Filtrer par genre
Þetta hlaðvarp er fyrir þá sem hafa áhuga á fyrirtækjarekstri, fjármálum, fjárfestingum og að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Í þáttunum setjumst við niður með íslenskum frumkvöðlum, viðskiptamönnum og einstaklingum sem hafa þorað að elta sína drauma og hafa náð langt á sínu sviði. Við förum yfir þeirra sögu, velgengnina og mistökin. Meira um hlaðvarpið inn á www.islenskidraumurinn.is
- 53 - 52. Hilmar Veigar Pétursson - Fenris Creations, áður CCP
Í þessum þætti af Íslenska draumnum ræðir Sigurður við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra Fenris Creations, áður CCP, sem hefur staðið í brúnni hjá einu þekktasta tölvuleikjafyrirtæki Íslands í meira en tvo áratugi. Hilmar segir frá fyrstu tölvunni sem hann safnaði fyrir með blaðburði, lærdómsárunum hjá OZ og ævintýrinu á bak við EVE Online. Hann ræðir opinskátt um tímabil þegar starfsfólk vann mánuðum saman án launa, velgengnina sem leiddi til ofþenslu og erfiðu ákvarðanirnar sem fylgdu í kj...
Mon, 16 Nov 2026 - 52 - 51. Baksýnisspegillinn og vegvísirinn fram á við
Þátturinn í dag er aðeins öðruvísi. Við lítum í baksýnisspegilinn og drögum saman helstu lærdóma ársins. Við heyrum brot úr mest hlustuðu þáttum ársins og kynnum til leiks markmiðaheftið fyrir 2026. Heftið er hannað til að hjálpa þér að setja skýr markmið, halda fókus og ná alvöru árangri. Ef þú vilt fá heftið sent, sendu okkur línu á Instagram hjá Íslenska draumnum. Gleðilega hátíð og takk kærlega fyrir hlustunina á árinu.
Tue, 30 Dec 2025 - 51 - 50. Ingvi Þór Georgsson - Aflamiðlun
Í þessum þætti af Íslenska Draumnum ræðir Sigurður við Ingva Þór Georgsson, mann sem hefur farið óhefðbundna leið í atvinnulífinu og byggt upp ótrúlega fjölbreyttan feril. Í þættinum opnar Ingvi á fyrstu skrefum sínum, ævintýrunum í kringum Aflamiðlun, verkefnunum sem spruttu út frá því og þeirri þrautseigju sem hefur haldið honum áfram, verkefni eftir verkefni: borðspilaútgáfu, Alfreð, Pardus, hlaðvarpsrekstur Sýnar, Pyngjan, fyrirtækjasala, hugbúnaðarrekstur og jafnvel þjóðbúningaframleiðsl...
Tue, 16 Dec 2025 - 50 - 49. Helga Sigrún Hermannsdóttir - Dottir Skin
Gestur Íslenska Draumsins þessa vikuna er Helga Sigrún Hermannsdóttir, meðstofnandi og yfirmaður vísinda og vöruþróunar hjá Dottir Skin, hefur vakið athygli fyrir einstaka nálgun sína á snyrtivörur, þar sem sameinast djúp þekking á efnafræði, eigin reynsla af húðvandamálum og vilji til að skapa raunverulegar lausnir. Hún hefur alla tíð verið heilluð af húð, innihaldsefnum og þeirri spurningu hvað virkar í raun. Vegferð hennar sem frumkvöðull hófst ekki með fjárfestafundi eða viðskiptaáætlun, ...
Tue, 02 Dec 2025 - 49 - 48. Árni Jón Pálsson - Alfa Framtak
Í nýjasta þætti af Íslenska Draumnum tekur Sigurður á móti Árna Jóni Pálssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra Alfa Framtaks, sem deilir einlægri og heillandi sögu sinni frá fyrstu skrefum í viðskiptalífinu yfir í það að leiða einn áhugaverðasta og öflugasta framtakssjóð landsins í dag.
Tue, 18 Nov 2025 - 48 - 47. Íslenski Draumurinn er kominn aftur
Við kynnum til leiks nýjan og stærri draum. Nýtt stúdíó og stærri hugmyndir. Í þessum stutta kynningaþætti tilkynnum við að Íslenski Draumurinn er hafinn á ný eftir stutt hlé. Við heyrum einnig hljóðbrot úr næstu tveimur þáttum, sem þú mátt ekki missa af. Fyrsta hljóðbrotið er úr þættinum með Árna Jóni Pálssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra Alfa Framtak. Í þættinum deilir hann einlægri og heillandi sögu sinni frá fyrstu skrefum í viðskiptalífinu yfir í það að leiða einn áhugaverða...
Tue, 04 Nov 2025 - 47 - 46. Hekla Arnardóttir - Crowberry Capital
Í nýjasta þætti Íslenska draumsins ræðir Sigurður Sindri við Heklu Arnardóttur, meðstofnanda Crowberry Capital, sem hefur átt óvenjulega vegferð úr vélaverkfræði yfir í heim fjárfestinga og frumkvöðlastarfsemi. Hekla hefur starfað við fjárfestingar í nýsköpun í fjölda ára, fjárfest í fjölbreyttum hópi tæknifyrirtækja, og komið að byggingu sprotafyrirtækja sem hafa vaxið út fyrir landsteinana.
Tue, 24 Jun 2025 - 46 - 45. Sindri Már Finnbogason - TIX
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski Draumurinn ræðir Sigurður Sindri við Sindra Má Finnbogason, stofnanda og frumkvöðulinn á bak við miðasölukerfið Tix. Í þættinum greinir Sindri frá fyrstu kynnum sínum af forritun, uppbyggingu eigin hugbúnaðarfyrirtækis, og þeirri alþjóðlegu útrás sem fylgdi í kjölfarið. Ferill hans spannar þrjá áratugi og ber vott um óvenjulegan sjálflærdóm, seiglu og víðsýni í rekstri.
Tue, 10 Jun 2025 - 45 - 44. Litið til baka
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins lítum við aftur á þrjá áhrifamikla gesti sem komu í fyrstu þáttunum – hver með sína einstöku sögu, sýn og leið að árangri. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa lagt ótrúlega vinnu í að byggja upp rekstur frá grunni og eru allir ólík dæmi um hvað frumkvöðlastarf getur falið í sér. Hvort sem það er í hótelrekstri, bílaleigum eða fasteignastarfsemi – þá er eitt sem skín í gegn: þrautseigja, framtíðarsýn og drifkraftur. Í þessum þætti lítum á þegar Steinþór Jónsso...
Tue, 03 Jun 2025 - 44 - 43. Árið 2025 - Fyrri helmingur
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski draumurinn stígur Sigurður Sindri Magnússon skref til baka og fer yfir þrjá eftirminnilega viðmælendur sem hafa komið fram á árinu: Jónas Hagan Guðmundsson, Kristján Inga Mikaelsson og Hjálmar Gíslason. Þátturinn er áminning um breiddina og dýptina í íslensku frumkvöðlaumhverfi – og hversu mikla innblástur er að finna í þeim sem þora að láta til sín taka.
Tue, 27 May 2025 - 43 - 42. Hjálmar Gíslason - GRID
Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn fáum við innsýn í ævintýralegt og lærdómsríkt ferðalag Hjálmars Gíslasonar – eins reynslumesta frumkvöðuls Íslands og stofnanda GRID, sem vinnur að næstu byltingu í töflureiknum. Hjálmar hefur áratugareynslu af því að umbreyta hugmyndum í raunverulegar vörur og fyrirtæki, og í þættinum deilir hann einlæglega sinni sögu – frá því að selja fyrsta tölvuleikinn sinn 14 ára gamall, yfir í að selja hugbúnaðarfyrirtæki sitt til stórfyrirtækis í Bandaríkjunum.
