Filtrar por gênero

Spursmál

Spursmál

Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefáns­sonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14. Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.

165 - #142. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í
0:00 / 0:00
1x
  • 165 - #142. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í

    Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 gerir ráð fyrir tæplega 1.700 milljarða útgjöldum ríkissjóðs á komandi ári. Allt stefnir í hörð átök í þinginu um þessi viðamiklu og stefnumarkandi lög.

    Af því tilefni mæta þeir í Spursmál þingmennirnir Grímur Grímsson frá Viðreisn og Stefán Vagn Stefánsson frá Framsóknarflokki. Þeir líta þessi mál gjörólíkum augum og munu meðal annars takast á um skattahækkanir sem stefnir í á banka, ferðaþjónustu og ökumenn.

    Í þáttinn mætir líka sveitarstjórnarfólk af Suðurnesjum. Þar eru á ferðinni Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri í Suðurnesjabæ og Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Þau munu ræða fréttir vikunnar, niðurstöður Pisa-könnunar og margt fleira.

    Fri, 11 Sep 2026 - 1h 26min
  • 164 - #142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu

    Grípa þarf til enn frekari aðhaldsaðgerða hjá Reykjavíkurborg að sögn Hildar Björnsdóttur borgarstjóra sem er gestur Spursmála að þessu sinni. Hallareksturinn nam 4,6 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi.

    Í liðinni viku var greint frá umtalsverðum skipulagsbreytingum hjá borginni sem spara eiga um 900 milljónir króna á ársgrundvelli. Fer Hildur yfir þessar aðgerðir í þættinum og hvernig hún hyggist á sama tíma standa vörð um grunnrekstur borgarinnar.

    Í fréttum vikunnar er rætt við þá Magnús Jóhann Ragnarsson píanóleikara og Örn Arnarson, fjölmiðlarýni og hagfræðing sem starfar á Viðskiptablaðinu. Þeir ræða meðal annars miklar væringar á fjölmiðlamarkaði sem birtast í því að kvöldfréttir Sýnar heyra nú sögunni til.

    Í síðasta hluta þáttarins er rætt við dr. Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands. Hann rýnir í niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar um liðna helgi og hvað úrslitin þýða fyrir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.

    Fri, 04 Sep 2026 - 1h 42min
  • 163 - #141. - Uppgjörið

    Meirihluti kjósenda hafnaði því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Að baki er löng og ströng barátta þar sem andstæðar fylkingar bárust á banaspjótum. En hver er staðan að átökum loknum?

    Þessu hyggjast blaðamennirnir Andrea Sigurðardóttir og Andrés Magnússon svara í aukaþætti Spursmála sem fer í loftið klukkan 14:00. Þau hafa leitt fréttaumfjöllun Morgunblaðsins og mbl.is síðustu mánuði þar sem ljósi hefur verið varpað á kosti og galla mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu.

    Í síðari hluta þáttarins mætir Óli Björn Kárason fyrrverandi ritstjóri og alþingismaður í þáttinn og ræðir nýjustu tíðindi af fjölmiðlamarkaði en í gær var tilkynnt um það að kvöldfréttatími Stöðvar 2 og síðast Sýnar hefði lagt upp laupana eftir 40 ára úthald.

    Hvað þýðir þetta fyrir frjálsa fjölmiðlun í landinu og af hverju eiga fjölmiðlar jafn erfitt uppdráttar og raun ber vitni?

    Tue, 01 Sep 2026 - 1h 01min
  • 162 - #140. - Titringur á lokametrum baráttunnar

    Nú er innan við sólarhringur í að kjörstaðir opni um allt land og það styttist óðum í að úrslit fáist í einu stærsta pólitíska þrætumáli síðari ára á Íslandi. En hver verður niðurstaðan?

    Þeirri spurningu munu þau Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar reyna að svara í Spursmálum dagsins.

    Í fréttum vikunnar verður rætt við þá Loga Bergmann Eiðsson og Jón Júlíus Karlsson en þeir halda úti hinu geysivinsæla hlaðvarpi Seinni níu. Þar verður óhjákvæmilega rætt um fráfall Haraldar Noregskonungs en einnig önnur tíðindi af innlendum og erlendum vettvangi.

    Áður en rætt verður við þessi tvö tvíeyki mun Ingibjörg Davíðsdóttir, fyrrverandi sendiherra Íslands í Noregi mæta í Spursmál og ræða fráfall konungs og ríkisarfann sem nú hefur sest í hásætið í Ósló, Hákon VIII.

    Í lok þáttar verður rætt við Sigríði Maríu Egilsdóttur, lögmann í New York og fyrrverandi varaþingmann Viðreisnar. Hún hefur skipt um skoðun í Evrópusambandsmálum. Hún hyggst segja nei á morgun og fyrir því eru mjög forvitnilegar ástæður sem hún verður spurð út í.

    Fri, 28 Aug 2026 - 1h 42min
  • 161 - #139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið

    Hilmar Veigar Pétursson stýrir Fenris Creations, áður CCP. Hann var sannfærður um að Ísland ætti að ganga í ESB. Nú hefur hann skipt um skoðun. Hann lýsir ástæðum þess í aukaþætti af Spursmálum.

    Hann flutti ræðu í liðinni viku á vettvangi samtakanna Áfram Ísland þar sem sjónum var beint að nýsköpunarfyrirtækjum á Íslandi og möguleikum slíkra fyrirtækja innan eða utan ESB.

    Ræðan hlaut mikla athygli enda hafði Hilmar Veigar talað skarpt fyrir því á árinu 2014 að halda ætti áfram aðildarviðræðum við ESB og taka upp evru í stað krónunnar.

    Um svipað leyti flutti Hilmar Veigar til Bretlands þar sem hið svokallaða BREXIT var nýlega um garð gengið. Hann segir að reynslan þaðan kenni að ef Ísland gangi einu sinni til liðs við ESB verði aldrei þaðan snúið að nýju.

    Hann mun einnig fara yfir það í viðtalinu hvernig hann telji að það að „kíkja í pakkann“ muni taka athygli frá brýnum úrlausnarefnum í íslensku samfélagi og koma í veg fyrir að þjóðin grípi ótrúleg tækifæri, ekki síst á sviði hugverkaiðnaðarins.

    Mon, 24 Aug 2026 - 1h 02min
Mostrar mais episódios