Filtrer par genre
Menn eins og við er hlaðvarp fyrir alla sem hafa einhvern tímann haft sterka skoðun á kaffi, grilli, garðslöngu, gallabuxum eða einhverju öðru sem skiptir nákvæmlega engu máli... en virðist samt skipta ótrúlega miklu máli. Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fara yfir lífið á miðjum aldri af húmor, sjálfsháði og forvitni. Hver þáttur er blanda af hversdagslegum vangaveltum, persónulegum sögum og endalausum umræðum um allt það sem enginn bað um – en allir eiga skoðun á. Nýir þættir birtast á 7–10 daga fresti.
- 156 - Menn eins og við #26 "Stóri kombakk þátturinn"
Stóra kombakkið! Einar og Baldur snúa aftur með sögur af Valencia, þvottavélaveseni og lífinu eftir hárígræðslu. Jólastress, raunveruleikaþættir og eilíf barátta við slátturóbótann koma líka við sögu.
Eins og áður ræða þeir félagar allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt.
Helstu samstarfsaðilar þáttarins
Sun, 25 Oct 2026 - 58min - 155 - MENN EINS OG VIÐ #25 "Hvaða þvæla er þetta Marta?"
Það var bókstaflega brotist inn heima hjá Baldri í miðri upptöku þáttarins. Þegar búið var að greiða úr því gátu strákarnir snúið sér að alvarlegri málum – eins og þeirri hneisu að hvorugur þeirra komst á lista Mörtu á Smartlandi yfir hárprúðustu karlmenn landsins. Róbótinn hans Baldurs er loksins kominn í lag, Einar fór í fjöruferð með einum besta kokki landsins og fékk persónulega stílráðgjöf í Mango. Allt þetta og eitthvað meira sem skiptir nákvæmlega engu máli – nema auðvitað mönnum eins og okkur.
Aðalbakhjarlar Einmitt eru:
hertzlangtimaleiga.is
intuens.is
gefur.is
kolski.is
Bpro.is
Fri, 25 Sep 2026 - 55min - 154 - MENN EINS OG VIÐ #24: Ertu að horfa á það viljandi?
Er hægt að mæla alvöru miðaldra lífsgæði – og hvað segir það um mann að horfa viljandi á Married at First Sight?
Í 24. þætti Menn eins og við fara Einar og Baldur yfir lista með 15 atriðum sem eiga að skilgreina alvöru lúxus miðaldra mannsins. Þeir skoða listann, sannreyna hann eftir eigin höfði og komast að því að lífsgæðin felast stundum í mun hversdagslegri hlutum en maður hefði haldið.
Um leið reyna þeir að komast til botns í einni stærstu ráðgátu þáttarins: Af hverju í ósköpunum horfir Baldur viljandi á Married at First Sight?
Eins og venjulega fara þeir félagar á kostum í umræðum um allt það sem skiptir miðaldra menn gríðarlega miklu máli – en mögulega engan annan.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við eru:
hertzlangtimaleiga.is
kolski.is
gefur.is
Bpro.is
Thu, 10 Sep 2026 - 1h 12min - 153 - MENN EINS OG VIÐ #23 "Með Dolly síðasta daginn"
Baldur var staddur í Nashville fyrir algjöra tilviljun daginn sem Dolly Parton féll frá og endaði á því að leggja blóm við stjörnu hennar. Þaðan liggur leiðin í kúrekahatta, strútsleðursstígvél og manninn sem spurði: „Are you from around here?" Einar og Baldur ræða líka opin sambönd, sameiginleg áhugamál hjóna, hárvörur miðaldra karla og róbótasláttuvélina sem enn neitar að vinna vinnuna sína. Sem sagt flest það sem skiptir þig nákvæmlega engu máli.
Tue, 01 Sep 2026 - 1h 04min - 152 - MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal
MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal
Einar og Baldur fara yfir allt það mikilvægasta sem skiptir engu máli: hárfund með tugum nýhærðra manna, deilur Baldurs við slátturóbótinn, Einar fór í þjóðbúningamessu, hvort Menningarnótt sé orðin Menningarkvöld og hvernig tveir lofthræddir menn komast upp á Bolafjall.
Svo fer Baldur heim í Búðardal, rifjar upp sumrin í sveitinni, fólkið, ættirnar og gömlu sögurnar. Smá ferðalag, smá fortíð og fullt af algjörlega áríðandi en gagnslausu spjalli.
Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við.
Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is
Fri, 21 Aug 2026 - 1h 05min - 151 - MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta bara fast á?"
MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta fast?"
Þá er komið að stóra Sólmyrkvaþættinum en í þessum þætti ræða þeir Einar og Baldur nákvæmlega ekkert um sólmyrkvann, enda nóg annað sem þarf að leysa. Til dæmis muninn á pizzu og pinsu, hvers vegna menn fara í hárígræðslu og verða svo hissa þegar hárið heldur áfram að vaxa – og skilja ekkert í því af hverju þeir þurfa þá allt í einu að fara í klippingu. "Er þetta bara fast á?"
Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is
„Er þetta fast?"
Wed, 12 Aug 2026 - 1h 02min - 150 - Menn eins og við #20 – "Verslunarmannahelgarþátturinn"
Menn eins og við #20 – Verslunarmannahelgarþátturinn
Þessi þáttur er helgaður Verslunarmannahelginni og sögum af fræknum ferðalögum, vafasömum ákvörðunum og furðuverkum sem verða helst til þegar fólk er komið í frí. Þar er meðal annars sagan af vininum sem vaknaði með tvær konur sér við hlið, mundi ekki neitt en hafði sem betur fer tekið mynd til öryggis, og rútubílstjóranum sem fór í Sálarbol og fékk óvænta gistingu. Baldur hringir í gerfigreindina og fær hana til að skipuleggja fyrir sig sólóferð til Danmerkur, Einar útskýrir af hverju Jón Gnarr er í raun og veru svona flughræddur.
Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is
Fri, 31 Jul 2026 - 1h 05min - 149 - Menn eins og við #19 "Baldur splæsir"
Menn eins og við #19 "Baldur splæsir"
Í þessum þætti velta Baldur og Einar fyrir sér feimninni við að rukka vini sína og þessari eilífu spurningu um hver borgar hvað. AUR segir „splitta og rukka" og öpp eins og Splitwise, Tricount og Revolut eiga að hafa leyst vandamálið – en rannsóknir sýna að okkur finnst samt merkilega óþægilegt að rukka vini okkar. En gilda sömu lögmál þegar Baldur hoppar reglulega upp á stól, slær út höndunum og tilkynnir hátt og snjallt: „ÉG SPLÆSI!"? Hvenær á að rukka, hvað má upphæðin vera lítil og hvað þýðir eiginlega „ég tek þetta næst"?
Að venju fá hversdagsleg vandamál miðaldra karla óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og umræðan endar einhvers staðar allt annars staðar en lagt var upp með. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli… en er samt ótrúlega mikilvægt.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is
Fri, 24 Jul 2026 - 1h 19min - 148 - Menn eins og við #18 Á einhver startkappla?
Hvernig kennir maður notkun startkapla í gegnum síma án þess að valda slysi? Baldur reynir það – með misjöfnum árangri. Sláturóbótinn reynir á þolinmæðina og Einar reynir á móti að kenna Baldri hvernig á að velja almennilegt kaffi.
Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli. Góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar verða sjaldnast þær sem nokkur bjóst við.
Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt.
Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is
Sat, 18 Jul 2026 - 1h 14min - 147 - Einmitt special #17 Menn eins og við - Brúnkustigið "Mandarin Flare"
Í nýjasta þætti Menn eins og við taka Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir mikilvægustu spurningar sumarsins. Hvenær verður brúnkan að hinu alræmda Mandarin Flare? Eiga miðaldra karlar að fara í hand- og fótsnyrtingu? Og hvernig gengur 54 ára karlmanni að hætta loksins að naga á sér neglurnar eftir áratuga baráttu? Eins og svo oft áður fara umræðurnar víða, með tilheyrandi vandræðagangi og sjálfsháði sem aðeins menn á miðjum aldri virðast kunna. Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is
Fri, 10 Jul 2026 - 1h 22min - 146 - Einmitt special #16 Menn eins og við - Karlmennskan og slönguöfund
Í þessum þætti fagna Einar og Baldur fyrsta gróðurhúsinu frá BK Hönnun í garði Baldurs – en ný garðslanga stelur senunni og kveikir líklega fyrsta skráða tilfelli garðslönguöfundar á Íslandi. Þeir fara yfir Bergmál, umferðina yfir á Þingvelli, Skinny jeans-sjokkið þegar Just Björn mætti í þeim og af hverju Levi's 501 Loose Fit varð eina rétta svarið. Einnig ber á góma sextugsafmæli Stefáns Hilmarssonar, barnaafmæli að hætti Ásgeirs Kolbeinssonar og ýmislegt annað sem getur með engu móti bætt líf þitt – en gæti samt gert daginn aðeins skemmtilegri. Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is http://kjotburid.is http://heilsuhornid http://heilsuhornid/>.is http://goa.is www.ccep.is
Tue, 30 Jun 2026 - 1h 08min - 145 - Einmitt special #15- Menn eins og við -Það verður enginn í skinny jeans á Þingvöllum
Í þætti #15 af Menn eins og við velta þeir Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir sér öllum þeim spurningum sem miðaldra menn eru ekkert endilega stoltir af að spyrja upphátt. Bergmál og KALEO á Þingvöllum eru framundan og þeir félagar reyna að komast að því hvað menn eins og þeir eigi eiginlega að vera í, hvort einhver fari enn í skinny jeans, hvað þessir margumtöluðu gullmiðar raunverulega þýða og hvort það sé yfirhöfuð hægt að treysta íslenskri veðurspá þegar stórir útitónleikar eru annars vegar. Þá fara þeir einnig yfir frábæra tónleika Friðriks Dórs, ræða sumarið, tónleika, stemningu og þá staðreynd að það getur tekið furðu stuttan tíma að murka lífsviljann úr miðaldra mönnum í biðröðum eftir candyflossi, blöðrum og andlitsmálningu á 17. júní í Garðabæ. Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is http://kjotburid.is http://heilsuhornid http://heilsuhornid/>.is http://goa.is www.ccep.is
Sat, 20 Jun 2026 - 53min - 144 - Einmitt special #14 - Menn eins og við – Allsber á Range Rover í lúgunni á Aktu Taktu
Í nýjasta þætti af Menn eins og við fara þeir Baldur Rafn Gylfason og Einar Bárðarson um víðan völl eins og þeim einum er lagið. Báðir misstu þeir af tónleikum Bubba um síðustu helgi og glíma enn við talsvert FOMO vegna þess. Á meðan situr Baldur fastur í framkvæmdum heima hjá sér þar sem garðverktakarnir hafa í raun tekið sumarið hans í gíslingu og hann er farinn að sýna öllum einkennum Stokkhólmsheilkennis gagnvart mönnum með gröfur og hellulagnir. Einar kynnir svo hina margrómuðu F350 reglu um heimilisfjárfestingar eftir að hafa eytt heilu kvöldi í að rannsaka kælibox af slíkri ástríðu að hann sannfærðist næstum um að hann þyrfti eitt – áður en hann komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði nákvæmlega ekkert við það að gera. Svo segir Baldur sanna sögu af manni sem mætti allsber á Range Rover í lúguna hjá Aktu Taktu á Sæbrautinni til að panta sér ís. Afgreiðslumaðurinn var ekki undirbúinn fyrir þá upplifun og sagan verður vart endursögð án þess að hlæja. Sumarið, grasið, græjurnar, Bubbi, framkvæmdir, kælibox og allsberir menn í lúgum. Þetta er allt saman í nýjasta þætti af Menn eins og við. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is http://kjotburid.is http://heilsuhornid http://heilsuhornid/>.is http://goa.is www.ccep.is
Fri, 12 Jun 2026 - 1h 03min - 143 - Einmitt special #13 - Menn eins og við 13 "Typpi og toppur?"
Sumarið er komið og með því gróðurhús, slátturóbótar, veðurvélar, hárígræðslur og endalaus verkefni sem miðaldra menn ætla sér að klára en gera ekki. Baldur og Einar fara um víðan völl í enn einum þættinum af Menn eins og við þar sem tækninýjungar, sumarplön og karlmennskan sjálf fá að fara í gegnum litgreiningu lífsins. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is http://kjotburid.is http://pureshilajit.is http://pureshilajit.is/> http://goa.is http://goa.is/> www.ccep.is
Tue, 02 Jun 2026 - 1h 03min - 142 - Einmitt special #12 - Menn eins og við "Sumarkvíði, er það til?"
Nú er það grillin sem taka mesta athyglina. Strákarnir sóttu sér ráð inni á pabbatips um hvernig sé best að þrífa gasgrillin fyrir sumarið. Þá kom hugtakið "sumarkvíði" upp í samtalinu og það var greint í döðlur. Einnig fá klósett með heitri setu, lúxusrúm og sumar heima hjá sér hefðbundna litgreiningu. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is http://kjotburid.is http://pureshilajit.is http://pureshilajit.is/> http://goa.is http://goa.is/> www.ccep.is http://www.ccep.is/>
Sat, 16 May 2026 - 1h 09min - 141 - Einmitt special #11 - Menn eins og við "Eiga karlar að pissa sitandi?"
Baldur glímir við afleiðingar hásinarslits á meðan Einar hefur verið í spænskri endurhæfingu frá íslenskum raunveruleika. Í þættinum ræða þeir meðal annars salerni með skol- og þurrkkerfum, hvort karlmenn eigi að pissa sitjandi, gróðurhúsadrauma, tómatarækt og slátturóbóta. Einnig fá Bjarni Benediktsson, Friðrik Dór og Auddi Blö sína hefðbundnu litgreiningu. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is http://kjotburid.is http://pureshilajit.is http://pureshilajit.is/> http://goa.is http://goa.is/> www.ccep.is http://www.ccep.is/>
Fri, 08 May 2026 - 1h 13min - 140 - 121 Einar Þorsteins "Við sjáum öfgarnar aukast í borginni"
Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í Reykjavík og fyrrum Borgarstjóri er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum komandi kosningar og stöðu flokksins á Höfuðborgarsvæðinu, er erindi flokksins búið í borgaralegu samhengi eða er ennþá eftir spurn eftir rödd á miðjunni? Aðalbakhjarlar Einmitt eru: bkhonnun.is http://bkhonnun.is/> hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is bpro.is http://bpro.is/> stereo.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is http://biobu.is/> egc.is http://egc.is/> mammaveitbest.is http://mammaveitbest.is/> fylgifiskar.is kjotburid.is http://pureshilajit.is
Thu, 07 May 2026 - 1h 17min - 139 - 120. Elís Árnason „Nýtt líf í sólinni á Spáni"
Elís Árnason eða Elli í Sjallanum fasteignasali á Spáni er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum Sjallann, Hótel Kea, Eina með öllu, Hard Rock, árin í Smáralind og lífið á Spáni en síðustu 15 ár hefur hann verið með annan fótinn á svæðinu fyrir neðan Alicante og nú síðustu 3 ár hefur hann starfað þar sem fasteignasali við góðan orðstír.