Tue, 20 May 2025 - 42 - 41. Emin Kadri - Atvinnumaður í hnefaleikum
Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn kynnumst við Emin Kadri, 22 ára atvinnuboxara sem þrátt fyrir ungan aldur er þegar orðinn þekkt nafn í íslenskri íþróttasenu. Emin hefur barist tvo atvinnubardaga – og unnið þá báða – og margir sjá hann sem einn efnilegasta hnefaleikamann Íslands. Lestu meira og skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is
Tue, 13 May 2025 - 41 - 40. Valgerður Hrund Skúladóttir - Sensa
Í nýjasta þætti Íslenska draumsins hittum við Valgerði Hrund, framkvæmdastjóra Sensa og einn af stofnendum fyrirtækisins. Hún hefur í áratugi verið í fararbroddi íslenskrar upplýsingatækni og lýsir í viðtalinu ótrúlegri vegferð sinni frá Vesturbæ Reykjavíkur til þess að stýra alþjóðlegu tæknifyrirtæki með yfir 160 starfsmenn í 12 löndum. Skráðu þig á póstlistann og lestu meira á islenskidraumurinn.is
Tue, 06 May 2025 - 40 - 39. Jónas Karl - Markmiðaþáttur - Ertu á réttri leið?
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins býður Sigurður upp á sérstaka útgáfu sem tengist markmiðasetningu – grunnstoð allra þeirra sem vilja ná árangri, hvort sem er í lífinu eða í viðskiptum. Þátturinn er framhald af fyrsta markmiðaþætti ársins og nú fer Sigurður dýpra í efnið með tilkomu nýs markmiðaheftis sem allir geta nálgast frítt á islenskidraumurinn.is. Í heftinu má finna skýrar spurningar, lista og verkfæri sem hjálpa þér að setja þér markviss og framkvæmanleg markmið – og komast alla lei...
Tue, 29 Apr 2025 - 39 - 38. Kristján Ingi Mikaelson - VISKA Digital Assets & MGMT Ventures - Part 2
Í nýjasta þætti Íslenska draumsins heldur samtal Sigurðar við Kristján Inga Mikaelsson – frumkvöðul, fjárfesti og einn af fyrstu talsmönnum Bitcoin á Íslandi áfram. Í þættinum fer Kristján yfir einstakan feril sem spannar tvo áratugi í tæknigeiranum, upphafið í forritun sem ungur maður og leiðina að því að stýra sjóðum og fjárfesta í framtíðarfyrirtækjum. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is
Tue, 22 Apr 2025 - 38 - 37. Kristján Ingi Mikaelson - VISKA Digital Assets & MGMT Ventures - Part 1
Í nýjasta þætti Íslenska draumsins er fyrsti partur samtals Sigurðar við Kristján Inga Mikaelsson – frumkvöðul, fjárfesti og einn af fyrstu talsmönnum Bitcoin á Íslandi. Í þættinum fer Kristján yfir einstakan feril sem spannar tvo áratugi í tæknigeiranum, upphafið í forritun sem ungur maður og leiðina að því að stýra sjóðum og fjárfesta í framtíðarfyrirtækjum. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is
Tue, 15 Apr 2025 - 37 - 36. Sölvi Tryggvason - Fjölmiðlamaður & rithöfundur
Nýr þáttur af Íslenska draumnum er kominn út og að þessu sinni er gestur Sigurðar enginn annar en fjölmiðlamaðurinn, hlaðvarpsstjórnandinn og rithöfundurinn Sölvi Tryggvason – betur þekktur sem Sölvi Tryggva. Sölvi hefur verið áberandi í íslensku fjölmiðlalífi í yfir tvo áratugi og deilir hér ótrúlegri og fjölbreyttri vegferð sinni. Lestu meira um Sölva og skráðu þig á póstlistann á íslenskidraumurinn.is
Tue, 08 Apr 2025 - 36 - 35. Guðmundur Birkir Pálmason - Kírópraktor & áhrifavaldur
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Guðmund Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró. Guðmundur hefur byggt upp stærstu kírópraktorstofu Íslands, rekið fyrirtæki í Svíþjóð, opnað hárgreiðslustofu og orðið að áhrifavaldi með sitt eigið fatamerki. Í þættinum fer hann yfir ferðalagið sem liggur að baki þessu öllu – ásamt því að ræða sjálfsvinnu, sjálfsrækt og þörfina til að hjálpa öðrum. Lestu meira um Gumma kíró og skráðu þig á póstlistann á íslenskidraumurinn.is
Tue, 01 Apr 2025 - 35 - 34. Karel Ólafsson - PreppUp, Preppbarinn & Lamb Street Food
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Karel Ólafsson, frumkvöðulinn á bak við PreppUp, Preppbarinn og Lamb Street Food. Karel hefur fetað óvenjulega leið inn í veitingarekstur en með hugrekki, áræðni og sterka framtíðarsýn hefur hann skapað holla og sjálfbæra veitingamenningu á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og lestu meira á islenskidraumurinn.is
Tue, 25 Mar 2025 - 34 - 33. Guðjón Már Guðjónsson - OZ
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við einn af mest áhrifamestu frumkvöðlum Íslands, Guðjón Má Guðjónsson. Guðjón hefur verið á fullu í nýsköpunarheiminum síðan hann var aðeins 14 ára gamall og hefur á ferli sínum stofnað og byggt upp mörg af stærstu tæknifyrirtækjum landsins. Hann hefur unnið á fjölbreyttum sviðum – allt frá fjarskiptum yfir í gervigreind og útvarpslausnir fyrir íþróttir. Í viðtalinu segir Guðjón frá ferli sínum, áskorunum og stórum sigrum – frá fyrstu skrefun...
