Nach Genre filtern
- 469 - Sérveitin verður heima og Haukar ætla ekki að tapa leik
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Gunnar Róbertsson heldur áfram að vera allt í öllu þegar Valur vann ÍBV. Guðjón Valur var fyrstur til að vinna Flensburg í þ´ýsku úrvalsdeildinni. Haukar ætla sér langt í Evrópu þetta árið. Línur eru farnar að skýrast í Olís deild karla. Tvær umferðir framundan í vikunni hjá körlunum. Stelpurnar fara aftur af stað í vikunni eftir landsleikjahlé. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 26 Oct 2026 - 1h 03min - 468 - 18 ára á meðal markahæstu leikmanna Evrópu og hverjir hafa komið mest á óvart?
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Gunnar Róbertsson er 5. markahæsti leikmaður Evrópudeildarinnar. Íslenska kvennalandsliðið vann Pólland í leik sem fór fram í kyrrþey í Póllandi. Línur farnar að skýrast í Meistaradeild Evrópu. Afturelding missti 2 leikmenn í meiðsli gegn KA. Markvarsla neðstu liða Olís deildinnar er áhyggjuefni. Nóg af handbolta um helgina. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 23 Oct 2026 - 1h 11min - 467 - Yfirvinna í Eyjum og allt undir á Selfossi
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hérlendis og erlendis. Var eitthvað óvænt í landsliðshóp Snorra Steins? Þarf að breyta félagsskiptaglugganum í Evrópu? Þórsarar náðu 50% árangri í Eyjum um helgina en það var nóg að gera hjá dómaraparinu. Stjarnan er að koma öllum á óvart í upphafi tímabilsins. Hafdís mætti aftur í markið hjá Val og lokaði búrinu. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 19 Oct 2026 - 1h 17min - 466 - Valur með svarta beltið í Evrópu og fimm mestu harðhausar Olís-deildanna
Sérfræðingurinn fékk Sigurjón Friðbjörn og Gunnar Val beint af grillinu í Rapyd-stúdíóið. Farið var yfir fyrstu tvo leikina í 6.umferð Olís-deildar karla og spáð í spilin í næstu leiki auk þess sem spa´ð var í spilin í 6.umferð í Olís-deild kvenna. Farið var yfir frammistöðu Vals og FH í Evrópudeildinni. Í lokin var farið yfir fimm mestu harðhausana í Olís-deildum karla og kvenna og var Sérfræðingurinn fenginn til að blind ranka leikmennina. Þar var mikið hlegið og mikið fjör.
Thu, 15 Oct 2026 - 1h 03min - 465 - Facebook færslur og hvað er í gangi hjá Fram?
Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Ásgeir Jónsson settust í Rapyd-stúdíó-ið og fóru yfir Facebook færslur, Olís-deild kvenna, Powerade-bikar karla, spáðu í spilin fyrir næstu umferð í Olís-deild karla og sitthvað fleira í þessum þætti. Erlingur Richardsson er ósigraður í Þýskalandi og óskum við honum til hamingju með það að hætti Maggi Stef. Valur og FH verða í eldlínunni í Evrópudeildinni þar sem Valur er í dauðafæri að koma sér í kjörstöðu í sínum riðli. Arnar Pétursson og Rakel Dögg Bragadóttir settust við lyklaborðið a´ dögunum og skrifuðu Facebook-færslur sem farið var vel yfir. Þá var velt fyrir sér þeirri ákvörðun Þórs að spila tvo leiki á tveimur dögum í Vestmannaeyjum um næstu helgi.
Mon, 12 Oct 2026 - 1h 10min - 464 - Þjálfarinn ræður og hvað er að fæðast í Mosfellsbænum?
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Arnar Pétursson er búinn að velja landsliðshópinn og hann ræður. Haukar og Afturelding eru mættir í 8 liða úrslit Powerade bikarsins. Fáum við óvænt úrslit í hinum leikjum 16 liða úrslitanna? Gidsel jafnaði markametið og Emil Nilsen er allt önnur skepna hjá Veszprém. Heil umferð í Olís deild kvenna um helgina. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Thu, 08 Oct 2026 - 1h 01min - 463 - Evrópa truflaði ekki og markaskor nær nýjum hæðum í Olís deildinni
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó´ Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Valur og FH létu ekki Evrópuleikina trufla sig og unnu sigra í Olís deildinni. HK vann sigur á Stjörnunni í svokölluðum fjögurra stiga leik. Þrjú lið eru á toppi Olís deildar kvenna með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir. Botnbaráttan mun vera æsispennandi hjá stelpunum í vetur. Álaborg skíttapaði gegn GOG í dönsku deildinni um helgina. Strákarnir okkar eru hættir að vera í liði umferðarinnar í Þýsklandi. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 05 Oct 2026 - 1h 06min - 462 - Fjárhagsvandamál hjá Val og voru menn sviknir í Eyjum?
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum hérlendis og erlendis. Orri Freyr er á leiðinni til Guðjóns Vals. Veszprem eru heimsmeistarar félgasliða. Mönnum var heitt í hamsi fyrir Vestan. Sissi kveður Val með 13 titla í farteskinu. Fram eru í mikilli brekku eftir 18 marka tap gegn UMFA. KA og Haukar með góða sigra í 5.umferðinni. Mikill handbolti alla helgina bæði hjá strákunum og stelpunum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 02 Oct 2026 - 1h 11min - 461 - Þjálfaraskipti og krísufundur í Olís deild karla
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Ásgeir Jónsson mættu í Rapyd stúdíó-ið og gerðu upp handbolta helgina hér heima og erlendis. Valur og FH byrja Evrópuævintýrið í vikunni. Mikið um óvænt úrslit í Olís deild karla. Hvernig eru liðin í Olís deild karla að hefja tímabilið? Erlingur Richardsson hefur tekið við þjálfun hjá Minden í Þýskalandi og fengum við þær upplýsingar í miðjum þættinum. Olís deild kvenna hefst aftur í vikunni. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 28 Sep 2026 - 1h 06min - 460 - 307 daga bið Stjörnunnar á enda og nennir enginn að spila vörn lengur?
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Sigurjón Friðbjörn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Haukar unnu FH en gerðu sitt besta til að kasta leiknum frá sér. Stjarnan vann loksins í Olís deildinni eftir 307 daga bið. Einar Jónsson var virkilega ósáttur með sína menn. Afturelding fór illa með Selfyssinga. HK fór til Eyja og stal báðum stigunum. Einars Braga hornið hóf göngu sína í Handkastinu. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Thu, 24 Sep 2026 - 1h 02min - 459 - Jóhanna í hefndarhug og það styttist alltaf í sigurleik
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Magdeburg tapaði óvænt gegn Melsungen. Elítuhópurinn æfði um helgina. Haukar vinnu stórleikinn í kvennaboltanum um helgina. Meiðsli herja á leikmenn og þjálfarateymi KA/Þórs. Fram tapaði niður 9 marka forskoti. FH og Haukar mætast í st´órleik á fimmtudaginn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 21 Sep 2026 - 1h 02min - 458 - Þór með montréttinn og kveður Gunnar Róbertsson okkur í janúar?
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp 3.umferð í Olís deild karla. Gunnar Róbertsson er á góðri leið með að taka yfir þessa deild. Siggi Dan bjargaði stigi fyrir Stjörnuna fyrir austan fjall. Þórsarar unnu KA á útivelli í kvöld og eru með montréttinn fyrir norðan næstu dagana. Haukar eru á toppi deildinnar með fullt hús stiga. Heil umferð fer fram í Olís deild kvenna um helgina. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Wed, 16 Sep 2026 - 1h 07min - 457 - Markametið slegið og undarlegustu félagsskipti síðustu ára
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi. Víkingar verða byrja leikina. Hvað var KA að spá að reyna ekki að halda í Magnús Dag? Markametið slegið á Hlíðarenda? Verður Einar Jónsson að fara að róa sig? Valskonur svöruðu eftir slæma byrjun með þægilegum sigri á ÍBV. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.