Sat, 18 Apr 2026 - 1h 29min - 138 - 119 Patrekur Jaime „Það er alvöru raunveruleiki í óraunveruleikanum"
Gestur minn í þessum þætti er Patrekur Jaime, fjölmiðlamaður, raunveruleikastjarna og gleðisprengja. Hann er 26 ára, nýhættur að drekka og á erfitt með að kveðja gamla starfið sitt við hjúkrun og líknandi meðferðir, sem hann segir að sé alvöru raunveruleiki í hringiðu raunveruleikastjörnunnar. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - egc.is - Hamraborg - mammaveitbest.is - fylgifiskar.is Nýbílavegi kjotburid.is Selfossi pureshilajit.is http://pureshilajit.is/>
Sat, 11 Apr 2026 - 49min - 137 - 118. Jóna Hrönn „Konan frá Betaníu"
Jóna Hrönn Bolladóttir er gestur minni í Páskaþættinum í ár. Hún er nýkomin út úr erfiðri krabbameinsmeðferð þar sem hún gekkst undir beinmergskipti. Hún talar um meðferðina, tímann og lífsreynsluna af miklu hispursleysi, og fyrirbænirnar frá vinum og ókunnugum sem hún heyrði í gegnum ferlið og leiddu hana í gegnum dimmustu dalina. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - egc.is - Hamraborg - mammaveitbest.is - fylgifiskar.is Nýbílavegi kjotburid.is Selfossi pureshilajit.is http://pureshilajit.is/>
Sat, 04 Apr 2026 - 1h 26min - 136 - 117. Ívar Guðmunds "Ég gef mig allan í þetta"
Ívar Guðmundson hefur starfað í útvarpi í hátt í fjóra áratugi, eða frá því um 1988, og á þeim tíma hefur íslenskt útvarpsumhverfi breyst gríðarlega. Hann hefur hins vegar staðið vaktina í gegnum allar þessar breytingar, hjá mismunandi eigendum, á mismunandi tímum í rekstri og fjölmiðlaumhverfi sem hefur oft verið bæði stormasamt og krefjandi. Ívar er ekki aðeins þekktur útvarpsmaður heldur einnig mikill áhugamaður um líkamsrækt og keppnismaður af lífi og sál, og þá hefur hann verið einn ötulasti stuðningsmaður íslenskrar tónlistar í útvarpi um áratugaskeið, kynnt nýtt efni, stutt íslenska tónlistarmenn og haft raunveruleg áhrif á það sem þjóðin hefur hlustað á. Í þættinum ætlum við að fara yfir ferilinn, morgnana í útvarpinu, líkamsræktina og lífið, ræða allar eigendurnar sem hafa átt félagið sem á Bylgjuna, væntanleg kaup á stöðinni og hvernig útvarpsumhverfið hefur breyst frá því hann byrjaði í útvarpi seint á níunda áratugnum. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - egc.is - Hamraborg - mammaveitbest.is - fylgifiskar.is Nýbílavegi kjotburid.is Austurvegi Selfossi pureshilajit.is
Tue, 24 Mar 2026 - 59min - 135 - Einmitt special #10 – Menn eins og við "Átta vikur í gifsi"
Í glænýjum þætti af Menn eins og við fara Einar og Baldur yfir það af hverju í ósköpunum miðaldra menn geta ekki gert neitt eðlilega. Baldur var plataður í padel í vikunni af félögunum og endaði uppi á Bráðamóttöku. Niðurstaðan: 8 vikur í gifsi og sjálfsvirðingin aðeins líka í gifsi. Á meðan var Einar hins vegar eins og fínn maður í nýjum smóking frá Kölska, hangandi með tónlistarelítunni í Hörpu eins og ekkert væri eðlilegra. Báðir áttu þeir afmæli í vikunni, lífið var krufið, ákvarðanir fortíðar dregnar í efa og ýmislegt misgáfulegt rifjað upp eins og venjulega. Allt þetta og meira til í nýjasta þættinum af Menn eins og við. bakhjarlar manna eins og okkar… www.bpro.is www.bilasnyrtistodin.is www.kolski.is www.gefur.is
Mon, 23 Mar 2026 - 55min - 134 - Einmitt special #9 Menn eins og við "Að rækta vinahópinn"
Í nýjasta þættinum af Menn eins og við ræða strákarnir um mikilvægi þess að rækta vinahópinn – hópinn sem þú hringir í þegar allt fer í apaskít, hópinn sem hlær með manni, stappar í mann stálinu og gefur ráð þegar þeirra er þörf. Baldur kemur svo með óvænta uppgötvun og segir okkur hver klippir Kylie Jenner – og hvernig það virkar. En stærri spurning vaknar líka: má nota sömu rakvél á andlitið og pungsann? Baldur hefur líka uppgötvað flottasta leigubílinn í Reykjavík og hefur varla keyrt í vinnuna síðan. Ekki nóg með það – hann er einnig búinn að finna besta bílasnyrtistað í borginni, þrátt fyrir að hafa leitað víða. Þá eru þeir félagar enn í sárum eftir að Vala Matt skammaði þá í vikunni, og fara yfir allt málið frá A til Ö. Allt þetta og meira til í nýjasta þættinum af Menn eins og við.
Mon, 16 Mar 2026 - 1h 04min - 133 - Einmitt Special #8 Menn Eins & við eru ennþá að vakna daginn eftir með tatto!
Í nýjasta þættinum af Menn Eins & Við ætluðu Baldur og Einar að vera ábyrgir og málefnalegir – ræða vetrafrí og páskafrí út frá skyldum venjulegra pabba. En það plan entist stutt því helgin hafði verið of ævintýraleg til að fara ekki yfir það fyrst en Baldur endaði á 101 Hótel, pantaði sér kampavínsflöskur á 9.800 krónur og flæktist þaðan inn í kvöld sem innihélt lækni með VIP-kort á leyniklúbb í Reykjavík. Morguninn eftir vaknaði hann með tvö ný tattoo og sennilega aðeins fleiri spurningar en þegar kvöldið hófst. Einar fór í allt aðra átt – bókstaflega – og endaði í Úlfarsárdal þar sem hann horfði á menn lemja hvorn annan fyrir framan um tvö þúsund manns. Stemningin, manngangurinn og dramatíkin eru krufin til mergjar. Eftir þetta allt ná þeir loksins að snúa sér að upprunalega efninu: • Hvað gera venjulegir pabbar í vetrafríi? • Hvernig lítur páska-planið út? • Og hversu langt er hægt að fara út af sporinu áður en maður kallar þetta bara „innihald" Þáttur sem byrjaði sem skipulagsfundur en breyttist í ferðasögu, sjálfskoðun og mid lice crisis á sterum Þetta er alls ekki leiðinlegur þáttur – bara alls ekki sá sem þeir ætluðu að taka upp.
Tue, 03 Mar 2026 - 1h 13min - 132 - Einmitt Special #7 Menn eins og við með Sir Arnari Gauta
Í nýjasta þættinum af Menn Eins & Við fá þeir Baldur og Einar til sín hönnuðinn og lífskúnstnerinn Sir Arnar Gauta í einlægt og skemmtilegt spjall. Arnar hefur verið nátengdur tísku- og hönnunarheiminum frá því seint á síðustu öld og hefur sett mark sitt á fjölda glæsilegra veitingastaða og hótela með innanhússhönnun sinni. Hann er jafnframt þekktur fyrir ástríðu sína fyrir stíl og má með sanni kalla hann einn helsta sendiherra Ralph Lauren Polo á Íslandi. Í þættinum fara þeir yfir ferilinn, fagurfræðina og áhrifin – en láta ekki þar við sitja. Arnar gefur hreinskilið álit sitt á: • Skinni á gallabuxum – snilld eða synd? • Cargo-buxur – tímalaus praktík eða tískuslys? • Og hvort Dolce & Gabbana sé raunhæfur kostur fyrir miðaldra menn. Þetta er léttur, beinskeyttur og afar skemmtilegur þáttur þar sem stíll, sjálfsmynd og smá hégómi mætast í góðu jafnvægi. Alls ekki leiðinlegt hlustunarefni.
Mon, 23 Feb 2026 - 1h 54min - 131 - Einmitt Special #6 Menn eins og við "Kalóríur og Karlhormón"
Í þessum þætti af Einmitt Special – Menn ræða Baldur og Einar við heilsufrumkvöðulinn Inga Torfa Sverrisson. Hvað gerist með testósterón á miðjum aldri? Erum við að vanmeta kalóríur? Við ræðum einnig nýja íslenska heilsuappið LifeTrack, sem Ingi og Linda Rakel Jónsdóttir hafa þróað fyrir íslenskan markað – einfalt verkfæri með yfir 9.000 íslenskum matvörum. Þetta er þáttur fyrir karlmenn sem vilja skilja líkama sinn – ekki berjast við hann.