Tue, 18 Mar 2025 - 33 - 32. Ivan Svan Corvasce - Kokteilaskólinn, Reykjavík Cocktails, Spritz & Heimabarinn
Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Ivan Svan Corvasce, stofnanda Kokteilaskólans, RVK Cocktails, Vínskólans og eiganda Spritz Venue. Ivan hefur á síðustu árum byggt upp öflugt fyrirtæki í kringum kokteilamenningu á Íslandi og hefur með elju og ástríðu breytt því hvernig fræðsla, þjónusta og upplifun tengd kokteilum er háttað hér á landi. Hann er einnig höfundur bókarinnar Heimabarinn, sem gefur lesendum innsýn í kokteilagerð og veitir verkfærin til að búa til fyrsta flokks ...
Tue, 11 Mar 2025 - 32 - 31. Georg Lúðvíksson - Meniga, Dimon & Spesía
Í nýjasta þætti Íslenska draumsins er gesturinn Georg Lúðvíksson, raðfrumkvöðull, fjárfestir og fjármálasérfræðingur. Georg er best þekktur fyrir að vera stofnandi Meniga, en hefur einnig byggt upp fyrirtæki eins og UpDown og Dimon, ásamt því að sitja í stjórnum stórfyrirtækja eins og Icelandair og lífeyrissjóða. Við förum meðal annars yfir hvernig hann komst í Harvard, hvernig hann nálgast fjármál, hvernig það er að byggja upp fyrirtæki frá grunni og hvaða lærdóm hann hefur dregið af frumkv...
Tue, 04 Mar 2025 - 31 - 30. Linda Pétursdóttir - LMLP
Í nýjasta þætti Íslenska Draumurinn er engin önnur en Linda Pétursdóttir, betur þekkt sem Linda Pé, gestur þáttarins. Linda vakti fyrst athygli þegar hún vann titilinn Miss World árið 1988, en í þættinum fer hún yfir hvernig það breytti lífi hennar og opnaði dyr að tækifærum um allan heim. Linda segir frá uppruna sínum, hvernig hún endaði í fegurðarsamkeppni og hvernig það leiddi hana í óvænta átt í lífinu. Hún ræðir einnig frumkvöðlastarf sitt og hvernig hún hefur þróað sig frá því að reka ...
Tue, 25 Feb 2025 - 30 - 29. Davíð Örn Símonarson - Smitten
Í nýjasta þætti Íslenski draumurinn er gesturinn Davíð Örn Símonarson, frumkvöðull og framkvæmdastjóri stefnumótaappsins Smitten. Davíð er einn af fremstu frumkvöðlum landsins og hefur unnið að snjallforritum í um 12 ár. Í þættinum fer hann yfir feril sinn, áskoranirnar sem hann hefur staðið frammi fyrir og hvernig hann hefur byggt sig upp í gegnum ótrúleg verkefni. Lestu meira um Davíð og skráðu þig á póstlistann okkar á islenskidraumurinn.is
Tue, 18 Feb 2025 - 29 - 28. Jón Óli Ómarsson - Go Car Rental
Í nýjasta þætti Íslenski draumurinn segir Jón Óli Ómarsson, stofnandi og eigandi Go Car Rental, frá því hvernig hann byggði upp eitt stærsta bílaleigufyrirtæki landsins frá grunni. Saga Jóns er frábært dæmi um hvernig dugnaður, útsjónarsemi og vilji til að læra á öllum sviðum rekstrar geta leitt til stórkostlegs árangurs.
