Filtrar por gênero

Íslenski Draumurinn

Íslenski Draumurinn

Íslenski Draumurinn

Þetta hlaðvarp er fyrir þá sem hafa áhuga á fyrirtækjarekstri, fjármálum, fjárfestingum og að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Í þáttunum setjumst við niður með íslenskum frumkvöðlum, viðskiptamönnum og einstaklingum sem hafa þorað að elta sína drauma og hafa náð langt á sínu sviði. Við förum yfir þeirra sögu, velgengnina og mistökin. Meira um hlaðvarpið inn á www.islenskidraumurinn.is

53 - 52. Hilmar Veigar Pétursson - Fenris Creations, áður CCP
0:00 / 0:00
1x
  • 53 - 52. Hilmar Veigar Pétursson - Fenris Creations, áður CCP

    Í þessum þætti af Íslenska draumnum ræðir Sigurður við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra Fenris Creations, áður CCP, sem hefur staðið í brúnni hjá einu þekktasta tölvuleikjafyrirtæki Íslands í meira en tvo áratugi. Hilmar segir frá fyrstu tölvunni sem hann safnaði fyrir með blaðburði, lærdómsárunum hjá OZ og ævintýrinu á bak við EVE Online. Hann ræðir opinskátt um tímabil þegar starfsfólk vann mánuðum saman án launa, velgengnina sem leiddi til ofþenslu og erfiðu ákvarðanirnar sem fylgdu í kj...

    Mon, 16 Nov 2026
  • 52 - 51. Baksýnisspegillinn og vegvísirinn fram á við

    Þátturinn í dag er aðeins öðruvísi. Við lítum í baksýnisspegilinn og drögum saman helstu lærdóma ársins. Við heyrum brot úr mest hlustuðu þáttum ársins og kynnum til leiks markmiðaheftið fyrir 2026. Heftið er hannað til að hjálpa þér að setja skýr markmið, halda fókus og ná alvöru árangri. Ef þú vilt fá heftið sent, sendu okkur línu á Instagram hjá Íslenska draumnum. Gleðilega hátíð og takk kærlega fyrir hlustunina á árinu.

    Tue, 30 Dec 2025
  • 51 - 50. Ingvi Þór Georgsson - Aflamiðlun

    Í þessum þætti af Íslenska Draumnum ræðir Sigurður við Ingva Þór Georgsson, mann sem hefur farið óhefðbundna leið í atvinnulífinu og byggt upp ótrúlega fjölbreyttan feril. Í þættinum opnar Ingvi á fyrstu skrefum sínum, ævintýrunum í kringum Aflamiðlun, verkefnunum sem spruttu út frá því og þeirri þrautseigju sem hefur haldið honum áfram, verkefni eftir verkefni: borðspilaútgáfu, Alfreð, Pardus, hlaðvarpsrekstur Sýnar, Pyngjan, fyrirtækjasala, hugbúnaðarrekstur og jafnvel þjóðbúningaframleiðsl...

    Tue, 16 Dec 2025
  • 50 - 49. Helga Sigrún Hermannsdóttir - Dottir Skin

    Gestur Íslenska Draumsins þessa vikuna er Helga Sigrún Hermannsdóttir, meðstofnandi og yfirmaður vísinda og vöruþróunar hjá Dottir Skin, hefur vakið athygli fyrir einstaka nálgun sína á snyrtivörur, þar sem sameinast djúp þekking á efnafræði, eigin reynsla af húðvandamálum og vilji til að skapa raunverulegar lausnir. Hún hefur alla tíð verið heilluð af húð, innihaldsefnum og þeirri spurningu hvað virkar í raun. Vegferð hennar sem frumkvöðull hófst ekki með fjárfestafundi eða viðskiptaáætlun, ...

    Tue, 02 Dec 2025
  • 49 - 48. Árni Jón Pálsson - Alfa Framtak

    Í nýjasta þætti af Íslenska Draumnum tekur Sigurður á móti Árna Jóni Pálssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra Alfa Framtaks, sem deilir einlægri og heillandi sögu sinni frá fyrstu skrefum í viðskiptalífinu yfir í það að leiða einn áhugaverðasta og öflugasta framtakssjóð landsins í dag.

    Tue, 18 Nov 2025
Mostrar mais episódios