Fri, 13 Feb 2026 - 1h 32min - 130 - Einmitt Special #5 Menn eins og við "Í hverju ertu maður?"
Í þessum þætti fara Baldur og Einar yfir tíu heitar vangaveltur um klæðaburð fullorðinna karlmanna. Skinny jeans eftir fertugt, cargo buxur og hvort strikaskór gangi við jakkaföt allt út frá þeirra mati. En umræðan er miklu dýpri. Þeir ræða muninn á því að klæða sig yngri – og að klæða sig betur og hvers vegna fullorðinn stíll á að vera meðvitaður, ekki stressaður. Þetta er þáttur fyrir alla sem hafa einhvern tímann staðið fyrir framan fataskápinn og hugsað: „Er þetta enn að virka?"
Thu, 12 Feb 2026 - 1h 09min - 129 - 116. framkvæmdastjóri Krísuvík "Skýr merki um árangur"
Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri Krísuvíkursamtökin, hefur haft afgerandi áhrif á þróun og eflingu starfsseminnar frá því hann tók við starfinu. Undir hans stjórn hefur verið lögð rík áhersla á fagmennsku, skýra framtíðarsýn og mannúðlega nálgun sem hefur styrkt innra starf samtakanna og aukið traust út á við. Elías er gestur í nýjasta þætti af Einmitt Hlaðavarp, þar sem hann ræðir sitt hlutverk sitt og vegferð Krísuvíkursamtakanna. Að auki standa Krísuvíkursamtökin fyrir árlegri fjáröflun í þessari viku undir yfirskriftinni Edruvika, þar sem markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi edrúmennsku og tryggja áframhaldandi rekstur og þróun meðferðar- og endurhæfingarstarfs samtakanna. Fjáröflunin er mikilvægur þáttur í því að halda úti öflugu starfi og gefur almenningi tækifæri til að leggja málefninu lið. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - egc.is - Hamraborg - mammaveitbest.is - fylgifiskar.is Nýbílavegi kjotburid.is Austurvegi Selfossi pureshilajit.is
Thu, 05 Feb 2026 - 53min - 128 - Einmitt special #4 Menn eins og við / „Ég er kominn heim"Tue, 03 Feb 2026 - 1h 08min
- 127 - Einmitt special #3 Menn eins og viðSun, 01 Feb 2026 - 58min
- 126 - Einmitt Special #2 Menn eins og við. Egill Ploder á leið til Tyrklands
Einar Bárðar og Baldur Rafn spjalla við Egill Ploder en Egill var á leiðinni til Istanbul þegar þátturinn var tekinn upp og var að gera sig kláran í hártilfærsluaðgerð með aðstoð þeirra félaga. Spurningarnar eru margar og svörin bæði gagnleg og sprenghlægileg í sumum tilfellum því ekki má tapa gleðinni þó menn hafi tapað hárinu. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - Morgunmatur meistarans egc.is - Hamraborg mammaveitbest.is fylgifiskar.is Nýbílavegi kjotburid.is Austurvegi Selfossi pureshilajit.is
Sun, 18 Jan 2026 - 1h 16min - 125 - Einmitt Special #1 Menn eins og við:
Einar Bárðar og Baldur Rafn ræða lífið eftir hárígræðslu og hvernig það er þegar ókunnir strjúka hárið á þeim í kjötborðinu í Krónunni. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is scavolini.is Bpro.is Sterero.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is - Morgunmatur meistarans egc.is - Hamraborg mammaveitbest.is fylgifiskar.is Nýbílavegi kjotburid.is Austurvegi Selfossi pureshilajit.is
Sun, 18 Jan 2026 - 1h 31min - 124 - 115. Guðmundur Fylkisson „Doktor í því sem virkar ekki"Sun, 04 Jan 2026 - 1h 30min
- 123 - 114. Kjartan Már Kjartansson „í lagi í vera ekki hress ef maður verður hress aftur"
Gestur minn í þessum þætti er Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Þeir eru fáir í hans starfi sem hafa ennst jafn lengi í starfi og ekki hafa verkefnin verið auðveld, hvorki í vinnunni eða í hans persónulega lífi. Kjartan ræðir ferilinn af einlægni og veikindin sem hann glímir við af æðruleysi.
Sat, 27 Dec 2025 - 1h 08min - 122 - 113. Guðrún Karls Helgudóttir: "Hlutverk kirkjunnar er að þjóna öllum"Thu, 25 Dec 2025 - 58min
- 121 - 112. Þórdís Kolbrún "Það er dýrt að vera staðfsöst"Sat, 29 Nov 2025 - 1h 26min
- 120 - 111. Gunnar Dan "Sprenging af ljósi"
Gestur minn í þessum þætti af Einmitt er Gunnar Dan, rithöfundur og verslunarstjóri Handverkshússins, sem nýverið gaf út bókina UFO101. Hann hefur í mörg ár sökkt sér ofan óútskýrð fyrirbæri og mögulega heimsóknir utanjarðarvera til jarðar — og Íslands. Við ræðum bókina og hvernig persónuleg andleg upplifun breytti sýn hans á alheiminn og mannkynið.
Sat, 29 Nov 2025 - 1h 45min - 119 - 110. Dr. Erla Björns "Vöknum seinna, sofum betur"Sat, 22 Nov 2025 - 55min
- 118 - 109. Björn Berg "Grasið er ekki grænna.."
Gestur minn í þessum þætti er Björn Berg fjármálaráðgjafi – skýrt, hressandi og ótrúlega gagnlegt spjall um hvernig við náum betra svigrúmi og sterkari fjármálum; hlustaðu hér.
Mon, 17 Nov 2025 - 1h 07min - 117 - 108. Ólafur Hand "Aldrei farið frá Flateyri"Wed, 05 Nov 2025 - 1h 10min
- 116 - 107. Páll Óskar "Ennþá Gordjöss"
Gestur minn í þessum þætti er hin eini sanni Páll Óskar Hjálmtýrsson poppstjarna. Við tölum um nýjustu plötunni hans og Benna Hemm Hemm, bakslagið, ástin og batann. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: * hertzlangtimaleiga.is * Kolski.is * scavolini.is * Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: * biobu.is - * egc.is - * mammaveitbest.is * fylgifiskar.is * kjotburid.is * pureshilajit.is
Sun, 26 Oct 2025 - 1h 46min - 115 - 106 Mikael Kaaber "Fyrsta hlutverkið fimm ára"
Gestur í þessum þætti er ungstjarnan Mikael Kaaber sem er að slá í gegn í söngleiknum Moulin Rouge í Borgarleikhúsinu þar sem hann fer með annað aðalhlutverkið. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: hertzlangtimaleiga.is Kolski.is scavolini.is Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is
Tue, 14 Oct 2025 - 1h 03min - 114 - 105. Elli Egils "Lamaður af ástarsorg í tvo mánuði"Tue, 07 Oct 2025 - 1h 28min
- 109 - 104. Margrét Lára "Stórmótin í sumar, EM og Þjóðhátíð"
Margrét Lára Viðarsdóttir er gestur minn í annað sinn, við ræðum um glænýja bók sem hún var að gefa út. Væntingar hennar til EM og næstu Þjóðhátíð Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kolski.is scavolini.is Beard Monkey Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is
Fri, 04 Jul 2025 - 1h 16min - 108 - 103. Einar og Baldur: Allt sem þú vildir vita um hárígræðslur
Í nýjasta þættinum af Einmitt ræða Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason ferðalag sitt til Istanbúl í byrjun maí – þar sem þeir gengust báðir undir hárígræðsluaðgerð. Þeir fara yfir allt ferlið af hreinskilni og húmor – frá fyrstu hugsunum að lokaniðurstöðu. Sérstakur gestastjórnandi þáttarins er Ásgeir Kolbeinsson sem heldur utan um spjallið og hvetur þá til að fara alla leið í sögunni. Þetta er þátturinn fyrir alla sem hafa velt hárígræðslu fyrir sér – en aldrei þorað að spyrja. Hárið, húmorinn og hreinskilnin eru í forgrunni í þessum einstaka þætti. Ef þú vilt vita enn meira gefurutlit@gmail.com Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kolski.is scavolini.is Beard Monkey Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is
Mon, 30 Jun 2025 - 1h 36min - 107 - 102 Sonja og Svavar „Við getum ekki annað"
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins EINMITT ræðir Einar Bárðarson við Sonju Magnúsdóttur og Svavar Jóhannsson, fósturforeldra Oscars Florez, 17 ára drengs frá Kólumbíu, sem íslensk yfirvöld hyggjast vísa úr landi í byrjun júní. Í þættinum fara Sonja og Svavar yfir þann tíma sem Oscar hefur verið inn í þeirra lífi. Alveg frá því að hann fór að koma inn á heimilið sem vinur barnanna þeirra, frá þeim degi sem hann fór að búa hjá þeim, brottvísunina og til dagsins í dag.