Mon, 14 Sep 2026 - 1h 02min - 456 - Aron til bjargar og Eyjamenn með veskið á lofti
Stymmi Klippari, Geiri Gunn og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp vikuna í handboltanum hér á Íslandi og erlendis. Aron reddar Íslendingum og mætir til landsins í janúar. Arnar Pétursson hefur valið æfingarhóp fyrir landsliðið. Danskir dagar í Þorpinu þegar Þórsarar unnu sinn fyrsta leik í vetur. FH kastaði frá sér sigri í Mosfellsbænum. Nóg af handbolta alla helgina bæði í karla og kvenna. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Thu, 10 Sep 2026 - 53min - 455 - Óvæntustu úrslit síðari ára og 2010 árgangurinn er mættur til leiks
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Haukar mættu til leiks með látum. Það tók 2 sólarhringa að klára leik Aftureldingar og Víkings. Selfoss kom öllum á óvart og unnu Íslandsmeistaranna. Stelpurnar voru með skotleyfi um helgina. Lið umferðanna opinberuð. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 07 Sep 2026 - 1h 09min - 454 - Valur slapp með skrekkinn og ný nöfn í deild þeirra bestu
Olís-deild karla er farin af stað og hinar deildirnar hefjast um helgina. Boltinn er farinn að rúlla í Evrópu. Óvænt félagaskipti síðustu daga og nýtt félag í Grill66-deildinni. Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Kiddi Bomba fóru yfir allt það helsta í Rapyd stúdíóinu.
Fri, 04 Sep 2026 - 1h 01min - 453 - Olís deildirnar að byrja, Iðkendagjöld HSÍ og yfirferð á Olísdeild kvenna
Stymmi Klippari, Sigurjón Friðbjörn, Gunnar Valur og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og fóru yfir fréttir vikunnar. Iðkendagjöld HSÍ voru rædd og möguleg útfærsla á þeim. Ákvörðun Víkinga að taka ekki þátt í Olís deild kvenna var rædd. Selfyssingar ósáttir við vinnubrögð Víkinga. Yfirferð yfir öll liðin í Olís deild kvenna Olís deildirnar hefjast í vikunni. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 31 Aug 2026 - 1h 18min - 452 - Tvær bombur úr Virkinu og yfirferð yfir Olís deild karla
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og fóru yfir helstu mál handboltans í dag. Kvennalið Víkings hefur afþakkað sæti sitt í Olís deild kvenna 9 dögum fyrir fyrsta leik. Stiven Tobar Valencia er ennþá án liðs. Fórum yfir öll liðin í Olís deild karla og veltum fyrir okkur félagskiptaglugga liðanna, áhyggjum fyrir komandi tímabil, þakinu, gólfinu og hver er með lyklavöldin þegar nýtt tímabil fer af stað. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Thu, 27 Aug 2026 - 1h 32min - 451 - Barnalandsliðin vinna ekkert án Heimis og mánuður í mót
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már kíktu í stúdíó Handkastsins og fór yfir fréttir vikunnar. Handboltapassinn er kominn yfir á Livey. 18 ára landsliðs okkar datt út í dag gegn Þýskalandi á HM. Heimir Ríkharðsson er eini þjálfarinn sem hefur klárað þann stóra. Mánuður í mót og mörg lið þurfa ennþá að styrkja sínar herbúðir fyrir veturinn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Thu, 06 Aug 2026 - 1h 20min - 450 - Stútfullur fréttapakki í sumarútgáfu Handkastsins
Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í stúdíó Handkastsins og fóru yfir fréttir sumarsins. Vinstri hornamenn landsliðssins á ferð og flugi. Unglingalandsliðin út um allan heim undanfarnar viku. Hreyfingar á íslenska markaðnum. Ótímabær spá í karla og kvenna. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Thu, 09 Jul 2026 - 57min - 449 - Gústi Jó fer yfir tímabilið og fréttir vikunnar með Handkastinu
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gústi Jó mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp fréttir vikunnar. Dagur Árni genginn í raðir KA. Er Benedikt Gunnar Óskarsson á leiðinni heim í Val. Valur tekur alltaf stöðuna á strákunum sínum erlendis eftir hvert ´tímabil. Aron Pálmarsson tekinn við FH. Handboltafólkið okkar heldur áfram að gera frábæra hluti erlendis með félagsliðum sínum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Tue, 02 Jun 2026 - 1h 08min - 448 - Viðtal við nýráðinn þjálfara FH - Aron PálmarssonThu, 28 May 2026 - 08min
- 447 - Viðtal við Steina Arndal fráfarandi þjálfara FH
Viðtal við Steina Arndal eftir að hann var kynntur sem nýr aðstoðarþjálfari FH og stígur til hliðar sem aðalþjálfari liðsins eftir sjö ár í starfi.
Thu, 28 May 2026 - 09min - 446 - Þjálfarabreytingar í Krikanum og samningarlausir Íslendingar
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp síðustu dagana í handboltanum. Það stefnir allt í að það verði þjálfarabreytingar í Krikanum þar sem Aron Pálmarsson gæti verið næsti þjálfari karlaliðsins. Valsmenn eru byrjaðir að styrkja sig. Íslendingar í Kolstad á leiðinni heim? Elín Klara og Einar Bragi að gera það gott í Svíþjóð. Hvar enda Bjarki Már og Stiven Tobar? Hvað eru heitustu take Stymma og Kidda fyrir næsta tímabil? Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Tue, 26 May 2026 - 55min - 445 - Egyptaland sigrað og hver er framtíð Handboltapassans?
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdí´ó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Landsliðið gerði góða ferð til Egyptalands og sigraði heimamenn í tveim æfingarleikjum. Yngri flokkarnir kláruðust um helgina með handboltaveislu í Kaplakrika. Hafa niðurstöður kosninganna áhrif á þj´álfaramál ÍR? Óvænt úrslit í undankeppni HM. Skuldir HSÍ og hvað ætlum við að gera með Handboltapassan? Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 18 May 2026 - 50min - 444 - Til hamingju Valur og þjálfarakapallinn fer að leysast
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé komu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp síðustu daga í handboltanum hér heima og erlendis. Til hamingju Valskonur með Íslandsmeistaratitilinn. Landsliðið spilar 2 æfingaleiki við Egypta í vikunni í beinni á Rúv Afturelding og Selfoss eiga eftir að ráða þjálfara fyrir næsta tímabil en það ætti að fara að skýrast. Búið að draga í undanúrslit í Meistaradeild karla. Ársþingið enn og aftur til umræðu. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Tue, 12 May 2026 - 1h 12min - 443 - ÍBV svara fyrir sig og fyrsta ótímabær spáin
Stymmi Klippari, Davíð Már Kristinsson og Ásgeir Gunnarsson mættu í Rapyd stúdíó-ið og ræddu handboltann undanfarna daga. ÍBV gerðu sér lítið fyrir og pökkuðu Val saman í leik þrjú hjá þeim. Þórsarar halda áfram að styrkja sig fyrir átökin á næsta ári. Ársþing HSÍ fór fram um helgina og nóg að ræða þaðan. Fyrsta ótímabæra spá næsta tímabils leit dagsins ljós. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Sun, 10 May 2026 - 54min - 442 - Valur Íslandsmeistari eftir frábært úrslitaeinvígi
Stymmi Klippari, Geiri Sly og Alli Eyjólfs mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp úrslitaeinvígi karla og kvenna. Valur er Íslandsmeistari eftir eins marks sigur á FH á Hlíðarenda. Er verið að sprengja konfetti á vitlausum tímapunktum í leikjum? Ársþing hjá HSÍ framundan og verður spennandi að sjá hvaða breytingar verða. Læti í Vestmannaeyjum og umgjörðin ekki nógu góð? Final 4 er klárt og Álaborg eru einu nýliðarnir. Þetta og svo miklu miklu í nýjasta þætti Handkastsins.
Thu, 07 May 2026 - 1h 08min - 441 - Allt undir á fimmtudaginn og ÍBV fengu ekki neyðarlán
Stymmi Klippari, Kiddi Bjé og Sigurjón Friðbjörn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Það var stórkostlegur leikur í Kaplakrika í kvöld og orðið ljóst að við förum alla leið í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Thea Imani er á leið í atvinnumennsku. Það ræðst í vikunni hvaða lið leika til úrslita í Meistaradeild Evrópu. Handboltaþingið er um helgina og nokkrar breytingartillögur til umræðu. Valur er komið í 1-0 gegn ÍBV í einvígi þeirra um titilinn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 04 May 2026 - 1h 21min - 440 - Ræðst einvígið í næsta leik og tveir oddaleikir framundan
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Benni Grétars gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi og erlendis. FH svaraði fyrir sig í einvíginu gegn Val og allt er orðið jafnt. Ræðst einvígið í næsta leik á Hlíðarenda og er pressan komin yfir á Val? Þurfum að Haukar að fara sjóleiðina í oddaleikinn gegn ÍBV? Stjarnan og Grótta mætast í oddaleik en það er vonlaust að spá fyrir um sigurvegara í því eftir síðustu leiki liðanna. Meistaradeildin fer aftur af stað í vikunni og Final 4 er undir. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 27 Apr 2026 - 1h 04min - 439 - Hiti innan og utan vallar og djók rautt spjald er Valur vann FH
Það hefur verið mikill hiti innan og utan vallar í Þjóðaríþróttinni síðustu sólarhringa en Handkastið gerir upp það helsta í þessum þætti. Valur leiðir í úrslitaeinvíginu gegn FH 1-0 eftir sigur á heimavelli þar sem Jóni Bjarna Ólafssyni var vikið upp í stúku af dómurum leiksins - sem ekki allir virðast sammála um.
Fri, 24 Apr 2026 - 1h 07min - 438 - Afhverju hætti Grétar Áki? - Dönsk nýlenda í Þorpinu
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastins og gerðu upp helgina í handboltanum. Afhverju eru ÍR að ráðast í þjálfarabreytingar á kvennaliðinu? Valur er komið í úrslit í kvennaboltanum meðan það er allt í járnum í einvígi ÍBV og Hauka. HSÍ fer nýjar leiðir í blaðamannafundum. Mikil spenna í umspili hjá stelpunum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Wed, 22 Apr 2026 - 1h 14min - 437 - FH leika um Íslandsmeistaratitilinn og Stelpurnar Okkar fara til Rúmeníu
Stymmi Klippari, Ásgeir Gunnars og Davíð Már Kristinsson mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. FH eru komnir í úrslitaeinvígið eftir ótrúlegar lokasekúndur á Ásvöllum. Stelpurnar Okkar spila í Rúmeníu á EM 2026. Stjarnan leikur í Olís deildinni á næsta tímabili eftir sigur á Herði. Stelpurnar hófu leik í úrslitakeppninni og Haukar gerðu góða ferð til Vestmannaeyja. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 17 Apr 2026 - 52min - 436 - Allt undir á föstudaginn í Hafnarfirði og stelpurnar fara aftur af stað
Stymmi Klippari, Sigurjón Friðbjörn og Gunnar Valur mættur í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Snorri Steinn og Arnór Atlason gerðu samning við HSÍ til 2032. Stelpurnar Okkar eru á leiðinni á fjórða stórmótið í röð. Valsmenn sópuðu meiðslahrjáðum KA mönnum út Heimaliðin vinna ennþá í einvígi FH og Hauka. Heldur Stjarnan sæti sínu í deildinni í kvöld? Stelpurnar Fara loksins aftur af stað eftir stuttan undirbúning. Þetta og svo miklu miklum meira í nýjasta þætti Handkastins.
Tue, 14 Apr 2026 - 1h 05min - 435 - Snorri Steinn ræðir sex ára samning við HSÍTue, 14 Apr 2026 - 18min
- 434 - Allt undir hjá Stelpunum Okkar og spennan er í Hafnarfirðinum
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp handbolta vikuna. Stelpurnar Okkar fengu skell í Færeyjum og eru í úrslitaleik gegn Portúgölum á sunnudaginn. Markmennirnir eru að ráða úrslitum í einvígi FH og Hauka. Valsmenn höfðu reynsluna þegar þeir kláruðu spennutrylli á Akureyri. Stjarnan alltof stór biti fyrir Hörð. 8 liða úrslitin í Meistaradeild Evrópu eru klár og það eru sömu lið þar og í fyrra. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 10 Apr 2026 - 1h 07min - 433 - Valsarar slátruðu KA í kyrrþey og FH með montréttinn næstu 3 daga
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Bergur Elí gerðu upp páskahelgina í handboltanum. Ferðalagið suður reyndist KA mönnum erfitt þegar nýtt met var sett á Hlíðarenda. Það var fámennt en góðmennt þegar leikur Vals og KA fór fram. FH vann Hauka í miklum spennuleik þó lokatölurnar segi annað. Grétar Ari og Darri meiddust á versta tíma fyrir Haukanna. Stjarnan og Hörður mætast í einvígi um laust sæti í Olís deildinni. Stelpurnar okkar eiga leik gegn Færeyjum í undankeppni Evrópumótsins. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Tue, 07 Apr 2026 - 59min - 432 - Loksins fáum við Hafnarfjarðarslag og ótrúlegar senur á Ísafirði
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastins og gerðu upp vikuna í Handboltanum. Loksins fáum við Hafnarfjarðarslag milli FH og Hauka í úrslitakeppninni. Hörður á Ísafirði eru komnir í úrslitaleik um sæti í Olís deildinni. Stjarnan vann loksins leik. Lítil spenna í Umspili og Olísdeild kvenna þetta árið. Meistaradeildin í Evrópu er byrjuð að rúlla aftur. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.
Thu, 02 Apr 2026 - 1h 11min - 431 - Einn oddaleikur þetta árið og íslenskur aðstoðarþjálfari hjá Dönum?
Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hérlendis og erlendis. Er Arnór Atla að fara í danska landsliðið? Við fáum einungis einn oddaleik þetta árið í 8 liða úrslitum. Einar Baldvin vaknaði af værum blundi og tryggði Aftureldingu oddaleik Ágúst Elí sendi ÍBV í sumarfrí. Úrslitakeppni kvenna fór af stað um helgina. Óvænt úrslit í umspilinu þar sem Fjölnir og Hörður unnu. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.
Mon, 30 Mar 2026 - 1h 06min - 430 - Framlengingar, Hiti í stúkunni og Valsarar á flautunni
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíó´Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Valur þurfti framlengingu og smá hjálp við að leggja HK. Fáliðaðir KA-menn náðu að halda út í tvíframlengdum leik í Eyjum. Stuðningsmenn Fram máttu ekki sitja hvar sem er þegar FH vann gífurlegar sterkan sigur. Haukur rúlluðu yfir Mosfellinga. Stelpurnar fara af stað um helgina. Þjálfarar hverfa á braut í Olís deild karla. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Thu, 26 Mar 2026 - 1h 15min - 429 - Leikhléið sem felldi Selfoss og fjölgun í Olísdeildinni?
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Alli Eyjólfs mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Úrslitakeppnin hefst í vikunni hjá körlunum. Leikhléið hjá Haukum sem felldi Selfyssinga í Grill 66 deildina. Það þarf að fjölga í Olís deild kvenna fyrir næsta tímabil. Íslenska landsliðið tapaði aftur gegn Svíum um helgina. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.
