Nach Genre filtern
Fotbolti.net

- 2947 - 38 umferðir - Aldrei treysta Joao Pedro
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt góðum gesti sem var enginn annar en Pálmi Freyr Hauksson fyrrum þáttastjórnandi Lélega Fantasy Podcastsins. Pálmi er ansi lunkinn Fantasy spilari og hefur farið vel af stað en deilir áhyggjum Sindra af framtíð Manchester United. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 8. umferð, hvað á að gera við Joao Pedro og lögðu drög að 9. umferð.
Tue, 27 Oct 2026 - 2946 - Uppbótartíminn - Einkunnir og verðlaun fyrir tímabilið
Bestu deild kvenna er lokið og í Uppbótartímanum er farið yfir liðið tímabil. Öll lið fá einkunn út frá væntingum og niðurstöðu, lið ársins er valið, leikmaður ársins er útnefndur sem og þjálfari ársins og efnilegasti leikmaður tímabilsins. Guðmundur Aðalsteinn, Snæbjört Pálsdóttir og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir allt það helsta.
Tue, 27 Oct 2026 - 2945 - Enski boltinn - Búið spil hjá Carrick
Manchester United er mikið til umræðu í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag eftir tvö hræðileg töp í röð. Þetta er búið spil hjá Michael Carrick en hvað tekur við næst? Tottenham virðist þá vera vaknað til lífsins en þeir unnu óvæntan sigur á Brúnni. Getur Liverpool barist um Englandsmeistaratitilinn og hvort er Aston Villa eða Newcastle á betri stað? Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Ólympíufarinn Brynjar Jökull Guðmundsson fóru yfir allt það helsta í Coke stúdíóinu.
Sun, 25 Oct 2026 - 2944 - Innkastið - Bestu slúttað með sturlaðri lokaumferð
KA féll, Aron sló markametið og Lárus Orri var látinn fara frá ÍA. Innkastið eftir lokaumferð Bestu deildarinnar. Takk fyrir tímabilið! Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra í hljóðveri.
Sat, 24 Oct 2026 - 2943 - Útvarpsþátturinn - Lífsbaráttu-laugardagur fyrir höfuðstað Norðurlands
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net var hitað upp fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar í beinni útsendingu og rætt um helstu fótboltafréttir vikunnar. Heyrt var í stuðningsmönnum og þeir fengnir til að meta tímabilið. Seinna í dag verður Innkastið svo í beinni útsendingu á X977, klukkan 18, þar sem umferðin verður gerð upp.
Sat, 24 Oct 2026 - 2942 - Kiddi Jak fer yfir dómaramálin - Hvernig myndi VAR koma inn í Bestu?
Kristinn Jakobsson, fyrrverandi FIFA-dómari og einn fremsti knattspyrnudómari sem Ísland hefur átt, var gestur í hljóðveri þar sem hann ræddi stöðu dómgæslunnar hér á landi. Kristinn starfar nú sem eftirlitsdómari og veitti hann jafnframt innsýn í það starf.
Wed, 21 Oct 2026 - 2941 - 38 umferðir - Engilbert Aron special
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt fyrsta gesti vetrarins sem var enginn annar en Engilbert Aron fyrrum þáttastjórnandi Fantabragða. Engilbert Aron mætti í þáttinn á hentugum tíma þar sem hann átti frábæra umferð og fékk heil 97 stig. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 7. umferð, meistaradeildina og lögðu drög að 8. umferð. Einnig kynntu þeir félagar gjafaleik sem þeir eru með í gangi og hlustendur geta tekið þátt í á Instagram. Til mikils að vinna en vinningar að þessu sinni eru 15.000 kr gjafabréf á Matarkjallarann, 2 miðar á Improv Ísland, 2 rútur af Thule, fæðubótarefni frá Ingling og gjafabréf í partípílu á Bullseye. Fresturinn til að gera breytingar rennur út föstudaginn 23. október kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich - Nottingham Forest kl 19:00 sama dag.
Wed, 21 Oct 2026 - 2940 - Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla
Innkastið eftir næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Haukur Páll Sigurðsson. Farið er yfir liðna umferð og spáð í spilin fyrir komandi umferð. Þá er sérstakt lokahóf þar sem opinberað er val á liði ársins og bestu mönnum.
Mon, 19 Oct 2026 - 2939 - Uppbótartíminn - Meistarar þriðja árið í röð
Breiðablik er Íslandsmeistari kvenna eftir sigur á Stjörnunni í kvöld, en FH tapaði gegn Þrótti á heimavelli í gær. Blikar hafa núna orðið Íslandsmeistarar þrjú ár í röð, virkilega vel gert hjá Kópavogsfélaginu. Í Uppbótaratímanum fóru Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört yfir leikina í síðustu umferð Bestu deildar kvenna, Íslandsmeistaratitil Blika, íslenska landsliðið og rústið gegn Króatíu og svo slúður.
Mon, 19 Oct 2026 - 2938 - Enski boltinn - Best rekna félagið í deildinni?
Enski boltinn hlaðvarpið með breyttu og fersku sniði á sunnudegi. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Sölvi Haralds fóru yfir helstu sögulínur í enska boltanum. Lisandro Martinez málið, sóknarmenn Liverpool skiluðu, Manchester City vinnur alla leiki þó það sé skuggi þar yfir, Brighton er fáránlega skemmtilegt lið og Fulham vann lífsnauðsynlegan sigur. Í lok þáttarins var þá farið í skemmtilegan leik.
Sun, 18 Oct 2026 - 2937 - Útvarpsþátturinn - Spurningar í Bestu og enska hringborðið
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 17. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fyrri hluti þáttarins fer í íslenska boltann, og spurningar fyrir lið Bestu deildarinnar. Valur Páll og Haraldur Örn á völlunum. Þá er rætt um agavandamál íslenska landsliðsins. Enska hringborðið er dregið fram seinni hlutann og gamall vinur þáttarins mætir í heimsókn, Kristján Atli Ragnarsson fer yfir stóru málin í enska boltanum.
Sat, 17 Oct 2026 - 2936 - 38 umferðir - Er of seint að kaupa De Cuyper?
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir 6. umferð og lögðu á ráðin fyrir 7. umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 17. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Everton - Chelsea kl 11:30 sama dag.
