Filtrar por género
Spursmál

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14. Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.
- 165 - #142. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í
Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 gerir ráð fyrir tæplega 1.700 milljarða útgjöldum ríkissjóðs á komandi ári. Allt stefnir í hörð átök í þinginu um þessi viðamiklu og stefnumarkandi lög.
Af því tilefni mæta þeir í Spursmál þingmennirnir Grímur Grímsson frá Viðreisn og Stefán Vagn Stefánsson frá Framsóknarflokki. Þeir líta þessi mál gjörólíkum augum og munu meðal annars takast á um skattahækkanir sem stefnir í á banka, ferðaþjónustu og ökumenn.
Í þáttinn mætir líka sveitarstjórnarfólk af Suðurnesjum. Þar eru á ferðinni Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri í Suðurnesjabæ og Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Þau munu ræða fréttir vikunnar, niðurstöður Pisa-könnunar og margt fleira.
Fri, 11 Sep 2026 - 1h 26min - 164 - #142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu
Grípa þarf til enn frekari aðhaldsaðgerða hjá Reykjavíkurborg að sögn Hildar Björnsdóttur borgarstjóra sem er gestur Spursmála að þessu sinni. Hallareksturinn nam 4,6 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi.
Í liðinni viku var greint frá umtalsverðum skipulagsbreytingum hjá borginni sem spara eiga um 900 milljónir króna á ársgrundvelli. Fer Hildur yfir þessar aðgerðir í þættinum og hvernig hún hyggist á sama tíma standa vörð um grunnrekstur borgarinnar.
Í fréttum vikunnar er rætt við þá Magnús Jóhann Ragnarsson píanóleikara og Örn Arnarson, fjölmiðlarýni og hagfræðing sem starfar á Viðskiptablaðinu. Þeir ræða meðal annars miklar væringar á fjölmiðlamarkaði sem birtast í því að kvöldfréttir Sýnar heyra nú sögunni til.
Í síðasta hluta þáttarins er rætt við dr. Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands. Hann rýnir í niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar um liðna helgi og hvað úrslitin þýða fyrir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.
Fri, 04 Sep 2026 - 1h 42min - 163 - #141. - Uppgjörið
Meirihluti kjósenda hafnaði því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Að baki er löng og ströng barátta þar sem andstæðar fylkingar bárust á banaspjótum. En hver er staðan að átökum loknum?
Þessu hyggjast blaðamennirnir Andrea Sigurðardóttir og Andrés Magnússon svara í aukaþætti Spursmála sem fer í loftið klukkan 14:00. Þau hafa leitt fréttaumfjöllun Morgunblaðsins og mbl.is síðustu mánuði þar sem ljósi hefur verið varpað á kosti og galla mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu.
Í síðari hluta þáttarins mætir Óli Björn Kárason fyrrverandi ritstjóri og alþingismaður í þáttinn og ræðir nýjustu tíðindi af fjölmiðlamarkaði en í gær var tilkynnt um það að kvöldfréttatími Stöðvar 2 og síðast Sýnar hefði lagt upp laupana eftir 40 ára úthald.
Hvað þýðir þetta fyrir frjálsa fjölmiðlun í landinu og af hverju eiga fjölmiðlar jafn erfitt uppdráttar og raun ber vitni?
Tue, 01 Sep 2026 - 1h 01min - 162 - #140. - Titringur á lokametrum baráttunnar
Nú er innan við sólarhringur í að kjörstaðir opni um allt land og það styttist óðum í að úrslit fáist í einu stærsta pólitíska þrætumáli síðari ára á Íslandi. En hver verður niðurstaðan?
Þeirri spurningu munu þau Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar reyna að svara í Spursmálum dagsins.
Í fréttum vikunnar verður rætt við þá Loga Bergmann Eiðsson og Jón Júlíus Karlsson en þeir halda úti hinu geysivinsæla hlaðvarpi Seinni níu. Þar verður óhjákvæmilega rætt um fráfall Haraldar Noregskonungs en einnig önnur tíðindi af innlendum og erlendum vettvangi.
Áður en rætt verður við þessi tvö tvíeyki mun Ingibjörg Davíðsdóttir, fyrrverandi sendiherra Íslands í Noregi mæta í Spursmál og ræða fráfall konungs og ríkisarfann sem nú hefur sest í hásætið í Ósló, Hákon VIII.
Í lok þáttar verður rætt við Sigríði Maríu Egilsdóttur, lögmann í New York og fyrrverandi varaþingmann Viðreisnar. Hún hefur skipt um skoðun í Evrópusambandsmálum. Hún hyggst segja nei á morgun og fyrir því eru mjög forvitnilegar ástæður sem hún verður spurð út í.
Fri, 28 Aug 2026 - 1h 42min - 161 - #139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið
Hilmar Veigar Pétursson stýrir Fenris Creations, áður CCP. Hann var sannfærður um að Ísland ætti að ganga í ESB. Nú hefur hann skipt um skoðun. Hann lýsir ástæðum þess í aukaþætti af Spursmálum.
Hann flutti ræðu í liðinni viku á vettvangi samtakanna Áfram Ísland þar sem sjónum var beint að nýsköpunarfyrirtækjum á Íslandi og möguleikum slíkra fyrirtækja innan eða utan ESB.
Ræðan hlaut mikla athygli enda hafði Hilmar Veigar talað skarpt fyrir því á árinu 2014 að halda ætti áfram aðildarviðræðum við ESB og taka upp evru í stað krónunnar.
Um svipað leyti flutti Hilmar Veigar til Bretlands þar sem hið svokallaða BREXIT var nýlega um garð gengið. Hann segir að reynslan þaðan kenni að ef Ísland gangi einu sinni til liðs við ESB verði aldrei þaðan snúið að nýju.
Hann mun einnig fara yfir það í viðtalinu hvernig hann telji að það að „kíkja í pakkann“ muni taka athygli frá brýnum úrlausnarefnum í íslensku samfélagi og koma í veg fyrir að þjóðin grípi ótrúleg tækifæri, ekki síst á sviði hugverkaiðnaðarins.
Mon, 24 Aug 2026 - 1h 02min - 160 - #138. - 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands er gestur Stefáns Einars Stefánssonar í beinni útsendingu í Spursmálum.
Þar mun hann gera upp baráttuna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst, næstkomandi. Ólafur Ragnar hefur ekki farið leynt með afstöðu sína gegn Evrópusambandinu og hefur verið gagnrýninn á mögulega aðild Íslands að ESB. Segir hann slíkan könnunarleiðangur ótímabæran, enda sé Íslandi, líkt og Noregi og Sviss, betur borgið utan sambandsins og án upptöku á evru.
Í þáttinn mæta einnig hagfræðingarnir Konráð Guðjónsson og Þorsteinn Þorgeirsson til að ræða kosti og galla mögulegrar ESB-aðildar fyrir íslenskt efnahagslíf, áhrif upptöku á evru og stöðu vinnumarkaðarins í því samhengi.
Fri, 21 Aug 2026 - 1h 48min - 159 - #137. - Böðull látinn laus og kjarasamningar í uppnámi
Á sama tíma og þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB stendur fyrir dyrum styttist í að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði verði endurskoðaðir. Hvað ætlar verkalýðshreyfingin að gera? En atvinnurekendur?
Þeim spurningum verður reynt eftir fremsta megni að svara í Spursmálum dagsins þar sem Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins mætast og fara yfir stöðuna. Ljóst er að verðbólgan mælist langt yfir því marki sem samið var um árið 2024.
Í þættinum verður einnig rætt við Óskar Magnússon, lögmann, rithöfund og bónda á Sámstaðabakka í Fljótshlíð og Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra.
Þau verða meðal annars spurð út í nýjustu vendingar í máli áhafnarinnar á Bandero sem gerði óskunda inni í íslenskri lögsögu fyrir skemmstu og einnig verður vöngum velt yfir því hvernig það gat komið til að böðullinn Angjelin Sterkaj sem varð manni að bana með hrottafengnum hætti í Rauðagerði árið 2021 er laus úr íslensku fangelsi og farinn til heimalands síns, Albaníu.
Fri, 14 Aug 2026 - 1h 51min - 158 - #136. - Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur?
Engin þjóð hefur stofnað til umsóknar að Evrópusambandinu með þeim hætti sem íslensk stjórnvöld vilja gera nú. Hvað ætlast forystumenn ríkisstjórnarinnar fyrir í málinu?Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður hefur fjallað ítarlega um yfirvofandi umsóknarferli Íslands og ræðir það í Spursmálum dagsins. Hann var meðal annars formaður utanríkismálanefndar Alþingis þegar Íslendingar samþykktu EES-samninginn fyrir sína parta.Auk Björns mæta stjórnendur hlaðvarpsins, Komið gott, á vettvang og ræða fréttir vikunnar. Það eru þær Kristín Gunnarsdóttir og Ólöf Skaftadóttir. Þar verður Evrópuumræðan sannarlega fyrirferðarmikil en sennilega munu hvalveiðar og átök við Íslandsstrendur einnig bera á góma.
Fri, 07 Aug 2026 - 1h 11min - 157 - #135. - Hverju búast menn við í aðildarsamningi?
Hvers væntir Já til að sjá-hreyfingin í aðildarsamningi við Evrópusambandið þegar hann liggur fyrir? Þeirri spurningu verður beint að Jónasi Hagan, fjárfesti og einum stofnenda hreyfingarinnar í Spursmálum dagsins.Þar mætir hann Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi en hún hefur ákveðnar hugmyndir um það hvað Evrópusambandið muni leggja upp með þegar kemur að stærstu auðlind þjóðarinnar í kringum landið.Þá mun Andrés Magnússon, blaðamaður og fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu mæta til leiks og ræða fréttir vikunnar. Þar verður sjónum meðal annars beint að hlutverki fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu sem þeirrar sem fram fer þann 29. ágúst. Eiga fjölmiðlar að vera hlutlausir í umfjöllun sinni?
Fri, 31 Jul 2026 - 1h 34min - 156 - #134. - Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi
Dagur B. Eggertsson, alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri segir gríðarlegan velferðarábata felast í því að taka upp evru á Íslandi. Vitnar hann meðal annars til 12 ára gamallar skýrslu í því efni. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og hagfræðingur segir skýrsluna úrelta.
Þau takast á um efnið og hvaða tækifæri felist mögulega í því að Ísland gangi í Evrópusambandið í aukaþætti Spursmála sem sendur er út á mbl.is klukkan 10:00 í dag. Unnin að beiðni ASÍ og fleiri 2014.
Skýrslan sem um ræðir og varð umtalsefni eftir að Dagur birti grein á visir.is þar sem hann vitnaði til hluta niðurstaðna hennar, var unnin af Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands árið 2014 að beiðni Alþýðusambands Íslands og nokkurra atvinnurekendasamtaka.
Þar eru kostir upptöku evru tíundaðir, meðal annars í ljósi þess gríðarlega verkefnis sem stóð fyrir dyrum um að koma Íslandi út úr fjármagnshöftum. Stjórnvöld Íslands á árunum 2009-2013 höfðu heykst á því verkefni og það var ekki fyrr en með ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem lausn fékk á þeim málum með tröllauknum samningum við kröfuhafa föllnu bankanna.
Ásdís Kristjánsdóttir brást við skrifum Dags og sagði stöðu efnahags- og peningamála allt aðra á Íslandi í dag en árið 2014. Grundvallarbreytingar hefðu verið gerðar á kerfinu sem hafi komið Íslandi á beinu brautina. Hún varar við inngöngu í ESB og upptöku evru og segir að með því missi Ísland mikilvægt hagstjórnartæki úr höndum.
Wed, 29 Jul 2026 - 1h 25min - 155 - #133. - Hefði Kerecis orðið til innan Evrópusambandsins?
Guðmundur Fertram Sigurjónsson er meðal gesta Spursmála þennan föstudaginn og ræðir þar af hverju hann leggst gegn aðildarviðræðum við ESB en hann flutti ræðu á fundi samtakanna Áfram Ísland sem haldinn var á Selfossi á miðvikudaginn síðastliðinn.Hann býr yfir alþjóðlegri reynslu og hefur starfað við uppbyggingu fyrirtækja í Bandaríkjunum, ýmsum ríkjum Evrópu og á Nýja-Sjálandi.Hver staðan á Kerecis?Í þættinum verður hann einnig spurður út í stöðuna á Kerecis sem rekur framleiðslustarfsemi sína á Ísafirði en fyrirtækið var selt til danska lækningavöruframleiðandans Coloplast fyrir þremur árum á nærri 180 milljarða króna.Íslenskt atvinnulíf, sjávarútvegur og ESBÍ þættinum verður einnig rætt við þá Hjálmar Vilhjálmsson sem situr í stjórn Já til að sjá og Hermann Guðmundsson sem er meðal stofnfélaga Áfram Ísland. Hjálmar er framkvæmdastjóri hjá útgerðarfélaginu Brimi og verður hann meðal annars spurður út í álitamál tengd íslenskum sjávarútvegi ef Ísland gengur í ESB. Hermann er forstjóri Kemi. Hvorugur þeirra kemur þó til samtals um þessi mál sem fulltrúi fyrirtækisins sem þeir starfa hjá heldur sem einstaklingar sem vilja beita sér fyrir málefnalegri umræðu um mögulega aðild Íslands að ESB.
Fri, 24 Jul 2026 - 1h 34min - 154 - #132. - Á ríkið eitt að selja fólki áfengi
Er ríkisvaldið eini aðilinn sem getur með viðunandi staðið að áfengissölu hér á landi? Er það ógn við lýðheilsu og heilbrigðiskerfið ef einkaaðilum er falið það verk?
Hér mætast þeir Kári Stefánsson, læknir og stofnandi Íslenskrar erfðagreiningar og Arnar Sigurðsson stofnandi og eigandi áfengisverslunarinnar Santé.
Tue, 21 Jul 2026 - 56min - 153 - #131. - Kjaftæði um matvæla- og húsnæðisverð
Er dýrt að kaupa í matinn á Íslandi og er húsnæðismarkaðurinn ókleifari múr fyrir ungt fólk hér á landi en annars staðar. Hagfræðingurinn Konráð S. Guðjónsson verður knúinn svara um það í Spursmálum.
Hann hefur að undanförnu fjallað mikið um matvælaverð á Íslandi og hvernig markaðurinn hér á landi er í samanburði við nágrannaríkin. Í Spursmálum í dag hyggst hann einnig birta áhugaverðan samanburð á fasteignamarkaðnum á Íslandi og í Danmörku.
Í fréttum vikunnar er rætt við íþróttafréttamanninn Eddu Sif Pálsdóttur sem staðið hefur í ströngu meðan á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu hefur staðið og Jón Kristin Einarsson sagnfræðing sem þessa dagana fræðir íslensku þjóðina um sögu lands og þjóðar. Það gerir hann á nýstárlegan hátt í samtölum við helstu fræðimenn landsins á þessu sviði.
Þau munu þó ekki aðeins ræða HM og sagnfræði heldur einnig rýna í aðrar stórar fréttir vikunnar.
Fri, 17 Jul 2026 - 1h 31min - 152 - #130. - Innflutningur á glæpaklíkum og spurningin um ESB
Margt hefur dregið til tíðinda í íslensku samfélagi í vikunni sem nú er að líða. Á vettvangi Spursmála verður drepið niður í umræðu um nokkur helstu málin, meðal annars stórt fíkniefnasmygl sem nú tengist beint veitingu ríkisborgararétts til albansks manns árið 2015. Hann er nú Íslendingur en fyrrgreint ár fóru ákveðnir fjölmiðlar og alþingismenn hamförum vegna ákvörðunar útlendingastofnunar um að vísa albanskri fjölskyldu úr landi.
Þingið kiknaði í hnjánum og gestrisni þess hefur nú verið endurgoldin með fyrrnefndum hætti þar sem hópur glæpamanna vinnur að því hörðum höndum að dæla ólöglegum fíkniefnum inn í landið.
Fréttir vikunnar og ESB-málin í forgrunni
Þetta mál og fleiri ræða þeir Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs Fjarðarbyggðar og Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi alþingismaður og bæjarstjóri og rithöfundur með meiru þar sem farið er yfir fréttir vikunnar.
Ásmundur sat á Alþingi þegar fyrrnefnd ákvörðun var tekin.
