Filtrar por gênero
- 139 - FItubjúgur, Endómetríósa lyftingar, næring - Ástrós Jóhannesdóttir - einkaþjálfari og hóptímaþjálfari
Ástrós Jóhannesdóttir er einkaþjálfari og hóptímaþja´lfari í World Class sem hefur verið mjög opin og einlæg að deila með sínum fylgjendum sinni glímunni við kvíða, óheilbrigt samband við mat, að vera með legslímuflakk og að farið í aðgerð á fitubjúg og sýnir stolt örin sem fylgdu því. Hún hamrar á mikilvægi þess að lyfta lóðum fyrir konur og næra sig nóg og vel. Hér talar hún um allt þetta á mjög fræðandi og hvetjandi hátt. Virkilega fróðlegt og skemmtilegt spjall. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi @nowiceland
Sun, 01 Nov 2026 - 49min - 138 - #133 Narsissmi: Klækjabrögð og hvernig þú getur brugðist við þeim.
Þessi þáttur fjallar um klækjabrögð narsissta hvernig við getum komið auga á þessi eitruðu samskiptamynstur sem er ætlað að stýra okkur og stjórna. Þú færð verkfæri til að svara og bregðast við á uppbyggilegan hátt með staðfestu. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi Kóði NAGLINOW20
Fri, 04 Sep 2026 - 33min - 137 - Bætingar í ræktinni. Hvenær á ég að þyngja?
Í þessum þætti tala e´g um mikilvægi þess að gera æfingar smám saman erfiðari og meiri áskorun og það má gera með ýmsum hætti. Oggubætingar eins og ég kalla það koma í allskyns útgáfum. Bæta í þyngdirnar, bæta tækni, fleiri endurtekningar eða fleiri sett. Hér fer ég yfir hvert atriði fyrir sig og hvernig við getum örvað meiri vöðvavöxt með réttum aðferðum. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi Kóði NAGLINOW20 á www.hverslun.is @nowiceland
Mon, 17 Aug 2026 - 25min - 136 - #131 Sumarfríið í Albaníu
Örþáttur um sumarfríið okkar í Albaníu. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi. @nowiceland Afsláttarkóði NAGLINOW20 = 20% afsláttur
Tue, 11 Aug 2026 - 22min - 135 - #130 Kristín Berta heilsunuddari
Kristín Berta Sigurðardóttir heilsunuddari og eigandi Birtu Heilsu er gestur Heilsuvarpsins. Hún vann í bankageiranum en sneri við blaðinu eftir að hafa greinst með krabbamein í miðju Covid og sneri sér að heilsunuddi, bandvefslosun, jóga nidra og hjálpar nú fólki í gegnum reynslu og þekkingu að bæta heilsu sína með heildrænni nálgun andlega og líkamlega. Hægt að fylgjast með Kristínu Bertu @birtaheilsa Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi. Kóði NAGLINOW20 @nowiceland
Mon, 18 May 2026 - 1h 10min - 134 - #128 Stopp í fitutapi - mögulegar lausnir án þess að borða minna
Ef þú upplifir að vera stopp í fitutapi geta verið margar mögulegar ástæður og lausnir án þess að grípa strax í að borða minna og æfa meira. Því færri hitaeiningar og meiri æfingar ætti ekki að vera fyrsta úrræðið, þar sem slíkt getur leitt til orkuskorts, vannæringar og ofþjálfunar. Hér fer ég yfir mögulega ástæður fyrir stöðnun í fitutapi, og hvað þú getur gert til að halda boltanum rúllandi. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi. @nowiceland KóðI: NAGLINOW20
Sun, 03 May 2026 - 29min - 133 - #127 Magnesíum
Heilsuvarpið snýr aftur með fræðslu um magnesíum, hvað er það, muninn á mismunandi tegundum, hvað gerir magnesíum í líkamanum, hvernig lýsa einkenni af skorti sér, hvenær er best að taka magnesíum, er hægt að blanda saman tegundum og fleiri spurningum svarað. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi @nowiceland
Wed, 15 Apr 2026 - 20min - 132 - #126 Nanna Kaaber íþróttafræðingur fitubjúgur/Lipidema
Nanna Kaaber íþróttafræðingur leiðir okkur í allan sannleika um sjúkdóminn fitubjúg (Lipidema), hvað er fitubjúgur og hvaða áhrif hann hefur á líkamlega og andlega vellíðan kvenna. Nanna er íþróttafræðingur og hefur sjálf fengið greiningu af fitubjúg og sótt fjölmargar ráðstefnur, haldið erindi, skrifað pistla og frætt sjálfa sig og aðra um sjúkdóminn. Nanna Kaaber @nannakaaber Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi. Kóði NAGLINOW20 = 20% afsláttur á Hverslun.is @nowiceland
Tue, 13 Jan 2026 - 1h 05min - 131 - #125 Helgi Ómars heilsumarkþjálfi - núvitund, öndun, tónheilun, streitulosun
Okkar allra besti Helgi Ómars er orðinn heilsumarkþjálfi og fræðir okkur hér um núvitund, streitulosun, öndunaræfingar og tónheilun ´a sinn fallega og einlæga hátt. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi @nowiceland Kóði NAGLINOW20
Tue, 16 Dec 2025 - 1h 00min - 130 - #124 Unnur Valdís - Flot er allra meina bót
Unnur Valdís Kristjánsdóttir vöruhönnuðuur og vatnsmeðferðaraðili er gestur Heilsuvarpsins Hún er hugmyndasmiður Flothettu sem er flotbúnaður sérhannaður ti að veita stuðning í vatni og skapa djúpslökun, draga úr verkjum í vöðva og stoðkerfi líkamans. Þetta slökunarástand í vatninu losar um streitu í öllu kerfinu og er gott fyrir kvíða, depurð og andlega heilsu. @flothetta Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi @nowiceland Afsláttarkóði á Hverslun.is NAGLINOW20
Fri, 31 Oct 2025 - 51min - 129 - Alma Hafsteinsdóttir - Spilafíkn
Alma Hafsteinsdóttir er spilafíklaráðgjafi, með B.S í sálfræði, viðskiptafræðingur og spilafíkill í bata. Hún situr í stjórn Samtaka Áhugafólks um spilafíkn sem vilja umræðu um spilakassarekstur Háskóla Íslands, og lokun spilakassa. Spilafíkn fylgir mikil skömm svo fólk ræðir ekki vandann opinberlega og þær alvarlegu samfélagsleg, efnahagslegu og heilsufarslegu afleiðingar sem hljótast af þessari fíkn. Við töluðum um spilafíkn, spilakassa, veðmálasíður og margt fleira tengt þessu útbreidda vandamáli sem því miður virðist færast í aukana. Styrktaraðili Heilsuvarpsins er NOW á Íslandi @nowiceland
Sun, 12 Oct 2025 - 1h 00min - 128 - #122 Bætiefni fyrir geðheilsuna
Þessi þáttur fjallar um hvaða bætiefni eru góð fyrir geðheilsuna. Sem bæta svefn, minnka bólgur, lækka kortisól, minnka kvíða. Hvaða rannsóknir styðja notkun þeirra. Omega-3 L-theanine Magnesíum Glycinate D-vítamín Góðgerlar
Sun, 21 Sep 2025 - 31min - 127 - Narsissmi - Eitruð samskiptamynstur og klækjabrögðMon, 01 Sep 2025 - 18min
- 126 - #120 Hærri Grunnbrennsla - hvernig hækkarðu grunnbrennsluna?
Margir upplifa að grunnbrennslan virðist hægari en áður. Þessi þáttur fjallar um grunnbrennsluna og svarar vonandi mörgum spurningum. Hvað er grunnbrennsla? Hvers vegna lækkar grunnbrennsluhraðinn þegar við förum í megrun? Hvernig hækkum við grunnbrennsluna aftur? Hvernig getum við misst fitu á heilbrigðan hátt með dúndur grunnbrennslu?
Tue, 29 Jul 2025 - 41min - 125 - #119 Prótín-Allt sem þú þarft að vita
Allt sem þú þarft að vita um prótín. Hvað er prótín. Hvað gerir prótín fyrir okkur í líkamanum? Hversu mikið prótín þarftu til að byggja og viðhalda vöðvamassa? Hvaða matvæli eru prótínrík? Hver er munurinn á mismunandi prótíndufti. Af hverju er prótín mikilvægt. Af hverju er mikilvægt að byggja upp vöðva.
Mon, 23 Jun 2025 - 27min - 124 - #118 Halldóra Skúla- Breytingaskeiðið og fjármál kvenna
Halldóra Skúla frá Kvennaráð er óendanlegur brunnur visku og þekkingu þegar kemur breytingaskeiðinu. Halldóra heldur úti fróðleikssíðu og fyrirlestra um breytingaskeiðið fyrir vinnustaði en i þessum þætti tölum við um áhrif breytingaskeiðs á atvinnuþátttöku og fjármál kvenna og hvað vinnustaðir geta gert til að vera breytingaskeiðsvænir og styðja við konur svo þær detti ekki út af vinnumarkaði a þessum besta aldri.
