Filtrar por género
- 24 - #23 - Ásgrímur Ingi
Ásgrímur Ingi ræðir um að segja já, prófa sig áfram og treysta fólkinu í kringum sig. Samtal um litla skóla, sköpun, samfélag og leiðir sem verða stundum til án þess að þær hafi verið planaðar fyrirfram.
Fri, 18 Sep 2026 - 23 - #22 - Viðar Örn Hafsteinsson
Samtal við Viðar Hafsteinsson um leiðina inn í þjálfun, fólkið sem heldur íþróttastarfi gangandi og hvers vegna sjálfboðavinna skiptir samfélagið meira máli en við gerum okkur stundum grein fyrir.
Fri, 11 Sep 2026 - 22 - #21 - Þór Þorfinnsson
Þór Þorfinnsson kom á Hallormsstað til skamms tíma árið 1984 en fór aldrei aftur. Samtal um að finna sinn stað, sjá skóg vaxa yfir áratugi og nálgast lok ævistarfs sem enn er jafn gaman að sinna. Mjólkurhúsið er unnið í samstarfi við VÍS og Austurfrétt.
Fri, 04 Sep 2026 - 21 - #20 - Berglind Harpa
Berglind Harpa ræðir leiðina úr heilbrigðiskerfinu inn í samfélagsmálin, ábyrgðina sem fylgir því að stíga fram og hvað það gefur manni að taka virkan þátt í samfélaginu sínu.
Fri, 28 Aug 2026 - 20 - #19 - Dagmar Ýr Stefánsdóttir
Dagmar ræðir uppvöxtinn á Jökuldal, heimavistina, leiðina í nám og störf og hvernig rætur, vinnusemi og samfélag hafa mótað hana. Samtalið fer líka inn á Austurbrú, sveitarstjórnarmál og framtíð Austurlands.
Fri, 29 May 2026 - 19 - #18 - Björgvin "Bubbi" Elísson
Björgvin Elísson, eða Bubbi, segir frá löngum og fjölbreyttum rekstrarferli á Héraði; frá hellusteypu og Bón og púst yfir í skiltagerð, Toppluti og Bara snilld í Fellabæ. Samtalið snýst um að prófa, læra með því að gera og finna tækifæri í litlu samfélagi.
Fri, 22 May 2026 - 18 - #17 - Garðar Valur
Garðar Valur ræðir leiðina úr bankastarfi yfir í tölvunarfræði, Austurnet og hugbúnaðarverkefni sem hafa vaxið upp á Egilsstöðum. Samtalið snýst um óvissu, frumkvöðlamenningu, samstarf og hvernig hugmyndir verða að raunverulegum verkefnum.
Fri, 15 May 2026 - 17 - #16 - Skúli Björn Gunnarsson
Skúli Björn Gunnarsson ræðir 25 ár á Skriðuklaustri, uppbyggingu Gunnarsstofnunar, fornleifarannsóknir, menningarstarf og það sem tekur við þegar löngum kafla lýkur.
Fri, 08 May 2026 - 16 - #15 - Björt Sigfinnsdóttir
Björt Sigfinnsdóttir ræðir tónlistina, LungA, Seyðisfjörð og hvernig menningarverkefni verða til í gegnum fólk, traust og samfélag. Hún segir frá fyrstu skrefum sínum í tónlist, uppbyggingu LungA hátíðarinnar og LungA skólans, og mikilvægi þess að skapa rými fyrir ungt fólk sem finnur sig ekki alltaf innan hefðbundinna kerfa.
Fri, 01 May 2026 - 15 - #14 - Hildur Þórisdóttir
Hildur Þórisdóttir ræðir um lífið á Seyðisfirði, leiðina inn í sveitarstjórnarmál og hvað það þýðir að vinna fyrir samfélagið sitt. Persónuleg saga af fæðingu í ófærð opnar líka stærra samtal um samgöngur og öryggi á landsbyggðinni.
Fri, 24 Apr 2026 - 14 - #13 - Unnar Erlingsson
Unnar Erlingsson, grafískur hönnuður búsettur fyrir austan, ræðir um að flytja í nýjan landshluta, byggja upp líf og takast á við kafla sem breyttu miklu. Þetta er samtal um samfélag, seiglu og það hvernig ferlið mótar mann.
Fri, 17 Apr 2026 - 13 - #12 - Alda Ósk Harðardóttir
Alda Ósk ræðir um uppvöxt á Egilsstöðum, leiðina inn í snyrtifræðina og hvernig hún byggði upp sinn eigin rekstur ung að árum. Þetta er samtal um þjónustu, staðartengsl, samfélag og lífið á milli verka.
Fri, 10 Apr 2026 - 12 - #11 - Gréta "bókakaffi" Sigurjónsdóttir
Gréta Jóna Sigurjónsdóttir ræðir um tónlistina, Dúkkulísur, kennslu, missi og hvernig Bókakaffi varð til. Þetta er samtal um sköpun, seiglu og samfélag.
