Nach Genre filtern
Besta sætið

- 215 - 28. okt - Leitin að þjálfara Blika og umhverfissóðar eltir uppi
Leit Blika að nýjum þjálfara er í hámarki og margir um hituna. Besta sætið fer yfir stöðuna í þjálfaramálunum. Ræðir einnig óvænt tap Arsenal í gær og svo er Orri Steinn orðaður við Everton. Passið ykkur svo ef þið kastið rusli út um gluggann. Besta sætið mun elta ykkur uppi.
Wed, 28 Oct 2026 - 214 - 27. okt - Þjálfaramál Blika og Stjörnunnar og hvað með Carrick?
Stjarnan er búin að tilkynna nýjan þjálfara formlega sem og nýjan yfirmann knattspyrnumála. Blikar eru í þjálfaraleit og standa á tímamótum. Michael Carrick lifði gærdaginn af sem þjálfari Man Utd og mun stýra liðinu um næstu helgi.
Tue, 27 Oct 2026 - 213 - Veigar Páll fer yfir lyfjaprófsmálið
Körfuboltamaðurinn Veigar Páll Alexandersson hefur verið dæmdur í tólf mánaða keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi síðastliðið vor. Hann spilar því líklega ekkert með Njarðvík á þessari leiktíð í Bónusdeildinni. Veigar tók ADHD-lyf í tengslum við próflestur síðasta vor og það mældist í lyfjaprófi eftir leik með Njarðvík gegn Grindavík í úrslitakeppninni síðastliðið vor. Við hittum Veigar á heimili hans í Njarðvík.
Tue, 27 Oct 2026 - 212 - 26. okt - Leikmenn Man. Utd eru vandamálið og hvað gerist eiginlega hjá KA?
Michael Carrick hefur væntanlega stýrt sínum síðasta leik með Man. Utd. Stuðningsmenn kenna honum ekki um lélegt gengi liðsins. Besta deild karla er búin og KA stendur frammi fyrir stórum spurningum á næstu vikum.
Mon, 26 Oct 2026 - 211 - Amin Cosic - Frá Lengjudeild í Meistaradeild á 15 mánuðum
Amin Cosic varð í vikunni nítjándi Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild Evrópu er hann kom inn á sem varamaður með Noregsmeisturum Viking gegn Aston Villa á Villa Park. Aðeins 15 mánuðir eru síðan hann lék með Njarðvík í Lengjudeildinni hér á landi og uppgangur hans verið hreint lygilegur, enda kominn í Meistaradeildina með viðkomu í KR á skömmum tíma. Að baki er mikil vinna en Amin bætti á sig átta kílóum af vöðvum á undirbúningstímabilinu með KR síðasta vetur og tala menn í Vesturbænum um að þeir hafi vart séð leikmann bæta sig eins ört á skömmum tíma. Valur Páll Eiríksson ræddi þennan öra uppgang við Amin stuttlega í Besta sætinu.
Sat, 24 Oct 2026 - 210 - 23. okt - Lyfjamál Veigars, hvort fellur KA eða Þór og jólasöngur
Besta sætið er komið í hátíðarskap og tók nokkur vel valin jólalög. Lyfjamál Veigars Páls í Njarðvík var útskýrt í þaula, spáð í botnbaráttu Bestu deildar karla og einnig rennt yfir körfuboltann.
Fri, 23 Oct 2026 - 209 - 22. okt - Ruglið hjá Man. Utd krufið og er Grindavík búið að ná botninum?
Það er hver höndin upp á móti hver annarri hjá Man. Utd og frammistaðan gegn Como í gær var hreinasta hörmung. Grindavík og Stjarnan eru í leit að fyrsta sigrinum í körfunni og Aron Sigurðarson þarf að skora um helgina.
Thu, 22 Oct 2026 - 208 - 21. okt - Van Dijk í ruglinu, ÍA fær að heyra það og hættið að skrifa á ensku
Skammarbréf mótanefndar KSÍ til ÍA var stórskemmtilegt en ekki verður aftur spilað á einu sögufrægasta grasi Íslands. Meistaradeildin var frábær og leikmenn sem leggja skóna á hilluna og skrifa það á ensku fá skammir.
Wed, 21 Oct 2026 - 207 - 20. okt - Grindjánar pakksaddir, Blikastelpur bestar og bilun í Bakgarðinum
Ömurleg byrjun á körfuboltavetrinum hjá Íslandsmeisturum Grindavíkur, Breiðablik tók af okkur úrslitaleikinn í Bestu kvenna, ótrúlegt bakgarðshlaup, hræðileg meðferð á Jalen Hurts og Meistaradeildin.
Tue, 20 Oct 2026 - 206 - 19. okt - Kane lentur, enski, Besta og Bakgarðurinn
Af nægu að taka í dag. Þór getur fellt KA, United getur ekkert í enska, Kane lentur og gæti spilað fyrir Grindavík í kvöld og ótrúlegir Bakgarðshlauparar.
Mon, 19 Oct 2026 - 205 - 16. okt - Óvænt lausir miðar á HM og fótbolti í fárviðri
Leikir helgarinnar í Bestu deildunum gætu orðið skrautlegir enda hljómar spáin upp á mikið rok og búið að færa fjölda leikja til. Það gæti ekki dugað til að sleppa við veðurofsann. Bakgarðurinn er einnig í beinni á Vísi og verður áhugavert að sjá okkar bestu bakgarðshlaupara berjast við vindinn. Viðtalið íþróttadeildar við Arnar Gunnlaugsson ber einnig á góma og svo kom í ljós að það eru til miðar á HM í handbolta.
Fri, 16 Oct 2026 - 204 - Arnar Gunnlaugs ræðir agabrot landsliðsmanna
Agabrot landsliðsmanna á dögunum er ekki í fyrsta skipti sem upp hefur komið mál í landsliðsþjálfaratíð Arnars Gunnlaugssonar. Hans fyrstu viðbrögð voru að reka umrædda leikmenn heim en ljóst sé að skömm þeirra sé nægilega mikil refsing. Arnar er sáttur við hvernig tekið hefur verið á málinu, því sé nú lokið en hafi haft áhrif á frammistöðu liðsins í leik gegn Eistum.
Fri, 16 Oct 2026 - 203 - 15. okt - Arnar Gunnlaugsson opnar sig og hvað er Inga Sæland að spá?
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari fer ítarlega yfir agabrot íslenska landsliðsins í viðtali við íþróttadeild Sýnar í dag. Besta sætið fer yfir málið, gerir upp Meistaradeildina og skammar Ingu Sæland fyrir að leyfa ekki atvinnuhnefaleika á Íslandi.