Tue, 20 May 2025 - 1h 10min - 123 - #117 Magnús Friðrik Ólafssson sálfræðingur - Skjánotkun barna og Adolescence þættirnir
Magnús F Ólafsson sálfræðingur hjá Sálstofunni vinnur með hegðunarvanda barna/ unglinga ásamt ráðgjöf til foreldra, starfaði áður með Fjölkerfarmeðferð, fjölskyldumiðað úrræði á vegum Barna – og fjölskyldustofu fyrir unglinga með alvarlegan hegðunarvanda. Magnús er hokinn af reynslu af vinnu með börnum og unglingum. Við ræddum skjánotkun barna/ unglinga og áhrif á andlega/ líkamlega heilsu. Hvaða hættur blasa við þeim, sem og þættina Adolescence á Netflix. Mgnús kemur með góð ráð fyrir foreldra til ná betur til barna sinna og setja skýrari mörk.
Sun, 27 Apr 2025 - 1h 17min - 122 - #116 Liðleika Lilja - Liðleiki, hreyfanleiki, lyftingar
Lilja Sigurgeirsdóttir eða Liðleika Lilja er ÍAK einkaþjálfari sem sérhæfir sig í liðleika og hreyfanleika. Hún heldur úti námskeiðunum Flex Fit, Stirðir strákar, lyftingar fyrir konur, liðleiki fyrir golfara og margt fleira. Lilja er hafsjór af fróðleik um liðamót, líkamsstöðu og allt sem viðkemur þjálfun líkamans. Hún setur inn myndbönd af góðum liðleikaæfingum á Instagram @lidleika_lilja Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og vil ég sérstaklega mæla með Female Balance sem er einstök blanda af jurtum og næringarefnum til að styðja við heilsu kvenna. Heilsuvarpið er í boði NETTÓ og vil ég mæla sérstaklega með Anglamark vörunum sem eru lífrænar, svansvottaðar og umhverfisvænar. @nowiceland @netto.is
Sun, 06 Apr 2025 - 1h 00min - 121 - #115 Svefn -Verkfæri fyrir dúndur góðan svefn
Verkfæri fyrir góða svefnrútínu til að stuðla að dúndur góðum svefni, hvers vegna við vöknum oft kl 2-3 á nóttunni og dettum í ofhugsanir, og hvað við getum gert til að róa líkamann niður og sofna aftur. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Thu, 27 Feb 2025 - 22min - 120 - #114 Erla Guðmundsdóttir (HeilsuErla)- Streita, kulnun, mataræði, hreyfing
Erla Guðmundsdóttir, HeilsuErla, er íþróttafræðingur og markþjálfi sem starfar sem íþróttakennari og heldur úti hlaðvarpinu 'Með lífið í lúkunum'. Við töluðum um hennar reynslu af kulnun og streitu, og hvað hjálpaði henni tækla það sem og allskonar mýtur í heilsubransanum. Ótrúlega skemmtilegt spjall enda erum við á sömu bylgjulengd í öllu þessu heilsubrölti. @heilsuerla Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Sun, 16 Feb 2025 - 59min - 119 - #113 Berglind Sigmars sálfræðingur - Uppbyggileg samskipti og lausn ágreininga
Gestur þáttarins er Berglind Sigmarsdóttir sálfræðingur hjá Samkennd heilsusetri og veitir einstaklingsmeðferð og heldur námskeiðið Tölum saman samskiptanámskeið. Svo hún er hokin af reynslu þegar kemur að heilbrigðum uppbyggilegum samskiptum. Við fórum um víðan völl í hvernig við setjum mörk hvað einkennir góð samskipti, og virka hlustun og hvernig við leysum deilur á uppbyggilegan hátt. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Fri, 24 Jan 2025 - 1h 05min - 118 - #112 Næring fyrir + eftir æfingu
Þetta sólóvarp fjallar um hvers vegna við þurfum að næra okkur vel fyrir og eftir æfingu og hvað sé best að borða. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó. @nowiceland @netto.is
Mon, 13 Jan 2025 - 22min - 117 - #111 Breytingaskeiðið mitt
Þessi þáttur er sólókast þar sem ég tala um vegferð mína á breytingaskeiðinu, hvað ég þurfti að gera í heilbrigðiskerfinu og hverju ég breytti varðandi lífsstíl, bætiefni, mataræði og æfingar til að fara í gegnum þetta skeið eins þægilega og kostur er. Vonandi einhverjum konum þarna úti til gagns og jafnvel gamans. Heilsuvarpið er í boði Nettó og NOW á Íslandi @nowiceland @netto.is
Fri, 03 Jan 2025 - 31min - 116 - #110 Ég alla leið - sjálfsrækt
Gestir Heilsuvarpsins eru Helga Fríður Garðarsdóttir félagsráðgjafi, Inga Guðlaug Helgadóttir sálfræðingur, Margrét K. Pétursdóttir jógakennari standa að baki Ég alla leið, sem er sjálfsræktardagbóka helguð sjálfseflingu sem og sjálfsstyrkingarnámskeiðum. Við spjölluðum um allt sem tengist sjálfsrækt, núvitund, sálfræði með allskonar ráð til að hlúa að andlegu hliðinni. @eg.allaleid Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is Ég mæli með mysuprótíni eftir æfingu frá NOW sem fæst bæði í Hverslun og í Nettó.
Sun, 22 Dec 2024 - 1h 02min - 115 - #109 Atli Steinn Guðmundsson - Að lyfta lóðum alla ævi
Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður á Morgunblaðinu og lyftingakappi per exelans er gestur Heilsuvarpsins. Atli er fimmtugur og hefur lyft síðan hann var 14 ára gamall. Við tölum um hvað stuðlar að langlífi í lyftingum nú þegar við samanlagt erum með 70 ára lyftingasögu. Atli talar líka um hverju hann þurfti að breyta og aðlaga eftir því sem hann varð eldri. Atli er megahress og þetta var stórskemmtilegt spjall. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó. @nowiceland @netto.is
Tue, 10 Dec 2024 - 54min - 114 - #108 Hafdís Helgadóttir næringarfræðingur - næring barna og fullorðinna
Hafdís Helgadóttir næringarfræðingur er gestur Heilsuvarpsins var að gefa út barnabókina Petra paprika, fræðsluefni um næringu fyrir börn sem nýtist líka fullorðnum. Hafdís kom með góðar ráðleggingar bæði fyrir matarvenjur barna og fullorðna. Súper fróðlegur þáttur, svo dragið fram penna og glósubók. Fylgið Hafdísi á Instagram @hafdisnaering Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Tue, 26 Nov 2024 - 59min - 113 - #107 Þorleifur Þorleifsson - últrahlaupari
Gestur Heilsuvarpsins er Þorleifur Þorleifsson últrahlaupari. Hann er gríðarleg fyrirmynd því hann sýnir okkur að öll geta hreyft sig því hann er faðir í fullri vinnu sem byrjaði að hlaupa þrítugur en lauk nýverið 62 hringum í Bakgarðshlaupinu og sló Íslandsmet. Við tölum um vegferð hans í hlaupunum, hvernig félagslegur stuðningur hefur spilað stórt hlutverk í árangrinum, og hvernig hann kemst andlega og líkamlega í gegnum þrekraun eins og Bakgarðshlaupið og hvaða hlaupaskór hafa hentað okkur í hlaupum.