Í síðari hluta þáttarins er rætt við dr. Björn Zoëga, forstjóra King Faisal sjúkrahússins í Sádi-Arabíu en hann kom fram á upphafsfundi Áfram Ísland á mánudaginn þar sem hann færði rök fyrir því af hverju Íslendingar eigi að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst næstkomandi.
Fri, 10 Jul 2026 - 1h 21min - 151 - #129. - Ungt fólk, stórar spurningar og harðnandi barátta
Baráttan um framtíð Íslands gagnvart Evrópusambandinu færist nú á nýtt stig og í Spursmálum vikunnar er tekist á við stóru spurningarnar sem blasa við þjóðinni fyrir atkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Í þættinum er rætt um upplýsingagjöf stjórnvalda, stöðu krónunnar, áhrif mögulegrar aðildar á atvinnulíf og heimili landsmanna og ekki síst það hvernig ungt fólk hyggst láta til sín taka í einni stærstu pólitísku umræðu síðari ára.
Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal hvalveiðar, stöðu Landhelgisgæslunnar, menntamál og þá umræðu sem nú stendur um einkunnagjöf og samræmt mat í skólakerfinu. Gestir þáttarins koma úr ólíkum áttum og draga fram mismunandi sjónarmið, en sameiginlegt er að umræðan er beinskeytt, lifandi og á köflum snörp. Í seinni hluta þáttarins mætast fulltrúar ungs fólks sitthvoru megin í ESB-deilunni og ræða hvað raunverulega er undir þegar þjóðin gengur að kjörborðinu.
Gestir þáttarins eru Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akranesi, og Einar Jóhannes Guðnason, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Kópavogi, sem fara yfir fréttir vikunnar með Stefáni Einari Stefánssyni. Í síðari hluta þáttarins mæta Júlíus Viggó Ólafsson, formaður Ung gegn ESB-aðild, og Óðinn Freyr Baldursson, formaður Ungra Evrópusinna.
Fri, 03 Jul 2026 - 1h 23min - 150 - #128. - Þjóðaratkvæði, þjóðargrafreitur og milljarðarnir í boltanum
Í Spursmálum vikunnar fara þingmennirnir Jón Gnarr og Snorri Másson yfir lok þingvetrarins og takast á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar greinir þá á um hvort verið sé að „kíkja í pakkann“ eða veita stjórnvöldum opið umboð til að sækja um aðild.
Þá er rætt um Þingvelli, vel heppnaða tónleika Kaleo og þjóðargrafreitinn þar sem hugsanleg rannsókn á beinum Jónasar Hallgrímssonar vekur spurningar um sögu, virðingu og helgi.
Í lok þáttarins ræðir Sævar Þór Sveinsson, sérfræðingur í fjármálum íþrótta og maðurinn á bak við Utanvallar.is, um gríðarlegt umfang heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, tekjur FIFA, hækkandi miðaverð og hvað HM-sæti hefði þýtt fjárhagslega fyrir íslenska knattspyrnu.
Fri, 26 Jun 2026 - 1h 35min - 149 - #127. - Myndi matvælaverð lækka eða hækka við ESB-aðild?
Ýmsum fullyrðingum hefur verið haldið á lofti um að matvælaverð muni lækka ef Ísland gengur í Evrópusambandið. Því hefur jafnvel verið haldið fram að það muni lækka um allt að fjórðung.
Hvað er satt og logið í því? Þeirri spurningu munu þær Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og stjórnarmaður í Heimssýn og Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og stjórnarmaður í Evrópuhreyfingunni reyna að svara á vettvangi Spursmála í dag.Þá munu hagfræðingarnir Birta Karen Tryggvadóttir og Þórður Gunnarsson rýna í nýja fjármálaáætlun ríkisins. Birta Karen birti fyrr í vikunni grein þar sem hún gagnrýnir vinnubrögð fjármálaráðherra og Alþingis þar sem fjármálaáætlun til ársins 2031 var samþykkt án þess að tillit væri tekið til nýrrar hagspár Seðlabanka Íslands sem gerir ráð fyrir talsvert verri horfum á komandi árum og misserum en áður var gert.
Fri, 19 Jun 2026 - 1h 21min - 148 - #126. - Er upptaka evru ógn við efnahag Íslands?
Jón Helgi Egilsson er doktor í peningamálahagfræði. Hann segir að upptaka evru gæti leitt hundruða milljarða króna tjón yfir íslenskt efnahagslíf ef atvinnuleysi myndi aukast vegna gjaldmiðilsins.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítarlegu viðtali við Jón Helga í Spursmálum þennan föstudaginn. Bendir hann á að sú fastgengisstefna sem óhjákvæmilega myndi fylgja upptöku evru gæti leitt til aukins atvinnuleysis í kjölfar efnahagsáfalla.Jón Helgi hefur ritað tvær greinar í Morgunblaðið að undanförnu þar sem hann ræðir gjaldmiðlamál. Þar hefur hann meðal annars gagnrýnt stjórnvöld fyrir að rangtúlka niðurstöður skýrslu sem fjármála- og efnahagsráðherra lét gera á kostum þess að taka upp evru. Bendir hann á að í skýrslunni hafi auk þess ekkert mat verið lagt á það hvaða áhrif upptöku gætu haft á atvinnustig í landinu.
Þá mætir einnig í Spursmál Jón Bjarnason sem var ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála á árunum 2009-2011 meðan Ísland stóð í aðlögunarviðræðum við Evrópusambandið. Hann segir að Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel og þáverandi aðalsamningamaður Íslands í umsóknarferlinu við ESB á sínum tíma fari með rangt mál þegar hann lýsi ferlinu. Vissulega hafi verið hafin aðlögun að reglum ESB í ferlinu.
Skyggnst er að tjaldabaki í samtalinu við Jón og lýsir hann meðal annars ótrúlegum samskiptum sínum við Steingrím J. Sigfússon, þáverandi formann Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Jóhönnu Sigurðardóttur, formann Samfylkingarinnar.
Í þættinum er einnig rætt við þá Birgi Olgeirsson, fréttamann á Sýn og Bjarna Helgason, fréttastjóra íþrótta á Morgunblaðinu og mbl.is. Þeir fara yfir Heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem hófst með látum í gærkvöldi, afrekið sem Gunnlaugur Árni Sveinsson vann þegar hann vann sér inn þátttökurétt á US Open í golfi. En þeir láta ekki þar við sitja. Þeir munu skyggnast yfir fleiri fréttir sem hátt bar í vikunni sem leið.
Fri, 12 Jun 2026 - 1h 47min - 147 - #125. - Áslaug kveður, ESB-sumarið hefst
Í Spursmálum vikunnar er farið yfir pólitíska jarðskjálfta síðustu daga, brotthvarf Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur úr stjórnmálum og það sem kann að bíða hennar handan þingsalarins. Þá hefst heit umræða um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, enda virðist íslenska sumarið ekki eiga að fara í sól, sund og pylsur heldur gjaldmiðlamál, fullveldi og skýrslur.
Hermann Nökkvi Gunnarsson og Hlédís Maren Guðmundsdóttir fara yfir fréttir vikunnar, þar á meðal stöðu Miðflokksins eftir kosningar, fánamál í Reykjavík, útlendingamál í Reykjanesbæ, Icelandair, Oculis og umræðuna um íslenska fánann. Þá ræðir Áslaug Arna ákvörðun sína og framtíðina, áður en Lilja Alfreðsdóttir og Dagbjört Hákonardóttir takast hressilega á um ESB, krónuna, EES-samninginn og stöðu Íslands í breyttum heimi.
Fri, 05 Jun 2026 - 1h 58min - 146 - Bókaspjall: Þorskastríðin með Guðna Th. Jóhannessyni
Í þættinum ræðir Stefán Einar Stefánsson við Guðna Th. Jóhannesson, sagnfræðiprófessor og fyrrverandi forseta Íslands, um bók hans Stund milli stríða: Saga landhelgismálsins 1961 til 1971.
Rætt er um Þorskastríðin, átökin við Breta, togvíraklippur, NATO-vopnið, hleranir, alþjóðalög og þá flóknu sögu sem mótaði sjálfsmynd Íslendinga sem strandþjóðar.
Guðni segir frá lykilatvikum, persónum og pólitískum átökum tímabilsins og veltir fyrir sér hvernig sagan lifir áfram í samtímanum, meðal annars í umræðu um fullveldi, auðlindir og samband Íslands við Evrópu.
Thu, 04 Jun 2026 - 1h 24min - 145 - #124. - Guðrún vs. Sigmundur og blikur á lofti
Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur náðu ekki saman um meirihluta í höfuðborginni, þrátt fyrir vonir margra þar um. Formenn flokkanna, þau Guðrún Hafsteinsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gera upp sveitarstjórnarkosningarnar og fara yfir yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst.
Þá mætir til leiks Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka en hann ritaði grein í Morgunblaðið í morgun sem nefnist Maður mjólkar ekki dauða kú. Hann hefur verulegar áhyggjur af stöðu Icelandair sem hann segir mikilvægasta fyrirtæki landsins. Hann kom að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í Covid-faraldrinum og þekkir því vel til á vettvangi. Hvað er til ráða? Er hætt við því að Íslendingar missi úr höndunum þessa lífæð milli landsins og meginlandanna í austri og vestri?
Í lok þáttarins ræðir Stefán Einar við þau Önnu Laufeyju Stefánsdóttur hjá Stafrænni velferð og Svein Tryggvason, framkvæmdastjóra Tæknivara. Þau hafa áhyggjur af stöðu samfélagsmiðla og hvernig þeir virka á unga fólkið í landinu. Hvar liggur vandinn? Eru þessir sömu miðlar nú þegar búnir að gleypa foreldra barnanna?
Fri, 29 May 2026 - 1h 48min - 144 - #123. - Er kreppuverðbólga að skella á landinu?
Sveitarstjórnarkosningarnar, efnahagshorfur og áhrif stýrivaxta á heimili og fyrirtæki eru meðal þess sem tekið er fyrir í Spursmálum í dag.Þar fara þau Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Katrín Júlíusdóttir, ráðgjafi og fyrrverandi ráðherra, yfir helstu fréttir vikunnar og rýna í niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna.Í síðari hluta þáttarins ræða þau Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, og Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og ráðgjafi, um stöðu efnahagsmála hér á landi, stýrivaxaákvörðun Seðlabanka Íslands og horfur á næstu misserum.
Fri, 22 May 2026 - 1h 33min - 143 - Bókaspjall: Frelsið eftir Mill með Hannesi HólmsteiniThu, 14 May 2026 - 1h 09min
- 141 - #122. - Mun ríkisstjórnin koma atkvæðagreiðslunni í gegn?
Meirihlutinn á Alþingi hefur sléttar þrjár vikur til að koma ákvörðun um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB í gegnum þingið. Takist það ekki 29. maí eða fyrr getur ekki orðið af henni í lok ágúst. Þessa dagana er hart tekist á um málið, ekki síst á vettvangi utanríkismálanefndar þingsins.
Pawel Bartoszek er formaður nefndarinnar en í henni situr einnig Diljá Mist Einarsdóttir. Þau eru gestir Spursmála að þessu sinni og ræða málið frá ýmsum hliðum. Ljóst er að stór gjá er á milli meirihluta og minnihluta í þinginu um málið.
Áður en þau mæta til leiks fara þauAndrés Magnússon og Andrea Sigurðardóttir yfir stöðuna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Mun kreditkortanotkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur hafa áhrif á fylgi Samfylkingarinnar og mun Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi standa af sér árásir Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra.
Fri, 08 May 2026 - 1h 27min - 140 - #121. - Gæti eldgos í Eyjum sett jarðgangagerð í uppnám?
Í Spursmálum dagsins verður öllum helstu spurningum svarað um það hvort mögulegt sé að bora 18 kílómetra göng milli lands og Eyja. Þá verður rætt við nýja oddvitaframbjóðendur í Garðabæ og Reykjavík.
Þannig mæta þau til leiks, Kjartan Atli Kjartansson, oddviti Samfylkingarinnar í Garðabæ og Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík. Munu þau ræða fréttir vikunnar sem eru af ýmsu og ólíku tagi.
Í síðari hluta þáttarins er rætt við dr. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðing og Árna Sigfússon, stjórnarformann Eyjaganga, um hugmyndina að göngum milli lands og Eyja.
Fri, 24 Apr 2026 - 1h 14min - 139 - #120. - Fallinn varaformaður og vaxtaokur í boði hins opinbera
Varaformaður Flokks fólksins er flúinn af hólmi og Seðlabanki og ríkisstjórn virðast leggja sitt af mörkum til þess að viðhalda háum vöxtum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í Spursmálum dagsins. Í fyrsta hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við Andrés Magnússon um gögn sem nú hafa verið dregin fram í dagsljósið og varpa ljósi á það hvaða augum Evrópusambandið lítur áframhald viðræðna við Ísland um mögulega aðild þess að sambandinu.Í öðrum hluta þáttarins er rætt við þá Hlyn Bæringsson, oddvita Framsóknarflokksins í Garðabæ og Tómas Þór Þórðarson, varaþingmann Sjálfstæðisflokksins um fréttir vikunnar. þar ber margt forvitnilegt á góma, meðal annars hækkandi verðbólgu, yfirvofandi stýrivaxtahækkanir, brotthvarf Guðmundar Inga Kristinssonar úr Flokki fólksins og stöðuna í efstu deild í körfunni og fótboltanum.Í síðasta hluta þáttarins er rætt við Kjartan Örn Sigurðsson, eiganda Ormsson, en hann hefur stórar skoðanir á þeim aðgerðum sem Seðlabankinn hefur gripið til á síðustu árum í formi hækkandi vaxta, viðbrögðum ríkisstjórnarinnar við versnandi efnahagsástandi og þrengingum á húsnæðismarkaði og síðast en ekki síst fyrirhuguðum breytingum á Suðurlandsbraut.
Fri, 17 Apr 2026 - 1h 16min - 138 - Bókakvöld: Grænland í brennidepliThu, 16 Apr 2026 - 1h 20min
- 137 - #119. - Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB?
Á Ísland, sem eitt ríkasta land í heimi, erindi inn í Evrópusambandið þar sem mörg ríki glíma við fátækt og efnahagserfiðleika? Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra hefur skoðun á því.
Hann er væntanlegur í Spursmál í dag til þess að ræða þetta áleitna mál en hann verður einnig til svars um það hvernig alþjóðamálin í víðara samhengi blasa við honum. Hann var um nokkurra ára skeið sendiherra Íslands gagnvart Bandaríkjunum í Washington D.C. og er því öllum hnútum kunnugur þegar kemur að stöðu og stefnu Bandaríkjanna, jafnt heima fyrir og um veröld víða.
Í fréttum vikunnar verður rætt við þá Sævar Helga Bragason, jarðfræðingur og umsjónarmaður Stjörnuvefsins með meiru, og Herbert Guðmundsson tónlistarmann. Rætt verður við þá um geimskot, fráfall Björgvins Halldórssonar og margt fleira.
Í þáttinn mætir einnig Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra Morgunblaðsins en hann mun í dag sitja fyrir hönd blaðsins blaðamannafund ríkisstjórnarinnar sem bæði kynnir nýja atvinnustefnu fyrir Ísland og tímabundnar aðgerðir til að mæta efnahagslegum þrengingum sem gert hafa vart við sig á síðustu mánuðum.
Hann mun fara yfir helstu atriði í tillögum ríkisstjórnarinnar.
Fri, 10 Apr 2026 - 1h 34min - 136 - #118. - Eldfim umræða um Hamas-liða á Íslandi
Allt ætlaði um koll að keyra í kjölfar þess að Morgunblaðið upplýsti að menn með tengsl við Hamas-samtökin hefðu staðið að voðaverki í bílakjallara í Reykjavík.
Lögreglan hefur orðið tvísaga um málið en nú virðist óhætt að upplýsa um þjóðerni mannanna sem nú sæta rannsókn vegna afar hættulegrar líkamsárásar sem átti sér stað á Höfðatorgi í Reykjavík.
Þetta og fleira er til umræðu á vettvangi Spursmála.
Alþingismennirnir Bergþór Ólason frá Miðflokki og Grímur Grímsson frá Viðreisn ræða málið á vettvangi Spursmála. Almenningur spyr sig út í hvort öryggi fólks sé ógnað vegna uppgangs erlendra glæpagengja hér á landi. Grímur er fyrrverandi yfirlögregluþjónn og þekkir vel til málaflokksins.