Thu, 15 Oct 2026 - 202 - 14. okt - Heimir sagður á leið til ÍA
Heimir Guðjónsson er sagður vera næsti þjálfari ÍA og svo gerði Lisandro Martinez, leikmaður Man. Utd, allt vitlaust eftir leik gegn Atletico í gær. Stelpurnar okkar afgreiddu svo Króatíu með miklum glæsibrag.
Wed, 14 Oct 2026 - 201 - 13. okt - Meistaradeildin, landsleikur, formúla og ballet... já, ballet
Það er svo sannarlega víða komið við í Besta sætinu í dag. Stelpurnar okkar spila landsleik á eftir og eiga að klára það verkefni. Man. Utd fær risaverkefni í Meistaradeildinni og Hákon Arnar heimsækir Arsenal. Formúlan til Afríku og svo er rætt um balletviðburð ársins.
Tue, 13 Oct 2026 - 200 - 12. okt - Áhugalausir Valsmenn og endalaust þrot hjá Man. UtdMon, 12 Oct 2026
- 199 - 9. okt - Agabrot landsliðsmanna og boltinn rúllar á ný
Agabrot leikmanna karlalandsliðsins hafa verið í fréttum í dag en lítið kemur um málið frá KSÍ. Landsliðsþjálfarinn ætlar ekki að tjá sig strax. Enski boltinn og Besta deildin fara aftur í gang um helgina og því fagna mjög margir.
Fri, 09 Oct 2026 - 198 - 8. okt - Upphitun fyrir Bónus karla
Bónus-deild karla hefst í kvöld. Besta sætið vill mæk á dómarana og enginn virðist vita hvar DeAndre Kane er.
Thu, 08 Oct 2026 - 197 - 7. okt - Uppgjör á slökum leik gegn Eistum
Ísland gerði markalaust jafntefli gegn Eistlandi ytra í gær. Leikurinn var arfaslakur af hálfu íslenska liðsins. Lionel Messi kvaddi svo argentínska landsliðið formlega í gær.
Wed, 07 Oct 2026 - 196 - 6. okt - Krefjumst sigurs í Tallin
Ísland sækir Eistland heim þar sem toppsætið er undir. Sigur er líka mikilvægur upp á að komast á næsta stórmót. Sú staða er vel skoðuð og svo er stutt karaoke horn einnig í þættinum.
Tue, 06 Oct 2026 - 195 - 5. okt - Gylfi spilar rifbeinsbrotinn og Heimir stóð í ströngu
Fókus dagsins er á landsleik Eistlands og Íslands sem fer fram á morgun. Það er krafa á sigur frá Besta sætinu. Heimir Hallgrímsson er farinn í langþráð frí eftir hasar síðustu daga. Bónusdeild karla hefst á fimmtudag og er hitað upp á Sýn Sport í kvöld.
Mon, 05 Oct 2026 - 194 - 2. okt - Arnar stígur varlega til jarðar og spáin í Bónus
Landsleikur gegn Búlgaríu á morgun og Arnar Gunnlaugsson er varkár í yfirlýsingum. Álftnesingum er spáð deildarmeistaratitlinum í körfu karla og fallið klárast í Bestu kvenna í kvöld.
Fri, 02 Oct 2026 - 193 - 1. okt - Ronaldo og frekjukastið stóraThu, 01 Oct 2026
- 192 - 30. sept - Man City og Lúxus í Lúx
Það var nóg að fara yfir í Besta sætinu þennan miðvikudag. Landsliðið okkar vann góðan sigur á Lúxemborg og svaraði rækilega fyrir slæman leik gegn Eistum um helgina. Manchester City er þá á allra vörum. Á landsliðið að þurfa Gylfa Þór Sigurðsson til að halda liðinu gangandi? Það var í það minnsta allt annað að sjá til liðsins með hann innanborðs í gær. Hvar á maður svo að byrja á þessu Manchester City-máli? Það eru ævintýralega margir vinklar á því. Valur Páll Eiríksson, Sindri Sverrisson og Smári Jökull Jónsson fóru yfir málin í Besta sætinu.
Wed, 30 Sep 2026 - 191 - 29. sept - Pressa á Arnari
Pressa er á Arnari Gunnlaugssyni, landsliðsþjálfara, sem og karlalandsliðinu í fótbolta fyrir útileik við Lúxemborg í dag. U21 árs landsliðið mætir þá Sviss í leik sem þarf að vinnast ef EM vonin á að lifa. Valur Páll Eiríksson, Aron Guðmundsson og Eiríkur Stefán Ásgeirsson fóru yfir sviðið á þessum ágæta þriðjudegi. Landsliðin okkar áttu sviðið þar sem bæði U21 árs liðið og A-landsliðið verða í eldlínunni í dag. Þá átti 39 ára gamall Case Keenum stórleik í NFL-deildinni þrátt fyrir að vera að spila sinn fyrsta leik í þrjú ár. Bónus-deild kvenna í körfubolta fer þá af stað í kvöld með þremur leikjum þar sem áhugavert verður að sjá KR og Grindavík sem spáð er góðu gengi.
Tue, 29 Sep 2026 - 190 - 28. sept - Lélegur landsleikur, Írar öflugir og City í brasi
Slakur landsleikur Íslands og havarí í kringum Írland, Ísrael og Manchester City bar hæst í Besta sætinu þennan mánudaginn. Valur Páll Eiríksson, Bjarki Sigurðsson og Sindri Sverrisson fóru yfir sviðið í þætti dagsins. Menn voru enn að jafna sig eftir slaka frammistöðu karlalandsliðsins í fótbolta á laugardaginn var en strákarnir okkar eru mættir til Lúxemborgar þar sem þeir geta svarað fyrir frammistöðuna.
Mon, 28 Sep 2026 - 189 - Rúnar Már Sigurjónsson: Sorgin að hætta, flakk um Austur-Evrópu, EM-gleðin og HM höggið
Sauðkrækingurinn Rúnar Már Sigurjónsson hefur átt viðburðarríkan fótboltaferil sem tekur senn enda. Ferillinn dró hann víða um heim og hann kunni hvað best við sig austan tjaldsins í Rúmeníu og Kasakstan. Rúnar Már neyðist til að hætta vegna þrálátra meiðsla sem hafa áhrif á hans daglega líf og því fylgir ákveðið sorgarferli. Hann fer yfir ferilinn í ítarlegu viðtali við íþróttadeild Sýnar.
