Podcasts by Category
- 2491 - Raddir margbreytileikans - 38. þáttur: „Börnin hafna hefðbundnum leikreglum og skapa sínar eigin“
Þóra Björnsdóttir er viðmælandi í 38. þætti mannfræðihlaðvarpsins Raddir margbreytileikans. Þóra er fædd 1986 í Reykjavík. Hún lauk BA námi í mannfræði frá Háskóla Íslands árið 2009, MA gráðu í þróunarfræðum frá sama skóla 2011 og doktorsprófi frá HÍ 2023 sem fjallar um börn í Ghana sem ferðast frá norðurhluta landsins til höfuðborgarinnar í leit að betra lífi. Doktorsrannsókn Þóru varpar ljósi á líf barna sem flytja að heiman á eigin vegum fyrir átján ára aldur í Ghana og flutningsferli þeirra með áherslu á réttindi barnanna. Rannsóknin skoðar hvernig hefðbundin réttindi hagnast þessum börnum og hvernig þau móta sín eigin réttindi, svo-kölluð lífsréttindi, þegar hefðbundnu réttindin eru ekki fullnægjandi. Áhersla er lögð á sjónarhorn þátttakenda með raddir þeirra og atbeini í forgrunni. Þóra hefur starfað með börnum og ungu fólki í fjölda ára og starfar í dag sem verkefnastjóri frjálsra félagasamtaka þar sem hún, meðal annars, mótar og sinnir forvarnarfræðslu á ofbeldi gegn börnum. Hún hefur einnig starfað sem aðstoðarkennari og leiðbeinandi við HÍ, verið sérkennslustjóri á leikskólanum Holti, sem og verkefnastjóri Erasmus+ verkefnis sem snýst um andlega heilsu fólks. Í dag starfar Þóra sem verkefnastjóri innlendra verkefna hjá Barnaheill – Save the Children in Iceland, en það verkefni snýst um kynheilbrigði barna.
Thu, 22 Jun 2023 - 1h 02min - 2490 - Raddir margbreytileikans – 37. þáttur: Rómafólk sem félagslegar risaeðlur á leið til glötunar
Mannfræðingurinn Marco Solimene er viðmælandi í 37. þætti Röddum margbreytileikans. Marco er ítalskrar ættar, fæddur í Róm árið 1976 en hefur búið á Íslandi um langt skeið. Marco er með MA-gráðu í félagsfræði frá La Sapienza háskólanum í Róm og doktorsgráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands. Rannsóknir hans hafa snúist um rómafólk frá Bosníu í Róm sem og á Balkanskaga og í Rúmeníu. Marco er nýráðinn sem lektor í mannfræði við HÍ. Í þessum þætti er rætt um yfirstandandi rannsókn Marco á stöðu rómafólks á Ítalíu gagnvart stjórnvöldum varðandi búsetu. Rómafólk hefur þá staðalímynd að vera varasamt flökkufólk, en staðreyndin er sú að sumt rómafólk færir sig reglulega frá einum stað til annars, á meðan margir hafa fasta búsetu. Þessi þjóðfélagshópur lifir við þá seigu hugmynd að vera sífellt á ferðinni, að „passa ekki inn“, að sniðganga lög og reglur, jafnvel að vera ógn við ríkið. Að hafa fasta búsetu er ráðandi hugmynd í flestum ríkjum og er forsenda fyrir viðurkenndri stöðu innan ríkisins og er einn af hornsteinum þjóðríkisins. Marco hefur rannsakað hvernig þessar hugmyndir hafa áhrif á þróunarverkefni ESB innan Evrópu, þar sem litið er á jaðarhópa eins og rómafólk sem „frumstætt“ og varasamt, og að vissu leyti ósjálfbjarga og hjálparþurfi. Þarna stangast á hugmyndin um stöðu „ríkisborgara“ og hóps sem fer sínar eigin leiðir við að lifa sínu lífi, og hefur sínar hugmyndir um búsetu, þar sem „þróunarhjálpin“ skilar ekki alltaf tilteknum árangri. Þessi þáttur er á ensku.
Tue, 13 Jun 2023 - 1h 12min - 2489 - Samtal við samfélagið: Hvers vegna virðismat starfa?
Gestur vikunnar er Helga Björg Ragnarsdóttir, framkvæmdarstýra Jafnlaunastofu. Helga Björg er með BA-próf í félagsfræði og MS-próf í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Jafnlaunastofa er sameignarfélag í eigu Sambands íslenskra sveitafélaga og Reykjavíkurborgar og hefur það hlutverk að stuðla að launajafnrétti starfsfólks sveitarfélaga og veita stjórnendum stuðning við að framfylgja slíku jafnrétti. Aðferðafræði sveitafélaganna er að leggja áherslu á virðismat starfa en sú leið virðist skila árangri, en árið 2019 var óleiðréttur launamunur kynjanna 14,8% á almennum vinnumarkaði, 14% hjá Ríkinu og 7,4% hjá sveitarfélögunum. Í hlaðvarpinu ræða þær Helga og Sigrún af hverju það hefur reynst svona erfitt að ná launajafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og hvaða leiðir eru færar til að bregðast við kynjuðum launamun með sérstaka áherslu á hvers vegna virðismat starfa sé líklegra til að skila árangri en ýmsar aðrar leiðir.
Tue, 13 Jun 2023 - 44min - 2488 - Samtal við samfélagið: Af hverju hefur stjórnmálatraust minnkað í þróuðum lýðræðisríkjum?
Gestur vikunnar er Viktor Orri Valgarðsson, nýdoktor í stjórnmálafræði við háskólann í Southampton í Bretlandi. Viktor lauk doktorsprófi frá sama háskóla en í doktorsverkefni sínu skoðaði hann hvers vegna kosningaþátttaka hefur minnkað í mörgum þróuðum lýðræðisríkjum, með sérstaka áherslu á hvort og hvernig stjórnmálalegt sinnuleysi og firring geti útskýrt þessa þróun. Þessa stundina tekur hann þátt í alþjóðlegu rannsóknarverkefni, TrustGov, en það skoðar eðli, orsakir, afleiðingar og mynstur stjórnmálatrausts á heimsvísu. Hann hefur einnig beint sjónum að því hvernig stjórnmálatraust skiptir máli á tímum heimsfaraldurs COVID-19, til að mynda hvaða hlutverki slíkt traust gengdi í vantrausti til bóluefna. Í þætti vikunnar segir hann Sigrúnu frá doktorsverkefni sínu en einnig frá þeim verkefnum sem hann er að vinna í þessa stundina, sem meðal annars tengjast stjórnmálatrausti á Íslandi í alþjóðlegu samhengi.
Mon, 05 Jun 2023 - 54min - 2487 - Páskavarp Tæknivarpsins
Flugur.is hjálpuðu okkur að gera þennan þátt að veruleika. Svikapóstar sem eru ekki frá ríkislögreglustjóra, endurhlaðanlegar rafhlöður, páskaegg og ný OnePlus spjaldtölva eru meðal umræðu dagsins. Einnig segja þáttastjórnendur frá því hvaða áskriftir þeir eru með þessa dagana með að streymisveitum. Umsjónarmenn þáttarins eru Andri Valur, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir Sverrisson.
Wed, 12 Apr 2023 - 1h 14min - 2486 - Raddir margbreytileikans – 35. þáttur: Hlutarnir og heildin
Gestir hlaðvarpsins að þessu sinni eru í fleirtölu, þær Kristín Harðardóttir og Hulda Proppé. Hulda er fædd 23. janúar 1971 í Reykjavík en alin upp í Hafnarfirði. Auk þess hefur hún búið í Champaign-Urbana í Illinois (USA), Minneapolis (Minnesota USA), New York (New York, USA), Cambridge (Massachusets (SA), Cambridge (Bretland) og býr nú í Reykjavík. Hulda lauk BA prófi í mannfræði 1997 og MA prófi í mannfræði 2002 við Háskóla Íslands en hluti af framhaldsnáminu var ár við University of Minnesota. Áhugasvið Huldu er Samfélag og menning, fólk og fjöll, ferðalög, útivist, list og handverk (mest prjónaskapur), fjölskylda og vinir. Í gegnum tíðina hefur hún unnið sem barnapía, skúringarkona, barþjónn og bóksali, stundakennari við HÍ í mannfræði, sérfræðingur hjá Sameinuðu Þjóðunum í New York og sérfræðingur hjá Rannís. Núverandi starf Huldu er sem rannsóknastjóri við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands Kristín fæddist 21. júlí 1966 í Reykjavík en hún hefur auk þess búið í Garðabæ, Connecticut (USA) og Flórens (Ítalíu). Hún lauk BA námi í mannfræði 1998 og MA námi í mannfræði 2002 frá Háskóla Íslands. Áhugasvið Kristínar eru samfélag og menning, fólk, ferðalög, útivist, fjölskylda og vinir. Hún hefur unnið sem verslunarstjóri, í byggingarvinnu, sem aðstoðarmaður lögfræðings, aðstoðarmaður prófessors, verkefnastjóri Mannfræðistofnunar, við sérverkefni fyrir Stofnun Vilhjálms Stefansson, sem aðjunkt við mannfræðideild (2001-2012), sérfræðingur Félagsvísindastofnunar og forstöðumaður Mannfræðistofnunar (2005-2010) við HÍ. Í dag starfar hún sem forstöðumaður Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands og Rannsóknastjóri við sviðið.
Tue, 11 Apr 2023 - 52min - 2485 - Raddir margbreytileikans – 34. þáttur: Að mynda bandalög hér og þar
Gestur hlaðvarpsins er Stella Samúelsdóttir. Stella er fædd 27. febrúar 1975 í Reykjavík en hefur auk þess búið í Ísrael, Ítalíu, Malaví og í New York og New Orleans í Bandaríkjunum. Hún lauk BA prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands 1999. Árið 2003 útskrifaðist hún með Post Graduate Diploma í alþjóðasamskiptum frá The Johns Hopkins Unversity og 2004 með Post Graduate Diploma í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Einnig hefur hún D-vottun í verkefnastjórnun Endurmenntun HÍ (verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun) sem hún lauk 2010. Áhugasvið Stellu snúa að ferðalögum, mannréttindum og alþjóðamálum. Í gegnum tíðna hefur hún meðal annars starfað á verkfræðistofu, sem sérfræðingur á skrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar í Malaví og haft yfirumsjón með ýmsum verkefnum þar, sem sérfræðingur hjá fastanefnd Íslands til Sameinuðu þjóðanna í New York, sjálfstætt starfandi ráðgjafi í þróunarmálum og rekið eigið fyrirtæki. Í dag starfar Stella sem framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.
Wed, 15 Mar 2023 - 55min - 2484 - Í austurvegi – Litið um öxl á ár tígursins
Nú þann 22. janúar gengur nýtt ár kanínunnar í garð samkvæmt hinu kínverska dagatali. Þau Anna og Magnús staldra því við og líta um öxl á ár tígursins sem reyndist nokkuð viðburðaríkt. Í hlaðvarpsþætti dagsins eru meðal annars rifjuð upp viðtöl við góða gesti og spiluð brot af því besta sem á boðstólum var.
Thu, 19 Jan 2023 - 56min - 2483 - Tæknivarpið: CES - Þvagskynjari, bílar sem breyta um lit og bíll frá Sony
Mun gervigreind þvinga íslenska skóla til að endurskoða námshögun? Apple gæti mögulega gefið út sýndaveruleikagræju í ár, eða hvað? CES hátíðin er nýafstaðin og við gerðum upp nýtt og spennandi þaðan. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
Wed, 11 Jan 2023 - 1h 18min - 2482 - Tæknivarpið - Þáttur ársins og Tækniverðlaun 2022
Við erum komnir úr jólafríi! Tæknivarpið fjölmennti og fór yfir árið 2022 í tækni. Stjórnendur: Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfa, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors, Vöggur Mar og Sverrir Björgvins.