Þeir ræða einnig stöðuna í efnahagslífi landsins en ný verðbólgumæling sýnir að ekki hefur tekist að ná böndum á verðhækkanir hér á landi. Mælist hún 5,4% samkvæmt Hagstofunni og fátt bendir til þess að kjarasamningar muni halda þegar þeir koma til endurskoðunar þann 1. september næstkomandi.
Í síðari hluta þáttarins mæta alþingismennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson frá Sjálfstæðisflokki og Ingvar Þóroddsson frá Viðreisn. Þeir ræða um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Einnig munu þeir takast á um nýbirta fjármálaáætlun ríkisins sem gildir fyrir árin 2027 til 2031. Báðir sitja þeir í fjárlaganefnd sem nú tekur áætlunin fyrir.
Fri, 27 Mar 2026 - 1h 35min - 135 - #117. - Flest teikn í hagkerfinu vísa í verri átt
Mjög gefur á bátinn í íslensku hagkerfi um þessar mundir og fátt sem gefur sérstaka ástæðu til bjartsýni. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir sýnir ekki á nein spil um hvernig bregðast skuli við.Þau Bjarnheiður Hallsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, og Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, fara yfir nýja ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands þar sem stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósentur. Minnihluti nefndarinnar vildi raunar hækka þá um 0,5 próse Einnig fara þeir Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Krogh Ólafsson og fara yfir fréttir vikunnar. Þeir stýra hlaðvarpinu Korter í kosningar og af þeirri ástæðu augljóslega mun umræðan að miklu leyti hverfast um kosningarnar sem framundan eru 16. maí næstkomandi.Í lok þáttar er rætt við Brynjólf Gauta Guðrúnar Jónsson, doktorsnema í stærðfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur smíðað tvær afar áhugaverðar heimasíður sem notast við mállíkön til þess að greina íslenskt samfélag úr tveimur áttum.Þar er annars vegar um að ræða síðuna Þingfréttir (thingfrettir.is) þar sem starfsemi Alþingis er greind með áhugaverðum hætti og nýstárlegum og hins vegar ESB vaktin (esbvaktin.is) þar sem umræðan um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst er greind og vegin og metin. Er hér um að ræða einskonar staðreyndavakt sem mun nýtast almenningi til að greina kjarna frá hysmi og sannleika frá lygi.
Fri, 20 Mar 2026 - 1h 36min - 134 - #116. - Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB
Mikið uppbrot á fjölmiðlamarkaði er í farvatninu eftir að tilkynnt var um kaup Símans á Vísi og útvarpsstöðum Sýnar. Þá berast fylkingar á banaspjótum út af spurningunni um aðildarviðræður við ESB.
Þessi mál verða tekin fyrir í fréttum vikunnar í Spursmálum þar sem Heiða Kristín Helgadóttir, nýráðinn ráðgjafi utanríkisráðherra, og Kristín Gunnarsdóttir, forstöðumaður upplýsingamiðlunar Landsbankans og stjórnandi hlaðvarpsins Komið gott, leiða saman hesta sína.
Þá mætir Gauti Geirsson á svæðið en hann er framkvæmdastjóri laxeldisfyrirtækisins Háafells við Ísafjarðardjúp. Fyrirtæki hans beinir tæknibúnaði sem helst hefur orðið vart við í Star Wars í baráttunni við hina skæðu laxalús sem bæði herjar á eldislax og villtan.
Í síðasta hluta þáttarins er rætt við Gísla Ragnar Guðmundsson sem leiðir samnorræna stofnun um gervigreind. Hann er flestum ef ekki öllum hnútum kunnugur þegar kemur að gervigreindinni en ekki er vanþörf á að skýra fyrirbærið fyrir fólki sem oft virðist ráðvillt þegar kemur að umræðu um kosti og galla þessarar mögnuðu tæknibyltingar.
Thu, 12 Mar 2026 - 2h 08min - 133 - #115. - Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið?
Að 173 dögum liðnum liggur fyrir hvort Ísland hefji aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið? Hvaða sjónarmið munu liggja til grundvallar þegar þjóðin ákveður hvort leggja skuli út í þá vegferð?
Það er stóra spurningin sem varpað var fram í opinberri umræðu síðastliðinn föstudag þegar forystukonur ríkisstjórnarinnar boðuðu þjóðaratkvæðagreiðslu um málið en hún mun fara fram 29. ágúst, verði þingsályktunartillaga þar um samþykkt á Alþingi.
Góðir gestir
Fyrst mæta þeir á vettvang, Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, og Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins.
Þá leiða saman hesta sína Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar þingsins, og Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður hans.
Mon, 09 Mar 2026 - 1h 23min - 132 - #114. - Er kreppa skollin á? Viðtal við Bjarna Benediktsson
Í byrjun mánaðarins tók Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra, við starfi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann mætir í fyrsta ítarlega viðtalið í kjölfar þess á vettvangi Spursmála.
Í upphafi verður hann spurður út í kynni sín af Davíð Oddssyni, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóra Morgunblaðsins, sem féll frá um liðna helgi. Þeir áttu lengi samfylgd, fyrst í þinginu en síðan á þjóðarsviðinu þar sem Bjarni leiddi flokkinn sem Davíð hafði stýrt á árunum 1991-2005.
Viðkvæm staða efnahagsmála
Þá verður talinu beint að stöðu efnahagsmála en þar hefur syrt verulega í álinn á síðustu mánuðum og vaxtasleggjan sem Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, hafði lofað að beita þjóðinni til handa hefur alls ekki virkað.
Hvernig standa atvinnuvegirnir og eru sóknarfæri fyrir íslensk fyrirtæki í núverandi ástandi?
Hvað finnst Bjarna Benediktssyni um atkvæðagreiðsluna um mögulega aðild að ESB?
Mun stríðið í Íran leiða áföll yfir Ísland?
Í fyrri hluta þáttarins verður hins vegar rætt við þá Þórð Gunnarsson, hagfræðing og Stefán Gunnar Sveinsson, blaðamann á Morgunblaðinu en þeir hafa báðir sérþekkingu á málefnum sem tengjast hinum miklu stríðsátökum sem nú geisa í Íran.
Í viðtali við þá verður reynt að varpa upp mynd af atburðum síðastliðinnar viku og hvaða áhrif þeir kunni að hafa vítt og breitt um heimsbyggðina.
Fri, 06 Mar 2026 - 1h 42min - 131 - 113. - Verður VG reist frá dauðum? Lifir Icelandair ETS af?
Rósa Björk Brynjólfsdóttir vill verða formaður VG en flokkurinn er í mikilli kreppu eftir að hafa dottið út af þingi og misst ríkisstyrki. Kosið verður um nýjan formann í flokknum um miðjan næsta mánuð.
Icelandair býr við mjög íþyngjandi umhverfisskattheimtu og ljóst að ef hennar nyti ekki við hefði fyrirtækið skilað umtalsverðum hagnaði á síðasta ári.
Rósa Björk mætir í Spursmál og ræðir fréttir vikunnar ásamt Eyþóri Arnalds, fyrrum borgarfulltrúa og oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni. Þau ræða stríðið í Úkraínu, ESB-umsókn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur og margt fleira af vettvangi stjórnmálanna.
Flugfélag í kreppu
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair ræðir stöðu flugfélagsins, ekki síst í ljósi hinnar miklu skattheimtu sem að mati margra skekkir samkeppnisstöðu íslensks flugrekstrar mjög gagnvart evrópskum og bandarískum flugfélögum.
Rangir hvatar í stærstu bótakerfum landsins
Í lok þáttar mætir geðlæknirinn og viðskiptafræðingurinn Oddur Ingimarsson og ræðir tvær afar athyglisverðar greinar sem hann hefur ritað í Morgunblaðið á síðustu tveimur vikum um örorkubætur og lífeyrisgreiðslur og hvernig samspil þeirra geta latt fólk til þess að koma aftur út á vinnumarkaðinn eftir að hafa misst starfsgetu sína um stundarsakir.
Fri, 27 Feb 2026 - 1h 57min - 130 - #112. - Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn?
Jafnt og þétt leggst losunarkerfið ETS með þyngri hætti á íslenskt viðskiptalíf. Innan fárra ára mun kostnaður Icelandair við kerfið margfaldast. Hvaða áhrif mun það hafa?
Þetta er meðal þess sem rætt er í Spursmálum dagsins en Frosti Sigurjónsson, höfundur bókarinnar Hitamál og Ragnar S. Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs ræða ETS-kerfið og hugmyndafræðina á bak við það í þættinum.
Rýnt í fréttir vikunnar
Í fréttum vikunnar er rætt við þau Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, stærsta stéttarfélags Landsins, og Frosta Logason, stjórnanda Brotkastsins.
Þar ber margt á góma, málefni Andrésar Mountbatten, fyrrum prins og bróður Karls III Bretakonungs, ný ályktun ASÍ um erfiða stöðu í efnahagsmálum þjóðarinnar og framganga dr. Arnars Eggerts Thoroddsen í kennslustund í Háskóla Íslands þar sem hann spurði unga nemendur hvort þeir hygðust ekki ábyggilega „taka af lífi“ nafngreinda menn úr íslenskum fjölmiðlum.
Fri, 20 Feb 2026 - 1h 39min - 129 - #111. - Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin?
Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningamála situr fyrir svörum í Spursmálum í dag. Seðlabankanum hefur ekki tekist að hemja verðbólguna sem er 5,2%. Er hann reiðubúinn að hækka vexti? Margt bendir til þess enda hefur bankinn það verkefni samkvæmt lögum að halda verðbólgu í landinu sem næst verðbólgumarkmiði sem er 2,5%.
Hversu hátt geta vextirnir farið?
Seðlabankinn ákvað í síðustu viku að halda meginvöxtum bankans óbreyttum í 7,25% og í stað þess að halda áfram því vaxtalækkunarferli sem hafið var á árinu 2024 virðist margt benda til þess að bakslag sé komið í þá þróun. Getur verið að bankinn þurfi enn á ný að hækka vexti upp úr öllu valdi?
Í þættinum verður Þórarinn einnig spurður út í þær fyrirætlanir sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur uppi um að gera grundvallarbreytingar á almannatryggingakerfinu. Þær breytingar kallar Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar, ríkisfjármálalega tímasprengju.
Þau Lára G. Sigurðardóttir, doktor í lýðheilsuvísindum, og Elías Blöndal Guðjónsson eigandi Santé eru einnig gestir þáttarins og takast á um sölu og neyslu áfengis í samræmi við núgildandi áfengislög.
Þá mæta í settið þeir Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, og Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, og ræða það sem bar hæst í fréttum vikunnar.
Fri, 13 Feb 2026 - 2h 11min - 127 - #110. - Ari yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn
Í morgun var tilkynnt að Ari Edwald myndi leiða Miðflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum. Hann segir með því skilið við Sjálfstæðisflokkinn sem hann hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir síðustu áratugi.
Hann er gestur í aukaþætti af Spursmálum kl. 14.00 í dag. Þátturinn var sendur út í beinni útsendingu frá ritstjórn Morgunblaðsins í Hádegismóum.
Mon, 09 Feb 2026 - 48min - 126 - #109. - Er ríkisstjórnin að missa stjórn á hagkerfinu?
Allt virðist stefna í mjög hraða kólnun hagkerfisins á sama tíma og verðbólga eykst hratt. Hætt er við að ríkisstjórnin missi stjórn á kerfinu við slíkar aðstæður og háir vextir verði viðvarandi.
Þessi staða verður til umræðu í Spursmálum í dag. Þar mæta til leiks Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi og hagfræðingur og Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi sem lengi hefur tjáð sig um stöðu efnahagsmála hér á landi.
Til þess að fara yfir fréttir vikunnar ætla þær að leiða saman hesta sína borgarfulltrúarnir Magnea Gná Jóhannsdóttir og Líf Magneudóttir. Þær sækjast báðar eftir endurkjöri í komandi kosningum og í flokkum þeirra beggja stefnir einnig í formannsskipti á allra næstu vikum.
Hver er líklegri til þess að verða næsti formaður Framsóknar, Lilja D. Alfreðsdóttir eða Ingibjörg Isaksen? Og hver mun taka við keflinu af Svandísi Svavarsdóttur sem æðstráðandi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs?
Fri, 06 Feb 2026 - 1h 36min - 125 - Bókaspjall - Æviminningar Karls Sigurbjörnssonar
Fyrir jól kom út sjálfsævisaga Karls Sigurbjörnssonar biskups, „Skrifað í sand, minningabrot“. Hann lést árið 2024 en skildi eftir sig handrit að endurminningunum. Bókin var til umfjöllunar í bókaklúbbi Spursmála í janúar. Viðmælandi er séra Hreinn Hákonarson, fyrrverandi fangaprestur, sóknarprestur og ritstjóri Kirkjublaðsins, sem er sjálfstæður fjölmiðill um málefni kirkju ogtrúar.
Thu, 05 Feb 2026 - 58min - 124 - #108. - Eru kjarasamningar í uppnámi?
Verðbólgan er á mikilli siglingu og gæti að öllu óbreyttu sett stærstu kjarasamningana á vinnumarkaði í uppnám í haust. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, bregst við nýjustu tíðindum af hagkerfinu í Spursmálum. Það gerir hún ásamt Þórði Pálssyni, forstöðumanni fjárfestinga hjá Sjóvá.
Þá ræða þau stöðuna í pólitíkinni, Hilmar Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Mosfellings og oddvitaframbjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, og Ólöf Skaftadóttir, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins.
Í þættinum ræðir Stefán Einar einnig við Bjarna Helgason, fréttastjóra íþrótta á Morgunblaðinu en hann fylgir landsliðinu okkar eftir í Danmörku þar sem það mætir heimamönnum í æsispennandi leik í kvöld.
Fri, 30 Jan 2026 - 1h 34min - 123 - #107. - Baráttan um völdin hafin
Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varformaður hans, takast á um formannsstólinn í flokknum.
Flokksþing fram undan
Þann 15. febrúar næstkomandi verður nýr formaður kjörinn á flokksþingi Framsóknarflokksins en Sigurður Ingi Jóhannsson, sem verið hefur formaður frá því í október 2016 gaf það út fyrr í vetur að hann hygðist söðla um og láta af embætti.
Hann tók við formennskunni á róstursömum tíma í íslenskum stjórnmálum þegar hann sigraði sitjandi formann flokksins, Sigmund Davíð Gunnlaugsson með ríflega 52% atkvæða. Í kjölfarið klauf Sigmundur Davíð flokkinn og stofnaði Miðflokkinn.
En hvert hyggjast þær Ingibjörg og Lilja taka Framsóknarflokkinn, fái þær umboð til þess að leiða hann næstu árin?
Svara við þeirri spurningu og mörgum öðrum verður leitað í lifandi og hispurslausri umræðu á vettvangi Spursmála.
Mon, 26 Jan 2026 - 54min - 122 - #106. - Harðir slagir framundan
Vegna spennandi leiks Íslands og Króatíu í handknattleik karla, sem fram fer í Malmö klukkan 14:30 í dag hefur útsendingartími Spursmála verið fluttur til klukkan 12:00 í dag.Gestir þáttarins eru margir og áhugaverðir. Fyrst mæta til leiks þau Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður og uppistandarinn og vínspekúlantinn Dóri DNA. Fara þau yfir fréttir vikunnar.
Þá ræðir Stefán Einar við oddvitaframbjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, þá Ásgeir Elvar Garðarsson, Unnar Stefán Sigurðsson og Vilhjálm Árnason. Prófkjör flokksins fer fram laugardaginn 31. janúar næstkomandi.Í lok þáttar er rætt við Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðing í utanríkis- og varnarmálum. Þar verður meðal annars fjallað um mögulegar aðildarviðræður Íslands að ESB, bægslagang Donalds Trump gagnvart Grænlandi og sitthvað fleira.
Fri, 23 Jan 2026 - 2h 05min - 121 - #103. - Ársuppgjör Spursmála: Hver á veiðiheimildirnar?
Hvað hefur staðið upp úr á árinu 2025? Í íþróttum, tísku og stjórnmálum. Svörin við því fást í Spursmálum dagsins þar sem öflugir blaðamenn Morgunblaðsins stinga saman nefjum fyrir framan myndavélarnar í þessum síðasta þætti ársins.