Sat, 26 Sep 2026 - 188 - 25.sept - Ekkert elsku mamma lengur
Besta sætið var í landsliðsgír í dag enda spennandi helgi framundan fyrir íslenska karlalandsliðið sem hefur leik í Þjóðadeild UEFA á heimavelli á morgun. Ræddum líka frábæra leiki í Olís deildinni, Þjóðadeild og þau vandræði sem Valur er í. Ákveðin krísa á Hlíðarenda. Það og margt fleira í þætti dagsins. Góða helgi!
Fri, 25 Sep 2026 - 187 - 24. sept - Loksins bolti á innipúkadegi
Það verður loksins hægt að horfa aftur á fótbolta á skjánum í kvöld og það á fyrsta haustlægðardegi ársins. Andri Broddason átti sérlega erfitt með haustlægðina þegar hann þurfti að labba alla leið út í bíl í morgunsárið á meðan aðrir löbbuðu og hjóluðu í vinnuna. Lægðin hafði sín áhrif á landsliðin okkar sem færðu sig úr Laugardalnum inn í hallir að æfa í dag. Kvennalandsliðið, U21 landsliðið, Olís-deildin og stórleikir í Þjóðadeildinni í Besta sætinu þennan fimmtudaginn.
Thu, 24 Sep 2026 - 186 - 23. sept - Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met
Ákvörðun Arons Einars Gunnarssonar um að hætta í íslenska landsliðinu, varnarvandræðin sem landsliðsþjálfarinn virðist ekki vilja horfast í augu við og komandi leikur í Þjóðadeildinni voru til umræðu í Besta sætinu. Þar var einnig farið yfir leikina í Meistaradeild kvenna í fótbolta, þar sem fjöldi Íslendinga kom við sögu, og einvígin sem Breiðablik og FH hefja í dag í Evrópubikarnum.
Wed, 23 Sep 2026 - 185 - 22. sept - Erfið og leiðinleg staða fyrir Heimi að vera í
Pólitíkin og alþjóðamálin náðu að teygja anga sína í Besta sætið í dag. Ísraelar eru ósáttir með Heimi Hallgrímsson og pressa á Írlandi að landsliðið sniðgangi leiki sína við Ísrael í Þjóðadeildinni. Aron Guðmundsson og Valur Páll Eiríksson með ykkur í dag.
Tue, 22 Sep 2026 - 184 - 21. sept - Slagsmál í Vesturbæ og erfið helgi Bjarka
Valur Páll Eiríksson, Aron Guðmundsson og Bjarki Sigurðsson gerðu upp risastóra íþróttahelgi sem er að baki. Rígur er að myndast í Bakgarðshlaupum, Þróttur komst í Bestu deildina, Víkingur varð Íslandsmeistari og óvænt úrslit á Englandi.
Mon, 21 Sep 2026 - 183 - 18. sept - Bikarar í boði og hvað gerir Steindi í Bakgarðshlaupinu?
Rosaleg helgi í sportinu og nóg að fara yfir. Lengjudeildarúrslit, Víkingur getur orðið meistari í Bestu karla, Bakgarðshlaup með Steinda og enski boltinn.
Fri, 18 Sep 2026 - 182 - 17. sept - Man. Utd aftur í ruglinu og léleg mæting á Laugardalsvöll
Það er enn og aftur krísa hjá Man. Utd. Kunnuglegt stef síðustu ára þrátt fyrir bjartsýni í sumar. Svo ræðir Besta sætið af hverju Íslendingar virðast ekki vilja koma og horfa á sitt lið spila á Laugardalsvelli?
Thu, 17 Sep 2026 - 181 - Alfreð Finnbogason: Úr auga stormsins í ævintýri Freys með Rosenborg
Á rúmu hálfu ári hefur Alfreð Finnbogason barist um í þeytivindu fótboltans sem yfirmaður knattspyrnumála hjá norska stórliðinu Rosenborg. Félagið hefur gengið í gegnum erfiða tíma, ekki eins glæsta og þá sem félagið er þekkt fyrir og það reyndi svo til um leið á leiðtogahæfileika Alfreðs sem býr að mikilli reynslu frá sínum ferli sem atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta. Útlitið var ekki bjart í byrjun starfstíðar Alfreðs. Fallbarátta og erfið úrslit leiddu af sér uppsögn á þjálfara liðsins, stjórn félagsins sagði af sér en úr öskunni hefur félagið risið upp á síðkastið og það ekki síst með hjálp Íslendinganna hjá félaginu. Freyr Alexandersson var ráðinn inn sem þjálfari og er að upplifa, með sjö sigrum í fyrstu níu leikjum sínum, bestu byrjun þjálfara Rosenborg síðan árið 2010. Fallbaráttan hefur verið kvödd og er Rosenborg nú í harðri baráttu um Evrópusæti. Alfreð fer hér yfir fyrsta rúma árið í starfi, samstarfið með Frey og önnur tengd mál. Meðal annars gullmolann sem félagið hefur klófest með einum mest spennandi sóknarmanni Skandinavíu að mati Alfreð sem var sjálfur markamaskína á sínum leikmannaferli.
Wed, 16 Sep 2026 - 180 - 16. sept - Kjartan Atli ræðir endurkomu sína á Álftanesið og Bestu deildina
Kjartan Atli Kjartansson er gestur dagsins í Besta sætinu en þar fer hann yfir ástæður þess af hverju hann sé orðinn aðstoðarþjálfari Álftaness. Liðsins sem hann þjálfaði síðustu ár. Einnig ræðir Kjartan um Bestu deildina og nýjan feril í pólitíkinni.
Wed, 16 Sep 2026 - 179 - 15. sept. - Víkingar vilja fagna í Vesturbænum
Víkingar eru með níu putta á Íslandsbikarnum og Blikar mæta í Úlfarsárdalinn í kvöld. Hugsanlega að glíma við bikarþynnku. Óli Óli er meiddur hjá Grindavík sem er búið að fá Pargo og svo er spurning hvort Tottenham nái loksins að skora í kvöld.
Tue, 15 Sep 2026 - 178 - Dagný Brynjars: Þriggja barna fótboltakona og sendiherra West Ham
Dagný Brynjarsdóttir er byrjuð að spila fótbolta á ný, fimm mánuðum eftir að hafa fætt sinn þriðja son. Hún er orðin 35 ára og viðurkennir að hún sé óviss um framhaldið á ferlinum, sem og með landsliðinu, eftir langan og farsælan feril. Hún heldur þó öllu opnu. Í viðtali við Vísi fer Dagný um víðan völl. Hún er flutt heim til Íslands og lék með Selfossi í Lengjudeildinni í lok sumars, og vill láta að sér kveða til að bæta umgjörð í fótbolta kvenna hér á landi. Hún segir sorglegt að sjá Ísland dragast þar aftur úr öðrum þjóðum sem séu allar að gefa í. Þá ræðir Dagný um sitt nýja hlutverk sem sérstakur sendiherra enska félagsins West Ham.