Mon, 23 Mar 2026 - 1h 14min - 428 - Æfingaleikjabragur í tapi gegn Svíum og Selfoss og Stjarnan berjast fyrir lífi sínu
Stymmi Klippari, Geiri Sly og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerði upp vikuna í handboltanum. Íslenska landsliðið tapaði gegn Svíum 33-35 í æfingarleik. Teitur eru draumur þjálfarans. Reynir Þorsteinn Leó of mikið þegar hann fær sénsinn? Handboltaþing fer fram um helgina. Stjarnan voru rændar marki á mikilvægu augnabliki. Verður fjölgað í 10 lið í Olís deild kvenna á næsta ári? Hvaða lið fellur um helgina? þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Thu, 19 Mar 2026 - 1h 04min - 427 - Valskonur deildarmeistarar og Víkingar í deild þeirra bestu
Stymmi Klippari, Geiri Gunn og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Víkingar eru komnir í deild þeirra bestu en ná þeir að halda sæti sínu á næsta ári? Spennandi umspil framundan um sæti í Olís deildinni á næsta tímabili. Valskonur tryggðu sér deildarmeistaratitilinn þrátt fyrir mikil meiðsli í herbúðum þeirra. Stjarnan er komin í botnsætið eftir tap gegn Selfoss. Lið ársins í Olís deild karla er klárt Olís deild kvenna klárast í vikunni með tveim umferðum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 16 Mar 2026 - 1h 02min - 426 - Valur deildarmeistari, sumarfrí á önnur lið og rosalega úrslitakeppni framundan
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp lokaumferðina í Olís deild karla. Valur eru deildarmeistarar eftir harða baráttu við FH. ÍR hafa kvatt deild þeirra bestu og leika í Grill 66 deildinni á næsta ári. Stjarnan er á leið í umspil. Frábærir leikir í 8 liða úrslitum sem hefjast 25.mars. Stelpurnar spila um helgina og rosalegur botnbaráttuleikur á Selfossi. Nú fer allt að gerast í Meistaradeild Evrópu! Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 13 Mar 2026 - 1h 21min - 425 - Mest spennandi lokaumferð í manna minnum á fimmtudaginn
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp næst síðustu umferð Olís deildar karla. Það eru öll lið að spila um eitthvað á fimmtudaginn? Tekst Þór að komast í úrslitakeppnina? Bjargar ÍR sér frá falli? Ná ÍBV að skemma deildarmeistarapartýið fyrir Val? Stelpurnar Okkar spiluðu vel í 43 mínútur í Svartfjallalandi en svo varð algjört hrun á leik þeirra. Snorri Steinn búinn að velja landsliðshópinn og enn á ný sjáum við nýjan þriðja markmann. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Tue, 10 Mar 2026 - 1h 02min - 424 - ÍR gæti fallið í sófanum og hverjir ætla að vinna deildina?
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gunnar Valur mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp 20.umferð Olís deildarinnar. Afturelding kastaði frá sér möguleika á sigri gegn FH á lokasekúndnum leiksins. Settu ÍBV og ÍR markamet í Vestmannaeyjum? Það vill ekkert lið lenda á móti Fram í úrslitakeppninni. Falla ÍR í sófanum á morgun þegar Stjarnan tekur á móti KA? Frábær sigur íslensku stelpnanna gegn Svartfellingum en hvar eru örvhentu stelpurnar okkar? Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Thu, 05 Mar 2026 - 1h 18min - 423 - Til hamingju Haukar og Valur - Hraðmót framundan í Olís-karla
Farið var yfir úrslitaleikina í Powerade-bikar karla og kvenna í þættinum auk þess sem spáð var í spilin fyrir hraðm´ótið í Olís-deild karla sem hefst strax á miðvikudaginn þegar bikarmeistararnir mæta norður.
Sun, 01 Mar 2026 - 1h 16min - 422 - Verða Haukar tvöfaldir bikarmeistarar á umdeildum heimavelli? KA og FH slegnir út af laginu
Sérfræðingurinn, Einar Ingi Hrafnsson og Guðjón Guðmundsson gerðu upp undanúrslitaleikina í Powerade-bikarnum sem fóru fram á Ásvöllum í vikunni. Haukar og Valur unnu sína leiki kvennamegin á meðan Haukar og ÍR unnu sína leiki karlamegin. Rætt var um nýtt þjálfarateymi Stjörnunnar, umdeildan leikstað bikarúrslitanna og margt fleira í þættinum.
Fri, 27 Feb 2026 - 1h 09min - 421 - Aukakastið - Ásbjörn Friðriksson
Ásbjörn Friðriksson er nýjasti gestur Aukakastsins þar sem Stymmi Klippari og Kiddi Bjé fá til sín handboltafólk og gerir upp feril þess allt frá fyrstu æfingu. Ási eins og hann er oftast kallaður fer yfir uppvaxtarárin á Akureyri, árin í atvinnumennsku og hvort þau hefði getað verið fleiri og tíma sinn í FH. Skemmtileg ferðalög sem hann fór í með FH gegnum árin eins og þegar þeir flugu til Rússland eingöngu til að taka fimm víti í evrópukeppninni. Það er óhætt að mæla með hlustun á þennan frábæra þátt fyrir allt handboltaáhugafólk en Ási kemur með marga frábæra punkta sem ungir iðkendur ættu að tileinka sér sem vilja ná lagt í boltnaum.
Wed, 25 Feb 2026 - 1h 28min - 420 - Lygileg spenna - Bikarvika framundan og ótrúlegar samsæriskenningar
Sérfræðingurinn settist í Rapyd stúdíóið með þeim Benedikt Grétarssyni og Davíð Má Kristinssyni. Farið var yfir málin í Olís-deildum karla og kvenna þegar þrjár umferðir eru eftir í báðum deildum. Söguleg spenna er í deildunum báðum og allt getur gerst. Ofan í það þá er bikarvika framundan þar sem krýndir verða bikarmeistarar næstu helgi.
Sun, 22 Feb 2026 - 1h 16min - 419 - Snorri Steinn gerir upp EM!
Snorri Steinn Guðjónsson mætti Sérfræðingnum í Rapyd Stúdíó-inu og fór yfir Evrópumótið þar sem íslenska landsliðið lauk leik í 4.sæti eftir tap gegn Króatíu í leik um bronsið. Farið var yfir alla leiki mótsins, tilfinningarússíbanann í milliriðlinum, meiðsli Elvars Arnar og undanúrslitahelgina í Herning. Snorri Steinn var spurður út í framhaldið hjá sér sem landsliðsþjálfara - framtíð íslenska handboltans og miklu meira til. Snorri Steinn svaraði meðal annars þeirri spurningu hver væri efnilegasti leikmaður Íslands í dag.
Wed, 18 Feb 2026 - 1h 52min - 418 - Hver felldi ÍR, flóttinn úr Kórnum og pungslausir Þórsarar
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættur í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina i íslenska og alþjóðlega boltanum. Var þetta síðasta tækifæri ÍR til að halda sér í deildinni? Eru hálft liðið hjá HK að fara? Markmennirnir í kvennaboltanum voru á eldi um helgina. Gróttan á leiðinni upp í Olís deildina? Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 16 Feb 2026 - 1h 10min - 417 - Bestu leikmenn í Grillinu og fimm liða fallbarátta
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már kíktu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Bestu leikmenn Grill deildanna valdir Þjálfarakapall að fara af stað? Danska leikin málið fyrir úrslitakeppnina? ÍBV eru komnir í 4.sæti Olís deildarinnar og ekkert gengur hjá Aftureldingu. FH unnu endurkomusigur á sprækum Selfyssingum. Umferðir í Karla og kvenna um helgina. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.