Þar mæta til leiks Marta María Winkel, sem fer fyrir hinu geysivinsæla Smartlandi, Bjarni Helgason, aðstoðarfréttastjóri íþrótta á Morgunblaðinu og Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður og stjórnmálaspekúlant.
Hispurslaus umræða
Þau skyggnast ekki aðeins yfir stærstu og áhugaverðustu fréttir ársins heldur leyfa sér einnig að velta vöngum yfir því hvað árið 2026 muni bera í skauti sér.
Létt, hispurslaus og upplýsandi umræða þar á ferð.
Í síðari hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við Guðmund Kristjánsson, forstjóra Brims. Hver á fiskinn í sjónum? Eða heimildirnar til þess að draga hann á land? Guðmundur hefur sterkar skoðanir á þessu og liggur ekki á þeim. Hann ræðir einnig umbúðalaust um nýjan makrílsamning en sitt sýnist hverjum um vinnubrögð stjórnvalda í aðdraganda undirritunar hans.
Fri, 19 Dec 2025 - 1h 49min - 120 - #101. - Titringur á stjórnarheimilinu og jólaverslun í algeymi
Hvert stórmálið skekur annað á vettvangi stjórnmálanna og nú er menntamálaráðherra sakaður um helbera valdníðslu. Hversu styrkum fótum situr ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Hefur hún stjórn á Flokki fólksins eða fara ráðherrar hans sínu fram, hvað sem tautar og raular?
Þetta er meðal þess sem stjórnmálamennirnir fyrrverandi, Össur Skarphéðinsson og Sigurður Kári Kristjánsson hyggjast kryfja inn að beini á vettvangi Spursmála í dag.
Jólaverslun og kræsingar
Þeir mæta til Stefáns Einars á óhefðbundinn upptökustað. Þátturinn er að þessu sinni sendur út frá Austurstræti, nánar tiltekið gömlu höfuðstöðvum Landsbankans. Tilefnið er tveggja ára afmæli þáttarins en honum var hleypt af stokkunum 1. desember árið 2023.
Síðan þá hefur 101 reglubundinn þáttur verið sendur út frá myndveri í Hádegismóum, auk aukaþátta sem efnt hefur verið til vegna stórtíðinda á heima- og alþjóðavettvangi.
Auk Sigurðar Kára og Össurar fær Stefán Einar til sín góða gesti úr raunhagkerfinu. Það eru þau Bergþóra Guðnadóttir, hönnuður og eigandi Farmers Market, og Jakob E. Jakobsson, eigandi Jómfrúarinnar.
Þau gefa sér tíma frá hinni miklu jólavertíð sem senn nær hámarki. Þau munu fara yfir stöðuna á miðborginni og jólaverslunina á þessu ári sem að einhverju marki gæti litast af versnandi efnahagshorfum.
Fri, 05 Dec 2025 - 1h 39min - 119 - #105. - Vændiskaup, verðbólguskot og einkunnagjöf í skólum
Mikil fréttavika er að baki sem náði hápunkti í morgun þegar Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar sagði af sér vegna gamalla ódrýgðra synda.
Til að ræða fréttir vikunnar á vettvangi Spursmála þennan föstudaginn mæta þau Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
Í síðari hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við þrjá oddvitaframbjóðendur Viðreisnar í Reykjavík um áherslur þeirra, komist þau til valda að afloknum kosningum 16. maí næstkomandi.
Þar fara þau Róbert Ragnarsson, Aðalsteinn Leifsson og Björg Magnúsdóttir.
Fri, 16 Jan 2026 - 1h 27min - 118 - Bókaspjall - Íslandsklukkan með Loga Einars
Íslandsklukka Halldórs Laxness er eitt helsta stórvirki nóbelskáldsins. Bókin var tekin fyrir í desembermánuði í bókaklúbbnum og í kjölfarið settist Logi Einarsson menntamálaráðherra niður ásamt Stefáni Einari til að ræða efni og inntak bókarinnar í víðu samhengi. Ekki síst hvaða skírskotun hún hefur inn í nútímann.
Wed, 14 Jan 2026 - 1h 07min - 116 - #104. - Evrópubrölt gegn öryggishagsmunum Íslands
Ef Ísland hyggst undirrita varnarsamning við Evrópusambandið verður að líta til þess að það hefur ekki yfir herstjórn að ráða. Þetta bendir Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra á. Hann er gestur fyrsta þáttar Spursmála á nýju ári. Þar ræðir hann stórtíðindi af alþjóðasviðinu þar sem Bandaríkjamenn hafa lýst vesturhvel jarðar sem yfirráðasvæði sitt og auk þess gripið til aðgerða til þess að tryggja það.
Aðild kann að veikja stöðu okkar
Í þættinum ræðir Björn fyrirætlanir ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um að sækja um aðild að Evrópusambandinu en hann telur að aukin áhersla á það að leita undir verndarvæng ESB kunni að veikja stöðu okkar gagnvart Bandaríkjunum sem tryggt hafa varnir landsins í yfir 80 ár.
Einnig er rætt um stöðuna í stjórnmálunum hér heima fyrir þar sem ráðherrakapall setur svip sinn á pólitíska sviðið. Björn Ingi Hrafnsson, starfsmaður Miðflokksins og Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu rýna í stöðuna.
Sterkari eða veikari með Ragnar Þór um borð?
Er ríkisstjórnin sterkari eftir að Guðmundi Inga Kristinssyni var skipt út fyrir Ragnar Þór Ingólfsson og hvaða áhrif mun það hafa á störf þingsins að Sigurjón Þórðarson skuli nú vera orðinn formaður fjárlaganefndar Alþingis?Aukinn þungi færist einnig í umræðuna um sveitarstjórnarmál en Íslendingar ganga sem kunnugt er að kjörborðinu þann 16. maí næstkomandi. Hver verður oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík og getur Björn Ingi eitthvað upplýst um hver leiða muni Miðflokkinn á sama vettvangi?
Fri, 09 Jan 2026 - 1h 36min - 114 - #102. - Ragnandi þingforseti og borgarlína í uppnámi
Blótsflaumur forseta Alþingis hefur dregið dilk á eftir sér og nú rísa stjórnmálaflokkar upp gegn fyrirhuguðu skipulagi borgarlínunnar. Þá keppa Íslendingar ekki í Eurovision meðan gyðingar taka þar þátt.Í fyrsta hluta þáttarins mæta þau Eggert Skúlason, fjölmiðlamaður með meiru og Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis og stjórnarmaður í RÚV og ræða fréttir vikunnar.
Þar ræða þau meðal annars um hvort Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta þingsins, sé sætt eftir að hún kallaði stjórnarandstöðuþingmenn „djöfulsins, helvítis andskotans pakk.“Borgarlína í brennidepli
Í öðrum hlutanum ræða þau Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á sama vettvangi um borgarmálin.
Í morgun greindi Morgunblaðið frá því að óeining sé innan borgarstjórnar um nýja deiliskipulagstillögu vegna borgarlínu eins og henni er ætlað að liggja um Suðurlandsbraut.
Þá berst talið einnig að Brákarborg, ónýtum leikskóla en nýreistum sem kostað hefur borgarbúa 3.200 milljónir króna nú þegar og enn má búast við að kostnaðurinn færist í aukana.
Gaf skít í Spotify
Í þriðja og síðasta hluta þáttarins er svo rætt við Fannar Inga Friðþjófsson, forsprakka Hipsumhaps en hann tók afdrifaríka ákvörðun í lok nóvember þegar hann tók efni sitt út af efnisveitunni Spotify.
Sneisafullur þáttur af öflugri og upplýsandi umræðu við áhugavert fólk.
Fri, 12 Dec 2025 - 1h 53min - 112 - Bókaspjall - Helförin með Þór Whitehead
Það var ekki svo að nokkrir menn í Þýskalandi hafi vaknað upp morgun einn og ákveðið að útrýma öllum gyðingum. Morðhyggjan sem heltók Evrópu var langtímaþróun sem náði hámarki í helförinni.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í stórfróðlegu spjalli Þórs Whitehead, fyrrverandi prófessors í sagnfræði, á vettvangi Bókaklúbbs Spursmála.
Í lok nóvember komu klúbbmeðlimir saman á Vinnustofu Kjarvals þar sem bókin Helförin í nýju ljósi, eftir breska fræðimanninn Laurence Rees var til umfjöllunar. Var þátttakan með miklum ágætum og um 80 manns sem mættu til leiks.
Wed, 03 Dec 2025 - 1h 26min - 111 - #100.- Þjarmað að Guðrúnu og gallað fæðingarorlofskerfi?
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, er gestur Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum þennan föstudaginn. Flokkur hennar mælist með sögulega lítið fylgi og kurr er meðal flokksmanna. Hvað telur hún til ráða?Þá mæta sjónvarpsmennirnir knáu Fannar Sveinsson og Benedikt Valsson í þáttinn til að fara yfir helstu fréttir vikunnar. En nýverið hleyptu þeir af stokkunum þættinum Gott kvöld á Sýn. Þátturinn er sýndur á föstudagskvöldum og lofar virkilega góðu.Guðfinna Kristín Björnsdóttir, læknanemi í Danmörku, skrifaði fyrr í vikunni grein sem vakið hefur mikla athygli fyrir gagnrýni hennar á fæðingarorlofskerfið á Íslandi. Hún mætir á vettvang Spursmála og ræðir íslenska fæðingarorlofskerfið sem hún segir mjög brogað.
Fri, 28 Nov 2025 - 1h 40min - 110 - #99. - Þungir dómar felldir og Kerecis sendir milljarð til Úkraínu
Mikils titrings gætir meðal menningarelítunnar vegna leikhúsdóma Símons Birgissonar sem hann hefur birt að undanförnu á Vísi. Þar lætur hann leikskáld, leikstjóra og leikara gjarnan hafa það óþvegið og hafa sumar leiksýningar endað með svo lítið sem eina stjörnu.
Hann ræðir menningargagnrýni og gildi hennar ásamt Kolbrúnu Bergþórsdóttur í Spursmálum dagsins. Kolbrún hefur lengi verið virkur þátttakandi í bókmenntagagnrýni hér á landi, ekki síst á vettvangi Kiljunnar í Ríkissjónvarpinu.
Í síðari hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við Guðmund Fertram Sigurjónsson, stofnanda Kerecis en fyrirtæki hans hefur á undanförnum árum veitt stuðningi inn í stríðshrjáða Úkraínu og nemur hann í dag yfir milljarði króna.
Sat, 22 Nov 2025 - 1h 28min - 109 - #98. - Tollastríð ESB og Íslands
Evrópusambandið situr fast við sinn keip og leggur verndartolla á íslenskan iðnað. Hvað segja fulltrúar stjórnar og stjórnarandstöðu um málið?
Það kemur fram í aukaþætti af Spursmálum sem efnt er til í ljósi nýjustu vendinga þar sem Evrópusambandið heldur fast við þá ákvörðun að leggja toll á kísilmálm sem framleiddur er á Íslandi og í Noregi.
Snorri Másson úr Miðflokki og Dagbjört Hákonardóttir frá Samfylkingu mæta á vettvang í Hádegismóum og takast á um stöðuna, ekki síst hvernig íslensk stjórnvöld hafa haldið á hagsmunagæslu fyrir hönd ríkisins.
Wed, 19 Nov 2025 - 46min - 108 - # 96. - Skipt um hjarta án snertingar
Tæp tvö ár eru liðin frá því að Björn Zoëga tók við stjórn konunglega sjúkrahússins í Sádi-Arabíu. Þar er verið að brjóta blað í skurðaðgerðum með róbótum en einnig á sviði krabbameinslækninga.
Björn er gestur Spursmála þennan föstudaginn og ræðir meðal annars reynsluna sem hann hefur öðlast í fjarlægu landi en einnig hvernig staðan í íslensku heilbrigðiskerfi blasi við honum, nú þegar hann er hættur sem stjórnarformaður Landspítalans.
Í þætti dagsins er einnig rætt við borgarfulltrúana Líf Magneudóttur hjá VG og Magneu Gná Jóhannsdóttur, sem situr í borgarstjórn fyrir Framsóknarflokkinn.
Þær hafa afar ólíka sýn á stöðu borgarsjóðs, skipulagsmál og margt fleira. Von er á líflegri umræðu milli þeirra nú þegar styttist óðum í sveitarstjórnarkosningar.
Fri, 07 Nov 2025 - 1h 34min - 107 - #94. - Hamfarir á Grundartanga og meint bakslag
Í þættinum verður birt brot úr viðtali við bandarískan gjörgæsluhjúkrunarfræðing, Joanne Blank að nafni, sem starfað hefur á Landspítalanum undanfarin ár. Hún sótti um ríkisborgararétt hér á landi í fyrra en Alþingi ákvað að hafna beiðninni. Nánar verður auk þess fjallað um mál hennar í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Þá mæta á vettvang þingmennirnir Eiríkur Björn Björgvinsson, varaformaður atvinnuveganefndar þingsins og þingmaður Viðreisnar og Ólafur Adolfsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Þeir fara yfir stöðuna sem upp er komin á Grundartanga eftir að mikilvægur búnaður skemmdist hjá Norðuráli en bilunin mun hafa gríðarleg áhrif á afkastagetu álversins á komandi mánuðum og þar með á útflutningstekjur Íslands.
Í samtali við þá er einnig rætt um þær skattahækkanir sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur ráðist í og hvaða áhrif þær aðgerðir munu hafa á atvinnulífið í landinu. Þá verður einnig rætt um fyrirhugaðar breytringar á búvörulögum en þungt hljóð er í bændum víða um land vegna þeirra.
Í fréttum vikunnar er rætt við þær Hlédísi Mareni Guðmundsdóttur, félagsfræðing og fyrrverandi blaðamanna og Elín Karlsdóttir, varaformann Sambands ungra framsóknarmanna og læknanema.
Þær munu ræða hið meinta bakslag sem mörgum hefur orðið tíðrætt um í tengslum við jafnréttisbaráttuna hér á landi. Þá verður drepið á umræðu um íslenskukennslu í skólakerfinu hér á landi og stöðu Miðflokksins og Framsóknar.
Fri, 24 Oct 2025 - 1h 27min - 106 - #97. - Er RÚV í sama vanda og BBC?
Er íslenski ríkisfjölmiðillinn í sams konar vanda og BBC í Bretlandi sem nú sætir harðri gagnrýni fyrir vinnubrögð og hlutdrægni í fréttaflutningi sínum?
Þeir Ingvar Smári Birgisson, lögmaður og stjórnarmaður í RÚV, og Páll Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóri og alþingismaður mæta í settið til að fara yfir málið. Þeir þekkja vel til málavaxta í Bretlandi þar sem fréttamenn urðu uppvísir að því að afvegaleiða áhorfendur þegar kom að umfjöllun um Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.
Þá ræða helstu fréttir vikunnar þær Bjarnheiður Hallsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka fyrirtækja í ferðaþjónustu, og Vigdís Hauksdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi borgarfulltrúi.
Í þeirri umræðu ber einna hæst ástand efnahagsmála í landinu en sú ákvörðun ESB að falla ekki frá hækkun verndartolla á framleiðsluvörur Elkem á Íslandi eru nýjasta dæmið af mörgum skakkaföllum sem íslenskt efnahagslíf hefur orðið fyrir síðustu vikur og mánuði.
Í lok þáttarins verður rætt við Benedikt Gíslason, forstjóra Arion banka, en hann og samstarfsmenn hans hafa staðið í ströngu að undanförnu við að bregðast við nýjasta dómi Hæstaréttar í máli Neytendasamtakanna gegn bönkunum.
Fri, 14 Nov 2025 - 1h 44min - 105 - Bókaspjall: Við verðum að tala um Xi
Hvert setur kínverski drekinn stefnuna? Er hætt við að Xi Jinping muni fyrirskipa næstöflugasta her í heimi að ráðast inn í Taívan? Þetta bar á góma á vettvangi Bókaklúbbs Spursmála.
Í síðustu viku stóð klúbburinn fyrir samtali um bók Michaels Dillon, We need to talk about Xi, en hún var til umfjöllunar í októbermánuði.
Þátttaka á fundinum var afar góð og voru um 80 gestir á Vinnustofu Kjarvals meðan á umræðunni stóð.