Fri, 03 Apr 2026 - 11 - #10 - Guðjón Sigmundsson
Guðjón úr Vaski ræðir uppvöxt, vinnulíf og uppbyggingu rekstrar þar sem þjónustulund, lausnamiðuð hugsun og seigla skipta öllu máli.
Fri, 27 Mar 2026 - 10 - #9 - Kristdór (Kristó)
Kristó rifjar upp leiðina sína inn í Dekkjahöllina, uppbyggingu rekstrar á Austurlandi og hvernig ástríða fyrir bílum, dekkjum og þjónustu hefur mótað lífið. Þetta er samtal um vinnu, samfélag og það að sleppa takinu án þess að missa sjálfan sig.
Fri, 20 Mar 2026 - 9 - #8 - Auður Vala
Auður Vala ræðir um metnað, ábyrgð og vinnuna sem liggur á bak við árangur í ólíkum verkefnum – og hvers vegna mikilvægt er að fara af heilum hug inn í það sem maður tekur sér fyrir hendur.
Fri, 13 Mar 2026 - 8 - #7 - Þorgeir Arason
Þorgeir Arason og fjölskylda hans komu austur árið 2008 og hafa síðan þá verið hluti af samfélaginu á Egilsstöðum. Í þessum þætti ræðum við þjónustustarf prestsins, mörkin á milli vinnu og heimilis og hvernig það er að ala upp börn í sterku samfélagi. Samtal um nærveru, ábyrgð og hlutverk sem nær oft út fyrir lóðamörk kirkjunnar.
Fri, 06 Mar 2026 - 7 - #6 - Elín Káradóttir
Elín Káradóttir segir frá leið sem byrjaði í Hróarstungu, lá suður og inn í fasteignasölu sem hún síðar keypti og byggði upp. Við ræðum rætur, að flytja aftur heim og nýtt verkefni á Egilsstöðum — Hjá Línu, fyrstu lúgusjoppuna þar í langan tíma. Þátturinn er aðeins lengri en vanalega, en samtalið fékk að taka þann tíma sem það þurfti.
Fri, 27 Feb 2026 - 6 - #5 - Davíð Kristinsson
#5 – Davíð Kristinsson Við hittum Davíð Kristinsson á Seyðisfirði og ræðum ævintýrin í næturlífinu í Danmörku, heimkomuna til Íslands og hvernig lífið leiddi hann austur. Samtal um að flytja sig á milli landa og lífskafla — og finna sinn stað á ný.
Fri, 20 Feb 2026 - 5 - #4 – Díana Mjöll
Elí Þór ræðir við Díönu Mjöll um að taka við Tanni Travel, kynslóðaskipti í rekstri og þá ábyrgð og þróun sem fylgir því að halda áfram fjölskyldufyrirtæki.
Fri, 13 Feb 2026 - 4 - #0 - Mjólkurhúsið - samtöl á milli verka
Inngangsþáttur að Mjólkurhúsinu þar sem Elí Þór, þáttastjórnandi, útskýrir hugmyndina að þáttaröðinni og hvers vegna áherslan er á ferlið, fólkið og samtölin á milli verka.
Fri, 06 Feb 2026 - 3 - #1 - Þór Ragnarsson
Elí Þór ræðir við Þór Ragnarsson um ferlið á bak við verkin, ákvarðanatöku og mikilvægi þess að leyfa hugmyndum að þróast á sínum eigin forsendum.
Fri, 06 Feb 2026 - 2 - #2 - Sigrún Steindórsdóttir
Elí Þór ræðir við Sigrúnu Steindórsdóttur um uppbyggingu Rammalausna Sigrúnar og ferðalag hennar frá námi í húsgagnasmíði yfir í rekstur eigin fyrirtækis.
Fri, 06 Feb 2026 - 1 - #3 - Óskar Bjarnason
Elí Þór ræðir við Óskar Bjarnason um hvernig hann endaði á Egilsstöðum, upphaf verkefnisins Bolholt og þau verkefni sem hann vinnur að í dag.
Fri, 06 Feb 2026
Podcasts similares a Mjólkurhúsið
Friday Night Comedy from BBC Radio 4 BBC Radio 4
Historie českého zločinu Český rozhlas
RADIO MUZYKA CM. TAKOS
The Diary Of A CEO with Steven Bartlett DOAC
Fængsel DR
Drogowskazy Eska ROCK
C dans l'air France Télévisions
Forensic Files HLN
Forensic Files II HLN
Stuff You Should Know iHeartPodcasts
Bag om København Københavns Biblioteker
Kryminalne Historie Kryminalne Historie
Zloději životů Novinky.cz
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Solo Salsa Ricky Montana
Sceny zbrodni RMF FM
Laurent Gerra RTL
Tout un monde ‐ RTS Première RTS - Radio Télévision Suisse
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Mannlegi þátturinn RÚV
Sögur úr raunveruleikanum RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl

