Filtrar por género

Umhverfismál-Hlaðvarp

Umhverfismál-Hlaðvarp

Aðalheiður Ella Ásmundsdóttir

Hlaðvarp þar sem Aðalheiður Ella ræðir allt um umhverfismál. Hún talar á mjög léttum nótum og vill að hlustendum líði eins og þeir séu að tala við vin sinn. Ekki of mikið af flóknum og stórum tölum. Frá veganisma til skógarelda. Til að vera viss um að vita strax og kemur nýr þáttur er hægt að fylgja instagram síðu hlaðvarpsins. @umhverfismal_hladvarp

9 - Hvernig gerist maður vegan? Af hverju á ég að gerast vegan? Hvað er veganismi? (þáttur 8)
0:00 / 0:00
1x
  • 9 - Hvernig gerist maður vegan? Af hverju á ég að gerast vegan? Hvað er veganismi? (þáttur 8)

    Aðalheiður ræðir um allt sem gott er að vita þegar maður tekur fyrsta skrefið í átt að vegan lífstíl. Hún segir frá sínu vegan ferðalagi, hvatningum og ástæðum fyrir að gerast vegan, hvað maður á eiginlega að borða og mælir með fullt af skemmtilegu og fróðlegu vegan efni.

    Mon, 17 Jan 2022 - 26min
  • 8 - HAPPY NEW YEAR! (þáttur 7)

    In this episode Aðalheiður talks to Steffi about how to be more sustainable in 2022 and little goals you can set for yourself. They also talk a little bit about how to be more sustainable on new years eve. Steffi is known for living a zero waste lifestyle which she explaines in the episode. This episode is in English but all other episode of Umhverfismál-Hlaðvarp are in Icelandic!
    Steffi's instagram: @wastefreesteffi
    This podcasts instagram: @umhverfismal_hladvarp

    Icelandic/íslenska: í þessum þætti spjallar Aðalheiður við Steffi um hvernig maður getur verið umhverfisvænni 2022 og sett sér markmið í tengslum við það. Þær tala líka aðeins um hvernig maður getur verið umhverfisvænni á gamlárskvöld. Steffi er þekkt fyrir að lifa ,,zero waste" lífstíl sem hún útskýrir í þættinum. Þessi þáttur er á ensku en allir hinir þættirnir af Umhverfismál-Hlaðvarpinu eru á íslensku!
    Instagramið hennar Steffi: @wastefreesteffi
    Umhverfismál-Hlaðvarp instagram: @umhverfismal_hladvarp

    Mon, 27 Dec 2021 - 29min
  • 7 - Allt um fyrirtækið Súrefni, kolefnisbinding, jöfnun, fótspor o.fl. (þáttur 6)

    Í þessum þætti ræðir Aðalheiður við Ariel Jóhann Árnason sem er framkvæmdarstjóri fyrirtækissinns Súrefni. Þau útskýra hvað alls konar flókin hugtök eins og kolefnisfótspor, kolefnisbinding, kolefnisjöfnun o.fl. þýða. Einnig segir Ariel frá því hvernig súrefni getur hjálpað þér að draga úr kolefnisfótsporinu þínu.

    Mon, 20 Dec 2021 - 24min
  • 6 - Hvernig heldur maður umhverfisvænni jól? (þáttur 5)

    Hó Hó Hó...Gleðileg jól. Í þessum þætti ræðir Aðalheiður Ella við KristínuHelgu Schiöth um hvernig maður getur haldið umhverfisænni og friðsælli jól. Þær gefur mörg frábær ráð um hvernig maður getur verið umhverfisvænni í mörgum mismunandi hlutum jólahaldsinns t.d. ráð tengd jólamatnum og gjöfunum. 

    Mon, 06 Dec 2021 - 29min
  • 5 - Landvernd (þáttur 4)

    Í þessum þætti ræðir Aðalheiður Ella við Auði Önnu Magnúsdóttur framkvæmdarstjóra landverndar um samtökin Landvernd. Þær spjalla um margt sem Landvernd gerir. Einnig gefur Auður nokkur ráð um hvernig maður getur verið umhverfisvænni og hvernig maður getur haldið umhverfisvænni jól.

    Tue, 30 Nov 2021 - 19min
Mostrar más episodios