Mon, 26 May 2025 - 1h 19min - 106 - 101. Eiríkur Ómar "Vaknaði í bráðauppskurði"Sun, 04 May 2025 - 1h 14min
- 105 - 99. Eliza Reid "Diplómati deyr"
Gestur minn í þessum þætti er Eliza Reid, fyrrverandi forsetafrú. Hún var að gefa frá sér sína fyrstu skáldsögu Diplómati deyr sem kemur út bæði hér og erlendis. Við ræðum ritstörfin, stílista, jafnrétti og lífið eftir Bessastaði í þessum stórskemmtilega þætti. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Elko.is Kolski.is scavolini.is http://scavolini.is/>Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is
Fri, 18 Apr 2025 - 1h 01min - 104 - 98 Bogi Ágústsson "Átökin um traustið"
Bogi Ágústsson hefur lesið fréttir fyrir okkur í 48 ár. Honum finnst þetta orðið alveg þokkalegt og segist vera á síðustu mánuðunum hjá Ríkissjónvarpinu. Þjóðin elskar Boga og treystir sem er lykilþáttur í fréttaflutningi. í þessum þætti ræðum við Bogi stærstu fréttir síðustu fimm áratuga og heimsmyndina eins og hún blasir við í dag. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Elko.is Kolski.is scavolini.is http://scavolini.is/>Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is http://pureshilajit.is/>
Fri, 18 Apr 2025 - 1h 01min - 103 - 100. Bríet "Mig langar að ná til þeirra allra"
Bríet er ein skærasta stjarna samtímans og í þessum þætti ræði ég við hana um tónlistina úr öllum þeim áttum sem hún mæti Bríeti. Söngur, flutningur, lagasmíðar, tónleikahald og ferðalög út í heim bæði til að upplifa frelsið, finna fjölskylduna sína og svo nýju verkefnin hennar í Nashville Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Elko.is Kolski.is scavolini.is http://scavolini.is/>Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is http://pureshilajit.is/>
Fri, 18 Apr 2025 - 1h 04min - 102 - 96. „Litlar líkur en afleiðingar slæmar."
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur og fyrrv. starfsmaður SÞ og NATO í Afganistan hefur blandast mikið inn í almenna umræðu síðustu vikna í sambandi við breytta ásýnd í heimsmálnum. Ég fékk Erling til mín til að útskýra stöðuna fyrir okkur á mannamáli. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Elko.is Kolski.is scavolini.is Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is http://pureshilajit.is/>
Thu, 17 Apr 2025 - 1h 10min - 101 - 97. Jóhanna Guðrún "Shit hvað þetta er leiðinlegt lag!"
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir er ein okkar allra besta söngkona og hefur verið frá því að hún var 10 ára. Eins skrítið og það kann að hljóma var eitt stærsta "comeback" íslenskrar tónlistar árið 2009 þegar hún landaði 2. sæti í Eurovision þá aðeins 18 ára. Við ræðum ferilinn hennar, Eurovision, FM957 og hvað Mömmur þurfa bara nauðsynlega að djamma Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Elko.is Kolski.is scavolini.is Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is
Thu, 17 Apr 2025 - 57min - 100 - 95. Tolli "En er hægt að fyrirgefa allt?"
Gestur minn í þessum þætti er Tolli vinur minn Morthens. Hann hefur í áratugi beit sér í málefnum fanga bæði í afplánun og eftir. Hann hefur í áratugi farið inn í fangelsin okkar með 12 spora vinnu sem í árana rás hefur þróast í hugleiðslu, jóga og öndunarvinnu. Tolli segir kærleikann og fyrirgefninguna eina sem togar mannin úr myrkrinu í birtuna. En er hægt að fyrirgefa allt? Aðalbakhjarlar Einmitt eru: eLKO.is kolski.is scavolini.is bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: BioBu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is
Sun, 23 Mar 2025 - 1h 12min - 99 - 94. Brynja Dan "Alin upp við það að fólk horfir"
Brynja Dan Gunnarsdóttir er gestur minn í þessum þætti. Hún eigandi Extraloppunnar í Smáralind, eigandi 1111.is, bæjarfulltrúi og fyrrum varaþingmaður. Hún er fædd á Sri Lanka, en ættleidd hingað til lands aðeins tveggja mánaða gömul. Hún missti bæði föður sinn og móður hér á Íslandi fyrir tvítugt og það hefur sannarlega mótað hana. Við ræðum fjölskyldur, áföll, liti, hringrásina og lífið í þessum skemmtilega þætti. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kolski.is scavolini.is Beard Monkey frá Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: www.egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is Pureshilajit.is
Sun, 16 Feb 2025 - 54min - 98 - 93. Gunni Hilmars "Vona að gleymi ekki að þetta er fólk"
Gunni Hilmars er gesturinn minn í þessum þætti. Hann hefur verið í sviðsljósinu í áratugi sem tískumógull í GK, Anderson & Lauth, Kormák og Skjöld og núna Thomsen. Þá stofnaði hann dúettinn Sycamore Tree ásamt Ágústu Evu Erlendsdóttur á síðasta áratug og náð aðdáunarverðum árangri og þá hefur hann líka látið til sín taka í málefnum jaðarsetra í borginni. Magnað samtal. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kolski.is Scavolini.is Beard Monkey Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is
Tue, 11 Feb 2025 - 1h 30min - 97 - 92. Elín Hall "Ég er búin að læra að hlusta á líkamann"
Elín Hall er gestur Einars Bárðarsonar í þessum þætti. Hún var bara 16 ára þegar hún tók þátt í undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins. Síðan tóku við hvert stórhlutverkið af öðru, Bubbi og Vigdís og Lof mér að falla og ofan í það tvær frábærar plötur. Nú eru 10 ár frá Söngvakeppninni og nú vita allir hver Elín Hall er, eða er það ? Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kölski herrafataverslun Síðumúla 31 Scavolini innréttingar Síðumúla 28 Beard Monkey frá Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: *Ég C Gleraugnaverslun, Hamraborg Kópavogi *Mamma veit best, Dalbrekku 30 í Kópavogi *Fylgifiskar, Nýbýlavegi 4, Kópavogi *Kjötbúrið Austuvegi 65 á Selfossi *Pureshilajit.is
Sun, 02 Feb 2025 - 1h 15min - 96 - 91. Hannes Þór "Mamma grátbað mig að fara ekki"
Hannes Þór Halldórsson er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum smá fótbolta en við ræðum þó mest hina hliðina á Hannesi sem er framleiðandi en nú er væntanleg í Sjónvarp Símans þriðja þáttaröðin af Iceguys en fyrsta myndbandið sem Hannes gerði var fyrir Nylon flokkinn árið 2024 fyrir rúmlega 20 árum.
