Filtrar por gênero

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við er hlaðvarp fyrir alla sem hafa einhvern tímann haft sterka skoðun á kaffi, grilli, garðslöngu, gallabuxum eða einhverju öðru sem skiptir nákvæmlega engu máli... en virðist samt skipta ótrúlega miklu máli. Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fara yfir lífið á miðjum aldri af húmor, sjálfsháði og forvitni. Hver þáttur er blanda af hversdagslegum vangaveltum, persónulegum sögum og endalausum umræðum um allt það sem enginn bað um – en allir eiga skoðun á. Nýir þættir birtast á 7–10 daga fresti.

156 - Menn eins og við #26 "Stóri kombakk þátturinn"
0:00 / 0:00
1x
  • 156 - Menn eins og við #26 "Stóri kombakk þátturinn"

    Stóra kombakkið! Einar og Baldur snúa aftur með sögur af Valencia, þvottavélaveseni og lífinu eftir hárígræðslu. Jólastress, raunveruleikaþættir og eilíf barátta við slátturóbótann koma líka við sögu.

    Eins og áður ræða þeir félagar allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt.

    Helstu samstarfsaðilar þáttarins

    www.gefur.is

    www.bpro.is

    www.kolski.is

    www.bkhonnun.is

    Sun, 25 Oct 2026 - 58min
  • 155 - MENN EINS OG VIÐ #25 "Hvaða þvæla er þetta Marta?"

    Það var bókstaflega brotist inn heima hjá Baldri í miðri upptöku þáttarins. Þegar búið var að greiða úr því gátu strákarnir snúið sér að alvarlegri málum – eins og þeirri hneisu að hvorugur þeirra komst á lista Mörtu á Smartlandi yfir hárprúðustu karlmenn landsins. Róbótinn hans Baldurs er loksins kominn í lag, Einar fór í fjöruferð með einum besta kokki landsins og fékk persónulega stílráðgjöf í Mango. Allt þetta og eitthvað meira sem skiptir nákvæmlega engu máli – nema auðvitað mönnum eins og okkur.

    Aðalbakhjarlar Einmitt eru:

    hertzlangtimaleiga.is

    intuens.is

    gefur.is

    kolski.is

    Bpro.is

    Fri, 25 Sep 2026 - 55min
  • 154 - MENN EINS OG VIÐ #24: Ertu að horfa á það viljandi?

    Er hægt að mæla alvöru miðaldra lífsgæði – og hvað segir það um mann að horfa viljandi á Married at First Sight?

    Í 24. þætti Menn eins og við fara Einar og Baldur yfir lista með 15 atriðum sem eiga að skilgreina alvöru lúxus miðaldra mannsins. Þeir skoða listann, sannreyna hann eftir eigin höfði og komast að því að lífsgæðin felast stundum í mun hversdagslegri hlutum en maður hefði haldið.

    Um leið reyna þeir að komast til botns í einni stærstu ráðgátu þáttarins: Af hverju í ósköpunum horfir Baldur viljandi á Married at First Sight?

    Eins og venjulega fara þeir félagar á kostum í umræðum um allt það sem skiptir miðaldra menn gríðarlega miklu máli – en mögulega engan annan.

    Aðalbakhjarlar Menn eins og við eru:

    hertzlangtimaleiga.is

    kolski.is

    gefur.is

    Bpro.is

    Thu, 10 Sep 2026 - 1h 12min
  • 153 - MENN EINS OG VIÐ #23 "Með Dolly síðasta daginn"

    Baldur var staddur í Nashville fyrir algjöra tilviljun daginn sem Dolly Parton féll frá og endaði á því að leggja blóm við stjörnu hennar. Þaðan liggur leiðin í kúrekahatta, strútsleðursstígvél og manninn sem spurði: „Are you from around here?" Einar og Baldur ræða líka opin sambönd, sameiginleg áhugamál hjóna, hárvörur miðaldra karla og róbótasláttuvélina sem enn neitar að vinna vinnuna sína. Sem sagt flest það sem skiptir þig nákvæmlega engu máli.

    Tue, 01 Sep 2026 - 1h 04min
  • 152 - MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal

    MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal

    Einar og Baldur fara yfir allt það mikilvægasta sem skiptir engu máli: hárfund með tugum nýhærðra manna, deilur Baldurs við slátturóbótinn, Einar fór í þjóðbúningamessu, hvort Menningarnótt sé orðin Menningarkvöld og hvernig tveir lofthræddir menn komast upp á Bolafjall.

    Svo fer Baldur heim í Búðardal, rifjar upp sumrin í sveitinni, fólkið, ættirnar og gömlu sögurnar. Smá ferðalag, smá fortíð og fullt af algjörlega áríðandi en gagnslausu spjalli.

    Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við.

    Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is

    Fri, 21 Aug 2026 - 1h 05min
Mostrar mais episódios