Þar mættu til leiks þeir Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi utanríkisráðherra og Magnús Björnsson, einn helsti sérfræðingur Íslands í málefnum Kína.
Fór umræðan vítt og breitt og beindist meðal annars að því hvaða stöðu kínverska stórveldið hyggst taka sér á heimssviðinu á komandi áratugum.
Telur Magnús það afar ólíklegt að Kínverjar láti til skarar skríða. Ráði þar kalt hagsmunamat en meðal annars þær ófarir sem Rússar hafa upplifað í innrásarstríði sínu í Úkraínu.
Wed, 12 Nov 2025 - 1h 08min - 104 - # 95. - Ríkislögreglustjóri valtur í sessi og ríkisborgaralottóið
Ríkislögreglustjóri kveinkar sér undan hallarekstri en sólundar fjármunum almennings í rándýrar allsherjarráðgjöf. Á sama tíma er Landspítalanum gert erfitt um vik að ráða fólk til starfa.
Þeir mæta til leiks Árni Helgason, lögmaður, stjórnmálamaður og rithöfundur og Andrés Magnússon, blaðamaður á Morgunblaðinu og ræða helstu fréttir vikunnar. Þar bera mál ríkislögreglustjóra hátt en einnig ítarleg skýrsla um helstu embættismannakerfi veraldarsögunnar þar sem rök eru færð fyrir því að kjörnir fulltrúar eigi að hafa sem minnst með stjórn landsins að gera.
Þá setjast þeir einnig niður á Spursmálavettvangi samstarfsmennirnir og mótherjarnir í þinginu, Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar og Jón Pétur Zimsen, varaformaður hennar.
Þeir komu báðir að ákvörðun í sumar sem leið sem leiddi til þess að bandaríska gjörgæsluhjúkrunarfræðingnum, Joanne Blank, var neitað um ríkisborgararétt. Hún talar íslensku og hefur haft tengsl við landið allt frá árinu 1990 þegar hún kom hingað til lands sem skiptinemi. Hún starfar á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi þar sem veikustu skjólstæðingar spítalans liggja.
Í lok þáttar mætir svo Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans og ræðir einmitt mönnunarmál á þessum stærsta og einhverjum allra mikilvægasta vinnustað landsins. Hann ræðir meðal annars um mönnunarmál á spítalanum en einnig nýja Landspítalann sem tekur á sig æ skýrari mynd við Hringbraut.
Fri, 31 Oct 2025 - 2h 11min - 102 - #93. - Dæmdur saklaus og uppgjör við bensínstöðvarlóðir
Steinþór Gunnarsson var dæmdur í fangelsi, bæði í héraði og af Hæstarétti. Framkvæmd var húsleit hjá honum og hann handtekinn fyrir framan son sinn. Að lokum kom í ljós að hann hafði engin lög brotið.
Steinþór rekur sögu sína í dæmalausu viðtali á vettvangi Spursmála í dag þar sem ekkert er dregið undan.Listamenn og fréttir vikunnar
Þá mæta á vettvang listamennirnir Magnús Jóhann Ragnarsson, píanóleikari og tónskáld og Kjartan Logi Sigurjónsson, grínisti. Þeir fara yfir fréttir vikunnar en ræða einnig áhugaverð verkefni sem þeir hafa unnið að á síðustu misserum.
Þá takast þau á um hina umdeildu lóðasamninga sem Reykjavíkurborg gerði á sínum tíma við olíufélögin stóru, þau Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni og Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og núverandi alþingismaður.
Á sínum stað er svo auðvitað yfirferð Ásthildar Hannesdóttur á stjórnmálunum eins og þau birtast okkur á samfélagsmiðlum. Þar er engin tæpitunga töluð.
Hvað gerði borgin við lóðirnar?
Fri, 17 Oct 2025 - 2h 34min - 101 - Bókaspjall á Kjarval: Hagfræði í hnotskurn
Bók septembermánaðar í Bókaklúbbi Spursmála var Hagfræði í hnotskurn, eftir Henry Hazlitt, klassískt rit um málefni sem varðar alla. Af því tilefni settist Stefán Einar niður með Ásdísi Kristjánsdóttur hagfræðingi og bæjarstjóra í Kópavogi til að ræða um bókina og hagfræðina í víðum skilningi.
Samtalið var hljóðritað þann 24. september í Fantasíusalnum á Vinnustofu Kjarvals.
Wed, 15 Oct 2025 - 1h 04min - 100 - #92. - Söguleg vika, átök í Kópavogi og gerræði utanríkisráðherra
Í fréttum vikunnar er rætt við fjölmiðlakonuna Sunnu Sæmundsdóttur og Björn Inga Hrafnsson, aðstoðarmann formanns Miðflokksins. Þau eru öllum hnútum kunnug í íslensku þjóðlífi en ræða einnig nýjan friðarverðlaunahafa Nóbels, friðarsamninga fyrir botni Miðjarðarhafs, brottfall verka Halldórs Kiljan Laxness úr skólakerfinu og versnandi efnahagshorfur.
Hver verður kjörinn nýr varaformaður Miðflokksins á landsþingi hans á sunnudag?
Þá mætir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi á vettvang Spursmála og svarar gagnrýni BSRB á hið svokallaða Kópavogsmódel sem innleitt var árið 2023 og miðar að því að bæta þjónustu við leikskólabörn í bænum. Nýverið gaf Varða, rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins út rannsókn kynjafræðingsins dr. Sunnu Símonardóttur sem varpar ljósi á óánægju 20 foreldra í Kópavogi með þær breytingar sem innleiddar hafa verið á kerfinu.Að lokum sest hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson í settið og ræðir hreint ótrúlega stöðu sem iðnfyrirtækið Vélfag á Akureyri er komið í vegna þvingunaraðgerða sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra hefur gripið til gegn fyrirtækinu.
Fri, 10 Oct 2025 - 1h 43min - 99 - #91. - Frekari vendingar eftir fall Play
Myndin er tekin að skýrast betur eftir fall flugfélagsins Play. Í dag er vika liðin frá gjaldþroti þess. En áhrifa fallsins gætir áfram og inngrip stjórnvalda kann að hafa ófyrirséðar afleiðingar.Viðmælendurnir þekkja vel til flugrekstrar en þó úr sitthvorri áttinni. Það eru þeir Steinn Logi Björnsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Icelandair og forstjóri og eigandi Bluebird, auk Sveins Andra Sveinssonar, sem er annar tveggja skiptastjóra þrotabús WOW air.
Tue, 07 Oct 2025 - 38min - 97 - #90. - Umræða í ójafnvægi og enn eitt flugfélagið geispar golunni
Gjaldþrot Play setti mikinn svip á samfélagsumræðuna í vikunni og ljóst að fall flugfélagsins er að hafa mikil áhrif á efnahagslífið í heild. Í nýjasta þætti Spursmála mæta til leiks tveir öflugir menn til að rýna í stöðuna en það eru þeir Jens Bjarnason forstöðumaður hjá Icelandair og Þórður Gunnarsson hagfræðingur.Þá verður umfjöllun um listamannalaun haldið áfram í þættinum en sú umræða hefur verið ansi lífleg í vikunni eftir að fjallað var um listamannalaunin í Spursmálum í síðustu viku. Metsöluhöfundurinn Stefán Máni Sigþórsson mætir í settið til að ræða kerfi listamannalauna sem hann hefur verið mjög gagnrýninn á, en einnig ræðir hann nærri þriggja áratugalangan feril sinn á sviðinu.
Fri, 03 Oct 2025 - 1h 24min - 96 - #89. - Baráttan um valdastóla í sveitarstjórnum og Evrópumálin krufin
Margir gera sig líklega í baráttunni um valdastólana í sveitarstjórnum landsins. Nafn Katrínar Júlíusdóttur hefur verið nefnt í því sambandi. Hún mætir í Spursmál ásamt Björgu Magnúsdóttur, fyrrverandi aðstoðarmanni Einars Þorsteinssonar, þáverandi borgarstjóra. Björg er nú gengin til liðs við Viðreisn og er fastlega orðuð við oddvitaembættið í þeim flokki á vettvangi borgarinnar.Þá verða Evrópumálin rædd en þau hafa fengið byr undir báða vængi í kjölfar landsþings Viðreisnar sem haldið var um liðna helgi. Þar flutti Guy Verhofstadt, fyrrverandi forsætisráðherra Hollands mergjaða ræðu og lýsti draumsýn um sameinað ríki Evrópu, heimsveldi eins og hann nefndi það. Þeim hugmyndum var tekið með dynjandi lófaklappi fundargesta. Til að ræða þessi mál mæta þeir Sverrir Páll Einarsson, forseti Uppreisnar, og Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálafræðingur.
Fri, 26 Sep 2025 - 1h 36min - 95 - #88. - 1.607 milljarðar, olíuævintýri og misgóðir lífeyrissjóðir
Gæti ríkissjóður hagnast um þúsundir milljarða á því ef olíuvinnsla hefst á Drekasvæðinu?
Það fullyrða þeir Heiðar Guðjónsson og Haukur Óskarsson en þeir hafa í nærri tvo áratugi unnið að því að koma olíuleit og -vinnslu af stað á svæðinu. Þeir eru gestir Spursmála að þessu sinni og segja verkefnið að öllu óhættulaust fyrir ríkissjóð.
En hver er hættan á umhverfisslysi og hversu langan tíma tæki að koma verkefni af þessu tagi á koppinn. Svara við þessu öllu verður leitað í þættinum.
Áður en þeir mæta til leiks etja kappi þær Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins. Arna Lára er formaður efnahags- og viðskiptanefndar þingsins og hún situr sömuleiðis í fjárlaganefnd.
Sigríður situr í velferðarnefnd þar sem kostnaðarþyngstu þættir fjárlaga liggja. Og það er einmitt af þeirri ástæðu sem þær eru kvaddar á vettvang. Til þess að ræða fjárlögin sem nú gera ráð fyrir því að útgjöld ríkissjóðs muni nema ríflega 1.600 milljörðum króna á næsta ári.
Í lok þáttar verður farið yfir nýja fjártæknilausn fyrirtækisins Aurbjargar þar sem almenningi gefst kostur á að skilja betur en áður hvernig lífeyriskerfið virkar og hvað það þýðir að greiða iðgjöld sín í þennan sjóð fremur en annan. Gríðarlega miklu getur munað á ávinnslunni eftir sjóðum og breyturnar eru margar.
Það eru þau Ásdís Arna Gottskálksdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækisins og Baldvin Egill Baldvinsson fjártæknisérfræðingur, sem fara yfir málið.
Fri, 19 Sep 2025 - 1h 39min - 94 - Manifestó eins áhrifamesta manns 20. aldarinnar
Stefán Einar og Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur ræða um bók ágústmánaðar í Bókaklúbbi Spursmála: Líf á jörðinni okkar eftir David Attenborough. Í bókinni eru lofstlagsbreytingar og þau áhrif sem mannfólkið hefur á lífríki jarðar í stóru hlutverki.
Einar er einn af okkar reyndustu veðurfræðingum og hefur mikla og góða yfirsýn yfir málaflokkinn.
Wed, 17 Sep 2025 - 40min - 93 - # 87. - Yfirvofandi stríðsátök, aftaka í Utah, Skatturinn sér um sína og Vinnslustöð í vanda
Heimur á heljarþröm myndu einhverjir segja þegar stjórnmálamenn eru teknir af lífi í beinni útsendingu og Rússar herða tökin gagnvart Evrópu allri. Móta þarf nýja varnarmála stefnu fyrir Ísland.
Þetta er meðal þess sem rætt er á vettvangi Spursmála í dag þar sem tveir fyrrverandi utanríkisráðherrar, þær Lilja D. Alfreðsdóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir mæta og ræða nýlegan yfirgang Rússa gagnvart Pólverjum, morðið á Charlie Kirk og tillögur þingmannahóps að mótun nýrrar varnarmálastefnu fyrir Ísland.
Þá mæta þeir Skafti Harðarson og Róbert Bragason frá Samtökum skattgreiðenda og kynna nýtt mælaborð sem samtökin hafa komið á laggirnar. Það varpar ljósi á útgjöld ríkissjóðs tvo áratugi aftur í tímann. Þar kennir sannarlega ýmissa grasa og segja þeir félagar að mikil og augljós tækifæri séu til þess að bæta ríkisreksturinn.
Að því viðtali loknu sest Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, Binni í Vinnslustöðinni niður með Stefáni Einari og fer yfir þá stöðu sem nú er komin upp í Vestmannaeyjum í kjölfar þess að fyrirtæki hans sagði upp 50 starfsmönnum í fiskvinnslu. Segir Binni að það sé afleiðing af hækkun veiðigjalda á útgerðarfyrirtæki landsins en Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra og Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra hafa sagt ástæðurnar allt aðrar.
Fri, 12 Sep 2025 - 1h 49min - 92 - # 86. - Snorri í gapastokknum og skólakerfi og laxeldi í lamasessi?
Sífellt færri ungmenni geta lesið sér til gagns og veiðiréttarhafar eru farnir að stífla laxveiðiár af ótta við slysasleppingar laxeldisins. Hvar er í gangi í íslensku samfélagi? Þetta og fleira verður til umræðu í nýjasta þætti Spursmála.
Þegar horft er yfir umræðuna um íslenska menntakerfið mætti halda að allt hafi farið úrskeiðis á síðustu árum. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins er ekki sammála því en hann viðurkennir þó að margt hefði mátt betur fara.
Hann mætir á vettvang Spursmála og ræðir nýja menntastefnu og aðalnámskrá segir einn af prófessorum Háskóla Íslands segir að sé uppfull af lygum.
Þá mætir Daníel Jakobsson, forstjóri Arctic Fish á Ísafirði í þáttinn og svarar fyrir slysasleppingar fyrirtækisins í Dýrafirði sem urðu til þess að veiðiréttarhafar í Haukadalsá brugðu á það ráð að stífla ána í því skyni að koma í veg fyrir óæskilega fiskgengd þar upp.
Telur Jakob að fiskeldið, sem hefur vaxið gríðarlega á síðustu árum, bæði á Vestfjörðum og fyrir austan, eigi sér framtíð á Íslandi?
Áður en Magnús Þór og í kjölfarið Daníel mæta á vettvang ætla þau Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu og Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og nú borgarfulltrúi Framsóknarflokksins að ræða fréttir vikunnar. Þar er víst að margt forvitnilega muni bera á góma.
Fri, 05 Sep 2025 - 2h 31min - 91 - #85. - Vendingar í njósnamáli og þinginu þjófstartað
Spursmál hefja nú göngu sína á mbl.is að nýju eftir stutt sumarleyfi. Í upphafi fyrsta þáttar verður upplýst um nýjar vendingar í njósnamáli PPP ehf. sem teygir sig djúpt inn í íslenskt stjórnkerfi.
Í fréttum vikunnar er rætt við þau Hjörvar Hafliðason eða dr. Football eins og hann er gjarnan nefndur og Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur, fréttakonu á Ríkissjónvarpinu.
Í síðari hluta þáttarins er rætt við þingflokksformenn þriggja stærstu flokkanna sem sæti eiga á Alþingi. Þau Guðmund Ara Sigurjónsson, frá Samfylkingu, Sigmar Guðmundsson, frá Viðreisn og Hildi Sverrisdóttur frá Sjálfstæðisflokki.
Spursmál verða á dagskrá alla föstudaga kl. 14 í vetur og þar verður farið vítt og breitt yfir sviðið og Ísland í brennidepli.
Fri, 29 Aug 2025 - 1h 47min - 90 - Fullveldið dýrmætt á ögurstundu: Bókaspjall
Það reyndist afar mikilvægt fyrir íslenska ríkið að nýta fullveldisrétt sinn þegar kröfuhafar föllnu bankanna sóttu á yfirvöld. Þetta segir Sigurður Már Jónsson í viðtali á vettvangi Bókaklúbbs Spursmála.
Í liðnum mánuði var bókin Afnám haftanna - samningar aldarinnar? eftir Sigurð Má tekin fyrir á vettvangi klúbbsins. Tilefnið var það að nýlega voru 10 ár liðin frá því að risavaxnir samningar náðust við slitabú föllnu viðskiptabankanna sem leiddu til afnáms fjármagnshafta hér á landi. Samningarnir urðu einnig til þess að lækka skuldir ríkissjóðs um hundruð milljarða króna.
