Filtrer par genre

Í upphafi var myndin

Í upphafi var myndin

RÚV Hlaðvörp

Ólöf Gerður Sigfúsdóttir leggur upp í leiðangur um hjartað sem líffæri og menningarsögulegt fyrirbæri eftir að hafa sjálf upplifað skyndileg hjartveikindi. Hún rekur táknræna merkingu hjartans frá fornu fari til samtímans og fær til sín fjölmarga viðmælendur til að varpa ljósi á ólíkar birtingarmyndir hjartans, sem hún fléttar saman við eigin reynslu.


Fyrri þættir og þáttaraðir í þessu safnvarpi:

Eldflaugaförin

Bein

Mundi

Ljóslæknirinn

Land og sonur

Vinur minn Germani

Hold

Í upphafi var myndin

Geðveik mamma


Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

28 - Hjartans mál 2/3: Af öllu hjarta
0:00 / 0:00
1x
  • 28 - Hjartans mál 2/3: Af öllu hjarta

    Í þessum þætti er fjallað um hjartað sem líffæri og hlutverk þess skoðað með augum læknisfræðinnar. Einnig er kafað ofan í hjartað sem miðlægt tákn í kristinni trú. Viðmælendur: Karl Andersen og Sigríður Guðmarsdóttir.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Sat, 07 Nov 2026 - 39min
  • 27 - Hjartans mál 1/3: Hjartalag

    Í þessum þætti er fallað um hjartað út frá læknahugvísindalegu sjónarhorni og táknrænar rætur þess raktar til Egyptalands til forna, kínverskrar heimspeki og evrópskra miðalda. Viðmælendur: Sif Ríkharðsdóttir og Geir Sigurðsson.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Sat, 31 Oct 2026 - 40min
  • 26 - Geðveik mamma 3/3

    Hvernig höldum við að geðveikar mæður séu?


    Í þessum þriðja og síðasta þætti veltir Hera fyrir sér hugmyndum um góðar og slæmar mæður. Hún heldur áfram leitinni að rödd langömmu sinnar og við heyrum fleiri sögur mæðra úr samtímanum: Sögur um fordóma og ótta en líka hreinskilni og von. Geta nýjar raddir breytt gömlum viðhorfum?

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Sat, 05 Sep 2026 - 30min
  • 25 - Geðveik mamma 2/3

    Hvernig tölum við um veikindi sem við viljum helst ekki tala um?


    Í þessum þætti skoðar Hera hvernig þagnir, orð og fordómar móta skilning okkar á geðsjúkdómum.


    Við heyrum sögur annarra geðveikra mæðra og Hera heldur áfram að reyna að fylla í eyðurnar í sögu langömmu sinnar.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Sat, 29 Aug 2026 - 28min
  • 24 - Geðveik mamma 1/3

    Líf lítillar fjölskyldu á Akureyri umturnaðist einn daginn þegar ung móðir var send suður – suður á Klepp.


    Þegar langamma Heru var send suður á Klepp árið 1946 var amma hennar bara fjögurra ára. 80 árum síðar reyna þær í sameiningu að skilja hvað gerðist og hvers vegna enginn talaði um þetta. Í þessum fyrsta þætti tvinnast saman fjölskyldusaga, eigin reynsla Heru og spurningar um hvaða merkingu Kleppur hefur í samtímanum.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Sat, 22 Aug 2026 - 29min
Afficher plus d'épisodes