Filtrar por gênero

Læknavarpið

Læknavarpið

Læknablaðið

Læknavarpið er hlaðvarp Læknablaðsins þar sem rætt er við lækna á faglegum og persónulegum nótum. Nýr þáttur með hverju nýju Læknablaði. Þáttastjórnandi: Kristborg Bóel Steindórsdóttir Stef: Doctor Victor

30 - #10/2026 „Akureyri á sérstakan stað í hjarta mér“
0:00 / 0:00
1x
  • 30 - #10/2026 „Akureyri á sérstakan stað í hjarta mér“

    Girish Hirlekar hafði nýlokið sérnámi í svæfingalækningum í heimalandi sínu Indlandi, þegar hann réð sig til starfa við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri árið 1976. Hann ætlaði sér aðeins að vera í hálft ár en svo fór að hann settist að, stofnaði fjölskyldu og lauk í haust fimmtíu ára starfsævi á Íslandi. Girish er gestur Læknavarpsins.

    Fri, 02 Oct 2026 - 48min
  • 29 - #7/2026 Verðum að líta út fyrir rammann og hugsa hlutina upp á nýtt.

    Lækning í Lágmúla 5 er sérfræðilæknastöð þar sem tólf sérgreinar eru undir sama þaki. Skurðstofan ehf. er í sama húsnæði og starfa einingarnar náið saman. Þeir Gísli Ingvarsson, húð- og kynsjúkdómalæknir og stjórnarformaður Lækningar og dr. Stefán E. Matthíasson, almennur- og æðaskurðlæknir framkvæmdastjóri Skurðstofunnar, mættu í Læknavarpið þar sem Kristborg Bóel Steindórsdóttir ræddi við þá um starfsemina og margt fleira. 

    Mon, 07 Sep 2026 - 47min
  • 28 - #6/2026. „Það eina sem skiptir máli í þessu lífi eru tengslin“

    Geðlæknirinn og ljóðskáldið Ferdinand Jónsson er fluttur heim eftir rúmlega 28 ára dvöl í Bretlandi og starfar í dag á geðdeild Landspítalans við Hringbraut. Ferdinand var gestur Læknavarpsins þar sem hann talaði um starf sitt í Lundúnum, eigin veikindi, ljóðlistina og hvernig var að snúa heim á ný.

    Mon, 06 Jul 2026 - 58min
  • 27 - #5 2026 Fullkomið tækifæri til að snúa aftur heim

    Jónas A. Aðalsteinsson tók síðastliðið haust við stöðu prófessors við læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknis húð- og kynsjúkdóma á Landspítala. Jónas sérhæfði sig í húðlækningum við University of Connecticut School of Medicine og lauk jafnframt sérnámi í húðmeinafræði frá Mount Sinai í New York. Kristborg Bóel Steindórsdóttir ræddi við Jónas í Læknavarpinu þar sem hann sagði frá námsárunum í Bandaríkjunum, rannsóknum sínum og fyrstu skrefunum í nýju starfi.

    Wed, 10 Jun 2026 - 53min
  • 26 - #4 2026/Adam Erik Bauer: „Markmiðið er að rannsóknin skilji eitthvað nothæft eftir sig“

    Adam Erik Bauer réttarefnafræðingur hefur starfað á rannsóknarstofu lyfja- og eiturefnafræði Háskóla Íslands frá árinu 2018. Þar vinnur hann nú að doktorsverkefni sínu en markmið þess er að skoða leiðir til þess að meta nýjungar og breytingar á íslenskum fíkniefnamarkaði og nota þær upplýsingar í þágu lýðheilsu. 

    Mon, 11 May 2026 - 35min
Mostrar mais episódios