Fri, 01 Aug 2025 - 41min - 89 - Persónunjósnir og aftökur Stóra bróður nútímans - Samtal við Kára Stefánsson um 1984.
Húsfyllir var á Vinnustofu Kjarvals á dögunum þegar ríflega 150 klúbbmeðlimir mættu til leiks á þriðja viðburð Bókaklúbbs Spursmála.
Þar settist Kári Stefánsson, stofnandi Íslenskrar erfðagreiningar, niður með Stefáni Einari Stefánssyni, ásamt klúbbmeðlimum, og ræddi efni bókarinnar 1984 eftir George Orwell á hispurslausan og líflegan hátt eins og hans er von og vísa.
Viðraði Kári til að mynda hugmyndir um hvar hægt sé að sjá birtingarmyndir af Stóra bróður í heiminum í dag. Er hann sannfærður um að víða glitti í það fyrirbæri með beinum eða óbeinum hætti.
Bókin var bók mánaðarins í Bókaklúbbi Spursmála í júnímánuði.
Sjálfur las Kári bókina fyrst fyrir nærri hálfri öld síðan en efni hennar hafði áhrif á Kára, eins og fleiri, enda um eina áhrifamestu bók 20. aldar bókmennta að ræða. Hefur hún frá fyrstu útgáfu haft mótandi áhrif á hugmyndir manna um samspil ríkisvalds og einstaklingsfrelsis sem vel er hægt að heimfæra á samtímann sem við lifum nú.
Að mati Kára er byggir saga Orwells á ýkjum. Raunar þykir honum sagan að mörgu leyti fráleit því hún gengur eins langt og hugsast getur í því að lýsa samfélagi sem er í heljargreipum alræðis og svipt sjálfstæðri hugsun og frelsinu um leið. Sem í margra eyrum kann reyndar að hljóma kunnulega.
Það bar þó margt á góma í samtali þeirra Kára og Stefáns Einars. Má þar helst nefna upplifun hans og reynslu af alræðissamfélögum dagsins í dag, kórónuveirufaraldurinn, stjórnarfarið í Kína, ríkisvaldið hér á landi og lýsingar hans af samskiptum sem hann átti við þáverandi heilbrigðisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur. Sagði hann að þar hafi stálin stinn mæst en einhverjir myndu kannski frekar segja að þar hafi skrattinn hitt ömmu sína - dæmi nú hver fyrir sig.
Á annað þúsund manns hafa skráð sig í klúbbinn á þeim fjórum mánuðum sem hann hefur verið starfandi og fjölgar þar enn. Nú í júlímánuði sitja klúbbfélagar við og lesa bók Sigurðar Más Jónssonar, Afnám haftanna: samningar aldarinnar? sem er bók þessa mánaðar á vettvangi klúbbsins. Af því tilefni fæst hún á sérstöku tilboði í verslunum Pennans Eymundsson.
Hægt er að skrá sig í klúbbinn með því að smella hér.
Samstarfsaðilar Bókaklúbbs Spursmála eru Samsung, Kerecis, Brim og Penninn.
Fri, 18 Jul 2025 - 1h 28min - 88 - #84. - Kjarnorkuástand á þinginu
Forseti Alþingis hefur beitt kjarnorkuákvæði þingskaparlaga gegn minnihlutanum á þingi. Starfsemi þess er í uppnámi í kjölfarið. Aukaþáttur af Spursmálum fer í að greina hina alvarlegu stöðu.
Átök milli meirihluta og minnihluta á þingi tóku nýja og óvænta stefnu í kjölfar þess að Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og einn af varaforsetum Alþingis, frestaði þingfundi á tólfta tímanum síðastliðið miðvikudagskvöld.
Í kjölfarið flutti Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, fordæmalaust ávarp þar sem hún lýsti því yfir að meirihluti þingheims hefði tekist á hendur það hlutverk að verja íslenska lýðveldið gegn minnihlutanum.
Hildur Sverrisdóttir mætir í Spursmál og ræðir aðdragandann að þessari atburðarás og eftirleik hennar.
Reynsluboltar kallaðir á vettvang
Að loknu samtali við Hildi mæta þeir Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi ráðherra og Einar K. Guðfinnsson fyrrverandi ráðherra og forseti Alþingis.
Þeir hafa marga fjöruna sopið í hinni íslensku pólitík og þekkja söguna langt aftur.
Fróðlegt verður að heyra þeirra álit á þeim atburðum sem nú hafa orðið og virðast ætla að móta alla stjórnmálaumræðu í landinu á komandi misserum.
Kristrúnu Frostadóttur var boðið í þáttinn og gerð tilraun til þess að hafa samband við hana sjálfa og aðstoðarmann hennar. Það bar engan árangur.
Fri, 11 Jul 2025 - 1h 26min - 87 - #83. - Allt í hers höndum við Austurvöll
Það er í meira lagi rafmagnað andrúmsloftið á Alþingi þessa sólarhringana. Ríkisstjórnin er ekki að koma sínum mikilvægustu málum í gegn og óvíst er hvenær þing getur farið í sumarfrí.
Í nýjasta þætti Spursmála, og jafnframt þeim síðasta fyrir sumarfrí, er rætt við þrjá þingmenn stjórnarandstöðunnar og ljósi varpað á það hvernig staðan gæti þróast næstu sólarhringana. En einnig hvernig þingveturinn, sem teygðist inn á mitt sumar, hefur þróast.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, mætir á vettvang ásamt Bergþóri Ólasyni þingflokksformanni Miðflokksins og Ingibjörgu Isaksen, formanni þingflokks Framsóknarflokksins.
Spursmál verða aftur á dagskrá á mbl.is föstudaginn 15. ágúst klukkan 14.
Fri, 27 Jun 2025 - 1h 02min - 86 - #82. - Heimsstyrjöld ólíkleg, borgin skrefuð og allir á Swingers club
Ólíklegt er að átökin milli Írans og Ísraels breiðist út í Mið-Austurlöndum. Fyrrnefnda ríkið virðist einangrað og án vina. Hins vegar er Bandaríkjaforseta vandi á höndum heima fyrir í ljósi þeirra yfirlýsinga sem hann hefur áður gefið um að hann vilji forðast að Bandaríkin dragist inn í átök í fjarlægum álfum.
Þetta er mat Alberts Jónssonar, fyrrverandi sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. Hann er gestur Spursmála þennan föstudaginn og ræðir hin skæðu átök sem nú standa yfir milli Ísraels og Íran.
Í þættinum er einnig rætt við Sigurð Boga Sævarsson, blaðamann á Morgunblaðinu, sem fyrir þremur árum tók að ganga götur Reykjavíkur og skrá hjá sér umferð þá. Fyrr í júní lauk hann svo við að ganga þær allar. Í viðtalinu upplýsir Sigurður Bogi hversu margar göturnar eru og er ekki ólíklegt að einhverjum komi á óvart hversu margar götur prýða land Reykjavíkur.
Fréttir vikunnar eru svo ekki langt undan og á vettvang mæta þau Sigmar Vilhjálmsson, athafnamaður í Minigarðinum og víðar, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Hún leggur senn í víking til Bandaríkjanna þar sem hún hyggst setjast á skólabekk. Þrátt fyrir það er pólitíkin ekki langt undan og umræðurnar fóru um víðan völl. Meðal annars að skemmtilegum stað í NY sem ber nafnið Swingers club.
Fri, 20 Jun 2025 - 1h 37min - 85 - #81. - Mútur, hótanir og stórtónleikar í Vaglaskógi
Erlendir vogunarsjóðir beittu öllum ráðum til þess að hafa ríkisstjórn Íslands undir þegar reynt var að lyfta gjaldeyrishöftum. Þeir höfðu ekki erindi sem erfiði. En eftirleikurinn var svakalegur.Atburðirnir sem náðu hápunkti í júní 2015 og mörkuðu efnahagslega stöðu Íslands allar götur síðan eru mörgum í fersku minni, en þó hefur fennt yfir margt á þeim áratug sem liðinn er síðan.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, rifjar upp þessa atburði í Spursmálum í dag og upplýsir um atburði og atvik sem ekki hefur verið sagt frá áður.
Þá mætir Jökull Júlíusson, leiðtogi hljómsveitarinnar Kaleo. Hann ræðir ferilinn og stórtónleika sem eru á teikniborðinu í Vaglaskógi síðar í sumar.
Systurnar Kamilla og Júlía Margrét Einarsdætur fara yfir fréttir vikunnar á sinn einstaka hátt.
Fri, 13 Jun 2025 - 1h 38min - 84 - #80. - Gegn árangri í Breiðholti og óvíst með frekari vaxtalækkanir
Borgaryfirvöld gera nú allt sem í þeirra valdi stendur til þess að eyðileggja starfsemi Aþenu í Breiðholti. Þetta segir Brynjar Karl Sigurðsson í samtali í Spursmálum. Í því felist kvenfyrirlitning. Í þætti dagsins er einnig rætt við Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóra. Nú munu margar vikur líða þar til gluggi opnast að nýju á að lækka stýrivexti. Þá mæta þeir einnig til leiks, Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins.
Fri, 06 Jun 2025 - 2h 09min - 83 - #79. - Aðvörun Fertrams og tekist á um búvörulög
Þau Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands, og Sölvi Tryggvason, hlaðvarpsstjórnandi og fjölmiðlamaður, ræða fréttir vikunnar. Ber þar margt á góma, meðal annars salan á Íslandsbanka þar sem þúsundir Íslendinga keyptu fyrir litlar 20 milljónir hver eins og ekkert væri.
Þá mæta þau til leiks Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, og Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. Þau takast á um breytingar á búvörulögum og hvort rétt hafi verið að taka úr sambandi tiltekin ákvæði samkeppnislaga þegar afurðastöðvar í kjötiðnaði eru annars vegar.
Stór orð hafa verið höfð uppi um það mál á undanförnum mánuðum, ekki síst eftir að héraðsdómur felldi dóm um að breytingar á löggjöfinni hefðu gengið í berhögg við stjórnarskrá lýðveldisins. Hæstiréttur sneri þeim dómi fyrir nokkru og hafa ýmsir þurft að éta ofan í sig stóryrði sem byggðu á dómi hins lægra setta dómsvalds.
Í lok þáttarins er rætt við Guðmund Fertram Sigurjónsson, forstjóra og stofnanda Kerecis. Hann segir dimmt yfir atvinnumálum á Vestfjörðum í kjölfar þess að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir tilkynnti að hún hyggðist tvöfalda veiðigjöld á útgerðina í landinu.
En rætt er við Guðmund um fleiri spennandi mál, meðal annars hvort ske kynni að annað fyrirtæki á borð við Kerecis leynist meðal þeirra hundruða nýsköpunarfyrirtækja sem starfandi eru í landinu.
Fri, 30 May 2025 - 2h 09min - 82 - Kúbudeilan 1962 - bók mánaðarins
Kúbudeilan 1962 eftir Max Hastings hefur verið bók mánaðarins í maímánuði.
Hún kom fyrst út árið 2022 og setur magnaða atburði sem áttu sér stað fyrir rúmum sextíu árum í samhengi. Þá er merkilegt að sjá hversu margt sem er að gerast í nútímanum í samhengi við þá frásögn sem Hastings dregur fram.
Það var Magnús Þór Hafsteinsson sem þýddi verkið og hann settist niður með Stefáni Einari á dögunum til að ræða um bókina og atburðarásina fyrir rúmum sextíu árum þar sem litlu munaði að stórveldin tvö; Bandaríkin og Sovétríkin hefðu lent í afdrifaríkum átökum.
Bókaklúbbur Spursmála er í boði Samsung, Brim, Kerecis og Pennans.
Wed, 28 May 2025 - 20min - 81 - #78. - Ákall um afsagnir í æðstu stöðum
Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, tekur enga fanga í ítarlegu viðtali í Spursmálum. Segir hann ríkislögreglustjóra og ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins hafa brugðist skyldum sínum þegar kemur að vernd landamæra ríkisins.
Í þættinum fer Úlfar yfir það hvernig starfslok hans báru að og hvaða ástæður hann telur að búi að baki þeirri ákvörðun dómsmálaráðherra. Hann segir undanbragðalaust að honum hafi verið sýndur reisupassinn.
Í þættinum mæta stöllurnar Kristín Gunnarsdóttir og Ólöf Skaftadóttir en þær halda úti hinu geysivinsæla hlaðvarpi, Komið gott. Á miðvikudagskvöld stefndu þær 450 gestum í gamla Austurbæjarbíó og héldu þar uppi stuði langt fram eftir.
Þær ræða fréttir vikunnar sem eru margar og mismunandi. Allt frá nýrri mælingu á fylgi stjórnmálaflokkanna til hnífstunguárásar í Úlfarsárdal.
Fri, 23 May 2025 - 1h 11min - 80 - #77. - Ár í kosningar og vextirnir valda áhyggjum
Í dag er slétt ár þar til Íslendingar ganga að kjörborðinu og kjósa til 62 sveitarstjórna. Víða stefnir í harðan slag og ljóst að margir þurfa að verja vígið og enn aðrir sem stefna á að ná völdum.
Þetta er meðal þess sem farið er yfir á vettvangi Spursmála þennan föstudaginn þegar blaðamennirnir Andrés Magnússon og Hermann Nökkvi Gunnarsson mæta til leiks og fara yfir kosningabaráttuna framundan. Það má segja að Spursmál ræsi kapphlaupið um meirihlutann í sveitarfélögunum landið um kring.
Halla Gunnarsdóttir, sem kjörin var formaður VR, stærsta stéttarfélags landsins í vor, mætir á vettvang og fer meðal annars yfir þær áhyggjur sem nú hrannast upp vegna hækkandi verðlags. Hún verður spurð að því hvort hætt sé við að risasamningarnir sem undirritaðir voru í fyrra, með miklum kostnaði fyrir ríkissjóð og fyrirtækin í landinu, sé í hættu en í september næstkomandi fer sérstök forsendunefnd yfir það hvort ákvæði samningsins haldi.
Frosti Logason mætir ásamt Höllu en hann birti í vikunni kynngimagnað viðtal við Jón Óttar Ólafsson, sem verið hefur milli tannanna á fólki síðustu vikur vegna njósnafyrirtækisins PPP. Frosti hefur sterkar skoðanir á störfum sérstaks saksóknara og það verður fróðlegt að heyra hvað hann hefur að segja um næstu skref sem taka verður til þess að leiða þetta stóra mál til lykta.
Sérfræðingar Íslandsbanka, sem loks verður einkavæddur að fullu í næstu viku, telja að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni halda stýrivöxtum óbreyttum að sinni en nefndin kynnir niðurstöðu maraþonfunda sinna á miðvikudagsmorgun í næstu viku. Meginvextir bankans eru 7,75% og þykir flestum nóg um - ekki síst verkalýðshreyfingunni.
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka fer yfir þetta mat og hvernig horfurnar í hagkerfinu eru almennt. Það gerir hann ásamt Marinó Erni Tryggvasyni, fyrrverandi forstjóra Kviku banka. Hann vonast til þess að Seðlabankinn stígi varfærið skref í átt til vaxtalækkunar. Þar horfir hann til fjármálastöðugleika sem taka verði tillit til, 12-24 mánuði fram í tímann.
Fri, 16 May 2025 - 1h 57min - 79 - #76. - Hvítur reykur, sekt séra Friðriks og meint málþóf
Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður hefur ásamt hópi fleiri manna sem kynntust sr. Friðrik skoðað málið og þá hefur Morgunblaðið aflað gagna frá KFUM sem ekki hafa komið fyrir augu almennings áður.
Rætt er við Jón í lok þáttarins um þetta mál sem skók íslenskt samfélagið árið 2023 og varð meðal annars til þess að KFUM bað fórnarlömb sr. Friðriks afsökunar. Stytta af prestinum var sömuleiðis felld af stalli í Lækjargötu og bæjarstjórn Akraneskaupstaðar íhugaði að svipta hinn löngu látna klerk heiðursborgaratitli.
Í fréttum vikunnar ber páfakjöri í Róm afar hátt en sömuleiðis átökin sem nú eru farin að taka á sig alvarlegri mynd en áður milli Pakistan og Indlands. Til að ræða þessi mál og fleiri mæta þau Urður Örlygsdóttir og Oddur Þórðarson til leiks. Þau eru bæði fréttamenn á Ríkissjónvarpinu.
