Filtrer par genre

Besta sætið

Besta sætið

bestasaetid

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

215 - 28. okt - Leitin að þjálfara Blika og umhverfissóðar eltir uppi
0:00 / 0:00
1x
  • 215 - 28. okt - Leitin að þjálfara Blika og umhverfissóðar eltir uppi

    Leit Blika að nýjum þjálfara er í hámarki og margir um hituna. Besta sætið fer yfir stöðuna í þjálfaramálunum. Ræðir einnig óvænt tap Arsenal í gær og svo er Orri Steinn orðaður við Everton. Passið ykkur svo ef þið kastið rusli út um gluggann. Besta sætið mun elta ykkur uppi.

    Wed, 28 Oct 2026
  • 214 - 27. okt - Þjálfaramál Blika og Stjörnunnar og hvað með Carrick?

    Stjarnan er búin að tilkynna nýjan þjálfara formlega sem og nýjan yfirmann knattspyrnumála. Blikar eru í þjálfaraleit og standa á tímamótum. Michael Carrick lifði gærdaginn af sem þjálfari Man Utd og mun stýra liðinu um næstu helgi.

    Tue, 27 Oct 2026
  • 213 - Veigar Páll fer yfir lyfjaprófsmálið

    Körfuboltamaðurinn Veigar Páll Alexandersson hefur verið dæmdur í tólf mánaða keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi síðastliðið vor. Hann spilar því líklega ekkert með Njarðvík á þessari leiktíð í Bónusdeildinni. Veigar tók ADHD-lyf í tengslum við próflestur síðasta vor og það mældist í lyfjaprófi eftir leik með Njarðvík gegn Grindavík í úrslitakeppninni síðastliðið vor. Við hittum Veigar á heimili hans í Njarðvík.

    Tue, 27 Oct 2026
  • 212 - 26. okt - Leikmenn Man. Utd eru vandamálið og hvað gerist eiginlega hjá KA?

    Michael Carrick hefur væntanlega stýrt sínum síðasta leik með Man. Utd. Stuðningsmenn kenna honum ekki um lélegt gengi liðsins. Besta deild karla er búin og KA stendur frammi fyrir stórum spurningum á næstu vikum.

    Mon, 26 Oct 2026
  • 211 - Amin Cosic - Frá Lengjudeild í Meistaradeild á 15 mánuðum

    Amin Cosic varð í vikunni nítjándi Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild Evrópu er hann kom inn á sem varamaður með Noregsmeisturum Viking gegn Aston Villa á Villa Park. Aðeins 15 mánuðir eru síðan hann lék með Njarðvík í Lengjudeildinni hér á landi og uppgangur hans verið hreint lygilegur, enda kominn í Meistaradeildina með viðkomu í KR á skömmum tíma. Að baki er mikil vinna en Amin bætti á sig átta kílóum af vöðvum á undirbúningstímabilinu með KR síðasta vetur og tala menn í Vesturbænum um að þeir hafi vart séð leikmann bæta sig eins ört á skömmum tíma. Valur Páll Eiríksson ræddi þennan öra uppgang við Amin stuttlega í Besta sætinu.

    Sat, 24 Oct 2026
Afficher plus d'épisodes