Tue, 11 Feb 2025 - 28 - 27. Valgeir Magnússon - Pipar/TBWA
Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn ræðir Valgeir Magnússon, betur þekktur sem Valli Sport, við Sigurð um feril sinn sem frumkvöðull og auglýsingamaður. Valgeir hefur verið í auglýsingabransanum í yfir 30 ár og er einn stofnenda og eigenda auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, sem í dag hefur um 100 starfsmenn og starfstöðvar í Reykjavík, Osló, Kaupmannahöfn og Helsinki. Í þættinum er farið í gegnum áhugaverða sögu Valgeirs – hvernig hann hóf ferilinn sem kynningarstjóri, hvernig „Valli Sport...
Tue, 04 Feb 2025 - 27 - 26. Arnar Freyr Magnússon - Wodbúð & REIN
Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn segir Arnar Freyr Magnússon, eigandi Wodbúðar og REIN, frá því hvernig hann hóf feril sinn sem frumkvöðull og byggði upp fyrirtæki frá grunni með takmörkuðum fjármunum en mikilli vinnusemi. Þátturinn gefur innsýn í hvernig hugmynd varð að raunveruleika og hvernig Arnar hefur tekist á við áskoranir á leiðinni. Lestu meira um Arnar og þáttinn í heild sinni hér á íslenskidraumurinn.is
Tue, 28 Jan 2025 - 26 - 25. Kristján Berg Ásgeirsson - Fiskikóngurinn & Heitirpottar.is
Í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Íslenski draumurinn segir Kristján Berg Ásgeirsson, oft kallaður Fiskikóngurinn eða Konungur heitu pottanna, frá ótrúlegri vegferð sinni í viðskiptalífinu. Frá því að byrja ungur að bera út dagblöð, til þess að stofna sína fyrstu fiskbúð 18 ára gamall og verða síðar alþjóðlegur dealer of the year hjá Arctic Spa, hefur Kristján sannað að hörð vinna og þrautseigja skila sér. Lestu meira um Kristján og þáttinn í heild sinni hér á íslenskidraumurinn.is
Tue, 21 Jan 2025 - 25 - 24. Svavar Jóhannsson - Fitness Sport
Í þessum þætti af Íslenska draumnum er viðmælandinn Svavar Jóhannsson stofnandi og eigandi Fitness Sport. Fitness Sport selur fæðubótarefni og er líka heildsala sem dreifir vörum í helstu búðir. Svavar stofnaði Fitness Sport árið 1998 og til að byrja með var hann með lagerinn í bílskúrnum hjá ömmu sinni. Í þættinum fer hann vel yfir fyrstu skrefin á ferlinum og hvernig bransinn hefur þróast síðustu ár. Skráðu þig á póstlistann okkar & á islenskidraumurinn.is.
Tue, 14 Jan 2025 - 24 - 23. Jónas Hagan - Global Blue, WISE, Varða Capital, Adira, Nespresso & Dalur Luxury
Í þessum þætti af Íslenska draumnum er viðmælandinn Jónas Hagan Guðmundsson einn farsælasti frumkvöðull og fjárfestir Íslands. Þetta er í fyrsta sinn sem Jónas kemur fram í hlaðvarpi og deilir einstökum sögum af viðskiptaferlinum ásamt því að segja frá sínum fyrstu skrefum sem frumkvöðull á unga aldri. Þátturinn er hlaðinn af innsýn í viðskiptalíf og innblæstri fyrir frumkvöðla. Jónas er fyrirmynd þeirra sem vilja nýta ástríðu sína til að skapa sér einstakan feril. Jónas snertir mun betur á ...