Til þess að ræða stjórnmálaástandið leggja þær Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, og Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, orð í belg. Þar er af nægu að taka og ekki verður hjá því komist að spyrja Hildi út í það hvort nýr formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, hyggist skipta henni út sem þingflokksformanni.
Fri, 09 May 2025 - 1h 46min - 78 - #75. - Persónunjósnir, líkbrennsla og neyðarbirgðir
Hvað ætluðu útsendarar Björgólfs Thors að gera með upplýsingar um Vilhjálm Bjarnason? Tengdist það brennivíni og kvennamálum? Því svarar bílstjórinn á V 279 í Spursmálum í dag.
Með njósnara á hælunum
Vilhjálmur hefur verið í kastljósi fjölmiðla í vikunni eftir að upplýst var að njósnarar hefðu verið á hælum hans um nokkurra vikna skeið árið 2012. En hver var forsaga málsins og í hvaða illdeilum stóð Vilhjálmur sem ollu því að honum var veitt eftirför og setið var um heimili hans?
Sviðsstjóri og forsetaframbjóðandi
Í fréttum vikunnar ber þetta furðumál einnig á góma en gestir Spursmála að þessu sinni í þeim hluta þáttarins eru þeir Gylfi Þór Þorsteinsson, sviðsstjóri hjá Rauðakrossinum og Magnús Ragnarsson, formaður Tennissambandsins og nú frambjóðandi til embættis forseta Íþrótta- og ólympíusambandsins.
Nýja tækni þarf við líkbrennslu
Ber ýmislegt á góma í þeirri umræðu, meðal annars verkefni sem Rauðikrossinn fer fyrir og tengist viðbrögðum almennings ef til neyðarástands kemur. Umræðan um þetta verkefni tók talsverðan kipp þegar rafmagnslaust varð um gjörvallan Spánn og Portúgal með ófyrirséðum afleiðingum.
Í lok þáttarins verður rætt við Sigríði Bylgju Sigurjónsdóttur sem fer fyrir sjálfseignarstofnuninni Tré lífsins. Hefur hún ásamt samstarfsfólki lengi stefnt að því að byggja upp fullkomna og nútímavædda líkbrennslu hér á landi í stað þeirrar sem nú er rekin af Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma.
Búnaðurinn sem þar er notast við stenst engar kröfur varðandi mengun og vill Sigríður meina að rétt sé að fela einkaaðilum að byggja nýja aðstöðu í þessum efnum.
Fri, 02 May 2025 - 1h 29min - 77 - #74. - Helsingjasteik með brúnuðum og Logi ósáttur við orð Sigurjóns
Logi Einarsson, ráðherra fjölmiðlamála, hyggst standa við þá ákvörðun sína að draga úr styrkjum til tveggja stærstu einkareknu fjölmiðla landsins. Þetta staðfestir hann í samtali á vettvangi Spursmála.
Í viðtalinu er Logi einnig spurður út í ummæli sem Sigurjón Þórðarson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis lét falla og lúta að því að refsa eigi fjölmiðlum sem ekki stunda fréttaflutning sem er honum að skapi.
Í þættinum verður einnig rætt við Loga um brýn mál sem tengjast gervigreindarkapphlaupi stórveldanna, styrki til námsmanna og sitthvað fleira.
Í fréttum vikunnar er rætt við þau Jakob Frímann Magnússon, fyrrum þingmann Flokks fólksins og Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra.
Þar ber ýmislegt á góma, andlát páfans í Róm, skólamáltíðir og annað sem til umfjöllunar hefur verið í sneisafullri fréttaviku í upphafi sumars.
Fri, 25 Apr 2025 - 1h 27min - 76 - #73. - Slegið á puttana á skattaóðri ríkisstjórn
Sífellt kemur betur í ljós að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur stefnir á stórfelldar skattahækkanir á fólk og fyrirtæki. Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra í Kópavogi líst ekki á stöðuna. Hún er gestur Spursmála þennan föstudaginn ásamt Ernu Björgu Sverrisdóttur, aðalhagfræðingi Arion banka.
Ásdís segir að það séu ekki aðeins stórhækkuð veiðigjöld og „matseðill“ af skattahækkunum á ferðaþjónustuna sem stefni í. Þannig bendir hún á að stjórnvöld stefni að því að þvinga sveitarfélög til þess að fullnýta útsvarsprósentu þá sem leggja má á íbúana. Sveitarfélögum sem það geri ekki verði einfaldlega refsað.
Erna Björg nefnir að huga verði að því hvernig staðið er að breytingum á grunnatvinnuvegi þjóðarinnar þegar mikil óvissa ríkir á flestum sviðum, ekki síst vegna þess tollastríðs sem Donald Trump og stjórn hans í Washington hefur efnt til gagnvart flestum ríkjum heims.
Í síðari hluta þáttarins er rætt við forsvarsmenn fyrirtækisins Intuens Segulómunar sem býður upp á myndgreiningarþjónustu á heilbrigðissviði. Fyrirtækið hefur lent í kröppum dansi í tengslum við samskipti við Sjúkratryggingar Íslands og Landlækni.
Sagan sú er í meira lagi lygileg og þess virði að fræðast um það hvernig kerfið getur unnið gegn nýsköpun og uppbyggingu nýrra fyrirtækja sem efna vilja til samkeppni við fyrirtæki sem eru á fleti fyrir.
Í upphafi þáttarins er einnig kynntur til leiks Bókaklúbbur Spursmála þar sem samfélagsmálin verða krufin á síðum áhugaverðra bóka. Klúbburinn tekur til starfa í samstarfi við öfluga bakhjarla. Lækningavörufyrirtækið Kerecis, sjávarútvegsfyrirtækið Brim, Samsung og Pennann/Eymundsson.
Fri, 11 Apr 2025 - 1h 19min - 75 - #72. - Trump og Kristrún setja allt í uppnám
Þjóðir heims hafa brugðist ókvæða við þeirri ákvörðun Trumps að leggja verndartolla á þjóðir heims. Sveitarfélögin er í sama gír gagnvart aðgerðum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.
Þetta er meðal þess sem rætt er á vettvangi Spursmála þennan föstudaginn. Í fréttum vikunnar er sannarlega vikið að ákvörðun forsetans í Washington og til samtals um það mæta fyrrum ráðherrar Framsóknarflokksins, þau Willum Þór Þórsson og Lilja Dögg Alfreðsdóttir.
Þau ræða einnig gosið á Sundhnúkagígaröðinni sem varði stutta stund og gerði minni óskunda en í fyrstu virtist stefna.
Þegar yfirferð á fréttum vikunnar sleppir mæta þeir beint frá Ísafirði og Fjarðabyggð þeir Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðar og Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar.
Sveitarstjórnarmenn í fjölmörgum sveitarfélögum hringinn í kringum landið hafa brugðist ókvæða við þeim fyrirætlunum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að tvöfalda veiðigjöld á útgerðir landsins. Ljóst er að sú gríðarlega skattlagning mun hafa áhrif á miklu fleiri en fámennan hóp útgerðarmanna.
Að loknu því spjalli sest Flóki Ásgeirsson, lögmaður Blaðamannafélags Íslands niður með Stefáni Einari og ræðir þann möguleika sem nú er uppi um að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins setji á laggirnar rannsóknarnefnd til þess að fara ofan í saumana á aðkomu Ríkisútvarpsins að hinu svokallaða byrlunarmáli.Flóki kemur fyrir hönd félagsins í viðtalið þar sem formaður þess, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, treystir sér ekki á vettvang til þess að ræða fyrri yfirlýsingar sínar um málið.
Fri, 04 Apr 2025 - 1h 32min - 74 - #71. - Sykurpabbar í stuði og ráðherra sakaður um ósannindi
Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir fjármálaráðherra og atvinnuvegaráðherra halda fram ósannindum í framsetningu sinni á framlögðum tillögum um hækkun veiðigjalda.Milljarðar á milljarða ofan
Segir hún með ólíkindum að ráðherrarnir haldi því fram að útgerðin muni halda eftir óskertum hlut af hagnaði sínum eftir breytingarnar. Við blasi að það geti ekki verið þegar gjöld eru hækkuð um milljarða á milljarða ofan.
Í viðtalinu fer Heiðrún Lind einnig yfir það hvaða áhrif þessar áætlanir ríkisstjórnarinnar geta haft á fiskvinnslu vítt og breitt um landið. Segir hún að verið sé að færa kerfið í átt að því sem gert hefur verið í Noregi. Þar er fiskvinnslan ríkisstyrkt, hún víða rekin með tapi og gjaldþrot eru algeng. Þá er stór hluti aflans sem að landi berst sendur rakleitt til ríkja á borð við Pólland og Kína þar sem hann er fullunninn.
Ásamt Heiðrúnu var fjölda stjórnarþingmanna og ráðherra boðið til þátttöku í umræðunni um væntanlegar breytingar á auðlindagjöldum í sjávarútvegi. Enginn þeirra átti hins vegar tök á því að mæta til leiks.
Auk Heiðrúnar Lindar mæta í þáttinn þau Patrik Atlason tónlistarmaður og Tinna Gunnlaugsdóttir, leikari, leikstjóri og fyrrum þjóðleikhússtjóri. Þau ræða fréttir vikunnar, Eddu-verðlaunin þar sem Tinna hlaut heiðursverðlaun ásamt eiginmanni sínum, Agli Ólafssyni. Þá gaf Patrik út nýtt lag í morgun sem ber hina virðulegu yfirskrift, Sykurpabbi.
Í lok þáttarins mætir á svæðið Jón Gunnar Jónsson, fyrrum forstjóri Bankasýslu ríkisins. Í liðinni viku voru þrjú ár frá því að íslenska ríkið losaði um ríflega 50 milljarða hlut í Íslandsbanka í útboði sem átti eftir að draga dilk á eftir sér. Svo stóran raunar að Bjarni Benediktsson sagði af sér embætti fjármála- og efnahagsráðherra.
Jón Gunnar vill meina að þarna hafi farið fram farsælasta útboð Íslandssögunnar. En í þættinum er sagan að baki því rakin, einnig rætt um núverandi fyrirætlanir stjórnvalda um að ljúka sölu á eftirstæðum hlut sínum í Íslandsbanka. Þá er Jón Gunnar einnig spurður út í atburðarásina sem leiddi til þess að Landsbankinn keypti tryggingafélagið TM í heilu lagi, í trássi við vilja langstærsta eiganda bankans, ríkissjóðs Íslands.
Fri, 28 Mar 2025 - 1h 28min - 73 - #70. - Fellir mál Ásthildar Lóu ríkisstjórnina? Ögurstund hjá Framsókn
Ekkert kemst á dagskrá þennan fréttadaginn annað en afsögn barna- og menntamálaráðherra. En hver verður eftirleikur málsins? Er ríkisstjórnin í hættu? Hefur orðspor Íslands skaðast á erlendum vettvangi?
Svara við þessum spurningum verður leitað á vettvangi Spursmála þennan föstudaginn. Til þess að ræða pólitíkina í málinu mæta þau til leiks, Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins.
Lögmenn rýna í stöðuna
Að lokinni þeirri umræðu eru þeir væntanlegir á vettvang lögmennirnir Sigurður G. Guðjónsson og Árni Helgason, sem einnig er varaþingmaður.
Þeir ætla að ræða annað stórt mál sem skekið hefur íslenskt samfélag síðustu vikur og varðar einnig Ásthildi Lóu Þórsdóttur, fráfarandi ráðherra. Í ljós hefur komið að Arion banki afhenti henni og eiginmanni hennar fasteign í Garðabæ árið 2019 langt undir markaðsvirði. Hvaða áhrif hafa þær upplýsingar, meðal annars á afstöðu skattayfirvalda?
Á Framsókn sér viðreisnar von?
Í lok þáttar mun Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, mæta á vettvang en þann 13. mars skrifaði hann grein þar sem hann kallar eftir endurreisn Framsóknarflokksins. Miðstjórn hans mun funda á Akureyri um helgina og í viðtalinu mun Guðni upplýsa hvað hann telji að þurfi að gera til þess að þessi elsti stjórnmálaflokkur nái vopnum sínum að nýju.
Fri, 21 Mar 2025 - 1h 32min - 72 - #69. - Er Trump með plan? Er heimsstyrjöld í aðsigi?
Á sama tíma og Donald Trump leggur tolla á nágrannaríki Bandaríkjanna, Kína og Evrópusambandið reynir hann að toga Úkraínumenn og Rússa að samningaborðinu. Hann kallar eftir friði í Evrópu.
Er Trump í ruglinu?
Tryggvi Hjaltason nam hernaðar- og varnarmálafræði í Bandaríkjunum og þá lauk hann einnig þriggja ára liðsforingjaþjálfun hjá Bandaríkjaher. Hann hefur teiknað upp ólíkar sviðsmyndir um það hvað Trump hyggist fyrir og hvaða árangri hann hefur í hyggju að ná þegar kemur að málefnum Úkraínu, NATO en ekki síst baráttunni um hernaðarlega yfirburði á heimssviðnu. Þar gera Kínverjar sig sífellt líklegri til þess að skáka Bandaríkjunum.
Dr. Ragnar Árnason, prófessor emeritus í hagfræði við Háskóla Íslands hefur að undanförnu fjallað ítarlega um kosti og galla þess að Ísland gengi í Evrópusambandið. Hefur hann t.d. bent á að það sé tómt mál að tala um eina tiltekna húsnæðisvexti á evrusvæðinu. Þar muni miklu milli ólíkra hagkerfa.
Hefur hann tekist nokkuð hart á við Dag B. Eggertsson um þessi mál. Var þeim báðum boðið í þáttinn, bæði í þessari viku og hinni fyrri og þáði Ragnar boðið.
Í fréttum vikunnar er rætt við tvo alþingismenn sem bera sitthvorn heiðurstitilinn. Jónína Björk Óskarsdóttir er elsti núverandi þingmaðurinn en hún situr á þingi fyrir Flokk fólksins. Ingvar Þóroddsson er þingmaður Viðreisnar og er hann yngstur þingmanna sem nú sitja.
Fri, 14 Mar 2025 - 1h 33min - 71 - #68. - Mega blaðamenn brjótast inn á heimili fólks?
Hvar liggja mörk friðhelgi einkalífsins og hvar tekur réttur almennings til upplýsingagjafar við? Eva Hauksdóttir, lögmaður Páls Steingrímssonar ræðir það í Spursmálum. Og margt fleira er á dagskrá.
Rósa Guðbjartsdóttir, alþingismaður og fyrrum bæjarstjóri í Hafnarfirði ræðir fréttir vikunnar ásamt Birni Brynjúlfi Björnssyni, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Rósa hafði aðkomu að gerð kjarasamninga við kennara og í þættinum verður hún spurð út í meinta aðkomu Ásthildar Lóu Þórhallsdóttur, menntamálaráðherra að gerð samninganna og eins framgöngu Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, formanns Samtaka íslenskra sveitarfélaga.
Sú síðastnefnda einangraði sig frá allri stjórn samtakanna þegar hún sagðist reiðubúin fyrir hönd Reykjavíkur að ganga til samninga við kennara, jafnvel þótt öll önnur sveitarfélög landsins væru ekki til í að bjóða upp í þann dans.
Björn Brynjólfur kynnti fyrr í vikunni ásamt samstarfsfólki sínu skýrslu um fjölmiðlamarkaðinn og það hvernig Ríkisútvarpið gín yfir öðrum fyrirtækjum á þeim markaði.
Þá verður tali einnig vikið að nýjum hagræðingartillögum sem ríkisstjórnin er komin með á sitt borð. Þar er stefnt að því að spara 70 milljarða á næstu fimm árum. Það eru innan við 1% aðhaldsaðgerðir á hvert ár.
Í þættinum er einnig rætt við Álfhildi Leifsdóttur, sveitarstjórnarkonu í Skagafirði og framákonu í Vinstrihreyfingunni grænu framboði. Hún er afar ósátt við þær fyrirætlanir meirihlutans í sveitarfélaginu að selja tvö af tíu félagsheimilum héraðsins. Hún ræðir þau mál og stöðu VG sem virðist rústir einar eftir það afhroð sem flokkurinn galt í síðustu alþingiskosningum.