Tue, 15 Sep 2026 - 177 - 11. sept - Bikarhelgi og baráttan um Manchester
Það er pressa á Blikum í úrslitaleik kvöldsins og það kemur nýtt nafn á kvennabikarinn á morgun. Besta deildin heldur áfram eftir skiptingu og baráttan í neðri hlutanum er hörð. Baráttan um Manchester er svo aðalleikurinn í enska þessa helgina.
Fri, 11 Sep 2026 - 176 - 10. sept - Getur einhver stöðvað Barcelona?
Yfirreið yfir Meistaradeildina þar sem Barcelona og PSG líta hrikalega vel út. Man. Utd stígur aftur á stóra sviðið í kvöld. ÍBV fær Kana í handboltanum og umspilið í Lengjunni er galopið.
Thu, 10 Sep 2026 - 175 - 9. sept - Er Mourinho enn nógu góður?
Jose Mourinho er mættur með látum í Meistaradeildina á nýjan leik. Liverpool á risaleik í Meistaradeildinni í kvöld á meðan Arsenal fer til Ítalíu. Umspilið í Lengjunni hefst í kvöld og svo er NFL-deildin að fara af stað með stórleik.
Wed, 09 Sep 2026 - 174 - 8. sept - Meistaradeildin fer loksins í gang
Það er hátíðisdagur því Meistaradeild Evrópu snýr aftur í kvöld. Við hitum vel upp fyrir kvöldið þar sem Jose Mourinho snýr aftur með Real Madrid í keppnina og það með liði sem hann þjálfaði áður.
Tue, 08 Sep 2026 - 173 - 7. sept - Arsenal með langbesta liðið
Arsenal sýndi mátt sinn og megin í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar um helgina. Svo gerum við upp Bestu karla en Víkingar eru með pálmann í höndunum og Keflavík verður í efri hlutanum. Valur og Stjarnan munu spila í neðri hlutanum. Mikill skellur fyrir bæði félög.
Mon, 07 Sep 2026 - 172 - 4. sept - Risahelgi í boltanum
Lokaumferð deildarkeppni Bestu karla, lífsbaráttulaugardagur í Lengjunni og enski boltinn. Það þarf ekki að standa upp úr sófanum um helgina.
Fri, 04 Sep 2026 - 171 - 3. sept - Handboltinn rúllar af stað í kvöld
Olís-deild karla hefst í kvöld með tveimur leikjum. Haukum og Val er spáð toppsætunum. Stjarnan heldur áfram að spila í Miðgarði og svo rennum við yfir bestu kaupin í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
Thu, 03 Sep 2026 - 170 - 2. sept - Uppgjör á stórleik KR og Víkings
Risaleikur KR og Víkings í gær er eðlilega í brennidepli í þætti dagsins. Rúmlega 4.000 manns mættu á leikinn sem hófst klukkan 17.30 á þriðjudegi. Víkingur er með pálmann í höndunum eftir leikinn.
Wed, 02 Sep 2026 - 169 - 1. september - Leikur ársins á Meistaravöllum
Það er allt á suðupunkti fyrir stórleik KR og Víkings í Bestu deild karla. Skemmdarverk unnin í skjóli nætur hafa kynt bálið enn frekar. Besta sætið hitar vel upp fyrir leikinn og spáir aðeins í spilin í enska boltanum.
Tue, 01 Sep 2026 - 168 - 28. ágúst - Man. City verður meistari
Það er lítil bjartsýni fyrir landsleik kvöldsins í körfunni enda við ofurefli að etja. Handboltinn fer að rúlla af stað og Val er hvorki spáð titli í karla- né kvennaflokki. Það eru stórir leikir í Bestu deild karla og svo heldur enski boltinn áfram að rúlla.
Fri, 28 Aug 2026 - 167 - 27. ágúst - Eini stuðningsmaður Zirkzee fundinn
UEFA ætlar að draga Infantino fyrir dómstóla, Víkingar spila um hálfan milljarð, Freyr blómstrar í Noregi og maður sem elskar knattspyrnumanninn Joshua Zirkzee í þætti dagsins.
Thu, 27 Aug 2026 - 166 - 26. ágúst - Mun Arsenal valta yfir deildina?
Íþróttafréttamenn lélegir í golfi, sprungið dekk í Þakgili og umræða um enska boltann og meinta yfirburði Arsenal.
Wed, 26 Aug 2026 - 165 - David Winnie: Sigrar með KR, fótbolti Óskars Hrafns og íþróttalögfræðin
Skotinn David Winnie var hér á Íslandi um fjögurra ára skeið frá 1998 til 2001 er hann lék með og þjálfaði svo karlalið KR í fótbolta. Hann var valinn besti leikmaður Íslandsmótið árið 1998 og hjálpaði KR svo að enda 30 ára bið eftir Íslandsmeistaratitli er liðið varð tvöfaldur Íslandsmeistari á 100 ára afmælisárinu 1999. Hann á íslenska konu og kemur reglulega hingað til lands með tvo henni og tveimur sonum þeirra, þar sem þau eiga hér sumarbústað. KR taugin er til staðar og hann hefur fylgst með þeim svarthvítu síðan hann hætti og reynir iðulega að mæta á leik þegar hann er á klakanum. Við ræddum við Winnie um KR, gamla tíma og einnig feril hans í dag en hann starfar sem íþróttalögfræðingur á Bretlandi og var meðal annars dómari í svokölluðu Spygate máli Southampton.
Fri, 14 Aug 2026 - 164 - Björn Berg: Áhyggjur af framtíð fjármála fótboltans
Endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækið Deloitte gaf út skýrslu í sumar þar sem áhyggjum er lýst yfir vegna heilbrigðis fjármála innan fótboltans til lengri tíma. Tekjur fara hækkandi víðast hvar, þá sérstaklega hjá stærri félögum, en á sama tíma vaxa skuldir gríðarlega. Samkvæmt skýrslunni sé of mikið hugsað til skamms frekar en lengri tíma. Þá kom fram í skýrslunni að taprekstur enskra úrvalsdeildarfélaga hafi aukist um 600 prósent frá 2023 til 2024, úr 135 milljóna taprekstri í 948 milljóna punda tap tímabilið eftir. Við ræddum þessa skýrslu við fjármálaráðgjafann og fótboltaáhugamanninn Björn Berg Gunnarsson sem kynnti sér málið. Þar er snert á misskiptingu, þenslu og framtíðarhorfum hvað fjármál innan fótboltans varðar.
Fri, 14 Aug 2026 - 163 - 29. júlí - Infantino að gera allt vitlaust
Gianni Infantino, forseti FIFA, vill hleypa fjárfestum að kjötkötlum FIFA og það ætlar hann að gera með því að bjóða knattspyrnusamböndum gríðarmikla peninga. Óhætt er að segja að allt sé vitlaust út af þessu máli sem ekki sér fyrir endann á.
Wed, 29 Jul 2026 - 162 - 24. júlí - Allt á uppleið hjá Val
Valsmenn unnu loksins leik, og það gegn sterku liði í Sambandsdeildinni, Stjarnan vann líka í Evrópu en Vestri ekki. Undanúrslit eru fram undan í Mjólkurbikar kvenna og spennandi leikir í Bestu deild karla.
Fri, 24 Jul 2026 - 161 - 23. júlí - Meiddir Valsmenn, ævintýri Vestra og svar Stjörnunnar
Vestramenn eru mættir til Lettlands, Valsmenn taka á móti Blikabönum frá Bosníu og Stjarnan tekur nýflengd á móti liði frá Finnlandi í Evrópueinvígum dagsins. Þetta og fátt fleira var rætt í Besta sætinu. Fjölþjóðlegur og fjörugur leikur í Lettlandi endar líklega með tapi Vestra gegn RFS. Valur er með ellefu leikmenn á meiðslalistanum og einn sem ætti enn þá að vera þar en ætlar að spila gegn Zrinjski Mostar. Stjarnan fékk stærsta skell sumarsins um helgina en gæti átt fínasta séns í Garðabænum gegn Ilves frá Finnlandi, sem er einnig í fallbaráttu heima fyrir.
Thu, 23 Jul 2026 - 160 - 22. júlí - EuroVikes, vonlaus Valur og Arnar í stuði
Víkingar vinna enn heimaleiki sína í Evrópukeppni þökk sé Nikolaj Hansen. Valskonur eru afskaplega slakar og markasúpa var í Bestu deild kvenna. Svo náði Afturelding sögulegum árangri. Besta sætið fór yfir sviðið. Ágúst Orri Arnarson og Valur Páll Eiríksson ræddu málefni dagsins í Besta sætinu. Nikolaj Hansen var blár og marinn en var samt hetjan, annan Evrópuleikinn í röð í Víkinni. 18 mörk voru skoruð í tveimur leikjum í Bestu deild kvenna þar sem titilbaráttan harðnar, sem og botnbaráttan. Afturelding er þá komið í úrslit Mjólkurbikarsins í fyrsta sinn þökk sé liprum markverði og svo er áhugavert hvaða starf Donald Trump vill sjá Gianni Infantino taka við næst.
Wed, 22 Jul 2026 - 159 - 21. júlí - Besta uppgjöriðTue, 21 Jul 2026
- 158 - 20. júlí - HM uppgjör
Frábæru HM lauk í gær með sigri Spánverja á slökum og grófum Argentínumönnum. Henry Birgir og Valur Páll gera upp mótið í þætti dagsins.
Mon, 20 Jul 2026 - 157 - 17. júlí - Barnaleg mistök, markasjúkir FH-ingar og risastór helgi
Nóg var að ræða í Besta sætinu þennan föstudaginn. Evrópuleikir, Bestu deildirnar, Opna breska, Formúla 1 og fleira til. Stjarnan og Vestri eiga bæði annað Evrópuverkefni framundan þrátt fyrir að hafa mistekist að sigra í leikjum sínum í gær og Íslendingaliðið í Færeyjum fór áfram eftir ótrúlega atburðarrás. FH-ingar eru skemmtikraftar Bestu deildar kvenna og halda áfram að raða inn mörkum. Gott yngri flokka starf er þá að skila sér vel í Hafnarfirði. Úrslitaleikur HM er fram undan á risastórri íþróttahelgi þar sem fjórir leikir fara fram í Bestu deild karla, Formúla 1 fer fram á Spa og það stefnir í brautarmet á Opna breska meistaramótinu í golfi.
Fri, 17 Jul 2026 - 156 - 16. júlí - Tuchel á skilið launalækkun og gleðilegan gluggadag
Áhuginn á Opna breska meistaramótinu í golfi stóreykst eftir tap Englands gegn Argentínu á HM. Nóg er að gera í pappírsvinnu við að ganga frá öllum félagaskiptunum sem hafa verið tilkynnt en hvaða framherja munu Víkingar sækja og hvenær kemur Aron Einar Gunnarsson til Þórs?
Thu, 16 Jul 2026 - 155 - 15. júlí - Yamal sá svalasti og lausnin við Messi fundin
Lamine Yamal er líklega svalasti fótboltamaður sögunnar og einfalda lausn má finna við vandræðunum sem Lionel Messi veldur. Daníel Hafsteinsson er samt helsta hetja gærkvöldsins. Undanúrslit HM og Evrópuleikur Víkings voru í aðalhlutverki en margt fleira var rætt í þætti dagsins af Besta sætinu. Þar komu einnig við sögu trúlofun í takkaskóm, snemmbúin ævisaga Eusebio og sundferð á Blönduósi svo fáeitt sé nefnt. Breiðablik ætlar að svara fyrir sig og endurheimta toppsætið í Bestu deild kvenna. Munu vandræði Vals halda áfram og hvað mun fyrrum markadrottning Austurlands gera fyrir liðið?
Wed, 15 Jul 2026 - 154 - 13. júlí - Valsmenn í vandræðum og óvænt félagaskipti
Besta sætið hafði mörg mörk að ræða í dag, nánar tiltekið 21 mark í 4 leikjum Bestu deildar karla í gær. Vonandi sést eitthvað svipað á nýja Kópavogsvellinum í kvöld, annað en í síðasta leik Breiðabliks og Keflavíkur. Helstu álitamál helgarinnar á HM voru tekin fyrir; boltinn sem fór eða fór ekki í myndavél og rauða spjaldið sem Sviss fékk frá VAR. Þetta og margt fleira var rætt í þætti dagsins af Besta sætinu.
Mon, 13 Jul 2026 - 153 - 10. júlí - Sýður á Sigga Helga
Víða var komið við í Besta sætinu þennan ágæta föstudag. Stefán Árni dreif sig beint í sumarfrí eftir þátt dagsins. Þeir Valur Páll Eiríksson, Andri Broddason og Stefán Árni Pálsson fóru yfir íþróttamál dagsins í þættinum en Stefán var allur á iði þar sem hann er á leið í sumarfrí. Erik Sandberg var til umræðu en hann er félagi Erling Haaland, framherja norska landsliðsins, og þeir gerðu saman lag í unglingalandsliðsverkefni fyrir rúmum áratug. Það lag er í dag á toppi allra vinsældalista í Noregi þar sem er HM-fár. Rætt verður við Erik í Sportpakkanum á Sýn í kvöld. Ótrúleg fimma Ídu Marín Hermannsdóttur fyrir FH og óvænt tap Breiðabliks í Bestu deild kvenna var til umræðu. Þá var HM rætt í þaula og komandi 8-liða úrslit, sem og leikur gærkvöldsins. Þar kemur fyrir furðuleg pöntun Frakka á knæpu yfir leiknum. Stefán Árni lauk þættinum svo á svoleiðis fúkyrðum um Manchester City að líklega sýður á Sigurði Helgasyni. Þáttinn má heyra í spilaranum og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Fri, 10 Jul 2026 - 152 - 9. júlí - Gleðileg jól og langt hlé á enda
Jólin í ár verða fullkomin fyrir íþróttaáhugafólk eins og rætt var um í Besta sætinu í dag. Stjarnan og Vestri eiga ansi ólík verk fyrir höndum í Evrópukeppnum í kvöld og Besta deild kvenna hefst að nýju eftir langt hlé. Þá eru 8-liða úrslitin að hefjast á HM.
Thu, 09 Jul 2026 - 151 - 8. júlí - Hættulegur völlur í Fossvogi og afleiðingar Balogun-málsins
Leikmenn Víkings eru látnir spila á „ónýtum og hættulegum“ gervigrasvelli en mega vera stoltir af frábærum 1-0 sigri gegn ungversku meisturunum. Átta liða úrslitin eru klár á HM og Blikar búnir að tryggja sér mikinn liðsstyrk.
Wed, 08 Jul 2026 - 150 - 7. júlí - Megas á bar í Boston og Nablinn hress í Eyjum
Það var af nægu að taka í Besta sætinu eftir líflegan dag á HM í fótbolta, þar sem Cristiano Ronaldo stimplaði sig út og Belgar rúlluðu yfir Bandaríkin, og að lokinni 13. umferð Bestu deildar karla. Talið barst þó einnig að ýmsu öðru.
Tue, 07 Jul 2026 - 149 - 6. júlí - Fáránleg ákvörðun FIFA góð fyrir mótið
Í Besta sætinu sögðu menn sína skoðun á fordæmalausri afléttingu leikbanns Folarin Balogun sem fær að spila fyrir Bandaríkin gegn Belgíu á HM í nótt. Farið var yfir torsóttan sigur Englands við aðstæður sem ekki allir skilja hve erfiðar voru, og sigur Noregs gegn óspennandi liði Brasilíu. Golf, Besta deildin og leið Íslands á HM í körfubolta var sömuleiðis á meðal þess sem rætt var um á þessum fallega mánudegi.
Mon, 06 Jul 2026 - 148 - 3. júlí - Martröð markvarðar og VAR-veisla í Toronto
Tveir góðir gestir settust í Besta sætið á þessum fína föstudegi. Kolbeinn Tumi Daðason, ritstjóri fréttastofu Sýnar, og Magnús Jochum Pálsson, menningarblaðamaður á Sýn, ræddu íþróttamál dagsins við Val Pál Eiríksson. Ótrúlegur leikur Þórs og KR á Akureyri var til umræðu sem og sigur Víkings á KA. Landsleikur gærkvöldsins við Ítala bar á góma og samhliða því feimni Íslendinga við þjóðsöng okkar, Lofsönginn. Einnig var snert á HM í fótbolta þar sem skrautlegur leikur fór fram milli Króatíu og Portúgals. VAR-dómgæsla og vatnspásur báru á góma í því samhengi. Hlýða má á þáttinn í spilaranum sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Fri, 03 Jul 2026 - 147 - 2. júlí - Þýskt þrot
Farið var um víðan völl í Besta sætinu í dag. Birgir Olgeirsson, fréttamaður á Sýn, var sérstakur gestur þar sem rætt var um HM, England, Þýskaland, NBA, Bestu deildina og landsleik kvöldsins.
Thu, 02 Jul 2026 - 146 - 1. júlí - Rómans Stefáns Árna og Deschamps
HM var mikið til umræðu í Besta sætinu í dag. Besta deildin kom við sögu sem og stór tíðindi úr Bónus deildinni í körfubolta. Valur Páll Eiríksson, Stefán Árni Pálsson og Andri Broddason ræddu málin í Besta sætinu í dag. HM-leikir gærkvöldsins voru til umræðu sem og þeir sem fram undan eru í dag. Tíðindi bárust úr Garðabæ í dag hvað þjálfaramálin í fótboltanum varðar og einnig bárust þjálfaratíðindi úr Grindavík þar sem Lárus Jónsson er tekinn við sem aðstoðarþjálfari í körfuboltanum. Hlýða má á þátt dagsins í spilaranum sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Wed, 01 Jul 2026 - 145 - 29. júní: Þjálfaraskipti hjá Val og mikilvægir leikir hjá landsliðinu
Í Besta sætinu í dag er farið yfir stórtíðindin af Hlíðarenda. Hermann Hreiðarsson hefur verið látinn fara sem þjálfari karlaliðs Vals í fótbolta og nú þegar er eftirmaður hans fundinn. Fleiri tíðindi úr Bestu deildinni, mikilvægt verkefni karlalandsliðsins í körfubolta sem og HM þar sem að útsláttarkeppnin er hafin. Allt saman í Besta sætinu.
Mon, 29 Jun 2026 - 144 - 26. júní: Brakandi fersk tíðindi og er rígurinn dauður?
Það var við hæfi að opna þáttinn á slagara með Sálinni, Stebbi Hilmars sextugur og gír í mönnum. Nóg að ræða í dag. Er rígurinn milli Blika og Víkinga dauður? Víkingar, í hægagangi völtuðu yfir Blikana í gær og liðin mætast aftur á sunnudaginn. Línur eru teknar að skýrast á HM og styttist í útsláttarkeppnina. Umferðin framundan í Bestu deildinni, Formúla 1, glæný tíðindi af landsliðsmanni Íslands og ég veit ekki hvað og hvað. Skylduhlustun
Fri, 26 Jun 2026 - 143 - 24. júní: Vinstri eða hægri? Ronaldo eða Messi?
Besta sætið mætir alltaf funheitt aftur. Sumarfílingur í hópnum og nóg að ræða. Toppbaráttan í Bestu deild kvenna í fótbolta veldur ekki vandræðum. Það voru vendingar fyrir stutt hlé í deildinni sem farið verður yfir. Þá eru leikar teknir að æsast á HM í fótbolta.
Wed, 24 Jun 2026 - 142 - 22. júní: Besta lið sögunnar?
Víkingar virðast óstöðvandi í Bestu deild karla og KR-ingar þurfa að vinna Skagamenn í kvöld til að halda lífi í titilbaráttunni. FH, Þór, KA og Stjarnan eru hins vegar í ansi slæmum málum. Martin Hermannsson er Þýskalandsmeistari eftir ótrúlega endurkomu og Hollendingar fljúgandi á HM.
Mon, 22 Jun 2026 - 141 - 19. júní: Er hann samt íþróttamaður ársins?
Í Besta sætinu var farið yfir frumraun Íslendings á Opna bandaríska mótinu í golfi karla, HM í fótbolta og komandi umferð í Bestu deild karla. Freyr Alexandersson er orðinn nýr þjálfari Rosenborgar og strákarnir okkar í íslenska handboltalandsliðinu fá stuðning í Þýskalandi.
Fri, 19 Jun 2026 - 140 - 18. júní: Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open
Stór dagur í íþróttasögu Íslendinga í dag. Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur þátttöku á U.S. Open risamótinu í golfi í kvöld, fyrstur Íslendinga. Við förum yfir það sem og HM í fótbolta þar sem að England mætir af fídómskrafti til leiks. Stelpurnar okkar eru með gullið tækifæri á að tryggja sér sæti á HM í fótbolta í BRASILÍU á næsta ári og spennan er mikil í Mjólkurbikar kvenna. Átta liða úrslitunum lýkur í kvöld.
Thu, 18 Jun 2026 - 139 - 16. júní - Drónasvif yfir best rekna klúbbi landsins
Það er risakvöld í Bestu deildinni þar sem KR-ingar heimsækja Víkinga í einkar veglegri útsendingu þar sem Nablinn verður á svæðinu og drónamyndavél fangar stemninguna á uppseldum toppslag. HM í fótbolta, Gunnlaugur Árni á Opna bandaríska, og gleðifréttir Garðbæinga voru einnig til umræðu í Besta sætinu.
Tue, 16 Jun 2026 - 138 - 15. júní - Verður Þjóðarhöllin tilbúin fyrir HM 2031?
„Loksins, loksins“ hrópuðu margir íþróttaáhugamenn í dag og Besta sætið þar með talið. Teikningar fyrir nýja Þjóðarhöll hafa verið opinberaðar en athygli vekur að hvergi eru verklok áætluð. Hvenær verður þessi nýja höll eiginlega tilbúin? Margt fleira var rætt í þætti dagsins af Besta sætinu. HM er í fullum gangi og fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn kemur frá Túnis. Fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn úr Bestu deildinni er Jökull Elísabetarson en mun Sigurður Höskuldsson fylgja honum fljótt eftir? Svo er spurning hvort það sé snilld eða alveg glatað að sjá tvö Lengjudeildarlið í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Menn gátu ekki sammælst um það.
Mon, 15 Jun 2026 - 137 - 12. júní - Lélegasti framherji mótsins strax fundinn
HM hófst í gær og við ætlum bara að hafa gaman að því, allavega meira gaman en sjónvarpsmenn Suður-Afríku. Lélegasti framherji mótsins er strax fundinn og Suður-Kóreuprinsinn kom sem kallaður. HM var ekki það eina sem rætt var í þætti dagsins af Besta sætinu. Stærsti hnefaleikaviðburður ársins er fram undan í kvöld. Um helgina er heill haugur af viðburðum, heil umferð í Bestu deild kvenna og margt, margt fleira. Pólitík fékk hins vegar ekkert pláss.
Fri, 12 Jun 2026 - 136 - 11. júní - Gaslýsingar, starfsöryggi og heimskt lið
Stóri HM-dagurinn er í dag. Mótið hefst í kvöld. Stjarnan sleppti sínu eina haldreypi og New York Knicks unnu heimskasta körfuboltalið sögunnar.
Thu, 11 Jun 2026 - 135 - 10. júní - Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi?
Landsliðin okkar spiluðu bæði við heimsmeistara í gær og máttu sín lítils. Frammistaða stelpnanna okkar olli vonbrigðum. Strákarnir gerðu nákvæmlega sömu mistök og síðasta leik.
Wed, 10 Jun 2026 - 134 - 9. júní - Óttast slys í kvöld
Ísland gegn heimsmeisturum er þema kvöldsins en Gunnlaugur Árni Sveinsson átti sviðið í gær. Sá drengur er á leið á US Open. Magnað afrek. Svo er það úrslitaeinvígi NBA og engin Ungverjagrýla á HM í handbolta. Takk.
Tue, 09 Jun 2026 - 133 - 8. júní - Kaldur sviti er Eriksen féll til jarðar
Hjartaáfall Christian Eriksen, landsliðin okkar að mæta heimsmeisturum og stórmannlegir Víkingar framlengja við Ingvar er helst í brennidepli í þætti dagsins.
Mon, 08 Jun 2026 - 132 - 5. júní - Vandræðaleg auglýsing og köld kveðja
Það er frábær föstudagur í Besta sætinu. Landsliðskona snýr heim, stelpurnar okkar eiga stóran leik, Knicksari rífur kjaft um fótbolta og vera má að Ögmundur Kristinsson semji við Víking í dag. Þá eru æfingaleikir um helgina þar sem Cole Palmer-laust Englandslið hitar upp fyrir HM. Palmer er andlit Nike fyrir mót sem hann tekur ekki þátt í. Svo er spurning hvort Arnar Gunnlaugsson hafi náð að lækka forgjöfina í golfi í Japan en hann er mættur með A-landsliði karla til Bandaríkjanna þar sem fram undan er leikur við heimsmeistara Argentínu.
Fri, 05 Jun 2026 - 131 - 4.júní: Sara Björk komin heim
Þrátt fyrir að komið sé hásumar er nóg að frétta úr heimi íþróttanna. Stór tíðindi að berast af kvennaliði Hauka sem er að fá sína bestu dóttur aftur heim, Sara Björk Gunnarsdóttir ein sú besta í sögu Íslands frá upphafi að stimpla sig inn í íslenska boltann. Ögmundur Kristinsson á leið í Víkina, Kane laus úr fangelsi og ég veit ekki hvað og hvað. Alvöru yfirferð í Besta sætinu í dag.
Thu, 04 Jun 2026 - 130 - 3. júní - Getur Wemby bjargað NBA?
Misgóðar klippingar, nýr stjóri Liverpool og úrslitaeinvígi NBA eru á meðal umfjöllunarefna í Besta sætinu í dag.
Wed, 03 Jun 2026 - 129 - 2. júní - Sótti Freyr of marga Íslendinga til Brann?
Freyr Alexandersson lærði ekki af mistökum annarra íslenskra þjálfara og hefur verið látinn fara frá Brann. Hvað verður um Alfreð Finnbogason hjá Rosenborg? Einhvern veginn tókst Noregi að taka yfir þátt dagsins í Besta sætinu. Stórliðin þar í landi, með Íslendinga í brennidepli, hafa tekið risaákvarðanir síðastliðinn sólarhring. Svo sendu Norðmenn frá sér alvöru yfirlýsingu með sigrinum gegn Svíum í gær. Þetta og margt fleira var rætt í þætti dagsins í Besta sætinu.
Tue, 02 Jun 2026 - 128 - 1. júní - Er hægt að stöðva Víkingana?
Besta deild karla, stjóraskipti Liverpool, Lengjudeildin, blóðbaðið hjá Kolla box og fleira til í þætti dagsins.
Mon, 01 Jun 2026 - 127 - 29. maí - Óskar Hrafn á hælana?
Það er risa helgi fram undan í boltanum hér heima og úti. Heil umferð fer fram í bæði Bestu deild karla og kvenna. Úrslit eru í Meistaradeild Evrópu og landsleikur í Japan. Þá skrifaði Óskar Hrafn Þorvaldsson undir nýjan samning í Vesturbæ og gjaldkeri liðsins hlær alla leið í bankann.
Fri, 29 May 2026 - 126 - 28. maí - Aron vildi ráða eftir þrjár æfingar
Aron Pálmarsson er orðinn aðalþjálfari FH og er rennt ítarlega yfir þessi merkilegu tíðindi í Besta sætinu í dag. Svo er staðan í hinni skemmtilegu Lengjudeild karla krufin aðeins.
Thu, 28 May 2026 - 125 - 27. maí - Körfuslúður og KR með hreðjatak á Valsmönnum
Besta deild karla er að spilast á áhugaverðan hátt en fátt virðist geta stöðvað Víkinga. Stjarnan veldur vonbrigðum og KR er með alvöru hreðjatak á Valsmönnum. Lengjudeildin er jöfn og spennandi og svo er mikið slúðrað í körfunni.
Wed, 27 May 2026 - 124 - 26. maí - Slot á skilið annað tækifæri og KR fær líklega á baukinn
Arsenal Englandsmeistari en hvað gerist næst? Aron Pálmarsson á leið í þjálfarabransann og hver er framtíð Steraleikanna? Lifir Jökull af annað tap og mun Valur valta yfir KR í kvöld?
Tue, 26 May 2026 - 123 - 22. maí - Dagur stórra tíðinda krufinn
Það var af nægu að taka á þessum glimrandi fína föstudegi þar sem tíðindi hrönnuðust inn. Pep Guardiola, Michael Carrick, Alfreð Gíslason og Haukur Þrastarson meðal annars til umræðu, sem og lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. Þá eru fimm leikir á dagskrá í Bestu deild karla í kvöld.
Fri, 22 May 2026 - 122 - 21. maí - Þarf að finna nýja fermingargjöf fyrir drenginn
Landsliðshópur, óvænt skipti landsliðsmanns, Besta deildin og Evrópu-Emery er meðal þess sem er til umræðu í Besta sætinu þennan fimmtudaginn.
Thu, 21 May 2026 - 121 - 20.maí - Til hamingju Arsenal!
Í Besta sætinu í dag verður farið yfir stóru tíðindi gærkvöldsins þegar að Arsenal varð Englandsmeistari í fyrsta sinn í tuttugu og tvö ár eftir að Manchester City skrikaði fótur. Baráttan er hörð í deildinni neðar í töflunni fyrir lokaumferð helgarinnar.
Wed, 20 May 2026 - 120 - Ingibergur Þór Jónasson - Sorgartár urðu að gleðitárum
Ingibergur Þór Jónasson hefur verið formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur í gegnum ólgusjó undanfarin ár. Eldsumbrot, rýming og hætta á niðurlagningu körfuboltaliðs Grindavíkur hafa verið meðal áskorana. Liðið varð Íslandsmeistari eftir hafa verið nærri titli undanfarin ár og gleðin ósvikin. Hann ræddi undanfara titilsins við Val Pál Eiríksson í Besta sætinu.
Tue, 19 May 2026 - 119 - 19. maí - Pargo sýningin í Síkinu
Jeremy Pargo vann Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta fyrir Grindavík með ótrúlegri körfuboltasýningu sem seint mun gleymast. Baldur Ragnarsson fór frá Stjörnunni yfir á Álftanes og svo er dramatískt kvöld fram undan í enska boltanum.
Tue, 19 May 2026 - 118 - 18. maí - Sjóðheitt í Síkinu
Grindavík fær annað tækifæri til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla í kvöld. Það verður heitt og það verða læti. Arsenal getur að sama skapi sett marga fingur á Englandsbikarinn með sigri á Burnley í kvöld. Svo var Besta deild karla á fullu í gær og margt að gerast.
Mon, 18 May 2026 - 117 - 15. maí - Þreföld öryggisgæsla í Grindavík
Grindavík getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri gegn Tindastóli í kvöld og Besta sætið býst við miklum látum. Forkólfar FIBA Europa fá að kynnast því besta, og mögulega því versta, sem íslenskur körfubolti hefur upp á að bjóða í kvöld. Mun Grindavík gera það sem Njarðvíkingum mistókst í gærkvöldi, tryggja titilinn? FA bikarinn fer svo á loft á morgun. Einhvern veginn, eins og alltaf, er Chelsea í séns en Manchester City verður að teljast sigurstranglegri eftir að hafa hvílt allar helstu stórskytturnar. Spennan magnast í enska boltanum og heil umferð fer fram í Bestu deild karla. Að ógleymdu PGA meistaramótinu, þar sem Rory McIlroy hefur látið kosta Nike margar milljónir dollara.
Fri, 15 May 2026 - 116 - 13. maí - Þetta er svo asnalegt hjá Kane
DeAndre Kane gaf Stólunum puttann á Króknum og allt er brjálað. Strákarnir okkar unnu í Egyptalandi og Arnar Gunnlaugs valdi Ögmund Kristins í landsliðið. Hann reyndar valdi tvo hópa í dag.
Wed, 13 May 2026
Podcasts ähnlich wie Besta sætið
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه