðbólguhorfur, ársreikning Reykjavíkurborgar og yfirprjón helstu andstæðinga okkar í gagnrýni á hann. Þá ræddu þeir skattalækkun á bensíni og olíu sem tekur gildi 1. maí og afhverju það er mikilvægt að geta ráðist í verðlagseftirlit á þessum markaði.
Arnar sagði frá ferð á eilítið einhliða ráðstefnu um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu þar sem skortur á jákvæðri framtíðarsýn fyrir höfuðborgarsvæðið var ríkjandi og einn þeirra sem sat í pallborði virtist harma það að Fossvogsdalurinn hefði ekki verið malbikaður á sínum tíma.
Í seinni hluta þáttarins er svo rætt við Sigurjón Vídalín Guðmundsson oddvita okkar fólks í Árborg um stöðu mála í sveitarfélaginu.
Thu, 30 Apr 2026 - 1h 04min - 34 - S230: Fyrstu skrefin tekin í sameiningu Seltjarnar- og Akraness og staðan í Ölfusi
Myndi eitthvað stórfyrirtæki ráða bæjarstjórann á Seltjarnarnesi sem framkvæmdastjóra með hliðsjón af rekstri og þjónustu bæjarins síðustu ár?
Þessari spurningu og ýmsum öðrum er velt upp í spjalli við þau Auði Höllu Rögnvaldsdóttur frambjóðanda S-listans á Seltjarnarnesi og Sigurð Vopna Vatnsdal oddvita Samfylkingarinnar í Akraneskaupstað. Arnar Þór og Þórhallur Valur tóku þau tali.
Gunnsteinn R. Ómarsson oddviti Samfylkingar og félaga í Ölfusi er svo gestur í síðari hluta þáttarins og fer yfir stöðu mála fyrir kosningar í sveitarfélaginu.
Thu, 23 Apr 2026 - 1h 02min - 33 - S229: Allt klárt í Kópavogi með Jónasi og Eydísi
Oddviti Samfylkingar í Kópavogi, Jónas Már Torfason og Eydís Inga Valsdóttir sem skipar 2. sæti listans kíktu í heimsókn og ræddu málin við þá Arnar og Val.
Farið var yfir nýtt útspil Samfylkingarinnar sem kynnt var í síðustu viku og ber heitið Tökum ábyrgð hvert á öðru en Jónas leiddi þá vinnu. Barnaskatturinn í Kópavogi er eitthvað sem þau vilja afnema og þau vilja breyta opnunartíma sundlauga.
Kosningabaráttan sem er að hefjast var auðvitað fyrirferðamikil og nú er mánuður í herlegheitin.
Thu, 16 Apr 2026 - 40min - 32 - S228: Bjart yfir Reykjavík með Steinunni og Regínu
Frambjóðendurnir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Regína Ásvaldsdóttir sem sitja í 3. og 7. sæti lista Samfylkingarinnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar komu í spjall um borgina og kosningabaráttuna framundan.
Rætt var um jákvæða hluti í borginni eins og frístundamiðstöðvar og græn svæði, reksturinn og leikskólamálin.
Nú eru fimm vikur til kosninga og baráttan er að fara á fullt. Þær hvetja alla hlustendur Kratans til að leggja baráttunni lið!
Thu, 09 Apr 2026 - 42min - 31 - S227: Karate, húfueftirlit ríkisins og gremjupólitíkusar á jaðrinum
Krati vikunnar er þéttpakkaður af oddvitum og gæðaefni. Pétur H. Marteinsson, leiðtogi Samfylkingarinnar í Reykjavíkurborg, er gestastjórnandi í þetta sinn og fer yfir það hvernig takturinn er í framboðinu nú þegar einn og hálfur mánuður er til kosninga.
Pétur ræðir meðal annars um Breiðholtið, mikilvægi íslenskukennslu, hvað sundlaugar og íþróttastarf sem miðja hverfa gefur Íslandi mikla sérstöðu í heiminum þegar kemur að lífsgæðum og allt sem hann er búinn að læra um karate. Svo er rætt um fjármálaáætlun, efnahagslega helgarpabbann Sjálfstæðisflokk sem er að reyna að gera allt til að láta engan taka sig alvarlega og öfugar dyggðarskreytingartilraunir Miðflokksins sem eru orðnar að aðhlátursefni og fórnarlambavæðingu gremjupólitíkusa á jaðrinum, svo fátt eitt sé nefnt.
Í síðari hluta þáttarins mætir Kjartan Atli Kjartansson, oddviti Samfylkingarinnar í Garðabæ og Álftanesgoðsögn, í viðtal við Arnar Þór Ingólfsson og segir honum frá því hvað hann ætli að gera til að kratavæða Garðabæ.
Thu, 02 Apr 2026 - 1h 15min - 30 - S226: Eru ekki allir forvitnir?Thu, 26 Mar 2026 - 53min
- 29 - S225: Stýrivaxtahækkun og ein lengsta umræða um fyrri þingsályktunartillögu í sögunni
Í nýjasta þætti Kratans förum við yfir helstu mál vikunnar. Seðlabankinn hækkaði stýrivexti bæði vegna innri og ytri þátta. Þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu var ein sú lengsta í sögunni og Evrópumálin því aðeins rædd aftur.
Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal Arnars Þórs við oddvita Samfylkingarinnar á Akureyri.
Thu, 19 Mar 2026 - 54min - 28 - S224: Stjórnarandstaða sem óttast að sumarfríið styttist
Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður um aðild að Evrópusambandinu hefur verið sett á dagskrá þann 29. ágúst. Stjórnarandstaðan er hrædd um sumarfríið sitt. Við fórum yfir hegðun og atferli stjórnarandstöðunnar undanfarna daga ásamt því að ræða um kosti Evrópusambandsins.
Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal við Kristinn Ólafsson “Seltjarnarneskempu” sem leiðir S listann þar.
Thu, 12 Mar 2026 - 55min - 27 - S223: Fylgiskannanahlaðborð, ævintýri í kjördæmaviku og GÁS ræðir Kratabylgjuna í Hafnarfirði
Í þætti dagsins fórum við yfir þær kannanir sem birtar voru í síðustu viku, lögðum mat á niðurstöðurnar og ræddum nýjustu tíðindi af framboðslistum. Þá sérstaklega ferskleika Framsóknar og framboð Brynjars Níelssonar sem bætti síðast við sig fylgi árið 2017.
Björgunarsveitin Kofri í Súðavík fær „shoutout“ fyrir frækna frammistöðu við björgun þingmanna í Skötufirði í síðustu viku og sú saga sögð frá fyrstu hendi. Þórður Snær sagði frá fundinum þegar Davíð Oddsson var kynntur sem ritstjóri Morgunblaðsins.
Í seinni hluta þáttar mætti Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður flokksins og oddviti í Hafnarfirði, og fór yfir víðan völl. Meðal annars framboðslistann í Hafnarfirði, helstu málefni í bænum, handabandið hans Obama og hvernig hann öðlaðist virðingu Davíðs Oddssonar.
Thu, 05 Mar 2026 - 1h 07min - 26 - S222: Siðrof í kjördæmavikuThu, 26 Feb 2026 - 36min
- 25 - S221: Er Framsókn vídjóleiga nútímans?
Í Kratavarpinu þessa vikuna er rætt ítarlega um nýtt formannskjör í Framsóknarflokknum, hvort formaður stjórnmálaflokks geti virkilega setið utan þings árum saman og því velt upp hvort að það hlutskipti að verða formaður í þeim flokki sé sambærilegt og að erfa vídjóleigu árið 2026. Önnur framboðsmál eru rædd, Píratahornið er á sínum stað, velt er upp hvert Sjálfstæðisflokkurinn ætti helst að flytja og línur lagðar fyrir kjördæmaviku.
Í seinni hluta þáttarins er rætt við Skúla Helgason borgarfulltrúa um þær nýjungar í leikskólamálum sem kynntar voru í höfuðborginni í vikunni og hafa mælst afar vel fyrir.