Mon, 11 Nov 2024 - 1h 12min - 112 - #106 Vilborg Arna - ofurkona, pólfari, ferðamálafræðingur
Vilborg Arna Gissurardóttir pólfari er gestur Heilsuvarpsins. Hún býr í Slóveníu og þarf vart að kynan fyrir neinum en hún var fyrsta og eina konan til að fara Suðurpólinn og ganga 8000 m tind ein síns liðs. Hún hefur marga fjöruna sopið í fjallamennskunni, en hún upplifði bæði jarðskjálfta og snjóflóð á Everest. Og haldið fjölda fyrirlestra um mikilvægi þess að taka bara eitt lítið skref í einu til að komast á leiðarenda. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Sun, 15 Sep 2024 - 1h 06min - 111 - #105 Unnur Borgþórs- Heilsudagar Nettó
Unnur Borgþórsdóttir úr Morðcastinu kíkti í spjall um Heilsudaga en þessi þáttur er síðasti þáttur í Heilsudagaseríu Nettó. Við töluðum um sameiginlegan áhuga á sönnum sakamálum, og um allskonar heilsustöff, vegan gúrmeti og Heilsudagagleði. @mordcastid Heilsuvarpið er einnig í boði NOW á Íslandi @nowiceland @netto.is
Sun, 08 Sep 2024 - 45min - 110 - #104 Helga Dís og Bjarki hjá Nettó - Heilsudagar
Helga Dís markaðs og upplifunarstjóri og Bjarki innkaupastjóri hjá Nettó kíktu í spjall og fræða okkur um sögu Heilsudaga, þróun og vinnuna við að skipuleggja stærstu hátíð okkar heilsuperranna. Heilsuvarpið er í boði Nettó og NOW á íslandi @netto.is @nowiceland
Fri, 06 Sep 2024 - 48min - 109 - #103 Jana heilsukokkur - Heilsudagar Nettó
Jana Steingríms heilsukokkur kíkti í Heilsuvarpið en hún heldur úti vinsælu matarbloggi undir jana.is og á instagram undir janast. Þessi þáttur er annar af fjórum í sérstakri Heilsudagaseríu í samstarfi við Nettó. Jana er einmitt forsíðustúlkan á heilsublaðinu og segir að við getum öll eldað. Við Jana getum matarperrast saman í marga klukkutíma og vonandi skilaði spjallið allskyns góðum ráðum í að matarpreppa, minnka matarsóun og gera góð kaup á Heilsustöffi. @netto.is @janast Heilsuvarpið er einnig í boði Now á Íslandi @nowiceland
Wed, 04 Sep 2024 - 50min - 108 - #102 Helgi Ómars Heilsudagar Nettó
Helgi Ómars er einn áhrifavaldur hjá Nettó og hann kíkti í Heilsuvarpið af þessu tilefni og við röbbuðum saman um allskonar heilsutengt, og eins og okkar er von og vísa förum við um víðan völl þar sem meira að segja Smjattpattarnir koma við sögu. Þessi þáttur er fyrsti þáttur af fjórum í Heilsudagaseríu í samstarfi við Nettó í tilefni af Heilsudagar eru 29/8-8/9 með fullt af frábærum tilboðum á heilsustöffi. @nowiceland @netto.is
Sun, 01 Sep 2024 - 1h 02min - 106 - #101 Magnús Jóhann - einkaþjálfari og borðtennismeistari
Gestur Heilsuvarpsins er Magnús Jóhann einkaþjálfari í Hreyfingu,BS í sálfræði og margfaldur íslandsmeistari í borðtennis.er með , s Hann hefur hjálpað hundruðum ná markmiðum sínum í ræktinni en einnig búið í Suður Kóreu svo hann hefur upplifað margt og hefur frá mörgu að segja. Skemmtilegt spjall við megahressan gaur, Heilsuvarpið er í boði Nettó og NOW á Íslandi @nowiceland @netto.is
Wed, 21 Aug 2024 - 57min - 104 - #100 Lotuþjálfun HIIT - sólóvarp
Allt um lotuþjálfun (HIIT) í þessu sólóvarpi. Vonandi öllum spurningum um þetta æfingaáreiti svarað. Hvað er það? Hvers vegna er HIIT gott fyrir okkur Hvenær er best að gera lotuþjálfun? Hversu margar lotur í einu? Hversu langar lotur? Hversu oft í viku. Heilsuvarpið er styrkt af NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Fri, 19 Jul 2024 - 30min - 103 - #98 Krissi Haff - Jákvæðasti maður Íslands
Krissi Haff félagsfræðingur er örugglega jákvæðasti maður Íslands. Hann missti pabba sinn 15 ára og glímdi við sorgina með jákvæðni og von og hugarfari að glasið er alltaf hálffullt Hann heldur úti hlaðvarpinu Jákastið þar sem hann fær til sín þekkta einstaklinga og spyr hvernig þau nota jákvæðni í sínu lífi. Rosalega skemmtilegt spjall og öll fara súper jákvæð inni í daginn eftir þessa hlustun.
Fri, 28 Jun 2024 - 1h 15min - 102 - #97 Gynamedica Harpa Lind og Sonja - Breytingaskeiðið
Harpa Lind og Sonja frá Gynamedica eru hafsjór af fróðleik um allt sem viðkemur breytingaskeiðinu. Gynamedica er lækninga og heilsumiðstöð fyrir konur sem fagna 2 ára afmæli um þessar mundir. Þar starfar teymi lækna, hjúkrunarfræðing sem bjóða stuðning, fræðslu, eftirfylgni á breytingaskeiði. Leggið vel við hlustir og dragið fram glósubækurnar. Styrktaraðilar @nowiceland @netto.is
Fri, 07 Jun 2024 - 50min - 101 - #96 Kristinn Johnson - Allt um skó í hlaup og göngur
Kristinn Johnson framkvæmdastjóri Eirberg er gestur Heilsuvarpsins. Eirberg selja vörur sem efla heilsu, auka lífsgæði, auðvelda störf og daglegt líf. Undir þeim hatti eru ALTRA hlaupaskór sem og Vivo barefoot skór. Umfjöllunarefni þáttarins er hvernig skór eru bestir í hlaup, göngur sem og daglegt líf. Mjög fróðlegur þáttur fyrir alla sem vilja gefa fótunum sínum alla ást sem þeir eiga skilið með hágæðaskóm. @eirberg Heilsuvarpið er í boði Nettó og Now á Íslandi @nowiceland @netto.is
Wed, 08 May 2024 - 1h 10min - 100 - #95 Vöðvabygging 101 - hvernig byggirðu vöðva
Allt sem þú þarft að vita um lyftingar og hvaða þættir þurfa að vera til staðar til að byggja upp vöðva. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó. @nowiceland @netto.is
Thu, 18 Apr 2024 - 36min - 99 - #94 Birna Varðar næringarfræðingur - orkuskortur og æfingar
Birna Varðar, næringarfræðingur, doktorsnemi í íþrótta og heilsufræði, rannsakandi á sviði fæðu og átraskana. Hún hefur skoðað orkuskort í íþróttum og áhrif á heilsu og árangur. Við tölum um orkuskort í æfingum hjá almenna ræktariðkanda því alltof mörg borða of lítið í samræmi við æfingarnar og fjöllum um áhrif of lítillar næringar hefur á líkamlega og andlega heilsu, og langtíma afleiðingar. Fylgdu Birnu á Instagram: @birnavardar @sportbitarnir Heilsuvarpið er í boði Nettó og Now á Íslandi @netto.is @nowiceland
Wed, 03 Apr 2024 - 1h 05min - 98 - #93 Kreatín - allt sem þú vilt vita
Í þessum þætti tala ég um kreatín og svara algengum spurningum Hvernig virkar kreatín? Hvenær er best að taka það. Hvernig? Hversu mikið? Hvaða týpa er best? Get ég tekið kreatín þó ég sé ekki að æfa? Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Wed, 27 Mar 2024 - 21min - 97 - #92 Geir Gunnar - mataræði án öfga
Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur er gestur Heilsuvarpsins Geir Gunnar starfar hjá Heilsustofnun NLFÍ og ritstjóri heimasíðunnar. BS í matvælafræði og MS í næringarfræði og einkaþjálfarapróf og brennur fyrir heilsu, næringu, hreyfingu og berst gegn öfgum og hindurvísindum í næringar- og heilsufræðum. Bókin hans Góð heilsa alla ævi án öfga fáanleg í næstu bókabúð. Við töluðum um nýju bókina, mýtur og öfgar í mataræði og hreyfingu og hætturnar við samfélagsmiðla í að miðla áfram misgáfulegum og stundum hættulegum ráðleggingum. @ggunnz Styrktaraðilar Heilsuvarpsins @nowiceland @netto.is
Wed, 06 Mar 2024 - 1h 04min - 96 - #91 Valdimar Þór - Meðvirkni og samskipti
Valdimar Þór Svavarsson er ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu, með MS í stjórnun og stefnumótun, BA í félagsráðgjöf. áfalla- og uppeldisfræðum Piu Mellody. Við tölum um meðvirkni og samskipti og áföll í æsku. Stútfullur þáttur af fróðleik og verkfærum fyrir góð samskipti og aukinn skilning á meðvirkni. www.fyrstaskrefid.is Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó @netto.is @nowiceland
Fri, 23 Feb 2024 - 1h 19min - 95 - #90 Katrín Edda - ADHD sem fullorðin
Gestur þáttarins er Katrín Edda Þorsteinsdóttir, verkfræðingur, samfélagsmiðlastjarna, Crossfittari, móðir og eiginkona búsett í Þýskalandi og vinnur fyrir Bosch. Við töluðum um þjálfun á meðgöngu og eftir fæðingu en aðallega um hvernig var að fá ADHD greinginu sem fullorðin og hvað áhrif það hefur haft á hennar líf í dag. @katrinedda Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó @netto.is @nowiceland
Mon, 22 Jan 2024 - 1h 11min - 94 - #89 Erlendur Jóhanns - Testósterón og hormónakerfi karla
Gestur þáttarins er Erlendur Jóhann Guðmundsson einkaþjálfari sem hefur startað sem einkaþjálfari í 15 ár á hinum ýmsu stöðum, og því hokinn af reynslu í bransanum. Hann rekur núna Formið heilsurækt í Ármúla sem er persónuleg nálgun í þjálfun í öruggu umhverfi. Við tölum um ýmislegt sem viðkemur þjálfun, að koma sér í form á nýju ári en aðallega tölum við um hormónakerfi karla og ótrúlegur fróðleikur sem rann uppúr Erlendi sem vonandi getur nýst ansi mörgum sem eru komnir af léttasta skeiði. @coach_erlendur @formid_heilsuraekt Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Tue, 09 Jan 2024 - 1h 13min - 93 - #88 Kristín Þórhalls- Kraftlyftingakona og dýralæknir
Kristín Þórhallsdótir er líklega sterkasti dýralæknir Íslands og klárlega ein af sterkustu konum landsins. Hún fann sig í kraftlyftingum eftir að hafa eignast langveikt barn árið 2018. Hún byrjaði að dútla í venjulegri rækt og Crossfit en áttaði sig fljótlega á að hún var mjög sterk og var hvött til að reyna fyrir sér í kraftlyftingum. Kristín hefur unnið til fjölda verðlauna á skömmum tíma en hún hefur staðið á palli á nær öllum mótum sem hún hefur keppt í, nú síðast var hún í 3. sæti á Evrópumótinu í Eistlandi í desember.