Sun, 08 Jan 2023 - 2h 38min - 2481 - Í austurvegi – Eitt veðmál, eitt teningakast 孤注一掷
Saga þessa málsháttar er frá tímum Song-veldisins sem frægt var fyrir öflug viðskipti og efnahag, menningarlíf, matargerðarlist og fjölmargt fleira. En þrátt fyrir þetta mikla blómaskeið var Song-veldi raunar umkringt óvinum. Við fylgjumst með viðbrögðum Zhēnzōng keisara og ráðgjafa hans þegar Khitanar úr Liao-veldi norðursins gera innrás, sumarið 1004. Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.
Thu, 05 Jan 2023 - 10min - 2480 - Í austurvegi - Lína Guðlaug Atladóttir - skrifaði og gaf út bók um Kína
Lína Guðlaug Atladóttir, viðskiptafræðingur og Austur-Asíufræðingur, segir okkur frá bók sinni Rót sem hún gaf sjálf nýverið út. Bókin er uppfull af spennandi fróðleik um Kína og þá ævintýralega nútímavæðingu sem þar hefur átt sér stað, skrifuð á léttum og persónulegum nótum. Lína hóf Kínavegferð sína árið 2003 þegar hún fór til Kína að sækja dóttur til ættleiðingar og hefur æ síðan haldið áfram að kafa dýpra inn í þennan menningarheim.
Thu, 22 Dec 2022 - 48min - 2479 - Eitt og annað: Hundrað ára afmæli Cafe Fodkold - 24.01.21
Borgþór Arngrímsson les valda pistla úr Kjarnanum í hlaðvarpinu Eitt og annað ... einkum danskt. Pistlar hans njóta mikilla vinsælda á Kjarnanum og í þeim sem hér birtist fjallar hann um það að heil öld er liðin frá því Danir fengu sinn fyrsta pylsuvagn.
Tue, 20 Dec 2022 - 10min - 2478 - Samtal við samfélagið – Félagsfræðin og glæpasögur
Síðasti gestur okkar fyrir jól er Eva Björg Ægisdóttir rithöfundur. Hún vakti fyrst athygli fyrir fyrstu bók sína, Marrið í stiganum, en fyrir hana hlaut hún Svartfuglinn, verðlaun sem eru veitt höfundi fyrir handrit af sinni fyrstu glæpasögu sem kemur út í kjölfarið. Síðan hefur Eva verið mjög afkastamikil og gefið út fimm bækur, þar á meðal Strákar sem meiða núna fyrir jólin og er hún tilnefnd til Blóðdropans en það eru verðlaun sem veitt eru fyrir bestu glæpasöguna ár hvert. Bækur Evu hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál. Eva lauk BA-gráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands og kemur kannski ekki á óvart að henni þótti afbrotafræðin sérlega skemmtileg. Hún er einnig með M.S.-gráðu í alþjóðamálum frá Tækniháskólanum í Þrándheimi. Þær Sigrún ræða um rithöfundaferil Evu með áherslu á hvernig hið félagsfræðilega sjónarhorn getur reynst gagnlegt við að verða metsöluhöfundur glæpasagna.
Mon, 19 Dec 2022 - 45min - 2477 - Þjóðhættir – „Á jólunum er gleði og gaman“: Jólaveður, bækur og sveinar
Í laufléttum og skemmtilegum jólaþætti fá Dagrún og Vilhelmína til sín góða gesti. Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Ströndum – þjóðfræðistofu, segir fréttir af starfseminni. Í haust stóð Rannsóknasetrið fyrir athyglisverðu námskeiði fyrir almenning um ritun endurminninga. Námskeiðið var vel sótt og tókst með eindæmum vel. Þá segir Eiríkur frá nýrri bók sem kom út nú í desember og nefnist Myndir og minningar frá Ströndum. Bókin er samstarfsverkefni Rannsóknarsetursins og Sauðfjárseturs. Í bókinni eru 42 frásagnir og myndir, sem eru jafn fjölbreyttar og þær eru margar og koma frá fólki á Ströndum eða sem hefur tengingar við svæðið. Myndirnar og frásagnirnar. Eiríkur ræðir einnig ýmsa þjóðtrú tengda veðri og gefur góð ráð hvernig spá má fyrir um jólaveðrið. Eva Þórdís Ebenezerdóttir doktorsnemi í þjóðfræði segir frá jólasveininum Stekkjastaur út frá nýstárlegu sjónarhorni. Stekkjastaur er þekktur fyrir að vera stirður og með staurfót, en hvað þýðir það í raun? Í rannsóknum sínum blandar Eva Þórdís saman þjóðfræði og fötlunarfræði og í þættinum greinir hún frá niðurstöðum sínum varðandi þennan áhugaverða jólasvein og birtingarmyndir hans. Að lokum ræða Dagrún og Vilhelmína við Margréti Höskuldsdóttur rithöfund. Bók hennar Dalurinn kom út fyrr á þessu ári. Bókin segir frá Sif, ungum þjóðfræðinema sem dvelur í afskekktum dal vestur á fjörðum og skrifar þar lokaritgerð í þjóðfræði. Dularfullir atburðir eiga sér stað og ýmsar þjóðsagnapersónur og vættir koma við sögu. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir í þjóðfræði og fjölbreytta miðlun á þjóðfræðiefni. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Vilhelmína Jónsdóttir kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Fri, 16 Dec 2022 - 46min - 2476 - Samtal við samfélagið – Vegabréf íslenskt
Bók Sigríðar Víðis Jónsdóttur, Vegabréf íslenskt, hefur vakið verðskuldaða athygli síðan hún kom út og var nýlega tilnefnd til Fjöruverðlaunanna í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis. Í bókinni býður Sigríður lesandanum með sér í ferðalag um lönd sem mörg okkar vita lítið um og notar sjónarhorn og reynslu einstaklinga til að hjálpa okkur að skilja sumar af þeim brýnustu samfélgslegu áskorunum sem við stöndum frammi fyrir, t.d. fátækt, ójöfnuð og viðvarandi stríðsástand. Sigríður var lykilfyrirlesari á Félagsfræðideginum sem haldinn var hátíðlegur í byrjun desember og kom í heimsókn í hlaðvarpið í tengslum við það. Þær Sigrún ræða um ferðalög Sigríðar og hvað hún og við öll getum lært um heimsmálin í gegnum ferðalög hennar.
Mon, 12 Dec 2022 - 47min - 2475 - Í austurvegi – Kínversk læknislist 中医
Í þættinum er fjallað um kínverska læknislist, og hvers vegna hún er að ýmsu leyti jafn hátt skrifuð og hin vestrænu læknavísindi í Kína. Á kínverskum sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum finnast tvenns konar lyfjageymslur, bæði fyrir vestræn lyf og kínversk. Þar ríkir ekki sama skipting og við eigum að venjast í hefðbundnar og óhefðbundnar lækningar. Kínversku jurtalækningarnar, taiji-æfingar, nuddmeðferðir og nálastunga hafa sinn sess sem annar af tveimur helstu möguleikum fyrir meðferðir á hvers kyns sjúkleika. Höfundur pistilsins er Steingrímur Þorbjarnarson sem einnig les upp.
Thu, 08 Dec 2022 - 30min - 2474 - Eitt og annað: Hótelið á hafsbotni - 23.05.21
Í áratugi hafa gengið sögur um að á hafsbotni norðan við Helsingjaborg í Svíþjóð liggi stærðar steypuhlunkur sem átti að vera hluti eins þekktasta hótels á Norðurlöndum. En skyldi þetta nú vera rétt? Borgþór Arngrímsson les pistil sinn um hótellið á hafsbotni sem birtist fyrst á Kjarnanum í maí 2021.
Tue, 06 Dec 2022 - 08min - 2473 - Samtal við samfélagið – Fólksflutningar og samþætting á tímum loftslagsbreytinga
Í hlaðvarpi vikunnar spjallar Sigrún við Mary Waters en hún er John Loeb Prófessor í félagsfræði og PVK prófessor í listum og vísindum við Harvard-háskólann í Bandaríkjunum. Í rannsóknum sínum hefur hún meðal annars beint sjónum sínum að því hvernig innflytjendur og börn þeirra samlagast samfélaginu, stefnumótun í innflytjendamálum, og hamförum og afleiðingum þeirra. Mary var einn af lykilfyrirlesurum á ráðstefnu Norrænna Félagsfræðinga sem fór fram í Reykjavík í ágúst síðastliðnum. Í þætti dagsins spjalla þær Sigrún um erindi hennar sem fjallaði um fólksflutninga á tímum loftslagsbreytinga sem og rannsóknarferil hennar almennt en hann spannar nokkra áratugi.
Mon, 05 Dec 2022 - 55min - 2472 - Í austurvegi – Sýndu þakklæti í verki 感恩图报
Sagan með málshætti dagsins er frá Vor- og haust tímabilinu, á 6. öld fyrir okkar tímatal. Þegar Dìng konungi af Zhèng bárust fregnir af yfirvofandi árás frá Wú-ríki varð hann skelfingu lostinn. Wú-herinn var þekktur fyrir styrk sinn og sömuleiðis Wǔ hershöfðingi sem leiddi herinn og var persónulegur vinur Sunzi (sem ritið Hernaðarlistin er eignað). Wǔ hershöfðingi hélt að þeirra biði auðveldur sigur en annað kom á daginn. Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.
Thu, 01 Dec 2022 - 10min - 2471 - Tæknivarpið - „Það er enginn að fara hakka mig”
Ríkið ætlar að fjarlægja fjöldakvóta fyrir niðurgreiðslur rafbíla á næsta ári, en minnka aðeins niðurgreiðsluna. Samsung ætlar að kynna S23 í febrúar. Twitter lak út 5,4 milljón aðgöngum ásamt símanúmerum. Corning er að búa til nýtt högghelt gler fyrir snjallsíma sem þolir 1 metra fall á steypu. Eufy lendir í alvarlegum öryggisgalla, sem var tilkynntur og gerði ekkert. Við förum svo í gegnum spurningar af Twitter og ræðum eSim og rafræn skilríki. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir
Wed, 30 Nov 2022 - 1h 11min - 2470 - Eitt og annað: Kjötbollurnar unnu á tæknilegur rothöggi - 14.11.2020
Fyrir nokkru fékk danska ríkisstjórnin snjalla hugmynd sem hún vildi hrinda í framkvæmd. Gallinn var hins vegar sá að fáum öðrum þótti hugmyndin góð. Borgþór Arngrímsson les pistil sinn um hugmynd ráðherra í dönsku ríkisstjórninni um kjötlausa daga, sem var slegin út af borðinu með hraði. Pistillinn birtist fyrst á Kjarnanum í nóvember 2020.
Tue, 29 Nov 2022 - 07min - 2469 - Í austurvegi – Komdu í leirkerið 请君入瓮
Málshátturinn sem við lítum á í dag er frá tímum Tang-veldisins, seint á 7. öld, og við sögu kemur sjálf keisaraynjan Wǔ Zétiān. Þetta er sígildur fjögurra tákna málsháttur sem á yfirborðinu virðist hafa fremur óljósa merkingu en á sér forvitnilega baksögu með frekar svæsinn enda. Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.
Mon, 28 Nov 2022 - 11min - 2468 - Raddir margbreytileikans - 33. þáttur: Mannleg hegðun og fjárhúsakenningin
Gestur þáttarins er Hildur Valdís Guðmundsdóttir. Hildur er fædd 31. október 1959 á Siglufirði en hefur auk þess búið í Húnavantssýslu, Borgarfirði, Reykjavík, Færeyjum, Frakklandi og Fílabeinsströndinni. Hún lauk BA prófi í mannfræði árið 2005 frá Háskóla Íslands og Meistaraprófi í mannfræði 2007 og Diplómanámi í þróunarfræðum 2009 frá sama skóla. Áhugasvið Hildar snúa að mannúðarmálum og að tilheyra. Hildur hefur unnið við sveitastörf, fiskvinnslu, skrifstofustörf, hjá Sameinuðu Þjóðunum, í Franska sendiráðinu á Íslandi og vinnur í dag í Kvennaathvarfinu.