Tue, 07 Jan 2025 - 23 - Markmiðaþáttur
Þetta er sérstök útgáfa af Íslenska Draumnum þar sem við förum yfir markmiðasetningu. Smelltu á hlekkinn hér, sæktu þér markmiðaheftið og settu þér markmið fyrir 2025. Markmiðaheftið er aðgengilegt á islenskidraumurinn.is og við munum fara yfir það í frekari smáatriðum í öðrum þætti.
Tue, 31 Dec 2024 - 22 - 22. Beggi Ólafs - fyrrum fótboltamaður, rithöfundur og áhrifavaldur
Bergsveinn Ólafsson eða Beggi Ólafs eins og hann er betur þekktur er fyrrum fótboltamaður, rithöfundur og áhrifavaldur sem hefur nú lagt land undir fót og flutt til Los Angeles þar sem hann stundar doktorsnám. Beggi hefur haldið um 100 fyrirlestra með góðum árangri fyrir rúmlega 7000 manns. Hann hefur unnið með nokkrum af öflugustu fyrirtækjum á Íslandi og þjálfað verulega árangursríka einstaklinga. Ásamt 7 ára sálfræðinámi hefur hann eytt mörgum tugum þúsunda í að afla sér vitneskju um sálfr...
Tue, 24 Dec 2024 - 21 - 21. Elísabet Metta - Maika'i
Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir stofnaði fyrirtækið Maika'i eftir að hafa fundið açaí skálar á ferðalagi um Bali. Þau byrjuðu heima í eldhúsi en í dag eru þau með nokkrar staðsetningar og 15 starfsmenn. Í þættinum fáum við að heyra hvernig þetta allt byrjaði og hvert þau eru að stefna. Skráðu þig á póstlistann okkar & á islenskidraumurinn.is.
Tue, 17 Dec 2024 - 20 - 20. Eyþór Aron Wöhler - HúbbaBúbba
Eyþór Aron Wöhler er rithöfundur, fótboltamaður, TikTok stjarna og tónlistarmaður. Hann hefur verið að gera góða hluti í tónlistinni nýlega með hljómsveitinni sinni HúbbaBúbba sem hefur nú skotist fram á sjónarsviðið og verið mjög áberandi á TikTok. Skráðu þig á póstlistann okkar & á islenskidraumurinn.is.
Tue, 10 Dec 2024 - 19 - 19. Leifur Dam Leifsson - GG Sport
Leifur Damm Leifsson er stofnandi og eigandi GG Sport sem er ein af vinsælustu útivistarvöruverslunum á Íslandi. Leifur hefur ástríðu fyrir heilbrigðu líferni og útivist. GG Sport var stofnað árið 2004 og byrjaði sem lítið fyrirtæki með áherslu á að veita björgunarsveitamönnum hágæða búnað og þjónustu. Í gegnum árin hefur GG Sport vaxið og þróast og orðið eitt af leiðandi fyrirtækjum á Íslandi í sínu sviði. Leifur hefur haldið áfram að byggja upp traust og nýsköpun, auk þess að vera ávallt í ...
Tue, 03 Dec 2024 - 18 - 18. Knútur Rafn Ármann - Friðheimar
Knútur Rafn Ármann er eigandi Friðheima sem er eitt af þekktasta gróðurhús og ferðamannastaður á Íslandi. Knútur ásamt Helenu konunni sinni stofnaði Friðheima árið 1995 og hefur síðan þá unnið markvisst að því að þróa og bæta framleiðsluferla, þar sem það hefur einkum verið áhersla á gróðurhúsaræktun tómata með nýtísku tækni og vistvænum aðferðum. Fyrirtækið er sérstaklega þekkt fyrir að nýta jarðvarma og gróðurhúsaorku til að bæta framleiðslu og draga úr neikvæðum áhrifum á umhverfið. Skráðu...
Tue, 26 Nov 2024 - 17 - 17. Sigurjón Ernir - Ultra Form
Sigurjón Ernir Sturluson er stofnandi Ultra Form. Ásamt því er hann íþróttafræðingur, þjálfari og einn fremsti hlaupari landsins. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is.
Tue, 19 Nov 2024 - 16 - 16. Daníel Pétursson - Wake Up Reykjavik & Gorilla Vöruhús
Daníel Pétursson er stofnandi Wake Up Reykjavík & Gorilla Vöruhús. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is.