Wed, 20 Dec 2023 - 1h 03min - 92 - #87 Erla Súsanna - Jákvæð sálfræði og þakklæti
Erla Súsanna er menntaður kennari og heldur úti heimasíðunni Töfrakistan.is en hún leggur áherslu á jákvæða sálfræði og þakklætisiðkun. Erla kennir einnig Jóga nidra, býður uppá allskonar retreat og selur þakklætisdagbókina á töfrakistan.is Mjög áhugavert spjall við stórkostlega jákvæða konu með hlýja nærveru. Gjöriði svo vel. Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó @nowiceland @netto.is
Sun, 26 Nov 2023 - 1h 08min - 91 - #86 Helgi Ómars - öryggi í samböndum og allskonar spjall
Sameiginlegur þáttur Helga og Röggu fyrir bæði Helgaspjallið og Heilsuvarpið. Við töluðum um allt og allskonar tengt samböndum, að setja mörk, og meira að segja pólitík. Sjálfseflingarnámskeiðið er 20. og 21. október Skráning raggaoghelgi@gmail.com Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó @nowiceland @netto.is
Fri, 20 Oct 2023 - 1h 00min - 90 - Árni Þóroddur - Narsissmi
Árni Þóroddur sálræðingur kíkti í spjall og við köfum djúpt í samskiptavanda, að setja mörk, eitruð sambönd og narsissma. Árni er einn vinsælasti viðmælandinn minn og svíkur sannarlega ekki í þetta sinn frekar en fyrri daginn Fylgið endilega Árna þar eru fræðslumyndbönd um allskyns sálfræðitengd málefni. @mind.in.motion.psychology Ég minni á námskeiðið okkar Helga ómars Sjálfseflin allur pakkinn sem verður haldið 20 og 21. október. Skráning á raggaoghelgi@gmail.com Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is Kóðinn HEILSUVARPIÐ veitir 20% afslátt af öllu NOW á www.Hverslun.is
Mon, 09 Oct 2023 - 1h 07min - 89 - #84 Eik Gylfadóttir - Dóttirin í eyðimörkinni
Eik Gylfadóttir er sjúkraþjálfari, næringarþjálfari og bjó um árabil í Dubai og Abu Dabi og þjálfaði Crossfit. Eik hefur farið á heimsleikana í Crossfit þrisvar sinnum. Hún er hafsjór af fróðleik um alt sem viðkemur þjálfun, næringu og endurhæfingu en spáir líka mikið í hugarfarinu sem knýr okkur áfram í æfingum. Kíkið endilega á Eik á samfélagsmiðlum en hún heldur úti Building Thriving lifestyle á instagram. @eikgylfadottir @buildingthrivinglifestyles Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @netto.is @nowiceland Ég minni á sjálfseflingarnámskeið Röggu Nagla go Helga Ómars. 20. og 21. október kl 13-16 kr. 20.990 kr
Thu, 21 Sep 2023 - 1h 32min - 88 - #BiggiBingó
Gestur Heilsuvarpsins er Arnaldur Birgir eða Biggi þjálfari. Við tölum um þjálfun eftir fertugt, hvernig líkaminn breytist og hvernig við þurfum að hagræða þjálfun og næringu í samræmi en halda samt áfram að ná árangri. Biggi er hokinn af reynslu eftir næstum þrjátíu ár í bransanum og þúsundir skjólstæðinga á ferilskránni. @coachbirgir Heilsuvarpið er í boði Nettó og NOW á Íslandi Kóðinn HEILSUVARPID gefur 20% afslátt á Hverslun.is af NOW bætiefnum. @netto.is @nowiceland
Sun, 03 Sep 2023 - 1h 31min - 87 - #82 Khan Porter - Mest sjarmerandi maðurinn í CrossFit
Gestur minn í HV er enginn annar en Ástralinn Khan Porter sem er ein stærsta stjarnan í Crossfit heiminum. Khan er ekki bara afburða íþrottamaður en er líka sálfræðimenntaður, djúpur hugsuður, brennur fyrir andlega heilsu og er mikill talsmaður þess að fólk opni sig um vandamál en hann hefur sjálfur glímt við andleg veikindi. Khan bjó á Íslandi í 6 mánuði og æfði í CrossFit Reykjavík með liðinu hennar Annie Mist árið 2022. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Tue, 15 Aug 2023 - 1h 24min - 86 - # 81 Lucie Martinsdóttir - Sterkasta mamma Íslands?
Lucie Stefanikova (Martinsdóttir) er kraftlyfingakona frá Tékklandi búsett á Íslandi. Hún er grjótsterk en líka stórkostleg fyrirmynd hvernig hún sinnir móðurhlutverkinu, starfi sínu sem þjálfari og rífur í lóðin. Lucie er fróð, hógvær, róleg og með einstakt æðruleysi. Mögulega sterkasta mamma íslands gjöriði svo vel. @lucie_martins_lifts Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi Mæli með kreatíni fyrir bætingar í lyftingum. @nowiceland Nettó styrkir Heilsuvarpið. Mæli með Anglamark vörunum @netto.is
Mon, 31 Jul 2023 - 1h 10min - 85 - #80 Nökkvi Fjalar - konungur heilsunnar
Nökkvi Fjalar Orrason er gestur Heilsuvarpsins að þessu sinni og miðlar af þekkingu reynslu í gegnum sína miðla til að tileinka sér betri heilsuvenjur t.d hugleiðslu, æfingar, mataræði, föstur, betri svefn og öndunaræfingar. Nökkvi býr í London þar sem hann er að þróa nýtt app fyrir áhrifavalda, Mintseer, sem hjálpar þeim að halda utan um sín verkefni og samstörf við fyrirtæki. Dragið fram glósubækur og blýanta því Nökkvi hendir á okkur ansi mörgum góðum verkfærum fyrir heilsulífið. @nokkvifjalar Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Fri, 14 Jul 2023 - 1h 15min - 84 - #79 Hjörtur Jóhann - buffaðasti leikari Íslands
Gestur HEILSUVARPSINS er Hjörtur Jóhann Jónsson leikari. Ég hef verið aðdáandi Hjartar síðan 2016 þegar ég sá hann eiga stórleik í Njálu. Hjörtur er stórkostlegur leikari og hann segir okkur hér frá sínum heilsuvenjum og hvernig hann æfir í ræktinni fyrir hin ýmsu hlutverk í bíói og á sviði. Hjörtur er með hlýja nærveru, skemmtilegur, einlægur og fyndinn. Frábært spjall við frábæran mann. Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó @nowiceland @netto.is
Thu, 22 Jun 2023 - 1h 20min - 83 - #78 Heiðrún Finnsdóttir - Allir geta eitthvað
Heiðrún Finnsdóttir er gestur Heilsuvarpsins. Heiðrún á ótrúlega sögu. Hún var 105 kg með vefjagigt, þunglyndi, liðagigt og kvíða og ákvað að snúa við blaðinu. Hún var búin að prófa alla kúra þegar hún fór í Polefitness og þaðan lá leiðin í Crosfit og er með Level 1 Crossfit þjálfararéttindi. Síðan hefur margt vatn runnið til sjávar og hún setti á fót hin geysivinsælu Allir geta eitthvað námskeiðin í Sporthúsinu þar sem allir eru velkomnir óháð getu og formi. Heiðrún er ótrúlega hláturmild, með dásamlega nærveru og í alla staði hlý og yndisleg maneskja sem vill hjálpa öðrum sem standa í sömu sporum og hún var og miðla af sinni reynslu. Við förum yfir söguna hennar og um víðan völl í þjálfun og mataræði. @heidrunfinnsdottir Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó @nowiceland @netto.is
Fri, 02 Jun 2023 - 1h 18min - 82 - #77 Snorri Barón - umboðsmaður Crossfitstjarnanna
Snorri Barón umboðsmaður er með rúmlega 30 Crossfitstjörnur undir sínum verndarvæng, og eins og bangsapabbi sem hugsar um þau með alúð og umhyggju. Hann er þeim innan handar hvenær sem er sólarhringsins, og semur ríkulega við styrktaraðila svo þau geti lifað af sinni íþrótt. Þessi þáttur er bæði fyrir þá sem vita lítið um Crossfit því Snorri er megahress og segir skemttilega frá en líka fyrir okkur dygga áhugafólkið því nördumst djúpt. Þess má geta að Heilsuvarpið er tekið upp heima hjá Snorra þegar ég er á Íslandi, en hann er persónulegur hljóðmaður, tæknimaður, klippari og viðmælendahöstlari Heilsuvarpsins og kann ég honum miklar þakkir fyrir alla hans aðstoð. Þú finnur Snorra á Instagram @snorribaron Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó. @nowiceland @netto.is
Thu, 18 May 2023 - 1h 35min - 81 - #76 Halldóra og Viðar Kvennastyrkur + Kvennakraftur
Halldóra Anna Hagalín og Viðar Bjarnason eigendur Kvennastyrks í Hafnarfirði sem er líkamsræktarstöð eingöngu fyrir konur þar sem áherslan er á að hver og ein hreyfi sig útfrá eigin getu og þjálfun aðlöguð að hverri konu með áherslu á getu en ekki útlit og vigt. Þau segja að það sé nauðsynlegt að hafa líkamsræktarstöð eingöngu fyrir konur þar sem margar upplifa sig óörugga í hefðbundnum kynjablönduðum stöðvum. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Sun, 07 May 2023 - 1h 15min - 80 - #75 Ingi Torfi Macros og mataræði
Í þessum þætti er ég að tala við Inga Torfa Sverrisson hjá ITS macros en þau hafa hjálpað þúsundum að ná árangri með að telja orkuefni og læra gott máltíðamynstur. Við fórum um víðan völl í öllu sem viðkemur mataræði, macros og heilbrigðu sambandi við mat. Ég minni á Heilsukvöldið þar sem bæði ég og Ingi Torfi verðum með fyrirlestra um mataræði í Hverslun þann 21. apríl kl 18.30. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Tue, 18 Apr 2023 - 1h 03min - 79 - #74 Jónas Tryggvi Betra Box sambönd + samskipti
Jónas Tryggvi Stefánsson frá Betra Box, er áhugamaður um samskipti, sambönd, og meðvirkni. Hann vill ekki að við festum okkur í ákveðnu boxi. Í þættinum töluðum við um allskonar tengt samböndum, kynlífi, heilbrigð samskipti, tilfinningar og sjálfsbetrun. @betrabox Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Mon, 10 Apr 2023 - 1h 04min - 78 - #73 Hlynur Kristinn Það er Von
Hlynur Kristinn Rúnarsson er stofnandi samtakann Það er von Markmið þeirra er að vinna gegn fordómum, skömm og vekja von hjá þeim sem glíma við fíknisjúkdóma og gefa annað tækifæri í lífinu. Hlynur á sjálfur ótrúlega sögu af bata en hann hefur verið edrú í næstum 4 ár. Hann er nýútskrifaður með BS í lögfræði og er nú í mastersnámi. Heilsuvarpið hvetur alla til að gerast Vonarliðar og leggja samtökunum lið og hjálpa að gefa fólki með fíkn nýja von. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Fri, 24 Mar 2023 - 1h 00min - 77 - #72 Halldóra Skúladóttir - Breytingaskeiðið
Gestur þáttarins er Halldóra SKúladóttir hjá Kvennaráð.is. Hún er sprenglærð í breytingaskeiði kvenna, sjúkraliðamenntun og dáleiðari. Halldóra er hafsjór af fróðleik um breytingaskeiðið, og markmið hennar er að fræða, upplýsa og uppræta fordóma. Takið fram penna og stílabók, því þið eruð að fara að glósa hérna. @kvennarad.is Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Sun, 12 Mar 2023 - 57min - 76 - #71 Sólveig Sigurðardóttir Crossfitstjarna
Í þessum þætti tala ég við Sólveigu Sigurðardóttur, Crossfitstjörnu, en hennar frægðar Sól reis hratt síðasta ár þegar hún stóð sig stórkostlega í undanúrslitunum í London og tryggði sig inn á Crossfitleikana í einstaklingskeppni. Sólveig er einlæg, hlý, hreinskilin og í alla staði yndisleg manneskja. Hún opnar sig um reynsluna af Crossfit keppnum, að æfa með háklassa keppendum á Mallorca, og hvernig hún er meðvituð um sitt neikvæða innra sjálfstal. Einlægt og opið viðtal við stórkostlega konu sem á eftir að ná langt í sportinu. Sólveig á Instagram @solasigurdardottir Heilsuvarpið er í boði: NOW á Íslandi @nowiceland Nettó verslanir / Samkaup @netto.is
Wed, 15 Feb 2023 - 1h 15min - 75 - #70 Daníel Gunnarsson - frá magaermi í vaxtarrækt
Daníel Gunnarsson fór í magaermi í maí 2021. Í nóvember 2022 stóð hann helskafinn á sviði að keppa í vaxtarrækt og lét þar gamlan draum rætast. Draumur sem hann hélt að yrði alltaf bara óraunhæf óskhyggja. Ekki nóg með að fara á svið, heldur lenti hann í öðru sæti. Ótrúleg saga af dugnaði, elju, þrautseigju, jákvæðni og skynsemi hjá okkar manni. Heilsuvarpið er rækilega styrkt af NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Sat, 04 Feb 2023 - 1h 02min - 74 - #69 Sara Sigmunds Crossfit drottning
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, Crossfit drottning, sálfræðinemi, verðandi einkaflugmaður. Sara er hlý, kærleiksrík, fyndin og einlæg. Hún opnar sig um hvernig hún komst andlega í gegnum meiðslin á hnénu, hversu mikilvægt er að hrósa, og hvernig eitt hrós var þúfan sem velti þungu hlassi á hennar Crossfit ferli. Ótrúlega skemmtilegt viðtal við stórkostlega konu. Styrktaraðilar Heilsuvarpsins Nettó @netto.is Now á Íslandi @nowiceland
Mon, 02 Jan 2023 - 1h 08min - 73 - #68 Sveinn Gunnar Björnsson kírópraktor
Sveinn Gunnar Björnsson eða Svenni Kíró er kírópraktor hjá Kíró Lindum. Hann lærði í Atlanta Georgia, og glímdi sjálfur við bakmeiðsli ungur að árum. Svenni er gangandi fróðleiksmoli um allt sem viðkemur líkamsstöðu og beitingu í æfingum og daglegu lífi. Hann er líka einn af þremur frumkvöðlum sem settu á markað Kuldi Sleeve sem er kæliermi fyrir hné, olnboga og fleiri liði. Kuldi sleeve fæst t.d í Eirberg. @kirolindum @kuldi.cryo Heilsuvarpið er í boði Nettó og Now á Íslandi @netto.is @nowiceland
Wed, 30 Nov 2022 - 1h 02min - 72 - #67 Erlendur Rafnkell Crossfit Fenrir Elite
Í þessum þætti tala ég við Ella eiganda Fenrir Elite á Höfn í Hornafirði. Elli á magnaða sögu þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur glímt við þunglyndi kvíða, og fíkn en vann sig útúr því og stofnað Crossfit stöð sem fagnar mikilli velgengni. Sannarlega frumkvöðull sem á framtíðina fyrir sér, bæði sem elítu Krossfittari og slyngur viðskiptamaður. Skemmtilegt spjall við kláran og duglegan mann. Heilsuvarpið er í boði NETTÓ verslananna og NOW á Íslandi @nowiceland @netto.is
Wed, 16 Nov 2022 - 1h 35min - 71 - #66 - Gústi Hermanns - ADHD á fullorðinsárum
Gústi Hermanns er verkfræðingur sem glímdi við kulnun og í þvi ferli greindist hann með ADHD og það opnaði augu hans fyrir ýmsu úr æskunni. Hér segir hann frá einkennunum og hvernig er að vera með ADHD sem fullorðinn. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
Sat, 22 Oct 2022 - 1h 10min - 70 - #65 - Friðrik Agni Árnason dansari og hamingjusprengja
Friðrik Agni Árnason er dansari og annar eigandi Happy studios. Hér talar hann um lífshlaup sitt, starfið sitt og opnar sig á einlægan hátt um kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir snemma á lífsleiðinni og hvernig hann hefur unnið úr því áfalli. Heilsuvarpið er styrkt af NOW á Íslandi og Nettó @fridrikagni @nowiceland @netto.is
Thu, 06 Oct 2022 - 1h 19min - 69 - #64 Hinrik Páls - Lyftingar og mataræði
Hinrik Pálsson situr í stjórn Kraftlyftingasambands Íslands og er með næringarþjálfunargráðu frá Working against gravity. Hann veitir næringarráðgjöf hjá Fiercely fuelled nutrition. Hinrik hefur síðustu ár keppt í kraftlyftingum bæði hér heima og erlendis, og er einnig að klára nám til að fá þjálfararéttindi í greininni. Hann er með margar háskólagráður, BA í félagsfræði, MA í afbrotafræði, M.Sc í viðskiptafræði og starfaði í lögreglunni, sérsveitinni og hjá sérstökum saksóknara áður en hann sneri sér að bankastörfum. Allt um hvernig sé best að næra sig fyrir, á meðan og eftir lyftingaæfingar í þessum þætti. @hinrikpals @fiercelyfuelednutrition Heilsuvarpið er í boði Nettó og NOW á Íslandi @netto.is @nowiceland