Thu, 19 Feb 2026 - 56min - 24 - S220: Gusumeistarar, nýju jógakennararnir og Framsókn í sjálfsmyndarkrísu
Í Kratanum í dag er rætt um prófkjör í Kópavogi og áhyggjur af verðskrárhækkunum í gusum landsins. Miðflokkurinn ber á góma og misheppnaðar tilraunir Framsóknar til að vera "hip og kúl".
Í seinni hluta þáttarins má heyra viðtal Arnars Þórs Ingólfssonar við Jónas Má Torfason, oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi, þar sem farið er nánar yfir prófkjörið og næstu skref.
Thu, 12 Feb 2026 - 45min - 23 - S219: Kjósendur elska Samfylkinguna sína (staðfest)
Í Kratanum í dag er farið raunveruleikatengt yfir stöðu mála í efnahagsmálum, þann gríðarlega stuðning sem Samfylkingin er með í landsmálunum og mjög sterka stöðu flokksins í borginni eftir vel heppnað prófkjör. Þá er farið á dýptina í umræðu um hvort Íslendingar séu meðvitaðir neytendur og þáttastjórnendur skilgreina sig út frá þeim menntaskóla þeir voru í.
Í seinni hluta þáttarins er rætt við Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ.
Thu, 05 Feb 2026 - 48min - 22 - S218: Verðandi borgarstjóri Reykjavíkur og nýliðið flokksval Samfylkingarinnar
Í þættinum fóru Sonja, Ásta, Þórður og Valur yfir vikuna. Þar bar helst á góma flokksvalið síðasta laugardag. Farið var yfir framboð til sveitarstjórnarkosninga hjá Viðreisn og yfirferð á nýlegri könnun Maskínu. Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal við Pétur H. Marteinsson, verðandi borgarstjóra Reykjavíkur.
Thu, 29 Jan 2026 - 51min - 21 - S217: Vinstrið sem gekk í Sönnu og hægrið sem ætlar í stríð um BorgarlínuThu, 22 Jan 2026 - 46min
- 20 - S216: Sveitarstjórnarkosningar og kostnaður hvert atkvæði
Kratinn er mættur aftur eftir jólafrí og í þessari viku voru þau þrjú, Arnar Þór Ingólfsson, Sonja Huld Guðjónsdóttir og Þórður Snær Júlíusson. Þau ræddu komandi sveitarstjórnarkosningar, breytingar á ráðherraskipan og kostnað við hvert atkvæði hjá flokkunum í kosningabaráttunni í hittiðfyrra en stjórnarandstaðan greiddi þrefalt meira fyrir hvert atkvæði en flokkar í stjórn.
Thu, 15 Jan 2026 - 34min - 19 - S215: Ársuppgjör og valkyrjur með doktorsgráðu í breytingastjórnunWed, 17 Dec 2025 - 36min
- 18 - S214: Er Sjálfstæðisflokkurinn hinir nýju Píratar?
Í þættinum fóru Sonja, Ásta, Valur og Þórður yfir helstu fréttir vikunnar. Viðbætur sem samþykktar voru í 2. umræðu um fjárlögin, samgönguáætlun sem var kynnt fyrir viku og svo var því velt upp hvort að Sjálfstæðisflokkurinn væri í raun orðinn að Pírataflokki.
Í seinni hluta þáttar kom Jóhannes Óli Sveinsson, forseti ungs jafnaðarfólks, í viðtal til Vals og ræddi um forprófkjör til sveitarstjórnakosninga.
Wed, 10 Dec 2025 - 43min - 17 - S213: Ár frá kosningum
Ár er liðið frá því að þjóðin kaus breytingar. Í tilefni af því fara þau Arnar, Ásta, Sonja og Þórður yfir það besta sem ríkisstjórnin hefur gert hingað til.
Svo er verðbólga að lækka, er sleggjan mætt? Þetta og ýmislegt fleira.
Í seinni hluta þáttar er viðtal við Örnu Láru Jónsdóttur sem er formaður efnahags- og viðskiptanefndar og situr einnig í fjárlaganefnd.