Thu, 12 Feb 2026 - 1h 10min - 416 - Olís deildin aldrei verið jafnari
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Sly mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp helgina í handboltanum. Olís deildin hefur aldrei verið jafnari á allt getur gerst bæði á toppi og botni. Haukar féllu á prófinu gegn ÍBV. FH sluppu með skrekkinn fyrir Norðan. Stjarnan eru komnir í alvöru fallbaráttu. Stórleikur í Skógarselinu í kvöld þar sem fallbaráttan gæti ráðist. Olís deild kvenna er engin undantekning og spenna á toppi og botni þar. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 09 Feb 2026 - 1h 15min - 415 - Allt undir hjá ÍR um helgina og verða Haukar alltaf bestir
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó-ið og gerðu upp 16.umferðina í Olís deildinni. Stjarnan eru komnir í alvöru fallbaráttu eftir tap gegn Þór. Haukar mættu á Hlíðarenda og pökkuðu Val saman. ÍR verða að vinna um helgina ef þeir ætla ekki að kveðja Olísdeildina. Markvarðaveisla fyrir aðdáendur Olís deildar karla. Haugur af leikjum í Olísdeildum karla og kvenna um helgina í handboltapassanum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 06 Feb 2026 - 1h 09min - 414 - Evrópumótið gert upp
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari, Teddi Ponza og Mikael Nikulásson mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu Evrópumótið upp. Ísland endaði í 4.sæti eftir tap gegn Króatíu í leik um bronsið í dag. Er Snorri Steinn á réttri leið með liðið? Markvarslan var vonbrigði á mótinu, hver er næsti maður inn ef Bjöggi hættir? Til hvers var Þorsteinn Leó með á þessu móti? Er kominn tími á að Snorri Steinn fari að þjálfa félagslið samhliða landsliðinu? Olísdeild karla byrja í vikunni og stelpurnar halda áfram. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Sun, 01 Feb 2026 - 1h 39min - 413 - Hetjuleg barátta dugði ekki til
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Arnar Sveinn Geirsson mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp leik Íslands og Danmerkur. Strákarnir voru frábærir en vantaði herslumuninn í kvöld. Viktor Gísli fann sig ekki í markinu og munaði um minn. Dýr vítaklúður á ögurstundu Dagur Sigurðsson lét EHF heyra það og þeir fundu fyrir því Króatar bíða á sunudaginn og brosnið er ennþá möguleiki. Heil umferð í Olís deild kvenna fór fram í gær. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 30 Jan 2026 - 1h 08min - 412 - Leiðin var greið eftir 16 ára bið - Undanúrslit bíða okkar
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Ási Friðriks mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp sigur Íslands á Slóvenínu. Strákarnir Okkar eru komnir í undanúrslit og mæta þar Danmörku á heimavelli á föstudagskvöldið klukkan 19:30. Frábær síðari háflleikur okkar manna gegn Slóveníu. Markvarslan er áfram hausverkur og vonandi lagast hún fyrir Danaleikinn. Óðinn Þór verið frábær og hægra horninu og Gísli Þorgeir er búinn að stýra sóknarleik liðsins eins og herforingi á mótinu. Heil umferð í Olísdeild kvenna á morgun. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Wed, 28 Jan 2026 - 59min - 411 - Draumurinn lifir þrátt fyrir afhroð - Snorri þarf að vera meira hann sjálfur
Það var rússibanareið í Rapyd stúdíóinu í kvöld eftir afhroð strákanna okkar gegn Sviss í dag. Þegar allt var í svartnætti yfir Íslandi mættu Ungverjar og kveiktu von með jafntefli gegn Svíum í lokaleik dagsins. Sérfræðingurinn og Stymmi klippari fengu Aðalstein Eyjólfsson fyrrum þjálfara Kadetten Schaffenhausen í Sviss og við fórum yfir allt sem hægt var að ræða.
Tue, 27 Jan 2026 - 49min - 410 - Strákarnir Okkar losuðu um handbremsuna og settu allt í botn
Stymmi Klippari, Einar Ingi og Geiri Sly mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp frábæran sigur Íslands á Svíþjóð í dag. Íslenska geðveikin mætti til leiks og léku allir strákarnir við hvern sinn fingur. Viggó Kristjánsson velkominn til leiks! Haukur Þrastarson varnarlega! Elliði og Ýmir með 20 löglegar stöðvanir! Viktor Gísli, Gísli Þorgeir, allir strákarnir okkar voru magnaðir í þessum sigri. Örlögin eru í okkar höndum og þurfum við núna að vinna tvo síðustu leikina til þess að vinna milliriðilinn og fara í undanúrslit. Olísdeild kvenna kláraðist um helgina og eru Valskonar komnar einar á toppinn eftir sigur á ÍBV. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Sun, 25 Jan 2026 - 54min - 409 - Snorri Steinn gerir upp tapið gegn Króatíu í viðtali við Séffann
Sérfræðingurinn er staddur í Malmö og hitti Snorra Stein Guðjónsson þjálfara íslenska landsliðsins og gerði upp eins marks tap Íslands gegn Króatíu sem fram fór í gær. Sérfræðingurinn spurði Snorra Stein meðal annars út í: - Varnarleik Íslands í leiknum - Hvenær Snorri Steinn fór að bregðast við vandamálunum - Markvörsluna í leiknum - Seinni bylgjuna hjá Íslandi í leiknum og heilt yfir á mótinu - Framlag Ómars Inga í leiknum og í mótinu - Spilatíma Viggós Kristjánssonar - Og miklu meira til
Sat, 24 Jan 2026 - 08min - 408 - Fjallabaksleið framundan hjá landsliðinu eftir tap gegn Króötum
Stymmi Klippari, Kiddi Bjé og Ási Friðriks gerðu landsleik Íslands gegn Króötum upp í Rapyd stúdíóinu. Lélegur varnarleikur og markvarsla í fyrri hálfleik kom okkur í erfiða stöðu. Óðinn Þór var frábær í leiknum. Gísli Þorgeir var allt í öllu sóknarlega án þess að skora mark í leiknum. Króatar skutu okkur í kaf utan af velli meðan við þurftum að hafa fyrir mörkunum okkar. Svíar bíða á sunnudaginn og sá leikur verður að vinnast. Þetta og svo miklu miklu meira í n´ýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 23 Jan 2026 - 1h 07min - 407 - Loksins loksins! Lífið heldur áfram að vera yndislegtTue, 20 Jan 2026 - 1h 19min
- 406 - Lífið er yndislegt og Ungverjar bíða á þriðjudaginn
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Siggi Bond gerðu upp sigur íslenska landsliðsins á Pólverjum strax eftir leik í Kristianstad. Ýmir Örn var stórkostlegur í vörninni. Elliði svaraði fyrir lélegan leik a´ föstudaginn. Haukur var með frábæra innkomu. Var móment í síðari hálfleik kveikti í stúkunni. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Sun, 18 Jan 2026 - 46min - 405 - Þjóðhátið komin af stað og ættum við að hætta að spila með línumann?
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Siggi Bond gerðu upp sigur Íslands á Ítalíu í opnunarleik liðsins á Evrópumótinu í kvöld. Janus Daði var frábær og breytti gangi leiksins á 20 mínútu. Snorri Steinn var vel undirbúinn og átti svör við öllu sem Bob Hanning kastaði að okkur. Bjarki var með frábæra innkomu í síðari hálfleik og ætlar greinilega að njóta sín í botn á mótinu. Pólverjar bíða á sunnudaginn. Þetta og svo miklu miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins
Fri, 16 Jan 2026 - 44min - 404 - Síðasta upphitun fyrir EM og síminn var á lofti
Sérfræðingurinn og Stymmi Klippari fóru yfir lokaupphitun fyrir Evrópumótið í Rapyd stúdíóinu en mótið hjá Íslandi hefst á morgun þegar þeir mæta Ítölum í fyrsta leik. Síminn var á lofti hjá strákunum og var slegið á þráðinn til Gaupa, Tedda, Hödda Magg og Mike. Við eigum engar afsakanir eftir, leiðin hefur aldrei verið greiðari og hópurinn búinn að ganga í gegnum mikið saman undanfarin ár. Handkastið heldur til Svíþjóð á morgun og verður með þátt strax annað kvöld eftir leikinn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Thu, 15 Jan 2026 - 52min - 403 - Generalprufunni lokið og alvaran hefst á föstudaginn
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Jónsson mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp leik Ísland gegn Frakklandi sem fram fór í París í dag. Snorri Steinn var a´ línunni og sagðist heilt yfir vera ánægður með helgina í París en strákarnir fá frí á morgun til að spóka sig um í borg ástarinnar. Einar segir að við getum alveg gert kröfu á að íslenska liðið fari alla leið í undanúrslit á Evrópumótinu miðað við mannskap og mótherja. Heil umferð var í Olísdeild kvenna um helgina og eru Valur og ÍBV ennþá hnífjöfn á toppi deildarinnar en það dróg til tíðinda á botninum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Sun, 11 Jan 2026 - 1h 08min - 402 - Sigur á löskuðum Slóvenum og Snorri Steinn í beinni frá París
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp landsleik Ísland gegn Slóveníu. Strákarnir voru frábærir í fyrri hálfleik en síðari hálfleikurinn byrjaði ekki nógu vel. Snorri Steinn var á línunni frá París og gerði leikinn og framhaldið upp með Handkastinu. Viktor Gísli frumsýndi nýtt vopn í vopnabúrinu Hákon Daði er kominn heim til Eyja. Heil umferð í Olís deild kvenna á morgun sem fer aftur af stað eftir jólafrí. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 09 Jan 2026 - 1h 07min - 401 - Farið yfir greiðu leiðina í undanúrslitin og allt þar á milli - 12 dagar í EM!