Sat, 24 Sep 2022 - 1h 03min - 68 - #63 - Anna Claessen- Kulnun, streita, zumba og Jallabína
Anna Claessen glímdi við kulnun í starfi og persónulega lífinu en komst uppúr því með ýmiss konar aðstoð. Nú er hún að fara af stað með netnámskeið í streitustjórnun. Anna er dansari, fjölmiðlafræðingur, markþjálfi,einkaþjálfari, skemmtikraftur og prófessjónal peppari. Hún kennir Zumba og Jallabína og rekur Happy studios ásamt Friðriki Agna Árnasyni. @happystudiosiceland Heilsuvarpið er í boð Now á Íslandi og NETTÓ @NOWICELAND @NETTÓ.IS
Sat, 10 Sep 2022 - 1h 10min - 67 - #Breytingaskeið - Æfingar og mataræði
Margar konur klóra sér í hausnum hvernig þær eiga að haga æfingum og mataræði fyrir, á meðan, og eftir breytingaskeið. Því líkaminn breytist, hormónabúskapur breytist, insúlínnæmið breytist, líkamssamsetningin breytist. Og margar konur upplifa að þó þær æfi mikið og borði hollt sjái þær fitusöfnun á kvið og verra líkamsform eftir fertugt. Í þessum þætti tala ég um hvaða æfingar eru áhrifaríkastar fyrir konur, hversu mikið, hversu oft í viku, hvernig við nærum okkur fyrir og eftir æfingar og hvaða bætiefni virka fyrir konur. Heilsuvarpið er í boði Nettó verslananna og NOW á Íslandi. Vítamíndagar í Nettó 18-21. ágúst með 25% afslætti á vítamínum
Sat, 20 Aug 2022 - 33min - 66 - Ragga Nagli - Heilsuhegðun í sumarfríi
Í þessu sólókasti tala ég um að vera kortér í kulnun, nauðsyn þess að taka frí og hvernig við viðhöldum heilsuhegðun í sumarfríinu. Heilsuvarpið fór í smá marineringu í nokkra mánuði en snýr nú aftur í vetur með hvetjandi og fræðandi þætti. Styrktaraðilar Heilsuvarpsins @netto.is @nowiceland
Tue, 09 Aug 2022 - 34min - 65 - #60- Haraldur Holgersson Crossfit og Friends
Haraldur Holgersson er klárlega næsta karlkyns vonarstjarna Íslands í Crossfit heiminum. Hann hefur farið á Crossfit leikana sem unglingur og í liðakeppni. Hann æfir og þjálfar í Crossfit XY og stefnir á leikana sem einstaklingur 2022. Haraldur er líka manna fróðastur um Friends þættina. Þátturinn er í boði Nettó verslananna og NOW á Íslandi
Mon, 14 Mar 2022 - 1h 00min - 64 - #59- Rannveig Ásgeirs - Konur og hjartasjúkdómar
Í þessum þætti tala ég við Rannveigu Ásgeirsdóttir, verkefnastýru hjá GORED iceland sem er vitundarvakning um hjarta og æðasjúkdóma kvenna. Ungar konur eru í aukinni áhættu á háþrýstingi og sykursýki á meðgöngu og síðan seinni hluta ævinnar á breytingaskeiðinu. Febrúar er HJARTAMÁNUÐURINN og vill GÓRED hamra á að fólk þekki ættarsögu sína, sem og hin ýmsu gildi eins og blóðþrýsting, sykurstuðul o.s.frv. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi og Nettó verslananna @nowiceland @netto.is
Mon, 14 Feb 2022 - 1h 00min - 63 - #58-Helgi Ómars - Lífið eftir ofbeldissamband
Helgi Ómars er áhrifavaldur, frumkvöðull, ljósmyndari, en fyrst og fremst dásamleg mannvera og hugrökk hetja, en hann kom sér út úr margra ára ofbeldissambandi. Hann hefur unnið í sjálfum sér síðan, að styrkja sjálfsmyndina og sjálfstraustið og deilir hér hvað reyndist honum vel í þessari sjálfsvinnu og ráðleggingar til annarra í sömu stöðu. Þátturinn er tekinn upp í Podcaststöðinni @podcastodin Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi. @nowiceland Nettó verslanirnar styrkja Heilsuvarpið. @netto.is Heilsudagar hefjast 27. janúar með 25% afslætti af öllum vitamínum og heilsuvörum.
Tue, 25 Jan 2022 - 47min - 62 - #57-Daníel Gunnarsson- Magaermi, breyttar matarvenjur, líkamsímynd
Daníel Gunnarsson er smiður, og nemi í mannauðsstjórn og skipulagsstjórnun. M.Sc í Háskólanum í Reykjavík. Hann fór í magaermi í maí 2021. Hann talar hér um reynslu sína af þeirri aðgerð, breyttar matarvenjur með nýtt magarými, líkamsímynd sína, bæði fyrir og eftir aðgerð og einelti í æsku vegna vaxtarlags og margt fleira. Þátturinn er tekinn upp í Podcaststöðinni í Kópavogi @podcaststodin Þátturinn er í boði Nettó verslananna og NOW á Íslandi @netto.is @nowiceland
Wed, 12 Jan 2022 - 1h 13min - 61 - #56 Anna Marta - Næring, hreyfing, sorg
Anna Marta hefur gengið í gegnum barnsmissi og talar hér um hvernig heilbrigður lífsstíll og einstök jákvæð sýn á lífið hefur hjálpað henni að takast á við sorgina og lifa með henni. Anna Marta er með online þjálfun en einnig framleiðir hún pestó og Döðlumauk undir merkinu AnnaMarta og súkkulaðið Dásemd til styrktar Barnaspítala Hringsins. Þátturinn er í boði Nettó og NOW á Íslandi. @nowiceland @netto.is
Tue, 28 Dec 2021 - 1h 18min - 60 - #55 Júlían Jóhannsson - kraftlyftingakappi og heimsmethafi
Júlían Jóhann Karl Jóhannsson er fremsti kraftlyftingamaður Íslands en hann var kosinn íþróttamaður ársins 2019. Júlían setti heimsmetið í réttstöðulyftu í 120 + kg flokki en hann togaði 405.5 kíló upp frá jörðu árið 2019 í Dubai. Nýlega vann hann gull í réttstöðulyftu í Stavanger í Noregi. Kona Júlíans, Ellen Ýr, stundar einnig kraftlyftingar svo þetta er líklega sterkasta par Íslands. Þú getur fylgt Jóhanni á Instagram @julianjkj @jkpowerco @sbd_island ----------- Þátturinn er í boði NOW á Íslandi. Vörurnar má nálgast í netverslun á Hverslun.is og í öllum Nettó verslunum. @nowiceland @hverslun Nettó verslanirnar eru einnig styrktaraðili Heilsuvarpsins. Samkaupsappið veitir reglulega afslátt í formi inneignar af ýmsum vörum og einnig má greiða með appinu á kassanum. @netto.is
Thu, 09 Dec 2021 - 58min - 59 - #54 Hekla Guðmunds - Bandvefslosun, nudd og teygjur
Hekla Guðmundsdóttir er eigandi Bandvefslosun,is Hekla hefur hannað Body reroll, nýtt æfingakerfi sem sameinar teygjur, slökun, djúpteygjur og bandvefslosun. Hekla fræðir okkur um hvað bandvefur, hlutverk hans í líkamanum og mikilvægi þess að hugsa vel um hann með teygjum og nuddi og hvernig bandvefslosun minnkar verki og vöðvaspennu, bætir líkamsstöðu, eykur hreyfanleika, og undirbýr líkamann fyrir æfingar. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi og langar mig sérstaklega að benda á Heilsupakka Röggu Nagla á www.hverslun.is Pakkinn inniheldur rauðrófuduft, kreatín og efferhydrate töflur. @hverslun @nowiceland
Wed, 26 May 2021 - 56min - 58 - #54 Hjördís Ósk - Crossfit, næring, líkamsímynd
Hjördís Ósk er íþróttafræðingur, yfirþjálfari og framkvæmdastjóri Crossfit XY. Hún hefur tvisvar keppt á Crossfit leikunum. Hjördís á frækinn feril í íþróttum frá blautu barnsbeini, körfu, fótbolta frjálsum og sundi Sannkölluð ofurkona með mörg járn í eldinum. Þátturinn er sem fyrr í boð NOW á íslandi @nowiceland @hverslun
Sun, 16 May 2021 - 1h 03min - 57 - #53 Ásdís Hjálms spjótkastari- Hugarfar í íþróttum. Neikvæð ummæli.