Fri, 07 Mar 2025 - 1h 25min - 70 - #67. - Stjórnarskrárbrot, kjaraklípa og Trumpað ástand
Svo virðist sem nýir kjarasamningar við kennarastéttina muni draga alvarlegan dilk á eftir sér. Risasamningar sem gerðir voru við 85% vinnumarkaðarins í fyrra gætu komist í uppnám.
Þetta má ráða af viðbrögðum aðila vinnumarkaðarins í kjölfar þess að það spurðist út að kostnaður við kennarasamningana fyrrnefndu væri metinn á allt að 24% yfir fjögurra ára tímabil. Í fyrra náðist sátt á vinnumarkaði með jafn löngum samningi sem skila átti ríflega 14% hækkun að meðaltali.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar hefur sterka skoðun á stöðunni sem komin er upp og er hún gestur Spursmála að þessu sinni. Einnig heyrist þungt hljóð í atvinnurekendum en fulltrúi þeirra, Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mun setjast við Spursmálaborðið ásamt Sólveigu Önnu og greina stöðuna sem er í meira lagi viðkvæm.
Að því loknu mun Helgi I. Jónsson, fyrrum hæstaréttardómari ræða við Stefán Einar um framkvæmd hinnar svokölluðu samfélagsþjónustu sem verið hefur hluti af refsivörslukerfinu hér á landi allt frá árinu 1995. Segir hann alvarlegar brotalamir á kerfinu.
Þá mun Albert Jónsson, fyrrum sendiherra og alþjóðamálaráðgjafi forsætisráðherra mæta til leiks og ræða stöðuna í Úkraínudeilunni og hvað Trump hyggist fyrir í því afar viðkvæma, og eldfima máli.
Fri, 28 Feb 2025 - 1h 38min - 69 - #66. - Valdatafl í Valhöll og Jakob vísar í dularfullan klúbb
Tvær fylkingar berjast um völdin í Sjálfstæðisflokknum. Önnur að baki Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og hin að baki Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Þær til leiks í Spursmálum og svara krefjandi spurningum.
Sú stærsta þeirra hlýtur að vera hvernig þær telji sig geta aukið fylgi flokksins sem er nú áhrifalaus, bæði á Alþingi Íslendinga og í borgarstjórn Reykjavíkur. Hvað munu þær gera öðruvísi en Bjarni Benediktsson, nái þær kjöri.
Stefán Einar ræðir við þær stöllur í sitthvoru lagi í afar áhugaverðum þætti Spursmála þennan föstudaginn. Þar eru þær einnig spurðar út í gagnrýni sem komið hefur upp innan flokks og utan á störf þeirra á fyrri tíð.
Í fréttum vikunnar er margt og mikið helst. Fréttahaukarnir Jakob Bjarnar Grétarsson og Jón G. Hauksson fara yfir helstu fréttir, sameiningar hugmyndir Arion banka og Íslandsbanka, stöðuna í borgarstjórn og á stjórnarheimilinu þar sem Kristrún Frostadóttir ræður ríkjum.
Fri, 21 Feb 2025 - 2h 05min - 68 - #65. - Tækifæri á Grænlandi og Jens Garðar í varaformanninn?
Liggja stór tækifæri fyrir Íslendinga á Grænlandi. Því svarar gullleitarmaðurinn Eldur Ólafsson í nýjasta þætti Spursmála en hann ritaði afar áhugaverða grein um málið sem birt var á miðopnu Morgunblaðsins nú í morgun.
Mun Jens Garðar bjóða sig fram?
Jens Garðar Helgason verður einnig spurður út í mögulegt varaformannsframboð í Sjálfstæðisflokknum sem hann hefur títt verið orðaður við að undanförnu en í lok mánaðarins skunda Sjálfstæðismenn í Laugardalshöll og kjósa þar nýja forystu fyrir flokkinn.
Ásamt Jens Garðari ræðir fréttir vikunnar Brynja Dan Gunnarsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Garðabæ. Hún er eigandi Extra-loppunnar sem síðustu sjö árin hefur gert það gott á markaði með notaðan fatnað.
Í lok þáttar ræðir Stefán Einar við lögfræðinginn Einar Geir Þorsteinsson sem sér ýmislegt athugavert við þau málalok sem nú blasa við í hinu svokallaða styrkjamáli þar sem Flokkur fólksins fékk greiddar 240 milljónir króna í trássi við lög. Hann telur lögfræðiálit sem fjármála- og efnahagsráðherra fékk í hendur ekki rétta leið til að útkljá málið.
Fri, 14 Feb 2025 - 1h 24min - 67 - #64. - Sjallar í sjálfheldu og afarkostir innan ríkisstjórnarsamstarfs
Hildur Björnsdóttir, leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn virðist eiga fáa kosti í tilraun til að mynda nýjan meirihluta. Hún er til svars á vettvangi Spursmála.
Um liðna helgi var tilraun gerð til þess að mynda nýjan meirihluta Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks, Flokks fólksins og Viðreisnar.
Þær hugmyndir runnu út í sandinn þegar ljóst varð að Flokkur fólksins hefur útilokað samstarf við Sjálfstæðisflokkinn.
Hvaða meirihlutamynstur er þá í myndinni?
Hildur fer yfir stöðuna í Spursmálum í dag.
Áður en kemur að viðtalinu við hana mæta þeir á svæðið, álitsgjafarnir og reynsluboltarnir, Björn Ingi Hrafnsson, fyrrum oddviti Framsóknar í borgarstjórn og núverandi aðstoðarmaður formanns Miðflokksins og Gísli Freyr Valdórsson, stjórnandi Þjóðmála. Þeir eru gjörkunnugir því völundarhúsi sem valdamenn í borginni reyna nú að feta í átt að nýjum meirihluta.
Mon, 10 Feb 2025 - 50min - 66 - #63. - Lífshættuleg byrlun og stormar í vatnsglasi
Í þættinum fer Páll yfir atburðarásina sem nærri dró hann til dauða en hann rekur einnig hina torsóttu leið sem hann hefur þurft að feta til þess að fá úr því skorið hverjir það voru sem brutust inn í símann og komu í kjölfarið gögnum úr innbrotinu á Þórð Snæ Júlíusson, þáverandi ritstjóra Kjarnans og Aðalstein Kjartansson, blaðamann á Stundinni.
Áður en Páll mætir til leiks fer Stefán Einar yfir fréttir vikunnar með þeim Ólöfu Skaftadóttur, stjórnanda hlaðvarpsins Komið gott, og Þorgrími Sigmundssyni, þingmanni Miðflokksins.
Þar er af mörgu að taka, meðal annars væringar innan borgarstjórnar og nú heyrist víða pískrað í hornum að verið sé að máta saman nýja meirihluta til þess að stýra borginni fram á vorið 2026 en þá verður að nýju gengið til sveitarstjórnarkosninga.
Fri, 07 Feb 2025 - 1h 35min - 65 - #62. - Umdeild umsvif, langdregin busavígsla og óttalegt væl í þingmönnum
Í þetta sinn mætir til leiks Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Margir stórir málaflokkar heyra undir ráðuneyti hennar, allt frá innlendri matvælaframleiðslu á sjó og landi til ferðaþjónustu og iðnaðar af öðru tagi.
Í viðtalinu er Hanna Katrín meðal annars spurð út í afstöðu hennar og Viðreisnar til strandveiða sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur gert að forgangsatriði í starfi sínu.
Viðtalið við Hönnu Katrínu var tekið upp í gær og hefur, áður en til birtingar kom, valdið nokkrum úlfaþyt í herbúðum ríkisstjórnarflokkanna. Einkum þó hjá Sigurjóni Þórðarsyni, þingmanni Flokks fólksins. Hann mun innan tíðar taka við formennsku í atvinnuveganefnd þingsins.
Titringur á ólíklegustu stöðum
Kristín Gunnarsdóttir, hlaðvarpsstjórnandi þáttarins Komið gott hefur að undanförnu verið orðuð við formannsframboð í VR en framboðsfrestur rennur út í hádeginu á mánudag. Hún mætir í nýjasta þátt Spursmála og ræðir stöðuna ásamt Þórði Gunnarssyni, bróður sínum og hagfræðingi.
Fri, 31 Jan 2025 - 1h 23min - 64 - # 61. - Framkvæmdastopp, Króatía og óheppilegar nasistakveðjur
Mikil tíðindavika er að baki þar sem Donald Trump tók við embætti forseta, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ákvað að víkja úr forystusveit Sjálfstæðisflokksins og handboltalandsliðið gerði allt vitlaust.
Öllu þessu sér stað í Spursmálum þar sem fréttavikan er gerð upp með þeim Bjarna Helgasyni og Hermanni Nökkva Gunnarssyni, blaðamönnum á Morgunblaðinu.
Þá mætir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar í þáttinn og ræðir þá þröngu stöðu sem fyrirtækið er nú komið í eftir að héraðsdómur felldi úr gildi heimildir fyrirtækisins til þess að halda áfram við gerð Hvammsvirkjunar í Þjórsá.
Landsvirkjun hefur óskað leyfis Hæstaréttar til þess að fá að skjóta málinu beint þangað og fram hjá Landsrétti en að öllum líkindum mun taka marga mánuði að leiða málið til lykta, hvernig sem fer.
Fri, 24 Jan 2025 - 1h 14min - 63 - #60. - Orkuöflun í uppnámi og hallarbyltingar í aðsigi
Stefnir í hallarbyltingu í Framsóknarflokknum um svipað leyti og Sjálfstæðisflokkurinn velur nýja forystu? Ljóst er að alþingiskosningarnar 30. nóvember síðastliðinn draga dilk á eftir sér á mörgum vígstöðvum, ekki aðeins meðal þeirra flokka sem hreinlega hurfu út af þingi.
Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins rýnir í spilin á stjórnmálasviðinu ásamt Elliða Vignissyni, bæjarstjóra Ölfuss. Hann hefur á síðustu vikum verið orðaður við embætti formanns Sjálfstæðisflokksins. En hvert stefnir hugur hans?
Skal virkja eða ekki?
Á sama tíma og allt leikur á reiðiskjálfi í pólitíkinni er allt í uppnámi í orkuheiminum vegna Hvammsvirkjunar. Sumir fagna dátt meðan aðrir sýta sárt í kjölfar þess að héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að Umhverfisstofnun hefði ekki heimild til þess að veita undanþágu frá vatnatilskipun Evrópusambandsins.
Til þess að ræða þá stöðu sem komin er upp í tengslum við þessa fyrirhuguðu ríflega 70 milljarða framkvæmd Landsvirkjunar mæta þeir til leiks, Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku og Snæbjörn Guðmundsson, formaður Náttúrugriða.
Fri, 17 Jan 2025 - 1h 14min - 62 - #59. - Unnið að lausn á græna helstirninu, flugrekstur og eldgosaspá
Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play mætir til leiks og ræðir þar fréttir vikunnar. Hann þekkir vel til á vettvangi Sjálfstæðisflokksins og spáir í spilin nú þegar ljóst er að nýr formaður mun taka við flokknum á árinu. Margt bendir einnig til að formannsslagur sé í uppsiglingu í Framsóknarflokknum, hvort sem Sigurður Ingi víkur sjálfviljugur af vettvangi eða ekki.
Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur með meiru, spáir einnig í spilin. Mun gjósa aftur nærri Svartsengi? Er Grindavík hólpin? Hvað með mögulega eldvirkni á Mýrum eða á Snæfellsnesi?
Í síðari hluta þáttarins mætir svo Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar í þáttinn til þess að ræða hina gríðarstóru grænu skemmu sem allt í einu reis við Álfabakka og byrgir þar íbúum sýn og sólarljóss.
Fri, 10 Jan 2025 - 1h 11min - 61 - #58. - SDG prjónar inn í árið og Stefán ræður ekki við sig
Nýtt ár hefst með krafti í stjórnmálunum og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson heldur uppteknum hætti í stjórnarandstöðu. Hvernig stóðu Halla Tómasdóttir og Kristrún Frostadóttir sig í fyrstu áramótaávörpunum?
Allt er þetta til umfjöllunar í Spursmálum dagsins.
Fyrrnefndur Sigmundur mætir til leiks og ræðir nýjan stjórnarsáttmála og fyrstu skref nýrrar ríkisstjórnar. Hvað finnst honum um nýtt þjóðarsamtal um hagsýni í ríkisrekstri?
Þá mæta einnig á svæðið þau Marta María Winkel Jónasdóttir, fréttastjóri hjá Árvakri og Jakob Birgisson, uppistandari og nýr aðstoðarmaður Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra.
Fri, 03 Jan 2025 - 1h 11min - 60 - #57. - Hvað gerir Bjarni Benediktsson á nýju ári?
Bjarni Benediktsson hefur verið formaður Sjálfstæðisflokksins frá 2009. Í fyrsta sinn í 11 ár er hann í stjórnarandstöðu. Mun hann halda áfram sem formaður á nýju ári og hvenær fer landsfundur fram?
Svara við þessum spurningum verður leitað á vettvangi Spursmála þar sem Bjarni er gestur.
Mistök eða óhjákvæmileg ákvörðun?
Í þættinum mun Bjarni einnig svara spurningum um þá ákvörðun sína að efna til kosninga þann 30. nóvember síðastliðinn. Voru það mistök af hans hálfu eða var ákvörðunin óhjákvæmileg.
Eins verður Bjarni spurður út í efni nýs stjórnarsáttmála Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins.
Í fyrri hluta þáttarins verður rætt við þau Björn Inga Hrafnsson, ritstjóra Viljans og Vigdísi Häsler, verkefnastjóra Kleifa fiskeldis á Siglufirði. Þar munu þau rýna í pólitíkina, bæði það sem gerst hefur en einnig hvað framundan er.
Fri, 27 Dec 2024 - 1h 12min - 59 - #56. - Er lyfjarisi að gleypa leikskóla? Hækka skattar?
Hvaða áhrif hefur það á leikskólakerfið í heild ef lyfjarisinn Alvotech stofnar leikskóla? Kristín Dýrfjörð, dósent í leikskólafræðum varar við en Heiðrún Lind Marteinsdóttir, lögfræðingur, fagnar þróuninni.
Á vettvangi Spursmála takast þær Kristín og Heiðrún Lind á um það hvort rétt sé að heimila einkafyrirtækjum að byggja upp leikskóla sem ætlað sé að sinna þjónustu við börn starfsmanna.
Alvotech hefur hafið undirbúning að slíkum skóla í samstarfi við fasteignafélagið Heima. Önnur fyrirtæki, á borð við Arion banka, skoða aðrar leiðir sem miðað að sama marki.
Í fyrri hluta þáttarins mæta til leiks þeir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Aðalgeir Ásvaldsson, framkvæmdastjóri SVEIT. Þeir ræða fréttir vikunnar, meðal annars þann storm sem geisað hefur milli SVEIT og Eflingar vegna nýs kjarasamnings við stéttarfélagið Virðingu.
Þá blandaði Jóhannes Þór sér í umræðuna um hatursorðræðu og fordóma gagnvart transfólki í kjölfar þess að Snorri Másson, nýkjörinn þingmaður Miðflokksins tók upp hanskann fyrir Eld Smára Kristinsson, fyrrum frambjóðanda Lýðræðisflokksins, sem haldið hefur uppi sjónarmiðum um transfólk sem eru Samtökunum 78 mjög á móti skapi.
Fri, 20 Dec 2024 - 1h 08min
Podcasts similares a Spursmál
Geschichte 10 Minuten Alexander und David
Alles Geschichte - Der History-Podcast ARD
The Bomb BBC World Service
Historie českého zločinu Český rozhlas
RADIO MUZYKA CM. TAKOS
The Diary Of A CEO with Steven Bartlett DOAC
Fængsel DR
Drogowskazy Eska ROCK
Forensic Files HLN
Forensic Files II HLN
Stuff You Should Know iHeartPodcasts
True Crime Documentary Justin Kandell Network
Bag om København Københavns Biblioteker
Zloději životů Novinky.cz
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Fakty w RMF FM RMF FM
Sceny zbrodni RMF FM
Le grand récit RTL
Verbrechen der Vergangenheit RTL+ / GEO EPOCHE
Tout un monde ‐ RTS Première RTS - Radio Télévision Suisse
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Sastre y Maldonado SER Podcast
武田鉄矢・今朝の三枚おろし 文化放送PodcastQR