Sérfræðingurinn og Klipparinn hófu upphitunina fyrir EM í Rapyd stúdíóinu með þeim Aðalsteini Eyjólfssyni og Einari Erni Jónssyni. Það eru ekki nema tólf dagar í fyrsta leik Íslands á EM.
Sun, 04 Jan 2026 - 1h 16min - 400 - Árið 2025 gert upp og Sérfræðingurinn á línunni
Stymmi Klippari, Kiddi Bjé og Geiri Gunn mættu í stúdíó Handkastsins til að gera árið 2025 upp. Arnar Daði var a´ línunni frá Spáni og ræddi brottreksturinn sem átti sér stað á Þorláksmessu. Ættum við að klára bikarkeppnina í desember? Farið var yfir allt árið og hin ýmsu verðlaun veitt. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 29 Dec 2025 - 1h 40min - 399 - Aukakastið - Sverre Andreas Jakobsson
Gestur Aukakastsins í desember er silfurdrengurinn Sverre Andreas Jakobsson. Sverre fer yfir uppvaxtar árin sín, afrekin á körfuboltavellinum og lífið fyrir norðan. Hvernig var að vera í KA í pakkfullu húsi og þegar hann hætti í handboltanum. Ævintýrið í Peking 2008 og lífið í atvinnumennskunni. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Aukakastsins.
Wed, 24 Dec 2025 - 1h 39min - 398 - Jólakraftaverk í Garðabænum og Hafnarfjarðardraumurinn lifir
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi. Landsliðshópurinn var tilkynntur í vikunni og margt áhugavert þar. A´gúst Elí er orðinn leikmaður KA. Final 4 er klárt og draumurinn um FH - Haukar í úrslitum lifir. Stjarnan vann óvæntan sigur á Fram í Olís deild kvenna í síðasta leik fyrir jólafrí. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.
Sun, 21 Dec 2025 - 1h 06min - 397 - Hátt falla Hauka - Andri Snær með stílinn á lofti og Bjarki Már verður heima í janúar
Sérfræðingurinn fékk þá Einar Inga Hrafnsson og Ásgeir Jónsson til að fara yfir það sem hefur gerst í handboltanum hér heima síðustu daga. Stelpurnar eru farnar aftur af stað í Olís-deild kvenna á meðan Olís-deild karla er komin í jólafrí. Snorri Steinn Guðjónsson velur lokahópinn fyrir EM í vikunni og þá var mikill hiti í toppslagnum í Grill66-deildinni.
Tue, 16 Dec 2025 - 1h 15min - 396 - Fram að vakna til lífsins og erfiðleikar í Garðabænum
Stymmi Klippari, Kiddi Bjé og Geiri Sly komu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanun hér heima og erlendis. Landsliðshópurinn verður valinn eftir viku og Snorri liggur á bæn að allir haldist heilir. Fær Donni kallið? Olís deild kvenna fer aftur af stað um helgina. Fram eru að vakna til lífsins meðan KA eru aðeins að missa flugið. Hvað er að gerast í Garðabænum? Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.
Fri, 12 Dec 2025 - 1h 08min - 395 - Jákvæð teikn á lofti hjá landsliðinu og stuðningsmenn Þórs gengu út
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu og gerðu upp helgina í Handkast stúd´íóinu í morgun. HM er lokið hjá Stelpunum Okkar og jákvæð teikn á lofti upp á framtíðina. Erum við að verða á eftir öðrum þjóðum í kringum okkur í handboltanum? Valsmenn rúlluðu eftir FH síðustu 10 mínútur leiksins og unnu í Kaplakrika. Þórsarar mættu ekki til leiks gegn Fram fyrir norðan og stuðningsmenn gengu út. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 08 Dec 2025 - 1h 00min - 394 - Vegferðin heldur áfram hjá stelpunum og eru ÍR fallnir?
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi gerðu upp vikuna í handboltanum hér heima og erlendis. Stelpurnar Okkar hafa sýnt góða takta í Þýskalandi en hafa ekki náð að klára leikina. Lokaleikur mótsins er gegn Færeyjum á laugardaginn. Það var netlaus í Mosfellsbænum á miðvikudaginn. Eru ÍR-ingar fallnir úr deild þeirra bestu eftir tap gegn Selfoss? Olísdeildin heldur áfram um helgina. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins
Fri, 05 Dec 2025 - 1h 00min - 393 - Strákarnir mættu taka stelpurnar sér til fyrirmyndar
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Sigurjón Friðbjörn mættu í stúdíó Handkastsins gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Stelpurnar okkar eru komnar í milliriðil sem hefst á þriðjudaginn sem þeir eiga fínan séns á að sækja úrslit í. Leikgleðin hjá hópnum skín í gegn og vill Sérfræðingurinn sjá Strákana Okkar taka þetta sér til fyrirmyndar á næsta stórmóti. ÍR eru komnir með sinn fyrsta sigur í deildinni og framundan er stórleikur á Selfossi. Fusche Berlin eru að setja saman eitthvað svakalegasta lið handboltasögunnar. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Sun, 30 Nov 2025 - 1h 04min - 392 - Einar Baldvin í landsliðsklassa og Stelpurnar Okkar í eldlínunni um helgina
Stymmi Klippari, Gunnar Valur og Benni Grétars kíktu í stúdíó Handkastins og gerðu upp vikuna í boltanum. Stelpurnar Okkar sýndu jákvæða frammistöðu gegn sterku Þýsku liði í opnunarleiknum á Heimsmeistaramótinu sem fram fer í Þýskalandi. Afturelding lék sér að Haukum í Mosfellsbænum og Einar Baldvin var í landsliðsklassa. Valur eru komnir á topp deildarinnar og virðist fátt geta stöðvað þá. Stórleikur ÍR og Þórs á sunnudaginn þegar sem tímabilið gæti verið undir hjá ÍR-ingum. Undraverður bati Janusar Daða. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Thu, 27 Nov 2025 - 43min - 391 - Stelpurnar byrja á miðvikudaginn og Olís deild karla er hálfnuð
Stymmi Klikkari, Davíð Már og Geiri Gunn mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Stelpurnar unnu Færeyjar á laugardaginn og hefja leik á HM á miðvikudaginn. Gummi Gumm gæti vel hugsað sér að taka við landsliði. Stjarnan og Valur rúlluðu yfir leikina sína um helgina. Olís deildin er hálfnuð og lið fyrri hlustans var valið í þættinum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins
Mon, 24 Nov 2025 - 1h 01min - 390 - EM í hættu, KA með montréttinn og Arnar Pétursson á línunni
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé gerðu upp vikuna í Handkast stúdíóinu þennan föstudagsmorgun. Þorsteinn Leó er í kappi við tímann og önnur meiðsli eru að hrjá landsliðsstrákana okkar. Nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn hjá HSÍ. Uppselt var á nágrannaslaginn fyrir Norðan þar sem KA fór með sigur af hólmi. Selfoss halda áfram að koma á óvart og unnu Aftureldingu í gær. Kvennalandsliðið heldur til Færeyja í dag og var Arnar Pétursson á línunni. Þetta og svo miklu miklu fleira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 21 Nov 2025 - 1h 23min - 389 - Aukakastið - Díana Dögg Magnúsdóttir
Gestur Aukakastsins í nóvember er landsliðskonan Díana Dögg Magnúsdóttir. Díana Dögg fer yfir uppvaxtar árin í Vestmannaeyjum og hvernig hún fór í að læra flugvélaverkfræði í Þýskalandi. Hún er núna ásamt landsliðinu að undirbúa sig fyrir HM sem hefst í næstu viku.
Wed, 19 Nov 2025 - 1h 25min - 388 - Akureyrarslagur í opinni dagskrá og fimm bestu stelpurnar í vetur
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Sly komu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Ágúst Elí er án liðs og gæti verið á heimleið. Úr íslenskir leikmenn að fá afslátt í gagnrýni? Það er stórleikur fyrir norðan í vikunni og allar líkur á að það verði uppselt í KA heimilið. Hverjar hafa verið fimm bestu í Olís deild kvenna í vetur. Ættum við að fækka í 14 leikmenn á skýrslu á næsta ársþingi HSÍ? Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 17 Nov 2025 - 1h 14min - 387 - Slæm vika fyrir xG og eiga KA að sækja sér markmann?
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Alli Eyjólfs kíktu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi. Kíkti einhver á 35 manna lista fyrir HM kvenna? Þetta var slæm vika fyrir xG tölfræðina. Er KA einum góðum markmanni frá því að geta keppt um titla? Kvennadeildin aldrei verið jafnari og það gætu verið þrjú lið með jafn mörg stig fyrir HM pásu. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 14 Nov 2025 - 1h 19min - 386 - Landsliðshópur tilkynntur með e-maili og þjálfaralausir Stjörnumenn í landsliðsviku
Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi og erlendis. Það var lágstemmd stemmning þegar landsliðshópur kvenna fyrir HM var tilkynntur á föstudaginn og fengu fjölmiðlar e-mail með hópnum og hafði Sérfræðingurinn sitt að segja um það. Valur og Haukar fengu skell í Evrópukeppnunum um helgina. ÍBV rúlluðu yfir KA/Þór í Olísdeild kvenna og Stjarnan er ennþá í leit að sínum fyrsta sigri. Stjarnan sá aldrei til sólar gegn KA og var æfingarvika þeirra í landsleikjahléinu til umræðu í Handkastinu. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 10 Nov 2025 - 1h 03min - 385 - Árni Bragi er besti leikmaður deildinnar og Haukar setja stefnuna á úrslitakeppnina
Stymmi Klippari, Gaupi og Einar Ingi mættu í Handkast stúdíóið og gerðu upp vikuna í handboltanum hér heima. 9.Umferðin í Olísdeildinni fór fram í gær og ÍR voru næstum búnir að vinna sinn fyrsta leik á tímabilinu. Arnór Snær mætti í sinn fyrsta leik og virðist ætla að taka yfir deildina. Árni Bragi Eyjólfsson er besti leikmaður deildarinnar að mati Gaupa. Díana Dögg segir Hauka var að byggja upp nýtt lið og stefna sé sett á að komast í úrslitakeppnina. Evrópuhelgi hjá kvennaliðum Vals og Hauka. Þetta of svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 07 Nov 2025 - 57min - 384 - Björgvin til bjargar og hver tekur við kvennaliði Stjörnunnar?
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Jónsson mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp síðari landsleik Íslands gegn Þýskalandi. Björgvin Páll var að tryggja sér farmiðann á enn eitt stórmótið. Andinn í Strákunum okkar var allt annar í dag. Heil umferð fór fram í Olís deild kvenna um helgina. Leikmannamarkaðurinn er líflegur í Olís deild karla. Hver mun taka við kvennaliði Stjörnunnar? Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Sun, 02 Nov 2025 - 1h 11min - 383 - Þarf Snorri Steinn fleiri í þjálfarateymið og Patti Jó farinn frá Stjörnunni
Stymmi Klippari, Aðalsteinn Eyjólfsson og Einar Örn Jónsson mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Íslenska landsliðið áttu skelfilegan leik gegn Þýskalandi í gær og margar viðvörunarbjöllur sem Snorri þarf að bregðast við. Var skert þjálfarteymi Snorra Steins sökin? Alferð Gíslason er búinn að gjörbreyta þessu þýska landsliði og gæti unnið til verðlauna í Janúar. Powerade bikarinn fór fram í vikunni hjá stelpunum og mikið um óvænt úrslit. Stjarnan og Patrekur Jóhannesson ákvaðu að slíta samstarfinu í vikunni og leitar Stjarnan nú að nýjum þjálfara. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.
Fri, 31 Oct 2025 - 1h 04min - 382 - Þriðjungsuppgjör í Olís og getur eitthvað lið veitt Valskonum keppni?
Stymmi Klippari, Davíð Már og Geiri Gunn mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Getur eitthvað lið í Olís deild kvenna veitt Val keppni í vetur? Er Viktor Sigurðsson til Fram kaup ársins? Sambandslaust í Garðabænum og æsispennandi leikur í Vestmannaeyjum. Eru liðin sátt með frammistöðu sína eftir að þriðjungur deildinnar er búinn? Hverjir eru búnir að vera bestir og hvað hefur komið á óvart? Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins
Mon, 27 Oct 2025 - 1h 12min - 381 - Var vanmat hjá Haukum og leikmannasölur á Íslandi
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Handkast stúdíóið og fóru yfir vikuna í handboltanum. Viktor Sig var keyptur frá Val yfir í Fram en upphæðin er óljós. FH unnu Hafnarfjarðarslaginn í gær og deildin hefur aldrei verið jafnari. Þór ætla sér sæti í úrslitakeppninni og með Brynjar Hólm í þessu formi getur allt gerst. Valsmenn slökuðu heldur mikið á klónni í gær og hleyptu ÍR inn í leikinn. Heil umferð í Olís deild kvenna um helgina og þrír leikir í Olísdeild karla. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 24 Oct 2025 - 1h 08min - 380 - Aukakastið - Ágúst Þór Jóhannsson
Gestur Aukakastsins í Október er enginn annar en Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari meistaraflokks karla í Val. Gústi eins og hann er oftast kallaður fer yfir æsku sína í handboltanum sem byrjaði vestur í bæ hjá KR. Hann hefur komið víða við sem þjálfari og hefur frá mörgum skemmtilegum sögum að segja. Gjörið svo vel, vinir!
Wed, 22 Oct 2025 - 1h 07min - 379 - Við erum bara ekki betri en þetta og áhugaverðar viðureignir í Olísdeildinni
Handkastið fór yfir allt það helsta í handboltanum um helgina. Snorri Steinn valdi 17 manna landsliðshóp á föstudaginn fyrir æfingarleiki gegn Þjóðverjum. Íslenska kvenna landsliðið tapaði öðrum leiknum í röð gegn Portúgal í gær 26-25. 7.umferðir Olísdeildarinnar kláraðist um helgina þar sem ÍR-ingar eru límdir við botninn. Ræddum fólskulegt brot hjá Bjarna Ófeig gegn Val í síðustu viku. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 20 Oct 2025 - 1h 09min - 378 - Vanmátu íslensku stelpurnar Færeyjar og misjafnt gengi fyrir Norðan
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Handkast stúdíóið og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Íslenska kvenna landsliðið tapaði gegn Færeyjum í vikunni í undankeppni EM. Fram stóðu í Porto framan af en lentu svo á vegg síðustu 15 mínúturnar. Haukar halda áfram að vinna og eru komnir á topp deildinnar. KA hafa komið öllum á óvart í vetur og eru komnir í 3.sætið. Viðvörnunarbjöllur farnar að heyrast í Þorpinu? Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 17 Oct 2025 - 1h 04min - 377 - Það er allt í lagi að vera með grín, svo framarlega sem það fer ekki út í sprell
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Benni Grétars komu í Handkast stúdíóið á þessu sunnudagskvöldi og gerðu upp helgina í handboltanum. Stelpurnar okkar eru að fara í 2 leiki gegn Færeyjum og Portúgal í vikunni. HK skildu ÍR eina eftir á botninum og KA sigraði Fram í Úlfarsárdalnum en fékk að nota 8 leikmenn til þess. Haukar rúlluðu yfir ÍBV í Eyjum í dag án Arons Rafns sem var í löngu planaðari golfferð. Aðalsögulína leiksins voru þó meiðslin sem Daníel Þór Ingason leikmaður ÍBV varð fyrir í gær þegar verið var að taka um samfélagsmiðlaefni fyrir Olísdeildina. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Sun, 12 Oct 2025 - 1h 07min - 376 - Er erfitt að reka þjálfara í deildinni og sleppur Ívar Logi við bann?
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi gerðu upp vikuna í handboltanum. Bikarkeppnin var í fullum gangi í upphafi vikunnar og voru óvænt úrslit þar. Landsleikjahlé komið hjá stelpunum í Olísdeildinni fyrir leiki gegn Færeyjum og Portúgal. 6.umferð Olís deildar karla hófst í gær og voru Þórsarar með svakalega endurkomu í Kaplakrika. Boltabloggið finnst lítil þjálfaravelta á Íslandi. Er erfitt að rekja þjálfara í handbolta? Þetta og svo miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 10 Oct 2025 - 1h 08min - 375 - Stórveldi í vanda, sterkir nýliðar og gæða útlendingar
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Sly fóru yfir allt það helsta frá helginni í handboltanum. Bikarkeppnin er í fullum gangi og ævintýri ÍBV 2 lauk í gær þegar KA menn komu í heimsókn. ÍR unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu í gær og eru komnir í 8 liða úrslit. 4. umferðin í Olísdeild kvenna lauk um helgina og það er eru svakalegir leikir í vikunni hjá stelpunum. Topp 5 listar voru allsráðandi undir lok þáttar og fengu strákarnir allir sína heimavinnu fyrir þátt. Þetta og svo miklu miklu meira í þætti Handkastsins.
Mon, 06 Oct 2025 - 1h 02min - 374 - Erlingur nennir Handkastinu ekki og loksins vann HK
Stymmi Klippari, Davíð Már og Geiri Gunn mættu í Handkast stúdíóið í kvöld og gerðu upp 5.umferðina í efstu deild karla í kvöld. Þór og Stjarnan skildu jöfn í háspennu leik fyrir Norðan meðan KA og ÍR voru með markaveislu í kvöld. ÍBV tapaði gegn Selfoss og Erlingur Richardsson nennti ekki að ræða við Handkastið eftir leik. Afturelding eru einir á toppi deildinnar með fullt hús stiga eftir að hafa unnið meiðslahrjáð lið Fammara í kvöld. Hvað er í gangi hjá FH? HK tóku vel á móti Skólphreinsun Ásgeirs og unnu fyrsta leikinn síðan 21.febrúar. Eru Haukar farnir að hóta því að taka deildarmeistaratitilinn? Þetta og miklu meira í Handkast þætti kvöldsins.
Thu, 02 Oct 2025 - 57min - 373 - Ár og aldir síðan HK vann leik og svakalegur fimmtudagur framundan
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í boltanum. Gaupi fór yfir brottrekstur Gumma Gumm í Danmörku og Janus Daði Smárason varð fyrir skelfilegum meiðslum í gær. Haukar og Fram gerðu jafntefli um helgina en Haukar verða án Rutar í vetur þar sem hún er ólétt. Valskonur unnu fyrri viðureign sína í Evrópukeppninni í Hollandi meðan Selfoss tapaði með 6 mörkum í Aþenu. HK hafa ekki unnið leik í deildinni síðan 21.febrúar og frábær varnarleikur Stjörnunnar í síðari hálfleik skóp sigurinn gegn FH. Heimkomu Kára Kristjáns til Vestmannaeyja lauk með 6 marka sigri ÍBV og við heyrðum í Tedda Ponzu í lok þáttar og spáðum í rosalega umferð sem fram fer á fimmtudaginn. Þetta og miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Mon, 29 Sep 2025 - 1h 08min - 372 - Ristarspyrna Einars Jóns reyndist dýrkeypt og hverjir eru þessir menn?
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Andri Berg mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum, bæði hér heima og erlendis. Frammarar eru að glíma við gífurlega mikil meiðsli í leikmannahóp sínum og evrópukeppnin er handan við hornið. Darri Aronsson er mættur aftur á parketið eftir rúmlega 1.000 daga fjarveru frá handbolta. ÍR-ingar verða að fara að byrja leikina ef þetta á ekki að enda illa hjá þeim. Valskonur jarðtengdu ÍR stelpur eftir góða byrjun á tímabilinu og nýliðar KA/Þór eru á toppi deildinnar með fullt hús stiga. Nóg af handbolta um helgina bæði hérlendis og erlendis. Séffinn setti strákana í próf um hversu vel þeir þekktu leikmennina í Olís deildinni. Þetta og miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 26 Sep 2025 - 59min - 371 - Óvænt úrslit í Olís og Arnar að setja saman nýtt lið
Stymmi Klippari fékk til sín Gunnar Val og Sigurjón Friðbjörn til að ræða síðustu daga í handboltanum. Stelpurnar Okkar fór til Danmerkur og fengu skell gegn Dönum. Breytingarnar sem hafa orðið á landsliðinu undanfarin ár voru ræddar og þær áskoranir sem Arnar Pétursson landsliðsþjálfari stendur frammi fyrir. Óvænt úrslit voru í Olís deildinni á föstudaginn og allir þrír leikirnir enduðu með 1 marks sigrum. Hefur deildin aldrei verið jafnari? Cell-Tech Lið 3.umferðar í Olís-deild karla á sínum stað, Skólhreinsun Ásgeirs á ferðinni og heil umferð í karla og kvenna í vikunni. Hlustið á nýjasta þátt Handkastsins.
Mon, 22 Sep 2025 - 45min - 370 - Róbert Geir hættur og allt vitlaust í Eyjum
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættur í stúdíó Handkastsins og fóru yfir annasama viku. Róbert Geir hættir um áramótin hjá HSÍ eftir 22 ára starfsferil. Ásgeir Snær dæmdur í þriggja leikja bann eftir myndbandsupptöku. Erum við búin að opna pandórubox þar? Hitamálið í Eyjum sem allir eru að tala um. Klúðraði ÍBV framkvæmd leiksins algjörlega? 3.umferðin er komin af stað og klárast í kvöld. Þetta og miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Fri, 19 Sep 2025 - 1h 04min
Podcasts ähnlich wie Handkastið
El Partidazo de COPE COPE
Herrera en COPE COPE
La Linterna COPE
Panda Show - Sin Picante El Panda Zambrano
Es la Mañana de Federico esRadio
La noche de Cuesta esRadio
La Trinchera de Llamas esRadio
Hondelatte Raconte Europe 1
Affaires sensibles France Inter
LEGEND Guillaume Pley
El colegio invisible OndaCero
La Rosa de los Vientos OndaCero
Les grands dossiers de l'Histoire par Franck Ferrand Radio Classique
Espacio en blanco Radio Nacional
Entrez dans l'Histoire RTL
Le grand récit RTL
Les Grosses Têtes RTL
L'Heure Du Crime RTL
Parlons-nous RTL
El Larguero SER Podcast
Nadie Sabe Nada SER Podcast
SER Historia SER Podcast
Todo Concostrina SER Podcast
Un Libro Una Hora SER Podcast