Tue, 28 Jan 2025 - 1h 31min - 95 - 90 Rakel Garðars: Það er Vigdísar æðiSun, 12 Jan 2025 - 59min
- 94 - 89. Linda P "Ég er landsbyggðartútta"
Linda Pétursdóttir er gestur minn í þessum þætti við ræðum flest hennar ævintýri allt frá því að hún var valin ungfrú heimur 1988 til dagsins í dag. Hún leiðbeinir konum í dag í lífsþjálfun um leið og hún heldur áfram að mennta sig sjálfa og skoða heiminn Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kölski herrafataverslun Síðumúla 31 Scavolini innréttingar Síðumúla 28 Beard Monkey frá Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: *Mamma veit best, Dalbrekku 30 í Kópavogi *Fylgifiskar, Nýbýlavegi 4, Kópavogi *Kjötbúrið Austuvegi 65 á Selfossi *Pureshilajit.is
Sat, 04 Jan 2025 - 1h 08min - 93 - 88. Richard Scobie "80's tímabilinu var bara hent"
Richard Scobie er gestur minn í þessum þætti. Hann sló í gegn með hljómsveitinni Rikshaw á níunda áratug 20. aldar og ég var bæði aðdáandi hans og síðar vinur. Við ræðum um tónlistina þessi næstum 40 ár og allt sem henni fylgdi og síðast en ekki síst nýjustu plötuna hans Carnival of Souls sem kom út í haust.
Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kölski herrafataverslun Síðumúla 31 Scavolini innréttingar Síðumúla 28 Beard Monkey frá Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: Mamma veit best, Dalbrekku 30 í Kópavogi Fylgifiskar, Nýbýlavegi 4, KópavogiSat, 04 Jan 2025 - 1h 13min - 92 - 87. Bergrún Ólafs "Mig langaði að gera meira"Sun, 29 Dec 2024 - 1h 20min
- 91 - 86. Patrik Atlason, Skýrður í höfuðið á ömmuSat, 28 Dec 2024 - 1h 18min
- 90 - 85. "Ég hef staðið við mína sýn"Sat, 02 Nov 2024 - 1h 03min
- 89 - 84. "Andlát bræðranna má ekki vera til einskis"Sat, 02 Nov 2024 - 58min
- 88 - 83. "Stöðnun er upptakur að falli"
Magnús Geórir Þórðarson er gestur minn í þessum þætti. Hann er afreksmaður í rekstri menningarstofnanna. Margverðlaunaður fyrir fleira en eina vídd slíkra starfa og þess vegna mikill fengur að fá að hitta hann og ræða allar þær áskoranir sem fylgja því að stýra menningarstofnun og uppfylla í senn kröfur bókarans, gestsins og gagnrýnandans
Fri, 04 Oct 2024 - 1h 17min - 87 - 82. "Þetta eru bara jólin mín"
Elísabet Margeirsdóttir drottning utanvegahlaupana á Íslandi og brautryðjandi í svo mörgum þáttum þeirrar íþróttarar er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum þessa íþrótt í sínum víðasta skilningi og þá sérstaklega þetta nýja afbrigði íþróttarinnar sem eru þessi svonefndu bakgarðshlaup
Fri, 04 Oct 2024 - 1h 31min - 86 - 81. Lilja Alfreðs "Ég er mjög góður DJ"Mon, 23 Sep 2024 - 1h 40min
- 85 - 80 Arna Magnea "Spurning um hjarta en ekki parta"
Arna Magnea Danks trans kona og aðalleikkona í kvikmyndinni Ljósvíkingar er gestur minn í þessum þætti. Myndin er komin í bíó, hrífandi og falleg saga um vináttu sem ég hvet ykkur til að sjá. Við ræðum hennar líf og leiðina út úr skápnum og öllu því sem slíkt ferðalag útheimtir af einstaklingnum og þeim sem fara með viðkomandi í það.
Mon, 16 Sep 2024 - 1h 47min - 84 - 79. Rjómaterturnar eru í frjálsu falliSun, 08 Sep 2024 - 1h 14min
- 83 - 78. Björn Jörundur "Má ekki vera einhver vaxmyndasýning"
Björn Jörundur Friðbjörnsson er gestur minn í þessum þætti. Þessi frábæri tónlistarmaður og leikari stendur í stórræðum. Árlegir stórtónleikar með Ný Dönsk fram undan í Hörpu og nú er væntanleg í kvikmyndahús kvikmyndin Ljósvíkingar þar sem Björn fer einfaldlega á kostum sem leikari í fallegri sögu sem sögð er af mikilli næmni og fegurð í þeirri mynd
Tue, 27 Aug 2024 - 52min - 82 - 77. Birgir Steinn "Þetta er bara hluti af mér"Sun, 18 Aug 2024 - 1h 15min
- 81 - 76 Jón Gunnar Þórðarson "Bara tala og bara hlusta"
Gestur minn í þessum þætti er Jón Gunnar Þórðarson frumkvöðull og eigandi "Bara tala". Hann er lærður í listum og viðskiptum og var á tímabili farsæll leikstjóri en nú stýrir hann Bara tala sem unnið hefur til verðlauna fyrir gagnsemi sína í atvinnulífinu. Við tölum og "Bara tala" og margt fleira áhugavert.
Sun, 11 Aug 2024 - 1h 04min - 80 - 75 Þórunn Reynis "Íslendingar gera kröfur"Sun, 04 Aug 2024 - 1h 06min
- 79 - 74 Emilíana Torrini "Var hún njósnari?"
Tónlistarkonan Emilíana Torrini er gestur minn í þessum þætti. Sem aðdáandi hennar til fjölda ára þótti mér afskaplega gaman að eiga þetta samtal. Emilíana er nýbúin að gefa út stórkostlega plötu sem er byggð á reyfarakenndri ævi Miss Flower vinkonu hennar sem nýlega féll frá. Við ræðum líka lífið í London, lífið hérna heima, lögin og ferilinn sem spannar tæp 30 farsæl ár.
Sun, 28 Jul 2024 - 1h 21min - 78 - 73. Guðrún Hafsteins "Við þurfum að gera betur"
Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum um feril hennar fram að framboði, þau þrjú ár sem hún hefur setið á þingi og árið hennar í Dómsmálaráðuneytinu. Við ræðum líka gengi Sjálfstæðisflokksins, hvernig hún sér flokkinn vinna upp fylgið og hvort hún sækist eftir áframhaldandi veru í oddvitasæti flokksins á Suðurlandi.
Thu, 18 Jul 2024 - 1h 30min - 77 - 72 Helga Þóris "Erindið á Bessastaði"Mon, 13 May 2024 - 56min
- 76 - 71. Una Torfa "Þetta er sagan mín til dagsins í dag"Sat, 04 May 2024 - 1h 01min
- 75 - 70. Bergur Vilhjálmsson "Baráttan við hausinn"
Bergur Vilhjálmsson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og kafari gekk á dögunum 100 km frá Akranesi til Reykjavíkur með rúmlega tvö hundruð kílóa byrði á eftir sér. Bergur gekk alla þessa leið til styrktar Píeta samtökunum og til að vekja athygli á starfsemi þeirra. Gangan reyndi gríðarlega á Berg en hann kláraði verkefnið. Í þættinum fer hann yfir aðdragandann og hvað gekk á í hausnum á honum á meðan á göngunni stóð og hvaða þýðingu verkefnið hefur fyrir hann.
Wed, 01 May 2024 - 1h 01min - 74 - 69 Hver er Halla Hrund?
Halla Hrund Logadóttir er hástökkvarinn viku eftir viku í kapphlaupi frambjóðenda til forseta Íslands. Fyrir nokkrum vikum vissi afar fáir hver Halla er en nú keppist þjóðin við að kynna sér hana og ekki seinna vænna því það styttist í kosningar. Hver er þessi kona og hvaðan kemur hún og hvað ætlar hún sér að gera ef hún nær kjöri til embættis Forseta Íslands?
Thu, 25 Apr 2024 - 1h 12min - 73 - 68. Tommi Knúts "29 ár í rusli"
Tómas J. Knútsson, maðurinn á bak við Bláa herinn, hefur starfað við hreinsun umhverfisins síðustu 29 ár. Hann hefur lengi verið mér og öðrum innblástur í umhverfissmálum. Hann fékk fálkaorðu forseta Íslands fyrir þau störf en er ennþá á fullu. Núna þegar styttist í Stóra plokkdaginn fannst mér tilvalið að fá hann til mín til að ræða þetta magnaða áhugamál okkar félaganna, rusl.
Mon, 08 Apr 2024 - 1h 38min - 72 - 67 Siggi Arnars "Tik Tok ætlar að taka yfir tónlistarheiminn"
Sigurður Ásgeir Árnason framkvæmdastjóri OverTune sem setti allt á hliðina í byrjun árs eftir að hafa endurlífgað Hemma Gunn við í Áramótaskaupinu. Hann fullyrðir að Tik Tok ætli sér að taka yfir tónlistarheiminn en Tik Tok stendur núna í deilum við Universal, stærsta útgáfufyrirtæki í heiminum. Við Siggi ræðum tæknina og framtíðina í þessum magnaða þætti.
Mon, 08 Apr 2024 - 1h 28min - 71 - 66.Hera Björk "Hjartað stækkar og heimurinn minnkar"
Hera Björk er á leiðinni til Malmö að syngja framlag okkar í Eurovison þetta árið. Valið fór ekki fram hjá neinum. Árið 2019 heimsótti hún SOS barnaþorp bæði í Ísrael og Palestínu en hún er velgjörðasendiherra Barnaþorpanna. Við tölum um hlutverk hennar sem hennar sem velgjörðar sendiherra, hrópin sem gerð hafa verið að henni síðustu vikur og mömmu hennar sem var sveitaballa drottning suðurlands
Tue, 26 Mar 2024 - 1h 20min - 70 - 65.Júlí Heiðar "Eineltið eflir mann"
Júlí Heiðar Halldórsson tónlistarmaður og lagahöfundur var að gefa út nýja plötu. Eitt af lögunum á henni, Farfuglar, vakti athygli mína núna í vetur þegar það kom út. Þar er Júlí Heiðar að syngja um tilfinningarnar og flækjurnar sem fylgja sameiginlegu forræði og umgengnisrétt samið og sungið þannig að það lætur fá sem hlusta ósnerta. Við ræðum plötuna, ferlið að verða að manni og það sem skiptir Júlí Heiðar mestu máli.
Tue, 26 Mar 2024 - 1h 08min - 69 - 64. Siggi Jóhannes "Lífið er leit að lækningu"
Gestur minn í þessum þætti er Sigurður Hólmar Jóhannesson eða pabbi hennar Sunnu Valdísar. Sunna greindist með afar sjaldgæfan taugasjúkdóm aðeins 14 mánaða gömul og þá gáfu læknar henni ekki mikið meira en sex ár til viðbótar. Siggi, Ragnheiður Hjaltadóttir kona hans, læknar Sunnu og velunnarar fjölskyldunnar hafa sýnt mikla þrautseigju og eljusemi í því að leita að lækningu og bættum lífsgæðum fyrir Sunnu sem nú er orðin 18 ára gömul. Þetta er áhugaverður þáttur og upplýsandi.
Mon, 11 Mar 2024 - 1h 30min - 68 - 63. Herbert Guðmundsson "Can't walk away"
Herbert Guðmundsson er gesturinn minn í þessum þætti. Ég hef alla tíð verið aðdáandi Hebba, allt frá því ég heyrði Can't Walk Away í fyrsta sinn árið 1985. Stórkostlegt lag í alla staði sem hefur fylgt honum sem sól í gegnum allt sem að á hann hefur dunið. Seinna eftir að ég kynntist honum sjálfum þá held ég áfram að vera aðdáandi hans fyrir þrautseigjuna. Hann stendur upp og heldur áfram, sama hvað gengur á með jákvæðni, einlægni og ástríðu að vopni.
Mon, 04 Mar 2024 - 1h 07min - 67 - 62 Magga Jónasar: Kommentakerfið fór á hliðina
Gestur minn í þessum þætti er Magga Jónasar förðunarfræðingur og heilsumarkþjálfi. Við ræðum um heilsuna, orkuna og hvernig við höldum réttum kúrs í ólgusjó samfélagsmiðla, auglýsinga, rétttrúnaðar, öfga og hvernig við nálgumst fáum í sinni einföldustu mynd. Hvernig skríður kona upp úr margföldu burn-outi og stendur á haus á hverjum morgni af því að það er gott fyrir hvatberana. Já minna má það nú vera en þetta er frábært spjall.
Thu, 22 Feb 2024 - 1h 13min - 66 - 61 Logi Pedro: Eru Íslendingar rasistar?
Logi Pedro er gestur minn í nýjasta þættinum af Einmitt. Hann er frábær tónlistarmaður og sýndi það með hljómsveitinni sinni Retro Stefson, svo undir eigin nafni og á bak við tjöldin sem upptökustjóri margra flottustu listamanna sinnar kynslóðar. Við Logi tölum um tónlistina í öllu því samhengi sem okkur dettur í hug en við ræðum líka hvernig er að vera svartur strákur, erum við Íslendingar rasistar og hvernig eigum við að fóta okkur í umræðunni um kynþætti og hvaðan við komum öll. Frábært og upplýsandi samtal.
Thu, 22 Feb 2024 - 1h 02min - 65 - 60 Friðrik Dór "Aldrei of flottur til að hafa ekki gaman af þessu"
Friðrik Dór Jónsson einn afkastamesti tónlistarmaður landsins er gestur minn í þessum þætti. Hann var að gefa út plötuna Mæður sem er sjálfstætt framhald af Dætur sem kom út fyrir tveimur árum. Við ræðum hvernig hann semur tónlistina og hvaðan hann sælir innblástur í textana. Heiðarlegt og skemmtilegt samtal við Friðrik Dór um tónlistina.
Wed, 14 Feb 2024 - 1h 12min - 64 - 59. Snædís Xyza Mae Jónsdóttir "Sá hvítan mann í fyrsta sinn þegar ég var 4 ára"
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir matreiðslumaður er gestur Einars í þessum þætti. Hún er fædd á Filippseyjum en mamma hennar flutti til Íslands skömmu eftir að hún fæddist. Þegar Snædís var fjögurra ára kom móðir hennar og sótti hana og þær hófu nýtt líf á Íslandi. Það gekk aldrei sem skildi og Snædís var inn og út af fósturheimilum sem unglingur. Það var ekki fyrr en fulltrúi barnaverndar á Dalvík gekk henni í móður stað að Snædís fór að ná að fóta sig í lífinu. Í dag er hún þjálfari Íslenska Kokkalandsliðsins sem er komið til Þýskalands en ólympíuleikarnir í matreiðslu hófust þar á föstudaginn. Landsliðið keppir í tveimur af stærstu greinunum og leikunum lýkur á miðvikudag. Snædís var fyrirliði landsliðsins á heimsmeistaramótinu 2018, hún var fyrirliði á Ólympíuleikunum í Stuttgart 2020 þegar Ísland náði 3. sæti. Nú er Snædís þjálfari og hún ætlar sér stóra hluti með liðið þessa helgi og viku og á með henni er vel þjálfað lið vönu keppnisfólki. Ferðasagan hennar frá Filippseyjum alla leið á Ólympíuleikana í matreiðslu hér í þessum þætti.
Mon, 05 Feb 2024 - 59min - 63 - 58 Bryndís Gunnlaugs "Fimm gríðarleg áföll á nokkrum vikum"
Gestur minn í þessum þætti er Bryndís Gunnlaugsdóttir lögfræðingur og Grindvíkingur. Hún er fyrrum forseti bæjarstjórnar í Grindavík og starfaði lengi sem lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Í dag starfar hún sem lögfræðingur hjá KPMG með áherslu á opinbera stjórnsýslu. Hún tók til máls á íbúafundi með ráðamönnum á þriðjudag eftir gos og vakti þar mikla athygli.