Ásdís Hjálmsdóttir er lyfjafræðingur og fremsti spjótkastari Íslandssögunnar og keppt 3x á ÓL 2008, 2012 og 2016. Býr í Svíþjóð og er eigi kona einsömul. Hún talar um þjálfun á meðgöngu, hvernig er að lesa ummæli um sjálfa sig og hvort það sé sanngjarnt að ætlast til að það sé hluti af því að vera íþróttamaður að mynda þykkan skráp og mikilvægi hugarfarsins og sjónmynda þegar kemur að þjálfun. Ásdís rekur Afreksskólann þar sem hún gefur fólki verkfæri til að æfa hugarfarið fyrir hámarks árangur í sinni íþrótt. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi @nowiceland Nú er hægt að fá æfingapakka Röggu Nagla á Hverslun.is @hverslun
Sun, 25 Apr 2021 - 1h 12min - 56 - #52 Árni Björn - Lyftingar - Crossfit - Langveikt barn
Árni Björn Kristjánsson eigandi og stöðvarstjóri að Crossfit XY. Árið 2009 var hann var 130 kg með of háan blóðþrýsting og missti 30 kg á örfáum mánuðum í CrossFit. Hann talar hér um Lyftingar, CrossFit og Árni Björn og kona hans eiga langveikt barn og í þessum þætti opnar hann sig um hvernig þau hafa þurft að berjast við kerfið til að sækja réttindi sín. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi @nowiceland @hverslun
Fri, 02 Apr 2021 - 1h 04min - 55 - #52- Silja Úlfars - Hlaupastíll, hlaupatækni og ofþjálfun
Silja úlfars er frjálsíþróttakona er þekktust sem spretthlaupari í 100-200 og 400 m vegalengdum. Silja hefur lagt keppnisskóna á hilluna og sinnir nú námskeiðahaldi í hlaupatækni og hlaupastíl Ég ráðlegg öllum að draga fram glósubækurnar og blýantinn því í þessum þætti eys hún úr viskubrunninum og dælir úr reynslubankanum góðum ráðum til að hámarka hlaupaþjálfunina. En hún talar líka um þegar hún æfði sig í ofþjálfun og upplifði rhabdomyolosis eða rákvöðvalýsu þar sem vöðvarnir brotna niður mjög hratt eftir erfiðar æfingar. Fróðlegur þáttur með stórkostlega gáfaðri og skemmtilegri konu. Instagram: @siljaulfars www.siljaulfars.is Þátturinn er í boði NOW á Íslandi www.nowfoods.is @nowiceland
Mon, 15 Mar 2021 - 1h 16min - 54 - #51- Björgvin Karl Crossfittari -næsti arftaki Matt Fraser?
Björgvin Karl Guðmundsson hefur keppt á Crossfit heimsleikunum síðan árið 2014 og tvisvar komist þar á pall í þriðja sætið. Hann er án efa skærasta karlkyns Crossfit stjarna okkar Íslendinga. Björgvin er konungur Hveragerðis þar sem hann æfir og þjálfar í Crossfit Hengill sem bróðir hans og mágkona eiga og reka. Hvernig er hann að þjálfa fyrir Open og heimsleikana, hvaða veikleika er hann að vinna í og hvernig hann spjallar við sjálfan sig í hausnum gegnum sataníska æfingahringi. @bk_gudmundsson Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi. @nowiceland @hverslun
Tue, 23 Feb 2021 - 1h 07min - 53 - #50 Þuríður Erla - Crossfit, lyftingar, bætiefni, svefn
Þuríður Helgadóttir Crossfitdrottning kíkti í Heilsuvarpið. Hún er að undirbúa sig fyrir undankeppni Heimsleikanna í Crossfit. Þuríður býr í Sviss og þjálfar í Crossfit zug. Þuríður byrjaði að æfa í Crossfit Sporthúsinu 2010 og þjálfaði þar frá 2012 og hefur keppt á heimsleikunum fimm sinnum. Fylgstu með Þuríði á @thurihelgadottir á instagram. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi @hverslun @nowiceland Í Hverslun fæst Converse, speedo sundfatnaði, INIKA snyrtivörum og HOudini sænsku útivistarfötin.
Mon, 08 Feb 2021 - 1h 07min - 52 - #49 - Að eiga barn með kvíða: Biggi og Linda
Biggi og Linda kíktu í Heilsuvarpið til að segja frá hvernig er að eiga barn með kvíða. Hvaða mistök þau gerðu. Hvaða hegðuna þau tóku eftir sem ýttu undir grunsemdir um að jafnvel ættu sér rætur í andlegum kvillum frekar en líkamlegum. Þau miðla hér ráðleggingum hvernig við getum búið til gott umhverfi á heimilinu, og hvetjum frekar en að beita pressu. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi. www.nowfoods.is @nowiceland Mæli sérstaklega með burnirót til að minnka kvíðaeinkenni og lækka kortisólið. 25% afsláttur á Heilsudögum Nettó 24. janúar til 7. febrúar.
Mon, 01 Feb 2021 - 1h 09min - 51 - #48 Birna Varðar - Átraskanir og hlutfallslegur orkuskortur
Birna er með BS gráðu í næringarfræði frá HÍ og meistargráðu í þjálffræðivísindum með íþróttanæringarfræði sem sérsvið frá Maastricht háskóla í Hollandi. Hún stundar nú doktorsnám í íþrótta-og heilsufræði við HÍ. Í þessum þætti talar hún um doktorsverkefnið sitt um hlutfallslegan orkuskort í íþróttum sem þýðir í raun að næra sig ekki nóg í samræmi við hreyfinguna. Birna glímdi sjálf við átröskun og ofþjálfun á yngri árum sem hlaupari og miðlar hér af reynslu sinni að öðlast ró í kringum mat og æfingar. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi @nowiceland www.nowfoods.is Mæli með hlaupafötunum frá CWX í Eirberg. www.eirberg.is
Sat, 16 Jan 2021 - 1h 02min - 50 - Fannar Karvel - Ræktin lokuð. Hvað þýðir það fyrir eigendur og iðkendur?
Fannar Karvel er íþróttafræðingur, styrktarþjálfari HSÍ, kennari í Háskóla Reykjavík og eigandi Spörtu heilsuræktar. Hann talar hér um hvað lokun líkamsræktarstöðva í COVID hefur þýtt fyrir hann sem eiganda og hvaða áhrif það hefur á iðkendur og almenna lýðheilsu landans. Hvaða lausnir hann sér í stöðunni til að geta opnað aftur og hvaða ráðstöfunum þyrfti að fylgja. @spartarvk Facebook: Sparta Reykjavík Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég spjalla sjálf eða fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann ragganagli79@gmail.com ef þig vantar sálfræðiaðstoð eða sálfræðilega mataræðisráðgjöf Facebook/RaggaNagli Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’ Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur Þátturinn er í boði NOW á Íslandi sem fást í Nettó, Hverslun og www.nowfoods.is @nowiceland
Tue, 05 Jan 2021 - 1h 12min - 49 - #46 Jól Í Núvitund
Við eyðum fleiri klukkustundum, jafnvel sólarhringum og dögum í að hugsa um mat. Versla í matinn. Elda matinn. Skera. Preppa. Undirbúa. Leggja á borð. Ganga frá eftir mat. En sjálf athöfnin að borða. Athöfnin sem við öll elskum. Hún tekur innan við fimmtán mínútur. Á hraða örbylgjunnar er matnum andað að sér. Upplifum ekki bragðið, lyktina og kryddin. Þessi þáttur kennir okkur verkfæri núvitundar til að hægja á okkur við að borða og njóta matarins útfrá ástarsambandi við mat. Við viljum eiga gæðastundir með mat og sætindum og sælgæti þessi jólin og verða þannig sáttari með minna magn og koma útúr hátíðunum sáttari á sál og líkama. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi og mæli ég sérstaklega með rauðrófudufti til að auka úthald og þol í útihlaupunum nú þegar ræktin er lokuð. @nowiceland www.nowfoods.is www.hverslun.is @hverslun
Sun, 20 Dec 2020 - 30min - 48 - #46 Árni sálfræðingur - COVID Kvíði
Í þessum þætti tölum við Árni sálfræðingur um COVID kvíða. Margir eru að glíma við óvissu, hræðslu við veiruna, kvíða yfir að smitast, ótta við smitskömm, einmanaleika, fjárhagslegt óöryggi og margt fleira tengt þessum heimsfaraldri. Við Árni förum yfir hvað er kvíði, hvernig getum við tæklað hann og hvernig getum við minnkað hann. En fyrst og fremst að við normalíserum að okkur líði illa og ekkert er eðlilegra á fordæmalausum tímum. Ég mæli sérstaklega með Lumie vekjaraklukkunni frá Eirberg sem vekur þig smám saman með að lýsa upp rýmið og eykur dægurhormónin kortisól og adrenalín hægt og rólega. www.eirberg.is Þátturinn er í boði NOW á Íslandi. www.nowfoods.is @nowiceland @hverslun
Sat, 12 Dec 2020 - 1h 06min - 47 - #45 Hvernig gerirðu hollar máltíðir gúrmetisgómsæti?
Hvernig gerirðu heilsusamlegar máltíðir að jólaballi í munninum á þér? Hvernig býrðu til langvarandi heilbrigt samband við mat með að njóta hverrar einustu máltíðar? Hvernig hækkarðu fullnægingarfaktorinn í daglegu máltíðunum þínum til að koma í veg fyrir ofát seinna meir? í þessu sólóvarpi færðu allskonar hugmyndir, verkfæri, tæki og tól frá Röggu Nagla til að gera hverja máltíð að kúlínarískri fullnægingu. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi @nowiceland www.nowfoods.is @hverslun Njótið. Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég spjalla sjálf eða fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann ragganagli79@gmail.com ef þig vantar sálfræðiaðstoð eða sálfræðilega mataræðisráðgjöf Facebook/RaggaNagli Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’ Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur Afsláttarkóðar: Veganbúðin: ragganagli = 10%
Sun, 06 Dec 2020 - 32min - 46 - #44 Árni sálfræðingur - Impostor Syndrome
Í þessum þætti tölum við Árni sálfræðingur um loddaralíðan eða Impostor syndrome sem lýsir sér í að við erum haldin viðvarandi hræðslu um að það komist upp um okkur sem loddara í starfi og daglegu lífi, því við séum að blekkja aðra um hæfileika, færni og þekkingu. Sálfræðingarnir Pauline Clance og Suzanne Imes komu með þetta hugtak 1978 eftir að hafa séð þessar tilfinningar og hugsanir koma ítrekað fram hjá sínum skjólstæðingum. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi @nowiceland Njótið. Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég spjalla sjálf eða fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann ragganagli79@gmail.com ef þig vantar sálfræðiaðstoð eða sálfræðilega mataræðisráðgjöf Facebook/RaggaNagli Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’ Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur Afsláttarkóðar: Veganbúðin: ragganagli = 10% www.goodgoodbrand.net: ragganagli20
Mon, 16 Nov 2020 - 1h 00min - 45 - #43 Helgi Ómars - Meðvirkni í samböndum
Í þessum þætti tölum við Helgi Ómars um hvernig meðvirkni kemur fram í samböndum og þróast ómeðvitað í samskiptamynstri milli tveggja aðila. Við tölum um hvernig Helgi er smám saman að vinna sig útúr sinni meðvirkni og standa betur með sjálfum sér eftir nýleg sambandsslit og finna sín gildi og markmið aftur. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi www.nowfoods.is @nowiceland
Sun, 08 Nov 2020 - 54min - 44 - #42 - Biggi þjálfari - Spurt Og Svarað
Biggi þjálfari kom í heimsókn í Heilsuvarpið til að svara spurningum sem fólk sendi á instagram og við völdum fimm úr bunkanum sem kom inn í gegnum skilaboðin. Fáir eru jafn hoknir af reynslu og Biggi þegar kemur að þjálfun, því hann hefur yfir 20 ára reynslu og ekki þjálfað þúsundir heldur tugþúsundir. Hann stofnaði og rak Boot Camp stöðvarnar um árabil, en þar áður sleit hann barnsskónum í hinu legendary GYM 80 innan um kanónur eins og Jón Pál, Hjalta Úrsus, Magnús Ver og Jón bónda. Frábær þáttur með einstökum manni. Vonandi getið þið bætt einhverju við vopnabúrið ykkar í heimaæfingum og haldið áfram að taka á því utandyra, í ræktinni, heima í stofu, í bílskúrnum, úti í garði, úti á túni eða hvar sem er. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi sem flytja inn NOW vörurnar sem eru hágæða hrein bætiefni sem stuðla að hámarks árangri án óæskilegra aukefna. www.nowfoods.is Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég spjalla sjálf eða fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann ragganagli79@gmail.com ef þig vantar sálfræðiaðstoð eða sálfræðilega mataræðisráðgjöf Facebook/RaggaNagli Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’ Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur
Sat, 24 Oct 2020 - 1h 02min - 43 - #41 Bjöddi þjálfari- Heimaæfingar
Nú þegar ræktin er lokuð aftur í COVID vantar marga innblástur og hugmyndir fyrir heimaæfingar eða útiæfingar. Björn Þór Sigurbjörnsson þjálfari í World Class miðlar hér af reynslu og þekkingu til að halda mótivasjóninni og nýjungum í ræktarrútínunni þó dyrnar að líkamsræktarstöðvum séu skelltar í lás. Þátturinn er í boð NOW á Íslandi.
Sun, 18 Oct 2020 - 1h 03min - 42 - #40 - Kvíði með Steinunni Önnu sálfræðingi
Steinunn Anna er sálfræðingur hjá Litlu Kvíðameðferðarstöðinni og kennari í Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur sérhæft sig í kvíða hjá börnum og fullorðnum sem og áráttu og þráhyggju. Við tölum um kvíða í þessum þætti og hvernig við getum tæklað hann þegar hann dúkkar upp. Hvernig getum við berskjaldað okkur fyrir kvíða og sannað fyrir okkur að kvíðinn er oft verri í hausnum en í raunveruleikanum. Njótið. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi @nowiceland Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég spjalla sjálf eða fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann ragganagli79@gmail.com ef þig vantar sálfræðiaðstoð eða sálfræðilega mataræðisráðgjöf Facebook/RaggaNagli Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’ Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur Afsláttarkóðar: Veganbúðin: ragganagli = 10%
Sat, 26 Sep 2020 - 1h 14min - 41 - Grunnbrennslan #2 - hvernig fær maður hærri grunnbrennslu?
Hvernig hröðum við á grunnbrennslunni? Hvað veldur hægri grunnbrennslu? Hvaða hlutverki gegna hormónar í grunnbrennslunni? Af hverju er mikilvægt að borða meira? Hvernig bökkum við útúr því að vera í megrun yfir í að borða meira og auka þannig grunnbrennsluhraðann. Af hverju eru lyftingar svona mikilvægar fyrir grunnbrennsluna. Þessum spurningum og fleiri er svarað í þessum þætti af Heilsuvarpinu sem er í boði NOW á Íslandi.
Wed, 16 Sep 2020 - 56min - 40 - Að Setja Mörk
Í þessum þætti tölum við Helgi Ómars um hvernig og hvenær við setjum mörk gagnvart öðru fólki til að auka sjálfstraustið og hækka sjálfsvirðinguna. Hvaða orð notum við fyrir uppbyggileg samskipti Hvaða orð eru eitruð og keyra upp ágreining. Hvers vegna erum við hrædd við að setja öðru fólki mörk. Hvernig getum við yfirstigið þann ótta. Vonandi hafið þið gagn og gaman að. Þátturinn er í boði Now á Íslandi. Mæli sérstaklega með ZMA fyrir aukna endurheimt eftir æfingu. www.nowfoods.is www.hverslun.is
Sat, 29 Aug 2020 - 55min - 39 - #37 - Ræktarkvíði
Við finnum öll fyrir ræktarkvíða á einhverjum tímapunkti. Sérstaklega byrjendur eða þeir sem eru að æfa aftur eftir langt hlé. Við ímyndum okkur að við séum fyrir, að við séum asnaleg eða gerum okkur að fífli. Í þessum þætti ræðum við Helgi Ómars um verkfæri sálfræðinnar til að yfirstíga kvíða, og kúplað hreyfingu inn í daglegt líf án þess að óttast álit annarra meðan við svitnum í sölum ræktar. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi www.nowfoods.is www.hverslun.is Instagram: @hverslun @nowiceland
Mon, 24 Aug 2020 - 1h 01min - 38 - #36- Þarmaflóran með Birnu G. Ásbjörns
Allir sjúkdómar byrja í þörmunum sagði Hippókrates. Þessi þáttur er algjör bomba. Allt sem þú þarft að vita um heilbrigða þarmaflóru. Hver eru einkenni óheilbrigðrar þarmaflóru. Hvaða matvæli eru góð fyrir okkur og hvað er slæmt fyrir þarmaflóruna. Hvaða bætiefni eru góð fyrir þarmaflóruna og hvað er peningasóun. Hvað er lekir þarmaveggir og hvernig lögum við það Í þessum þætti tala ég við Birnu G. Ásbjörnsdóttur sem svarar öllum þessum spurningum um mikilvægasta líffæri líkamans og hefur verið svo mikið rannsakað síðustu árin. Birna er er með meistaragráðu í næringarlæknisfræði frá Surreyháskóla og lokið námi í gagnreyndum heilbrigðisvísindum frá Oxfordháskóla. Birna veitir ráðgjöf og fræðslu til einstaklinga, fagaðila og fyrirtækja hérlendis og erlendis. Birna stundar nú doktorsnám við læknadeild og matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Birna heldur úti heimasíðunni Jorth.is þar sem pistlarnir eru ætlaðir til fróðleiks og þekkingarauka fyrir þá sem vilja taka upplýstar ákvarðanir varðandi heilsu. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi @nowiceland Njótið. Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég spjalla sjálf eða fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann ragganagli79@gmail.com ef þig vantar sálfræðiaðstoð eða sálfræðilega mataræðisráðgjöf Facebook/RaggaNagli Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’ Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur Afsláttarkóðar: Veganbúðin: ragganagli = 10% www.nowfoods.is: ragganagli20 Hverslun.is ragganagli20 = 20% www.goodgoodbrand.net: ragganagli20
Sun, 05 Jul 2020 - 1h 01min
Podcasts semelhantes a Heilsuvarpid
El Partidazo de COPE COPE
Herrera en COPE COPE
La Linterna COPE
Es la Mañana de Federico esRadio
La noche de Cuesta esRadio
La Trinchera de Llamas esRadio
Hondelatte Raconte Europe 1
Affaires sensibles France Inter
LEGEND Guillaume Pley
El colegio invisible OndaCero
La Rosa de los Vientos OndaCero
Les grands dossiers de l'Histoire par Franck Ferrand Radio Classique
Espacio en blanco Radio Nacional
Entrez dans l'Histoire RTL
Le grand récit RTL
Les Grosses Têtes RTL
L'Heure Du Crime RTL
Parlons-nous RTL
El Larguero SER Podcast
Nadie Sabe Nada SER Podcast
SER Historia SER Podcast
Todo Concostrina SER Podcast
Un Libro Una Hora SER Podcast
HISTORIAS DE LA HISTORIA VIVA RADIO
