Filtrar por gênero

Skuggavaldið

Skuggavaldið

skuggavaldid

Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu. Framleitt af Tal.

53 - #51 - Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar í Þýskalandi - fyrri þáttur
0:00 / 0:00
1x
  • 53 - #51 - Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar í Þýskalandi - fyrri þáttur

    Var Vestur-Þýskaland eftirstríðsáranna í raun fasistaríki í dulargervi? Eiríkur og Hulda rekja vegferð Ulrike Meinhof inn í Rauðu herdeildina, RAF, og skoða þá heimsmynd sem varð til þess að hópur ungra róttæklinga taldi vopnaða baráttu ekki aðeins réttlætanlega heldur nauðsynlega. Fjallað er um óuppgert uppgjör við nasismann, morðið á Benno Ohnesorg, Andreas Baader og Gudrun Ensslin og örlagastundina þegar Meinhof yfirgaf borgaralegt líf sitt og fór í felur. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com.

    Mon, 28 Sep 2026
  • 52 - #50 - Epstein og samsæriskenningarnar - seinni þáttur

    Stytti Jeffrey Epstein sér aldur, eða var honum hjálpað við það? Í seinni þætti af tveimur um Epstein-málið ræða Hulda og Eiríkur hvernig frasinn „Epstein drap sig ekki“ varð að alþjóðlegri samsæriskenningu eftir að hann fannst látinn í fangaklefa sínum árið 2019. Fjallað er um njósnakenningar tengdar CIA, Mossad og Kreml, ný skjöl sem nýlega hafa komið í ljós, dularfull dauðsföll í Frakklandi og af hverju Epstein-málið heldur áfram að skaka stjórnmálin, sjö árum eftir andlát hans. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com.

    Mon, 14 Sep 2026
  • 51 - #49 - Epstein 1: Ris, fall og óútskýrð auðæfi

    Jeffrey Epstein braut kynferðislega á fjölda stúlkna og ungra kvenna árum saman en naut á sama tíma verndar valdafólks og undarlega vægrar meðferðar réttarkerfisins. Hulda og Eiríkur rekja ævi hans, allt frá æskunni í verkamannahverfi í Brooklyn, til lúxulífs og loks fangaklefans þar sem hann dó. Fyrri þáttur af tveimur um þetta mál sem skekið hefur samfélagið og hefur ekki enn verið leitt að fullu til lykta. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com.

    Mon, 31 Aug 2026
  • 50 - #48 - Evrópusambandið og sögurnar um það

    Er ESB Sovétríkin endurfædd? Eða “Fjórða ríkið”? Eiríkur og Hulda rekja hvernig þunglamalegt evrópskt skrifræði verður að uppsprettu lygilegustu hrollvekja, allt frá meintu sæti Andkrists á Evrópuþinginu til áforma Davos-elítunnar um mannfjöldaskipti. Loks er rýnt í hvernig þessar alþjóðlegu flökkusögur fá staðbundinn blæ á Íslandi, þar sem sambandið er teiknað upp sem myrkt skuggavald sem hyggst stela fiskinum, ræna orkunni og skikka ungmenni önnur en íslensku elítunnar í herinn. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com.

    Mon, 17 Aug 2026
  • 49 - #47 - Hvað er eiginlega í gangi á Svalbarða?

    Var dómsdagshvelfingin á Svalbarða reist svo heimselítan gæti náð stjórn á matvælaframleiðslu heimsins? Hulda og Eiríkur rýna inn í frosna fjallshlíð þar sem fræ frá um hundrað löndum eru geymd. En á þessum sama ísilagða eyjaklasa kraumar líka annað og raunverulegra njósnastríð, þar sem rússneskir togarar sigla yfir sæstrengi sem rofna á dularfullan hátt. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skuggavaldid@gmail.com.

    Mon, 03 Aug 2026
Mostrar mais episódios