Thu, 15 Oct 2026 - 2935 - Enski boltinn - City á toppnum í storminum og hiti á Carrick
Enska úrvalsdeildin er aftur farin af stað eftir þriggja vikna landsleikjahlé. Það var nóg að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu að þessu sinni. Manchester City fór á Anfield og vann þar 0-3 sigur í skugga þess að hafa verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum í landsleikjahléinu. City er á toppnum en það veit enginn hvað gerist í framhaldinu. Það er mikill hiti á Michael Carrick eftir 1-1 jafntefli Manchester United og Tottenham, Jordan Henderson blés til sýningar hjá Chelsea og Arsenal vann endurkomusigur á sprækum Leedsurum. Farið var yfir allt þetta helsta. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Arnór Gauti Ragnarsson eru í þættinum.
Tue, 13 Oct 2026 - 2934 - Innkastið - Hvaða félög taka þátt í þjálfarakaplinum?
Innkastið eftir 25. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorrason. Eyjamenn eru fallnir og annað af Akureyrarliðunum mun fylgja, KR-ingar hafa svo gott sem tryggt sér annað sætið og það vantar ekki slúðursögurnar á þessum árstíma.
Sun, 11 Oct 2026 - 2933 - Útvarpsþátturinn - Bestu agabrotin og U21 einvígi frá EM
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar þar sem agabrot innan íslenska landsliðs bar hæst. Besta deildin fer aftur af stað og rýnt er í slúðrið. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA kemur í heimsókn og ræðir um sínar pælingar varðandi umræðuna um að breyta fyrirkomulagi Bestu deildarinnar. Þá mætir Lúðvík Gunnarsson, þjálfari U21 landsliðsins, en liðið er einu einvígi gegn Grikklandi frá því að komast á EM.
Sat, 10 Oct 2026 - 2932 - Gummi Torfa fer yfir allt sviðið fyrir stórleikinn
Fram hefur átt mjög gott tímabil, karlalið félagsins verður í Evrópukeppni næsta sumar í fyrsta sinn í rúman áratug og kvennaliðið hélt sæti sínu í Bestu deildinni þvert á spár. Fyrrum atvinnu- og landsliðsmaðurinn Guðmundur Torfason, meðlimur í 19 marka klúbbnum, er formaður fótboltadeildar Fram. Gummi mætti á skrifstofu Fótbolta.net og ræddi við Sæbjörn Steinke í tilefni af stórleik Fram og KR sem fram fer annað kvöld og góðu tímabili Framara.
Fri, 09 Oct 2026 - 2931 - Íslandsmeistarar fara yfir tímabilið
Óskar Borgþórsson og Daníel Hafsteinsson mættu í hljóðver til Kára Snorrasonar og fóru yfir tímabilið hjá Íslandsmeisturum Víkings. Víkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum undir lok síðasta mánaðar og urðu þar með fyrsta liðið í tæpan áratug sem tekst að verja titilinn. Meðal umræðuefna var árangurinn í deildinni, rígurinn gegn KR og Evrópa.
Thu, 08 Oct 2026 - 2930 - 38 umferðir - Wildcard og vítamín
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir lengsta landsleikjahlé sögunnar og lögðu á ráðin fyrir næstu umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 10. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Arsenal - Leeds kl 11:30 sama dag.
Wed, 07 Oct 2026 - 2929 - Innkastið - Ósáttir en ósigraðir
Innkastið gerir upp landsleikjagluggann hjá Íslandi og skoðar hvaða leiki verða um næstu helgi í Bestu deildinni. Elvar Geir, Valur Gunnars og Valur Páll Eiríksson í hljóðveri. Íslandi mistókst að vinna Eistland en er samt á toppi riðilsins, U21 landsliðið komst í umspil með frábærum lokakafla í riðli sínum og Besta deildin hefst loks að nýju eftir endalausan landsleikjaglugga.
Tue, 06 Oct 2026 - 2928 - Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?
Valur og Víkingur féllu úr Bestu deild kvenna síðasta föstudag eftir rosalega lokaumferð í neðri hluta deildarinnar. Báðum liðum var spáð talsvert betra gengi en sumarið var virkilega erfitt. Í efri hlutanum var líklega leikur ársins spilaður í dag þegar Þróttur heimsótti Breiðablik. Það er vonin að við fáum úrslitaleik í lokaumferðinni. Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson fóru yfir þetta allt saman.
Sun, 04 Oct 2026 - 2927 - Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur
Úvarpsþátturinn Fótbolti.net 3. október. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir það helsta í fótboltanum. Þátturinn er sendur út á leikdegi hjá landsliðinu. Frammistaða Íslands í Þjóðadeildinni er skoðuð og hitað upp fyrir leik gegn Búlgaríu. Þá er farið yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum; mögulegar breytingar á Bestu deildinni, U21 landsliðið, mál Manchester City og fýluna í Ronaldo. Á línunni: Börkur Edvardsson og Benedikt Bóas Hinriksson.
Sat, 03 Oct 2026 - 2926 - Hvað verður um Man City?
Fjármálaráðgjafinn Björn Berg Gunnarsson kom í hljóðver og ræddi við Kára Snorrason um stóra Manchester City-málið. Farið var yfir brotin, mögulegar refsingar, áfrýjunina og hvað gæti tekið við.
Thu, 01 Oct 2026 - 2925 - Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin
Það er komið að Uppbótartímanum eftir 20. umferð Bestu deild kvenna. Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll komu sér fyrir í Coke stúdíóinu ásamt Herði Bjarnari Hallmarssyni, þjálfara Hauka, og fóru yfir umferðina. Valur og Víkingur gerðu jafntefli og eru fyrir lokaumferðina í fallsætum. Þór/KA getur líka mögulega fallið. Á hinum enda töflunnar missteig FH sig og Breiðablik er með pálmann í höndunum. Þá skoraði hin 16 ára gamla Bríet Fjóla Bjarnadóttir þrennu í sigri Þróttar gegn Stjörnunni. Í lok þáttarins var aðeins snert á landsliðinu og Lengjudeildinni.
Mon, 28 Sep 2026 - 2924 - Útvarpsþátturinn - Maggi.net og martröð Man City
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 26. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, er sérstakur gestur þáttarins en liðið vann Lengjudeildina og komst í bikarúrslit á tímabilinu. Í seinni hluta þáttarins ræðir fjármálasérfræðingurinn Sævar Þór Sveinsson, ritstjóri Utan vallar, um brot Manchester City og Kári Snorrason, fréttamaður Fótbolta.net, skoðar fréttir frá vikunni og Þjóðadeildina þar sem Ísland hefur leik gegn Eistlandi.
Sat, 26 Sep 2026 - 2923 - Harkið - Uppgjörsþáttur úr 2 deild
Harkið tók góða yfirferð á 2 deild karla og fór yfir stærstu atvik sumarsins auk þess að velja lið tímabilsins, besta leikmann, efnilegasta leikmann og þjálfara ársins Gestir þáttarins voru Frosti Brynjólfsson leikmaður Selfoss og Ólafur Darri Sigurjónsson leikmaður Hauka Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. Harkið er í góðu samstarfi með Serrano, Macron. og Ab sportvörum.
Thu, 24 Sep 2026 - 2922 - 38 umferðir - Er Thierno Barry næsti Thierry Henry?
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín og gáfu hlustendum góð ráð til að nýta í landsleikjahléinu. Fresturinn til að gera breytingar fyrir næstu umferð er laugardaginn 10. október kl. 12:30 en þeir félagar munu taka upp annan þátt þegar nær dregur og leggja spilin á borðið fyrir þá umferðina.
Wed, 23 Sep 2026 - 2921 - Enski boltinn - Leeds gegn Víkingi á næsta tímabili?
Það er góður andi yfir Leeds þessa dagana en liðið hefur farið vel af stað í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Agnar Þór Hilmarsson og Árni Þór Birgisson, stuðningsmenn Leeds, mættu í Coke stúdíóið í dag og fóru yfir stöðuna hjá sínum mönnum. Leeds er enn taplaust fyrir landsleikjahléið langa og ekki er hægt að útiloka að liðið blandi sér í baráttuna um Evrópukeppni á þessu tímabili. Einnig var farið yfir úrslitin síðustu helgi og stöðuna í ensku úrvalsdeildinni núna þriggja vikna pása er framundan.
Tue, 22 Sep 2026 - 2920 - Uppbótartíminn - Geggjuð vegferð, biluð barátta og stórar landsliðsfréttir
Það er nóg að ræða í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um íslenskan kvennabolta, að þessu sinni. Þróttur varð bikarmeistari á dögunum, fyrsti stóri tillinn í sögu félagsins. Þróttur hefur verið á mikilli vegferð síðustu árin og þetta var toppurinn á henni, allavega hingað til. Nokkrar áhugaverðar fréttir voru til umræðu í þættinum og svo var rætt um bilaða Bestu deild þar sem gríðarlega spenna er á botni og toppi deildarinnar. Þá var snert á landsliðinu í lokin þar sem stórar fréttir hafa borist að undanförnu. Guðmundur Aðalsteinn og Snæbjört Pálsdóttir stýra þættinum.
Tue, 22 Sep 2026 - 2919 - Harkið - Uppgjörsþáttur úr 3 deild
Harkið tók góða yfirferð á 3 deild karla og fór yfir stærstu atvik sumarsins auk þess að velja lið tímabilsins, besta leikmann, efnilegasta leikmann og þjálfara ársins Gestir þáttarins voru Hafþór Bjarki Guðmundsson leikmaður KH og Nadir Simon Moukhliss leikmaður Víðis. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. Harkið er í góðu samstarfi með Serrano, Macron. og Ab sportvörum.
Tue, 22 Sep 2026 - 2918 - Innkastið - Siggi Lár og rígurinn rosalegi
Sérstök útgáfa af Innkastinu þar sem Sigurður Egill Lárusson, leikmaður Þróttar og leikmaður ársins í Lengjudeildinni, er sérstakur gestur. Rætt er um sigur Þróttar í 100 milljóna leiknum, lið ársins í Lengjudeildinni, ríginn rosalega milli KR og Víkings, sunnudagsleikina í Bestu og fleira. Umsjón: Elvar Geir og Valur Gunnars.
Tue, 22 Sep 2026 - 2917 - Innkastið - Skortur á reisn
Innkastið eftir lúxus laugardag. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn.Víkingur varð meistari á Meistaravöllum. Það voru læti.Bestu liðin komust upp í Bestu deildina. Til hamingju Þróttur.KA rúllaði yfir Þór í seinni hálfleik.
Sat, 19 Sep 2026 - 2916 - Útvarpsþátturinn - 100 milljónir í rúllettu
Þátturinn er frumfluttur á föstudegi. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir rosalega fótboltahelgi. Víkingur getur orðið meistari á Meistaravöllum, það verður barist upp á líf og dauða í Akureyrarslag og þá tilkynnti Arnar Gunnlaugsson landsliðshóp og lagði starfið að veði á fréttamannafundi fyrir Þjóðadeildina. Þróttur og Fylkir mætast í 100 milljóna króna leiknum. Sigurvin Ólafsson þjálfari Þróttar og Kári Sigfússon leikmaður Fylkis eru í viðtölum. Á Michael Carrick framtíð sem stjóri Manchester United?
Fri, 18 Sep 2026 - 2915 - 38 umferðir - Pascal engan undra hversu góður Gross er í fantasy
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fjórðu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í deildinni er lið Jóhanns Arnar Kjartanssonar sem situr á 365 stigum eftir 4 umferðir. Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 5 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Brentford - Chelsea kl 19:00 síðar sama dag.
Wed, 16 Sep 2026 - 2914 - Innkastið - Læti undir ljósum Lautarinnar
Elvar Geir, Valur Gunnars og Maggi Hödd í Innkastinu að þessu sinni. Byrjað er að skoða umspil Lengjudeildarinnar og undanúrslitaleikirnir gerðir upp. Það ræðst á laugardaginn hvort Þróttur eða Fylkir spili í Bestu deildinni á næsta tímabili. Svo er það fyrsta umferð Bestu deildarinnar eftir tvískiptingu. Það stefnir í rosalega helgi þar sem Víkingur getur orðið Íslandsmeistari og KA leikur gegn Þór þar sem er að duga, eða drepast.
Tue, 15 Sep 2026 - 2913 - Harkið - Gæsaveiðar á Dalvík
Harkið fór yfir stærstu atvikin í loka umferð 2. og 3. deildar karla auk þess var rætt Gatorade bikarinn - Uppgjör 3 deildar - 11 mín - Uppgjör 2 deildar - 45 mín - Gatorade bikarinn - 01.21 mín Harkið er í boði Serrano, Ab sportvörum og Macron Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Tue, 15 Sep 2026 - 2912 - Enski boltinn - Hörmulegir dómarar í bestu deild heims
Það vantaði ekki dramatíkina í Manchester slaginn á Old Trafford í gær en dómararnir voru í aðalhlutverki. Erling Haaland skoraði sigurmarkið, en það mark átti aldrei að standa. Byrjunin hefur verið erfið fyrir United á þessu tímabili en Arsenal og Manchester City eru með fullt hús stiga. Hvenær kemur fyrsta mark Tottenham á tímabilinu? Hull heldur þá áfram að gera flotta hluti og Leedsarar fara frábærlega af stað. Guðmundur Aðalsteinn fór yfir allt það helsta með Haraldi Erni og Sölva Haraldssyni. Þátturinn er í boði Nova.
