Filtrar por gênero

Marta María býður heim

Marta María býður heim

Marta María Winkel

Marta María býður heim er hlaðvarp þar sem þáttastjórnandi tekur á móti áhugaverðu fólki sem hefur markað spor.

35 - 33. Björt Ólafsdóttir: Lærði að það er ekki hægt að gera allt í einu
0:00 / 0:00
1x
  • 35 - 33. Björt Ólafsdóttir: Lærði að það er ekki hægt að gera allt í einu

    Björt Ólafsdóttir einn eigenda fasteignaþróunarfélagsins Iðu og fyrrverandi ráðherra er stólpakona sem nýtir tímann í botn. Þessa stundina er hún að leggja lokahönd á lífrænu blokkina sem stendur við Frakkastíg 1. Björt er fjögurra barna móðir sem þarf reglulega að minna sig á að barnauppeldi er ekki Bootcamp-þjálfun. Í þættinum ætlum við að ræða lífshlaup Bjartar og hvernig hún komst á þann stað sem hún er á í dag. Eitt af því sem hún lærði af lífinu var að það er ekki alltaf hægt að gera allt í einu.

    Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind, Fjallakofans og Mathildu í Smáralind og Kringlunni.

    Mon, 26 Oct 2026 - 1h 28min
  • 34 - 32. Jóga Gnarr: Lífið er sirkus

    Jóga Gnarr hefur haft það að ævistarfi að hjálpa fólki. Hún er með hjarta úr gulli og notar húmorinn til þess að fá umhverfið til að skilja samhengi hlutann. Hún mætir helst aldrei í viðtöl og það tók um það bil 20 ár að sannfæra hana um að mæta í þetta viðtal. Í þættinum ræðir hún lífshlaup sitt, sigra og sorgir og hvernig lífið umturnaðist þegar hún varð ástfangin af Jóni Gnarr. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind, Fjallakofans og Mathildu í Kringlunni og Smáralind.

    Mon, 19 Oct 2026 - 1h 47min
  • 33 - 31. Þórdís Kjartansdóttir. Fædd 19. júní og þurfti að axla ábyrgð

    Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Læknahúsinu Dea Medica er ein af þessum kláru og skemmtilegu konum sem lætur ekkert stoppa sig. Hún byrjaði að vinna þegar hún var 12 ára og hefur síðan þá verið með mörg járn í eldinum. Hún fæddist 19. júní og mamma hennar sagði henni að hún yrði að taka mið af því. Þegar Þórdís var tvítug snarbreyttist tilveran þegar foreldrar hennar fóru hvort í sína áttina. Hún eignaðist tvö börn á meðan hún var í læknisfræði og þegar hún var 48 ára eignaðist hún dóttur. Þórdís vill ekki sjá eftir neinu í lífinu og lætur drauma sína rætast. Það er kannski þess vegna sem hún gaf út plötu á dögunum. Þessi þáttur er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofinn og Mathilda.

    Mon, 12 Oct 2026 - 1h 57min
  • 32 - 30. Dorrit Moussaieff: „Heimurinn minn var fullkominn"

    Dorrit Moussaieff viðskiptakona og fyrrverandi eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar hefur átt ævintýralegt lífshlaup og er nú á tímamótum. Í þættinum ræddu þær þegar hún hitti Ólaf Ragnar fyrst, hvernig samband þeirra þróaðist og endaði fyrr á þessu ári. Hún varð ástfangin af Íslandi þegar hún kom fyrst til landsins og er alls ekki skilin við þjóðina þótt hjónabandinu sé lokið. Þessi þáttur er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofinn og Mathilda.

    Mon, 05 Oct 2026 - 1h 08min
  • 31 - 29. Lukka Pálsdóttir: Við getum valið að vaxa

    Lukka Pálsdóttir sjúkraþjálfari og einn af eigendum Greenfit býr yfir ákveðinni seiglu sem hefur komið henni á þann stað sem hún er í dag. Lukka hefur átt ótrúlegt lífshlaup en þegar hún fæddist höfðu foreldrar hennar gegnið í gegnum mikinn harm þegar faðir hennar lenti í flugslysi. Í þættinum ræðir Lukka um ástina, ævintýrin, myndkörfulán og fitubrennslupúls en líka Zone 2 sem er það sem flestir eru að tala um þessa dagana. En mæla snjallúrin og hringirnir þetta rétt? Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind, Fjallakofans og Mathilda í Kringlunni og Smáralind.

    Mon, 28 Sep 2026 - 1h 43min
Mostrar mais episódios