Fri, 25 Nov 2022 - 35min - 2467 - Í austurvegi – Ómar Sigurbjörnsson – Carbon Recycling í Kína
Íslenska fyrirtækið Carbon Recycling International hefur komið sterkt inn á alþjóðlegan markað með lausnir til að binda koltvísýring og vinna úr honum metanól. Verksmiðja á vegum fyrirtækisins var nýlega gangsett í Kína og önnur á leiðinni. Í viðtalinu fræðir Ómar Sigurbjörnsson, markaðsstjóri fyrirtækisins, okkur um það einstaka hugvit sem fyrirtækið hefur upp á að bjóða og hefur hlotið heimsathygli fyrir, starfsemina víða um heim sem og verkefni þess í Kína.
Thu, 24 Nov 2022 - 30min - 2466 - Eitt og annað: Tækifæriskirkjur - 26.01.2020
Hvað á að gera við gamla kirkju sem ekkert er notuð vegna þess að íbúarnir á svæðinu eru fluttir burt? Í Danmörku eru tugir slíkra guðshúsa, flest mjög gömul. Nú eru uppi hugmyndir um að breyta sumum slíkum kirkjum í svokallaðar tækifæriskirkjur. Borgþór Arngrímsson les valda pistla úr Kjarnanum. Pistillinn sem er lesinn í þessum þætti birtist fyrst 26. janúar 2020.
Tue, 22 Nov 2022 - 07min - 2465 - Samtal við samfélagið – Myrkranetið
Myrkranetið (dark web) samanstendur af vefsíðum og öðru efni sem einungis er hægt að nálgast með sérstökum hugbúnaði, heimildum eða stillingum. Þar sem myrkranetið býður upp á nafnleynd og ýmis skúmaskot hafa hlutar þess orðið vettvangur margskonar glæpastarfsemi. Til að fræðast meira um þennan myrka afkima internetsins fékk Guðmundur Oddsson dósent í félagsfræði við HA hann Christopher Copeland í settið en sá er rannsóknarlektor við Tarleton State University í Texas í Bandaríkjunum. Christopher dvaldi á haustmisseri við námsbraut Háskólans á Akureyri í lögreglufræðum sem NSF sérfræðingur á sviði netöryggismála.
Mon, 21 Nov 2022 - 49min - 2464 - Tæknivarpið - Inniskórnir hans Steve Jobs seldust fyrir 27 milljónir
Nýjustu fregnir af Twitter sem er auðvitað alelda, en við getum ekki hætt að fylgjast með. Rafeyriskauphöllinn FTX sprakk eftir áhlaup og talið er að 10 milljarðar USD hafi gufað upp. Atli byrjaði að prófa Arc-vafrann en fór svo að gera eitthvað annað af viti. Atli prófar Bose Quiet Comfort Earbuds II sem eru víst best í virkri hljóðeinangrun samkvæmt óháðum aðila. Þessi þáttur er í boði Origo sem er halda opinn fyrirlestur um gagnaöryggi miðvkudaginn 30.nóv. Frítt inn: https://www.origo.is/vidburdir/gagnaoryggi Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir
Sat, 19 Nov 2022 - 1h 12min - 2463 - Í austurvegi - Land drekans
Kína er oft og tíðum nefnt land drekans. Teikningar af kínverska drekanum hafa sín sérkenni þar sem hann hlykkjast langur og skrautlegur um himinhvolfið. Segja má að í Kína sé bókstaflega allt tengt drekanum, landið, hafið, náttúruöflin og þjóðin. Því er ekki um einn dreka að ræða, heldur marga, og þeir skiptast í mismunandi flokka. Þannig finnast tilvísanir milli raunverulegra aðstæðna og eiginleika þessara dreka hvarvetna. Höfundur pistilsins er Steingrímur Þorbjarnarson sem einnig les upp.
Thu, 17 Nov 2022 - 30min - 2462 - Eitt og annað: 762 Bækur - 25. sepetember 2021
Útlendingar, svertingjar, framandi, sígaunar. Stela, hóta, svíkja, lemja. Vesalingar og ómerkilegir aumingjar. Þetta orðfæri þykir ekki góð latína í dag, en konan sem notaði þessi orð er einn mest lesni höfundur sögunnar. Enid Blyton. Borgþór Arngrímsson les pistil sinn um rithöfundinn sem birtist fyrst á Kjarnanum í september 2021.
Tue, 15 Nov 2022 - 12min - 2461 - Samtal við samfélagið – Bandaríkin sem stórveldi: Nýlendu-og síðnýlendustefna
Gestur þáttarins að þessu sinni er Julian Go, prófessor í félagsfræði við háskólann í Chicago í Bandaríkjum en Julian var hér á landi í ágúst síðastliðnum sem einn lykilfyrirlesari á ráðstefnu Norræna félagsfræðingafélagsins. Í erindi sínu fjallaði hann um hvernig kenningar í félagsvísindum mótuðust af hugmyndum þeirra sem fengu að hafa rödd í samfélaginu og vísar þá fyrst og fremst til hvítra, vestrænna karlmanna. Hann sýnir fram á að aðrar raddir voru þaggaðar, svo sem raddir kvenna og þeirra sem tilheyrðu minnihlutahópum. Í rannsóknum sínum hefur Julian lagt áherslu á nýlendu- og síðnýlendustefnu þar sem hann hefur lagt áherslu á uppgang og afleiðingar stórveldisstefnu Bandaríkjanna. Julian er höfundur þriggja bóka og mun sú nýjasta koma út á næstunni en hún ber titilinn Policing Empires: Race, Imperialism and Militarization in the US and Great Britain, 1829-present. Í þessu fyrsta hlaðvarpi vetrarins ræða þau Sigrún og Julian um feril hans og rannsóknir. The US as an Empire: Colonialism and Post-colonialism Today´s podcast features Julian Go, professor of Sociology at the University of Chicago. Julian visited Iceland last August as one of the keynote speakers of the Nordic Sociological Association. His keynotes focused on how social science theories have been shaped by the ideas of those who had the power to speak in given societies, which often happened to be white, Western men. He shows how other voices were silenced, such as the voices of women and minorities. Julian has focused on colonialism and post-colonialism in his research and has for example studied the U.S. as an empire. Julian has authored three books and the newest one, Policing Empires: Race, Imperialism and Militarization in the US and Great Britain, 1829-present is forthcoming with Oxford University Press. In this first podcast of this winter, Sigrun and Julian discuss his career in sociology and the key insights from his research.
Mon, 14 Nov 2022 - 53min - 2460 - Tæknivarpið - Sýndarveruleiki með Hilmari Gunnarssyni frá Arkio
Þessi þáttur á sér varla stoð í raunveruleikanum og við ferðumst um sýndarheima með Hilmari Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Arkio. Arkio vakti athygli á heimsvísu á kynningu Meta um daginn, þar sem var farið yfir framtíðarsýn Metu í sýndarveruleika og gagnbættum veruleika. Arkio er sköpunartól fyrir arkitekta og getur hannað alls konar rými og landslag. Arkio virkar bæði í sýndarveruleika og gagnbættum veruleika. Arkio og Meta eru í þróunarsamstarfi og sýndi Hilmar okkur nýja Quest Pro höfuðtólið. Hilmar er líka fyrsti maðurinn sem við höfum hitt sem fallbeygir Meta. Stjórnendur eru Atli Stefán, Gunnlaugur Reynir og Vöggur Guðmundsson.
Fri, 11 Nov 2022 - 56min - 2459 - Raddir margbreytileikans – „Andstæð sjónarmið skapa óvissu kringum rannsóknarstarf safna“
Raddir margbreytileikans – 32. þáttur: „Andstæð sjónarmið skapa óvissu kringum rannsóknarstarf safna“ Ólöf Gerður Sigfúsdóttir fæddist 13. desember 1975 á Sauðárkróki. Hún lauk BA prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og MA í sömu grein árið 2002 frá Chicago háskóla og lauk síðan doktorsprófi í safnafræði frá Háskóla Íslands í október 2022. Í þessum þætti er rætt um doktorsritgerð Ólafar Gerðar, sem og mannfræðirannsóknir hennar. Doktorsritgerð Ólafar Gerðar beinir sjónum að rannsóknahlutverki opinberra safna, en rannsóknastarf safna er gjarnan hulið safngestum og fellur oft í skuggann af öðrum starfsþáttum eins og söfnun, skráningu, varðveislu, miðlun og fræðslu. Þannig miðar verkefnið að því að draga fram rannsóknir sem einn af grunnþáttum faglegs safnastarfs og skapa gagnrýna umræðu um hvað felst í því að stunda rannsóknir á safni. Mörg söfn, hvort sem er hér á landi eða erlendis, segjast ófær um að sinna þeim grunnþætti sem rannsóknir eru vegna skorts á starfsmönnum, tíma og fjármagni, meðan önnur líta á rannsóknir sem innbyggðan hluta af öllu því daglega starfi sem fer fram á söfnum. Þessi tvö andstæðu sjónarmið skapa andrúmsloft óvissu kringum rannsóknastarf safna, sem aftur á móti leiðir til óræðni um hvað telst til rannsókna á söfnum og hvað ekki. Doktorsritgerðin varpar ljósi á þessa óræðni með því að kanna hvernig þekking er sköpuð og henni miðlað á söfnum. Ritgerðin er byggð á fjórum ritrýndum tímaritsgreinum sem samanlagt móta mynd af safnarannsóknum gegnum fjögur sjónarhorn: hið safnafræðilega, hið stofnanalega, hið sýningarstjórnunarlega og hið þekkingarfræðilega. Undanfarin ár hefur Ólöf Gerður verið virk í opinberri umræðu um myndlist, söfn og rannsóknarpólitík hér á landi og tekið þátt margvíslegu starfi sem tengist söfnum og safnarannsóknum og tengslum þeirra við listir.
Thu, 10 Nov 2022 - 1h 14min - 2458 - Eitt og annað: Að breyta svínakótilettu Ií nautasteik - 3. apríl 2016
Á undanförnum árum hafa margoft, víða um heim, komið upp mál sem tengjast svikum og prettum með matvæli. Starfsemi af því tagi tengist nær undantekningarlaust þeirri áráttu, sem fylgt hefur mannkyninu frá upphafi, að fá meira fyrir minna. Græða. Borgþór Arngrímsson les pistil sinn um svikamál á sviði matvæla. Pistillinn birtist fyrst í Kjarnanum 3. apríl 2016
Tue, 08 Nov 2022 - 10min - 2457 - Þjóðhættir – Galdurinn við súrdeigsbakstur
Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Ragnheiði Maísól Sturludóttur, meistaranema í þjóðfræði. Ragnheiður Maísól er menntuð í myndlist en stundar nú meistaranám í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Rannsókn hennar snýr að súrdeigsbakstri á Íslandi. Ragnheiður bakar sjálf súrdeigsbrauð og hefur verið virk í samfélagi súrdeigsbakara en hún stjórnar stórum Facebook-hópi um bakstur af þessu tagi og heldur úti bloggsíðu. Það má því segja að hún hafi gert áhugamál sitt og ástríðu að rannsóknarverkefni. Súrdeigsbakstur varð sérstaklega vinsæll þegar Covid gekk yfir enda var fólk þá meira heima við en áður. Ragnheiður Maísól segir frá því að súrinn fái oft mannleg einkenni. Til dæmis sé oft hægt að rekja ættir hans langt aftur og margir bera sérstök nöfn, en samkvæmt Ragnheiði er nafnið Gísli Súrsson líklega það vinsælasta á Íslandi. Það þarf líka að hugsa um súrinn en hann hagar sér á ólíkan hátt. Þá segir Ragnheiður frá tengslum súrdeigsbakara við súrinn og baksturinn og hvernig hann verður hluti af sjálfsmynd þeirra sem baka. Rannsókn Ragnheiðar Maísól er hluti af þverfaglega rannsóknarverkefninu Samlífi/SYMBIOSIS sem hlaut öndvegisstyrk frá Rannís. Í verkefninu leiða saman hesta sína matvælafræðingar, næringarfræðingar, örverufræðingar, mannfræðingar og þjóðfræðingar og skoða samlífi manna og örvera. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Vilhelmína Jónsdóttir kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Mon, 07 Nov 2022 - 42min - 2456 - Tæknvarpið - Ísland slugsar í netöryggi
Nýsköpunarráðherra Íslands boðar aðgerðir í netöryggismálum landsins. Ný fjölmiðlalög eru á leiðinni til að skerpa á því efni sem nær augum barna á streymiveitum. VanMoof kynnir tvö ný rafhjól sem styðja Find My og bætta þjófavörn. Sega ætlar að búa til tvær mini-leikjatölvur: Genesis mini 2 og Astro Mini City V (sem lítur út eins og leikjakassi) með retro-tölvuleikjum. Netflix er búið að afhjúpa verð á áskrift með auglýsingum en ekki fyrir Íslendinga. Samsung Odyssey Ark fær hræðilega dóma og er mjög dýr. Musk er búinn að reka hálft Twitter og auglýsendur virðast vera flýja. Þessi þáttur er í KFC sem er að selja BOSS BACON sem er kjúklingaborgari með svínasíðusneiðum. Stjórnendur eru Atli Stefán og Elmar Torfason.
