Filtrar por gênero

Seinni bylgjan

Seinni bylgjan

Vísir
9 - EM-hlaðvarp Seinni bylgjunnar - Takk fyrir allt
0:00 / 0:00
1x
  • 9 - EM-hlaðvarp Seinni bylgjunnar - Takk fyrir allt

    6.sætið niðurstaðan. Flott mót hjá strákunum okkar. Erfiður lokaleikur gegn Norðmönnum.

    Sat, 29 Jan 2022
  • 8 - EM-hlaðvarp Seinni bylgjunnar - Takk fyrir ekkert

    Ísland komst ekki áfram í undanúrslit eftir geggjaðan sigur á Svartfjallalandi 34-24. Danir ákváðu að henda frá sér leiknum gegn Frökkum. Frábært mót engu að síður hjá Íslendingum. Ásgeir Örn, Róbert Gunnarsson og Stefán Árni gera upp daginn í EM-hlaðvarpi Seinni bylgjunnar.

    Wed, 26 Jan 2022
  • 7 - EM-hlaðvarp Seinni bylgjunnar - Þungur mánudagur

    Stefán Árni Pálsson, Róbert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson fara hér yfir tap Íslands gegn Króatíu, 23-22, í milliriðli á EM í handbolta í dag. Liðið mætir Svartfjallalandi á miðvikudaginn og verður að vinna þann leik til að eiga möguleika á sæti í undanúrslitum. Einnig þarf íslenska liðið að treysta á frændur okkar Dani að vinna Frakka í lokaleik milliriðilsins. Arnór Atlason var á línunni og greindi tapið gegn Króötum og einnig spáir í leik Dana og Frakka á miðvikudaginn, leik sem skiptir okkur öllu máli.

    Mon, 24 Jan 2022
  • 6 - EM-hlaðvarp Seinni bylgjunnar - Kraftaverkið í Búdapest

    Stefán Árni Pálsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson fara hér yfir ótrúlegan sigur á Frökkum í milliriðlinum á EM í Ungverjalandi. Liðið vann átta marka sigur, 29-21. Arnór Atlason var á línunni og einnig Róbert Gunnarsson sem var á skíðum fyrir norðan. Líklega óvæntasti sigur Íslands í sögunni.

    Sun, 23 Jan 2022
  • 5 - EM-hlaðvarp Seinni bylgjunnar - Spurning hvort hægt verið að klára mótið

    Stefán Árni, Ásgeir Örn Hallgrímsson og Róbert Gunnarsson fara hér yfir tap Íslands gegn Dönum, 28-24, í fyrsta leik liðsins í milliriðli á EM í handbolta. Ísland hefur misst sex leikmenn úr liðinu vegna smita og eru það sex lykilleikmenn. Þeir sem komu inn í liðið stóðu sig með prýði og spiluðu með hjartanu.

    Thu, 20 Jan 2022
Mostrar mais episódios