Tue, 12 Nov 2024 - 15 - 15. Sindri Snær Jensson - Húrra Reykjavik, Auto Skemmtistaður, Flatey Pizza & Yuzu
Sindri Snær er meðal annars eigandi Húrra Reykjavik, Auto Skemmtistaður, Flatey Pizza & Yuzu. Hefur verið í tísku í yfir 20 ár og byggt upp nokkur stórveldi frá grunni. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is.
Tue, 05 Nov 2024 - 14 - 14. María Lena Heiðarsdóttir Olsen - M Fitness
María Lena er eigandi M Fitness sem er vinsælt íþróttavörumerki á Íslandi. Hún stofnaði fyrirtækið árið 2016 og var á þeim tíma einkaþjálfari og einstæðmóðir á Egilsstöðum. Síðan þá hefur fyrirtækið vaxið mikið og í dag rekur hún þrjár búðir, Reykjavik, Akureyri og á Egilstöðum. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is.
Tue, 29 Oct 2024 - 13 - 13. Ásgeir Kolbeinsson - Austur Skemmtistaður, Pünk & Orkugreining.is
Ásgeir Kolbeinsson er fjölmiðlamaður og þekktastur fyrir að vera fyrrum eigandi eins vinsælasta skemmtistað landsins Austur ásamt því að hafa stofnað og rekið veitingastaðinn Pünk. Ásgeir er í dag framkvæmdastjóri Self Invest sem heldur úti orkugreiningu.is sem aðstoðar fólk við það að finna sjálfan sig í gegnum stjörnuspeki. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is.
Tue, 22 Oct 2024 - 12 - 12. Friðrik Pálsson - Hotel Rangá
Friðrik Pálsson er eigandi Hótel Rangá, sem er eitt þekktasta lúxushótel á Íslandi. Hann keypti hótelið árið 2003 og hefur síðan þá unnið að því að byggja það upp sem áfangastað fyrir bæði innlenda og erlenda ferðamenn. Friðrik er með ástríðu fyrir gestrisni og þjónustu, og undir hans stjórn hefur Hótel Rangá náð alþjóðlegri viðurkenningu fyrir framúrskarandi gæði, sérstaklega í tengslum við norðurljósaskoðun og náttúruupplifanir. Hann hefur einnig lagt áherslu á sjálfbærni og að styðja við s...
Tue, 15 Oct 2024 - 11 - 11. Eyþór Jónsson - Framleiðandi, tökumaður og eigandi Fasteignafélagsins Lúðvík
Eyþór Jónsson byrjaði að taka upp og klippa myndbönd þegar hann var 14 ára gamall og hefur síðan þá unnið sem sjálfstætt starfandi framleiðandi og tökumaður. Hann hefur hjálpað fyrirtækjum að ná árangri með skapandi markaðsefni, stofnaði fasteignafélagið Lúðvík og opnaði nýlega verslunina Train í Keflavík. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is.
Tue, 08 Oct 2024 - 10 - 10. Birgir Haraldsson - Norðurflug
Birgir Haraldson er framkvæmdastjóri og einn af eigendum Nordurflugs sem er stærsta þyrluþjónusta landsins.
Wed, 12 Jun 2024 - 9 - 9. Haukur Skúlason - Indó
Haukur Skúlason er framkvæmdastjóri og einn af stofnendum Indó sem er fyrsti íslenski sparisjóðurinn sem hefur verið stofnaður frá 1991.
Wed, 29 May 2024 - 8 - 8. Sigurður Svansson - Sahara AuglýsingastofaThu, 16 May 2024
- 7 - 7. Þorsteinn Ingi Einarsson - Steinabón og Garður Apartments
Þorsteinn Ingi Einarsson er eigandi og stofnandi Steinabón og Garður Apartments. Í viðtalinu fórum við um víðan völl og ræddum meðal annars um fjárfestingar í fasteignum.
Wed, 24 Apr 2024 - 6 - 6. Guðmundur Óli Sigurjónsson - Matarkompaní og Eldabuskan
Guðmundur Óli Sigurjónsson er eigandi Matarkompaní, Eldabuskunar og einn af stofnendum Prepp up og Prepp barsins.
Wed, 10 Apr 2024 - 5 - 5. Nökkvi Fjalar - Swipe
Þáttur síðan 2020 Nökkvi Fjalar Orrason er stofnandi Áttunar og Swipe. Við settumst niður með Nökkva á skrifstofu Swipe og ræddum við hann um þær áskornanir sem hann hefur þurft að takast við og framtíðar plön hans í rekstrinum.
Wed, 10 Apr 2024 - 4 - 4. Magnús Sverrir Þorsteinsson - Blue Car Rental
Þáttur síðan 2019 Magnús Sverrir Þorsteinsson er stofnandi og eigandi Bílaleigurnar Blue Car Rental. Magnús eða Maggi í Blue eins og hann er stundum kallaður fór af stað með aðeins 5 bíla árið 2010 en síðan þá hefur bílaleigan vaxið gríðarlega og telur bílaflotinn yfir 2 þúsund bíla í dag, sem gerir Blue Car Rental eina af stærstu bílaleigum landsins. Við settumst niður með Magnúsi á skrifstofu Blue Car Rental í Keflavik og ræddum við hann um stofnun bílaleigunar, þær áskornanir sem hann he...
Wed, 10 Apr 2024 - 3 - 3. Einar Ingi Kristjánsson - Alpha Gym
Þáttur síðan 2019 Einar Kristjánsson er eigandi og stofnandi Alpha Gym í Keflavik. Við förum vel yfir hvernig þetta byrjaði allt saman og hvað varð til þess að hann ákvað að stofna sitt eigið fyrirtæki.
Wed, 10 Apr 2024 - 2 - 2. Steinþór Jónsson - Hótel Keflavik og Diamond Suites
Þáttur síðan 2019 Steinþór Jónsson er eigandi Hótel Keflavik og Diamond Suites. Hótel Keflavik er eitt elsta hótel landsins og Diamond Suites er fyrsta 5 stjörnu hótelið á Íslandi. Við tökum nokkur skref til baka og förum yfir hans viðskiptaferli frá því hann byrjaði í hótelbransanum og þangað sem hann er kominn núna.
Wed, 10 Apr 2024 - 1 - 1. Sigmar Vilhjálmsson - Íslenski Draumurinn
Þáttur síðan 2019 Sigmar Vilhjálmsson er gestur fyrsta þáttar af Íslenska Draumnum sem fór í loftið 2019. Í þáttunum er tekið viðtal við Íslenska frumkvöðla, viðskiptamenn og farið yfir þeirra viðskiptaferil þar sem hlustendum er gefin betri innsýn inn í heim þeirra sem hafa stofnað og rekið sín eigin fyrirtæki á Íslandi. Þættirnir eru gefnir út á allar helstu streymisveitur. Margir þekkja Sigmar Vilhjálmsson eflaust frá 70 mínútum, Idol Stjörnuleit eða sem einn af fyrri eigendum Hamborgara...
Wed, 10 Apr 2024
Podcasts similaires à Íslenski Draumurinn
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Friday Night Comedy from BBC Radio 4 BBC Radio 4
Global News Podcast BBC World Service
Good Bad Billionaire BBC World Service
El Partidazo de COPE COPE
Deep Sleep Tibetan Singing Bowls Sounds Deep Sleep Podcasts
Die Nachrichten Deutschlandfunk
The Rest Is History Goalhanger
Hihetetlen Történelem Podcast hihetetlentortenelem
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
بودكاست عقلية Moneim
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
تلاوات نادرة Qur’an
Sceny zbrodni RMF FM
Frjálsar hendur RÚV
Í ljósi sögunnar RÚV
Money News Tapt Media
The Daily The New York Times
Muzyka natury Tom Q
Autres podcasts de Affaires
Chess After Dark Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson
The Diary Of A CEO with Steven Bartlett DOAC
Podcast með Sölva Tryggva Sölvi Tryggvason
hún hlaðvarp Erna Hrund Hermannsdóttir
Spurt og svarað Björn Berg
Chess After Dark Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson
Financial Audit Caleb Hammer
On Purpose with Jay Shetty Perfect Strangers