Sat, 20 Jan 2024 - 58min - 62 - 57. Gaupi "Hann var einstakur handboltamaður"
Guðjón "Gaupi" Guðmundsson er einn reyndasti íþróttafréttamaðurinn þjóðarinnar. Áður var hann einnig þekktur sem liðsstjóri og aðstoðarmaður Bogdans Kowalczyk hjá Víkingi og landsliði Íslands í handknattleik. Núna er sonur Gaupa, Snorri Steinn þjálfari karlalandsliðs okkar í handbolta og kominn til Þýskalands á EM í handbolta. Þar situr Snorri með væntingar þjóðarinnar í fanginu og spennan er í hámarki. Í þessum þætti greinir Gaupi stöðuna eina og birtist honum í upphafi móts.
Mon, 15 Jan 2024 - 1h 10min - 61 - 56. Sveppi "Kúka með opna hurð svo ég missi ekki af neinu"
Sverrir Þór Sverrisson hefur á síðustu árum breyst úr hreinræktuðum sprelligosa sem þjóðin elskaði að horfa á blanda ógeðsdrykki og hlaupa allsber niður niður Laugaveginn í einn ástsælasta leikarann okkar. Hann er jafnvígur á útvarp, sjónvarp, kvikmyndir og leiksviðið og í þessum þætti ræðum við Sveppi um þetta ferðalag og nýjustu verkefnin hans Veisluna, Kennarastofuna, Áramótaskaupi og And Björk of Course sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í febrúar.
Thu, 11 Jan 2024 - 1h 08min - 60 - 55. Manúela Ósk "Mikilvægt að fólk þekki einkennin"
Manúela Ósk Harðardóttir athafnakona er gestur minn í þessum þætti. Í desember 2023 hné hún niður í heimsókn frá frænku sinni og var keyrð með hraði á Bráðamóttökuna með heilablóðfall. Manúela hefur ekki talað mikið um þetta áfall en í þessum þætti lýsir hún hvernig endurhæfingin hefur gengið bæði andlega og líkamlega og hvað það er mikilvægt að þekka einkenni fyrirboða heilablóðsfalls.
Thu, 11 Jan 2024 - 1h 34min - 59 - 53 Villi Árna "Samfélag í fullkomri óvissu"
Vilhjálmur Árnason er gestur minn í þessum þætti. Hann er þingmaður en fyrst og síðast er hann Grindvíkingur og er í sömu sporum og þeir allir um þessar mundir en Grindvíkingar lifa við mikla óvissu vegna jarðhræringana á Reykjanesskaga. Ég ræði við Villa um hvernig þetta kemur við hann sem íbúa, pabba, eiginmann og þingmann. Þá ræðum við einnig orku- og öryggismál út frá þessari stöðu en Villi er lögreglumaður og öryggismál í hafa verið Villa hugleikin alveg frá fyrsta degi á Alþingi.
Wed, 27 Dec 2023 - 1h 19min - 58 - 54. Hrefna Bachmann "Grét bara fyrstu ferðina"
Hrefna er ævintýrakona í víðasta samhengi. Hún og maðurinn hennar Ólafur Vilhjálmsson hafa búið og starfað í fleiri löndum en flestir landsmenn hafa heimsótt og ekki bara það heldur eru heimsálfurnar sem þau hafa unnið í að minnsta kosti fimm; Evrópa, Norður-Ameríka, Suður-Ameríka, Asía og Afríka. Þau sóttu nám til Bandaríkjanna bæði í Florída og seinna í Arizona. Magnaðasta verkefni þeirra er þó án efa uppbygging innviða í litlum 5000 manna bæ í Uganda. Þar hafa þau tekið þátt í að byggja upp heilsugæslu, skóla og fæðingaheimili ásamt fjölskyldu og vinum. Hrefna segir mér magnaða sögu þessa magnaða starfs þeirra á þessu svæði síðasta áratug.
Wed, 27 Dec 2023 - 1h 40min - 57 - 52. Króli „Dalirnir breytast ekki þó maður þekki þá betur"
Kristinn Óli Haraldsson, Króli, er gestur minn í þætti 52. Fjölhæfur ungur listamaður sem hefur notið mikillar velgengni og lýðhylli allt frá árinu 2017 þegar hann og Jói P stukku fram á sjónarsviðið með laginu "BOBA" en hann hefur ekki fundið vellíðan í velgengninni. Hann glímir við kvíða og þunglyndi sem hann hefur náð að lifa með en ekki kannski alveg náð að hemja. Hann talar af miklu hispursleysi um baráttu sína sem er ennþá fyrirferðarmikið verkefni í hans lífi. Í þættinum tölum við um erfið viðfangsefni og rétt að benda á síma Píeta samtakanna 552 2218 og Hjálparsíma Rauða Krossins 1717 fyrir aðstoð við sömu viðfangsefni.
Tue, 28 Nov 2023 - 1h 17min - 56 - 51. Bjarni Karlsson: "Hvers vegna erum við grimm?"
Bjarni Karlsson er gestur minn í þessum þætti en hann er nýbúinn að senda frá sér bókina " Bati frá tilgangsleysi". Þar eins og í samtalinu okkar leitast hann við að svara spurningunni: Hvers vegna erum við grimm og heimsk? Samtalið okkar fer um víðan völl siðfræðinnar og guðfræðinnar og þar fléttast saman veraldleg og trúarleg hugsun um það sem skiptir máli í dag, að taka ábyrgð gagnvart umhverfi og mennsku.
Sun, 19 Nov 2023 - 1h 19min - 55 - 50. Magni: "Tommy Lee að reyna við Ragnhildi Steinunni"
Magni „okkar" Ásgeirsson er gestur minn í þessum þætti. Við höfum verið vinir til áratuga núna og mig langaði að ræða við hann um Rockstar Supernova tímabilið og samvistirnar við Tommy Lee og félaga í Los Angeles. Síðan ræðum við auðvitað bransann frá öllum hliðum og álagið sem því fylgir að vera í 10 starfandi hljómsveitum og rauða flaggið sem hann fékk í ágúst þegar hann var keyrður með bláu ljósin á sjúkrahúsið á Akureyri og hvernig bóndasonurinn frá Borgarfirði eystri reynir að „minnka" álagið.
Sun, 12 Nov 2023 - 1h 17min - 54 - 49. Sigríður Hrund „Heppin að fá fæðingarþunglyndi þrisvar"
Sigríður Hrund Pétursdóttir, eigandi Vinnupalla ehf. og fyrrverandi formaður Félags kvenna í atvinnulífinu er gestur minn í þessum þætti. Hún talar ljós, eins og hún kallar það, dreifir mildi og náð sem hún hefur tamið sér eftir margra ára sjálfsvinnu því lífið er ekki alltaf dans á rósum. Hún fékk fæðingarþunglyndi í þrígang og segir það heppni. Hvernig má það vera og hvernig vinnur maður sig inn í ljós eftir þa
Sun, 12 Nov 2023 - 1h 13min - 53 - 48. Baldur Rafn "Metró maðurinn er orðinn miðaldra"
Baldur Rafn Gylfason hárgeiðslumeistari og eigandi Bpro heildsölunnar. Baldur var einn þeirra sem lagði grunn af innreið "Metró mannsins" til Íslands upp úr aldamótum. Metró maðurinn leyfði sér meira en bara ljósabekki og strípur til að hressa upp á útlitið. Metró maðurinn notaði líka snyrtivörur, krem og hárvörur sem ekki var algengt á þeim tíma. Nú er Metró maðurinn orðinn miðaldra og nú er hann að takast á við hækkandi kollvik, lélegan hvirfil, bauga og hrukkur. Baldur Rafn er gestur í nýjasta þættinum af Einmitt hlaðvarpi Einars Bárðarsonar og í þættinum fara þeir um víðan völl og vopna metró manninn inn í miðaldra slaginn.
Sun, 29 Oct 2023 - 1h 32min
Podcasts similaires à Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه
