Filtra per genere

Fotbolti.net

Fotbolti.net

Fotbolti.net

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

2947 - 38 umferðir - Aldrei treysta Joao Pedro
0:00 / 0:00
1x
  • 2947 - 38 umferðir - Aldrei treysta Joao Pedro

    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt góðum gesti sem var enginn annar en Pálmi Freyr Hauksson fyrrum þáttastjórnandi Lélega Fantasy Podcastsins. Pálmi er ansi lunkinn Fantasy spilari og hefur farið vel af stað en deilir áhyggjum Sindra af framtíð Manchester United. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 8. umferð, hvað á að gera við Joao Pedro og lögðu drög að 9. umferð.

    Tue, 27 Oct 2026
  • 2946 - Uppbótartíminn - Einkunnir og verðlaun fyrir tímabilið

    Bestu deild kvenna er lokið og í Uppbótartímanum er farið yfir liðið tímabil. Öll lið fá einkunn út frá væntingum og niðurstöðu, lið ársins er valið, leikmaður ársins er útnefndur sem og þjálfari ársins og efnilegasti leikmaður tímabilsins. Guðmundur Aðalsteinn, Snæbjört Pálsdóttir og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir allt það helsta.

    Tue, 27 Oct 2026
  • 2945 - Enski boltinn - Búið spil hjá Carrick

    Manchester United er mikið til umræðu í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag eftir tvö hræðileg töp í röð. Þetta er búið spil hjá Michael Carrick en hvað tekur við næst? Tottenham virðist þá vera vaknað til lífsins en þeir unnu óvæntan sigur á Brúnni. Getur Liverpool barist um Englandsmeistaratitilinn og hvort er Aston Villa eða Newcastle á betri stað? Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Ólympíufarinn Brynjar Jökull Guðmundsson fóru yfir allt það helsta í Coke stúdíóinu.

    Sun, 25 Oct 2026
  • 2944 - Innkastið - Bestu slúttað með sturlaðri lokaumferð

    KA féll, Aron sló markametið og Lárus Orri var látinn fara frá ÍA. Innkastið eftir lokaumferð Bestu deildarinnar. Takk fyrir tímabilið! Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra í hljóðveri.

    Sat, 24 Oct 2026
  • 2943 - Útvarpsþátturinn - Lífsbaráttu-laugardagur fyrir höfuðstað Norðurlands

    Í útvarpsþættinum Fótbolti.net var hitað upp fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar í beinni útsendingu og rætt um helstu fótboltafréttir vikunnar. Heyrt var í stuðningsmönnum og þeir fengnir til að meta tímabilið. Seinna í dag verður Innkastið svo í beinni útsendingu á X977, klukkan 18, þar sem umferðin verður gerð upp.

    Sat, 24 Oct 2026
Mostra altri episodi