Filtra per genere

Handkastið

Handkastið

Handkastið

Podcast by Handkastið

469 - Sérveitin verður heima og Haukar ætla ekki að tapa leik
0:00 / 0:00
1x
  • 469 - Sérveitin verður heima og Haukar ætla ekki að tapa leik

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Gunnar Róbertsson heldur áfram að vera allt í öllu þegar Valur vann ÍBV. Guðjón Valur var fyrstur til að vinna Flensburg í þ´ýsku úrvalsdeildinni. Haukar ætla sér langt í Evrópu þetta árið. Línur eru farnar að skýrast í Olís deild karla. Tvær umferðir framundan í vikunni hjá körlunum. Stelpurnar fara aftur af stað í vikunni eftir landsleikjahlé. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

    Mon, 26 Oct 2026 - 1h 03min
  • 468 - 18 ára á meðal markahæstu leikmanna Evrópu og hverjir hafa komið mest á óvart?

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Gunnar Róbertsson er 5. markahæsti leikmaður Evrópudeildarinnar. Íslenska kvennalandsliðið vann Pólland í leik sem fór fram í kyrrþey í Póllandi. Línur farnar að skýrast í Meistaradeild Evrópu. Afturelding missti 2 leikmenn í meiðsli gegn KA. Markvarsla neðstu liða Olís deildinnar er áhyggjuefni. Nóg af handbolta um helgina. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

    Fri, 23 Oct 2026 - 1h 11min
  • 467 - Yfirvinna í Eyjum og allt undir á Selfossi

    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hérlendis og erlendis. Var eitthvað óvænt í landsliðshóp Snorra Steins? Þarf að breyta félagsskiptaglugganum í Evrópu? Þórsarar náðu 50% árangri í Eyjum um helgina en það var nóg að gera hjá dómaraparinu. Stjarnan er að koma öllum á óvart í upphafi tímabilsins. Hafdís mætti aftur í markið hjá Val og lokaði búrinu. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

    Mon, 19 Oct 2026 - 1h 17min
  • 466 - Valur með svarta beltið í Evrópu og fimm mestu harðhausar Olís-deildanna

    Sérfræðingurinn fékk Sigurjón Friðbjörn og Gunnar Val beint af grillinu í Rapyd-stúdíóið. Farið var yfir fyrstu tvo leikina í 6.umferð Olís-deildar karla og spáð í spilin í næstu leiki auk þess sem spa´ð var í spilin í 6.umferð í Olís-deild kvenna. Farið var yfir frammistöðu Vals og FH í Evrópudeildinni. Í lokin var farið yfir fimm mestu harðhausana í Olís-deildum karla og kvenna og var Sérfræðingurinn fenginn til að blind ranka leikmennina. Þar var mikið hlegið og mikið fjör.

    Thu, 15 Oct 2026 - 1h 03min
  • 465 - Facebook færslur og hvað er í gangi hjá Fram?

    Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Ásgeir Jónsson settust í Rapyd-stúdíó-ið og fóru yfir Facebook færslur, Olís-deild kvenna, Powerade-bikar karla, spáðu í spilin fyrir næstu umferð í Olís-deild karla og sitthvað fleira í þessum þætti. Erlingur Richardsson er ósigraður í Þýskalandi og óskum við honum til hamingju með það að hætti Maggi Stef. Valur og FH verða í eldlínunni í Evrópudeildinni þar sem Valur er í dauðafæri að koma sér í kjörstöðu í sínum riðli. Arnar Pétursson og Rakel Dögg Bragadóttir settust við lyklaborðið a´ dögunum og skrifuðu Facebook-færslur sem farið var vel yfir. Þá var velt fyrir sér þeirri ákvörðun Þórs að spila tvo leiki á tveimur dögum í Vestmannaeyjum um næstu helgi.

    Mon, 12 Oct 2026 - 1h 10min
Mostra altri episodi