Mon, 14 Sep 2026 - 2911 - Útvarpsþátturinn - Blikar tóku bikar og æsispennandi umspil
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 12. september. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars eru í hljóðveri í þættinum og rætt er við Hilmar Jökul, stuðningsmann Breiðabliks. Bikarúrslitaleikurinn er gerður upp en Breiðablik varð meistari. Rýnt er í umspil Lengjudeildarinnar þar sem allt er á suðupunkti og hitað upp fyrir komandi leiki í Bestu deildinni.
Sat, 12 Sep 2026 - 2910 - 38 umferðir - Kominn tími á að Hull fái á sig mörk
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á sunnudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í deildinni er lið Jóhanns Arnar Kjartanssonar sem situr á 280 stigum eftir 3 umferðir. Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 4 er á laugardaginn kemur kl. 12:30 en umferðin hefst á 5 leikjum kl 14:00 sama dag.
Wed, 09 Sep 2026 - 2909 - Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Starfið undir á Laugardalsvelli?
Sigurjón Jónsson og Arnór Gauti Ragnarsson voru gestir í setti í sérstökum upphitunarþætti fyrir viðureign Aftureldingar og Breiðabliks í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Leikurinn fer fram á föstudaginn og er Sigurjón stuðningsmaður Breiðabliks en Arnór er Mosfellingur sem lék sömuleiðis með Breiðabliki. Farið var yfir leiki liðanna í undanúrslitum, gengi þeirra í sumar og spáð í úrslitaleikinn sjálfan.
Tue, 08 Sep 2026 - 2908 - Harkið - Nágrannar en ekki vinir
Harkið fór yfir stærstu atvikin í 21. umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild:14:42 Uppgjör 2.deild:40:53 Spá:01:17:14 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Tue, 08 Sep 2026 - 2907 - Uppbótartíminn - Fáránleg spenna þegar deildin skiptist
Síðasta umferðin í Bestu deild kvenna fyrir skiptingu fór fram í kvöld. Núna er gríðarleg spenna framundan á bæði toppi og botni deildarinnar. Hvaða lið verður Íslandsmeistari og hvaða lið falla? Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Arnar Páll fóru yfir 18. umferðina og sitthvað fleira í Uppbótartímanum. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
Mon, 07 Sep 2026 - 2906 - Enski boltinn - Hver stoppar eiginlega Arsenal?
Arsenal fór með sigur af hólmi í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni, 2-1 gegn Chelsea. Manchester United fékk rýting í bakið á lokasekúndunni gegn Everton og Alexander Isak skoraði tvö mörk fyrir Liverpool í sigri gegn nýliðum Ipswich. Tottenham náði í sitt fyrsta stig og Manchester City vann tæpan sigur á nýliðum Coventry. Guðmundur Aðalsteinn fór yfir þessa leiki og helstu sögulínur ásamt Jóni Kaldal og Halldóri Marteinssyni í Coke stúdíóinu hjá Fótbolta.net. Þátturinn er í boði Nova.
Mon, 07 Sep 2026 - 2905 - Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla
Innkastið eftir 22. umferð, síðustu umferðina fyrir tvískiptingu. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra. Stjarnan og Valur þurfa að sætta sig við að spila í neðri hlutanum en Keflvíkingar komust í efri hlutann þrátt fyrir tap á Ljósanótt. Farið er yfir alla leikina og einnig rætt um lokaumferð Lengjudeildarinnar sem var á laugardag.
Sun, 06 Sep 2026 - 2904 - Útvarpsþátturinn - Haukar fljúga upp og lokaumferðir framundan
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Guðjón Pétur Lýðsson þjálfari Hauka er gestur þáttarins en Hafnarfjarðarliðið er komið upp í Lengjudeildina. Lokaumferðir eru framundan um helgina, síðasta umferð fyrir tvískiptingu Bestu deildarinnar og svo ræðst hvaða lið fellur með Ægi úr Lengjudeildinni. Í lok þáttar er sumarglugginn í ensku úrvalsdeildinni skoðaður með Kára Snorrasyni, fréttamanni Fótbolta.net.
Fri, 04 Sep 2026 - 2903 - Uppbótartíminn - Glötuð tækifæri og stórt kærumál
Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir 17. umferð Bestu deildar kvenna. Toppliðin tvö hikstuðu bæði, aftur. FH hefur núna fengið tvö tækifæri til að komast á toppinn en ekki nýtt sér þau. Á hinum enda töflunnar er spennan gríðarleg. Þá var rætt um stórt kærumál sem getur haft mikil áhrif á framhaldið í Bestu deildinni. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
Wed, 02 Sep 2026 - 2902 - 38 umferðir - Er hægt að selja Bruno eftir þessa frammistöðu?
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í deildinni er lið Jóhanns Arnar Kjartanssonar sem situr á 216 stigum eftir 2 umferðir. Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 3 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich og Liverpool kl 19:00 á föstudagskvöld.
Wed, 02 Sep 2026 - 2901 - Enski boltinn - Hull í draumalandi og glugganum lokað
Það eru fjögur lið með fullt hús stiga eftir tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni. Það eru Arsenal, Chelsea, Manchester City og.. Hull City. Það er óhætt að segja að Hull sé í draumalandi eftir fyrstu tvo leikina en fyrir tímabil var þeim spáð 20. sæti í flestöllum spám. Guðmundur Aðalsteinn fékk því Friðleif Friðleifsson, mikinn Hull stuðningsmann, í heimsókn í Coke stúdíóið í kvöld. Haraldur Örn Haraldsson fór einnig yfir sterka byrjun Xabi Alonso hjá Chelsea. Félagaskiptaglugginn lokaði þá í kvöld og var farið yfir allt það helsta sem gerðist í lok þáttarins. Þátturinn er í boði Nova.
Wed, 02 Sep 2026 - 2900 - Innkastið - Ljúgum til um titilbaráttu
Innkastið eftir 21. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Runólfur Trausti. Þátturinn var tekinn upp strax eftir stórleik KR og Víkings. Fjallað er um leikinn sjálfan og allt í kringum hann. Auðvitað er síðan farið yfir allar helstu sögulínur í kringum hina leiki umferðarinnar.
Tue, 01 Sep 2026 - 2899 - Harkið - Hiti í 3. deildinni
Harkið fór yfir stærstu atvikin í tuttugustu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 07:14 Uppgjör 2.deild:44:48 Spá: 01:29:00 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Tue, 01 Sep 2026 - 2898 - Kaffispjallið: Blæti fyrir takkaskóm og nýtt tækifæri í KR
Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, er nýjasti viðmælandi Kaffispjallsins. Líkt og vanalega var farið yfir víðan völl en Nördahornið og Hraðaspurningarnar eru að sjálfsögðu á sínum stað.
Tue, 01 Sep 2026 - 2897 - Útvarpsþátturinn - Helgin er svo lengi að líða
Elvar Geir og Benedikt Bóas eru í hljóðveri í þætti dagsins og með þeim er Valur Páll íþróttafréttamaður á Sýn. Hitað verður sérstaklega upp fyrir komandi stórleik í Bestu deildinni, viðureign KR og Víkings á þriðjudag. Aðrir leikir í Bestu deildinni, Lengjudeildin, Infantino og enski boltinn koma svo auðvitað líka við sögu.
Sat, 29 Aug 2026 - 2896 - 38 umferðir - Chelsea kom, Joao og sigraði
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í fyrstu umferð náði sér í 102 stig hvorki meira né minna. Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 2 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Crystal Palace og Manchester City kl 19:00 á föstudagskvöld.
Wed, 26 Aug 2026 - 2895 - Enski boltinn - Martraðarbyrjun Man Utd og hver stoppar Arsenal?
Enska úrvalsdeildin hófst um helgina með látum en fyrstu umferðinni lauk í gærkvöldi. Manchester United og Tottenham fengu martraðarbyrjun, Arsenal lita illviðráðanlega út og það var baulað á Alexander Isak í endurkomunni á St James' Park. Er Chelsea kannski liðið sem mun veita Arsenal mesta samkeppni? Guðmundur Aðalsteinn fékk Eið Orra Ragnarsson og Þorlák Breka Baxter, leikmenn Keflavíkur, í spjall í Coke stúdíóinu um fyrstu umferðina og var farið yfir allt það helsta.
Tue, 25 Aug 2026 - 2894 - Uppbótartíminn - Þú varst ekkert að spá þessu
Síðustu leikir í dag Bestu deild kvenna hafa heldur betur verið óútreiknanlegir margir. Tvö efstu liðin töpuðu og tvö neðstu liðin unnu bæði. Hvað er eiginlega að gerast í þessari deild? Núna eru bara tvær umferðir eftir fram að skiptingu og verður mjög áhugavert að sjá hvernig deildin þróast. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Arnari Páli og Snæbjörtu og fór yfir síðustu leiki ásamt því að ræða aðeins um spennuna sem er í gangi í Lengjudeildinni.
Tue, 25 Aug 2026 - 2893 - Harkið - Haukar verða alltaf bestir
Harkið fór yfir stærstu atvikin í nítjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild:10:00 Uppgjör 2.deild:41:36 Spá:01:18 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Tue, 25 Aug 2026 - 2892 - Innkastið - Góð skyndiákvörðun og eitrað andrúmsloft
Innkastið eftir 20. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór. Kaflaskipt fjör í Kópavogi, markaflóð í heimsókn til Akureyrar, Vatnhamar kvaddur, Jón Þór lét allt flakka í viðtali, Lengjudeildarhorn og ýmislegt fleira.
Mon, 24 Aug 2026 - 2891 - Útvarpsþátturinn - Stórtíðindi í þjálfaramálum og kraftur í Keflavík
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 22. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Rætt er um stóru fréttirnar í Bestu deildinni. Eiður Smári er tekinn við KA og Stjarnan rak aftur þjálfarann sinn. Jónas Guðni Sævarsson yfirmaður fótboltamála hjá Keflavík er á línunni. Næsta umferð í Bestu er skoðuð og Manchester United tapaði gegn Hull í ensku úrvalsdeildinni.
Sat, 22 Aug 2026 - 2890 - Enski boltinn - Arsenal er langlíklegasta liðið
Arsenal varð Englandsmeistari á síðasta tímabili eftir 22 ára bið. Núna, fyrir komandi keppnistímabil, er Arsenal langlíklegasta liðið til að vinna ensku úrvalsdeildina. El Jóhann og Engilbert Aron, stuðningsmenn Arsenal, mættu í spjall í Coke stúdíóið á dögunum og fóru yfir allt það helsta hjá Englandsmeisturunum. Fyrsti leikur í ensku úrvalsdeildinni er í kvöld þegar Arsenal tekur á móti Coventry.
Fri, 21 Aug 2026 - 2889 - Kaffispjallið: Ólafsvík, slitið krossband og lyftingar á leikdegi
Aldís Guðlaugsdóttir, markvörður FH í Bestu deildinni, er án efa ein sú færasta í sínu fagi hér á landi. Hún er nýjasti gestur Kaffispjallsins og fer meðal annars yfir það þegar hún kláraði leik eftir að slíta krossband í hné nokkuð snemma í síðari hálfleik.
Fri, 21 Aug 2026 - 2888 - Harkið - Sjóðheitir Sindra menn
Harkið fór yfir stærstu atvikin í átjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 07:52 Uppgjör 2.deild:40:30 Spá:01:19:15 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Fri, 21 Aug 2026 - 2887 - Enski boltinn - Ætla að horfa saman á næsta úrslitaleik Tottenham
Það eru áhugaverðir tímar hjá Tottenham þessa stundina. Eftir tvö mjög erfið tímabil, þá er búið að leggja mikið í leikmannahópinn fyrir komandi tímabil. Roberto De Zerbi er á leið inn í sitt fyrsta heila tímabil sem stjóri liðsins og hann ætlar sér stóra hluti. Spurs var hársbreidd frá falli á síðustu leiktíð, en hvað gera þeir núna? Bogi Ágústsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, mættu í Coke stúdíóið og fóru yfir allt það helsta hjá Spurs.
Thu, 20 Aug 2026 - 2886 - Enski boltinn - Miklar breytingar hjá Newcastle
Upphitunin heldur áfram fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst á föstudaginn. Núna fáum við að vita meira um stöðuna hjá Newcastle en þar hefur mikið gengið á í sumar. Jón Júlíus Karlsson og Ellert Ingi Hafsteinsson, stuðningsmenn Newcastle, komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og spjölluðu um sitt félag. Þess má geta að Newcastle klúbburinn á Íslandi er með aðalfund sinn 23. ágúst næstkomandi. Hægt er að skrá sig í klúbbinn hérna.
Wed, 19 Aug 2026 - 2885 - Uppbótartíminn - Breiðablik rústaði toppslagnum
Það var aldrei spurning í toppslagnum í Bestu deild kvenna þar sem Breiðablik fór í Kaplakrika og vann þar þægilegan sigur. FH var sigurstranglegra liðið fyrir leikinn en Blikarnir gerðu ótrúlega vel og eru núna með þriggja stiga forystu á toppnum. Rætt var ítarlega um þennan stórleik í Uppbótartímanum í dag. Guðmundur Aðalsteinn settist niður í Coke stúdíóinu með Arnari Páli Garðarssyni og Snæbjörtu Pálsdóttur. Þau fóru yfir þennan stórleik ásamt síðustu leikjum og helstu sögulínum. Þátturinn er í boði Coke og Atlantsolíu.
Tue, 18 Aug 2026 - 2884 - Enski boltinn - Það á að vera gaman að horfa á Liverpool
Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst næstkomandi föstudag. Liverpool tók þá ákvörðun eftir síðasta tímabil að reka Arne Slot og ráða Andoni Iraola og núna hefst áhugaverður kafli hjá félaginu. Það á að vera skemmtilegt að horfa á Liverpool en það var ekki raunin að mestu leyti undir stjórn Slot. Stuðningsmenn vonast til að það verði breyting á því undir stjórn Iraola. Kristján Atli Ragnarsson og Baldvin Már Borgarsson, stuðningsmenn Liverpool, mættu í Coke stúdíóið í spjall til að fara yfir stöðuna hjá félaginu sínu núna þegar stutt er í tímabil.
Tue, 18 Aug 2026 - 2883 - Harkið - VÖK sýningin
Harkið fór yfir stærstu atvikin í sautjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3. deild: 07:30 Uppgjör 2. deild: 42:58 Spá: 01:27:52 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Tue, 18 Aug 2026 - 2882 - 38 umferðir - Síðasti upphitunarþátturinn áður en fantasy fer af stað á föstudag
Þriðji þátturinn af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á samfélagsskildinum, helstu leikmönnum sem þeir eru að íhuga fyrir umferð 1 og fóru yfir liðin sín eins og þau líta út í dag, þó vissulega muni margt breytast þar þangað til fresturinn til að gera breytingar rennur út kl 17:30 á föstudag. Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x Fótbolta.net: 10k1ov
Tue, 18 Aug 2026 - 2881 - Innkastið - Rokk og ról í Vesturbæ
Innkastið eftir 19. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Maggi Hödd, Magnús Haukur Harðarson. Sex marka jafntefli á fullum Meistaravöllum, Víkingar stöðvuðu göngu FH, Fram vann Stjörnuna, KA og Valur gerðu átta marka jafntefli, ÍA vann í Eyjum og Þór tapaði fyrir vængbrotnu Keflavíkurliði.
Mon, 17 Aug 2026 - 2880 - Útvarpsþátturinn - Gluggadómar, fyrirliðinn í Krikanum og enski að byrja
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Skoðað er hvaða félög gerðu bestu hlutina í sumarglugganum, hitað upp fyrir næstu umferð í Bestu deildinni, rætt um Evrópuleiki Víkings og Vals og Lengjudeildin skoðuð. Í seinni hluta þáttarins er Ísak Óli Ólafsson fyrirliði FH á línunni og Daníel Geir Moritz ræðir um enska boltann sem er að rúlla af stað.
Sat, 15 Aug 2026 - 2879 - Enski boltinn - Næsta skref hjá Aston Villa eftir Evróputitilinn
Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Þeir Jón Haukur Baldvinsson og Bjarni Gaukur Sigurðsson komu í Coke stúdíóið til að ræða um sitt uppáhalds félag, Aston Villa. Aston Villa vann Evrópudeildina á síðustu leiktíð og fer núna aftur inn í Meistaradeildina. Unai Emery er heldur betur búinn að gera magnaða hluti fyrir félagið.
Fri, 14 Aug 2026 - 2878 - Enski boltinn - Chelsea fór úr mesta lúðanum í mesta töffarann
Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Í dag er komið að því að heyra frá stuðningsmönnum Chelsea, þeim Stefáni Marteini og Haraldi Erni. Þeir mættu í Coke stúdíóið og fóru yfir stöðu mála. Xabi Alonso er tekinn við stjórnartaumunum og það er talsverð breyting frá Liam Rosenior. Chelsea er að koma úr hræðilegu tímabili og núna þurfa menn á Stamford Bridge að gera betur.
Wed, 12 Aug 2026 - 2877 - 38 umferðir - Yfirferð yfir öll 20 liðin í deildinni og skoðum liðsuppstillingar með og án Haaland
Annar þátturinn af 38 umferðum er kominn út en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á öllum 20 liðunum í deildinni og fóru yfir tvær mismunandi uppstillingar hvor sem þeir sjá fyrir sér að stilla upp í fyrstu umferð, eitt lið með Haaland og eitt lið án Haaland. Einnig tilkynntu félagarnir um gjafaleik sem er að fara af stað á Instagram og Tiktok miðlum 38 umferða. Glæsilegir vinningar frá Happatreyjum, Thule, Bullseye og Matarkjallaranum.
Wed, 12 Aug 2026 - 2876 - Harkið - Slagsmál í Mosó
Harkið fór yfir stærstu atvikin í sextándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. uppgjör 3.deild: 11:17 uppgjör 2.deild: 44:06 Spá:01:28:28 Gatorade bikarinn: 01:33:52 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Wed, 12 Aug 2026 - 2875 - Innkastið - KR getur orðið Íslandsmeistari
Innkastið eftir 18. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestasérfræðingur er Gunnar Jarl Jónsson. KR vann stórskemmtilegan stórleik gegn Fram, Víkingar slökuðu á og töpuðu niður forystu, Akureyrarliðin sitja í fallsætum, Stjörnumenn unnu tíu Keflvíkinga og Valur vann Breiðablik.
Mon, 10 Aug 2026 - 2874 - Uppbótartíminn - Gleði í neðri hlutanum
Magnús Haukur og Arnar Páll settust niður í hljóðver og fóru yfir 15. umferð Bestu deildar kvenna, spáðu í spilin fyrir komandi umferð og ræddu Evrópuævintýri Blika. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
Mon, 10 Aug 2026 - 2873 - Enski boltinn - Getur Man Utd barist um titilinn í ár?
Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Í dag er komið að heyra hvað stuðningsmenn Manchester United hafa að segja. Grétar Óskarsson og Orri Freyr Rúnarsson mættu í Coke stúdíóið. Michael Carrick er að fara inn í sitt fyrsta heila tímabil sem stjóri liðsins og það eru spennandi leikmenn mættir inn um dyrnar, og líklega fleiri á leiðinni. Getur United barist um titilinn í ár?
Mon, 10 Aug 2026 - 2872 - Útvarpsþátturinn - Stefán Páls og Siggi Raggi
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net í beinni á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltavikuna og það sem er framundan. Sérstakur gestur er Stefán Pálsson. Hitað er upp fyrir komandi leiki í Bestu deildinni, þá sérstaklega stórleik Fram og KR sem verður á mánudag. Einnig er rætt um Luton og St. Pauli. Í seinni hluta þáttarins er Sigurður Ragnar Eyjólfsson á línunni frá Færeyjum en hann hefur verið að gera frábæra hluti með NSÍ Runavík.
Sat, 08 Aug 2026 - 2871 - Enski boltinn - Lífið eftir Guardiola
Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Við byrjum á Manchester City sem endaði í öðru sæti á síðasta tímabili en City hefur gengið í gegnum miklar breytingar í vetur. Pep Guardiola umbreytti félaginu öllu en hann er núna horfinn á braut. Magnús Ingvason og Jón Unnar Viktorsson, stuðningsmenn Man City, mættu í Coke stúdíóið og fóru yfir stöðu mála.
Fri, 07 Aug 2026 - 2870 - 38 umferðir: Nýtt hlaðvarp Fótbolta.net um draumaliðsleik enska boltans
38 umferðir er nýtt hlaðvarp fotbolta.net um Fantasy Premier League, draumaliðsleik enska boltans. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Fyrsti þáttur tímabilsins fór í loftið í dag. Fantasy Premier League nýtur gríðarlegra vinsælda á Íslandi þar sem yfir 25 þúsund Íslendingar spila leikinn. Albert og Sindri munu vera með þátt eftir allar 38 umferðir tímabilsins, greina frá því sem gerðist í þeirri síðustu og leggja línurnar fyrir þá næstu.
Thu, 06 Aug 2026 - 2869 - Innkastið - Norður-kóreskir tilburðir á Akureyri
Innkastið eftir 17. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn fara yfir leikina og alla helstu fréttamolana þar í kring. Deildin er að spilast á mjög áhugaverðan hátt. Eru KA og ÍBV á leiðinni niður? Það er nóg að gerast á skrifstofu Íslandsmeistara Víkings.
Wed, 05 Aug 2026 - 2868 - Útvarpsþátturinn - Slagsmál og Schram með skikkju
Verslunarmannahelgin 2026. Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er áfram í sumarútgáfu, frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta. Besta deildin, Evrópuleikirnir, Lengjudeildin og í lokin er farið yfir í erlenda fótboltann. Það var slegist í Keflavík, Valur komst áfram í Evrópu og Þróttur vann toppslag Lengjudeildarinnar.
Fri, 31 Jul 2026 - 2867 - Harkið - Great escape?
Harkið fór yfir stærstu atvikin í fimmtándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. uppgjör 3.deild: 9:20 uppgjör 2.deild: 33:30 spá: 01:02 Gatorade bikarinn: 01:08 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson
Thu, 30 Jul 2026 - 2866 - Uppbótartíminn - Stór félög í bullandi vandræðum
Þrettán umferðir eru búnar í Bestu deild kvenna og það er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört komu sér fyrir í hljóðveri og fóru yfir umferðina. Það eru stór félög í vandræðum í deildinni, það er svakalegur pakki að myndast í neðri hlutanum og á toppnum eru tvö lið jöfn. Hvað gerist áður en glugginn lokar. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
Wed, 29 Jul 2026 - 2865 - Innkastið - Stefnir í trylltan dans í neðri hlutanum
Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Páll eftir 16. umferð Bestu deildarinnar. Er komin einhver hræðsla í liðin? Akureyrarslagurinn olli vonbrigðum, Stjörnumenn hörmulegir gegn Skagamönnum og Aron Einar átti stutt innlit.
Mon, 27 Jul 2026 - 2864 - Harkið - Þrennu VÖK
Harkið fór yfir stærstu atvikin í fjórtándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 06:00 Uppgjör 2.deild: 36:55 Spá: 01:10 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Mon, 27 Jul 2026 - 2863 - Útvarpsþátturinn - Bikartöfrar, Evrópustig og Akureyrarslagur
Þátturinn er aftur frumfluttur í hlaðvarpi í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir allt það helsta. Hver er bestur í Bestu?, bikargleði Mosfellinga, öflug Evrópuvika, spennandi Akureyrarslagur framundan og er 64 liða HM kannski málið eftir allt saman?
Fri, 24 Jul 2026 - 2862 - Harkið - Draugavíti í MosfellsbæWed, 22 Jul 2026
- 2861 - Uppbótartíminn - FH óstöðvandi og til skammar fyrir Val
Uppbótartíminn snýr aftur eftir stutt sumarfrí. Rætt er um umferðina sem var að klárast í Bestu deildinni en ótrúleg úrslit áttu sér stað á Hlíðarenda og í Kaplakrika í kvöld. Valur og Víkingur eru í fallsæti og það er væntanlega mikið fundað hjá þessum félögum þessa dagana. Á hinum enda töflunnar eru FH og Breiðablik í góðum gír, og þá sérstaklega FH-ingar sem eru óstöðvandi fyrir framan markið um þessar mundir. Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum en með honum eru Arnar Páll Garðarsson og Magnús Haukur Harðarson.
Tue, 21 Jul 2026 - 2860 - Kaffispjallið: Uppköst, húðflúr á hálsi og Casillas eða Neuer?
Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflavíkur, mætti í annan þátt Kaffispjallsins. Farið var yfir hvað leiddi hann aftur í búrið á öðru ári í 2. flokki, skiptin frá Njarðvík til Keflavíkur og hvað virkilega gerðist þegar hann gisti hjá Stefáni Jóni Friðrikssyni.
Tue, 21 Jul 2026 - 2859 - Innkastið - Breytingar í vændum á Akranesi?
Innkastið eftir 15. umferð Bestu deildarinnar. Valur Gunnars stýrir ferðinni þessa vikuna og með honum eru Sæbjörn Steinke og Jói Skúli. Þórsarar voru fyrstir til að vinna Víkinga í deildinni, Evrópukeppnin er að trufla liðin, KA hélt ekki út manni fleiri og Skaginn í frjálsu falli.
Mon, 20 Jul 2026 - 2858 - HM hringborðið - Leiðinlegasti úrslitaleikur sögunnar?
Síðasta HM hringborð mótsins. Spánverjar heimsmeistarar og Englendingar hirtu bronsið. Magnús Haukur Harðarson og Kári Snorrason fóru yfir úrslitaleikinn, bronsleikinn og veittu viðurkenningar.
Mon, 20 Jul 2026 - 2857 - Útvarpsþátturinn - Glugginn galopinn og allir angar úti
Þátturinn er frumfluttur í hlaðvarpi í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir allt það helsta. Félagaskiptaglugginn er opinn, íslensk lið að spila um alla Evrópu, heil umferð framundan í Bestu og úrslitaleikur HM er framundan.
Fri, 17 Jul 2026 - 2856 - HM hringborðið - Sá taktíski féll á prófinu
HM hringborðið á fimmtudegi. Ásgeir Frank Ásgeirsson var gestur í setti og fór yfir undanúrslitin ásamt Kára Snorrasyni. Thomas Tuchel fékk falleinkunn og Spánverjar sigldu þægilega í gegnum stjörnum prýtt lið Frakka. Sömuleiðis var hitað upp fyrir úrslitaleik Argentínu og Spánar sem og bronsleik Frakka og Englendinga.
Thu, 16 Jul 2026 - 2855 - Harkið - Grenivíkur GrétarWed, 15 Jul 2026
- 2854 - Innkastið - Vandræðaleg vegferð Vals
Innkastið eftir 14. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars. Dómaramistök léku Keflavík grátt, KA vann gríðarlega mikilvægan sigur en illa gengur hjá ÍA, staða Vals versnar eftir tap gegn FH, vonlaus frammistaða Þórs og KR lék sér að ÍBV. Fréttir, slúður og fabúleringar. Lengjudeildin og Evrópuleikir koma líka við sögu.
Mon, 13 Jul 2026 - 2853 - HM hringborðið: Þarf að minnka skjátímann hjá Alf Inge
Halldór Snær Georgsson og Runólfur Trausti Þórhallsson voru gestir í HM hringborðinu að þessu sinni. Farið var yfir 8-liða úrslitin og rýnt í spilin fyrir æsispennandi undanúrslit.
Mon, 13 Jul 2026 - 2852 - Árni Vill ræðir heimkomuna - „Þessi geðveiki virðist elta mig“
Árni Vilhjálmsson er genginn í raðir Stjörnunnar á frjálsri sölu frá Al-Taraji í Sádi-Arabíu. Kári Snorrason ræddi við Árna um skrefið heim ásamt því að fara yfir ferilinn úti í atvinnumennsku. Hann ræðir einnig upplifun sína af því að búa og spila í Sádi-Arabíu og Úkraínu á miklum óvissutímum.
Mon, 13 Jul 2026 - 2851 - Útvarpsþátturinn - Áhugaverð umferð og leikar æsast á HM
Þátturinn er í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór og Kári Snorra eru í hljóðveri. Farið er yfir Evrópuleiki Stjörnunnar og Vestra, fréttir vikunnar í íslenska boltanum og hitað upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni. Þá er fjallað um HM þar sem 8-liða úrslitin eru farin af stað.
Fri, 10 Jul 2026 - 2850 - Cecilía Rán fer yfir allt milli himins og jarðar í nýju hlaðvarpi
Runólfur Trausti Þórhallsson settist niður með Cecilíu Rán, markverði Inter og íslenska landsliðsins. Farið var yfir víðan völl en þrátt fyrir ungan aldur hefur Cecilía Rán upplifað margt á sínum ferli. Kaffispjallið er nýr hlaðvarpsþáttur hér á síðunni þar sem rætt verður við leikmenn um allt milli himins og jarðar. Í fyrstu seríu hlaðvarpsins verður rætt við markmenn og svo vinnum við okkur upp völlinn.
Thu, 09 Jul 2026 - 2849 - Innkastið - Áfall í Evrópusigri
Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór í Innkasti vikunnar. Víkingur vann nauman sigur á Györ en varð fyrir áfalli, Fram gerði jafntefli í Keflavík, Eyjamenn unnu Val og ungstirni Breiðabliks skína skært. Farið er yfir helstu fréttir og slúður.
Tue, 07 Jul 2026 - 2848 - HM hringborðið - Azteca stóð undir nafni og falleg vinátta forsetanna
Það hefur mikið gengið á í HM heimum undanfarna daga. Þeir Óskar Smári Haraldsson og Haraldur Örn Haraldsson voru gestir í hringborðinu að þessu sinni og fóru yfir helstu tíðindi og úrslit.
Tue, 07 Jul 2026
Podcasts ähnlich wie Fotbolti.net
Wife, Mother, Slave, Sex Goddess A. Heyward
Barangay Love Stories Barangay LS 97.1 Manila | GMA Network Inc.
Good Bad Billionaire BBC World Service
Cyprian Majcher Cyprian Majcher
Die Nachrichten Deutschlandfunk
Podcast Wojenne Historie Historia II wojny światowej
Forensic Files HLN
Nowenna pompejańska. Świadectwa https://pompejanska.krolowa.pl/
ILLVERK Podcast Inga Kristjáns
الشيخ أحمد العجمي islami
True Crime Documentary Justin Kandell Network
WojewódzkiKędzierski Kuba Wojewódzki, Piotr Kędzierski
Dear MOR MOR Entertainment
Snapped: Women Who Murder Oxygen
Papa Dudut Stories Papa Dudut | TAGM Marketing Solutions Inc.
DUDEK o polityce prof. Antoni Dudek i Super Exspress
Przemek Górczyk Podcast Przemek Górczyk
Sceny zbrodni RMF FM
Í ljósi sögunnar RÚV
Þetta nútímalíf RÚV Hlaðvörp
Skuggavaldið skuggavaldid
Money News Tapt Media
Żurnalista - Rozmowy bez kompromisów zurnalistapl
العلم والإيمان - د. مصطفى محمود علم ينتفع يه