Sat, 05 Nov 2022 - 53min - 2455 - Í austurvegi – Refur fær mátt tígurs að láni 狐假虎威
Fyrir þennan málshátt þurfum við að ferðast aftur á tímabil hinna stríðandi ríkja, á 4. öld fyrir okkar tímatal. Heimildin sem þessi málsháttur er tekin upp úr er Zhànguócè《战国策》eða Strategíur hinna stríðandi ríkja, sem er ein af fáum upprunalegum heimildum frá þessum tíma. Þetta er sagan um refinn og tígurinn. Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.
Thu, 03 Nov 2022 - 09min - 2454 - Eitt og annað: Góða útilyktin í handklæðunum - 26. júlí 2020
Þeim sem þurrka þvott sinn á snúrum finnst fátt jafnast á við lyktina af þvotti sem þornað hefur í sól og golu. Snúruaðdáendur gefa lítið fyrir þurrkaralykt, vísindamenn segjast hafa fundið skýringuna á góðu útisnúrulyktinni. Borgþór Arngrímsson les pistil sinn um góðu útilyktina í handklæðunum sem var birtur á Kjarnanum sumarið 2020. Í þáttunum Eitt og annað ... einkum danskt les Borgþór pistla sína sem notið hafa vinsællda á Kjarnanum í gegnum tíðina.
Tue, 01 Nov 2022 - 06min - 2453 - Þjóðhættir – Ábyrg ferðaþjónusta í Grímsey
Það má sannarlega segja að dýralæknirinn Laufey Haraldsdóttir hafi undið sínu kvæði í kross þegar hún ákvað að læra þjóðfræði. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Laufeyju Laufey starfar nú sem lektor við ferðamáladeild Háskólans á Hólum. Laufey segir frá náminu við ferðamáladeildina en þar eru allar námsleiðir í boði í fjarnámi. Laufey segir einnig frá rannsóknum sínum á sviði ferðamálafræða, meðal annars áhugaverðri rannsókn um ferðamennsku í Grímsey. Í rannsókninni voru spurningaskrár lagðar fyrir ferðamenn sem heimsækja eyna en að auki voru ferðir gesta kortlagðar með GPS staðsetningarbúnaði. Gögnin veita áhugaverða innsýn í viðhorf ferðamanna til Grímseyjar sem og hvernig þeir ferðast um eyjuna meðan á dvöl þeirra stendur. Niðurstöðurnar munu meðal annars nýtast heimamönnum til að hlúa betur að ábyrgri ferðamennsku í eynni. Laufey ræðir einnig ímynd Grímseyjar sem sem áfangastaðs fyrir ferðamenn, sem tengist ímynd norðursins og þess afskekkta. Þá segir Laufey einnig frá nýrri og spennandi rannsókn sem hún er að fara af stað með og fjallar um handverk á norðurslóðum.
Mon, 31 Oct 2022 - 34min - 2452 - Tæknivarpið - Elon Musk kaupir Twitter og vangaveltur um nýja iPad
Kaupin á Twitter gengu í gegn í vikunni og fyrsta verk Elon Musk var að reka nokkra stjórnendur. En hvers vegna var hann að kaupa Twitter? Gulli er handviss um að 10 kynslóð af iPad sé grunntýpan. Við ræddum til hvers fólk kaupir iPad og hvaða týpu þú átt að velja. Þátturinn er í boði KFC sem selur B.O.S.S. Bacon máltíð. Stjórnendur eru Andri Valur, Bjarni Ben, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors og Valtýr Bjarki.
Sun, 30 Oct 2022 - 1h 16min - 2451 - Í austurvegi – Sigurður Guðmundsson myndlistamaður – listsköpun í Kína
Í mjög áhugaverðu viðtali segir Sigurður Guðmundsson myndlistamaður okkur frá dvöl sinni og störfum í kínversku borginni Xiamen síðastliðin 25 ár. Þar hefur hann, ásamt konu sinni Ineke Guðmundsson, sett á stofn listamiðstöðina China European Art Center (CEAC) til að tengja saman kínverska og erlenda listamenn. Í viðtalinu fer Sigurður yfir starfsemi miðstöðvarinnar og fjallar um kynni sín af Kína og Kínverjum. Sigurður liggur ekki á skoðunum sínum um hin ýmsu mál og gaman að heyra hans sjónarhorn eftir langa dvöl í Kína.
Fri, 28 Oct 2022 - 47min - 2450 - Eitt og annað: Starfslokasamningur fílanna - 7. Júní 2020
Danska ríkið greiddi fyrir nokkru jafnvirði 222 milljóna íslenskra króna vegna starfsloka fjögurra fíla sem ekki þurfa lengur að „vinna“. Dvalarheimili fílanna á Lálandi er 140 þúsund fermetrar að stærð. BorgþórArngrímsson les pistil sinn um fílana sem fengu starfslokasamning, en pistillinn birtist fyrst á Kjarnanum sumarrið 2020.
Tue, 25 Oct 2022 - 09min - 2449 - Þjóðhættir – Sjálfbærni og sköpun á Hallormsstað
Í þættinum ræðir Vilhelmína við Sigrúnu Hönnu Þorgrímsdóttur þjóðfræðing en hún starfar sem fagstjóri náms í sjálfbærni og sköpun við Hallormsstaðaskóla. Sigrún Hanna segir frá náminu í Hallormsstaðaskóla. Skólinn er staðsettur í miðjum Hallormsstaðaskógi, í afar fallegu og reisulegu húsi sem áður hýsti Hússtjórnarskólann á Hallormsstað. Námið byggir því á sterkum grunni en í 90 ár hefur kennsla á Hallormsstað einkennst af áherslum á nýtingarmöguleika og sjálfbærni. Námsumhverfið er einstakt og er umhverfið allt mikilvægt kennslurými enda er lögð áhersla á staðbundin hráefni og auðlindir í náminu. Við skólann er nú boðið upp á 60 eininga þverfræðilegt nám á háskólastigi í sjálfbærni og sköpun. Í náminu er lögð áhersla á sjálfbærniþekkingu, vistkerfisvitund, siðferði náttúrunytja og að nemendur tileinki sér skapandi og gagnrýna hugsun. Námið er bæði bóklegt og verklegt sem og mjög verkefnamiðað. Í náminu er rík áhersla lögð á handverks- og náttúruþekkingu og nemendur um leið hvattir til að takast á við hin stóru viðfangsefni samtímans. Í náminu er einnig lögð sérstök áhersla á hagnýtingu og segir Sigrún Hanna frá áhugaverðum fyrirtækjum sem fyrrum nemendur hafa stofnað eftir nám í skólanum. Þá segir Sigrún Hanna frá yfirstandandi doktorsrannsókn sinni við Gautaborgarháskóla. Þar rannsakar hún samband fólks og handverks við uppgerð eldri húsa. Að gera upp gamalt hús er stórt og oft flókið verkefni. Í gegnum það ferli fær fólk oft og tíðum aukinn áhuga og ástríðu fyrir handverki og tileinkar sér vinnubrögð og verkþekkingu. Sigrún Hanna ræðir ólík viðhorf sem birtast í tengslum við þetta ferli og hvernig rannsaka má þekkingu í gegnum handverk. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Vilhelmína Jónsdóttir kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Mon, 24 Oct 2022 - 50min - 2448 - Í austurvegi - Hanagól og hundsþjófur
Málsháttur dagsins á sér göfugar rætur þar sem uppruni hans er í sjálfu Shǐjì (史记), eða Skrám stórsagnfræðingsins, magnum opus sagnaritarans Sīmǎ Qiān. Sagan er frá Tímabili hinna stríðandi ríkja, sem varði á síðari helmingi Austur-Zhou-veldisins. Þetta var blóðugt tímabil og í Gulafljótsdalnum finnast enn stríðsminjar þess í jörðu. Hún gerist á tímum konungsins Zhāoxiāng af Qín, á 3. öld fyrir Krist. Hann var langafi Qín Shǐhuáng, fyrsta Kínakeisara, og var með stórtæk plön rétt eins og barnabarn hans síðar meir. Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.
Fri, 21 Oct 2022 - 12min - 2447 - Nýjar spjaldtölvur frá Apple og þráðlaus símtöl
Apple kynnti nýjan iPad (10), uppfærða iPad Pro (M2) og uppfært AppleTV (USB-C fjarstýring!!) með látlausri fréttatilkynningu og myndböndum. Miðeind samhæfir raddgreiningartólin sín við snjallheimilið þannig nú getur Embla slökkt ljósin. Síminn Sjónvarp býður nú upp á prófíla og vefviðmót. Gulli heldur því einnig fram að myndgæðum hafi farið fram, en það er enn óstaðfest. Vegagerðin opnaði nýjan færðarvef, en Gulli vill bara hringja í þau. Nova sendi okkur tæknimann (Aron Heiðar Steinsson) eftir vandræðalegt spjall okkar um Voice of Wifi eða þráðlaus símtöl, sem fræddi okkur um VoLTE, VoWiFi og 5G. Þessi þáttur er í KFC sem er að selja BOSS BACON sem er kjúklingaborgari með svínasíðusneiðum. Þessi þáttur er einnig í boði Origo, sem er að halda opinn fyrirlestur um netöryggi í skýjalausnum þann 26. október. Skráið ykkur inn á https://www.origo.is/vidburdir/netoryggi-vidburdarod-origo2 Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir
Thu, 20 Oct 2022 - 1h 12min - 2446 - Raddir margbreytileikans 31.þáttur. Pétur Waldorff
Pétur Skúlason Waldorff er viðmælandi vikunnar. Pétur er fæddur 1. júlí 1979 í Reykjavík en hefur búið á Íslandi, í Angóla, Svíþjóð, Frakklandi og Kanada og dvalið hér og þar við rannsóknir m.a. í Malaví, Mósambík, og Tansaníu. Hann lauk BA námi í mannfræði við Háskóla Íslands árið 2003, MA prófi í mannfræði frá McGill University í Montreal í Kanada 2006 og svo doktorsnámi í mannfræði frá sama skóla 2015. Áhugasvið Péturs eru heimsmálin, fallegt og spennandi umhverfi, veiði og ferðalög. Hann hefur starfað sem akademískur rannsakandi, stundakennari og verkefnastjóri en í dag vinnur hann í utanríkisráðuneytinu og gegnir stöðu varafastafulltrúa Íslands gagnvart OECD í París.
Thu, 20 Oct 2022 - 38min - 2445 - Eitt og annað: Þekkt en þó óþekkt - 29. ágúst 2021
Flestir kannast við Einar Áskel, burstaklippta strákinn sem býr með pabba sínum. Færri þekkja hinsvegar nafn höfundarins sem skrifaði sögurnar og teiknaði myndirnar. Gunilla Bergström er látin, hún lést á síðasta ári og í þættinum les Borgþór Arngrímsson pistil sinn um höfundinn.
Tue, 18 Oct 2022 - 10min - 2444 - Þjóðhættir - Völuspá og himinhvolfið
Gísli Sigurðsson starfar sem rannsóknarprófessor á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og hefur um árabil sinnt farsælum rannsóknum á íslenskum fræðum og þjóðfræði. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Gísla um rannsóknir hans á munnlegri hefð og minnisfræðum. Gísli segir frá námsárum sínum og dvöl á Íslendingaslóðum í Kanada. Þar tók hann meðal annars viðtöl við Vestur-Íslendinga og hljóðritaði frásagnir þeirra. Þá segir Gísli frá rannsóknum sínum á fornbókmenntum, hvernig frásagnirnar og kvæði varðveittust í munnlegri geymd í lengri tíma áður en þau voruð rituð á skinn á 13. öld. Björn Jónsson reyndist svo áhrifavaldur í rannsóknum Gísla og vakti áhuga hans á himnafestingunni og heimsmynd fyrri tíma sem meðal annars birtist í Eddukvæðum.
Mon, 17 Oct 2022 - 47min - 2443 - Í austurvegi – Sérstaða kínverskunnar
Hér er fjallað um kínverska tungu og sérstöðu hennar. Jafnframt er fjallað um nokkur vafaatriði og jafnvel misskilning sem vart verður í umfjöllun um þetta tungumál. Kína er svo stórt, fjölmennt og margbreytilegt land, að erfitt er að segja til um hversu mörg mál eru töluð þar. Á hinn bóginn er hið opinbera mál sem við nefnum mandarínsku vel skilgreint. Höfundur pistilsins er Steingrímur Þorbjarnarson sem einnig les upp.
Thu, 13 Oct 2022 - 36min - 2442 - Eitt og annað: Furðulegasta Njósnamál Danmerkur - 13.03.2022
Borgþór Arngrímsson les pistil frá því fyrr á árinu um njósnamál sem hefur vakið mikla athygli í Danmörku. Eitt og annað - einkum danskt eru hlaðavarpsþættir með lesnum pistlum Borgþórs úr Kjarnanum.
Tue, 11 Oct 2022 - 08min - 2441 - Tæknivarpið - Google leggur Stadia og gott Tempo hjá Origo
Farið er yfir tæknifréttir vikunnar; sala Origo á Tempo, nýr forstjóri Sýnar og USB-C reglur Evrópusambandsins. Elmar búinn að panta nýjan Pixel síma sem Google kynnti í vikunni og Sverrir segir frá bestu leiðinni fyrir gagnamagn í Bandaríkjunum. Þessi þáttur er í boði Macland og KFC. Macland.is selur Apple tæki og KFC er með B.O.S.S. BACON máltíð . Stjórnendur eru Andri Valur, Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson
Mon, 10 Oct 2022 - 1h 06min - 2440 - Þjóðhættir – Fjallkonur, harmonikur og gömlu dansarnir
Á ári hverju úthlutar Nýsköpunarsjóður námsmanna styrkjum til spennandi verkefna. Síðasta sumar styrkti sjóðurinn fjölbreytt verkefni nemenda við námsbraut í þjóðfræði og safnafræði. Í þættinum verður fjallað um tvö þessara verkefna, annars vegar verkefnið Viðhorf almennings til fjallkonunnar og 17. júní og hins vegar verkefnið Gömlu dansarnir á nýjum tímum. Í fyrri hluta þáttarins ræða Dagrún og Vilhelmína við Önnu Kareni Unnsteins, meistaranema í þjóðfræði, sem segir frá verkefni sínu um viðhorf almennings til fjallkonunnar og hátíðarhalda á 17. júní. Í sumar safnaði hán heimildum, með viðtölum og spurningaskrá, um viðhorf fólks til fjallkonunnar og hátíðarhalda á þjóðhátíðardaginn. Að auki ræddi Anna Karen við konur sem hafa verið í hlutverki fjallkonunnar í Reykjavík á undanförnum árum. Anna Karen segir frá rannsókninni og ræðir þá merkingu sem fólk leggur í fjallkonuna og hugmyndir um tengsl hennar við feminisma. Í seinni hluta þáttarins ræða Dagrún og Vilhelmína við Guðnýju Jónsdóttur og Atla Frey Hjaltason, þjóðfræðinema. Þau unnu saman verkefni um gömlu dansana og hvernig þeir eru iðkaðir í samtímanum. Í sumar heimsóttu Atli og Guðný skemmtanir á vegum Félags harmoniku unnenda þar sem dansinn og harmonikutónlist réðu ríkjum. Þau tóku viðtöl og söfnuðu upplýsingum um reynslu og viðhorf fólks til harmonikutónlistar og gömlu dansanna. Þá langaði þau að skoða þessa gerð skemmtanamenningar sem og hvernig endurnýjun væri í þessum hópi og hvernig samtali á milli kynslóða væri háttað. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Vilhelmína Jónsdóttir kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands
Mon, 10 Oct 2022 - 47min - 2439 - Raddir margbreytileikans – 30. þáttur – Jónína Einarsdóttir
Jónína Einarsdóttir fæddist 1954 í Reykjavík og ólst upp í Dölunum. Hún lauk BA prófi í mannfræði 1988 frá Stokkhólmsháskóla og doktorsprófi í mannfræði frá sama skóla árið 2000. Auk þess lærði hún spænsku, kennslufræði og efnafræði. Jónína er prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands. Helstu rannsóknarsvið Jónínu hafa verið mannfræði barna og ungmenna, heilsumannfræði og rannsóknir á þróunarsamvinnu. Hún var lengi á vettvangi í Gíneu Bissá, í Vestur Afríku, þar sem hún rannsakaði margbreytilega þætti sem snéru að heilsu barna, barnadauða og sorgarviðbrögðum mæðra, brjóstagjöf og mansali á börnum. Hún hefur einnig rannsakað sögu og veruleika íslenskra barna sem voru „send í sveit“ á síðustu öld og velt fyrir sér ýmsum siðferðislegum spurningum því tengdu, t.d. hvort hægt sé að skilgreina það sem mansal. Þetta viðtal snýst einkum um söguleg og pólitísk samskipti, sem og valdaójöfnuð á milli ríkra landa og fátækra, það sem stundum er kallað tengsl Norðurs og Suðurs. Einn þáttur þessara samskipta er þróunarhjálp, sem hefur verið umdeilt fyrirbæri meðal margra mannfræðinga.
Wed, 05 Oct 2022 - 1h 05min - 2438 - Eitt og annað: Tvöfaldur í roðinu - 07.05.2017
Hugo Plaun var lengi ein helsta stríðshetja Dana, og var vel skreyttur hermaður sem hitti fyrirmenni og sagði ótrúlegar sögur sínar víða. Síðar kom í ljós að Plaun laug öllu saman. Borgþór Arngímsson les vinsælan pistil af Kjarnanum frá árinu 2017.
Tue, 04 Oct 2022 - 12min - 2437 - Þjóðhættir – Kvenskörungurinn Jóninna Sigurðardóttir
Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Rannveigu Karlsdóttur þjóðfræðing og kennara við Verkmenntaskóla Akureyrar. Rannveig segir frá starfsemi Sögufélags Eyfirðinga og tímariti félagsins, sem nefnist Súlur. Að auki ræðir Rannveig rannsóknir sínar á Jóninnu Sigurðardóttur (f. 1879 – d. 1962) matreiðslukennara á Akureyri. Eftir að hafa numið meðal annars hússtjórn í Danmörku kom Jóninna heim, ferðaðist um Norðurland og kenndi matreiðslu við miklar vinsældir. Í kjölfarið kom hún að stofnun húsmæðraskóla á Akureyri og varð fyrsti formaður skólanefndar. Hún rak einnig hótel og gaf út vinsæla matreiðslubók þar sem hún lagði áherslu á að kynna nýjar uppskriftir sem hún lærði erlendis, næringargildi og nýtni. Í þriðju útgáfu bókarinnar var tungumálið henni hugleikið en í bókinni íslenskaði hún nánast öll hráefnisheiti. Jóninna þótti mikill skörungur á sinni tíð en árið 1959 var Jóninna sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu og nýlega var gata á Akureyri nefnd eftir henni. Í upphafi þáttarins segir Rannveig einnig frá námi sínu og störfum en aðalstarf hennar er íslenskukennsla við Verkmenntaskólann. Að auki kennir Rannveig valáfanga í þjóðfræði sem stendur nemendum skólans til boða en þar læra nemendur að skoða samfélagið út frá þjóðfræðilegum aðferðum og sjónarhornum. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Vilhelmína Jónsdóttir kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Mon, 03 Oct 2022 - 35min - 2436 - Í austurvegi – Deng Xiaoping - seinni hluti 邓小平 下半
Þetta er seinni þáttur af tveimur um lífshlaup eins mikilvægasta stjórnmálamanns Kína á 20. öldinni, Deng Xiaoping. Lífshlaup Dengs er einstaklega áhugavert og í þessum seinni þætti er áfram rakin vegferð hans innan Kommúnistaflokksins og áhrif á stefnu Kína.
Fri, 30 Sep 2022 - 35min - 2435 - Tæknivarpið - Kindle með penna og Pixel lekar
Google er að fara halda viðburð í október og það er eiginlega allt búið að leka. Pixel símarnir fá S-uppfærslu og nýja liti. Nýr netbeinir mögulega á leiðinni. Úrið sem var kynnt í sumar verður kynnt aftur. Gulli vill fá eitthvað bitastætt (left field) en það eru allar líkur á öðru. Amazon hélt sýna Kindle/Echo/Eero kynningu og það kom flóð af tækjum. Þar má helst nefna dagljósalampann Halo Rise (tenging við sjónvarpsþáttinn?) og Kindle Scribe sem er lesbók með e-Ink skjá sem styður penna (Remarkable). DallE er nú opið öllum og sumir segja að vondu róbotarnir munu stela vinnu af fólki. Logitech bjó til vélrænt lyklaborð fyrir Mac sem er mjög retro. Atli fékk loksins Airpods 3 heyrnatólin sín í hendurnar, sem voru 5-6 vikur úti í íslensku sumari og þau VIRKA. Þessi þáttur er í boði Macland.is sem selur Apple tæki og KFC sem selur BOSS BACON sem Elmar elskar. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir.
Thu, 29 Sep 2022 - 1h 23min - 2434 - Eitt og annað: Fröken Klukka - 12.12.2021
Eitt og annað ... einkum danskt, ellefti þáttur. Fyrir örfáum áratugum hringdi fólk í Fröken Klukku til að vita nákvæmlega hvað klukkan væri. Þótt nútímatækni hafi tekið við hlutverki Frökenarinnar svarar hún enn hér á Íslandi. Í Danmörku hefur Frøken Klokken lagt á og svarar ekki lengur. Pistill eftir Borgþór Arngrímsson á Kjarnanum.
Tue, 27 Sep 2022 - 07min - 2433 - Þjóðhættir – Hættið þessu fikti strákar!
Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við Særúnu Lísu Birgisdóttur þjóðfræðing. Særún Lísa segir frá nýrri bók sinni sem nefnist Hættið þessu fikti strákar! Bókin fjallar um homma í íslensku samfélagi og menningu, frá tímum Íslendingasagnanna og fram yfir hernám. Áhugann á efninu fékk Særún strax í þjóðfræðinámi sínu, upphaflega í námskeiðinu Söfnun þjóðfræða, en svo þróaðist áhuginn, efnið og rannsóknin og hún vann úr því bæði í BA-ritgerð sinni og meistararitgerð. Í rannsókninni byggir hún meðal annars á frásögnum og viðtölum við karlmenn sem voru í „ástandinu“ á hernámsárunum. Þá byggir hún einnig á dagbókarskrifum, blaðaumfjöllun og fleiru um viðhorf til samkynhneigðra manna. Með bókinni segist Særún Lísa vilja veita hommum fortíðar uppreist æru með því að draga sögur þeirra fram í dagsljósið. Hún segir einnig að bókin sjálf eigi að vera fallegur prentgripur, áberandi og skínandi fögur svo hún lendi ekki inni í skáp eins og margir af viðmælendum hennar gerðu. Ingibjörg Soffía Oddsdóttir, grafískur hönnuður, hannaði bókina og er hún prýdd verkum eftir myndlistarkonuna Írisi Auði Jónsdóttur. Særún Lísa safnar nú fyrir útgáfu bókarinnar með hópfjármögnun. Þau sem vilja kynna sér bókina og styðja við útgáfu hennar geta skoðað verkefnið nánar á slóðinni: https://www.karolinafund.com/project/view/4210 Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Vilhelmína Jónsdóttir kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Mon, 26 Sep 2022 - 31min - 2432 - Tæknivarpið - Google Analytics bann og GTA6 myndbroti lekið
Það er þéttur þáttur hjá okkur þetta skiptið. Tækniskólinn var hakkaður illa og flest allt nettengd datt í gólfið. Neytendastofa kallar eftir því að banna Google Analytics á Íslandi í kjölfarið úrskurða annarra Evrópulanda. The Verge endurhannar vefsíðu sína og það eru allir í Tæknivarpinu brjálaðir. Google Pixelbook vörulínan hefur verið fryst og ekki fleiri fartölvur í bígerð þar. The Verge dómar fyrir Apple þrennuna eru komnir út og þeir eru ekkert sérstakir. Apple kynnti ekki stærstu breytinguna á iPhone 14 á nýafstöðnum viðburði sínum: allt innvolsið hefur verið tekið í gegn og nú er mun auðveldara að gera við hann. En þetta á einungis við iPhone 14 (ekki Pro símana). Victrola gefur út plötuspilara sem getur streymt beint í Sonos-hljóðkerfi. Windows Explorer fær loksins flipa, 9 árum á eftir macOS og enn fleiri árum á eftir Ubuntu. Nvidia kynnti ný og dýr skjákort í vikunni: RTX 4090 og 4080. Logitech ætlar að koma með áhaldanlega skýjaleikjatölvu sem heitir því frábæra nafni G Cloud Gaming Handheld sem kemur í sölu þann 17. október. Við fengum góðar spurningar af Twitter, meðal annars frá @icemandave2 og @kariarnar sem við svöruðum í þættinum. Þessi þáttur er í boði Macland.is sem er að dæla út nýjum Apple þrennum, KFC sem býður upp á BOSS BACON máltíð og Origo sem býður upp á fyrirlestur í netöryggi þann 28. september næstkomandi sem er opinn öllum. Sjá fyrirlestur hér: https://www.facebook.com/events/840082753827663
Fri, 23 Sep 2022 - 1h 21min - 2431 - Í austurvegi - Deng Xiaoping - fyrri hluti 邓小平 上半
Þetta er fyrri þáttur af tveim um lífshlaup eins mikilvægasta stjórnmálamanns Kína á 20. öldinni, Deng Xiaoping. Lífshlaup Dengs er einstaklega áhugavert, sagan af sveitapilti úr Sichuan-héraði sem komst til æðstu metorða í Kommúnistaflokki Kína.
Thu, 22 Sep 2022 - 26min - 2430 - Eitt og annað: Sænska Bolluinnrásin - 14.02.2021
Danir hafa sjaldnast litið upp til Svía þegar kemur að matargerð. Þess vegna kemur það kannski mörgum spánskt fyrir sjónir að sænskar bolludagsbollur eiga vaxandi vinsældum að fagna meðal Dana. Tíundi þátturinn af völdum pistlum Borgþórs Arngrímssonar.
Tue, 20 Sep 2022 - 09min - 2429 - Þjóðhættir — Farskóli safnafólks á Hallormsstað
Farskóli FÍSOS, Félags íslenskra safna og safnmanna, fer fram á Hótel Hallormsstað dagana 21.-23. september. Farskólinn er árleg fagráðstefna safnafólks á Íslandi og í ár er yfirskrift hans Söfn á tímamótum. Farskólinn, sem var fyrst haldinn árið 1989, er mikilvægur vettvangur endurmenntunar og samstarfs meðal íslenskra safna. Á hverju hausti hittist safnafólk, ber saman bækur sínar, kynnist því sem verið er að gera í safnastarfi víða um land og styrkir um leið tengslanet sitt. Farskólinn er jafnan vel sóttur en í ár verða þátttakendur í Farskólanum á Hallormsstað í kringum 120. Í þættinum ræða Dagrún og Vilhelmína við í Elsu Guðnýju Björgvinsdóttur, safnstjóra Minjasafns Austurlands, en hún er í skipulagsnefnd Farskólans í ár. Elsa Guðný segir frá dagskrá Farskólans og ræðir einnig mikilvægi fagráðstefnu af þessu tagi fyrir íslenskt safnasamfélag sem er gífurlega fjölbreytt. Þá verður einnig rætt við Ólöfu Gerði Sigfúsdóttur, doktorsnema í safnafræði. Ólöf Gerður er formaður Íslandsdeildar ICOM og mun, ásamt Hólmari Hólm, leiða málstofu á Farskólanum þar sem ný safnaskilgeining verður til umræðu. Í þættinum segir Ólöf Gerður frá áherslum í nýju safnaskigreiningunni sem samþykkt var á ársþingi ICOM í Prag fyrr á þessu ári en í málstofunni á Farskólanum verður þýðing þessarar nýju skilgreiningar fyrir safnastarf á Íslandi rædd. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa Dagrún Ósk Jónsdóttir og Vilhelmína Jónsdóttir kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Mon, 19 Sep 2022 - 34min - 2428 - Í austurvegi – Héðinn Svarfdal: Að ferðast til Kína
Eftir að hafa farið 25 sinnum til Kína og þar af fjölmörg skipti með íslenska ferðamenn með sér segir Héðinn Svarfdal okkur frá áhugaverðum stöðum til að heimsækja. Eins spjölluðum við um að hverju þurfi að huga við undirbúning fyrir ferðalag til Kína og hvers ferðalangar megi búast við þar austur frá
Fri, 16 Sep 2022 - 53min - 2427 - Tæknivarpið - Nýr iPhone, Watch Ultra og Airpods Pro 2
Apple hélt kynningu á miðvikudaginn, eins og svo oft áður á þessu tíma árs, og kynnti nýjasta nýtt í Apple þrennunni: iPhone, Watch og Airpods. Þessi þáttur er í boði Macland, sem selur einmitt þessa svakalegu þrennu. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.1
Fri, 16 Sep 2022 - 1h 42min - 2426 - Raddir margbreytileikans – Kvikspuni, kakkalakkar og svissneskir vasahnífar
Viðmælandi hlaðvarpsins að þessu sinni er Unnur Helga Möller en hún er fædd á Akureyri 8. janúar 1985. Unnur Helga lauk BA prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands 2013 og MA prófi frá sama skóla 2015. Í lokaverkefnum sínum hefur hún tekist á við aðdáendasamfélög á netinu og kvikspuna á Norðurlöndum. Unnur Helga hefur búið í Austurríki, Þýskalandi, Bretlandi og Svíþjóð en er nú búsett í Hafnarfirði. Áhugasvið hennar tengjast öllum almennum nördaskap, tónlist, sviðslistum, þjóðbúningum og öllu sem er gamalt með sögu. Hún hefur í gegnum tíðina unnið sem söngvari, leiðsögumaður á söfnum, við tómstundafræðslu og efnissköpun en starfar nú sem viðburðastýra viðburða og miðlunar á Bókasafni Hafnafjarðar. Við ræddum við Unni Helgu um aðdáendamenningu, kvikspuna, bókasöfn og hvernig mannfræðin kemur inn í þetta allt saman.
Wed, 14 Sep 2022 - 45min - 2425 - Eitt og annað - Margrétarskálin 14.04.2015
Í níunda þætti af Eitt og annað ... einkum danskt fjallar Borgþór Arngrímsson um Margrétarskálina. Pistlar Borgþórs njóta mikilla vinsælda á Kjarnanum og í hlaðvarpinu les höfundur valda pistla síðustu ára.
Tue, 13 Sep 2022 - 04min - 2424 - Í austurvegi – Bragðast eins og kjúklingarif 味如鸡肋
Þáttur dagsins færir okkur bæði skemmtilegan og nærandi kínverskan málshátt. Hér er á ferð sígildur málsháttur frá síðustu árum Austur-Han-veldisins. Það er svo ekki hægt að ræða um lok Austur-Han-veldisins án þess að Cáo Cāo komi við sögu. Sagan gerist á 3. öld í Shǎnxi-héraði, í kringum borgina Hànzhōng. Hànzhōng varð bitbein erkifjendanna Cáo Cāo og Liú Bèi sem báðir voru öflugir herforingjar og leiðtogar. Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.
Thu, 08 Sep 2022 - 10min - 2423 - Ekon – Hálfu ári síðar: Efnahagsþvinganir sem vopn gegn Rússlandi
Emil Dagsson ræðir við Dr. Ásgeir Brynjar Torfason. Fjallað er um fjármagnsflæði og hvað gerist þegar settar eru skorður á slíkt flæði, eða þá efnahagsþvinganir. Viðmælandinn Ásgeir Brynjar er doktor í fjármálum frá Gautaborgarháskóla. Áhersla þáttarins er efnahagsþvinganirnar sem Vesturlönd hafa sett á Rússland í kjölfar innrásar Pútíns í Úkraínu.
Wed, 07 Sep 2022 - 47min - 2422 - Eitt og annað: Matreiðslubækur vinsælt lesefni hjá Dönum - 25.03.2015
Matreiðslubækur eru vinsælt lesefni í Danaveldi. Borgþór Arngrímsson fer yfir málið í nýjasta þætti af Eitt og annað ... einkum danskt. Pistlar Borgþórs eru birtir á Kjarnanum og sá sem lesinn er í þessum þætti birtist fyrst í mars árið 2015.
Tue, 06 Sep 2022 - 03min - 2421 - Í austurvegi – Kristín Ketilsdóttir - hjólandi ein um Kína og keppt í þríþraut
Kristín Ketilsdóttir fór snemma til Kína, heillaðist af hjólreiðum og kynntist ýmsum afskekktum svæðum Kína hjólandi ein síns liðs. Í viðtali dagsins segir hún okkur ótrúlegar ferðasögur um Kína á hjólinu sínu. Seinna fór hún að keppa í þríþraut vítt og breytt um Kína og segir okkur af því. Reynslan í Kína hefur gefið Kristínu ótrúlega innsýn í þetta stóra og fjölbreytta land sem fáir Íslendingar hafa upplifað.
Thu, 01 Sep 2022 - 52min - 2420 - Raddir margbreytileikans – 28. þáttur
Eyrún Ólöf Sigurðardóttir er fædd 1982 í Reykjavík og alin upp í Hveragerði. Hún starfaði í barnastarfi Reykjavíkurborgar í nokkur ár (og þannig lenti hún í tómstundafræðinni) og hefur líka unnið mikið með öldruðum, bæði við aðhlynningu og sem tómstundafræðingur. Eyrún kom stuttlega við í unglingastarfi hjá borginni og hefur verið í grasrótarverkefninu Stelpur rokka! frá 2015 (hún skrifaði einmitt BA um kynjaskipt frítímastarf). Svo hefur hún verið talsvert á flakki um heiminn, var í fjarnámi fyrst þegar hún byrjaði í mannfræðinni og skrifaði verkefni á bókasöfnum og kaffihúsum hér og þar. Einnig hefur Eyrún unnið með No Border samtökunum fyrir réttindum flóttafólks og stundað annan aktívisma. Hún er mikið náttúrubarn og komu fjallaskálarnir inn í líf hennar sem sumarstarf þegar hún var í mannfræðinni, eitt það besta, segir hún, sem hefur komið fyrir hana er að fá að dvelja á fjöllum í langan tíma í senn. Eyrún er aðjúnkt í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ. Megin áherslur í fræðum Eyrúnar eru: orðræður, staðalmyndir, fólksflutningar, vald og andóf, aktívismi og anarkismi, tómstunda- og félagsmálafræði. Í þessu samtali er fjallað um orðræðu tengda fólki á flótta, m.a. útfrá starfi íslensku Landhelgisgæslunnar við landamæragæslu í Miðjarðarhafinu, sem einnig fól í sér aðkomu að björgun flóttafólks í sjávarháska, en Eyrún skrifaði MA ritgerð sína um það mál. Rætt er um hervæðingu öryggismála og öryggisvæðingu mannúðarmála og útvistun verkefna því tengdu til einkaaðila, og fleira í þeim dúr, þar sem hugmyndir um þjóðernishyggju, yfirburðarhyggju og rasisma koma við sögu.
Wed, 31 Aug 2022 - 1h 09min - 2419 - Eitt og annað: Köttur um kött frá ketti til kattar - 19.03.2017Tue, 30 Aug 2022 - 10min
- 2418 - Í austurvegi – Að klífa tré til fiskveiða
Saga þessa málsháttar á upptök sín alla leið aftur á Tímabili hinna stríðandi ríkja, í hinu langlífa Zhou-veldi. Langfrægastur allra frá þessu tímabili var Konfúsíus og þekktasti fylgismaður Konfúsíusar var Mensíus sem Kínverjar kalla Mèngzǐ. Mèngzǐ var frá Qí-veldi, þar sem í dag er Shandong-hérað, og var hann oft boðaður á fund stórhuga konungsins í höllinni til ráðlegginga. Málsháttur dagsins er beint úr samnefndri bók hans sem kallast Mèngzǐ. Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.
Wed, 24 Aug 2022 - 09min - 2417 - Eitt og annað ... einkum danskt – Endurkoma smurbrauðsins – 25.07.2021
Borgþór Arngrímsson hefur skrifað pistla fyrir Kjarnann frá árdögum miðilsins. Pistlar hans njóta mikilla vinsælda hjá lesendum, fjallað er um eitt og annað og oftar en ekki hefur efniviðurinn einhverja tengingu við Danmörku. Borgþór hefur nú lesið valda pistla sem birtir verða sem hlaðvarpsþættir í Hlaðvarpi Kjarnans undir yfirskriftinni Eitt og annað ...einkum danskt. Sjötti þátturinn fjallar um endurkomu smurbrauðsins.
Tue, 23 Aug 2022 - 07min - 2416 - Tæknivarpið - Nýr íslenskur "banki"
Í þættinum er meðal annars rætt um glóðvolga niðurstöðu Samsung Galaxy Unpacked, seinkun á komu HBO Max, breytt plön hjá hinu íslenska Netflix, fyrstu viðbrögð við beta-prófunum Indó bankaþjónustunnar og rafbíla. Sem fyrr fer umræðan um víðan völl og stundum út fyrir efnið. Tæknivarpið er í boði Macland. Stjórnendur þáttarins eru Andri Valur, Elmar, Gunnlaugur Reynir og Marinó Fannar.
Tue, 23 Aug 2022 - 1h 07min - 2415 - Tæknivarpið - Húðtóna heyrnatól frá Kardashian
Við förum um víða völl í þættinum, allt frá húðtóna heyrnatólum og að himnum. Kim Kardashian og Beats (Apple) þróa húðtónalituð heyrnatól frá Beats Fit Pro. Aha er víst byrjað að bjóða upp á drónaheimsendingar undir nafninu "Himnasending" en bara þegar veður leyfir. John Deere traktorar geta keyrt Doom, þrátt fyrir svæsið burn-in á skjánum. Android 13 er komið út, aðeins á undan áætlun. Samsung Galaxy Watch 5 er komið með dóma og þeir eru ekkert spes. En Samsung hittir í mark með 55" tölvuleikjaskjá sem er gersamlega sturlaður. Þessi þáttur er í boði Macland. Stjórnendur eru Atli Stefán, Bjarni Ben og Elmar Torfa.
Tue, 23 Aug 2022 - 1h 19min - 2414 - Í austurvegi – Ping Pong Diplomacy 乒乓外交
Sumir kannast við enska hugtakið Ping Pong Diplomacy og geta tengt það við ákveðin tímamót í samskiptasögu Bandaríkjanna og Alþýðulýðveldisins Kína. Flestir hafa kannski heyrt á það minnst en þekkja ekki beint söguna að baki þess. Í þessum þætti rennum við aðeins yfir þessa áhugaverðu sögu og sjáum hvernig borðtennis breytti heimssögunni.
Mon, 22 Aug 2022 - 19min - 2413 - Eitt og annað ... einkum danskt – Ævintýrið Um Carmenrúllurnar - 22.05.2022
Valdir pistlar Borgþórs Arngrímssonar sem birst hafa á Kjarnanum koma nú út sem hlaðvarpsþættir. Í fjórða þættinum les Borgþór vinsælan pistil frá því fyrr á árinu um hinar frægu Carmen rúllur. Borgþór skrifar jafnan um eitt og annað sem tengist Danmörku.
Tue, 16 Aug 2022 - 07min - 2412 - Eitt og annað ... einkum danskt – Hygge - 08.10.2017
Valdir pistlar Borgþórs Arngrímssonar sem birst hafa á Kjarnanum koma nú út sem hlaðvarpsþættir. Í fjórða þættinum les Borgþór afar vinsælan pistil frá árinu 2017 sem fjallar um hugtakið hygge. Borgþór skrifar jafnan um eitt og annað sem tengist Danmörku.
Tue, 09 Aug 2022 - 07min - 2411 - Í austurvegi – Hin þjóðlega hljómsveit útvarpsins í Beijing
Í sumar munum við endurflytja 5 þætti um kínverska tónlist sem Arnþór Helgason gerði fyrir Ríkisútvarpið fyrir um 20 árum síðan. Við fengum góðfúslegt leyfi Arnþórs og Ríkisútvarpsins til að endurflytja þessa þætti og þökkum við kærlega fyrir það. Þáttastjórnenda þarf vart að kynna fyrir þeim sem þekkja eitthvað til Kína. Arnþór Helgason varð snemma hugfanginn af kínverskri tónlist og án efa má fullyrða að hann sé sá Íslendingur sem þekkir best til tónlistar þar austur frá.
Thu, 04 Aug 2022 - 40min - 2410 - Eitt og annað ... einkum danskt – Áttræður fyrir rétt út af smáaurum – 27.06.2021
Eitt og annað ... einkum danskt eru hlaðvarpsþættir með völdum pistlum Borgþórs Arngrímssonar úr Kjarnanum. Í þriðja þætti heyrum við af áttræðum Dana, Mogens Nielsen, sem segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti við danskt orkufyrirtæki.
Tue, 02 Aug 2022 - 07min - 2409 - Í austurvegi – Erlend tónlist í Kína
Í sumar munum við endurflytja 5 þætti um kínverska tónlist sem Arnþór Helgason gerði fyrir Ríkisútvarpið fyrir um 20 árum síðan. Við fengum góðfúslegt leyfi Arnþórs og Ríkisútvarpsins til að endurflytja þessa þætti og þökkum við kærlega fyrir það. Þáttastjórnenda þarf vart að kynna fyrir þeim sem þekkja eitthvað til Kína. Arnþór Helgason varð snemma hugfanginn af kínverskri tónlist og án efa má fullyrða að hann sé sá Íslendingur sem þekkir best til tónlistar þar austur frá.
Thu, 28 Jul 2022 - 38min - 2408 - Eitt og annað ... einkum danskt – Frægastur danskra leikara – 22.05.2021
Eitt og annað ... einkum danskt eru hlaðvarpsþættir með völdum pistlum Borgþórs Arngrímssonar úr Kjarnanum. Í öðrum þætti er fjallað um einn frægasta danska leikara heims, sjálfan Mads Mikkelsen.
Tue, 26 Jul 2022 - 09min - 2407 - Í austurvegi – Tónlist smáþjóða í Kína
Í sumar munum við endurflytja 5 þætti um kínverska tónlist sem Arnþór Helgason gerði fyrir Ríkisútvarpið fyrir um 20 árum síðan. Við fengum góðfúslegt leyfi Arnþórs og Ríkisútvarpsins til að endurflytja þessa þætti og þökkum við kærlega fyrir það. Þáttastjórnenda þarf vart að kynna fyrir þeim sem þekkja eitthvað til Kína. Arnþór Helgason varð snemma hugfanginn af kínverskri tónlist og án efa má fullyrða að hann sé sá Íslendingur sem þekkir best til tónlistar þar austur frá.
Tue, 19 Jul 2022 - 37min - 2406 - Eitt og annað ... einkum danskt – Ný gullöld kaffivélarinnar og Melitta Bentz – 20.09.2015
Valdir pistlar Borgþórs Arngrímssonar sem birst hafa á Kjarnanum koma nú út sem hlaðvarpsþættir. Í fyrsta þættinum les Borgþór afar vinsælan pistil frá árinu 2015. Borgþór skrifar jafnan um eitt og annað sem tengist Danmörku.
Tue, 19 Jul 2022 - 09min - 2405 - Í austurvegi – Þróun kínverskrar tónlistar frá 8. til 20. aldar
Í sumar munum við endurflytja 5 þætti um kínverska tónlist sem Arnþór Helgason gerði fyrir Ríkisútvarpið fyrir um 20 árum síðan. Við fengum góðfúslegt leyfi Arnþórs og Ríkisútvarpsins til að endurflytja þessa þætti og þökkum við kærlega fyrir það. Þáttastjórnenda þarf vart að kynna fyrir þeim sem þekkja eitthvað til Kína. Arnþór Helgason varð snemma hugfanginn af kínverskri tónlist og án efa má fullyrða að hann sé sá Íslendingur sem þekkir best til tónlistar þar austur frá.
Thu, 14 Jul 2022 - 39min - 2404 - Raddir margbreytileikans – Frá Bodyshop til Malaví í skotheldu vesti með of stóran hjálm
Gestur þáttarins er mannfræðingurinn Inga Dóra Pétursdóttir. Hún fæddist í Svíþjóð 8. janúar 1980 og ólst upp í Laugarás í Biskupstungum. Á fullorðinsárum hefur hún dvalið víða, meðal annars í Gvatemala, Spàni, Bandaríkjunum, Gana, Malaví og Mosambik. Hún lauk BA prófi í mannfræði árið 2004 við Háskóla Íslands og MA prófi í þróunarfræði árið 2010 við sama skóla. Í náminu beindi hún helst sjónum að heilsutengdri mannfræði með áherslu á Afríku og HIV. Í gegnum tíðina hefur Inga Dóra unnið við ýmis störf, meðal annars sem framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, sem jafnréttisfulltrúi NATO í Kabul, seinna sem jafnréttisfulltrúi World Food Programme í Mosambik og svo hjá utanríkisráðuneytinu. Í dag starfar hún sem forstöðukona sendiráðs Íslands í Malaví.
Wed, 13 Jul 2022 - 52min - 2403 - Í austurvegi – Stiklað á stóru um sögu kínverskrar tónlistar
Í sumar munum við endurflytja 5 þætti um kínverska tónlist sem Arnþór Helgason gerði fyrir Ríkisútvarpið fyrir um 20 árum síðan. Við fengum góðfúslegt leyfi Arnþórs og Ríkisútvarpsins til að endurflytja þessa þætti og þökkum við kærlega fyrir það. Þáttastjórnenda þarf vart að kynna fyrir þeim sem þekkja eitthvað til Kína. Arnþór Helgason varð snemma hugfanginn af kínverskri tónlist og án efa má fullyrða að hann sé sá Íslendingur sem þekkir best til tónlistar þar austur frá.
Wed, 06 Jul 2022 - 36min - 2402 - Í austurvegi – Einlæg gjöf en smáræði 千里送鹅毛
Kínverski málsháttur dagsins er mikið notaður og í uppáhaldi hjá mörgum. Sagan á bakvið hann hefst fyrir rétt tæpum 1400 árum síðan. Sjöunda öldin var upphaf hins mikilfenglega Tang-veldis og kemur keisarinn sjálfur við sögu en aðalhetjan var embættismaður frá svæði sem var í kringum Yunnan og Búrma samtímans. Þessum embættismanni var falið af konungi sínum að koma sér í mjúkinn hjá Tang-keisaranum og votta honum virðingu sína með því að koma með gjafir og hneigja sig fyrir honum. En ekki fór allt sem skyldi. Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.
Thu, 30 Jun 2022 - 11min - 2401 - Raddir margbreytileikans – „Vofa“ móðurinnar mótar karlmennskuvitund ungra flóttamanna
Viðmælandi þessa þáttar er Árdís Kristín Ingvars, félags- og mannfræðingur, sem er aðjúnkt í félagsfræði við Háskóla Íslands. Árdís fæddist í Reykjavík árið 1970. Hún lauk BA prófi árið 2010 í mannfræði við Háskóla Íslands og diplómu í hnattrænum tengslum, fólksflutningum og fjölmenningarfræðum árið 2013, frá HÍ. Árdís lauk MA námi í mannfræði við HÍ ári seinna. Árið 2019 lauk Árdís doktorsprófi í félagsfræði frá HÍ. Árdís hefur einkum rannsakað málefni flóttafólks, en einnig stöðu fatlaðra og atvinnuþátttöku þeirra á Íslandi. Ein helsta áhersla Árdísar hefur verið staða ungra karlkyns innflytjenda og flóttamanna, bæði hinsegin og gagnkynhneigðra, og mótun kyngervis þeirra í nýjum og framandi félagslegum og menningarlegum aðstæðum, og skörun þessara þátta við neikvætt pólitískt andrúmsloft gagnvart flóttafólki og vaxandi þjóðernishyggju. Þessir þættir hafa tengst aukinni öryggisvæðingu Evrópu þar sem ímynd karla frá Miðausturlöndum er í auknum mæli glæpavædd. Út frá þessum þáttum hafa rannsóknir Árdísar einkum fókuserað á hvernig ungum körlum á flótta hefur gengið að fóta sig í breyttum aðstæðum í framandi samfélagi sem virkir þátttakendur.
Wed, 29 Jun 2022 - 1h 05min - 2400 - Í austurvegi – Cecilia Lindqvist 林西莉
Árið er 1961. Ung sænsk kona stígur um borð í fullpakkaðan strætisvagn í miðborg Peking. Allir eru klæddir bláum, víðum, fóðruðum jökkum og buxum í stíl. Hún er eini útlendingurinn í vagninum, þar sem fólk þarf að troðast til að stíga frá og um borð – og henni er slétt ekki sama. Í fanginu heldur hún á þúsund ára gömlu strengjahljóðfæri, guqin, frá tímum Song-keisaraveldisins. Þetta sjö strengja hljóðfæri er um 120 cm á lengd, aðeins lengra en rafmagnsgítar, og hún er með það vafið inn í fóðraðan silkipoka. Unga konan hét Cecilia Lindqvist og varð síðar þekkt sem rithöfundur og einn fremsti Kínafræðingur Svía. Í þættinum er fjallað um námsdvöl hennar í hinu rauða Kína Maós og kínverska hljóðfærið guqin sem hún heillaðist af.
Wed, 22 Jun 2022 - 38min - 2399 - Tæknivarpið – Gervigreind öðlast sál
Við erum ekki dauðir úr öllum æðum og bættum við okkur allavega einum þætti í viðbót þetta sumar. Enda er líka fullt að frétta: Landspítalinn þróar app. Myndlyklar eru ennþá fáránlega vinsælir. Stór uppfærsla fyrir Vivaldi með pósti, dagatali og RSS lesara. Encroapp-„hakk“ frönsku löggunar nælir í íslenska bófa. Apple kaupir sýningarétt MLS (BNA fótboltadeild). Google-gervigreind öðlast sál, samkvæmt dulrænum presti sem starfar hjá Google. Ford innkallar bíla en byrjar að afhenda F150 Lightning. Microsoft jarðar Internet Explorer eftir 26 ár. Microsoft heldur feita tölvuleikjakynningu. Atli prófar Sony XM5 heyrnatólin. Þessi þáttur er í boði Macland 🍏 Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Marinó Fannar Pálsson.
Tue, 21 Jun 2022 - 1h 16min - 2398 - Ekon – Ýmsar leiðir færar til að leiðrétta kynjahalla í forstjóraráðningum
Emil Dagsson ræðir við Ástu Dís Óladóttur, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, um hvernig hægt sé að bregðast við kynjahalla í ráðningum forstjóra skráðra félaga á íslenskum markaði. Ásta Dís hefur rannsakað slík ráðningarferli og hún er einn meðhöfunda greinar um efnið sem kom út í fyrra og ber heitið Forstjóraráðningar í þjóðhagslega mikilvægum fyrirtækjum: Kynjahalli, útilokun og ófagleg ráningarferli? Að baki greinarinnar liggja viðtöl helming þeirra kvenna sem sitja í stjórnum skráðra félaga á Íslandi, alls 22 konur.
Sat, 18 Jun 2022 - 44min - 2397 - Raddir margbreytileikans – „En hvaðan ertu?“ Hið persónulega og hið pólitíska
Gestur hlaðvarpsins er Sanna Magdalena Mörtudóttir, mannfræðingur og borgarfulltrúi. Sanna fæddist í Reykjavík 3. maí 1992 og hefur búið víða um höfuðborgarsvæðið og hér og þar í London Englandi. Hún lauk BA-prófi í mannfræði árið 2015 við Háskóla Íslands og meistaraprófi í mannfræði árið 2018 við sama skóla. Rannsóknarsvið Sönnu snúa að margbreytileika, kynþáttafordómum og kynþáttahyggju en lokaritgerð hennar í meistaranáminu er um upplifun brúnna Íslendinga á því að tilheyra íslensku samfélagi. Sanna hefur unnið við ýmis störf, hún byrjaði snemma að bera út, vann sem vagtstjóri á veitingastöðum og í gestamóttöku, sem aðstoðarkennari í HÍ og aðstoðarmaður prófessors en í dag er hún borgarfulltrúi fyrir Sósíalistaflokk Íslands.
Wed, 15 Jun 2022 - 44min - 2396 - Tæknivarpið – Ný Macbook Air sem er næstum svört
Apple hélt lykilræðu á WWDC-tækniráðstefnunni á mánudaginn og kynnti fullt af uppfærslum fyrir stýrikerfin (en talaði ekkert um tvOS) og eitthvað af vélbúnaði. Nýr Apple örgjörvi M2, ný Macbook Air og „ný” Macbook Pro 13” og fullt af sniðugu fyrir iPadOS. Við rennum yfir það sem var kynnt mjög ítarlega ásamt Sigurði Flygenring. Þessi þáttur er í boði Macland. Macland.is selur Apple-tæki.
Fri, 10 Jun 2022 - 1h 32min - 2395 - Í austurvegi – Orkuskipti og loftslagsmál í Kína
Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðstjóri orkuskipta og loftslagsmála hjá Orkustofnun. Við spjölluðum um orkumál heimsins og Kína sérstaklega í því samhengi og var þar sannarlega af nógu að taka. Í spjalli okkar kom m.a. fram að grænar lausnir eru orðnar samkeppnishæfar og sífellt umfangsmeiri á heimsvísu og sérstaklega í Kína. Má segja að Kínverjar séu leiðandi afl í þeirri byltingu sem nú er að eiga sér stað á leið okkar yfir í endurnýjanlega orku.
Wed, 08 Jun 2022 - 47min - 2394 - Ekon – Emil ræðir við David Cook
Emil Dagsson ræðir við David Cook um nýjan mælikvarða á efnahagslegri velferð fyrir Ísland í nýjasta þætti af Ekon. Mælikvarðinn sem er til umfjöllunar nefnist framfarastuðull (e. Genuine Progress Indicator, GPI) og tekur hann tillit til annarra þátta en hagvaxtar. Álíka mælikvarðar eru til fyrir önnur lönd en þau Brynhildur Davíðsdóttir og David Cook aðlöguðu mælikvarðann að íslensku hagkerfi og gerðu grein fyrir þróun hans fyrir árin 2000 til 2019.
Wed, 08 Jun 2022 - 35min - 2393 - Samtal við samfélagið – Ungt fólk á Íslandi: Kosningar, umhverfið og samfélagsþátttaka
Síðasti gestur fyrir sumarfrí er Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir en hún lauk BA-gráðu í félagsfræði frá HÍ árið 2017 og MA-gráðu í opinberri stjórnsýslu með áherslu á fjölmiðla og boðskipta árið 2020. Síðan hún útskrifaðist hefur Vigdís nýtt félagsfræðigráðuna sína á ýmsan hátt, en hún hefur meðal annars starfað hjá Umboðsmanni barna sem starfsmaður ungmennaráðs, komið að skuggakosningum framhaldsskólanna, gefið út handbók fyrir ungmennaráð sveitafélaga og skýrslu um hvað það er sem fær ungt fólk til að kjósa. Í dag starfar Vigdís sem verkefnastjóri hjá Landvernd. Þar hefur hún meðal annars sinnt verkefninu Ungt Umhverfisfréttafólk (Young Reporters for the Environment). Þær Sigrún spjalla um þessi fjölbreyttu störf, í hverju þau felast og af hverju samfélagsþátttaka ungs fólks á mismunandi vettvangi er Vigdísi Fríðu einstaklega hugleikin.
Tue, 07 Jun 2022 - 39min - 2392 - Tæknivarpið – Nova útboð og WWDC orðrómar
Það hefur óvenju mikið verið að frétta hér af Íslandi síðustu vikur: Nova er á leið í opið útboð, forsetinn fór út til Bandaríkjanna til að berjast fyrir íslensku ásamt flottu föruneyti, Sýn vill ekki eiga innviði en vill byggja upp sæstrængjainnviði og CERT-IS varar við gömlum útrunnum lénum sem eru notuð til að hakka fólk (plís kveikið á tveggja þátta auðkenningum!). Google bakkar með að rukka Workspace fyrir þá einstaklinga sem nota sitt eigið lén til einkanota, Google Drive fær (loksins) afritunarflýtileiðir, OneNote fær yfirhalningu á næstunni, Ikea býr til Matter hub og app, lítið bassabox frá Sonos er á leiðinni á viðráðanlegu verði, Microsoft styrkir sig í ARM-málum og gamalt sjónvarp slær út nettengingar heils þorps í Wales. WWDC er svo í næstu viku og við fáum Sigurð Stefán Flygering í heimsókn til að kemba í gegnum orðróma um tæki og hugbúnað frá Apple. Þessi þáttur er í boði Macland. Stjórnendur eru Atli Stefán og Andri Valur.
Thu, 02 Jun 2022 - 1h 20min
Podcasts similar to Hlaðvarp Heimildarinnar
- El Partidazo de COPE COPE
- The Dan Bongino Show Cumulus Podcast Network | Dan Bongino
- David Guetta David Guetta
- Hondelatte Raconte - Christophe Hondelatte Europe 1
- MÓWI SIĘ Joanna Kołaczkowska i Szymon Majewski
- WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki , Piotr Kędzierski
- NASSAU BEACH CLUB IBIZA with Alex Kentucky Nassau Beach Club Ibiza
- La rosa de los vientos OndaCero
- Más de uno OndaCero
- El Larguero SER Podcast
- Nadie Sabe Nada SER Podcast
- SER Historia SER Podcast
- Todo Concostrina SER Podcast
- A Great Listening Experience Tom Cowell
- Англійський Експрес Англійський Експрес
- 辛坊治郎 ズーム そこまで言うか! ニッポン放送
- 飯田浩司のOK! Cozy up! Podcast ニッポン放送
- 武田鉄矢・今朝の三枚おろし 文化放送PodcastQR
Other News & Politics Podcasts
- Express Biedrzyckiej - seria gorących, politycznych wywiadów Kamila Biedrzycka
- Raport Super Express
- Poranna rozmowa w RMF FM RMF FM
- Gość Radia ZET Bogdan Rymanowski
- Global News Podcast BBC World Service
- Es la Mañana de Federico esRadio
- Stan Wyjątkowy Onet
- Układ Otwarty. Igor Janke zaprasza Igor Janke
- 2024 Radio 24
- The Unexplained With Howard Hughes Howard Hughes
- Dział Zagraniczny Maciej Okraszewski
- Radio Wnet Radio Wnet
- La Trinchera de Llamas esRadio
- E=mc² Observador
- Le news di Sky Tg 24 Sky TG 24
- Raport o stanie świata Dariusza Rosiaka Dariusz Rosiak
- Heimildin - Hlaðvörp Heimildin
- Herrera en COPE COPE
- Sin Complejos esRadio
- Krieg und Terror - Die Lage im Nahen Osten und in der Ukraine NDR Info