Wed, 03 Dec 2025 - 42min - 16 - S212: Stóra tollamálið og hin ýmsu viðbrögð flokkanna
Stór hluti þáttar fór í að ræða verndaraðgerðir ESB gegn kísilframleiðslu. Guðrún Hafsteinsdóttir talaði um glæpamennina í Evrópusambandinu, Sigurður Ingi stakk upp á að fara í tollastríð og Miðflokkur sagði EES samninginn í uppnámi.
Í seinni hluta þáttar ræðir Arnar Þór Ingólfsson við Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur um loftslagsmálin en hún er nýlega komin heim af COP30 í Brasilíu.
Wed, 26 Nov 2025 - 43min - 15 - S211: Efnahagsmálin á mannamáli
Í þættinum fóru Arnar, Ásta, Þórður og Valur yfir fréttir vikunnar. Efnahagsmálin voru fyrirferðarmikil enda gengur vel, tiltekt í ríkisrekstri hefur skilað raunverulegum árangri og nú heldur vaxtalækkunarferlið áfram.
Í síðari hluta þáttarins ræddi Sonja við Ölmu Ýr Ingólfsdóttur, formann ÖBÍ um löggildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Wed, 19 Nov 2025 - 57min - 14 - S210: Fagurfræðilega ómöguleg lausn framkallar samsæriskenningu á forsíðu Morgunblaðs
Í Krata dagsins er kafað ofan í ótrúlega fyndna, ranga og nett brjálaða forsíðufrétt Morgunblaðsins, nýja ásýnd Sjálfstæðisflokksins sem felur í sér að horfa til fortíðar og hvort það sé ekki bara fínt að fá á sig Kristrúnar Frostavetur. Farið er yfir ríkislögreglustjóramálið, eða JYSK-skandalinn, og skýrt af hverju það þurfi að setja lög um snjallsímabann í skólum. Í síðari hluta þáttarins ræðir Sonja Huld Guðjónsdóttir við Sigurrós Elddísi um velferðarmál.
Wed, 12 Nov 2025 - 51min - 13 - S209: Kratabylgjan sem tröllríður heiminum og stóri fallegi húsnæðispakkinnWed, 05 Nov 2025 - 45min
- 12 - S208: Málefnastarf og efnilegir KratarWed, 29 Oct 2025 - 53min
- 11 - S207: Kvennasamstaða, sveitarfélög og íslenski fáninnWed, 22 Oct 2025 - 49min
- 10 - S206: Maine coon, Laxness og leikskólamálWed, 15 Oct 2025 - 49min
- 9 - S205: Varnir Alþingis og varnir ÍslandsTue, 07 Oct 2025 - 51min
- 8 - S204: Veðmálastarfsemi og vendingar vikunnar
Farið var yfir fréttir síðustu daga, fall Play, ótrúlega frásögn af Birgi Þórarinssyni, frábæran flokksstjórnarfund, hrókeringar í Miðflokknum og það hvort búið sé að eyðileggja Reykjavík eins og sumt stjórnmálafólk virðast halda. Viðmælandi þáttarins var Sigurþóra Bergsdóttir sem ræddi um ólögmæta veðmálastarfsemi við Þórð.
Tue, 30 Sep 2025 - 48min - 7 - S203: Sokkar, bolir og afsökunarbeiðni frá SamfylkingunniWed, 24 Sep 2025 - 35min
- 6 - S202: Kristrún FrostadóttirWed, 17 Sep 2025 - 55min
- 5 - S201: Forsetaslagur í UJWed, 10 Sep 2025 - 44min
- 4 - S104: Logi EinarssonWed, 18 Jun 2025 - 46min
- 3 - S103: Oddný HarðardóttirWed, 11 Jun 2025 - 49min
- 2 - S102: Árni Páll ÁrnasonWed, 04 Jun 2025 - 50min
- 1 - S101: Ingibjörg Sólrún GísladóttirWed, 28 May 2025 - 1h 03min
Podcasts similar to Kratinn
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه
